Lögberg - 16.05.1894, Qupperneq 1
Lögherg er gefið út hvern miðvikudag ög
laugardag af
The LÖGBERG PRINTING & PUBLISHING CO.
Skrifstola: Atgreiðsl ustoia: r.cr.tcmiðjo
143 Princess Str., Winnipeg Man.
Kostar $'2,oo um árið (á íslandi 6 kr.
borgist fyrirfram.—Einstök númer 5 cent.
Lögberg is puMished every Wednesday and
Saturday by
ThE LÖGBERG PRINTING & PUBLISHING CO
at 148 Princess Str., Winnipeg Man.
Subscription price: $2,00 a year payable
in advance.
Single copies. 5 c.
7. Ar. } Winnipeg, Manitoba, niiðvikndaginn 1G. niaí 1894 Nr. 37.
FRJETTIR
CASADA.
Franska íhaldsblaðið La Presse í
Montreal segir, að Dominionstjórnin
muni ætla að reyna að fá þingið til að
senda bænarskrá til brezku stjórnar-
innar um f>að að stjórnarskrá Canada
(British North America act) verði
breytt samkvæmt kröfum kajrólsku
klerkanna,að J>vl er skólamálið snertir.
Tribune er telegraferað frá Ott
atva, að Dominionstjórnin hafi afráðið
að rjúfa Jiingið og láta almennar
kosningar fara fram svo fljótt sem hún
fái þvl við kotnið, og kveðst frjetta-
ritarinn hafa pá fregn frá vel kunnug-
um manni. Ef Aberdeen lávarður
leyfir það, segir frjettaritarinn, getur
vel verið að kosið verði eptir gömlu
listunum, en hitt er líklegra, að fyrir
pingið verði lagt frumvarp um að hafa
endurskoðunina einfaldari, svo að
kosningarnar geti farið fram í síðasta
lagi 1 janúarmánuði næstkomandi.
Rannsókn á að fara frama á Ott-
aivaþinginu á reikningum Josephs
Royals frá síðasta governors-ári hans
í Terrltóríunum. Kostnaður hans,
sem hann fjekk borgaðan pað ár af
stjórninni, nam um $17,000 í viðbót
við laun hans, og f>ykja sum atriðin
par í meira lagi undarleg. Er meðal
annars sagt, að hann hafi varið nokkru
af pví fje til að mennta fjölskyldu
sína. Ýmsir af helztu embættismönn-
um innanlandsmáladeildarinnar eiga
að bera vitni í málinu,og verður pess
að líkindum krafizt, að framburður-
inn verði eiðfestur.
BANDARIKIN.
„Tjaldbúð1- Dr. Talmage 1 Brook-
lyn brann á sunnudaginn, og hafði
kirkja sú kostað |t325,000. Dað er í
priðja skipti, sem kirkja hans brenn-
ur, og allarhafapær brunnið á sunnu-
dögum. Engu varð bjargað út úr
kirkjunni, nema mönnum, sem í lienni
voru um 200 að tölu. Það sem talið
er að Dr. Talmage muni taka sjer
einna næst að missa er nokkrir steinar,
sem hann kom með úr austurför sinni,
og settir höfðu verið inn í vegginn
hægra meginn við orgelið. Einn
pessara steina var af Golgata-hæðinni,
og stóð á honum orðið „fÓrn-‘; annar
var af Sinai-fjallinu, og stóð á honum
orðið „lögmálið“, hinn priðji var af
Marshæðinni og stóð orðið „fagnaðar-
erindi“ á honum.
étlOjíd.
Kólera er af njfju komin upp í
Póllandi og hafa Prússar sett gegn
henni samskonar vörð á landamærin
eins og peir settu í fyrra.
Búizt er, að sögn, við pvl að al-
mennar kosningar fari innan skamms
fram á Stórbretalandi og írlandi, og
eru flokkarnir pegar faruir að safna
stórfje til undirbúnings peim kosn-
ingum. Einkum er lagt fram óvenju-
lega mikið fje af hálfu íhaldsflokksins,
og bendir pað á, að hann muni ekki
ætla að láta neitt ógert 1 þetta sinn
til pess að vinna sigur.—Sá hluti
frjálslynda flokksins, sem lengra vill
fara í breytingaáttina ætlar að halda
flokksping snemma i næsta mánuði,
og á par meðal annars að heimta af-
nám á neitunarvaldi lávarðamálstof-
unnar, heimastjórn á írlandi, kosn-
ingarrjett handa öllum fullorðnum
karlmönnum,og afnám pjóðkirkjunnar
hvervetna á Stórbretalandi,
Ung svertingjastúlka frá Memph-
is, Tenn., Ida Wells, er komin til
Lundúna til þess að vekja hjá Eng-
lendingum andstyggð á manndrápun-
um án dóms og laga (lynch justice),
sem svo mjög er beitt við svertingja
í suðurríkjunum. Hefur hún lialdið
par fyrirlestra og henni verið mjög
vel tekið. Hún gerir sjer góða von
um, að almennirigsálitinu á Englandi
muni takast að Jiafa þau áhrif vestan
Atlantahafsins, að Bandaríkjamenn
leggi pennan skrælingjahátt niður.
Samkomulagið milli stjórnanna í
Brazilíu og Portúgal er orðið svo stirt,
að Brazilíuforsetinn liefur kallað heim
sendisveit sína í Lissabon. Deiluefn-
ið er pað, að uppreistarmenn frá
Brazilíu leituðu atlivarfs á portúgölsk-
um herskipum, pegar komið var í fullt
óefui fyrir peim, og stjórn Portúgals
neitaði að framselja pá.
Kóleran breiðist út hræðilega í
sumum suðurhjeruðum Rússlands.
Enda pótt óvenjulega miklar varnar-
ráðstafanir hafi verið gerðar, óttast
menn pó, að pestin muni verða eins
skæð í ár eins og í fyrrasumar.
Smjer og ostagerð
í Manitoba.
Það er mjög gleðilegt, live mik-
ill áhugi sýnist vaknaður fyrir smjer-
og ostagerð hjer í fylkinu. Allmörg
smjer- og ostagerðarhús á að reisa í
sumar, og hefur Kyrrahafsbrautarfje-
lagið canadiska og Ottawastjórnin
lofað að styðja pá atvinnugrein í vest-
urhluta landsins. C. P, R. fjelagið
ætlar, að sögn, að reisa hús fyrir pessa
atvinnugrein hjer og þar með fram
braut sinni. Húsin verða svo leigð
bændum fyrir í mesta lagi 5 af hndr.
af fje pví sem til þeirra hefur verið
varið. Dominionstjórnin ætlar að
hafa mann á ferðinni til þess að hafa
yjirumsjón með smjergerðinni. Með
pessu ætti að takast að hrinda pessari
atvinnugrein allmikið áleiðis. Bænd-
ur hafa víða verið að halda fundi að
undanförnu og ræða um þetta mál, en
framkvæmdir hafa strandað á fjeleysi,
og sjálfsagt meðfram líka á pekking-
ar- og reynsluleysi. Nú virðist mál-
ið vera að komast í gott horf, að því
er snertir peningana til að byrja, og
pað er vonandi, að mönnum takist að
fá færa menn til að standa fyrir fyrir-
tækjunum. Því að pað er vafalaust
rjett, sem Commercial segir á laugar-
daginn var: „Ekkert hefur meiri
pýðing fyrir bændalýðinn en smjer-
og ostagerð. Hún er vörður gegn
hörðum tímum og deyfð í viðskiptum,
og pegar allt annað bregzt, má treysta
á að hún haldi mönnum tiltölulega
sjálfstæðum. Hún gefur staðfestu í
viðskipta-ástandið, ogsljettir úr peim
mörgu misfellum, sem menn verða á-
vallt fvrir, par sem kornrækt er ein-
göngu stunduð“.
Oóð eptirtekt.
Ritstjóri Lögbergs,
Kæri herra!
Sá sem hefur skýrt yður frá, að
jeg hafi trúað bryggju-,,loforðinu
eins og nýju neti“, eins og pjer getið
um á miðvikudaginn 25. apríl, hefur
vikið frá sannleikanum rjett á meðan
og um leið ímyndað sjer, að jeg tryði
Mr. Bradburys loforðum betur en
annara; en öll loforð að mínu áliti
styrkja vonir manns en getaekki gef-
ið manni vissu um áreiðanlegleika og
par afleiðandi ekki veitttrú á pví sem
er að eins loforð. Hjer er ekki um
marga að gera til frásagna, að eins
sveitarnefndarmenn prjá,- skrifarann
G. Thorsteinsson og Pjetur Bjarna-
son virðingamann sveitarinnar, og er
ólíklegt, að J>eir liafi misskilið J>að sem
rætt var um bryggjumálið.
E>að var rætt um fiskiveiða-lögin
— sem breytt liefur verið til liatnaðar
fyrir Ný-íslendinga — jafnhliða
bryggju hugmyndinni, og er pví ekki
óhugsandi að misskilningurinn liggi 1
pví, að jeg lagði trúnað á pað sem
orðið var og lýsti ánægju minni yfir
breytingunni, sem er svo mikilsvarð-
andi fyrir byggðina í heildinni, (en
ekki á loforði um bryggju). Jeg get
sýnt almenningi, þegar vill, að Mr.
Bradbury er maðurinn, sem starfað
hefur að þessari fiskilagabreytingu.
Jeg skal láta yður vita, pegar jeg
fer að trúa á þetta urorædda bryggju-
loforð.
Jeg vil svo biðja yður að gera
svo vel að láta Lögberg færa oss
þessar fáu línur.
Virðingarfyllst,
Hnausa P. O. 2. maí 1894.
Stephan Sigurdsson.
Mexicönsk saga.
Mr. Hal Reavis var að syngja.
Það var nú ekkert sjerlega merkilegt
við pað, pví þótt hann legði fyrir sig
málafærslumannsstörf, var eigi sjálf-
sagt að allur skáldskapur og tilfinning-
ar væru horfnar úr bíjósti lians, nje að
hann legði hapt á hina fögru tenor-
rödd sína. Eigi er pað heldur í neinni
ósamkvæmni við petta starf lians,þótt
hann kysi alkunnugt óperulag fyrir
morgunsöng sinn. Enda var það al-
talað meðal borgaranna í Qvicksilver
City, par sem Mr. Reavis átti mikinn
starfa í vændum, að hinn ungi laga-
maður hefði á unga aldri strokið að
heiman, úr austurfylkjunum, með
söngleikaraflokki einum, og hefði að
slðustu, eptir margbreytt flakk, pá er
hann ýmist hafði verið jarðeigandi
eða aðal-tenór, flækzt vestur á við og
hengt par út titilbrík sína sem H.
Reavis, málafærslumaður. Hversu
mikið rar satt í þessu varð aldrei
sagt með vissu. Að pví er snerti Mr.
Reavis sjálfan, pá bar hann hvorki á
móti orðróm þessum nje heldur bætti
par nokkru við eða lagaði; en Qvick-
silverbúar höfðu einhverja þegjandi
óbeit á pví að forvitnast um liðna
tíma.
Jafnan eptir að Sandy McGinners
haf ði verið skotinn af pví að hann af
tilviljun spurði Exham Smith, sena-
tor, hvort þeir hefðu eigi sjezt í betr-
unarhúsinu í Illinois, var talið fara
bezt á pví, að „láta hina dauðu grafa
sína dauðu.“
En hvernig sem pessu var varið,
J>á liafði Mr. Reavis furðu fögur liljóð
og söng hann liann nú lag með hnar-
reistu höfði og hattinum í hendinni,
bæði skýrt og sætt, eins og maður,
sem er gagnkunnur laginu og hefur
gaman af að syngja pað. Kann vera
að honum hafi fundizt eins og hann
stæði aptur á leikpallinum og kvæði
eldheit ástarljóð fyrir fagurri leikmey.
En Ifklegra var, að góður morgun-
verður, kurteis liúsdrottinn og líkind-
in fyrir mánaðar livíld á skrautlegum
búgarði, undir pví yfirskyni að hafa
starf með höndum fyrir eigandann,
miðuðu fremur til pess að setja hann
1 gott skap og koma lionum til að
láta tilfiuningar sínar 1 ljós með
söng. Líkar orsakir hafa valdið lík-
um afleiðingum og var því, eins og
áður er tekið fram, ekki neitt sjer-
staklega athugavert við petta. En
merkilegt var, að einmitt par sem hin
fríða ástmey hans átti að taka undir
með hljómfögrum, skærum, sterkum
og fuglslegum tónum, par tók ein-
hver rödd, sem hann vissi ekkert
hvaðan kom, upp lagið og söng pað
til enda, án þess að hika sig hið
minnsta. Reavis brá við, og lá við
að hann liætti að syngja, svo hissa
varð hann, en vaninn varð yfirsterkari
og hann gleymdi sjálfum sjer og hjelt
áfram. Rísandi, fallandi, svarandi,
kallandi liðu raddirnar saman og er
hin síðasta nóta Ijek í titrandi loptinu,
pá áttaði hann sig með því að setja á
sig hnykk, og leit í kringum sig rneð
hinum ólýsanlega svip, er sjest á
andiiti manus pess er fallið hefur á
liálum vegi og rís á fætur.
Hann skildi lltið I þessu og fór
nú að rannsaka betur en fyrr pað, er
var næst honuri. Hann hafði gengið
út I garðinn við húsið, til þessaðanda
að sjer morgunloptinu og virða fyrir
sjer hvernig umhorfs væri á staðnum,
og paðan hafði honum orðið reikað
inn I annan garð, er alsettur var
blómum og smárunnum, en eigi voru
pau svo pjett, að nokkur gæti díilizt
par. Húsið sjálft, með hinum forn-
spánversku göngum og glersvölum,
stóð I utanverðum garðinum og litla
porpið með leirkofunum var fulla
mílu I burtu, en röddin kvað við rjett
hjá honum. Hár steinveggur skildi
garðinn frá garði gamallar kirkju og
klausturs, er fyrir æfalöngu hafði
lagzt I eyði. Hugsanlegt var, að
söngurinn heyrðist þaðan. Hann fór
að syngja á ný. Aptur svaraði rödd-
in. Já, hann gat rjett til. HJjóðið
kom úr Jieirri áttinni.
Hann klifraði upp og leit yfir
vegginn, en varð einskis visari, pvl
að eigi var neitt sýnilegt þar niðri I
garðinum. Eigi var par annað að sjá
en gamla, hálfbrotna sólskífu og fá-
eina steinbekki,par sem gömlu munk-
arnir voru vanir fyrir löngu síðan fð
hvílast undir olíuviðartrjánum. Ah’t
I einu pótti honum som hann yrði ó-
ljóslega áskynja pess að einhver,
helzt kvennmaður, bældi niður I sjer
hláturinn. Sje nú nokkuð það t’J, er
ungur maður, eins og almennt gerist,
eigi fær staðizt, pá er það stúlku-fliss,
ekki sízt ef hann heldur að hún sje að
hlæja að honum sjálfum.
Reavis var gramt I geði, én ein-
mitt þegar hann var að velta fyrir
sjer ýmsum drápgjörnum hefndar-
orðum, varð honum litið upp I trjen.
í>að voru hrufótt og kvistótt gömul
olíuviðartrje, er munkarnir höfðu flutt
með sjer I útlegð sína, frá hinum sól-
bjarta Spáni, og pó að þau væru nær
pví aldar-gömul, báru pau enn græn-
ar greinar. Einkum var eitt peirra
bogið og undið líkt og stigi og þar
sá hann sitja mjög þægilega milli
greinanna stúlku þá, er hafði leikið
svona á hann.
En hún var alls ekki svo hræði-
leg ásýndum, og er hann leit framan I
dökk, glettin augu, var sem Reavis
pegar I stað fyndi reiði sína hverfa
á burt.
„Heyrið pjer stökkvið pjer ekki
upp á nef yðar, en komið yfir um og
talið við mig“, sagði hún hlæjandi;
blíðkaðist hann allmikið við petta og
klifraði yfir vegginn og gekk að
trjenu. Bauð hún honum nú nær og
reyndi hann pá að fara upp trjeð og
var pað hægðarleikur fyrirliann, jafn-
sterkan og ungan mann. Rýmdi liún
fyrir honum I laufbyrgi sínu, og pá
er hann hafði orðið pess áskynja að
hún var að eins 16 vetra og hafði tek-
ið eptir pví, hve hinir spinversku
andlitsdrættir og augu hennar skáru
af við ljósa hárið og hörundslitinn pá
hvarf leiði hans gersamlega og hann
varð ei að eins hinn sami aptur, held-
ur fannst honum mikið um hinn nýja
kunningja sinn.
„Jeg pekki yður“, tók hún til
mils hálf-galgopalega, „pjer eiuð
pessi málafærslumaður frá Bandarlkj-
u ium, sem eruð komnir hjerna til að
h jálpa Don Miguel til þess að brugga
einhverja rfðagerðina. Og nú býst
jeg við að yður fýsi að vitá, hver jrg
er. í Mendocino hjeraðinu var jeg
rjett og sljett Jóa, en síðan amma
mía sálaðist og jeg kom liingað hef
jeg verið Dona Jovita Peralta11. £n
pað kveður nú ekki mikið að mjer,
pví jeg er ein af þessum „fátæku
ættingjum“. Mjer lízt allvel á 3 ð-
ur, en jeg vona að J>jer hafið ekki
aðrar eins gætur á mjer og (>essi \ ið-
bjóðslegi Don Miguel“.
Mr. Reavis roðnaði við lofs oið
pessi, er hún dró svo litlar dulur á og
spurði á hvern hátt hinn virðulogi
don hefði fallið svo illa I geð hennar.
„Ó, hann er allt af að skamma
mig, og svo liefur hann sett Ijóta
kerlingu til að gæta mín, og J>egsr
jeg laumast burt frá henni, af pví nð
hún er allt af að draga ýsur, pá bölv-
ar hann henni á spánversku. Harn
heldur, að jeg skilji sig ekki, en jeg
heyrði hann hóta henni að skera liana
á háls og senda mig I klaustur næsta
skipti, sem hann sæi mig vera að
flækjast kringum pessagömlu kirkju.
Og hún hló við hirðuleysislega, eins
og henni mundi þykja gaman að sjá
hann standa við pá hræðilegu hótun.
„Hvað er þetta? Jeg hjelt að
doninn væri sá stiJltasti, tígulegasti
og kurteisasti maður, sem til er,“
sagði Hal, og furðaði hann mjög á að
heyra slíkt um mann panri er liann
dvaldi hjá,
„Ó, pjer þekkið ekki pessa dóna!
Deir geta verið eins kurteisir eins og
pjónar I veitingahúsum,og svo stung-
ið I yður hníf, þegar pjer hafið snúið
við þeim bakinu.“ Meira.
Odyrasta Lifsahyrgd
Matual Heserve Fund Life
Association of New York.
Assf.ssment System.
Tryggir lif karla og kvenna fyrir
allt að helmingi lægra verð og með
betri sRilmálum en nokkurt annað jafn
áreiðanlegt fjelag i heiminum.
Þeir, sem tryggja líf sitt í fjelaginu,
eru eigendur þess, ráða i>ví að öllu leyti
og njóta alls ágóða, )>ví hlutabrjefa höf-
uðstóll er enginn. Fjelagið getur því
ekki komizt í hendur fárra manna, er
hafl það fyrir fjeþúfu fyrir sjáífa sig og
ef til vill eyðileggi það.
Fjelagið er innbyrðis (mutual) lífsá-
byrgðarfjelag, og hið langstærsta og öfl-
ugasta af þeirri tegund í veröldinni.
Ekkert fjelag í heiminum hefur
fengið jafnmikinn viðgang á jafnstutt
um tíma. Það var stofnað 1881, en hef-
ur nú yflr
Sj tíu þvsund meölimi
er hafa til samans lífsábyrgðir úpp á
meir en tvö hundruð og þrjdtíu milljónir
dollara.
Fjelagið hefur síðan það byrjaði borg-
að ekkjura og erfingjum dáinna meðlima
yfir 14% mitljónir dollara
Árið sem leið (1892) tók fjelagið
nýjar lífsábyrgðir upp á liðugar 60 millj-
ónir dollara, en borgaði út sama ár erf-
ingjum dáinna meðlima $2,705,000,00.
Varasjóður fjelagsins, sem nú er
orðinn nál. milljon doilara, skiptist
milli meðlima á vissum tímabilum.
I fjelagið hafa gengið yflr 370 /s-
lendingar er hafa til samans tekið lífs-
ábyrgðir upp á meír en $600,000.
Upplýsingar um fjelagið eru nú til
prentaðar á íslenzku.
W. II. Paulson
Winnipeg, Man
General agent
fyrir MaD, N. W. Terr., B. Col. etc.
A. R. McNICHOL, Mclntyre Block,
Winnipeg. Mauager í Manitoba, Norð
vesturiaudinu og Britisb