Lögberg - 13.06.1894, Blaðsíða 4
4
LÖGBERG, MIÐVIKUDAGINN 13. JÚNÍ 1894
ÚR BÆNUM
-OG-
GRENDINNI.
Ritstjóri blaðs þessa, Mr. Einar
Iljörleifsson, veiktist hastarlega um
miðdegi á mánudaginn var, og hefur
legið mjög veikur síðan. Nú, pegar
blaðið er að fara í pressuna, er sagt
að honum sje lítið eitt að ijetta.
Um leið og regniðskall á á laug-
ardaginn var, kom sVo knappur bylur
að smá skaðar og slysfarir hlutust af,
ekki var neitt af pvl stórkostlegt.
Laugardaginn 9. p. m. voru Mr.
Stefán Ólafsson og Miss Jóhanna
María Friðriksdóttir, bæði til heimilis
hjer í bænum, gefin saman f hjóna-
band af sjera Hafsteini Pjeturssyni.
Hon. Arni Björnsson frá Grand
Forks, fyrrum pingmaður fyrir N.
Dakota, kom hjer til bæjarins á föstu-
daginn var, og fór aptur til baka á
sunnudaginn.
Páll Eyólfsson, 524 Young Str.,
tekur að sjer fyrir lægri borgun en
nokkur annar að grafa kjallara, tyrfa
fleti, smfða skfðgarða kringum hús og
ymislegt fleira.
Doctor H. W. Porter, yfir læknir
á sjúkrahúsinu hjer, dó á mánudags-
morguninn var, eptir 22 daga legu í
taugaveiki. Hann var mjög efnileg-
ur maður og í góðu áliti, að eins 29
ára gamall.
Sökum veikinda hefur Mr. E.
Hjörleisson ekki getað annast um út-
gáfu pessa blaðs. nema að nokkru
leyti, og eru lesendur pví beðnir að
taka ekki hart á missmíðum, sem á pvf
kunna að finnast.
Af fundi, sem bæjarstjóruin hjelt
á mánudagskveldið, má ráða, að nokkr-
ar umbætur verði gerðar lijer f bæn-
um f sumar. Einkum kubbalagning
á strætum og steingangstjettir í stað-
inn fyrir trje.
í ráði er að hestavagnar Austins
fjelagsins, sem að mestu leyti hafa
verið lagðir niðurhjer í bænum, verði
fluttir til Brandon, og brúkaðir á
járnstrætabrautum, sem par eigi bráð
uti að byggja.
Bændur tveir úr Argyle-byggð,
Mr. Sigurður Christopherson og Mr.
Andrjes Helgason komu til bæjarins
á laugardaginn. t>eir segja akra f
góðu útliti par, en lengri bið eptir
regni muni valda skemmdum. E>ann
sama dag kom regnið.
Mr. II. J. Skaptason, sem lengi
hefur haldið greiðasöluhús að 605
Ross Ave., er nú fluttur til 530 á sama
stræti. Hann segist nú hafa betra
hús en áður, og bjfður pví gamla og
góða viðskiptavini sína velkomna til
sín aptur.
4. júní andaðist lijer í bænum
Helga Halldórsdóttir, 84 ára gömul
ekkja — ættuð úr Breiðdal á austur-
landi — tengdamóðir Dorsteins Ant-
oníussonar Argylebyggð og Guð-
mundar Sveinssonar hjer f bænum.
Jarðarför hennar fór fram p. 5. p. m.
Mr. B. L. Baldwinson er nú sem
stendur niður í Nyja íslandi að taka
skyrslur! t>að er meira en lítil hugs-
unarsemi af blessaðri Ottawastjórn-
inni að láta fara að búa til skyrslur
núna, eins margt annað eins og húu
hefur pó að hugsa um um pessar
mundir í pví kjördæmi.
Frá Bru P. O. í Argyle-nylend-
unni er oss ritað 7. p. m.: „Sffelldir
purkar eru, ekki komið dropi úr lopti
í meira en mánuð. Hveiti byrjað að
gulna og fjöðrin að leggjast út af, og
skærasti geisli uppskeruvonarinnar
farinn að vaða f skyjum efasemdanna.
Annars heilsufar gott, og sáralítill
volæðissöngur enn“.
Eptir langsama purka kom loks
regn á laugardaginn var. t>ví miður
urðu sumir partar hjer í fylkinu út-
undan með pað, og par á meðal byggð
íslendinga í Argyle, eptir pví sem oss
er skrifað. Aptur rigndi lítið eitt
fyrri part mánudagsins, en vjer vitum
ekki hve víða pess hefur notið.
Stórkostlegan skaða hafa vatna.
vextir orsakað í British Columbia.
Mest hefur C. P. R. fjelagið liðið við
pað.En aptur hefur pað orðið til hagn-
aðar fyrir marga atvinnulausa menn
hjer í bænum, pví fjelagið hefur tekið
fjölda manna hjeðan til að vinna
par vestra.
Foresters-deildin Isafold hefur
ákveðið samkvæmt leyfi High Court
að gefa nyjum meðlimum upp meir
en helming inngangseyrisins pangað
til 1. júlí næstkomandi, en ekki lengur.
E>etta eru kostaboð, sem peir ættu að
hagnyta sjer, sem ekki ti’heyra neinu
bræðra-fjclagi, ogsem enga lífsábyrgð
hafa keypt. Auk annara hlunninda
f pessu fjelagi er lífsábyrgðargjaldið
hið lægsta hugsanlegt. Frekari upp-
lysingar gefur E. Gíslason, 601 Ross
Avenue.
A mánudaginn fundu menn, sein
voru að grafa kjallara á bakka Ass-
iniboine árinnar á bak við Hudsons
Bay fjelags hesthúsin, beinagrind af
manni, og er talið líklegt að par sje
nú loksins fundið Ifk Thomas Scotts,
sem myrtur var af Louis Riel og hans
fjelögum 4 marz 1870, sem marga
rekur minni til. Beinagrind pessi var
í eikarkistu, hjer um bil 2. feta djúpt
í jörð niður, og virðist pað sanna að
maðurinn hafi verið grafinn í flyti.
Kistan með beinagrindinni verður
geymd og frekari rannsókn hafin síðar
meir.
I>a«Y verður a3 fara.
í fáa daga að eins, sel jeg öll
5, 5J, 6, q, 7, 74, 8, 84, 9, 94 centa
Prints á 5c. yarðið. Ennfremur öll
10,104.11,114,12,124, 13, 134 og
14 centa Prints á lÖc., og öll Prints
yfir 14c. á 124c.
í dag að eins, sel jeg drengjaföt
með 20 prct. afslætti.
G, Johnson,
S. W. Cor. Rosu & Isabell St’s
Skrítið sjálfsmorð var nylega
framið á bújörð einni skammt frá
Melita. Tveir Svíar bjuggu á jörð-
inni, er peir höfðu að leigu. Annars
peirra var saknað á föstudaginn var
og fannst hvergi pó leitað væri, par
til að fjelagi hans á laugardagsmorg-
uninn fór inn í hænsnahúsið að gefa
hænsnunum. Sá hann pá hvar hinn
hjekk dauður á sperrunum. Eigi vita
menn nokkra ástæðu til sjálfsmorðs
pessa, pví maðurinn var reglumaður,
nje fá heldur skilið hví maðurinn
valdi pennan stað til pcss að stytta
sjer stundir.
Eitt sem ekki má gleymast. — í
pakklætisskyni fyrir góð viðskipti
hefur Gunnl. Jóhannsson, kaffihús-
haldarinn hjer í bænum, gertpá álykt-
un að framvegis muni hann gefa öllum
sínum viðskiptavinum sjerstök kjör-
kaup á laugardögum, t. dæmis 9
„Soda Water“ flöskur á 25c., „Oran-
ges“, „Lemons“, „Bananas“, „Pine
apples“ og „St. Berries11 með fimmta
parts afslætti. „Mixed Cream Can-
dies“, sem vanalega er selt á 15 og
20c. verður pá lOc. pundið og allt
eptir pcssu. — lOc. vindlar t. d. „Ben
Hur“, „Republick“, „La Hispania“,
„Cream Da La Cream“ og fl., sem
hvergi seljast betur en 3 fyrir 2ðc.5
verða pá 4 á 25c. Ennfremur nokkr-
ar lOc. sortir t. d, Cuba Leaf, Impor-
tation og Smokers Club á 5c. hver, en
hinir vanalcgu 5c. vindlar 8 á 25c. og
margt fleira með „Wholesale“ verði.
Nú er talið vafalaust að kosning
í Lisgar sje fyrir hendi. Mjög tíðir
fundir hjá stjórnarsinnum og mikil
ráðagerð um hver eigi að bjóðast
♦=' " ~==»
þessi orð “liarðir tímar” kvcða svo almennt við á pessu vori, aðmenn
ættu að athuga hvar þeir fá mest og bezt fyrir pcninga slna.
STEFÁN JÓNSSON á norðaustur liorni Ross og Isahell hcfur nú
fengið inn afarmikið af allskonar sumarvarningi, sem hann selur með
óvanalega lágu verði móti peningum. Komið að eins inn og sjáið hvað
hann hefur að bjóða áður en þjer kaupið annarsstaðar, og þjer munið
sannfærast um sannleikann. Komið sem fyrst meðan úr nógu er til að
velja úr. — Allir velkomnir smáir og stórir.
Nordaustur horn Ross og Isabell stræta
BURNS&CO.
pr. Steftln Jónsson.
fram frá peirri hlið. Það gengur eins
og opt er farið að verða fyrir peim
flokk, illa að fá góða menn til að gefa
kost á sjor. Óánægja við stjórnina
er mögnuð út af tollmálinu, eyðslu-
somi og inörgu öðru, og eptir úrslit-
unum hjer í Winnipeg síðastliðinn
vetur að dæma, pykja lítil líkindi til
að maður af peim flokki komizt að.
Góðir og dugandi meun vilja pví ekki
ganga út í sjáanlegan ósigur, og all-
ur fjöldi peirra líka orðin gersamlega
mótfallinn stefnu pess flokks. En
pegar svo stendur á, eru tækifæri fyr-
ir pólitískar undirtillur að fá útnefn-
ingu, og pví er nú líka Bradbury
pessi sem vill láta pakka sjer bryggj-
urnar væntanlegu á Gimli, kominn á
umsækjenda skrá, ásamt nokkru öðr-
um viðlíka görpum.
Niðuk jied r. r. a.
Svo sögðu congregationalistar frá
Ountario og Quebec nylega samein-
aðir á fundi í Toronto.
Eptir nokkrar umræður andmæl-
andi peim flokki, var sampykkt álykt-
un með premur fjórðu atkvæða, að
pað væri raunalegt að slíkum fjelags-
skap hefði verið komið á fót, pví hann
hlyti að koma f bága við pann grund-
völl, sem jafnrjetti og frelsi trúar-
bragðanna væri byggt á.
P. P. A. er skammstafað:’ Prote-
stant Protective Association, og er
pað nafn á pólitiskum flokki, sem
myndaður hefur verið I pví skyni, að
verjast pólitiskum yfirgangi kapólskra
manna,
VlN»LA- OG TÓBAKSliÚÐIN
“The Army and Navy”
er stærsta og billegasta búðin í borg-
inni að kaupa Reykjarpípur, Vindla
og Tóbak. Beztu 5c. vindlar í bænum.
537 Main St., Winnipeg.
W, Brown and Co.
Landar! ♦ ♦ ♦
í sumarhitunum purfið pjer eitthvað
gott og hressandi til að svala yður á.
Jeg er nybúinn að fá drykki sem eru
bæði hollir og ljúffengir; peir eru
búnir til úr einirberiasafa osr kcsta
lítið.
Reynið pá.
G. P. Thordarson,
587 Itoss Ave.
Seynoor Bouse,
jnarket Square % Winnipeg.
(Andspænis Markaðnum).
Allar nýjustu endurbætur. Keyrsla ókeypis til
og frá vagnstoðvum. Aðbúnaður hinn bezti.
John Baird,
eigandi.
DR. ARGHER,
sem að undanförnu hefur verið læknir
peirra Milton búa í Cavalier Co., N.
D. og lifað par, er nú fluttur til Cryst-
al PembinaCo., N.D., og hefur ákvarð-
að nú framvegis að vera á Mountain
P. O. á hverjum laugardcgi frá klukk-
an 10 f. m. til kl. 4 e. m. Þeir sem
purfa læknislijálp geri svo vel að gá
að pessu.
Nytt Ijelag!
^ Nyir prísar!
Timbur til hósabygginga með lægra verði en
nokkru sinni áður,
llús byggð og lóöir seldar móti mánaðar
aflxngunum,
Nákvæmari upplysingar fást hjá undirrituðum,
John J. Vopni,
(aðalumboðsmaður meðal Islendinga),
645 Ross Avc., Winnipeg.
ÍSLENZKUR LÆKNIR
Dr- M. HalldoFsson.
Park River,-N. Dak.
235
að hún skyldi hafa komið í hans bát — psð var ef
til vill af pvi að hún var orðin preytt á prestinum.
Hann óskaði, að hún væri öll á burtu, og saint mundi
honum hafa pótt fyrir pví, ef hún hefði farið.
Að hinuleytinu langaði Júönnu til að fá hann
tíl að tala, en vissi ekki, hvernig hún átti að fara að
pví að rjúfa pessa önuglyndislegu pögn hans. Allt
1 einu hallaði hún sjer aptur f bátinn og tók að syngja
með sterkri contralto-v'óAá, svo að hann komst við.
Hann hafði aldrei heyrt hana syngja fyrr, hafði sann.
ast að segja ekki um mörg ár heyrt neinn góðan
s ing, og honum pótti ánægja að söng. I>að var por-
túgalskur ástarsöngur, sem hún söng,mjög viðkvæm-
ur og ástríðuríkur, og var par unnusti að ávarpa
látna ástmey sína. Hún söng hann af mikilli til-
finning. Allt f einu hætti hún, og hann tók eptir
pví að yndislegu augun hennar voru full af tárum.
Svo hún hafði pá einhverja tilfinning!
„Þetta er of raunalegt,“ sagði hún og liló við
lftið eitt, og svo fór hún að sytigja Kaffa-róðrarsöng
nokkurn. Suðurálfumenn Rodds hlökkuðu til að
koma heim aptur, og tóku undir með mestu kátfnu.
Svo varð hún bráðlega preytt á pessum róðrarsöng,
og fór að syngja franskt smákvæði, hálf-viðkvæmt
og hálf-ganiansamt. „Jeg preyti yður,“ sagði hún.
„Jeg byst við að pjer hafið ekki mikið gaman af
söng.“
„Þvert á móti, Miss Rodd, mjer pykir mjög
mikil ánægja að hoaum. Þjer hafið góð hljóð, ef
236
pjer viljið lofa mjer að segja pað, og pau hafa verið
vel æfð. Jeg skil ekki til fulls, hvernig pjer hafið
getað fengið tækifæri til að læra svo margt, frönsku
og söng til dæmis.“
„Jeg byst við, Mr. Otram, að yður finnist að jeg
ætti endilega að vera nokkurs konar villikona; en
sannleikurinn er nú sá, að pó að jeg hafi átt heima
við Zambesi, pá licfur mjer ekki veriðpess varnað að
læra dálítið. Það eiga sjer ævinnlega stað töluverð
viðskipti á íljótinu, svo að við höfum getað fengið
bækur og annað, og við höfum við og við komizt í
kynni við kaupmcnn,ferÖamenn og trúboða frá Norð-
urálfunni. Svo er faðir minn af góðum ættum og
vel menntaður maður, pó að svo hafi staðið á fyrir
honum, að hann hafi orðið að eyða ævinni á pessum
eyðistöðvum. Hann var lærður maður á sínum tíma
og hefur kennt mjer töluvert, og jeg hef bætt nokkru
við mig með lestri. Jeg var líka nærfellt prjú ár í
skóla i Durban, og gerði pað sem jeg gat til að láta
mjer fara fram par. Mig langaði ekki til að alast
upp eins og villimenn, pó að jeg dveldi meðal
peirra.“
„Einmitt pað; með pví fer kraptaverkið að verða
skiljanlegt. Og kunnið pjer vel við yður innan
um villimenn?“
„Jeg hef kunnað fullvel við mig hingað til, en
petta síðasta ævintyri hefur dregið úr ánægjunni.
Ó, pað var hræðilegt. Hefði jeg ekki verið mjög
sterkbyggð, pá hefði jeg ckki polað pað; taugaveikl-
239
„íívcr cr Jana Boach?“
Leonard leit á Júönnu og minntist pess, hvo
mikið liún hafði kvalið hann. Það var ósvífið af
henni að spyrja slíkrar spurningar, en úr pví hún
vildi spyrja svona, pá ætlaði hann að svara henni af-
dráttarlaust. Ilonum pótti sjálfsagt, að hún mundi
ganga að pví vísu, að hann væri ástfanginn af henni,
sjálfsagt, að atferli hennar væri fyrir fram hugsað og
að hún ætlaði með pví að bæla niður vonir hans.
Ilann ætlaði að syna henni, að pað væru til aðrar
konur í heiminum, og að einni peirra að minnsta
kosti hefði ekki pótt liann svo auðvirðilegur. Það
var heimskulegt af honum að breyta eins og hann
breytti, en pegar menn verða fyrir óverðskulduðum
snuprum, óvirðing og stríði af peirri konu, scm peir
dá mest, pá hættir peim við að missa greindina og
fara aulalega að ráði sínu. Svo hann svaraði:
„Jana Beach var konan, sem jcg var trúlofaður“.
„Jeg bjóst við pvi“, svaraði hún brosandi og
jafnframt fór hrollur um hana. „Jeg gat mjer pess
til, pegar jeg sá, að pjer fluttuð allt af pessa bók
með yður“.
„Þjer gloymið pví, Miss Rodd, að í bænabók-
inni er samningur, sem getur orðið mikils virði“.
Hún skeytti ekkert háðsyrðum lians; liún liafði
of rnikið annað að hugsa.
>,Og eruð pjer trúlofaður henni nú?“
„Nei, ekki byst jeg við pví. Faðir hennar sagði