Lögberg - 19.08.1897, Blaðsíða 8
8
LÖGBEKO, FIMMTUDAGINN 19 ÁGÚST 1897.
Ur bœnum
og grenndinni.
„Pic nic“ sunnudagsakóla 1. lflt
kirkjunuar bjer í bænum er i Elm
Park í dag.
Unglingspiltur frá 14 til 18 ára
getur fengið stöðuga vinnu hjá G. P.
Thordarsor, 587 Ross Ave.
Stephan Oliver og Jón Glslason,
kaupmenn frá Selkirk, komu bingað
tjl hæjarins 1 gær og dvolja hjer einn
eða tvo daga.
Ketillinn I gufubát Mr. Helga
Tómassonar, „Ida“, bilaði nýlega svo
mikið í ferð norður á Winnipeg-vatni,
að pað varð að draga hann til Selkirk
oir er ekki bflist við að báturinn
O
gangi á vatninu pað sem eptir er
i sumar.
Ef menn lesa íslands-frjettir ná-
kværolega þá sjá menn, að Jón Ólafs-
son er að reyna að komast á landssjóð
ísland, eins og fleiri. Fjárlaganefnd
alpingis leggur til, að hann fái 5,000
kr. næsta fjárhags-timabil til að gefa
út fræðandi rit—um Ameríku og
Vestur-íslendinga?
Hað er bráðlega von á ágætum
circus hingað til bæjarins. Hann
nefnis L. W. Washburn’s circus, og
fær mikið hrós í yrosum merkum
Austur Canada blöðum. t>ar verður
allt sem ranalega fylgirgóðum circus,
par á meðal kappkeyrsla & forn-róm-
verskum vögnum.
Hinn 14. p. m. dó 10 mánaða
gimalt barn, sem Mr. Björn Þorgils-
s>r, 454 Mulligan ave., hjer í bænum
átti. Og hinn 16. s. m. dó 4 mánaða
gamalt barn, er Mr. Páll Eyjólfsson á
Notre Dame ave. átti. Bæði börnin
dóu úr hinni svonefndu sumarveiki
(Cholera lufantum).
Kapt. Jónas Bergmann frá Sel-
kirk kom hingað til bæjarins í fyrra-
dag og fór aptur heimleiðis í gær.
Hann verður fyrir gnfubátnnm „Rip
ple“ pað sem eptir er sumarsins, og á
báturinn að flytja timbur frá sögunar-
mylnu Hookers við Grand Marais til
Selkirk.
Jóhannes kaupmaður Sigurðsson
frá Hnausa kom hingað til bæjarins
síðastl. priðjudag með konu sína, og
leggja pau hjón af stað í dag með N.
Pacific lestinni suður til íslendinga-
byggðarinnar í N. Dakota. Mr. Sig-
urðsson ætlar að heimsækja systir
sí ia, sem heima á nálægt Eyford, og
dvelja pau hjóuin par syðra viku til
hálfan mánuð.
I greinarstúf peim í síðasta blaði,
par sem getið er um að önnur íslenzka
Good-Templara stúkan hjer í bænum
hsfi gengist fyrir fundarhaldi,til aðræða
um hvað íslendingar geti gert fyrir
hinn almenna spítala í VVpæg, er sagt
tð pað hafi verlð stúkan „Skuld“, sem
gekkst fyrir pessu, en átti að vera
stúkan „llekla“. Fundurinn verður
á Northwest Hall 26. p. m. kl 8 um
kveldið.
Hiun 16. p. m. dó að hcimili
síuu á Toronto-stræti, hjer í bænum,
Jónas Guðmundsson, rútnlega 40 ára
að aldri. Hann hafði legið all-lengi
áður en hann dó i einhverjum mein
semdum/Jónas sál. lætur eptir sig
ekkju og börn. Hann hafði tryggt
líf sitt í „Mutual Reserve Fund Life
Association“ fyrir eitthvað 4 árum
síðan fyrir $1,000, og fær ekkja hans
pað fje sjálfsagt innan skamms.
Land til sölu
í Nyja-íslandi, 8 mílur fyrir norðan
Gimli, er liggur að vatuinu. Á land-
inu er nytt, stórt og gott íbúðarhús,
ásamt góðu gripahúsi. Skógur rudd-
ur af siórum parti, par sem af fást
7—8 giipafóður, auk nokkurs hluta
sem hafður hefur verið undir garðá-
vöxtum, byggi og höfrum. Góðir
söluskilrnálar. Nánari upplysingar
gefur^ Jakob Oddsson, Gimli P. O.,
eða Olafur S. TLorgeirsson, á prent-
jsmiðju Lögbergs.
Nú er söguninni lokið við mylnu
Mr. Kr. Finns3onar við íslendiuga-
fljót, og sagaði hún í allt, i sumar,
um hálfa milljón ferh. fet. Hinn sag-
aði viður frá mylnunni hefur mestall-
ur verið fluttur til Selkirk og seldur
par. Mylnan gekk bæði nójt og dag
fyrstu 6 vikurnar, en eptir pað aðeins
5 dagin. EingÖDgu íslendingar hafa
uunið við mylnuna i sumar, og var
Mr. Guðm. Finnsson vjelstjóri.
Á fundi stúkunnar „Heklu“ I. O.
G. T. síðastl. föstudagskveld, 13.p.m.,
setti un.boðsmaður stúkunuar „Skuld-
ar“ Mr. J. Blöndal, pessa menn ( em-
bætti fyrir næsta kjörtímabil: —F. Æ.
T. Miss Helga II. Johnson, Æ.T. Mr.
B. M. Long, V. T. Miss Þuríður Ind-
riðadóttir, G.U T. Mrs, Guðrún Frið-
riksdóttir, R. Mrs. Svanborg Pjeturs-
dóttir, F. R. Mr. Helgi Pálsson, G.
Miss Björg Björnsdóttir, Kap. Mr. S
AndersoD, A.R. Mr. Karl Jónston, A.
D. Miss Þorbjörg Þorgeirson, V. Mr.
Pjetur Þorvarðarson og Ú. V. Mr.
Björn Hallson.
Veðrátta hefur verið fremur ó-
hentug fyrir heyskap og hveiti upp-
skeru síðan Lögberg kom út síðast,
p«í talsvert hefur rignt—einkum síð-
astl. föstudag og laugardag. Regn
petta varð miklu meira 1 vesturhluta
fylkisins, og byrjaði með áköfu
prumuveðri og hagli sumstaðar.
Haglið skemmdi hveiti á nokkrum
stöðum, svo sem í grennd við Oak
Lake og Virden og á svæði par austur
undan, í nánd við Rapid City á hjer
um bil 6 mílna svæði, og nokkrir
bændur i nánd við Foxton urðu fyrir
skemmdum á hveiti sinu. Mestar
urðu skemmdirnar meðfram Canada
Pacifio járnbrautinni frá Virden aust-
ur eptir, pvi par eru akrar stærstir og
pjettbyggðast. Það er álitið, að
skemmdir pessar af hagli nemi um 3
millj. bush. í öllu fylkinu og er pað um
10 af hundraði af uppskerunni. Hveiti
er allt af að hækka í verði, og selst
nú á 77 cts bush. hjer vostur undan,
en eptir verði í Port Arthur og Fort
William (91 cts) ætti hveiti að vera
um 80 cts bush. hjer í Wpeg. Engra
næturfrosta hefur enn orðið vart, og
par eð nfl lítur út fyrir hita-veðráttu
er líklegt að bændur sleppi í ár við
skemmdir af frosti á hveiti síuu.
Ymislegt.
DÝB HANDBIT.
Handrit Sir Walters Scott af
verki hans „Tbo Lady of the Lake“
var nylega selt í London fyrir $6,450.
Fyrir 30 árum síðan var sama handrit-
ið selt fyrir $1,385. llandrit skáld-
sögunnar „Old Mortality“ var nylega
selt fyrir $3,000. Handrit Nelsons
lávarðar af æfisögu sjálfs hans, ásamt
nokkrum eiginhandar brjefum hans,
var nylega selt á $5,000; önnur 23
brjef Nelsons til Trowbridge voru
seld á $1,400. Piivat dagbók Robert
Burns, sem hann byrjaði 1787 og
nefnist „The Edinburgh Common-
place Book,“ var seld á $1,815. Hand-
rit af 8 kvæðum Swinburne’s, sem
birtust I fyrstu ljóðabók hans, seld-
ist á $198.
*
SUDUBI’ÓI.S I.EIÐANGUE.
£>að fengust á endanum uægir
peningar til að gera út suðurpóls-leið-
angur. Gufuskipið „Belgica,“ sem
útbúið var 1 Antwarp í pessu
skyni, lagði af stað paðan 16 p. m.
í pessa suðurpóls-för. Belgiska ping-
ið veitti nylega 60,000 fránka í við-
bót við pað, sem áður var veitt af
opinberu fje, til faraiinnar. Lauten-
ant de Geilache, úr sjóbði Belgiu-
manna, kom leiðangri pessum í gaug
og verður fyrir honum. Skipið,
„Belgica,“ var styrkt mjög til sigl-
iriga innan um ís, og var gott pláss
útbúið í pví fyrír vísindamenn pá, er
verða í förinni, til að starfa um borð.
Á skipiuu eru vistir til priggja ára.
Klefi var byggður á pilfarinu fyrir
efnafræðislegar raunsókuir, og aðal
starf vísindamannanna á skipinu verð
ur, að rannsaka steinaríkið og áýra,-
ríkið par syðra. Þessi leiðangur er
hinn eini, sem nú er gerður út til
rannsókna í kringum suður pólinn.
*
HVIBPILBYLJIE OG FKLLIIIYL.IIE.
Stjörnufræðingurinn A. J. Devoe
spáði nylega, að livirfilbyljir mundu
eiga sjer stað á Englandi og Skot-
landi 10 til 15. p. m., er mundu verða
mestir á austurströndinni og ná út á
Norðursjóinn. Hann spáir eiunig, að
hvirfilbylur mikill muni korna 1 Norð-
ur-CaroIina-rlkiriu 25. til 30. f. m. og
gangayfir frá suðri til norðurs, en að
fellibylur mikill muni ganga yfir part
af Ohio-ríkinu 25. til 28. p. m. Hann
b/st ennfremur við, aðfellibylur muni
ganga yfir suðausturhluta Evrópu uin
sama leyti og orsaka par óvanalega
mikil vatnsflóð.
*
FKEÐMESTA JÁBNHEAUTABLESTIN.
Vjer höfum nokkrum sinnum áð-
ur minnst á hinar ferðmestu járn-
brauta-lestir, bæði á Stórbretalandi og
í Ameríku, í blaði voru. Eptir pví
sem blaðið Thc Scientific American
segir, tilheyrir nú sá lieiður, að hafa
„bina ferðmestu járnbrautarlest í ver-
öldinni,11 Atlantic City járnbrautar-
fjelaginu, sem nyloga setti nyja lest á
braut sfna á milli Philadelphia og At-
lantic City, er fer milli borga pessara
á minna en einni klukkustund. 1
nokkur ár var hin svonefnda „Empire
State“-hraðlest (á New York Central
járnbrautinni í Bandarlkjunum) talin
ferðmesta lestin í veröldinni, en fyrir
nokkru síðan tók Caledonia-járubraut-
in (á Norður Englandi og Skotlandi)
penna heiður til sfn með pví, að láta
reglulega farpegjalest gaDga á braut
sinni,sem fer um 60 míl. á kl. stundinni
að jafnaði (að meðtöldum stönzum).
Þessi hraði, sem er talsvert meiri en á
Empire State-lestinni, er nú talsvert
minni en liraðmn á lestinni milli Phila-
derphia og Atlantic City. Þessi sfð-
astnefuda lest fer frá Camden kl. 3.48
e. m ,og kemur til Philadelphia kl. 4.40
e. m. en sú vcgalengd er 55^ mlla.
í fyrsta skipti, sem lest pessi fór yfir
penna hluta brautarinnar, fór hún af
stað 2^ mlnútu seinna frá Camden en
hún átti að fara samkvæmt áætlan-
inni, en kom samt til Atlantic City l^
mfnútu fyrir tlmann, sem hún átti að
koma pangað, og hafði pannig farið
55^ mllu á 48 mínútum, og rann
pannig með hraða sem jafngildir 69^
mílu á kl. stund. Lestartaflan synir,
að lestin fór vegalengdina milli Egg
Harbor og Brigantine Junction, 4.8
mílu, með hraða er jafngilti 82.26
mílum á kl. stund. Hraði pessi er
mjög mikill I sjálfu sjer, og pó petta
hefði verið aukalest og aptan I vjel-
inni að eins verið einn eða tveir fólks-
vagnar, pá hefði pað verið pess vert
að minnast pess. En pegar pess er
gætt, að lestin vóg 329,300 puud og
mikill vindur var á móti. en te:narnir
blautir af pjettri prumuskúr, sem
gekk yfir, pá er pessi hraði einsdæmi.
—Aptan I vjelinni var langur póst-
flutninga- og farangurs-vagn, 4 af
hinurn vanalegn, löngn farpegavögn-
um og 1 Pulman stofuvagn. Vjelin,
sem dró lestina, var „Baldwiu“ 4-
cyliruler comjxnmd-v'yá, og voru
gufu-„cylinder“arnir 13 og 22 puml.
að pvermáli, en hitunar-yfirborð k«t-
ilsins 1,835 ferh. fet. Aðal-lijólin
voru 7 fet að pvermáli, og vóg vjelin
ineð kola-og vatns vagninum 226,000
pd. Þannig vóg lestiu öll með vjel-
inni um 273^ ton. Menn sjá á pessu,
að vjelin er afar aflmikil,og að pyngd
hennar (með kola- og vatns-vagni) er
um i| af pyngd allrar lestarinnar, og
að vegalengdin er stutt I samanburði
við vegalengdina, sem Empiro State-
hraðlestiu fer. En aptur á móti var
einum vagni fleira I lestinni inilli
Atlantic City og Philadelphia en I
Empire State-lestiuiii, en hún fer
líka meir en 11 mllum lengra á kl.-
stund en síðastnefnd lest.
II olds vcikraHpí tali n n.
Það er nú fullráðið orðið, að
holdsveikra-spítalinn fyrirhugaði á að
standa í Laugarnesi, á tangaiium, par
sem biskupsstofari gamla er eða rústir
hennar. Þar lízt peim best á sig
erindsrekum gefendanna, peim dr.
Petrus Beyer, stórmeistara Oddfellow-
reglunnar I Danmörku, og förunuut
hans,Thuién húsgerðarfræðing. Vænl-
anlega lætur bæjarstjórnin hússtæðið
fyrir ekki noitt; pað er lítið nema
blá-oddinn af Laugarnesinu. Þeir á-
skilja, að lagður sje góður akvegur
pangað inn eptir með sjónum, frá
Rauðará, til pess að gera leiðina sem
stytzta og greiðasta bæði til flutninga
(aðdrátta) og fyrir lækni, og lækna-
skólamenn, er stórmikið gagn hljóta
að geta haft af stofnun pessari.
Það er ætlast til, að landsstjórn-
:n leggi veginn, eins og líka er sjálf-
sagt, par sem petta er lands-stofnun,
enda getur eigi mikið kostað.
Grunn undir liúsið á að gera I
haust, úr steinsteypu að mestu, og
höggnu grjóti ofau jarðar, úr Laugar-
nesstofunni. Eu húsið sjálft á að
komast upp að sumri, fyrri partinn.
Það verður úr timbri, —stærsta hús
hjer á landi, 82 álna langt og 27 álna
breitt (til endenna) aðal húsið, tví-
loptað, en 40 álna löng og 18 álna
breið álma út úr pví miðju; par á að
hafa eldhús, pvottahús, borðsal o. fl.
Búist er við, að petta muni kosta
nál. 90,000 kr. Þar af hafa gefend-
urnir nú I höndum um 80,000 kr., og
hafa Oddfellowreglu-menn sjálfir lagt
til, með samskotum o. fl., um 60,000
kr., en 20,000 kr. safnast utan regl-
unnar fyrir milligöngu aðal nefndar
peirrar, er peir skipuðu I pví skyni,
og dr. E. Ehlers er skrifari I.
Meðal skilmála fyrir spítalagjöf-
inni til landsins er aðalatriðið pað, að
stofnuninni sje haldið við og og hald-
ið áfram meðan parf, og að gefend-
urnir (Oddf.) sjeu I ráðum um hag-
n/ting stofnunarinnar, pegar hennar
parf ekki framar handa holdsveikum
mönnum.—Isafold.
Ana’gð' stúlka.
Miss Amina Kelly segir frá veikind-
um slnum og apturbata—Það er
frásaga sem allar ungar stúlkur
ættu að lesa.
Miss Amina Kelly, vel pekkt og
mikilsvirt ung stúlka, sem heima á I
Maplewood, N.B., skrifar:—„Jeg álít
pað skyldu mlnu að láta yður vita
hvað ruikið gagn yðar undrunarlega
meðal hefur gert mjer. í aprll 1896
fór jeg að missa öll Jiold og lit; mat-
arlyst öll brást, og jeg varð svo mátt-
laus að jeg komst ekki upp stigann
hvlldarlaust. í pessu ástandi var jeg
3 mánuði og varð jeg pá allt I einu
svo vesæl að jeg gat ekkert verið á
ferð. Húslæknir okkar var sóttur og
sagði hann mig veika af ,chlorosir‘
(blóðleysi). Lækninga-tilraunir lians
virtust að gera mjer gott fyrst I stað,
en eptir tímakorn fór mjer aptur að
versna. Jeg hjelt áfram að taka inn
meðöl frá honum I 3 mánuði, og aftók
jeg pá að taka pau nekkuð lengur,
pví jeg var orðin vonlaus um að pau
ætlnðu að gefa mjer heilsuna. Svo
reyDdi jeg íljótandi meðal, sein jeg
sá augly.-t við samslags veiki og
peirri sem að mjergekk, en pað gerði
mjer ekki hið minnsta gagn. Jeg
var orðin ákaflega próttlaus og tauga-
slöpp; pað var stöðugur hræðilegur
hvinur I höfðinu, jeg var bleik eins
og nár, og fætur mínir voru bólgnir
upp fyrir ökla. Einn dag meðan jeg
var svona á mig komin kom faðir
minn heim með einar kskjur af Dr.
Williams Pink Pills og bab mig að
reyna pær. Eptir tæpa viku fór jeg
að gota setið uppi, og eptir tvær vik-
ur gat jeg gengið æði spöl án pess
að preytast. Matarlystina fjekk jeg
aptur, hvinurinn 1 höfðinu livarf, jeg
fór að fitna aptuf og roðna, og áður
en jeg hafði lokið úr 6 öskjum var
jeg orðin eins hraust og nokkru sinni
fyr á æfi minni. Vinir mínir höfðu
ekki átt vop á að jeg mund rísa úr
rúminu aptur, og peir fagna nú yfir
hinni undraverðu breytingu sem Dr.
Williams Pink Pills hafa gert á mjer.
Ef pessi frásaga mín gæti orði til
>ess að hjálpa einverjum öðrum líð-
andi og vonlausum krossbera, pá hafið
>jer fullt vald til að láta prenta hana“.
Hin fratnanskráða frásaga var stað-
fest moð eiði frammi fyrir mjer lijer í
Maplewood, York Co., N. B., I dag,
hinu 14. dag maímánaðar 1897.
Txmothy W. Smitii, .1. P.
Til pess að vera viss um að fá hið
rjetta meðal pá biðjið ætíð um Dr.
Williams Pink Pills for Pale Peoplo,
. >g neitið að taka nokkrar eptirstæl-
’Dgar, sem yður kaDn að verða sagt
!:ð sjeu alveg eins góðar.
Nyir
Kaupendur
LÖGBERGS^
fá blaðið frá byrjun sögunn-
ar „Sáðmonnirnir“ til 1. Pn"
úar 1899 fyrir eina
$2.00
ef4 borgunin fylgir pöntuá'
inni eða kemur oss að kostm
aðarlausu innan skamms-
Þeir sem ekki hafa peo*
inga nú sem stendur geta
eins fengið blaðið sent til
sín strax, og ef þeir verða
búnir að borga $2.00 tím-
anlcga í haust fá þeir söniá
kjörkaupin og þótt þeír
sendu borgunina strax, en
annars verður þeim reikn-
að blaðið með vanalegu
verði.
------------------------f
CARPET-
VEFNADUR'
Undirskrifaður hefur komið uPP
gólfklæðn-vefnaðarverkstofu að
536 ELGIN AVE.,
og tekur að sjer vefnað á allskoi>a*
gólfklæðum gegn lægsta verði. F*®.
allt I gólfklæði úr bandi legg jeff e
og hefi ætlð nokkur synishorn fyr,í
fólk að velja úr. En efni I Iiag-carg
pets heG jeg ekki, en er tilbúinn a
vefa gólfklæði úr pvl efni, fljótt
vel, ef fólk kemur með efnið.
Komið og sjáið synishornin.
Guðni. J. AustfjOrð.
TRJAVIDUR-
Trjáviður, Dyraumbúning, Huró \t
Gluggaum>’úning, paths, Þakspón, 1*»PP
til liúsabygginga, Ymislegt til að skrey
með liús utan.
ELDIVIDUR OC KOL.
Skrifstofa og vörustaður, Maple stre®l'
nálægtC. P. It. vngnstöðvunum, W’innii' ®
Trjáviður fluttur til hvaða staðar s01
eríbænum.
Verðlisti gefiun þeim sem um biðj»-
BUJARDIR.
Einnig nokkrar bæjarlóðir og
eigmr til sölu og I skipium.
llÚ3»'
James M. Hall,
Telepbone 655, P. O, Box 288.
BO YBAH**,
KXPIRIiMOB'
Patents
TRADB MAR**'
DEBIOMB.
OOPYRIOHTB
Anyone sendlng n eketch and deecrlptlon ®
quiokly ascertaln, free, whether an lnventn»H|ý
probably patentable. Communlcation0
confldential. Oldest a«ency foraeourlng PJJJrL
in Amerlca. We have a Waihlngton °
Patente taken t.hrouKh Munn & Co.
epecial notioe ln the
8CIENTIFIC AMERICAN, .
hoautlfullv UliiHtrated, largest drenUt*0*?‘ri
anv scientlflo Journal, woekly, torms $3.00 B/TTfo
• 1.50 Hlx monthn. Hpoclmen coples and
Book. on Patjents seut free. Addres*
MUNN & CO.,
361 liroudwwy, Nevr York*