Lögberg - 12.09.1901, Síða 4

Lögberg - 12.09.1901, Síða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 12. SEPTEMBER 1901 LÖGBERG. er eefi d fít hvern fimtndatr af THE LÖGBERG RINTING & PUBLISHING CO., (löggilt), a(J Cor. WiIIGm Ave. og Nena í*tr. Winnipeg, Man. — Kost- ar$2.00 um árið [í islandi 6 kr.]. Borgist fyrir fram, Einstök nr. 5c. PnMished every Thnrsday by THE LÖQBERG PRINTING & PUBLISHING CO., HncorporatedJ, at Cor Wjllinm Ave & Nena St„ Winnipeg, Man — Subscription price *2.00 per year. payable in ad- vance. Single copies 5c. Business Manager: M. Paulson. aUGLYSINGAR: Smá-auglýsingar i eltt skifti 25c fyrir 30 ord eda 1 þml. dálkslengdar, 75 cts um mánuðlnn. A stærri auglýsingnm um lengri tíma, afsláttur efíir sammngi. BUSTAD \-SKIFTI kaupenda verður að tilkynna skriflega og geta um fyrverandi bústad jafnfram Utanáskripttil afgreiðslustofubladsinser: The Logberg Printing & Publishing Co. P.O.Box 1292 Tel 221. Winnipeg.Man. Utaziiakrirqttll ritstjdrans er: F.dítor JLöffberjr* f ‘O.Box 1292, Winnipeg, Man. -— Samkvæmt landslögnm er uppsögn kanpanda á bi&dl ógild, nema hann sé skúldlaus, þegar hann seg r upp.—Ef kaupandi,sem er í sknld vid bladld flytu vbtferlum, án þessað tilkynna heimilaskiptin, þá er sd íyrir dómstólunum álltin sýnileg sönnnmfyrir prettvísum tilgangi. — FIMTUDAGINN, 12. SEPT. 1901 — Baiidaríbja-forsetinn. Allir góðir íisieiidingar hér á þessu mikla meginlandi, bæði í Bandaríkjunum og Canada, hafa vafalahst hrygst injög innilega af fréttunum um banatilræðið við William McKinley, hinn vinsæla og mikilsvirta forseta Bandaríkjanna, og þeir óska þess vafalaust af heil- um hug, að s&rið leiði hann ekki til bana og Bandaríkjaþjóðin fái að njóta hans viturlegu og vinsælu stjórnar sem lengst. Allir góðir B.ríkjamenn hryggjast náttúrlega yfir þessum sorgaratburði og menn utan Bandaríkjanna samhryggjast þeim, og þá engir meira og líklega ekki eins mikið og alment eins og nágrannar þeirra og frændur hér norðan línunnar. Enginn forseti Bandaríkjanna hefir náð almennara áliti þjóðar sinnar heldur en McKinley og eng- inn heiðarlegur maður hefir haft neitt annað en alt hið hezta um hann að segja sem mann. þetta níðingsverk kom því meira en lítið flatt upp á þjóðina, og hún getur ekki gert sér grein fyrir neinu sérstöku, hvorki í stjórnarfari lands- ins né í fari forsetans, sem hafi get- að gefið hina minstu ástæðu til slíks ódáðaverks. Hið eina, sem hægt er aö hugsa sér að hafi komið 111- virkjanum til þess að skjóta for- j setann, er, eins og hann segir sjálfur í framburði sínum, æsingarræður Anarkista og umgengni við þá. það, sem hann segir um sjálfan sig, er meðal annars þetta: „þegar eg var í Cleveland las eg allmikið af sóstalista bókum og var það alkunnugt, að eg var sósíalisti. Á síðustu fimm árum umgekst eg anarkista og varð eg því gremjufullur. Eg var aldrei gæfusamur í neinu og það æsti mig ennþá meira, en það, Sem vakti hji mér löngun til morða, var fyrirlestur, sem eg heyrði Kmmu Goldman flytja fyrir skömtnu síðan. Hún var í Cleveland og fór eg og aðrir ariarkistar til að hlusta á bana. Hún kveikti I mér. Kenn- ingin um það, að það ætti að koma öllum stjórnendum fyrir kattar- nef, vakti svo mikla umhugsun hjá mér, að eg fékk óþolandi höf- uðverk af því. Orð Emmu Gold- man gengu mér svo til hjarta, að eg áleit það skyldu mtna að gera eitthvert afreksverk fyrir þetta málefni, sem mér var orðið svo kært/‘ Sé þessi saga illræðismannsins ekki sönn, þá er hún þó að minsta kosti einkar sennileg. Hatursfull- ar og æsandi ræður og blaðagreinar eru sjálfsagðar að hafa hættuleg á- hrif á ósjálfstæða menn, enda mun það vera tilgangurinn að svo verði. Menn gæta þess ekki eins og skyldi, að það er vanalega eitthvað bogið við þessa æsingamenn. það hlýtur að vera eitthvað meira en lítið bog- ið við menn t. d., sem segja um Bandaríkjastjórnina, sína eigin stjórn: „Stjórn vorri er framúr- skarandi illa við alt það, sem lýtur að verulegri alþýðu stjórn, cn olskar næst mútusjóðnum alt það, sem er konunglegt eða kúgaralegt", að for- seti Bandaríkjanna eigi enga með- líðun „til nema fyrir kónga og keisarafólk“, og að hann sé „önnum kafinn við það að blása út hinn síð- asta frelsisneista, er tórði á þjóðar- ást hinna ungu lýðvelda"; að hann „viðurkenni bolmagn hið æðsta vald“; „reikni upp á drápþol morð- tólanna sem hið æðsta veldi þjóð- anna, en að réttlæti sé“ (í hans aug- um) „gömul hindurvitni." þeir, sem annað eins og þetta láta út frá sér ganga ættu sannar- lega ekki að vera skoðaðir sem eft irbreytnisverð fyrirmynd, en það eru einmitt þesskonar menn, sem í flestum tilfellum ef okki öllum eru potturinn og pannan að hinum við- bjóðslegu og sorglegu ódáðaverk um anarkiatanna, að banatilræðinu við forsetann ósleptu. Hingað til hafa anarkistar átt friðland í enskumælandi löndunum og þeim verið sýnt þar mjög mikið umburðarlyndi, sérstaklega í Banda- ríkjunum. En ekki er ólíklegt, að þetta síðasta níðingsverk verði til þess, að þeir haldi ekki opinbera fagnaðarhátíð 29. Júlí næsta sumar eins og þeir gerðu núna í sumar í tilefni af drápi Humberts Italíu- konungs. Sósíalistar í Chicago greiddu atkvæði á móti yfirlýsingu, sem bor- in var undir atkvæði manna á sam- komu þar 7. þ. m., þess efnis að banatilræðið við forsetann væri þeim á móti skapi, og illræðismaðurinn er sðsíalisti. Hvað segja þeir nú, sem ekkert þykjast sameiginlegt sjá með sósíalistum og anarkistum hér í landi? Roblin-stjórnin og Fylkis-búar. Fyrir og um síðustu fylkiskosn- ingar héldu afturhaldsblöðin því fram, að eini vegurinn til þess að ekki yrði beinir skattar lagðir á fylkisbúa, væri sá að lirinda Green- way-stjórninni frá völdum og láta afturhaldsmenn taka við stjórn fylkisins, Vel vissu þeir, sem stefnu afturhaldsblaðanna réðu, að Green- way-stjórnin var sparí.öm—sparsam- asta stjórnin í landinu og þó víðar væri farið—og eunfremur hitt, að fylkið mundi ekki hafa hag af því að breyta til og láta afturhalds- menn taka við ráðsmenskunni, en það var ekki hagur fylkisins né fylkisbúa, sem þeir herrar báru fyr- ir brjóstinu, heldur nokkuð alt ann- að, það snertir viðkvæman streng hjá mönnum þegar þeim er sagt að ekkert liggi fyrir annað en beinir skattar t.il þess að mæta útgjöldum stjórnarinnar, og sé hægt að koma þeim til að trúa því, þá grípa þeir gjarnan til fleira en gott þykir til þess að afstýra jafn ógeðfeldum á- lögum. þannig var það við síðustu fylkiskosningár, að margir trúðu sögum þessum eða voru að minsta kosti hræddir um, að eitthvað kynni að vera hæft í þeim, og álitu svo ráðlegt að eiga ekkert á hættu held- ur setja strax undir lekann. Og fyrir þessa sína trúgirni greiddi margur maður atkvæði sitt með aft- urhaldsmönnum, sem aldrei hafði gert það áður og aldrei mun gera það hér ejtir, og þó þeim félli það allþungt að sjá flokk sinn verða und- ir og afturhalds flokkinn komast til valda, þá hugguðu þeir sig þó við það, að nú væri trygging fengin fyr- ir því, að fylkisstjórnin legði ekki á þá skatta til þess að fá nægar tekj- ur eins og við hefði mátt búast ef frjálalynda stjórnin hefði setið að völdum. Pau blöðin aftur á móti, sem afturlialdsmenn ekki höfðu í hendi sinni eða áttu með húð og hári, vör- uðu menn við að vera of auðtrúa og reyndu á ýmsan hátt að láta ekki fara með þá í gönur. þau reyndu að -sýna fram á, að hagur fylkisbúa væri betur kominn í hönd- um þáverandi stjórnar en nokkur von væri til ef breytt yrði og aftur- haldsmenn mynduðu stjórn úr sín- um flokki. Nú er afturhaldsstjórnin búin að vera hálft kjörtimabil við völdin, svo það er ekki úr vegi fyrir kjós- endur að fara að gera upp reikning- ana svona með sjálfum sér; fara að gera sér grein fyrir því, hversvegna þeir greiddu atkvæði sfn eins og þeir gerðu við síðustu kosningar; á hvaða umbótum á stjórnarfarinu þeir áttu sórstaklega von, og hverju þeir bjuggust við að afstýra með hinni nýju stj^rn. bað var ýrnislegt þarflegt og gott, sem afturhaldsmenn lofuðu að gera ef stjórn fylkisins yrði slept við þá, og margt sem átti að kippa í lag af gjörðum gömlu frjálslyndu stjórnarinnar. Hefði Roblin-stjórn- in efnt alt það, sem lofað er í stefnu- skrá flokksins, þá væri sjálfsagt og skyldugt að gefa henni viðurkenn- ingu fyrir því. Geti menn sóð það, að hagur fylkisins só betur kominn í höndum hennar, þá á hún auðvit- að viðurkenningu skilið, og í því skulum vór vissulega ekki verða eftirbátar. Yér könnumst hiklaust og afdráttarlaust við þá skyldu vora að kannast við það, sem vel er gert, hvaðan sem það kemur. Eini vegurinn til þess að geta gert sór ljósa grein fyrir gjörðum Roblin-stjórnarinnar, er að ritja upp fyrir sér hvað afturhaldsmenn fundu Greenway-stjórninni aðallega til for- áttn og hverju var lofað. Sannast að segja munu þeir aðallega hafa beitt því vopni gegn Mr. Greenway og stjórn hans, að eyðslusemin væri svo fjarskaleg að ef slíku héldi á- fram þá lægi ekkert annað fyrir hendi en beinar skattálögur. Og aðal-umbótaloforðin lágu 1 því að koma fjárhag fylkisins í betra lag til þess ekki þyrfti að leggja skatta á fólkið. Hver beíir svo reynslan orðið? Hafa mönnum fundist álögurnar fara minkandi síðan Mr. Roblin tók við ráðimenskunni? það er hægðar- eikur fyrir menn að fá upplýsingu um það hjá öllum sveita og bæjar- stjórnum, hvort þeir hafa borgaö rainna eða meira 1 fylkissjóð til þess að mæta útgjöldum stjórnarinnar síðan afturhaldsmenn tóku við. Alt i, sem lagt er á bæina og bygð- irnar verður fólkið að borga, því eítir því verða skattarnir eðliiega hærri. Síðasta árið, sem Green- way stjórnin var við völdin, lagði hún $12,597 93 á Winnipeg-bæ. Samkvæmt loforðum afturhalds- flokksins hefði upphæð þessi ,átt að lækka, helzt algerlega að hverfa, en undir engum kringumstæðum að hækka. þetta ár leggur Roblin- stjórnin $20,720 70 á Winnipeg-bæ, eða 14,131.77 meira en gert var þegar frjálslynda stjórnin var við völdin. þessar auknu álögur verða auðvitað Winnipeg-menn að borga, og þeir hér í bænum, sem greiddu atkvæði með afturhaldsmönnum við síðustu fylkiskosningar til þess að fyrirbyggja auknar álögur, eru nú farnir að átta sig. Væri fó þessu, sem fylkisstjórn- in neyðir menn þannig til að greiða, varið til þess að koma fjárhag fylk- isins í álitlegra horf, þá væri minna •undan ab kvarta; en hór er ekki um neitt slíkt að tala. Næstu fylkÍ3- reikningar munu sýna það, hvernig sem reynt verður að villa mönnum sjónir. það er gott fyrir menn að gera upp reikningana í tíma og vera bún- ir vel að átta sig þegar að því kem- ur, að þeir eiga að skera úr því með atkvæði s'nu hverjir eiga að hafa stjórn fylkisins á hcndi. það er ó- víst, að þess verði sérlega langt að bíða. Bendingar lianda bænd- unum. Haldist þessi hagstæða veðr- átta, þá ætti uppskeruvinna öll að verða búin snemma á haustinu, sór- staklega vegna hins aukna vinnu- kraftar að austan. Með nýjustu og beztu uppskeruverkfærum og nóg- um hestafjölda er hægt að með- höndla mikla uppskeru með tiltölu- lega litlum mannafla þegar alt lag er viðhaft. þegar tíðin er hagstæð, þá spara menn mikla vinnu með því að láta þreskja hveiti sitt úr „stooks", en ekki er það samt vitur- legt að láta hveitið liggja þannig ef mennirnir bíða verklausir eftir þresking. það er æfinlega óhultara og viturlegt að koma öllu., sem hægt er, í stakk, því sé vel stakkað} þá getur nveitið geymst óskemt hvað sem á gengur. það ætti ekki að þurfa að benda bændum á að stakka vandlega. Menn eiga mikið á hættu þegar þeir hrúga hveitinu einhvern veginn og einhvern veg- inn saman í staðinn fyrir að leggja hvert bindi eins og það á að liggja og hlaða þétta og vel lagaða stakka. Margir hata orðið fyrir stórtjóni vegna þess þeir hafa ekki gætt þessa eins og vera ber. 386 ,,Hvfð eigið þér við?“ „Áður en eg segi yður það, ætla eg að leggja OpurnÍDgu fyrir yður. Stúlkan var saklaus ungling- ur þegar þér kyntust henni fyrst. Hún elskar yður Hún er sérlega fögur. Og, það sem mesta þýðing hefir, hún er barnsmóðir yðar. Viljið þér giftast henni af þessum 6stæðum?“ „Nei! I>að vil eg ekki!“ „Þá duga ekki skynsamlegar fortölur, og þér neyðið mig því til þess að þvinga yður. Mér fellur það illa, því að hingað til hef eg litið á yður sem gá- lausan og gjálífan ungling eins og maigir jafnaldrar yðar gerast. Nú sé eg, að álit Mr. Birnes 6 yður er rétt. Þér eruð glæpamaður.“ „Þér eruð lygari!“ svaraði Mora í reiði. „Eg hirði ekki um nein slík hégómleg stóryrði, sem þér getið ekki sannað. Með orð mín er öðru máli að gegna, þau er hægt að standa við. Eg endur- tek það, að þér eruð glæpamaður; og eg get sannað það.“ „Yiljið þér gera svo vel og segja mér hvaða glæp cg hef framið, og hvaða sanuanir þér þykist hafa?“ „Það er bezt eg geri það. Nú erum við að fær- ast nær málefninu eins og við á. Þór frömduð þann glæp að bera út bamið yðar, og hegningin, sem við þvi liggur, er sjö ára betrunarhússvinua. Hvað seg- j8 þér við þessu?“ „Eg segi, slúður! Ef J>ór ímyndið yður, að þór 395 „en að þér skulið leyfa honum að brúka yður fyrir dulu, það játa eg, að kemur m’ór nokkuð ókunnug- lega fyrir.“ „Ó! Nú látið þér gretnju yðar hafa yfirhönd yfir skynseminni. Þór þekkið m'g betur en svo. Eg er ekki dulaí hendi neins manns. Dulbúi eg mig, þá geri eg það til þess að koma rnfnuin eigin áformum fram.“ „Jæja, við skulum ekki tala meira um það. Eg hefði gamau af að vita hver þau áform yðar eru, sem eru svo þýðingarmikil, að þau réttlæti þann glæp að hjálpa morðingja til að komast undan. „Engin svo þýðingarmikil! En hef eg gert nokk- uð slíkt?“ „Efalaust. Mora varbúinn að taka sér far með skipi, sem siglir til Norðurálfunnar suemma í morg- un. Eg er nú dauðhræddur um, að það sé orðið um scinan að ná honum.“ „Það er innileg ósk min, að svo só.“ „Svo þór kannist þá við það, að þér hafið beitt þessum brögðum til þess að villa mér sjónir, og varnaþví, að eg handtæki manninn?“ „Já, eg kannast við það.“ „Vitið þér ekki, að það er fangelsissök ?“ „Nei! Hvar er nokkur lagastafur fyrir því, að það sé fangelsissök að aftra leynilögreglumanni, sem annars er vanalega slunginn í köllun sinni, frá þvi að gera sjálfan sig að flóni með þvi að handtaka sak- lausan mann?“ 390 liðnum tímum með þvl að bæta framtíð stúlkunnar? Giftist henni ekki eingöngu vegna þess eg neyði yð- ur til þess, heldur af því hinn betri maður i vður sjálfum segir yður, að þér e gið að gera það. Getið þér ekki gert þetta?“ Mora komst mikið við, og hengdi snöggvast nið- ur höfuðið; svo sagði hann í mikilli geðshræringu: „Eg hef verið þorpari. Eg tó það alt nú. En það er ekki að öllu leyti mér að kenna. Eg átti enga móður. Hún dó þegar eg var barn, og faðir minn— ja, þór þektuð hann ekki, og svo tala eg ekki meira um það. En eg skal giftast Lilian, og eg tek himin- inn til vitnis um það, að eg skal gera hana ánægða. Og svo gef eg yður hönd mína upp á þetta—en bíð. um við. Kannske þór haidið, að eg hafi myrt föður minn?“ „Hefði eg haldið það, þá hefði eg ekki leyft yð- ur að giftast stúlku þessari.“ „Það er rélt mælt, og eg er yður þakklátur fyr- ir. Eg drap ekki föður minn, jafnvel þó hann gæfi nóg tilefni til þess, og roér hafi ef til vill komið það til hugar einmitt Bama kveldið, sem hann var myrtur. Mór og honum sinnaðist óttalega fyrri um kveldið.“ „Á Apollo Hall? Já, eg veit um það. Hvernig lyktaði með ykkur?“ „Hann hafði einhvern veginn komist á snoðir um heimili mitt niðri I bæ, og kom á eftir mér á dansinn. Hann spurði mig eftir húsinu i Essex götu, eneg neitaði að visa honum þangað. Þá sór haaq

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.