Lögberg - 13.04.1905, Blaðsíða 3
LÖGBER(?, FIMTUDAGINN 13. APRIL 1905,
3
Fréttir frá íslandi.
Seyðisfirði, 18. Febr. 1905.
Úr Mjóafirði.—„Héðan er ógn-
arlega fátt að frétta, veturinn liefir
verið mjög óstöðugur til þessa, oft
3—4 áttir sama daginn, t. d. sunn-
an um morguninn, vestanrok um
miðjan dag, sunnan aftur að kveldi
og svo stundum austanrigning um
háttatíma. — Samt hefir hér aflast
allvel framan af vetrinum, og sum-
ir enda aflað prýðilega, til dæmis
hefir hér einn bátur aflað ná-
lægt 70 skp. frá 8. Sept. til nýárs,
auðvitað áætlun, en þó líklega ná-
lægt sanni; síðan um nýár hefir
ekki verið róið sökum stöðugra ó-
gæfta.“
25. d. Febr. f. á. andaðist að
Horni i Nesjum Eyjólfur timbur-
maður Sigurðsson, sem þar hafði
búið hér um bil hálfan fimta tug
ára.
Aðfaranótt þ. 16. þ. m. kom upp
eldur í húsum Pöntunarfélags
Fljótsdælinga hér á Búðareyri.
Kvíknaði eldurinn i herbergi inn af
sölubúðinni. En til allrar hepni
urðu þau Jón pöntunarstjóri Stef-
ánsson og frú hans, skjótt vör við
eldinn. Var þá strax kallað til
fólks úr öðrum húsum og tókst von
bráðar að slökkva eldinn. Skemdir
enn ómetnar.
16. þ. m. andaðist hér í bænum
Sigrún Einarsdóttir, fósturdóttir
Sigurðar kaupm. Sveinssonar, 12
ára að aldri, mjög efnilegt barn.
Veðráttan hefir verið hin hag-
stæðasta næstliðna viku, sunnan-
vindar og sólskin. í dag hrið.
Seyðisfirði, 3. Marz 1905.
Carl D. Tulinius konsúll, andað-
aðist að heimilinu sínu á Eskifirði
16. f. m. eftir langvinnan sjúkleik.
Hin síðustu ár hafði hann verið
mjög farinn að heilsu, en mikið
hafði honum hnignað eftir dauða j
konu sinnar, sem hann tregaði sárt. |
—Gunnsteinn Jóhannsson, verzl-
unarmaður, andaðist hér í bænum '
2. þ. m. eftir 1—2 daga legu 21 árs j
að aldri. Hann dvaldi hér í vetur j
við tungumálanám, en ætlaði nú ;
með Ceres áleiðis vestur á Patreks-
fjörð, þar sem hann hafði fengið
góða stöðu sem verzlunarmaður.1
-t—22.. f. m. andaðist hér i bænum
Sigmundur Gislason, rúmlega fimt-
ugur; Íiapn lætur eftir sig konu og
3 börn.
Seyðisfirði, 9. Marz 1905.
Hinn 5. þ. m. andaðist hér á
sjúkrahúsinu Helga Magnúsdóttir,
Jónssonar, prests að Vallanesi, 15
ára gömul, eftir langvinnan sjúk-
leik. Ljúf og elskuleg og vel gefin
stúlka. — Nýdánir eru á 1 léraði:
, Jón bónUi Pétursson frá Tungu- j
haga, vel metinn bóndi, dó úr
lungnabólgu, og Hallur Björnsson
á Finnsstöðum, datt ofan í brunn
og druknaði.— Dánir í Vopnafirði:
Torsteinn Jónsson, bóndi i Sunnu-
dal, Eiríkur Þorsteinsson á Ás-
laugarstöðum og Pétur Stefánsson
vinnum. á Torfastöðum.—Austri.
Reykjavík, 10. Febr. 1905.
Fjárkláða hefi að nýju .orðið vart
á tveimur bæjum í Aðalreykjadal,
Ytrafjalli og Syð'rafjalli og á tveim-
l,r bæjutn í Svarfaðardal (V.öllum
°g Fverá). Rækilega hafði verið
baðað að nýju á öllum þessum bæj-
um, og enda á næstu bæjum, þar
sem nokkur grunur var um, að
fjársamgöngur hefðu orðið á milli,
svo að vænta má, að ekki verði nein
frekari vandræði úr þessu. Annan
bæinn, þar sem kláðans varð vart í
Þingeyjarsýslu, hafði Myklestad
áður haft grttnaðan, mætti þar ein-
hverjum mótþróa hjá ábúanda
(Jóh. Þork.J við baðanir þar. Það
er auðvitað leitt, að þessi kláðavott-
ur skuli koma upp eftir baðanirnar,
en slikt getur ávalt kontið fyrir,
hversu vandlega sem að verki er
gengið og engin ástæða til að ótt-
ast, að þessi kostnaðarsama kláða-
útrýmingartilraun verði til líti.ls
cða einskis gagns yfirleitt fyrir
þessa sök. En auðvitað ríður á, að
rösklega sé í taumana tekið, þar
sem kláðnas kynni að verða vart
að nýju, svo að tekið verði til fulls
fyrir kverkar þessarar landplágu
með rækilegri endurböðun á öllu
grunuðu fé. Og það er vonandi, að
það takist.
Maður varð úti um næstl. mán-
aðamót, milli Melabergs og Neijja,
Sigurður Gíslason að nafni frá
Melabergi, fyrirvinna hjá fátækum
forcldrum þar, rúml. tvítugur að
aldri.
Smáupsi aflaðist hér á höfninni
með ádrætti 13.—15. þ. m., þó til
nokkurra muna. Tunnan seld á 2
—4 krónur.
Dánarfregnir.
Hinn 21. Febr. síðastl. lézt á
heimili foreldra sinna í Winnipeg-
osis, Man., ungmennið Teódór Sig-
urjón Alexander, eftir 16 daga
kvalamiklar þjáningar, fullra 8 ára
gamall. Foreldrar hans voru hjón-
in Þórður Jónsson og Guðbjörg
Jónsdóttir, sem um nokkur undan-
farin ár hafa búið í ofangreindum
bæ. — Hann var jarðsunginn þann
23. s. m. af enskum presti, að við-
stöddum fjölda fólks,sem tók hjart-
anlega hluttekning í mótlæti hjón-
anna og annarra vandamanna, sem
fylgdu hinum framliðna til grafar.
Húskveðja var haldin og ræða flutt
í kirkju í bænum og síðast las prest-
urinn þýðinguna af hinum aðdáan-
lega fagra sálmi „Alt eins og
blómstrið eina,“ og lýsti þvi yfir, að
það væri sú lang fegursta lýsing á
dauðanum, sem hann mintist að
liafa séð. — Hér sézt sem oftar, að
dauðinn skeytir því ckki hvort hann
birtir dóm sinn um sólarupprás
mannsaldursins eða um náttmála-
skeið elliáranna; hann gildir einu,
hvort hann reiðir veldissprota sinn
að ungmenninu, sem er að byrja að
þroskast í akri mannfélagsins, eða
að gamalmenninu, sem þegar er
farinn að slúta fram fyrir grafar-
bakkann. Fífill og sina eru háð
sama dómi. Það væri ekki úr vegi
að minna ungmennin á, sem voru
Jiessum burtkallaða dreng samtíða
—hans skólabræður og systur —
að skeð getur að innan skamms
verði einnig kallað til þeirra:
„Komið hingað, í húsi mínu rúmast
allir.“ Þó foreldrar og systkin hafi
hlotið að reyna sáran söknuð við
burtkall þessa drengs, og endur-
minningarnar um lians stuttu dvöl
séu viðkvæmar, þá er að gæta þess,
að alt sem við höfum öðlast, er að
eins lán, sem fyr eða síðar verður
heimtað.
Einn af þeim viðstöddu.
Daníel sálúga var stilling, brjóst-
gwði og frábær ráðvendni. Þau
hjónin máttu ekkcrt aumt sjá án **
þess að láta líkn í té ef kostur var á.
Sonarmissirinn mun hafa skilið S*
eftir megna sorg í brjóstum þeirra
og, þótt lítið bæri á, gert þeim lífið |||
þungbærara en ella, og þau þráð
þá stundina að þau t'cngju að sam-
cinast drengnum ínuin í eilífri hvíld. ÍS
ljósi og sælu. ffi®
Mountain, North Dak., |í§;
31. Marz 1905. j||j
Danícl H. Daníclsson. j»S
SnnBVBÉnlKÍ
1 I . . 1 f I Ij I 1 I , I.II I ' I I ! I I E * . . ■ . f I I I I ' 1 ^ 1 l.ri I I I 1 I I I T 1 f 1 I 1 1 ! t I f I t
5 rWfTCxnrrSTT íttSx? ÝkiWtt Hrrttí 111 x u
.;'frriT-"tT crrrrrWtrrrYrrrty nTnn ^wvfTvrf tttítyttt ■*v' *■ wfivi ,rV
’ I '.'.f.t f.l.V.f' * "1 'MM ■1 ■1T1 f ^ ., .* i1 > n 1 MAÍ1 ‘UMAT.I 11 * f 11 11111 r »4 11 H 11 \f rt
'TxTzf'iítwTiirrrrirírixT rrTxx?frxTxxníiTÍ rrrííí nrrS . xi'xxT
Nauðsynlegtá vorin.
Inniveran á veturna fer illa með
heilsuna.
Daníel sál. Daníelsson, sem lézt
2 r. Janúar í vetur að heimili sínu í
Mountain-bygð i North Dakota,
var fæddur á Eyði á Langanesi ár-
ið 1836 og dvaldi þar þangað til
hann, ásamt konu sinni, flutti til
Ameríku árið 1883. Árið 1867 gekk
liann að eiga Helgu Magnúsdóttur,
frændkonu sína, og voru þau í
hjónabandi um 38 ár. Þau eignuð-
ust einn son, Júlíus að nafni, sem
dó sumarið 1895 þá 27 ára gamall.
Þau hjón tóku dreng á ellefta
ári til fósturs og gengu honum í
foreldrastað á meðan þeirra naut
við. Daníel sál. misti konu sína 21.
Maí 1904, og fylgdi hann henni í
gröfina 21. Jan. síðastl. og var jarð-
sunginn 26. s. m. af séra Hans B.
Thorgrímsen við kirkjuna á Moun-
tain:—Daníel nam land tvær mílur
austur frá Mountain og bjó þar til
dauðadags.
Það sem meðal annars einkendi
Ekki mikið veikur, en þó ekki vel
frískur. Þetta er ásigkonntlag
margra á vorin. Ástæðan er, hin
lánga innivera um vetrarmánuðina
cg sk.mt loft í íveruhúsunum, í
\ innustofunum og skrifstofunum.
V'eikin lýsir sér þannig, að matar-
lystin er ekki góð, útsláttur á hör- 1
undinu, þreytutilfinning.höfuðverk-1
ur við cg við og stundum gigtar-
stingir. Þér ímyndið yður, að þetta J
smálíði frá, en það gerir það ekki,
tiema blóðið sé hreinsað með heilsu- I
samlegum meðulum. Og j>að er
einungis eitt öldungis áreiðanlegt,
blóðhreinsandi, taugastyrkjandy
meðal til, sem er Dr.Williams’ Pink
Pills for Pale People. Þúsundir
manna bera vitni um það, að þær
eru bezta ineðaHð við öllum vor-
kvillum. Þær búa til nýtt blóð,og
styrkja taugarnar og öll líffærin.
Þær veita þreyttum og sjúkum
mönnum konum og börnum nýja
heilsu og nýtt fjör. Mr.s. N. Fergu-
son, Ashfield, N. S., segir: „Af
því eg veit að það getur verið öðr-
um til góðs, þá hika eg ekki við að
vitna um það, hvað Dr. Williams’
Pink Pills liafa reynst mér vel. Þá
er eg byrjaði að nota þær var eg
svo illa haldin að eg tæpast gat
gegnt húsverkuúum. Eg hafði
mikinn hjartslátt, en þessar pillur
hafa læknað mig svo vel að eg hefi
nú betri heilsu en eg nokkuru
sinni gat búist við að fá aftur.ý
Ef þér viljið halda góðri heilsu á
vorin, þá brúkið ekki niðurhreins-
andi meðul, sem að eins veikja lík-
amann en lækna ekki. Gerið engar
tilraunir með hin svo nefndu hrcs^-
andi lvf. Brúkið að eins Dr. Wil-
liams’ Pink Pills, og þér munið
fljótt verða þess var, að þær bjarga
við heilsunni. Seldar hjá ölluní
lyfsölum, eða sendar með pósti á
50C. askjan eða sex öskjur á $2.50,
ef skrifað er beint til „The Dr.
Williams’ Medicine C„ Brockville,
Ont.“
Verzlunin er lifíeg
Fólkið hefir vit á hlutunum og uppgötvar brátt hvort þeir eru eins og
Þeim er lýst.] Annríki okkar vex óðum eftir því sem afsláttar-verzlnnin stend
ur lengur yfir, og það er ekki undarlegt]þegar þér getið keypt affnýjasta varn
ngi bezta kla^nxð sem fæit í landinu. þér þekkið kringumstæður okkar-
verðam að fara úr búðinni innan 60 daga og engin búð fáanleg. Vörurnar
verða að gangi út fyrir hvað sem er. Vitið þér livað það meinai ? Til dæmis
seljum við fallegan karlraannafatnað raeð nýjasta sniði §14.00’virði fvrir $9.7*
Slz.fiO fatnaði fyrir $7.75. Skyrtur $1 02 $2 vírði fyrir 6öc. Jfiðið ekki
:: 1
lengur,
Nú er tækifœrið.
The Palace Clothing Store.
G. C. LONG -
-45S MAIN STR
Co-operative Bakery,
á horninu á Elgin og Nena.
Vitið þér það að í þessu brauðgerðarféiagi
eru fleiri íslendingar en menn af öðrum
þjóðum? Vegna þess, og af því að
hvergi er búiö til
betra brauð,
æskjum vér þess að íslendingar kaupi hér
brauð sín. Pantið þau hjá keyrslumönn-
um vorum eðagegnum Tel. 1576.
Winnipea Co-operative Society
LlMITEDf
PÁ ,L M. CLEMENS
byggingámeista ri.
Baker Block, 468 Main St.
WINNIPEO Talephone 271
R. HUFFMAN.
á norövestur horninu á Ellen
og Ross, hefir til sölu alls ko«-
ar groceries, álnavöru, leir og
giervöru, blikkvörur.
Molasykur 15 pd. $1.00.
Raspaðsykur iópd. $1.00.
Ódýrustu vörur í bænum.
---Komið og reynið.-
G&a
Sumardaginn fyrsta
leyfi eg mér að bjóða
fólki upp á eftirfylgj-
andi kjörkaup.
8)ý pund ágætt kaffl fyrir , .............$1.00
15 pund raspað sykur fyrir................ 1.00
13 pund rnola sykur fyrir................. 1.00
20 pund hrísgrjón......................... 1.00
5 pund sagógrjón fyrir.... .............0.25
_ 6 pund baunir fyrir...................... 0.25
1 pund smjör fyrir ....................0.17)4
3 pund af ágætum rúsínum fyrir.......... 0.25
15 centa kaffibrauð fyrir................. o. 10
15 centa virði af eldspítum fyrir......... o. 10
5 pund Baking Powder fyrir.............. 0.75
6 gerköku-baukar fyrir................. 0.25
Glæný egg, tylftin.......................0.12)4
Allskonar kryddvara með niðursettu verði.
Allar tegundir af mjölvöru með lægsta markaðsverði.
Fatnaður, skótau og álnavara með 25 prc. afslætti.
Vörurnar verSa fluttar heim til allra sem æskja þess, og sem eiga
heima innan 12 mílna fjarlægðar frá Gimli. — Muniðeftir að þetta kjör-
kaupa tilboð gildir að eins fyrir sumardaginn fyrsta.
GLEDILEGT SUMAR!
C. B. JULIUS, - - Gimli, Man.
CANADA NORÐYESTUR LAN DIÐ
Reglur við landtöku.
ilhe
1
tvi
Af ðllum sectíonum með jafnri tðlu, sem tílhejrra sambandsstjórninni, i
Mamtoba og Norðvesturlandinu. nema 8 og 26, geoa fiö skylduhöfuð og karl-
menn 18 ára gamlir eða eldri, tekið sér 160 ekrur fyrir heimilisréttarland, það
er að segja, só landið ekki éður tekið, eða sett til síðu af stjóminni til við-
artekju eða ein hvers annars,
íanritun.
Menn mega skrifa sig fyrir iandinu á þeirri landskrifstofu, sem n*st ligg-
ui landinu sen? tekið er. Með leyfi innanríkisráðherrans, eða innflutninga-
um boðsmar rstrf í Winnipeg, eða næsta Dominioi. iandsamboðsmanns, get*
menn gefið ö( r *, mboð til þess að skrifa sig fyrir landi. Innritunargjald
ið er $10,; 'j
fleimilisréttar-skyldur.
að
fi
uppfyiia heimilisrétt-
sem íram eru teknir í eftir
í sex mánuði á
vegum
að minsta kosti
Samkvæint núgildandi lðgum verða landnemar
ar skyldur sínar á einhvern af þeim
fylgjandi töluliðum, nefnilega:
[1] Að búa á landiuu og yrkjaibað
hverjr, ári í þrjú ár.
[2) Ef faðír (eða móðir, ef faðinnn er látinn) einhverrar persónu, sem hefi
rétt tií aðskrifa sigfyrirbeimilisi-éttarlandi, býr á bújörð i núgrenni við land-
ið, sem þvílik persóna hefii skrifað sig fyrir sem heimilisréttar landi, þá getur
persónan fullnægt fyrirmælum .aganna, að því er áBúð 4 landinu snertir áðui
en afsalsbréf er veitt fyrir þvi, á þann hátt að hafa heimiii hjá föður sinum
eða móður.
Ef landnemi hefir fengið afsalsbróf fyrir fvrri heimilisréttar-bújörí
sinni eða skírteini fyrir að afsclshréfið verði gefið út, er sé undirritað í sam-
íæmi við fyrirmæli Dominion íandliganna, og hefir skrifað sig fyrir síðari
heimilisréttar bújðrð. þá getur hann fullnægt fyrirmælum laganna, að því er
snertir ábúð á landinu (síðari heimilisróttar-bújörðinni) áður en afsalsbréf sé
gefið út, á þann hátt að búa á fyrri heimilisréttar-bújörðinni, ef síðari heim-
ilisréttar-jörðin er i nánd við fyrri heimilisréttar-jörðina.
(4) Ef iandneminn býr að staðaldri á bújörð sem hann á íhefirkeypt, tek-
ið erfðir o. s, frv.] í nánd við heimiiisicvtarland þaö, er hann hefir skiifað sig
fyrir þá getur hanu fullnægt fyrirmælum laganna, að því er ábúð á heimilis-
réttar-jör?inni snertir, á þann hátt að búa á téðri eignarjörð sinni (keyptula
ndi o. s. frv.)
Beiðni um eiffnarbréf
ættí að vera gerð strax eftir aðSáiin eru liðin, annaðhvort hjá næsta um-
boðsmanni eða hjá Impector sem sendur er til þess að skoða hvað unnið hefír
verið á landinu. Sex mánuðum áður verður maður þó að hafa kunngeri Dom-
inion landa umboðsmanninum i Ottawa það, að hann ætli sér að biðja nm
eignarréttinn.
Leiðbeiningar.
•
Nýkomnir Sinnflytjendur fá á innfiýtjenda-skrifstofunni í Winnipeg, og v
öflum Domiuioii landaskrifstofum inr an Manitoba og Norðvesturlandsins, ieið-
beiningar um það hvar lönd eru ótekin, og allir, sem á þessuro skrifslofuoa
vinna veita innflytjendum, kostnaðaríaust. leiðheiningar og hjálp til þess að
ná í löndsem þeim eru geðfeld: ennfremur allar upplýsingar \ iðvíkjandi timfe
ur, kola og náma lögum. Allar slikar reglugjörðir geta þeir fengið þar gef-
ins, einnig geta menn fengið reglugjörðina um stjórnarlönd innai. járnhrautar*
heltisms í Britisb Columbia, með því að snúa sér bréfiega til ritarn innanríkit
beildaririnar í Ottawa innflytjenda-umhoðsmannsins i Winnipeg, eða til ein
dverra af Dominion landi umboösmönnum i Manitoba eða Norðvetturlandinn
W. W. CORY,
iDeputy Minister of the Interii r.
Dr G. F. BUSH, L. D. S.
TANNLÆKNIR.
Tennar fyltar og dregnarf út 4n
sársauka.
Fyrir að fylla tönn $1.00
Fyrir aðdraga út tönn 50
Telephone825. n '1S
MARKET HOTEL
146 Princess St.
á móti markaðnum
ElGANDI - P. O. CONNBLL.
WINNIPEG.
Beztu tegundir af vínföngum og vindl-
um aðhlynning góð og húsið endurbætt
og uppbúið að nýju.
ELDID YID GAS
Ef gasleiðsla er unúgötuna yðar leið
ir félagið pípurnar að götu línunni
ókeypis, Tengir gaspípar við eldastór
sem koyptar hafa verið að þvi án
þess að setja nokkuð fyrir verkið.
GAS RANGE
ódýrar, hreinlegar, ætíð til reiðu.
AUar tegundir, $8.00 og þar yfir.
R TDÍð og skoðið þær,
The Winnipeg Eteetrie Slreet Railway C*.
^iíldin
215 Poits Avbnðk
Afturbati.
Þegar þér eru5 í afturbata
eftir þunga legu, aukast fjör
og kraftar meö því aö brúka
7 Mouks Ton-i-Cure.
r