Lögberg - 02.11.1905, Síða 1

Lögberg - 02.11.1905, Síða 1
Byssur og skotfæri. Takið yður frídag til þess að skjóta andir og andarunga. Við höfum vopnin sem með þarf. Við höfum fáeinar byssur til leigu og skotfæri til sölu. And^rson & Thomaðs Hardware & Sporting Goods. M8 Main Str Teleptione 338. Steinolíuofnar, f kveldkulinu er þaegilegt að geta haft hlýtt * herberginu sínu. Til þess aö geta notið þeirra þseginda ættuð þér að kaupa hjá okkur steinol- íuofn. Verð $5 00 og þar yfir, Anderson & Thomas, Hardware & Sporting Goods. 638 Main Str. Telephone 339. 18 AR. Winnipeg, Man.. Fimtudaginn, 2. Nóvember 1905. NR. 44 Til kaupenda Lögbergs Vinsamlega er hér með skorað á kaupendur Lögbergs að borga áskriftargjald þeirra. Útgefendurnir hafa veriö væ£ir í kröfum viö kaupendur blaðsins iþegar miður vel hefir látið í ári, og ættu kaupendurnir aS minnast þess nú í góSærinu meS því aS borga upp og jafnvel fyrirfram næsta árgang eins og ákveSiS er þótt frá því hafi veriS brugSiS af öllum fjöldanum. FélagiS hefir lagt í mikinn kostnað á árinu til þess aS auka og bæta áhöld sín og þarfnast þess því nú, jafnvel fremur en nokkuru sinni fyr, aS viSskifta- menn þess standi í skilum. Vonar útgáfunefndin því, að kaupendumir verði vel við þessari vinsamlegu áskorun og borgi Lögberg upp í topp áður en árið er liðiS. ------o------ Fréttir. Sergius Witte, rússneski stjórn málamaSurinn.sem af Rússa hálfu saindi um friSarskilmálana við Japansmenn, er nú í svo miklu á* liti hjá Rússakeisara, aö enginn efi er talinn á því, að hann innan skamms muni veröa geröur aö stjórnarforseta. Witte hefir al- gerlega gengið í liS meS frjáls* lynda flokknum og heldur því fast fram aö veita skuli hjnu nýja þjóðþingi Rússa meiri réttindi en ákveSið var í auglýsingu keis- arans i sumar sem leiö. Witte fer fram á aS þjóöinni verði veitt fullkomiö prentfrelsi, málfrelsi og fundafrelsi.og í einu oröi aö segja aö látiS sé aö kröfum umbóta- mannanna sem allra mest og í langtum stærri stíi en gert var i áðurnefndri yfirlýsingu keisayans. Hefir Witte lagt fram fyrir keis- anann frumvarp þe.ss efnis og er mælt aS keisarinn fallist að öl|u leyti á umbótahugmyndir og tillög ur þær sem þar eru teknar fram. Sagt er þaS jafnframt aö Trepoff greifi, sem er aðstoSarinnanrikis- mála ráðgjafi og alræSismaöur i Pétursborg og löngum hefir þótt harður í horn að taka, sé mjög hlyntur skoðunum Witte’s, hvaö innanrikismálefnin snertir aö minsta kosti. Roosevelt forseti hefir um und- anfarinn tíma verið á ferð um SuSurríkin, og alls staöar veriö tekiö tveim höndum og fagnað meö hinum rnestu virktum. Bú- ist er við að þetta ferðalag for- setans muni hafa allmikil áhrif á atkvæSagreiðsluna í Suðurríkj- unum, við næstu kosn. Bandarikj- unum. Forsetinn hefir feröast um Carolina, Florida, Alabama og Arakans^s ríkin. Meðal annars skoðaði forsetinn svertingjaiskól- ann sem Booker Washington kom á fót í Tuskegee, og þótti það nýmæli aö sjá forseta Banda- ríkjanna á þeim slóöum. Mesta fjölda af ræöuin hefir forsetinn haldið á þessu ferðalagi sinu og hafa menn hvervetna hlustaS á hann með hinu mesta athygli. Strangar reglur, viSvíkjandi flutningi á alls konar sprengiefni meö járnbrautum í Bandarikjun- um, verða í lög leiddar næsta ár, samkvæmt tillögum sérsta;knj.r nefndar, er járnbrautarfélögin i Bandaríkjunum hafa valið til þess aS fjalla um þau mál. Nefnd þessi er nú aö halda futidi mieS sér í Chicago og rannsaka máliö. hefir hiún komist aS því að þrjú hundruð og fjörutíu og sex milj- ónir punda af sprengiefni, ýmis- konar, er árlega búiö til í Banda- ríkjuntun og mestur hluti þess er fluttúr hingaö og þangað með járnbrautunurn. Fjöldi verka- manna á jámbrautarstöövum i Bandalríkjunum verður árlega fyrir slysum, og jafnvel bíða bana af, þegar veriS er aö ferma og af- ferma þenna hættulega flutning, og er ^Sal ástæöan fyrir þeim slysum talin sú, aö þessar liættu- legu vörusendingar eru hvorki í þeim umbúöum sem vera her, né merkt á þær hvaS þær hafa inni aS halda, svo hægt sé fyrir verka- mennina aö viöhafa varasemi í meSferöinni. Á bóndabæ, skamt frá Hunr bolt, Sask., vildi það sorglega og óvanalega slys til í vikunni sem leiö, aS átta ára gamall drengur varð móöur sinni aS bana óvilj- andi. Faðir drengsins hafði verið á fuglaveiðum, og þegar hann kom heim skildi hann eftir byssu sína hlaSna í forstofunni. Dreng- urinn var aö fáta viS byssuna og hljóp þá skotið úr henni í höfuð- ið á móöur hans, er stóö rétt fyrir utan dyrnar. Konan dó sam- stundis. VerksmiSjur Zenith Furnacc félagsins í Duluth, Minn., urðu fyrir mjög miklum skemdum af gaslofts sprengingu í vikunni sem leið. Lá viö sjálft aS ýmsir af verkamönnum félagsins, er þar voru viS vinnu, yrðu fyrir slys- um. SkaSinn er sagSur nálægt fimtán þúsundum dollara. Vilhjálmur Þýzkalandskeisari hefir nýlega veriö að halda ræöur fyrir herforingjum sínum bæði í Berlín bg. Dresden, og hafa keis- aranum farist þannig orS aS ýms- ir hafa síðan verið aö gera sér í hugarlund, aö honum sé þaö nú allrikt í huga aö hann, ef til vill, þurfi bráSlega aö hafa her sinn til taks. í Dresden komst keisarinn meSal annars þannig aö orði: ,,Nú eru þeir tímar að hver ein- asti vigfær ÞjóSverji veröur aS vera undir það búinn, aS fóma sjálfum sér fyrir fósturjörðina.“ Eina ræöuna endaði hann með þessum orSum: „Nú vitið þér afstööu vora gagnvart öSrum ríkj um heimsins. HaldiS því púðrinu vSar vel þurm og bröndunum beittum." Prins Louis af Battenburg, brezka flotaforingjanum, sém von er nú á til Bandaríkjanna, verður fagnað þar með stórkostlegri viö* tökum en nokkurum öörum út- lendum höfðingja, sem þangaS hefir komið áður, hafa veriö sýmd* ar, að því er smgt er. í varnarvirkjunum í Halifax kom upp stórkostlegrir eldur um helgina sem leið, og er sagt að skaðinn muni nema sextiu þús- und dollurum. Yfir tvær miljónir kvenna í Bandaríkjunum ætla sér að senda bænarskrá til congressjns um það aS Smooti þingmanni, sem er Mormóni, veröi ekki leyfð þing- seta næst þegar congressinn kem- ur saman. Taka konurnar það fram í bænarskránni, aS Smoot. hafi á valdi sínu atkvæöi átta þjingmannanna, og líkjegt sé aS honum muni takast aS auka vald sitt enn meira ef hann veröi lát- inn ná þingsetu. Á barnahæli í Wisconcin rík- inu í Bandaríkjunum, vildi þaö til fyrra föstudagskveld, að seytján stúlkubörn frá tveggja til sex ára aS aldri Veiktust mjög hastar- lega, og dóu þrjú þeirra á þriggja klukkutíma fresti. Rann- sókn á að halda til þess að ganga úr skugga um atvikin að þessu, því mjög sterkur gntnur leikur á að eitri hafi veriS blandað í mat baknanna. Maöur nokkur í Toronto strauk burtu af bóluveikraspítalanum ný lega,áöur en aö hann var fullkom- lega orðinn albata. Hefir hann nú verið dæmdur fyrir þaS í fjörutíu dollara sekt og málskostnaö, eða fjörutíu daga fangelsi ef sektin ekki er borguð á tilteknum tíma. Aukakosningar eiga að fara fram í fimm kjördæmum hér í Canada hinn 22. þ.nt. Þrjú af kjördæmum þessum eru í Ontar- io, eitt í Quebec og eitt í Nova Scotia. í Minnesota geröi ákaft snjó- veöur um helgina sem leið. í St. Paul stóð bylurinn yfir í samfleytt- ar fjórtán klukkustundir og varð strætisvögnum ófært yfirferðar þar í borginni. Járnbrautarlestir teptust þar allvíða í tíu klukku- stundir og sums staðar enn leng- ur. í bænum Sintaluta í Saskatche- wan var tólf ára gamall drengur sendur á laugardaginn var til aö sækja þvott á þvottahús Kinverja nokkurs þar. Eftir skamma stund kom drengurinn aftuv hlaupandi heim til sin meö stórt sár á hnakkanum, sem blóSið streymdi úr. Jafnskjótt og hann var kominn heim, og áSur en hann fengi nokkru oröi upp kom- iö hneig hann niSur örendur. Stuttu .síöar fanst Kínverjinn skorinn á háls í þvottahúsinu, og er það hald manna að hann hafi veitt drengnum þenna áverka, er varð honum að bana, og síöan lagt hönd á sjálfan sig af ótta fyrir afleiðingunum. Hon. I* rartk Oliver, innanríkis- mála ráðgjafi hélt mjög tilkomu- mikla ræðu í Macleod, Alta., á laugardaginn var. Var þar sam- an komiS hið niesta fjölmenni til þess aö hlusta á hann, og var svo mikill rómur geröur að ræöunni, og lófaklappiö svo hávært, aö ráS* gjafinn varð oft aS hætta í miöju endurnir voru að jafna sig. kafi og bíða viö á meöan tilheyr- Á mánudaginn var gaf Nikulás Rússakeisari út yfirlýsingu um þaö, að hann hefði afsalað sér einveld jsstiórninni yfir þegnum sínum, veitt þeim borgaralegt frelsi og heföi gert Witte ^ð stjórnarforseta. Witte, sem nú ei- 1»ngmestur stjórnmála-iskörung- ur á Rússlandi, tókst það þannig að lokurn að sannfæra keisarann um að þetta vseri eina leiðin til þess að afstýra vandræðum á Rússlandi eins og sakir standa þar nú. Er. illur kur er í aðals- mönnunum, sem nú þykjast sjá fram á að veldi þeirra og einræði sé aö þrotum komiö. Christopher Robinson, einhvcr mierkasti lögmaðurinn í Canada, andaðist í Toronto úr lungna- bólgu hinn 31. f. m., sjötíu og sjö ára að aldri. Tvö gufuskip, annaö sænskt en hitt rússneskt, rákust á í Norður- sjónum í vikunni sem leiS. Sukku skipjn bæði eftjr litla stund og druknuöu þar tuttugu og siex menn. Skipstjórarnir af báSum skipunum og fáeinir menn aörjr komust lífs af á skipsbátunum. ------o----- Ur bænum. Vegna þess aC stílsetningarvél Lögbergs bilaöi þegar veriö var at> setja blaöiö var ekki hægt aö koma því út á venjulegum tíma. Kaupendur blaösins eru þvíbeön- ir afsökunar á hvaö blaðið kemur seint til þeirra í þetta sinn. Capt. Patrick Lawler, yflr- fangavöröur yfir hegningarhúsinu í Winnipeg, andaöist á mánudag- inn var úr lungnabólgu. Lagleg stúlka, sem talar ensku, og hefir aö einhverju leyti vanist búðarstörfum, getur fengiö stööu í einni hinni beztu dry-goods búö borgarinnar. Lögberg gefur upp- lýsingar. Sérstakt athygli Winnipeg-búa er dregiö aö Carsley & Co. aug lýsingunni á 8. bls. Can. Northern og Grand Trunk Pacific járnbrautarfélögin kvaö nú hafa komið sér saman um aö byggja sameiginlegar járnbraut- arstöðvar sunnatil á Main st. Auk þessara tveggja félaga er svo sagt aö tvö önnur járnbrautarfélög, aö minnsta kosti, frá Bandaríkjun- um veröi í samlögum viö hin fé- lögin um afnot bygginganna. Byggingin, sem félögin ætla aö reisa er sagt aö verði hin stór- fengilegasta af því tagi í Canada og er áætlað aö hún muni kosta alt aö fjórar miljónir dollara. Sprungur á h'óndum. Þvoið hendurnar í volgu vatni, þurkið þær með hreinu handklæði og bcrið á þær Chamberlain’s Salve, rétt áður en þér farið að hátta. Það mun fljótt lækna vður. Þetta salve er óviðjafnanlegt við htiðsjúkdómum. Til sölu hjá öllum kaupmönnum. Samkoma ungu stúlknanna í Fyrsta lút. söfnuöinum, sem hald- in var í sunnudagsskólasalnum í kirkju safnaðaiins síöastliöiö þriöjudagskveld var ágætlega v ' sótt. Auk góögeröanna sem fra. voru bornar var skemt meö hljór færaslætti, söng og ræöuhöldu n ogfór þaö alt vel úr hendi. óhætt mun aö fullyröa aö allir gestiri :r hafi skemt sér mjög vel og t'ariö hæst ánægöir heim til sín ,iö endaöri samkomunni. Hjónavígslur. Hjón sainan vígö í Winnipeg af séra Jóni Bjarnasyni:—Franz Thomas og Clara Flórentine Anderson, 20. Sept.; Hans Friörik Ágúst Thom- son og Sigríöur Sólborg Hjalta- lín,28. Sept.; Þorgils Johnson og Guörún Rósa Halldórsson, 4. Okt.; Alexander Simpscn og Sig- ríöur Stefánsdóttir. 10. Okt.; Halldór Sigurðsson og Þorgeröur Hördal, 18. Okt. Box Sósíal. Box sósfal verður haldiö í saln- um undir Tjaldbúöinni á föstu- dagskveldiö 3. Nóvember r.æstk. (annaðkveld). Inngangur ókeyp- is fyrir alla og kaffi verður haft um hönd. Sömuleiöis fær unga fólkið aö skemta sér á eftir, hafa leiki (games) o. s. frv. Skemtan- r veröa góöar og er vonast eftir fjölmenni. Muniö eftir kveldinu. Hér meö viöurkenni eg aö í dag hefi eg meötekið eitt þúsund dollara ($1,000) frá herra Christ- jáni Ólafssyni umboösmanni New York Life Insurance félagsins.sem er borgun aö fullu á lífsábyrgöar- skírteini (Nr. 3636984) mannsins míns sáluga sem dó hér í bænum 3. þ. m. Eg er félaginu innilega þakklát fyrir fljót og góö skil. Winnipeg 30. Október 1905, Þorbjörg Vigfússon. ------o------- Fréttir frá íslandi. Akureyri, 16. September 1905. Kopar hefir fundist í kartðplu- garðinum mikla við Reykjarhól í Skagafirði. Það var útlendur jarð- fræðingur sem fann hann. Barnaveiki og skarlatsótt(?J hafa gert vart við sig í Hrísey nú fyrir skömmu. Akureyri, 23. September 1905. Nýlunda er það hér í landi, að s.öii'gjílokkur héðan fari til útlanda til þess að láta aðrar þjóðir heyra til sín. Mundi það jafnvel hafa þótt býsn mikil fyrir nokkurum árum. Söngfélagið „Hekla“ hér á Akureyri hefir þó afráðið rað gera þetta' og er rösklcga gert og ættu alfir bæjarbúar að óska að förin mætti verða félagsmönnum til sóma og ánægju. Söngmennirnir niunu verða 22. auk söngstjórans Magn- 1 ísar Einarssonar organista. Ferð- inni er fyrst heitið til Björgvinar, en eftir atvikum er húist við að fara víðar um Noreg. Mun Magnús hafa undirbúið för þessa að nokkuru á utanför sinni í vor. — Ráðið er að syngja eingöngu íslenzk lög, helztu þjóðlögin og svo lög eftir íslenzk tónskákl og er það vafalaust rétt. Þeir félagar leggja af stað í næsta mánuði. en áðttr en þeir fara mumt þeir bjóða bæjarhúum að hlýð • á sig. Akureyri, 9. September 1905. Sjúkraskýlið á Brckku er nú að komast undir þak. Eins og kunn- ugt er er það gert að fyrirsögn Jóns Þorlákssonar verkfræðings og er búist við að það verði fullgert á komandi vetrö Héraðsbúar skutu .saTnao til þess um 2000 kr., land- sióðttr veitti 80®, amtsráð Austur- amtsins 500 kr., sýslusjóðir N.-A Suðurmúlasýslu 350 kr., ipöatunar- félag Fljótsdalshéraðs 300kr.,Gránu- félagið 200 kr., Fljótsdalshreppur (tombólusjóður hreppsins) 800 .kr. Jökuldalshreppur 100 kr. F.nnfremur hafa þessir útlendir auðmenn geflð til sjúkraskýlisins L. Zöllner 250 kr. og V. Tostrup fyrv. kaupm. á Seyðisfirði 500. Þá hefir stórkaupmaður Sigurður Jóhannesson í Khöfn lofað að gefá alt að 2400 kr. ti1 sjúkrahúsbygg- ingarinnar og auk þess hafa þau hjón heitið að gefa sjúkrahúsinu 300 kr. árlega í 5 ár til rckstur- kostnaðar sjúkraskýlisins. Andrés Gunnarsson hreppsnefnd- armaður í Glæsibæjarhreppi andað- ist úr lungnabólgu aðfaranótina 3. þ. m. Hann varð aðeins 37 ára gamall. Hildur Snorradóttir yfirsetukona í Brautarholti andaðist 29. f. m. Komin yfir sjötugt. Hafði verið yfirsetukona yfit 40 ár. Frétt hefir komið um það af Siglufirði að í garði þeim sem ver- ið hefir hér úti fyrir landi þessa viku hafi 7 skip rekið á land áSiglu- firði, en eitthvað af þeim náðist fljótleea út aftur. Þrjú af skipun- um eru sögð mikið skemd, verða ef til vill að strandi. Eitt af þessum skentdu skipum er „Helena” hér af Eyjafirði. Nordurland. Reykjav., 10. September 1905. Litlar sögur hafa farið af málm- unum í Vatnsmýrinni nú um langa hríð. Vatnsleitarmennirnir tóku til að bora á öðrum stað, uppi í Eskihlíðinni, þegar þeir fundu ekki annað en málma fyrir sér niðri í mýrinni. En þar tók hið sama við. Um síðustu helgi höfðu þeir grafiö nær 100 fet niður og varð þá fyrir nafrinum mjög hart jarðlag, sem málmur var í (eir og zink?), en vatn fanst þar lítið eða ekkert. Það eru því horfur á, að ntiklu hægra veiti að finna hér í jörðu allskonar málma heldur en vatn, og virðist mörgum gremjast það. Líklega verður þó einhver fram- kvæntd gerð áður en langt um líður til þess að rannsaka málmlögin betur og undirbúa málmnám hér. Þess var getið í vor, að bæjar- sljórnin vildi veita hlutafélagi rétt til námugraftar, og var þeim samn- ingi skotið til atkvæða stjórnar-' ráðsins. Á fimtudaginn var svar stjórnarráðsins lesið á bæjarstjórn- arfundi og hafði stjórnin staðfest samninginn. Setur stjórnin þau skilyrði ad einkaréttartími félags- ins verði í lengsta lagi 50 ár, ad félagið ntissi einkaréttinn ef það lætur líða tvö ár án þess að halda áfram reglulegum námagrefti, með að roinsta kosti eins miklu hluta- fjármagni sem ákveðið verður að félagið taki til starfa nieð samkv. lögum þess, og ad stjórn hlutafé- lagsins skuli búsett í Reykjavík og eiga varnarþing þar. Stjórnin á- skilur sér eftirlitsrétt og veitir samþykkið með þeim fyrirvara, a& alþingi 1907 sentji sérstök náma- lög. Reykjav., 20. Sept. 1905. Sigurður skipstjóri Siguríinns- son úr Vestmanneyjum Iét i haf í irá Friðrikshöfn á Jótlandi 26. Ág. á vélarbát við þriðja mann. Hélt hann rakleiðis til Vestmannaeyja og náði þangað heilu og höldnu á ellefta degi (5. þ. m.) Gekk þeim félögum ferðin greiilega. Höfðu >eir stórt segl á hátnum. cg þurftu Ktt að neita vélarinnar^ því að byr var löngum hagstseður.. —Báturinn er 36 fet á lengd, og 12 feta breiður, en dýpt undir þiljuró-' fet. Hann var smíðaður íNoregi;. en vélin er frá Friðrikshöfn. —- Ætlar Sigurður formaður að halda bátnum til fiskjar úr Eyjunum. •— För þessi er hin frækilegasta, og munu þess vart dæmi, að svo langt haf sé silgt jafnlitlum báti með slíku fámenni. Ingólfur.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.