Lögberg - 11.10.1906, Síða 1
Ný eldavél.
í haust erum við að selja nýja stál elda-
vél með 6 eldholum, á $30.00. Við liöf
um selt mikið af þeim og þær reynasl
vel. Komið og skoðið þær.
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
$3$ Main Str Talephone 838.
Yeiðitíminn.
-iéi___ Ætlarðu á veiðar í __haust? tEf svo ‘er
______ þarftu byssu’og skotfæri. Hvorutveggja
fæs' hérfyrir lágt verð. D. B. byssur $10
og þar yfir.jHlaðin skothylki Ji.cjohundr^
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
538 Main St. Telephone 339.
19 AR.
Winnipeg, Man., Fimtudaginn, 11. Október' 1906.
NR. 4t
Fréttir.
Stórkostlegur eldsvoöi kom upp
í trjáviöarbirgöum félags nokkurs
í Quebec um miöja fyrri viku.
Brunnu þar um tuttugu miljón
feta af trjáviði, og skaSinn metinn
hálfa miljón dollara, og var full
vátrygging fyrir því.
Sú frétt barst nýlega frá Blue-
field í Wyoming ríkinu, aS sjötíu
námamenn hafi farist í West Fork
námunni. Haföi kviknaS í henni.
Námi þessi hefir þá kostaö mörg
mannsiif, því áriS 1902 fórust þar
sextán manns í einu. Mikill harm-
ur er þar í nágrenninu, eins og ab
iíkum ræður, og fjöldi kvenna,
barna og ættingja námamannanna
hópast vi6 námamynniö, leitandi
árangurslaust aö jarðfólgnum vin-
um sínum og ástmennum.
I. “ ———
i Nýja bæjarráöshöll eru Bran-
donbúar i undirbúningi meö aö
láta reisa, en ætla að rifa þá
gömlu, sem nú stendur þar. Kostn-
aöar við hina nýju byggingu tal-
inn að verða muni um sjötiu og
fimm þús. dollarar.
Tuttugu þúsund innflytjendur
hafa nú sezt aö í Edmonton hérað-
inu síöan 30. Júní 1905. Flestir af
þeim eru Bandarikjamenn og Eng
lendingar.
Víngerðarverksmiðja ein í bæn-
mn St. Catharines í Ontario brann
4. þ. m. Eyðilögðust þar vín-
birgðir miklar og byggingar þær
flestar, er notaðar voru til þeirrar
iðnar. Verksmiðjan stóð utan til
í bænum, og ekkert vita menn um
•það, hvernig þar kviknaði í, en
eignatjónið af bruna þessum er
metið um tvö hundruð þúsundir
dollara.
C. N. R. félagið kvað byrjað að
leggja teina á Hudson Bay braut-
ina og búist við að níutíu mílur
verði fullgerðar á þessu hausti.
Verkfallið í Calgary var til lykta
leitt 5. þ. m., og ákveðið að hlíta
úrskurði gerðardómsmanna. Hafði
verkfallið þá staðið yfir um
þriggja vikna tíma.
Breskt farþegaskip sökk i nánd
við eyna Hainan, austam við Kína,
4. þ. m. Fórust þar sextíu manns
auk skipstjóra,en nokkru af skips-
höfninni varð bjargað af skipi, er
átti þar leið um, skömmu eftir að
slysið skeði, þar á meðal tveim
konum, er hrakist höfðu á sjónum
liðugar fjörutíu klukkustundir.
Við ófriði liggur milli Tyrkja
og Búlgariumanna út af landa-
þrætumálum. Fara Tyrkir þar
undan í flæmingi, en Búlgaríu-
menn heimta fastlega ákveðin
landamerki milli lamdanna og hóta
Tyrkjum ófriði verði það ekki
komið í kring um miðjan þenna
mánuð.
| ------o-------
Witte greifi dvelur nú í Parísar-
borg ásamt frú sinni. Er hann ný-
kominn þangað frá Þýzkalandi.en
þar hefir hann lengst af dvalið
síðan hann fór brott af Rússlandi,
enda er hann Þjóðverji að kyni.
Þó að greifinn taki nú engan þátt
i stjórnmálam Rússlands, fylgist
hann manna bezt með öllum gangá
landsmála þar. Og er hann var
spurður eftir komu sína til París-
ar, um álit sitt á ástandinu á Rúss-
landi, kvað hann enn þá ekkj von-
laust- um, að auðjð yrði að forða
þjóðinni með því að koma þar á
einhverri aíSgengilegri stjórnar-
skipun, fyrir báða málsparta —!
þingbundnu einveldi helzt.
Símritað er frá Kaupmanna-
liöfn 4. þ.m., að Hákon Noregs-!
konungur með drotningu og syni
sínum ólafi, hafi komið þann dag
til borgarinnar í fýrsta sinn, eftir
krýninguna. Var konungshjónun-i
um tekið með mikilli viðhöfn og!
fögnuði Um hundrað þúsundir
manna voru viðstaddir á járn-
brautarstöðvunum við komeir uþrj
brautarstöðvunum til að fagna'
þeim við komu þeirra.
Reynt var að ráða herforingja
einum rússneskum bana, 8. þ.m.,
með sprengikúlu, en eigi tókst
morðingjanum nema að særa hann
Iítið eitt, og forðaði spillvirkinn
sér undan eftir það, og hefir eigi
fundist. — Sama dag voru þríri
upphlaupsmenn hengdir í Warsaw
á Póllandi.
Ákærur þær, sem bornar hafa
verið á fylgismenn Fieldings fjár-
málaráðgjafa, út af kosningarsök-
um, hefir verið vísað frá fyrir yf-
irrétti 8. þjm., þar eð þær voru
bygðar á misfellum við kosning-
arnar 1900, og því óviðkomandi
síðustu kosningum, er fóru fram
fjórum árum síðar, eða 1904.
Nú berast þær fregnir frá Cuba,
að hún sé hætt að vera sjálfstæ(U
lýðveldi, að minsta kosti fyrst um
sinn. Bandaríkin hafa skorist í
leikinn til að koma friði á þar, og
liefir hermálaráðgjafi Taft verið
settur landsstjóri þar til bráða-
byrgða, jafnvel líkindi til að hann
haldi því embætti, þar eð fjöldinn
allur af íbúnm á Cuba kvað þess
fýsandi. Herskip Bandaríkja-
manna eru nú sögð lent við Cuba,
en búist við að þau 'hafi lítið að
gera þar hér eftir, sem betur fer.
Danska ríkisþingið var sett 1. þ.
m. af Friðriki konungi áttunda.
Hélt hann þar fyrstu hásætisræðu
sína, síöan hann tók við konungs-
tign. Mintist hann á vinsældir
þær er Danaveldi ætti að fagna að
því er erlend riki snerti, en gat
þess og um leið, að Danir ættu ð
gæta þess grandvarlega í fram-
tiðinni, að vernda frelsi sitt, sjálf-
stæði og þjóðréttindi. Þá gat hann
þess enn fremur, að hann væri því
sérlega hlyntur, að réttmætt tillit
sé tekið til þeirra krafa er fslend-
ingar gerðu um stjórnarumbætur,
og bráður bugur undinn að að
sinna þeim bæði nú þegar og síðar,
ef þær kæmu þá fram.
------o------ .
Nú eru farnar að heyrast ýmsar
raddir víðsvegar í Bandaríkjunum
sem finna mjög til þess hve skóg-
arnir þar víða eru farnir að ganga
til þurðar. Þannig hafa nú íbúar
San Bernardino countys snúið sér
til Roosevelts forseta með beiðni
um, að settar verði nægar ráðstaf-
anir til þess, að hinir miklu skóg->
ar í þvi héraði verði eigi eyðilagð-
ir af hinum trjágírugu viðarhöggs
félögum, er mest hafa gengið fram
í því að eyðileggja skógana þar i
landi.
Dómur er nú kveðinn upp yfir
Páli Stensland, fyrverandi banka-
stjóra i Chicago, og hann dæmdur
i eins til tíu ára betrunarhússvinnu
fyrir að hafa dregið sér um fjögur
hundruð þúsunrl dollara af fé
banka þess er hann veitti forstöðu
þar í bænum, ásamt ýmsum fleiri
fjárglæfrabrellum í sambandi viö
stjórn bankans og nseðferð á fé
haas.
--------p
Fimm hundruð enskir skóla-
kennarar kváðu væntanlegir til
Canada á þessu hausti til að kynna
sér menningu, ástand og tilhögun
á skólafyrirkomulaginu hér vest-
an hafs.
Nýr fellibylur dundi yfir New
Orleans í þessari viku og gerði
miklar skemdir á eignum, manna,
eyðilagði híbýli og akra og meiddi
margt manna.
Ákaft ofviðri er sagt að komið
hafi á Lake Superior 8. þ.m. Sleit
fjölda skipa upp á ýmsum höfuum
og rak nokkur skip á land, flest í
LilyPond höfn. Eru menn hræddir
urn ýms skip er voru á ferð um
vatnið, þegar ofviðrið skall á, og
ekki hafði spurst til á miðviku-
dagsmorgun.
Róstur kváðu hafa verið í Buch-
ingham i Quebec næstliðinn mánu-
dag, er tvö hundruð verkfallsmenn
er áður höfðu unnið hjá McLaren
viöarsölufélaginu þar.réðust á hóp
af verkfallsféndum,og áttust hvor-
irtveggja ilt við. Skarst lögreglu-
liðið i leikinn, og meiddust margir
menn í uppþoti þessu, en tveir af
verkfallsmönnum voru skotnir til
bana.
Nýja skipaleið milli stórvatn-
anna Superior og Huron eru nú
Bandaríkjamenn að grafa við hlið-
ina á Soo-sundinu. Hefir verkið
þegar staðið yfir nokkra mánuði,
og er búist við að það verði full-
gjört á næsta vetri. Þessi nýi
skurður á að verða mílu að
lengd, þrjú hundruð feta breiður
og tuttugu og sjö fet á dýpt. Mik-
iö af leiðinni er klöpp, sem þarf að
bora og sprengja upp, og vinna
átta hundruð manna við að flytja
burt grjótmylsnuna.
Að tilhlutan Bandaríkjastjórnar
kvað nú eiga að höfða mál gegn
eitthvað fjörutíu járnbrautarfélög-
um þar í landi fyrir skort á eftir-
liti og notkun varúðartækja á járn-
brautunum til að hamla slysum.
Kvað stjórninni nú loks vera farið
að ofbjóða, hve feikna margir lát-
ast þar í landi árlega af jáxnbraut-
arslysum. Nú síðast hafa farist í
Bandaríkjunum af þeim sökum,
frá því síðasta September í fyrra,
eigi færri en áttatiu og fjórar þús-
undir, tvö hundruð fjörutíu og
fjórir menn, en liðlega hálft sjötta
hundrað þúsund særst. Sér það
hver heilvita maður, að slíkt er
ekki alt með feldu, og eitthvað
hlýtur að vera áfátt með eftirlitið,
enda Þótt umferðin sé þar mikil.
Vonandi er að stjórnin gangi rösk
lega fram í að skylda jámbrautar-
félögin að sjá Hfi farþega sinna
betur borgið eftirleiðis en að und-
anförnu, og væri hægt að taka
England þar til fyrirmyndar.
Sir Wilfrid Laurier og fleiri
ráðgjafar Dominion stjórnarinnar
sitja nú á fundi með öllum stjóm-
arformönnum fylkjanna í Canada,
þar er ræða á ýms áhugamál
fylkjanna, er við koma sambands-
stjórninni. Enn er fátt kunnugt af
því sem þar hefir farið fram, en
það ætla menn að óskir fylkis-
stjórnarformannanna fari nú i
líka átt og á fundinum í Quebec
1902.
í skriðum og vatnavöxtum
sunnan til í Mexico fórst nýlega
eitt hundrað tuttugu og fimm
manns. Skriðurnar eyðilögðu mcð-
al annars langa kafia af járnbraut-
um og brutu margar járnbrauta-
brýr og fluttu á burt með sér eða
moluðu niður fjölda húsa.
TyrkjasoMán hefirr nú um hríð
legið veikur og þungfe haldinn, en
því haldið levndu að þessu hvað
að honum gengi,. 10. þ. m. berast
þær fréttir með símskeyti frá
Parísarborg, að krankleiki soldáns
stafi af því að kurdversk kona
hafi sært hann með skammbyssu-
skoti all-hættulega, og veitt hon-
uin þann áverka sakir afprýðis-
semi. Sagt er að kúlan hafi lent í
maga soldáni, en lækni nokkrum
þýzkum hafi tekist að bjarga lífi
hans, og ná brott kúlunni og hafi
soldán eigi verið svæfður rneðan
það var gert, en borið sig mjög
karlmannlega.
Látinn er 9. þ. m. erkibiskup
Bond í Montreal níutiu og tveggja
ára gamall, merkur maður og
þjóðkunnur.
-----—0-----
Simritað er frá Brussel, höfuð-
borginni í Belgíu, að Belgjastjórn
hafi að ráði Leopolds konungs á-
kveðið, að koma sér upp herskipa
flota, og þegar farið að byggja
fvrstu skipin, sem nota kvað eiga í
byrjuninni til strahdgæzlu við
Belgíu.
Óvanalegar miklar rigningar á
Spáni hafa gert þar stórskemdir á
eignum manna. Hef.ir mest kveð-
ið að þeim í ná.id við Gibraltar
sundið. Hafa þar komið svo mikil
vatnsflóð að húsum hefir -svift af
grunnunum og akrar bænda alger
lega eyðilagst allviða.
------o-----
Ur bænum.
Tveir veitingamenn hér i bænum
eru ákærðir fyrir að hafa orðið or-
sök 1 dauða manns nokkurs næst-
liðið laugar dagskveld á Stoch Ex-
change hótelinu. Mennirnir heita
Thomas Powers og Alex. Savage.
Kvenfélag Tjaldbúðar-safnaðar
cr að stofna til kveldverðarsam-
komu þar í kirkjunni þakklætis-
daginn, þann 18. þ.m., eins og á
undanförnum árum, klukkan 8 að
kveldi. — Menn safnast saman
uppi í kirkjunni, eins og til guðs-
þjónustu. Þar verður sálmur
sunginn til að byrja með. Þá flyt-
ur presturinn ræðu um þakklætis-
daginn og tilefni hans. Því næst
fer fram stutt prógram. Síðan
verður gengið niður í samkomu-
salinn og neytt kveldverðar. Inn-
gangur 35 cts.
í Lögbergi var þess getið í vik-
unni sem leið, að Mr. A. Freeman
hefði verið fluttur frá Dominion
Lands skrifstofunni á aðra skrif-
stofu. Mr. Freeman er nú samt
sein áður aftur kominn á Domin-
ion Lands skrifstofuna og verður
þar að minsta kosti fvrst um sinn,
sökum þess að ekki var hægt að
vera án hans hjálpar þar að svo-
stöddu. En hvort Mr. Freeman
verður á skrifstofu þe sari áfram
að staðaldri, er enn ekki fastá-
kveðið.
. Einireiðin.
Þriðja hefti af Eimreiðinni fvr-
ir þetta ár hefir nýlega borist Lög-
bergi. Er það fjölfrótt, og að-
gengilegt almenningi til lesturs,
eins og vant er.
Efnis yfirlit er'þetfa:
1. Um prifnað og óþrifnað, eft-
ir Steingrim lækni Matthiasson.
2. Tvœr systur, íslenzk 3\-eita-
saga, eftir Jóni Trausta.
5. A. P. Berggren með mynd,
eftir Stgr. Thorsteinsson rektor.
4. Við aðal fojsana á sumtan-
verðu Islandi, eftir C. Köchler.—
Fylgja ritgerð þeirri átta myndir
af fossunum.
5. Anatole France, eftir doktor
Helga Pétursson.
6. Nokkur smákvœði, eftir Ólöfu
Sigurðardóttur.
7. Bjartsýni og svartsýni, tekið
eftir Lögbergi.
8. Sýnishorn íslenzku á 16. öWj,
eftir R. Meissner.
9. Sjálfstjórnarmálið í blöðum
Dana, eftir doktor Valtý Guð-
mundsson.
10. — 11. Ritsjá — og íslenzk
hringsjá.
-------0------
Fréttirfrá Islandi.
Reykjav. 1. Sept. 1906.
Vísindalegan styrk af danskri
dánargjöf, Linnes-legati, hefir
cand. jur. Einar Arnórsson fengið
ádrátt um og fór því utan um
daginn á Láru. Hr. E. A. er einn
hinn alla efnilegasti laganámsmað-
ur vor, fékk afbragðsgóða prófs-
einkunn í vor, enda höfðu þeir,
sem til hans þektu, gengið að því
vísu að, hann fengi landssjóðs-
styrkinn frá síðasta þingi til und-
irbúnings lagamensku hér. En þá
þurfti að gera það fé, 2000 kr. á
ári, í 2 ár, að bitling handa Stykk-
ishólmsmág ráðgjafans.
Hr. E. A. hugsar sér að leggja
sérstaklega stund á íslenzka rétt-
arsögu.
Látinn er 20. f. m. Þ'orsteinn
bóndi Magnússon á Húsafelli,fað-
ir séra Magnúsar í Selárdal. Han«
var í öllum greinum sómi sinnar
stéttar.
Sláttuvélar segir timaritið Freyr
að notaðar hafi verið 10 hér á
landi í sumar, 9 Herkulesvélar og
1 Deeringvél. Vel er yfirleitt látið
af vélunum og þykja hinn mesti
mannsparnaður.
Reykjav. 8. Sept. 1906.
Eyrarbakkahéraði þjónar í vet-
ur læknaskólakand. Eiríkur Kier-
ulf, í fjarvist héraðslæknis Ásg.
Blöndal, sem dvelur vetrarlangt i
Silhiborgar-heilsuhæli fyrir berkla-
veikt fólk.
Reyk^av. 12. Sept. 1906.
Grimur Magnússon, þb*i. á
Grundarstíg, bjó áður á Gljúfur-
holti í ölfusi, nál. 70 ára, dó 9. þ.
mán.
Þilskipafloti Reykjavíkur er nú
heiiM kominn, meiri hlutinn, illa
fiskaður heldur úr síðustu útivist-
inni.
Símskeyti frá Se_3iðisfirði til Poli-
tiken 27. f. m. segir skipstrand við
Langanes. Það var norskt gufu-
skip, Rapid, frá Kopervig, á heim-
leið frá Siglufirði með 1950 tunn-
ur af síld. Skipshöfn og nokkuð af
farmi flutti fær^’sk fiskiskúta til
Seyðisfjarðar. — lsafold.
Reykjavík, 12. Sept. 1906.
Margrét Þorláksdóttir, kona
Jóns Helgasonar kaupmanns á
Laugav. (írz HjallaJ, andaðist 5.
þ. m., 71 árs. Hún hafði legið
rúmföst í alt sumar.
Bráðkvaddur varð á leið fra.
Reykjavík upp að Elliðavatni umc
síðustu mánaðamót, Guðmundin:
Þorsteinsson kaupamaður á EIF-
iðavatni. Hann hafði verið sendur
31. Ág. ofan í Reykjavík, en komr,
ekki heim um kveldið. Daginn eft-
ir fanst hann örendur fyrir vestara
túnið á Elliöavatni. Hann var a£
Akranesi, átti þar konu og bönu
Jón Jónsson, bóndi á Litlu-
brekku á Grímsstaðaholti hér vi5'
bæinn, andaðist 6. þ. m. Hann
lætur eftir sig konu og uppkomire
börn. —Fjallkonan.
Reykjavík, 1 Sept. 190ÍL
Landsímastöðvar verða þegar-
frá byrjun þessar: 1. Reykjavík;
2. Kalastaðakot; 3. Grund; 4.
Norðtunga; 5. Sveinatunga; 6_
Staður ( iHrútaf.J ; 7. Lækjamót;
8. Blönduós; 9. Sauðárkrókur; io>_
Urðir (\ SvarfaðardalJ ; 11. Akur-
eyri; 12. Háls (FnjóskadalJ; 13.
Breiðumýri; 14. Reykjahlíð; 15.
Grímsstaðir; 16. Hof (Vopnaf.) ;.
17. Egilsstaðir; 18. Seyðisfjörður;
19. Eskifjörður.— Auk þess verða
væntanlega í haust opnaðar síma-
stöðvar á Vdpnafjarðarverzlunar-
stað, og ef til vill víðar. — Hafn-
arfjörður, sem hefir simasamban(E’
við Reykjavík og miðstöð fyrir sig
verður og vafalaust settur í sam-
band við landsímann. Sama er og
að segja um símanet Reykjavíkur,
svo að menn geti simtalað hér
heiman úr húsum sínum til allra
stöðva.
• Byrjunin verður því væntanlega
20 stöðvarr fyrir utan Reykjavík.
Ilt tíðarfar á austurlandi. 20. f.
mán. fenti í miðjar hliðar í Breið-
dal, en krapahríð niðri í sveit. j
Reykjavík, 8. Sept. 1906.
Laugard. 1. þ. m. hvolfdi fiski-
skipi í Steingrímsfirði kl. 5 árd. í a
bezta góðviðri. 5 menn, er á vont, .
druknuðu. Þeir voru Pétur Þórð-
arson (írá Gróttu, næturvörður *
hér áðurj, Jón Jónsson frá Ho’.U
(áður húsvörður í barnaskólanumjj/
Jón Jónsson (af Laugavegi ?), all-
ir úr Reykjavík; GuðjónPétursson
úr Keflavik og Jóhannes Jónsson
úr Steingrimsfirði. Það er ætlun
manna að stórfiskur hafi grandað
skipinu. (Fregnin símuð suður
með landsímanumj.
Sumarleysi er að frétta norðan
af Reykjafirði. Þar hafði taða ver-
ið borin í sjóinn um miöjan fyrri
mánuð. Á sumum bæjum þar þá
ekki farið að bera ljá á útengi.
Frá Reykjavík kostar 3 mínútna
viðtal alt upp að Grund (eða nærj
50 au., norður að Lækjamóti 75
au., að Urð í Svarfaðardal 1. kr..,
að Reykjahlíð 1 kr. 25 au., til
Seyðisfjarðar 1. kr 25 au.
Möðruvallakall veitt séra Jóni
Þorsteinssyni á Skeggjastöðum.
Kristján Jónsson fyr bóndi á
Hliðsnesi, síðast kaupm. í Hafnar
firði, drekti sér 2.þ.m. Var góður
bóndi áður, og vandaður sæmdar
»iaður alla tíð. 62 ára að aldri.
—Reykjav ík.