Lögberg - 28.02.1907, Síða 5
4
LOGBERG fÍMTUDAGINN 28. FEBRÚAR 1907
né reyna að afstýra nýjum svívirð-
ingurn.
Miklu fremur eru þeir liklegir
til að vilja hafa hönd í bagga með
stjórninni framvegis.
Þvi fáein gróðabrögð má leika
enn, meðan eftir eru þó þessar
átta hundruö þúsundir ekra.
Stórstúkuþing Good-Templara
Hið 23 ársþing Stór-stúku Good-
Templara Manitoba og Norðvest-
ur fylkjanna var sett að kveldi h.
11. þ. m. í Woodmen’s Hall, Elm-
wood, og stóð yfir i tvo daga.
Ýms mál voru rædd á þessu
þingi ,sem yrðu til framgengis
bindindismálinu og var þetta þing
eitt með þvi bezta sem haldið hef-
ir verið um nokkur undanfarin ár.
12 stúkur og þrjár unglingastúk-
ur sendu erindsreka á þingið og
alls tóku 34 meðlimir stórstúkustig
en 9 tóku alheimsstúkustig.
Skýrslur embættismanna voru
lesnar upp að kveldi hins 11. og
allar samþyktar i einu hljóði.
Skýrslur ritara gáfu til kynna ab
hagur stúkunnar stæði fremur vel.
Á árinu síðastliðna voru 9 stúkur
myndaðar og 2 endurreistar. 2
unglingastúkur hafa einnig verið
stofnaðar. 5 stúkur, hafa hætt að
starfa og er nú stúkna tala 31 með
1465 meðlimum og þrjár unglinga-
stúkur með 90 meðlimum; þetta
sýnir hag stórstúkunnar betri en á
síðastliðnum 10 árum. Mikil á-
herzla var lögð á myndun og við-
hald unglingastúkna i sambandi
við undirstúkur og skorað á alla
fulltrúa að mæla með stofnun
slíkra stúkna í sambandi við stúk-
ur sínar.
Br. W. Anderson, st. templar,
hafði verið falið á hendur áð fram-
v.ísa máli um stofnun innanríkishá-
stúku er starfaði yfir alt Canada-
riki og væri liður milli stórstúku
og alheimsstúku; hann flutti þetta
mál sköruglega og skýrði nákvæm-
lega starf slíkrar stóku, gaf skýr-
ingu um hvernig samskonar stúka
hefði starfað í Bandaríkjunum síð-
astliðið ár og mælti með myndun
slíkrar stúku fyrir Canada. Til að
ihuga þetta mál var skipuö fimm
manna nefnd, sem gaf skýrslu sina
og mælti með stofnun slíkrar
stúku. Að síðustu var mál þetta
falið framkvæmdarnefnd stórstúk-
unnar á hendur, til aö leita sér
frekari upplýsinga og henni um
leið gefið vald til áð hafa með-
gjörð með yfir árið. Fulltrúar voru
kosnir til að mæta, í sambandi við
fulltrúa frá öðrum fylkjum Cana-
da, á þingi til að stofna innanrik-
.ishástúku ef slíkt álitist til heiila
bindindisfélagsskapnum og hlutu
þessir kosningu; W. Anderson, J.
F. Silvester, B. M. Long, Ch.
Holmberg, H. B. Johnston, H.
Taylor, C. E. McDonald, G. G.
Wilson, F. Hunt, W. H. Lowe,
Mrs. J. M. Scott og Mrs. G. Búa-
son.
Br. L. W. Griggs flutti mál um
stofnan umdæmisstúkna. Var
þetta mál ítarlega rætt bæði ineð
og mót. Alment álit var að undir-
stúkur væru of fáar og tvístraðar
til þess að umdæmisstúkur gætu
starfað að notum. Stór-ritara var
falið á hendur að fá úrskurð al-
heims-templar um hvort hægt sé
að mynda umdæmisstúku fyrir
Winnipegbæ, sem ekki skerði rétt
undirstúkna með aö senda fulltrúa
á stórstúkuþing.
Líftryggingar- flnsurancej máli
var einnig hreyft á þinginu og
meðmæli flutt um að biðja R. T.
of T. að leyfa Good-Templara-
stúkum að taka hftrygging í
þeirra félagi. Margir töluðu í
þessu máli og voru mjög skiftar
skoðanir manna. Ein stúka hefir
tekið upp þessa liftrygging á síð-
astliðnu ári og var því siðast af-
ráðið að lofa þeirri stúku að halda
afram þvi starfi á komandi ári og
skyldi hún gefa nákvæma skýrslu
yfir starf sitt á næsta þingi þegar
þetta mál skyldi ræðast til hlýtar.
Embættismenn stórstúkunnar
kjörnir fyrir komandi ár, voru:—
Stór Templar, J. F. Silvester;
S. kanslari, W. H. Lowe; S. V. T.,
Mrs. N. Benson; S. G. U. V., Mrs.
W. L. Scott; S. Ritari, Mrs. G.
Búason; S. Gjaldk., B. M. Long;
S. Kap., Rev. W. L. Scott; S.
Marsk., H. H. Johnson; F. S. T.,
W. Anderson; S. G. kosninga, H.
Taylor; S. G. kapplestra. Mrs. .H.
P. Bjarnason; S. V., G. G. Wil-
son; S. A. R., O. P. Lambourne;
S. A. M., Bergström; S. U. V., G.
Hjaltalín; S. sendisv." F. Hunt.
Þinginu var slitið á miðvikud.-
kv. með skemtisamkomu, sem var
opin fyrir alla. Á þessari samkomu
fluttu þessir ræöur: Rev. Mac-
Lachlan, R. Marteinsson, R. J.
Hays, Mrs. W. L. Scott, og Mr.
B. Hagg. Allar voru ræðurnar
liprar og vel fluttar og áttu sér-
staklega vel við málefnið. Bind-
indisvinir voru hvattir til að fylgja
þeim mönnum með atkv. sínum
i komandi kosningum serri hlyntir
væru bindindi, án þess að taka til
greina hvaða pólitískum flokki
þeir tilheyrðu. Ágætis söngvar
(Solos) og upplestrar voru fluttir
og yfirleitt má telja að samkoma
þessi hafi verið með beátu af þessu
tagi sem haldnar hafa verið í
Winnipeg.
Winnipeg, 22. Febr. 1907.
G. Búason. ,
------o------
Fréttir frá íslandi.
Seyðisfirði, 9. Jan. 1907.
Frá Reykjavík er símritað. — Á
gamlárskveld safnaðist um 2,000
manns fyrir utan hús ráðherrans.
Hélt Jón Ólafsson ritstjóri þar
ræðu fyrir ráðherranum og endaði
með því að kalla: “Lengi lifi ráð-
herra Hannes Hafstein’’. Var tek-
ið undir það af mannfjöldanum
með margföldum húrra hrópum.
Ráðherra þakkaði með ræðu fyrir
fósturjörðinni og var að henni
gerður mikill rómur.
Seyðisfirði, 19. Jan. 1907.
Talsímaskeyti frá Sauðárkrók í
kveld; Verzlunarhús Popps í Hofs-
ós brunnu í fyrrakveld ásamt vör-
um í búðinni. Eldurinn varð þó
slöktur áður en hann náði til fleiri
húsa. Skaði 10—15 þús. krónar.
Orsök brunans óþekt. — Einnig er
nýbrunnin tööuhlaða á Ulugastöð-
um í Laxárdal.
—1,000 Templarar gengu í skrúð-
göngu um bæinn á nýársdag, er
þeir vígðu Hotel Island. fEins og
kunnugt er þá hafa Templarar í
Reykjavík keypt Hotel Island og
halda því áfram nú frá þessum
áramótum á sinn kostnað án vin-
veitinga, en að öllu öðru leytí á
sama hátt og áður. Fundi sína
halda Templarar í þessu nýja húsi
sínu í stórum sal, er þeir hafa látið
útbúa í öðrum enda hússins.J
Að kveldi 2. þ. m. kviknaði í tré-
smíðaverkstæði Ingvars ísdals hér
í bænum; brann það til grunna á
tæpri einni klukkustund. Hús og
vélar var vátrygt fyrir 8,000 kr., en
óhætt mun mega fullyrða, að það
hafi verið 12,000 kr. virði, svo að
skaðinn er því mjög tilfinnanlegur
fyrir eigandann.
Auk þess rnunu aðrir liafa átt
þar inni bæði timbur og verkfæri
og aðra muni fyrir um 1,000 kr.,
alt óvátrygt. Þannig misti einn
maður, er vann á verksmiðjunni,
öll smíðaverkfæri sín óvátrygð og
mun það vera 4—500 kr. skaði.
Látin er ungfrú Sigríður Bene-
diktsdóttir Sveinssonar bréfhirð-
ingamanns í Mjóafirði. Hún and-
aðist þar 6. þ.m. eftir ,-ltta daga
þjáningarfulla legu í botnlanga-
bólgu. Hún var nær þritug að aldri,
góð og vönduð stúlka að dómi
allra er þektu hana.
Dáin er á Vejlefjord Sanatorium
þ.ió.þ.m. María Stephensen fÞ.or-
valdsdóttir ThoroddsenJ kjördóttir
Stefáns Stephensens umboðsmanns
á Akureyri og frú önnu konu hans.
Hannes Þórðarsson bóndi á
Tjarnarlandi andaðist á jólanóttina
eftir langvarandi sjúldeik. Hann
var nær fertugur aö aldri, vænn og
dugandi maður. — Austri.
Greiðið atkvæöi með
Thomas H. Johnson.
Thc DOttlNION BANK
SELK-IRK itTIBtÍH).
Alls koaar bankastörf af hendi leyst.
SpurisjóOsdeildin.
TekiB vi8 innlögum, frá $1.00 að upphae*
og þar yfir. Hæstu vextir borgaðir. ViB-
skiftum bænda og annarra sveitamanna
sérstakur gaumur gefinn. Bréfleg innlegg
og úttektir afgreiddar. O eftir bréfa-
viSskiftum.
Cairns Naylor & Co.,
Glenboro - - Manitoba.
ÖNNLR MAKALAIJ8 KJOKKAIPAVIKA.
Hér er kjörkaupastaöurinn, staöurinn þar sem þér dag eftir dag og viku eftir viku
getiö keypt betri vörur og ódýrari en nokkurs staöar annars staöar í landinu. Vér óskum
eftir viöskiftum íslendinga. Vér óskum eftir aö íslendingar geri þessa búö aö aöalverzl-
unarstað sínum. Vér ábyrgjumst að gefa þeim betri viöskifti en þeir nokkuru sinni hafa
áöur átt völ á. Mr. Halldór Bjarnason og Mr. Jón Baldwin eru ætíö við hendina í búö-
inni til þess aö sinna löndum sínum.
FÍKJUR Kjörkaup á kvenpilsum niðursoðnir ávextir
' , „ Að eins fá eftia. Þau eru $5.00, Strawberries. vanal. 25C. Nú 20 c
Sérstaklega goð tegund. Kosta $6.oo og j7.oo vir5i. Nú fást þau Peaches „ 25C. „ 20 c
vanalega ioc pd. Utsoluverðnu fyrir$5 oo. Pears ,, 2oc. ,, 15 c
^ 2$C ' ^
YFIRHAFNlR FYRIR HÁLF- KÓRENNUR DÖÐLURv
VIRÐI . Besta tegund fra Cahforniu, vel Ágætar döðlur með niðursettu
„ ' . . . ... hreinsuð. Kosta vanalega I2jácpd verði, þær eru glænvjar. Vanalegt
Hugsið eftir þvt að margt af þessu Utsöluverð nú i2Pd á |t .00. verð I(£ d. ótsöluverð 4 pd á 2?c
eru ayjar vorur. , r ^p D
Vanal. $12 yfirhafnir á .$6,oo RÚSINUR WAGSTAFFS JAM
™ 5.oo Hugsið að eins eftir hve mikið Bezta og hreinasta tegundin.svip-
- ?’5° þérspanð. þessum kaupum. Vana- uðust því sem búið er til heima fyV-
’’ % .........legtverð i5c pd. Utsoluverönu ir Selt í tinfötum, Vanalegt vero
’’ ° .........3'°° iapdáli.oo. 75C, Nú að eins á 50 c,
GÓLFDUKAR pEAg
Nýju tegundirnar eru komnar, ^ , . , SIRZ.—Allar nýjustu tegundir af
tvö og fjögur yds á breidd, falleg- Bezta tegund sem faanleg er af sirzum og bómullarefnum, Komið
ustu litir. Verð 3$c,5°c, 6oc og *i,io ^ænnn: Peas Kosta vanalega ioc og skoðið,
J Utsöluverð nú 3 konnur á 25C
mam
Nátur innkallaðar fyrir bændur fyrir
sanngjörn umboðslaun.
Við skifti við kaupmenn, sveitarfélög,
skélahéruö og einstaklinga með hagfeldum
kjörum.
d. GRISDALE,
bankastjórl.
14 DAGA
afsláttur á gullhringuin
og armböndum.
Kvenhringa, sem eru $3 til $5.75
viröi'læt eg fara fyrir.... $2.40
Armbönd, sem eru ekki minna en
$2.50 til $4.50’virði sel eg nú
næstu 14 daga íyrir .. .. $1.95
Úr hreinsuð
fyrir $1.00
og ábyrgst í eitt ár.
Allar viögeröir fljótt
og vel af hendi
leystar. — Gestir,
sem heimsækja bæ-
inn ættu að athuga
þetta.
Th. Johnson,
Jeweler,
292k Main St., Winnipeg
Phone ðöOð.
Til kiósenda í
Mid=Winnipeg.
Atkvæða yöar og áhrifa, viö næstkomandi kosningar, æsk-
ir viröingarfylst
Dr. J. A.
MACARTHUR
ÞINGMANNSEFNI
LIBERALAFLOKKSINS.
Dr. MacArthur 1 hefir átt heima í Winnipeg í síöastliöin
tuttugu og tvö ár og hefir jafnan tekiö mikinn þátt
í málefnum þeim er snerta hag verkamannanna
jafnframt öörum málefnum.
£3
NEFNDARHERBERQI
f
LIBERAL CLUB BYCCINCUNNI
A
NOTRE DAME AVE,
Beint á móti Winnipeg leikhúsinu.