Lögberg - 09.04.1908, Síða 1
--------------------------
[ÉR viljum koma oss í kynni við lesendur S
þessa blaBs. Vel má vera, að þetta sé í *
fyrsta sinn, sem þér heyrið oss nefnda, en S
oss langar að kynnast yður nánar. Vér höfum 0/
þenna stað næsta ár, lesið hann. Þetta er bænda-
félag. Sendið oss eina vagnhleðslu korns og vér
munum útvega yður hæsta verð, og taka að eins i
cent á bush. í ómakslaun. Sendið korn yðar til
The Grain Growers Grain Company, Ltd.
WINNIPEG, MAN.
D. E.'Adams Coal Co.
* i
KOL og VIÐUR
Vér seljum kol og við í smákaupum frá
5 kolabyrgjum í bænum.
Skrifstofa: 224 BANNATYNE AVE.
WINNIPEG.
21. AR.
Winnipeg, Man.,
Fimtudaginn, 9. Apríl 1908.
NR. 15
Fréttir.
Rússakeisari rauf finska þingið
2. Þ. m., og látið heita svo, aS þaS
hafi veriS gert vegna þess, aö
þingiö hafði nýlega lýst yfir van-
trausti sínu á “senatinu” og ýmis-
legt fleira, er rússneska stjórnin
finnur því til foráttu. Vitanlega
er þetta aöallega gert til þess aö
þröngva kosti Finna. Kosningar
eiga aftur aö fara fram í öndverö-
um Júlímánuöi næstkomandi.
Fylkisþingiö í Saskatchewan var
sett 2. þ. m. Wetmore háyfirdóm-
ari setti þaö í fjarveru Forgets
fylkisstjóra. Þaö helzta sem minst
var á í hásætisræöunni var tal-
þráöamáliö, þar sem ráö er fyrir
því gert, að fylkið eigi og starf-
ræki talþræði sjálft. Þá var og
lýst yfir Því, aö háskólamáliö væri
allvei á veg komið. Þess var og
getið, aö uppdrættir af nýju þing-
og fylkisstjórnar byggingunum
væru fullgeröar, og aö þær yröu
reistar hið allra fyista, að auðið
væri. Meðal frumvarpa, er fyrir
þingiö skulu lögö, er frumvarp viö
vikjandi kosningum, frumvarp um
skólabækur, frumvarp viðvikjandi
vínsölu o. fl., o. fl.
Sagt er að leggja eigi frumyarp
fyrir prússneska þingiö þess efnis,
aö hækka laun keisara. Þau eru
nú nærri fjórar miljónir dollara á
ári og greidd honum sem konungi
Prússa, þvi aö keisaraembættiö er
ólaunaö. — Launahækkunina á aö
byggja á því hve framfærslukostn-
aöur keisarafjölskyldunnar hafi
aukist m. m., en þó er sagt aö Vil-
hjálmur keisari hafi lagt upp tölu-
vert fé um nokkur ár eins og ekki
er aö furöa.
Vegna þess aö eigi komst sam-
komulag á milli “The United Mine
Workers” i Bandaríkjum og vinnu
veitenda núna um mánaöamótin,
uröu um tvö hundruö þúsund
námamenn atvinnulausir. Þeir eru
flestir í Pennsylvania, Ohio og
Mississippi ríkjum, sem hættu
vinnu.
Laurier stjórnarformaöur hefir
nýkga lýst yfir því í sambands-
þinginu, aö Walter Cassels dómar«
hafi veriö skipaöur til aö sjá um
ítarlegri athugun á óreglu þeiiri,
er skýrsla “Civil Service” nefndar-
innar telur vera i sjávar- og fiski-
mála deildinni, og er nú þegar bú-
iö aö víkja burtu þremur embættis-
mönnum úr þeirri deild.
Sambandsstjómin i Canada hef-
ir fengið tryggingu fyrir því hjá
japönsku stjórninni, aö þegar á-
kveðin tala Japana hafi flust hing-
aö ár hvert, skuli eigi fleiri vega-
bréf vera veitt neinum Japönum
hingaö á Þvi ári. Monroe innflutn
ingsmála umboösmaöur Dominion-
stjómarinnar i Vancouver hefir
fengiö tilkynningu um þetta ný-
lega. Skýrsla um japanska inn-
flytjendur veröur haldin í Ottawa,
og þegar fjögur hupidruð þeirra
eru komnir hingaö á ári hverju, þá
veröur hætt að gefa út vegabréf
hingað Japönum til handa í Tokio.
'A Þessu ári er sagt aö eigi hafi
fluzt hingaö til lands nema hundr-
aö Japanar.
Tvö herskip brezk rákust á i
Englandssundi 2. þ. m. Annað
þeirra, tundurbátur lítill, sökk því
nær samstundis, og fórust þar þrjá
tíu- og sex menn. Tuttugu og
tveimur var bjargaö.
Útsæöistegundum var úthlutaö
af stjórnarskrifstofunni til handa
bændum í Sask. og Alberta í þess-
um mánuöi snemma, svo sem hér
segir: Saskatchewanbúum 482,-
279 bush. af hveiti, 484,529 bush.
af höfrum og 58,269 bush. af
byggi. Albertabúum, 27,795 bush.
af hveiti, 183,850 bush. af höfrum
do.5^3 bush. af byggi. Samtals
báöum fylkjunum 1,287,233 bush.
Hafrarnir eru innfluttir frá Bret-
landi og seldir á 85 cent. bush., en
hinar útsæðistegundirnar að meöal
tali 70 cent. bush.
í fréttum frá Pittsburg núna um
mánaöamótin er þess getiö, að
Pennsylvaníu jámbrautarfélagið
hafi gefiö út skipun um, aö öllum
útlendingum i þjónustu þess skyldi
þegar í staö sagt upp atvinnu, og
j eftirleiöis eingöngu veita þeim
j vinnu, er væru Bandaríkja borg-
arar. Þessi skipun k\raö hafa
mælst afar illa fyrir sem vonlegt
er, meö þvi aö félagið hefir um
hundraö og átta Þúsund manns í
þjónustu sinni og marga þeirra út-
lendinga. — Engin orsök er greind
fyrir þessu gerræði, en kvisast hef-
ir þaö, aö járnbrautarfélagið ætli
aö láta forsetakosningamar næstu
til sín taka og í því augnámiði vilji
Þaö tryggja sér aö hafa þá eina aö
vinnumönnum, er kosningarrétt
hafi.
—
Tekjur ríkissjóösins brezka síð-
astliöiö fjárhagsár, er endaði 31. f.
mán., nema $782,688,450,eöa hálfri
sjöundu miljón meir en árið næsta
á undan.
i Heimastjórn íra hefir nýlega
: verið rædd allítarlega í neöri mál-
stofunni brezku. l>ó veröur ekkert
endilegt gert i málinu, fyr en eftir
næstu kosningar. Umræðunum
lauk samt meö því samþykt var
með 313 atkv. móti 157 conserva-
tivum tillaga John Redmonds, sem
telja má sjálfstjómarmálinu í vil.
En sú tillaga er á Þessa leiö: “J»aö
er skoöun þingdeildarinnar, að
irska málinu veröi ekki ráöið til
lykta fyr en þjóðinni írsku er veitt
löggjafar og framkvæmdarvald i
öllum írskum sérmálum.” Áður en
umræðunum lauk var þó viö bætt
setningu, er fremur er til takmörk-
unar á sjálfstæöi íra en hitt. En i
næstu kosningum verður þessi yfír
lýsing brezlca þingsins nú eitt aöal-
umræðuefnið þingmannanna írsku.
Sagt er aö Dr. Nordenskjöld sé
aö gangast fyrir Þvi að heim-
kautafarar haldi þing meö W
undir tilsjón allsherjar heimskaut-
málaskrifstofunnar í Brussel.Þessi
tillaga Nordenskjölds hefir vakið
mikla athygli, og fer hún fram á
þaö, að sérhver Þjóð sem hefir
tekið þátt 5 heimskautaförum
hingað t)l skuli senda tvo fulltrúa
á þingið, og helzt aö annan full-
trúann er farið hafi til aö leita
suðurheimskautsins en hinn norö-
urheimskautsins. Aðal tilgangur
þingsins á aö vera sá aö gera
mönnuni ljósan árangurinn sem
oröiö hefir af ferðum heimskauta-
fara en síöur þaö, aö hvetja til
nýrra leiðangra noröur eöa suöur
í höf.
Landstjórinn í Alaska hefir ný-
lega sent Bandaríkjastjórn skeyti
þess efnis aö fá sent hjálparlið til
aö sefa námamenn er vinna í
Tread-well námunum og nú hafa
gert ferkfall. Svo er sagt að eitt-
hvaö átta hundruö verkfallsmanna
flestir útlendingar hafi náð í tíu
kassa af sprengiefni og ógni meö
Því bæöi að sprengja námana og
menn í loft upp. — Taft hermála-
ráðgjafi samþykti aö senda her-
mannasveit þangaö frá næsta kast-
ala Þar í grend.
Dr. Zimmermann læknir settur
af þýzku stjórninni til aö Iíta eft-
ir heilbrigðismálum i þýzku ný-
lendunum í Afriku, fer þess á leit
aö alsherjar samþykt verði gerö
um þaö, aö hætt veröi algerlega aö
flytja inn vín og selja Afríkubú-
um, innfæddum. Hann leggur þaö
og til sérstaklega aö hætt verði aö
flytja vín inn í þýzku nýlendurnar
í Afriku. hvort heldur aö tilhlut-
an þjóöverskra firma eöa annara
útlendra, og öllum þeim sé strang-
lega bannað meö lögum aö selja
innfæddum Afríkubúum áfengi.
Þýzkur greifi, Arnvin aö nafni,
er jarðeignir miklar á í Þýzka-
landi, heldur því fram aö kartöflu
uppskera mikil veröi í Þyzkalacdi '
í ár, vegna þess aö kartöflu sýkin !
(blightj sé nú komin um alt Vest- !
ur Þýzkaland og til Danmerkur.
Greifinn heldur því fram aö kart-
öfluuppskeran í Þýzkalandi veröi
30 miljónum tonna minni en |
venjulega og yröi Þaö landinu á!
að giska $150 miljóna skaði.
ipær fréttir hafa blööin hér eft-
ir blaöinu Berlin Tageblatt, aö ;
tundurbátar þeir er Bandaríkja- j
maöurinn Lewis Nixon féldc svo
miljóntim rubla skifti fyrir aö láta
smíöa sé að engu nýtir i sjóorustu.
Eftir þessu hvaö og flest annaö
fara um þjóðmálastjórnina á
Rússlandi, og sýni slíkt glögt hve
algerlega ófær Nikulás keisari sé
til aö sjá viö fjárbrellum skrif-
finna þeirra er í stjórnardeildun- í
um sitja og um það eitt hugsa aö
sölsa landsfé undir sig og vildar- 1
menn sína. Fýzka blaöiö skýrir
frá feikilegum fjárdrætti embætt-
ísmannanna í hinum ýmsu stjóm-
ardeildum, og styöur framburö
sinn meö dæmutn og.tilfærir nöfn
mannanoa, er valdir séu að fiessu.
— Á ári hverju kvaö off jár veitt I
til flotamáladeildarinnar til her-!
skipaútbúnaöar ýmiskonar, sem
aörar Þjóöir fyrir lðngu síöan eru
hættar að nota, vegna þess að
annaö nýrrra og hagkvæmara er
komiö i staöinn hjá þeim. Og oft
og tiöum kvaö féö jafnvel alls ekki
notað til Þess sem þaö er veitt til,
en rennur beint ofan í vasa em-
bættismanna stjórnardeilda, æðri
og lægri og skýrslur um flotann
meira og minna falsaöar.
Búist er við aö fylkiskosningar
í Ontario fylki fari fram snetnma
á komandi sumri. Enn er þó eigi
búiö að ákveöa þær nákvæmlega.
Heilsufar Sir Henry Campbell-
Bannermanns er viö hiö sama, eh
samkvæmt ráöum lækna sinna hef-
ir han'n nú sagt af sér forsætis-
ráöherra embættinu. Eftirmaður
hans veröur Asquith fjármálaráö-
gjafi, og hefir hann veriö boðaður
á fund Bretakonungs, er nú dvel-
ur í Biaritz, til aö ráögast um
myndun nýja ráöaneytisins, því að
tá'-aneyti 'Bannermanns fer irá
m Ö honum. Ekkert veröur gert í
því aö rrytida nýja ráöaneytiö íyr
■!i þeir hafa fundist kon ingur og
Asqúith. Líklegt Þykir aö almenn-
ar kosingar fari ekki fram fyr en
1910.
Helzt lítur út fyrir aö stórkost-
legt verkfall veröi meöaí verka-
manna í París. Þaö er afleiðing
erjanna. sem hófust þar i fyrra í
Maímánuði milli steinsmiöa og
vinnuveitenda Þeirra. Þeir hafa
ekki enn getað oröiö ásáttir, og nú
hefir Willimin, verkamanna ráö-
gjafinn franski. lýst vfir því, aö
ef steinsmiðir gangi ekki aö boðum
vinnuveitenda, Þá veröi aörar deild
ir iðnaöarmanna í bænum sviftar
vinnu, trésmiöir, málarar, járn-
smiðir, glerarar o. fI., og þá taliö
aö tvö hundruö þúsundir manna
muni missa atvinnu i Parrs.
Kosningaróstur miklar og upp-
hlaup kváöu hafa veriö í Lissabon
1 Portúgal um síðustu helgi, svo aö
iriösamir borgarar hafa eigi veriö
óhultir um líf sitt, en sífeldir bar-
dagar á götum úti milli upphlaups-
manna og herliösins, er orðið hefir
aö skerast i leikinn. Nokkrir hafa
veriö drepnir í skærum þessum en
særðir eru svo hundruöum skiftif.
Sagt er aö Japanar muni ætla aö
fara aö flytja sem óöast til Suöur-
Ameríku. Til Chili kváöu eigi
færri en þrjú þúsund þeirra eiga
aö verða fluttir á þessu ári.
sk’-'far. A. J. Johnson organisti
sér nú um íslenzku fréttimar.
Sjguröur Sölvason, sem heim
fór á þriðjudaginn í fyrri viku baö
blaöiö aö flytja sveitungum sínum
í Westbourne innilegt þakklæti sitt
og konu sinnar fyrir samveruna
fyr og síöar. Þetta átti aö koma í
síðasta blaöi, en féll úr fyrir van-
gá. í síöasta blaði er sagt, aö
Westboumebúar hafi haldið Sig-
uröi kveöju samsæti aö heimili
Friöriks Eyvindssonar. Þetta átti
aö vera Þiðriks Eyvindssonar.
Ræningjar tveir vopnaöir brut-
ust inn á skrifstofu í vörubirgðar-
húsi Nicholson & Bain verzlunar-
félagsins á Bannatyne ave. hér *
bæ, á fimtudagskveldið var og ætl-
uöu aö neyða bókarann, er þar var
einn aö vinnu, til aö hleypa Þeim
í peningaskápinn. Hann var rétt i
þann veginn aö loka peningaskápn
um er þá bar að, og tókst þaö þótt
ræningjamir skytu á hann tvdm
skotum. Han nsæröist þó aö dns
á fæti, en þeir höföu sig á brott, er
Þeir gátu engu fémætu náö.
FRÁ BLAINE,
0r bænum.
og grendinni.
Mr. Sig. J. Jóhannesson brá sér
noröur til Nýja íslands snögga
ferö á mánudaginn var.
Aö sunnan eru staddir hér þeir
séra Hans B. Thorgrímsen, Jónas
Hall og Bjöm Halldórsson.
James Goodman frá Holland,
kom hér snöggvast eftir helgina.!
Hann sagöi alt tíöindalaust úr því
bygöarlagi.
Fr. Svarfdal hér í bæ flytur al-
farinn í dag vestur til Sldpnir,
-Sask. Hann hefir tekiö þar heim-
ilisréttarland og ætlar aö setjast
að á Því.
Tekjur vatnsmálsddldarinnar í1
Winnipeg hafa náö áætlun fyrir
fjárhagsáriö sem leið, en þaö var á
enda 31. f. m. Tekjurnar voru ■
$357.37546.
Kvenfélag Fyrstu lút. kirkju ætl-
ar aö hafa Bazar 5. og 6. Maí,
í sunnudagsskólasalnum, eins og
aö undanfömu. Þ'ar veröur til
sölu klæðnaður ýmiskonar og
margt fleira. Veitingar veröa lika
seldar.
Héöan ætla aö leggja á staö til
Iriands, 20. þ. m., þeir Böövar
Sigurösson frá Swan River og
GuðmundurThorsteinsson frá Bel-
mont og Stefán Magnússon prent-
ari héöan úr bæ. Böövar ætlar
snögga ferð en hinir setjast Iíklegi
að á gamla landinu.
Um síöustu helgi hlánaöi svo aö
nú má heita oröiö alautt hér. Eng-
in veruleg vorhlýindi hafa samt
verið þessa viku fyr en helzt í gær.
Þaö hefir flogið fyrir, aö Þjón-
ar strætisvagnafélagsins mundu
hætta vinnu þá og Þegar. Þdr
hafa beöiö um hækkaö kaup og
styttri vinnutíma. En félagiö kvaö
neita, aö þvt er sagt er.
Emma Goldman, gjöreyöandi,
hefir veriö hér í bænum aö flytja
fyrirlestra fjrrir og eftir hdgina.
Hún fór suöur aftur á þriöjudag-
inn. Eins og lcunnugt er hefir hún
veriö mjög fyrir um mál gjöreyö-
enda í Bandaríkjunum undanfarin
ár.
1 þrettánda tölubl. Lögbergs 26.
f. m. hefir falliö burtu ein lína í
dánarfregn um Einar heit. Engil-
bertsson, milli tólftu og þrettándu
l'nu, svo hljóðandi: “Helgafelli,
en móöir hans var Val-” Setning-
in, sem hún var í, lesist því þann-
ig: “Séra Engilbert faöir hans
Þóröarson, stúdents, er bjó að
Vigri viö ísafjaröardjúp sýslu-
manns aö Hdgafelli, en móöir
hans var Valgerður” o. s. frv.
VVash., er skrifaö x, þ. m.: Tiöar-
fariö í Febrúar var hér ágætt.
Mjög litlar rigningar en frost
stöku sinnum á nóttum. í Marz-
mánuöi voru míklar rigningar meö
köflum. Meiri en vanalega eru á
Þeim tima árs, og engin regluleg
vorhlýindi komin enn. Samt er
skógurinn farinn aö laufga og gras
fariö aö spretta. Nokkrir eru byrj-
aöir aö sá í akra og garða. Þegar
miöaö er viö atvinnuskort þann,
sem veriö hefir hér á ströndinni í
vetur, þá er óhætt aö segja, aö líð-
an fólksins hér í Blaine er fram
yfir allar vonir. Margir hafa haft
vinnu viö skógarhögg, jámbrautir
og byggingar. Kaupiö hefir veriö
nokkuö lægra en vant er, en hefir
þó veriö fólkinu góö hjálp. Nú eru
mylnumar farnar aö vinna og
útlitið aö batna fyrir verkalýðinn.
íslendingar, sem lönd eiga hér i
kring, hafa unnið aö Því aö hrdnsa
þau i vetur, og á þann hátt lagt í
sjóö fyrir ókomna tímann.
Sagt er að Álftavatns og Grunna-
atnsmenn séu aö hugsa um aö
:oma á hjá sér svdtarstjóm og
itti aö halda almennan fund um
iaö 7. þ. m. Aöal forgöngumað-
ir fyrir þessu er Helgi Pálsson i
Jrunnavatnsbygð. Þaö er tíma-
•ært aö sveitarstjórn kæmist á þar
’tra og vonandi aö veröi af þvt.
Skírnir,
síöasta hefti ársins sem leið, er nú
nýkomiö vestur. Efnis yfirlit er
þetta:
Guöm. Friöjónsson: Niðurlag
á ritgerðinni um Stephan G.Steph-
ansson.
Guöm. Fnnbogason: Aldarminn-
ing Jónasar Hallgrímssonar.
Finnur Jónsson: Völuspá.
Briet Bjarnéöinsdóttir: Ágpúp af
sögu kvenréttinda hreyfingarinnar.
Helgi Pétursson: Upptök mann-
kynsins.
Ritdómar eftir Guðm. Finnboga-
son. 4JJ
Bjöm Jónsson: Erlend tíöindL
Þorst. Gislason: ísland áriö
1907.
Skýrslur og rdkningar Bók-
mentafélagsins.
[ ^ Fyrir tuttugu árum.
1 ÖGBERG 28. Marz. 1888.
■~r
i
___i
Sveinn Brynjólfsson, kona og
yngsti sonur, er dvalið hafa í Cres-
cent Lodge vestur viö Kyrrahai
siðastliðna þrjá mánuöi, komu aft-
ur hingað aö vestan á laugardags-
morguninn var. Þau hafa unaS
hag sínum vel vestra. Tíðarfar þar
mjög milt í vetur og frost engin
aö kalla.
Free Press hefir flutt í vetur
fréltir frá íslandi og íslendingum
í Ameríku einu sinni í viku, á
fcstudögum. Fréttirnar em líka 5
Weekly Free Press. Þær em þar^
mrð fréttum frá Svíþjóö. Noregi
cg Danmörku, sem A. C. Jones,
tiUtjóri sænska blaösins “Canada”
Hjónavígslur í Winnipeg: Sig-
uröur Bárðarson og Guörún Dav-
íösdóttir (12. Marz). — Einar Sæ-
mundsson og Þóra Sæmundsdóttir
(T3. MarzJ.
Fasteignaverzlun og lán út á
fasteignir stendur i staö — sama
deyfðin, en þeir sem fyrir þeim
kaupskap standa vona að bráö-
lega komi betri tímar. þegar járn-
brautardnokunin veröur afnumin,
sem búist er við innan skamms.
Þeir vonast þá eftir aö fasteignir
hækki í veröi og alt muni ganga
greiölega. — En sem stendur er alt
dauft.
Garðarsöfnuður ætlar aö fara aö
byggja kirkju í sumar. $x.ooo
hefir Þegar veriö lofaö til fyrir-
tækisins. Vér höfum séö teikning-
una og eftir henni veröur kirkjan
prýöis-fallegt hús—tuminn sérstak
lega smekklegur og reisulegur.
Yfir $1,000 hafa landar í Pem-
bina Co. fengiö einum manni í
hendur i vetur til aö senda heim
til íslands. Auk þess hafa vafa-
laust miklir peningar veriö sendir
á annan hátt.
Mountain búar hafa verið aö
leika “Útilegumennina” eftir Matt.
Tochumsson fyrirfarandi. Aðsókn
in hefir veriö mikil. og fvrirtækið
hefir borgað sig vel. Herra Bjöm
Blöndal stendur fyrir leiknum.
Hljóðfæri, einstök Iög og nótnabækur.1
Og alt sem lýtur a8 músík. Vér höfum stærsta og bezta úrval af
birgðum í Canada, af því tagi, úr að velja. Verölisti ókeypis.
Segið oss hvaö þér eruö gefinn fyrir.
WHALEY, ROYCE & CO., Ltd., 256 Main St., WINNIPEG.
Hafið þér séð nýju'hattana brúnu? Þeir eru^m"JR ®eint lrá
--- Dökkbrúni blærinn og flötu börðin gera þá mjög ásjálega. -
"WMITE & MANAHAN, 500 Möin St., Winnipeq.