Lögberg - 27.08.1908, Blaðsíða 2
2.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 27. ÁGÚST 1908.
ÍSLAND.
Útgarös-vörSur fegurst ríms og rúna ,
Ránar-drotning sezt í álfur tvær.
Græn-mötlaða, feyki-földum búna
Fjalla-eyjan, móður-jöröin kær.
Þú hefir snortiö eldi meö og anda,
Eyjan litla, marga fjarri strönd —
Þegar fjöllin þin í glóðum standa
þá fer kippur gegn um önnur lönd.
Það hrökk margur lás af liöum hálsins
Landvættanna þinna skjóli í,
Eld-gígsins með arnar-vængi bálsins,
Ássins þins með snæ og þoku-ský.
Kjörkaups-snópur örum árar-togum
Undan flýtti og seglum stögin hlóð,
Þegar hnjúkar veifðu vafur-logum
Vexti brim og hregg af landi stóð.
Tungan þin, með strengjum söngs og sagna,
Setti um Miðgarð frjálsan lista-vörð —
Hjá þér enn í rökkri allra ragna
Rofar fyrir nýrri og betri jörð.
Þú átt líka sumar sólskinandi,
Sælu-dal og yndisstunda-hlíð.
Meira er hitt, ei eru í öðru landi
Öræfin eins hjartanlega fríð.
Tára-bjart er blikið yfir holtin,
Bruna-hraun og gráan ægisand.
Beinin vorra feðra feigðar-soltin
Frjófga þau og helga >6113 land.
Vermist upp og vökvist þessi moldin!
Vist er gull i þessum hauga-eld.
Aldrei skyldi gröfin þeirra goldin
Gjaldi, og túnin niðja þeirra seld.
Leið þig sjálfa! Fólk þitt verður fríðast
Frjálst með sig og þennan erfða-blett.
Trúðu ei, barn, sá bróðir muni ei níðast
Bróður á, sem togar loginn rétt.
Trú þvi ei. að. vina virðing safnist
Við að lúta ósanngirni i hag —
Fyrsta ráð að réttur manna jafnist,
Ratast til að fáist bræðralag.
Enn er 'sætt, þó sigri ei tímans vörnin,
Sé ei fargað ósanngirni í vil —
Hinurn, sem i fáti binda börnin,
Bölva þau að hafa verið til.
— Það er mætt, að minnast þín i ljóði
Móðurjörð. við þetta flúna lið.
Hva^a annað útlaginn í sjóði
Óðinn þann sem staðið gæti við?
Eyjan vor! Þú varpar öllum böndum,
Verður frjáls og gengur heilla-stig —
Þá skal yndi út‘ í vestur-löndum
Að eiga dag og syngja fyrir þig.
1.—6.—’o8.
Stephan G. Stephansson.
* * *
Kvæði þetta var ort til að flytja 2. Ágúst 1908 c
íslendingadegi hér i Winnipeg. Vér teljum þett;
snjalla kvæði þess vert að miklu fleiri fái að sjá það,
en þeir sem lesið hafa í bæklingnum, sem það var
gefið út í, og leyfum oss þvi að birta það hér.—Ritstj
Isienzkur stjórnmálafundur.
Samkvæmt fundarboði frá nokkr-
um mönnum, var haldinn almenn-
ur fundur í Hóla-skólahúsi í ísl.
bygðinni í Alberta, 8. Ág. 1908.
Forseti var kosinn G. S. Grims-
son, fundarskrifari J. J. Húnford.
Forseti kvaddi hr. St. "G. Stephan-
son til að skýra fyrir fundinum
málefni það, sem væri' á dagskrá,
sem vieri stjórnar- og frelsis-bar-
átta íslenzku þjóðarinnar gagnvart
Dönum.
Hr. Stephansson gat þess fyrst,
að mest væri komið undir því,
hvort menn álitu betra að vera
frjáls eða ófrjáls; leiddi hann að
því 1 jós rök að frelsi og sjálfstæði
leiddi ætið til framfara, ekki síður
fyrir heilar þjóðir én hvern ein-
stakling. Síðan skýrði hann fyrir
fundinum öll helztu atriði í frum-
^arpi millilandanefndarinnar, og
rökstuddi hve frumvarpið væri
skaðlegt fyrir land og Þjóð, eins ;
ag það lægi fyrir; alt væri i hönd- J
jm Dana, þar sem sameiginlegu (
málin væru óuppsegjanleg; í á-
greiningsmálunum hefðu Danir
alt í sinni hendi, þar sem gjörðar-
dómurinn væri skipaður að eins
tveimur íslendingum, en dómsfor-
seti skyldi ætíð vera hæstaréttar-
dómari Dana. Ekki væri a^nað
líkara en Danir settu á stofn her-
stöðvar á íslandi, þar sem þeim
væri fengin landvöm i hendur;
færu þeir þá með þann afla sinn,
eins og þeir vær.u menn til, en
dæmi sæu menn Þess annarsstaðar,
að beitt hefði hervaldinu verið á
stundum til Þess að bæla niður
sérhverja frjálsa hreyfingu og
kúga þjóðirnar. Hann sagði, að
sumir álitu Island svo fátækt, að
það gæ'ti ekki þess vegna skilið
fjárhaginn við Dani; en ekki
kvaðst hann vera þeirrar skoðun-
ar, að ísland gæti eigi borið sig
undir sjálfstjórn; eigi væri alt
undir auðmagni komið, heldur að
féð væri sem jafnast í höndum
þjóðarinnar. Hann kvað það vera
sína skoðun, að jafnvel þótt Vest-
ur-ísl. gætu ekki haft beinlínis af-
9kifti af stjórnmálum íslands, þá
samt gætu þeir unnið málefni
þessu gagn með því að beita áhrif-
um sín.um í rétta átt, og það ættu
þeir að gera.
Ó. Sigurðsson kvaðst vera hlynt-
ur frjálsri stjórn, enda heyrði
hann til jafnaðarmannaflokknum;
það væri sín innileg ósk, að ísland
fengi það stjórnarfyrirkomulag,
sem leiddi þjóðina til sjálfstæðis
og framfara. Hann kvaðst vera
hr. Stephansson mjög þakklát’Ti
fyrir, hve ljóst og vel hann hefði
skýrt fyrir fundinum þetta mál.
Hr. Jóh. Björnsson sagði, að
sín hugmynd væri sú, að ísland
yrði sjálfstætt ríki, með fullum að-
skilnaði við Dani, og óskaði, að
fundurinn beindi áhrifum sínum i
þá átt; kvaðst hann hafa í þvi
skyni samið ávarp til íslenzku þjóð
arinnar, sem hann las þá upp, og
afhenti fundarskrifara.
C. Johnson kvaðst álíta það
skyldu Vestur-ísl, að hvetja heima
þjóðina til að hakla fram fullum
réttindum sínum gagnvart Dönum.
Hann kvaðst óska, að ísland yrði
sem fyrst sjálfstætt ríki, sem réði
sjálft öllum sínum málum.
S. Goodman sagði sér virtist,
eftir því sem fram hefði komið í
umræðunum, að fundurinn hefði
farið í kring um sjálft málefnið;
umræðurnar hefðu gengið út á
það, að ísland yrði lýðstjórnar-
ríki. Ekki hefði Skúli Thorodd-
sen haldið fram lýðstjórn, né held-
ur því, að fella frumvarpið heldur
vildi því væri breytt í ýmsum at-
riðum.
Forseti sagði, að það væri þeg-
ar upplýst, að Danir heimtuðu
annað hvort að íslendingar tækju
frumvarpið óbreytt, eða höfnuði
því með öllu; ekkert virtist vera á
móti því, að benda heimaþjóðinni
á hvað tiltækilegt væri.
J. J. Húnford sagði, að um fram
alt riði hinni íslenzku þjóð á, að
hafna frumvarpinu. Allir, sem
hefðu lesið það, hlytu að sjá, að
yrði það að samningi við Dani, þá
væri land og Þjóð ánauðug um
aldur-og æfi; frumvarpið tæki frí
hinni íslenzku þjóð alla möguleg-
leika til að krefjast réttar síns, en
yrði með því óuppsegjanlega inn-
limuð í hið danska ríki; Vestur-
íslendingar ættu því að hvetja
þjóðina heima til að hafna frum-
varpinu en krefjast þess, að ísland
verði fullveðja ríki.
C. Christinsson gerði þá tillögu,
að fundurinn kysi 5 manna nefnd
til að semja áskorun til tslenzku
þjóðarinnar. Tillagan var studd
og samþykt. Eftir stundarbið
lagði nefndin svolátandi tillögu
fyrir fundinn;
“Vér undirritaðir nefndarmenn
ráðum fundinum til. að senda Þjóð
inni á íslandi svolátandi
“Áskorun.”
“Hér með skorum yér á alþjóð
Islands, að hafna algerlega milli-
landanefndar - frumvarpinu, en
krefjast þess, að ísland verði full
veðja ríki, slitið að f.ullu og öllu
úr stjórnarsambandi við Dani.”
G. S. Grímsson, J.J.Húnford.
C. Johnson, A. Christianson,
C. Christinsson.
Fundurinn samþykti tillöguna
pieð öllum atkvæðum.
Forseti spurði þá, hvort nokkur
vildi taka til máls frekar í þessu
máli.
Th. Davíðsson tók þá til máls,
og sagði, að jafnvel þó hann væri
samþykkur áliti fundarins, þá
samt gæti hann ekki fallist á þá
tillögu, að Island yrði nú þegar
lýðveldi; hann áleit, að íslending-
ar mistu. svo mikil hlunnindi, sem
þeir hefðu hjá Dönum, einkum í
mentalegu tilliti; svo sem aðgang
að ýmsum dýrmætum söfnum;
nefndi til þess háskólastyrkinn og
safn Á. M., með fleiru. Lýðveldi
kvað hann þrífast misjafnt, og
nefndi til dæmis lýðveldin i Suður
og Mið Ameriku.
Hr. Stephansson sagði að hlunn
indi þau, sem íslendingar hefðu
hjá Dönum, væru ekki mjög/mik-
ils virði. Danir hefðu i raun réttri
aldrei gert neitt fyrir Island; ekki
eitt einasta lagaboð hefðu Danir
gefið íslendingum, sem miðað
hefði til umbóta; það sem fengist
hefði úr þeirri átt, mættu Islend-
ingar þakka sjálfum sér; þeir
hefðu fengið það með striði og
baráttu. Hvað safn Á. M. áhrærði,
þá væru sterkar líkur á því, að
íslendingar ættu það en ekki Dan-<-
ir, enda hefði þvi verið hreyft, að
láta iþá sýna eignarheimild fyrir
safninu. — Hvað lýðveldin á-
hrærði, er síðasti tölumaður hefði
tekið til dæmis, þá væri það sann»-
ast að segja, að þar værin engi
engin lýðstjórn, heldur kirkju-
stjórn.
Ákveðið var að senda Blaða-
mannafélaginu í Reykjavík áskor-
un þessa, og láta prenta hana á-
samt þessari fundargjörð í vestur-
íslenzku blöðunum.
G. S. Grímsson.
JÓnas J. Húnford.
Búðarstúlkur missa krafta.
Þcer hœtta heilsunni heldur en að
Missa atmnnuna og verða svo
heilsulausar.
Þúsundir skynsamra, ungra og
alvarlegra kvenna, sem vinna fyrir
sér á skrifstofum og hjá verzlun-
arhúsum fjarri heimilunum, þjást
oft ákaflega vegna þess að þær
leggja of mikið á taugarnar, en
vantar krafta. Þær eru máttvana,
hafa stuttan andardrátt og eru
taugaóstlyrkar. Þjær fá aldrei
stund til hvíldar, þegar höfuðverk-
ur og bakverkur þjá þær svo að
hver klukkutími finst vera heill
dagur. Það er því ekki að undra,
þó roðinn hverfi af kinnunum og
fölvi færist yfir þær, augun verði
dat f og fjörlaus og fegurðin
hverfi smátt og smátt. Konur,
sem vinna í búðum, eru ellilegri en
þær hafa aldur til vegna verksins
og áhygnanna. Það sem þær þurfa
oft með, er meðal sem styrki þær
á daginn. Dr. Williams Pink Pills
eru sannarleg fæðafyrir hungrað-
ar taugar og þreyttan heila búðar-
stúlkna. Þær búa til mikið rautt
blóð, einmitt það sem þær Jconur
þurfa til að halda heilsu og feg-
urð. Þær gera augun björt, skap-
ið létt og erfiði og Þunga dagsins
auðvelt.
Miss Alexandrina Bedard, vél-
ritari að 36 Richelieu St., Quebe»%
kemst svo að orði; “Síðustu tvö
ár hefir líkamsbygging minni stöð-
ugt farið aftur vegna þess að eg
hefi orðið að sitja inni yfir ritvél-
inni. En það eru ekki nema sex
Ny haustföt
nykomin.
Nýjasta gerð. Nýjasta
snið. Komið og lít-
ið á fallegu brúnu
fötin.
Til sölu nú á $14.75
The Cammonuuealth
_________Hoover & Co.
THE MANS STONErCtTYHALL SQtíARE.
mánuðir frá því að eg vaf svo
langt komin, að það leið yfir mig
siðdegis dag einn af máttleysi. Eg
fann greinilega hvað hætt eg hafði
verið komin, því eg varð að liggja
í rúminu vegna þess að eg var svo
kraftalaus að eg gat ekki einu
sinni gengið um gólf. Læknirinn
kom til mín og stundaði mig, en
eftir mánuð var mér ekki hót far-
ið að batna. Um það leyti las
frænka min að ung stúlka hefði
læknast með því að brúka Dr.
Williams’ Pink Pills, en sjúkdóm-
ur hennar líktist mikið minni ves-
öld. Eg tók að brúka þessar pi-11-
ur daginn eftir og eg þakka þeim
það að eg varð alheilbrigð aftur.
Eg hafði ekki lokið meira en úr
þremur öskjum þegar eg fór að
finna mun á mér og þegar eg hafði
tekið pillurnar inn eitthvað mánað
artíma, var eg orðin hrau-stari en
nokkru sinni áðurJI.
Þér getið fengið Dr. Williams’
Pink Pills hjá öllum lyfsölum eða
með pósti á 50 cent. öskjuna, sek
öskjur fyrir $2.50, frá Dr. Willi-
ams’ Medicine Co., Brockville,
Ont.
IIUBBARD, HANNESSON &
ROSS
lögfræðingar og málafærslumenn
10 Bank of llamilton Chambers
. WINNIPEO.
TALSÍMI 378
CH. GOLDSTEIN
SKÓR og STi'VEL
Lægsta verS, en gæðin mest.
Viðgerðum sérstakur gaumur gefinn.
-696 WELLINGTON AVE.
STEFAN JOHNSON
liorni Sargent Ave. »g Ðowning St.
hefir ávalt til nvjar
Á F I R
1 J á hverjum degi
BEZTI SVALADRYKKUR
Thos. H. Johnson.
Islenzkur lögfræBlngur og mi.lt.
færslumaður.
Skrlfstofa:— Room 83 Canada Llfr
Block, suðaustur hornl Portag*
avenue og Main at.
Utanáskriít:—p. o. Box 1384.
Teiefðn: 423. Winnipeg, Man.
•W-l-M I M-I-H-H-H-I-I I I hh.-
Dr. B. J. BRANDSON
Office: 650 William Ave.
Telephone; 89.
Office-tímar; 3—4 0g 7—8 e. h.
Heimili: 620 McDermot Ave.
Telephone: 4300.
Winnipeg, Man.
•M-H M I I Hrí-I-þ I I I I I I t i-.h
Dr. O. BJORNSON
Office: 650 William Ave.
. Telephone: 89.
Office-tímar: 1.30-3 og 7-8 e.h.
Heimili; 620 McDermot Ave.
Telephone: 4300.
Winnipeg, Man.
*H-H d I I I I I i- m-i-
-H-H-H H<
1. M. Clfl?!iopn, M D
læknir og yflrsetmnaður.
Hefir keypt lyfjabúðina á Baldur,
og hefir Því sjálfur umsjón á 511-
una meðulum.
Elizabeth St.,
BALDUR, . MA.N.
p.s.—ÍBlenzkur túlkur við hendina
hvenær sem þörf gerist.
•H-H-H-H-t I I >.t I I 1 I I I I 1Þ
N, J. Maclean,?M. D.
M. R. C. S. fEnh
Sérfræðingur í kven-sjúkdómum
og uppskurði.
326 Somerset Bldg. Talsími 135
Móttökustundir: 4—7 síðd. og
eftir samkomulagi. —
Heimatalsimi na.
E. Nesbitt
Tals. 8218
LYFSALI
Cor. Sargent & Sherbrooke
Komiö meö meöalaforskriftina
yöar til vor.
öllum meðalaforskriftum. sem oss eru
færðar er nákvæmur gaumur gefinn, og
þær samsettar úr hreinustu og nýjustu
lyfjum, og alt fljótt af hendi leyst.
Vér höfum allar beztu tegundir af vindl-
um, tóbaki og vindlingum.
A. S. Bardal
121 NENA STREET,
selur líkkistur og annast
am útfarir. Allur útbún-
aður sá bezti. Ennfrem-
ur selur hann allskonar
minmisvarða og legsteina
Telephone 3o6.
Islenzkur Plumber
G. L. STEPHENSON.
118 Nena Street. — — Winnpeg.
Noröan við fyrstu lút kirkju
Stefán Guttormsson,
MÆLINGAMAÐUR,
663 AGNES ST„ W’PEG.
THE DOMINION
SECOND HAND STORE
Fyrirtaks föt og húsgögn. —•
Brúkaðir munir keyptir og seldir
íslenzka töluð.
555 Sargent ave.
F. L. KENNY
M A L A R
J. C. Snædal
tannlœknir.
Lækniogastofa: Main & Bannatyne
DUFFIN BLOCK. Tel. 5302
Hjá honum fást alls konar
skilti af fínustu tegund ; : :
OLASSKILTI MET) filll.l.smvi
419 Main St., WIWIPEfí.
Tal»- 2955.
Á V A L T,
ALLSTAÐAR í CANADA,
BIÐJIÐ UM
EDDY S ELDSPÍTUR
Eddy’s eldspítur hafa verið búnartil i Hull síöan 1851.
Stööugar endurbætur á þeim í 57 ár hefir oröið til þess aö
þær hafa náð meiri fullkomnun en nokkrar aörar.
Seldar og brúkaöar um alla Canada.
o o “w- isr Hi
VILJUM VÉR SÉRSTAKLEGA MÆLA MEÐ
LAGER.------------------------ÖL,-----------------------PORTER.
CEOWN BEEWEEY CO-, talsi'Mi 3960
] IR,
---------------LINDARVATN.
30Q STELLA -A.'VIEL., WINNiPPG.