Lögberg - 05.11.1908, Page 1

Lögberg - 05.11.1908, Page 1
TRYGT IIEYRIÐ LÖGLEYFT BÆNDUR Talsvert inarrir bændur hafa keypt hluti í Home fíank. sem vér söjðum yður frá fyrir skemstu. Viljið þér ekkj leggja fé í GOTT OG ÓHULT FYRIRTÆKI. SEM GEF UR STÓRA RENTU? Skrifið eftir upplýsingum til vor um það.—Gleymið ekki að vér verzlum með korn í vagn- hleðslum og að þér komist að betri kjörum hjá oss en- nokkrum öðrum. Skrifið eftir upplýsingum til # The firain firowers Grain Company, LM. WINNIPEG. MAN. D. C. Adams Coal Co. KOL og VIÐUR Vér seljum kol og’viS í smákaupum frá 5 kolabyrgjum í bænum. * Skrifstofa: 22< BANNATYNE AVE. % WINNIPEG. 21. ÁR. II WINNIPEG, MAN., Fimtudaginn 5. Nóvember 1908. NR. 45 Hon. Thos. Greenway" Á föstudaginn var lézt austur í Ottawa öldungurinn Thomas Greenway, fyrrum stjórnarfor- maður hér í Manitobafylki. Hann hafði veriti lasinn, nokkra daga af andþrengslum (asthmaj, og iegið rúmfastur, og viku áöur en hann lézt var hann talinn úr allri hættu. En á fimtudaginn 30. f.m. þyngdi honum aftur og aö morgni þess 31. lézt hann snögglega úr hjartasjúkdómi, að því er sagt er. Thomas Greenway var fæddur A TIIOS. GREENWAY. 25. Marz 1838 x Cornwall á Eng- Iandi og fluttist meS foreldrum sínum til Ontario 1844. Þau sett- ust aS í Huron County og naut hann mentunar þeirrar er þar voru föng á. Þegar hann var fulltíöa fór hann aö gefa sig viö verzlun og brátt tók aö kveða mikiö aö honum í héraösmálum þar. Viö stjórn- málum tók hann aö gefa sig milli þrítugs og fertugs. Hann sótti um þingmensku í South Huron 1872 og 1874 og hepnaðist eigi aö ná kosningu, en síðari kosningin var ógild og Greenway kosinn i einu hljóöi áriö eftir, 1875. Mr. Greenway haföi lýst yfir þvi, aö hann væri óháöur, og átti þvi litl- um vinsældum aö fagna á þinginu af hvorugum stjórnarflokki, og mun þaö að nokkru leyti hafa'vald iö þvi, aö hann sagöi af sér þing- mensku 1878, og það í kjördæmi sem hann haföi sótt fast aö vinna. En aðallega mun orsökin hafa verið sú, aö hann vildi hingað vest- ur í land. Hann geröi sér stór- miklar vonir um Vesturfylkin sér- staklega Manitoba og flutti hingað og reisti hér stórbú. Þessi nýi gestur hugnaöi sveit- ungum hans í Manitoba svo vel, að þeir kusu hann fyrir fylkisþing- mann í því kjördæmi áriö eftir, 1879, °S hélt hann því kjördæmi stööugt meöan hann gaf sig viö fylkismálum. Mr. Greenway kom þegar mjög skörulega fram á þingi og sérstak- lega í fylkisréttindamálinu og varö þar leiðtogi frjálslynda flokksins. Og þegar Norquay-stjórnin fór frá varö hann stjórnarformaður og tók viö því embætti í Jan. 1888. Um tólf ára skeið stýröi hann fylkismálum og fórst þaö mjög myndarlega. Hann baröist fast- lega f.yrir réttindum fylkisins og ýmiskonar umbótum, svo sem sam- kepni um flutninga og fleira, og bændum reyndist hann trúr og dyggur fulltrúi í hvívetna. Áriö 1899 féll Greenway stjórn- in og aftunhaldsmenn komust aö undir forustu Hon. Hugh John Macdonald, og furöa margir sig enn yfgir þeim ósigri Greenways. Greenway mundi þá fúslega hafa hætt við að skifta sér af fylkismál- um, þó að hann heföi enn veríö kosinn til þings af Mountainbúum. En áhangendur hans vildu ekki heyra þaö nefnt og bentu honum á að Rohlin mundi taka viö af Mr. Macdonald, og þó aö Mr. Green- way þekti Roblin vel, því að Robl- in haföi áöur verið ötull fylgis- maöur Greenways og frjálslynda flokksins, hugöi hann aö þar væri lítiö foringjaefni afturhaldsmönn- nm. En þegar til kosninga kom 1903 urðu afturhaldsmenn hlutskarpari og héldu völdunum, enda voru þeir vel við baráttunni búnir og árferöi var hiö bezta og hjálpar það hverri stjórn sem viö völd er. Að þeim kosningum loknum lýsti Greenway yfir því, aö nú ætl- aöi hann alveg aö hætta aö eiga viö fylkismál, og láta yngri mönnum eftir leiötogastarfið, sem hann haföi haft um hálfan þriöja tug ára. Ætlaöi hann þá aö gefa sig óskiftan viö umsjón á hinum mikla búgarði, er hann átti viö Crystal City, þar sem hann haföi haft aö- setur síðan hann kom til Manitoba og vildi helzt njóta ellinnar í næöi. En þegar sambandskosningarnar 1904 báru aö, lét hanín tilleiöast fyrir áskorun liberala að gefa kost á sér til þingmensku í sambands- þinginu og styöja þar stjórn þá, sem barðist fyrir nýjium og hag- kvæmum samgöngum og lækkuö- um tollum á nauðsynjum bænda. Mikiö þótti til hans koma á Ott- awaþinginu, þó aö hann tæki þá fast að eldast, og þótti hann þar hinn sæmilegasti fulltrúi fyrir Vesturfylkjamenn. Nú fyrir stuttu síöan afréö hann samt aö gefa ekki kost á sér til þingmensku aft- ur og var hann þá skipaður í járn- brautamálanefndina svo sem áöur var frá skýrt hér í blaðinu. Mr. Greenway hefir oröiö öllum Canadamönnum harmdauöi, og nú játa þa'ö jafnvel atkvæðamenn í andstæðingaflokki hans fyrrum, aö hann hafi verið hiö mesta mikil- menni. Sambandsstjórnin lét flytja lík hans í sérstökum vagni með járn- brautarlestinni sem kom hingaö á sunnudagskveldið, og fylkisstjórn- in sendi sérstaka lest til aö flytja þaö til Crystal City á mánudags- morguninn, og allir ráöherrarnir hcr voru við greftrunina ásamt miklum fjölda fólks, vina og kunn- ingja hins látna öldungs og stór- mennis. Fréttir. Núna um mánaðamótin varö upphlaup i tyrkneska hernum í Constantinopel. Viö því haföi lengi veriö búist. Eitthvaö átta- tíu upphlaupsmanna voru teknir höndum, en nokkrir féllu. Sol- dáns kvaö vera gætt í höll hans af Ungu Tyrkjum eins og fanga, vegna þess aö hann er grunaður um aö vera aö æsa Tyrki til ófriö- ar gegn Búlagríumönnum, og lítur hclz( út fyrir aö hann veltist frá völdum þá og þegar. Siðan síöasta blaö kom út hefir meiri hluti stjórnarinnar á þingi aukist viö kosningu Hon. Rodolpe Lemieux póstmálaráðgjafa, sem kosinn var í Gaspe kjördæminu 29. f. m. með 1,200 atkvæða meiri hluta. Nú er afstaða flokkanna þessi: Lib. Con. Manitoba .. . 2 8 Saskatchewan .. 8 1 Alberta ■ • 4 3 Brit. Col .. 2 3 Ontario .. 38 48 Quebec • • 54 11 Nova Scotia... . 12 6 New Bruns. .. . . . . .. 11 2 Prince Ed. Isl. • • 3 1 134 83 meiri hluti liberala á þingi 51. —• Ókosið enn í 1 kjördæmi í Quebec, 2 í Brit. Col., 1 í Saskatchewan og í Yukon kjördæminnu. — Þess er vert aö minnast í sambandi viö kosningarnar i Ontario, að liberal- ar unnu þar í hverju einasta kjör- dæmi, sem Laurier talaöi i fyrir þessar kosningar. 0r bænum. Hon. J. H. Agnew, f jármálaráð-1 gjafi hér í fylki, kvað liggja hættu 1 lega veikur. Nýveriö hefir hann veriö skorinn upp viö botnlanga- bólgu. Þær systurnar Guörun og Rann- veig Egilsson frá Lögbergs-ný- lendu, komu til bæjarins snemma í fyrri viku. Þær búast við aö | dvelja hér í vetur. Ákveönar eru nú þegar þessar! samkomur Stephans G. Stephans-1 sonar, auk þeirrar í Winnipeg í | kvöld: Að Wild Oak föstud. 6. Nóv. í Marshland Hall, 7. Nóv. I Goodtemplarahúsinu í Argyle bygö miðvikud. þann 11. Nóv. — Sú síöasttalda verður byrjuö kl. 3 síödegis. Hinn 23. f. m. voru gefin sam- an í Baldur af séra Fr. Hallgríms- syni þau Björn Th. Jónasson og Kristjana S. Pétursson. Þau lögöu af stað samdægurs til Narrows, og setjast að þar. Miövikudagskveldiö 11. Nóv. veröa sýndar rnyndir í Tjaldbúð- inni úr leiknum Ben Hur, sem samin hefir verið út af sögunni sem nú er aö koma út í Sameining- unni. Þann 25. f. m. voru þau Gunn- laugur Haraldsson Holm og Svan- friður Jakobsdóttir, bæöi frá Sel- kirk, gefin saman í hjónaband af | séra N. Stgr. Thorlakssyni. Þann 29. f. m. lézt Björn S. Nordal, sonur Sigvalda Nordal, j 25 ára aö aldri. Hann var jarð-! sunginn 30. s. m. af séra N. Stgr. Thorlakssyni. Síöastliðinn sunnudagsmorgun 1. þ. m., lézt aö heimili sínu hér í bænum Mrs. Jónína Morris, eftir langa og þunga sjúkdómslegu. Hún var 42 ára er hún lézt. Jarö- arför hennar fer fram frá Fyrstu lút. kirkju klukkan 2 í dag. Á þriðjudagskveldið var, litlu eftir klukkan sex, vildi til hrapar- legt slys hér í bænum. Júngfrú Katrín Polson, dóttir Páls Sigfús- sonar að 398 Simcoe stræti, var á leið heim til sín úr vinnu og var a hjóli. Þegar hún var á hornínu a Ellice og Edmonton kom maötu keyrandi í loftinu noröan Edmon- ton stræti og keyrði stúlkuna um koll. , Miss Polson hentist af hjól- inu /6g var tekin meövitundarlaus upp' af götunni og flutt í húá þar hjá og þaöan á sjúkrahúsið. Húri hafði stórt sár í hnakka. Húa var W. II. TAFT. W. J. BRYAN. meövitundarlaus á miövikudags- morgun, þegar siðast fréttist um kl. 10. Vagnstjórinn, sem keyrði Miss Polson uni koll hafði ekki fyrir því að stanza, heldur sló í hestana og hvarf út í myrkrið.; Lögreglan hefir góöar vonir uin aö geta haft upp á þeim pilti. Taft kosinn forseti. Þeir íslendingar, sem vér vitum um að fóru héöan vestur til Cryst- al City á mánudaginn var til aö vera viö jarðarför Hon. Thomas Greenway voru: Andrés Freeman, Arinbjörn S. Bardal, Jón J. Vopni, T. tj. Johnson. W. H. Paulson. í Morden bættist viö Jón Sigfússon, en Christján Johnson keyröi frá Baldur til Crystal City. Samveldismenn vinna mikinn kosningasigur. Fá meirihluta í báðum deildum þingsins. Vinna nær öll ríkin sem efi var á um. John A. Johnson (sérv.) kjörinn ríkisstjóri í Minnesota og Hughes (samv.) í New York. Burke (sérv.) í Norður-Dakota. Til bæjarins kom í fyrri viku Mrs. H. Auderson frá Hensil, N. D., til aö heimsækja kunningjana og bý»t við aö dvelja hér vikutíma. íslenzka stúdentafélagið heldur 'fyrsta fund sinn á vetrinum í sam- kvæmissal Tjaldbúöarkirkju, á horninu á Furby og Sargent stræt- um, á laugardaginn kemur (7. Nóv.J. Öllu íslenzku námsfólki í bænttm er boöiö á fundinn. Þar verður gott tækifæéi aö skemta sér og mæta kunningunum eftir dreif- ingu sumarsins. Þaö er innileg ósk stjórnarnefndarinnar, aö meö- limir fjölmenni og komi meö ný- byrjendur með sér. Fundurinn byrjar stundvíslega kl. 8. í kvöld, fimtudagskveldið þann 5. Nóvember, heldur Stephan G. Stephansson samkomu sína í éfri s’al Goodtemplarahússins íslenzka hér í bænum. Samkoman byrjar klukkan 8 að kveldinu. — Aöal- efrii samkonrunnar verður auövit- aö ljóöalestur Stephans, en þar verður Hka ýmislegt fleira, sem vert 'er á að minnast. Samsöngvar og sólós undir stjórn herra Stein- gríms Hall. Mrs. Hall syngur þar eina eða fleiri sólós. Búist er lika við að þeir muni halda þar ræöur Skapti Brynjóifsson, séra Eriörik J. Bergmann og W. H. Paulson. En livaö sem prógrami líður, þá er vonandi aö margir Islendirgar sæki þessa savnkomu. Stephan hefir orðið íslenzku þjóöinni, og þá sérstaklega Vestur-íslemhngum til sæmdar meö skáldskap sínum. En fá hafa oss gefist tækifærin hér til aö heyra hann og sjá og er því rétt aö nota þetta tækifæri. Komið og heiðrið, heyrið og sjáið einn íslenzkasta íslendinginn í þessu landi. Inngangur kostar 25 cents. Þaö fór sem menn grunaði, aö Taft var kosinn forseti Bandaríkj- anna til næstu fjögra ára á þriðju- daginn var. Hann vann nær öll Ný-Englandsrikin. Miöríkjunum höföu menn búist viö aö Bryan ynni á ef þaö yröi nokkurs staðar. En þaö hefir ekki oröiö. Ohio, Indiana, íllinois, Iowa og jafnvel Missouri hafa kosið Taft. Nebr- aska, sem Lincoln er í þar sem Bryan sjálfur býr, er talið meö Taft, en meö mjög litlum meiri- hluta. Sama er aö segja um Norður-ríkin. Þau liafa öll aö því er séð verður kosið Taft. Aðalstyrkur Bryans var í Suö-1 urríkjunum. Þau greiða alt af at-| kvæöi með sérveldismönnum. Ilann hefir unniö Alabama, Ar- kansais, Florida, Georgia, Louisi-; ana, Mississippi, Noröur- og Suö- nr Carolina, Tennessee, Texas og Virginia. Oklahoma, nýja rikiö, | kaus Bryan, sömuleiöis Névada. Getur verið aö hann vinni líka; Missouri og Kansas. Fyrir kosningarnar var þaö al- ment talið, aö New York ríkiö | mundi ráða úrslitum í þessum kosn | ingum. Þaö ríki sendir flesta | fulltrúa, 39, á kjörfund þann sem | i vetur kýs forseta. Þetta hefir i ekki reynst rétt, því Taft hefir 1 fengið fleiri atkvæði en svo aö | hann þyrfti New York atlcvæð- j anna meö. New York kaus Taft ! meö eitthvað yfir 100,000 atkv. jmeiri hluta. Mestur meiri hluti atkvæöanna var i Pennsylvania, I yfir 300,000 Taft megin. Flokkaskipun í þinginu veröur j því sem næst eins og var. Sam- ■veldismenn hafa einum færri en jáöur í neðri deildinni. Meiri hluti þar 39 en 24 í efri deild. Ríkisstjóravaliö hefir tekist bet;- ur fyrir sérveldlsmönnum. John A. Johnson var endurkosinn ríkis- ! stjóri í Minnesota meö um 20,000 ! atkvæöa meiri hluta. I Noröur- I Dakota er talið víst aö Burke rík- jisstjóri Csérv.mJ hafi náð lcosn- j ingu aftur. Sömuleiöis Stevenson (sérv.m.J í Illinois. Harmond (sérv.m.J í Ohio. Aftur var jHughes endurkosinn ríkisstjóri í j New York meö um 50,000 atkv. Imeiri hluta. Þaö eru ekki komnar glöggar fréttir úr öllum ríkjunum um for- setakosninguna; en eins og nú stendur má ætla, aö hún hafi fariö sem hér segir: Fulltrúar . Ríki. Taft. Bryan Alabama................. 11 Arkansas .................... 9 California............. 10 Colorado .............. 5 Connecticut............ 7 Delaware......... .. 3 Florida ..................... 5 Georgia v.................... 13 Idaho.................. 3 Illinois ........... 27 Indiana................ 15 Iowa.................. 13 Kansas................. 10 Kentucky..................... 13 Louisiana............... 9 Maine.................. 6 Maryland............... 8 Massachusetts .... 16 Michigan.............. 14 Minnesota.............. 11 Mississippi................. 10 Missouri.............. 18 Montana................ 3 Nebraska............... 8 Nevada ...................... 3 New Hampshire .... 4 New Jersey ........... 12 New York.............. 39 Narth Carolina.............. 12 North Dakota .......... 4 Ohio.................. 23 Oklahoma .................... 7 Oregon................. 4 Pennsylvanya ...... 34 Rhode Island............4 South Carolina............... 9 South Dakota........... 4 \ Tennessee ........... .. 12 Texas....................... 18 Utah................... 3 Vermont ............... 4 Virginia ................... 12 : Washington........ 5 West Virgina................. 7 Wisconsin............. 13 Wyoming................ 3 333 150 Tölurnar tákna fulltrúaf jölda j hvers ríkis á kjörfundinn í Wash- ; ington í vetur. Breytist eitthvaö frá því sem hér er sagt, verður skvrf frá i nofkcfn LtoX? Hafið þér séö nýju hattana brúnu? Þeir cr"^‘m^RKB'int ,rá --- Dökkbrúni blærinn og flötu böröin gera þá mjög ásjálega. - WHITE £» MANAHAN, 500 Hain 8t., Winnipeq. Hljóöfæri. einstök Iög og nótnabækur. Og alt sem lýtur aö músík. Vér höfum stærsta og bezta úrval af birgöum í Canada, af því tagi, úr aö velja. Verölisti ókeypis. Segiö oss hvaö þér eruö gefinn fyrir. WHALEY, ROYCE & CO., Ltd., 356 Main St., WlNNiPEG.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.