Lögberg - 11.03.1909, Qupperneq 1
NR. 10 '
22. AR.
'II
WINNIPEG, MAN., Firatudaginn 11. Marz 1909.
FRÉTTIR.
Fyrir nokkruim vikum var sagt
aö Castro, fyrrum forseti í Ven-
ezuela, vildi hverfa heim aftur og
heita því, aö láta ekkert til sin
taka framar um landsmál. Fám
dögurn síðar var kunngert, að
æðsti dómstóll í Caracas hefði
svift hann forsetatign, af því að
hann hefði verið í vitorði með
samsærismönnum þeim, sem ætl-
uðtu að ráöa Gomez varaforseta af
dögum. Castro dvelur nú í Dres-
den og er orðinn heill heilsu. Hann
hefir opinberlega lýst yfir því, aö
hann sé saklaus af þessum ákær-
um og sé það algerlega tilhæfu-
laiuist, að hann hafi ætlað að ráða
Gomez af dögum, og segist ekki
vita á hverju slíkar ákærur séu
bygðar.
Kvenréttindakonur á Englandi
eru alt af að fá fleiri og fleiri tíg-
inbornar hefðarfrúr í sinn hóp.
Þær gerðu ítrekaðar tilraunir fyr-
ir skemstu til að ná tali af Asquith
forsætisráðherra, en hann synjaði
þeim viðtals og var logregluliðinu
falið að haía sérstakar gætur á
sendinefndum þeirra. Talsverðar
ryskingar urðu á götunum, og
voru 28 konur settar í varðhald.
Margar þeirra eru af mjog háutn
stigum. Þær hafa verið dæmdar í
eins til tveggja mánaða fangavist,
og létu þær þess getið, er dómur-
inn var birtur, (að þeim væri á-
nægja í að þola fangavistina vegna
hins góða málefnis síns.
Hríðarveður var hér fyrri hluta
laitgardagsins, en hreinviðri síðan
og jafnan frostlitið um miðjan
daginn.
stöðumenn stjórnarinnar að hún sé
sífelt að glata trausti sinu. Mælt
er aö irski flokkurinn í þinginu sé
ekki sem ánægðastur yfir gerðum
stjórnarinnar, og spá sumir að
hann muni snúast í móti henni.
Andstæðingablöð stjórnarinnar
gera harðar árásir á ráðaneyt-
ið og kenna því um alt, sem aflaga
C 1_____, . • . 1 ' • v . _ Fréttir af fvlkisbinginu.
Samkomulag 1 sjalfu raðaneytinu J
virðist dágott í svip, hvað sem síð-
ar verður. Stjórnin situr við sinn
keip og býst ekki við að rjúfa þing
fyrst um sinn.
Fylkisþinginu hér í Manitoba
var slitið í gær. Það hafði starfað
í 5 vikur.
Simskeyti frá London 3. þ. m.
segir aö harður jarðskjálfti hafi
komiö skamt frá Jerúsalem og gert
miklar skemdir; 150 manns hafi
farist. Nánari fréttir eru ekki
enn komnar.
Glæpamaöur, sem Clarke heitir,
var nýskeö tekinn fastur í nánd við
Bellingham, Wash. Hann slapp
úr fangelsi sumarið 1907 ásamt
“Bill’ Miner, hinum nafnkunna
þorpara. Ekki vildi Clarke segja
hvernig þeir félagar hefðu sloppið,
en sagði að Bill Miner væri nú í
Ástralíoi!.
Ekki eru deilurnar á Bailkan-
skaga með öllu til lykta leiddar
enn. Að vísu er Austuirríki og
Tyrkland sátt og Búlgarfa og
Tyrkland líka, en búist er við að
dregið geti til ófriðar með vorinu
milU Austurríkis og Serbíu. Þó
hefir Austurríki opinberlega neit-
að, að það ætli að ráöa á Serbiu að
svo stöddu, en vígbúnaður er þó í
báðum löndunum, og krefst Serbía
skaðabóta af Austuirríki fyrir
Bosnia og Herzegovina. Stórveld-
in reyna vafalaust að hindra styrj-
öld milii landanna.
Bindindismenn í NewBrunswick
skoruðu á fylkisstjórnina að lög-
leiöa þar algert vínsölubann (pro-
hibitionj. Stjórnin vildi ekki verða
viö þeirri áskorun.
Ur bænum.
og grendinni.
Þessar breytingar ábæjarlögun-
um í Winnipeg voru samþyktar af
lagabreytingarnefnd þingsins í
fyrri viku:
1. Aö hækka laun bæjarfulltrúa
úr $300 á ári upp í $500.
2. Að veita bæjarráðinu vald til
að kaupa, útbúa og víðhalda al-
mennum leikvöllium í bænum og
skipa nefnd til að sjá um þá.
3. Að gefa bæjarráðinu vald til
aö breyta takmörkum kjördeild-
anna með aukalögum.
4. Að veita bæjarráðinu vald til
að verja $100,000, í samræmi við
ákvæði bæjarbúa, til að byggja
baðhús í almennum skemtigörðum.
5. Að leggja skatt á mangara
og farandsala, sem ferðast um og
selja smávarning fyrir eigin reikn-
ing, sem þeir hafa keypt en ekki
framleitt sjálfir.
6. Að veita bæjarráðinu vald ti'
að líta eftir heyi sem selt er eða
flutt til bæjarins.
7. Að samþykkja aiukalögin um
$215,000 fjárveitingu til að byggja
lögreglustöðvar m. m.
8. Að samþykkja, að ekki þurfi
nema þrjá fimtu greiddra atkvæöa
meö aukalögum um fjárveitingu
til þess aö þau gangi í gegn.
Ólafur Indriðason lézt hér i bæn-
um síðastl. sunnudag, 7. þ. m.
Hans verður minst í næsta blaði.
Jón K. Ólafsson frá Garðar, sem
dvalið hefir hér um tíma, fór heim
leiðis síðasth þriöjudag.
Morð var framið austur í Ham-
ilton, Ont., 25. þ. m. Ung stúlka,
Miss Ethel Kinrade, var skotin til
bana á heimili foreldra sinna síð-
degis þann dag. Systir hennar var
ein hjá henni í húsinu og segist
henni svo frá, aö maður hafi kom-
ið þar inn í húsið og heimtað af
sér peninga, en hótað aö skjóta
sig ella. Hún segist þá hafa geng-
ið upp á loft og sótt $10, en a
meðan kom systir hennar ofan af
loftinu og þegar hún sá manninn,
tók hún að hljóöa og kalla á hjálp,
en hann skaut þá 6 eða 8 skotum á
hana og hneig hún þegar örend.
Þegar maðurinn hafði tekið viö
peningunum, fór hann út, og var
horfinn áður en hin systirin gat
kallað á hjálp. Lögreglan hefir
gert alt sitt til að finna morðingj-
ann, en það hefir ekki tekist enn.
Blöð að austan flytja margvíslegar
sögu'r um morðið, og segja að
stúlkan hafi orðið margsaga, eng-
inn hafi séð þenna mann þar í ná-
grenninu, og sé mönnum algerlega
hulið, hver hann geti verið. Rann
sóknum málsins er ekki enn lokið.
Hermann Arason frá Argyle-
bygð, kom til bæjarins fyrir helg-
ma og fór heimleiðis aftur á
þriðjudagsmorgun.
---1-----
Þeir bræður, Ólafur og Ágúst
Arason, frá Argyle, sem dvalið
hafa um tíma á búnaðarskólanum
hér vestan við bæinn, lögðu á stað
heimleiðis í morgun. Þeir ætluðu
aö bregöa sér til Brandon á heim-
leiðinni, til að heimsækja sýning-
una sem þar stendur nú yfir.
Minni hlutinn á þinginu bar upp
tillögu um það nýskeð, að kjör-
skrár skyldi ekki semja árlega eins
og nú er gert hér í fylki, heldur
að eins rétt á undan kosningum,
þvi að meö því móti yrði hægt aö
spara $20,000—$30,000 á ári. Þessi
tillaga fann ekki náð fyrir aiugum
Roblins eða flokksmanna hans.
Enska stjórnin beið mikinn ó-
sigur við aukakosningu í Glasgow
3. þ. m. Gibson Bowles, stjórnar-
sinni, féll þar með allmiklum at-
kvæðamun, fékk 5,185 atkv., en
mótstöðumaður hans, W. Scott,
hlaut 7,298 atkv. í tveim öðrum
aujkakosningum hliutu stjórnar-
menn kosningu, en þó segja mót-
Kaiupendur Lögbergs eru vin-
samlega beðnir að minnast þess,
að öli bréf viðvíkjandi iborgun
blaðsins, auglýsingUm, útsendingu
eða þess háttar, á að senda til ráðs
manns en ekki ritstjóra. En rit-
gerðir í blaðið skal senda ritstjór-
anum.
Islenzki liberal klúbburinn bauð
“Yoiung Men’s Liberal Club” að
reyna Pedro-kappspil við sig í
Goodtemplarahúsinu s.l. mánudags
kvöld. Islendingar unnu og hlutu
þeir Halldór Sigurðsson og Sig-
urður Sigurðsson verðlaunin, sem
voru tvær tóbakspípur. Þegar spila
menskunni var lokið fóru fram
veitingar og skemtu menn sér við
ræðuhöld og samræður. — Næsta
föstudagskveld hefir klúbburinn
Pedro-kappspil í fundarstofum
sínum á Sargent ave. og byrjar
það á venjulegum tíma. Verðlaun
—$5 virði — verða veitt.
Einar Vatnsdal og Björgvin bróð-
ir hans, komu nýskeð norðan frá
Winnipegvatni. Þeir hafa verið
við veiðiskap i vetur. Þeir búast
við að dvejja eitthvað ? bænum, áð-
ur en þeir fara heim til sin vestur 5
Wynyard, Sask.
Helztu frumvörp, sein voru á
dagskrá á laugardaginn var, voru
frumvarp um að fylkið ábyrgðist
enn 210 mílur af járnbrautum fyr-
ir C. N. R. félagið með $13,000 á
mílu hverja og $3,000,000 fyrir
járnbrautarstöð félagsins. Liber-
ölum þótti það röng aðferð hjá
stjórninni að vera alt af til að
ganga í veð fyrir félagið, en líta
ekki eftir því að það fiullgerði þær
brautir, sem það hefði fengið á-
byrgð fylkisins á, áður en krafist
væri nýrra ábyrgða. Enn fremur
voru sumir þeirra á móti því, að
fylkið gengi í ábyrgö fyrir bygg-
ingu járnbrautastöövar félagsins.
3,000 dollar viðbótarveð á mílu
hverja, á samtals 60 mílum til
framlengingar Oak Point braut-
arinnar, var meðal annars einn
brautarstúfurinn sem fylkið gekk í
veð fyrir 5 þetta skifti. Áður var
búið (í siðasta þingi) að veita
$10,000 á mílu hverja til framleng
ingar á téðri braut þessa vegá-
lengd. — Hitt framvarpið sem var
til umræðtt þann dag, var frum-
varp til breytingar á vínsölulögun-
um. Breytingar eru fremur óveru
legar. Ekki er stjórnin á þvi að
verða við kröfum bindindismanna
um að hætt verði vínsölu á veit-
ingastofum. Rogers ráðgjafi kvað
fylkisbúia ekki nægilega mentaða
til að búa við slík lög, en Colin H.
Campbell dómsmálaráðgj. að. það
væru rangsleitin lög, sem bönnuðti
vínsölu á veitingastofum.
Mesti fjöldi af frumvörpum hef-
ir gengið i gegn um þingið þessa
siðustu daga, en meiri hlutinn lítt
merkar breytingar á gildandi lögum.
Stórstúkuþing Good-
templara.
Tuttugasta og fimta ársþing
| stórstúku Goodtemplara Manitoba
jog Norðvesturlandsins, var sett í
G. T. húsinu í Wiunipeg þriðju-
dagskvöld 16. Febrúar og stóð
iyfir allan miðvikudag og fimtu-
dag. I fjarveru stórtemplara, séra
R. Marteinssonar, skipaði Mr. W-
H. Low frá Roland forsetasæti og
stýrði öllum fundunum þar til nýir
embættismenn voru settir i em-
bætti. Stórstúkustig var veitt þrjá
tiu og einum manni. Á þinginu
voru erindsrekar frá öllum stúkun-
úm í Winnipeg, frá St. Andrews,
Selkirk, Gimli, Ninga, Riverside,
Bethel,. Roland, Brú, Baldur,
Kingssley, Swan Lake og Church-
bridge. Um tvö hundruð manns
sóktu þingið.
Embætismanna skýrslur sýndu,
að Reglan er á framfara vegi i
þessu umdæmi. Fimtán undir-
: stúkur, ein barnastúka og Umdæm-
|isstúka hafa verið stofnaðar á ár-
inu, meðlimatala í barna og undir-
stúkum hefir aukist um 202. Með-
limaltala stúkna ,< Wiþnipegborg
hefir talsvert fækl 1 sú fækk-
íun stafar aðallega trtflutningi
ineðlima í aöra staði. Margir
af þessum burtförnu meðlimum
hafa gengið i stúkur annarstaðar
og sumir stofnað stúkur þar sem
engar stúkur hafa áöur verið. I
þessu sambandi mætti nefna einn
úf fyrverandi stórtemplurum vor-
jum, W. Anderson, sem í haust 1
stofnaði íslenzka stúku í Ballard,
iWash. Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
liefir stofnað tvær stúku.r í Sask. j
IFriðr. Guðmundsson er í þann veg
inn að stofna eina í Sask. o. fl.
Aldrei hefir félagið tekið jafn-
mikinn þátt í pólitiskum málum
eins og siöastl. ár. í vínsölubanns
nálinu siðastl. haust útbýtti fél.
talsverðu af ritlingum bæöi á
ensku og íslenzku viðvíkjandi vín-
sölubanni, jafnframt og það sendi
menn víðsvegar um fylkið til að
flytja það mál. $400 var eytt síð-
astliðið áf í útbreiðslu bindindis.
Síðastliðið ár var stofnuð ein
ríkis-stórstúka fy. uii Canada-
xíki; í framkvæmdar'cind hennar
á Mrs. W. L. Scot^, xrá þessari
I stórstiúku, sæti sem vara-temlplar.
Fyrsta þing hennar verður haldið
í Winnipeg 1910. Verksvið þeirr-
ar stórstúku er alt Canadaríki, og
jmarkmið hennar er að sameina
krafta stórstúknanna op- gera
þannig Regluna öflugri.
Ýms mál voru rædd á þinginu,
sem eingöngu snerta Goodtempl-
ara. Nefnd var kjörin til að fara
á fund stjórnarinnar, í sambandi
jvið bindindismálið; verk nefndar-
nnar ásamt aðgjörðum stjóTnar-
nnar hefir nákvæmlega verið
tkýrt í þessu blaði áður.
Samt má sérstaklega benda á
eitt af því, sein. þessari nefnd var
falið á hendur að gera, en sem
eg hygg aö ekki hafi verið skýrt
frá áður; það var, að fá atkvæða-
greiðslu fyrirkomulagi í vínbanns-
nálum breytt þannig, að í staðinn
fyrir “Ertu með aukalögum
Nr.— ?” eins og nú á sér stað, þá
,\erði atkvæðaseðlar útbúnir þann-
’g: “Ertu með vínsölubanni ?” “Já”
eða “Nei.”
Skýrsla fulltrúa, Mrs. G. Búa-
on, á alheimsstúkuþingi, sem hald
ð var í Washington, D. C., síðast-
liðið sumar, var lesin og sýndi all-
ar lagabreytingar sem gerðar voru.
Skýrslan bar með sér, að meðlima-
tala alheimsstúikuninar hafði jstór-
W. H. Taft, forseti Bandaríkjanna.
um aukist á síöastliðnum þremLiöndai, önnur Miss *H. Frið-
árum. Sérstaklega kveður að út-, finnsson, þryðjiu Miss A. John-
breiðslu Reglunnar á Þýzkalandi son. Verðlauin voru gefin af
og Svíþjóð. Á Þýzkalandi taldi S. B. Brynjólfsson, Mrs. G. Búa-
Reglan 1905 10,000 meðlimi, en son og Mrs. J. B. Skaftason.
nú eru þar taldir 34,000. í Sví-) Síðan stórstúkuþingi var slitið,
þjóð voru árið 1905 taldir 138,000 hafa tvær stúkur verið stofnaðar,
meðlimir, en nú 238,000. í flest- , önnur í Alberta en hin í Sask.
Bm löndum hafði G. 1. Reglan j L'’.A er fyrir, að allmargar bætist
aukist og alstaöar kom í ljós sterk- viö mjög bráölega.
ur áhugi fyrir bindfindismálinu. 1
Fólk alment virðist vera að vakna ,
til þeirrar meðvitundar, að heppi- j
legra sé að vera frjáls sem þjóð
eða einstaklingur, en að vera
hlekkjaður i fjötra ofdrykkjunnar.
Boð Þýzkalandsstjórnar að halda
næsta heimsstúkuþing þar i landi
árið 1911, var þegið.
G. Búason.
S.-Ritari.
DAN ARFREGN.
Eins og getið var í síðasta tölu-
blaði Lögbergs lézt Mrs. Guðlaug
Eyford, kona Jal«>bs Eyford í
Penfbina, eins hinna elztu ísl. land-
námsmanna í Pembina County,
laugardaginn 20. Febr. s. 1. að
Mountain Home, Idaho, í Banda-
ríkjum, hjá dóttur sinni, Mrs. B.
T. Björnson, sem hún hafði veriö
Embættismanna kosning fór
frám á miöv’kudagskvöld og hlut 1
þessir kosningu:
Stór Templar; J. Colvin.
S. Kanslari; G. V. Wilson,
S. V. T.: Mrs. W. L- Scott.
S. G. Ungt.: Mrs.J.B.Skaftason.1A, “““ VC,IU
c „ , ® hia siðan hun og maður hennar
S. G. kosn.: A. S. Bardal. - ^
S. Ritari: Mrs. G. Búason.
S. Gjaldk.: B. M. Long.
S. Kap.: Mrs.W.S.Cameron.
S. Drótts.: B. Hagg.
S. Kapplestr.: W. D. Holt.
S. M. Kansl.: W. S. Cameron.
F. S- T.: séra R. Marteinsson.
Nokkriun börnum úr barnastúk-
brugðu búskap. Guðlaug heitin
var 74 ára að aldri, er hún lézt.
Maður hennar, Jakob Eyford, &
heima í Pembina-bas og er enn ern
að heilsu. Börn þeirra hjóna þrjú
eru þar einnig, Mrs. Hanna Caber-
nagie, ekkja, Bogi Eyford, sem er
eftirlitsmaður innflutninga fyrir
, Btíuuaríkjastjóm og hefir venð
unum var leyft að fara í gegn um 1 um mörg ár> ^ Mrs T R Shaw
upptökuathöfnina. Þetta starí j fjakobinaj, gift lyfsala innlendum
leystu þau prýöilega vel af hendi. - meg þvi nafni. július Eyford 5 AI.
Jafnframt þessu skemtu þau þing- aska en yn?gta d6ttir þeirra hj.6na>
mu með song, upplestrum, hljóö- f Sigurlína, er gift B. T. Björnson,
færaslætti o. s. frv. Framkoma sem eitt sinn var ráíSsmaCur Lög-
larnanna bar ljósan vott um þá al- ^ sigar kaupmaCur 5 Mij.
fiiðlegu rækt, sem logð er viö bom- ' ton þanRaC til þau hj6n fluttust til
11 á barnastúkufundum þeirra. j Idaho Hjá þeim var Guðlaug
Átta meðlimum var veitt al- heitin síðustu ár, og hefir þar not-
heimsstúkustig á þessu þingi. J ið friðsællar elli. Heimili Eyford-
Mikil áherzla var lögð á að út- ^ hjónanna miðja vegu milli Garðar
breiða Regluna sem mest á kom- : og Mountain var eitt hið fegursta
andi stórstúkuári, að taka þátt i : og snyrtimannlegasta með Vestur-
bindfindisbaráttunni í pólitískum (íslendingum og búskapur allur eft-
málum og reyna á allan hátt að út- j ir því. Guðlaug heitin var mesta
rýma ofnautn úr landinu sem allra J valkvendi, er öllum þótti vænt um,
fyrsL - . ' er hana þektu. Hún var fædd og
Þinginu var slitið meö gull- nppalin á Þórisstöðum á Svalbarðs
strönd við Eyjafjörð og var dóttir
Benedikts bónda Benediktssonar,
F. J. B.
medalíu-kapplestri, sem haldinn
■var í Westminster kirkjunni. Fjór ^
r tóku þátt í kapplestrinum, þar j er l)ar bjo.
af tvent íslenzkt. Medaliuna hlaut I __________
Miss R. Swanson, 14 ára gömul j f . , „ ,
stúlka, dóttir Fr. Swanson mál- ! Islenzku Hockey klubbarmrrey..
ara. Jafnframt þessu var prýöis- j með sér í þriðja sinni í kveld kl. 10
fallegur fáni veittur Weston- j á Winnipeg Rink á Portage Ave.
barnastúkunni fyrir að hafa auk- j yíkingar hafa unnið tvo undanfarna
ið mest meðlimatölu sína síðasthö- . .... . . « . *
ð ár. Þessi barnastúka jókst um ! kaPPle,k,> en 1. A. C. ætla að gera
300% síöastl. ár. Þá voru og þrjú | þeim sigurmn dýran í kveld. Klúbb-
yerðlaun veitt meðlimurn ísl. barna arnir óska að sjá sem flesta vini
stúkunnar, Æskan, fyrir að koma sina 0g meðhaldsmenn viðstadda og
með fleste meölimi í stúkuna á ár- j góðri skemtun.
inu. Verðl. hlutul; Fyrstu Miss J. v 6
Þeir eru nýkomnir. Beint frá
NhW YORK.
Hafið þér séð nýju hattana brúnu?
--- Dökkbrúni blærinn og flötu böröin gera þá mjög ásjálega. -
WHITE & MANAHAN, 500 Main $t., Winnipeq.
Hljóöfæri. einstök lö" o i nótnabækur.
)g alt sem lýtur aö músík. Vér höfum stærsta og bezta úrvah af
nrgöum í Canada. af því tagi, úr að velja. V'erðlisti ókeypis.
Segið oss hvað þér eruð gefinn fyrir
vVHALEY, kOYCK & CO., Ltd.( 256 Mun St., WiNNiPe^.