Lögberg - 03.06.1909, Side 2
2.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 3. JÚNI 1909.
Fréttir frá Islandi.
SeyöisfirSi, 17. Apr. 1909.
Við landsimastööina á Seyðis-
firöi voru i marzmánuöi afhent til
sendingar: 56 skeyti innanlands
fyrir kr. 106.15, 146 skeyti til út-
landa fyrir kr. 201.55, þar af 102
veöurskeyti.
Um landsimann hafa veriö af-
greidd. 122 samtöl með 138 viötals
bilum frá Seyðisfirði og 146 sam-
töl með 170 viðtalsbilum til Seyð-
isfjarðar.
Um Eskifjarðarsímann voru af
greidd: 6 ssamtöl með 73 viðtals-
bilum, frá Eskiíirði og 53 samtöl
með 66 viðtalsbiknm til Eskifj.
Um saesimann hafa verið af-
greidd 764 skeyti með 8,824 orð-
um til útlanda og 540 skeyti með
6,053 oröum frá útlöndum.
I
Þórey Jónasdóttir, kona Sigfús-
ar söðlasmiðs Einarssonar hér í
bænum andaðist að heimili sinu 15.
þ. m. 34 ára gömul. Hafði verið
lengi veik af brjósttæringu. Væn
kona og vel látin. — Austri.
5vf94éz ékSsarg nnaáfó.M pj
Reykjavik, 5. Mai 1909.
Aflabrögð treg yfirleitt á Suð-
urnesjum, nema í Garði; þar 800
til 900 hlutir hjá ýmsum, einnig
góð í Höfnum, en annarstaðar
hlutir 200 til 400. ,
j.
Sú mikla breyting er nú orðin á
Vatnsleysuströnd, að vatn er nú
fengið þar á flesta bæi. Það var
byrjað að grafa bnunn í fyrra með
dynamitsprengingum, af Magnúsi
Magnússyni úr Reykjavík. Byrjað
var hjá Guðmundi í Landakoti og
Eyjólfi á Þórustöðum. Var graf-
ið hjá 5 í fyrra og 10 í vetur. I
Hvassahraun var áður 330 faðma
vegur i vatnsból og þar var þó
bæði stopult og stundum salt., Nú
er þar komið gott vatn. Guðm. í
Landakoti kveðst hafa kostað upp
á brunninn um 200 kr. og sjaldan
hafa varið penir^gum betur en í
það verk.
Fyrir fáum dögum drukmvðu 2
unglingsmenn frá Eyrarbakka,
Hinrik Sigurðsson og Andrés Jóns
son, báðir'efnismenn. Þeir komu
tveir á báti utan úr Þorlákshöfn,
höfðu róið þaðan og voru að
flytja farangur sinn heim. Bábur-
inn hafði lent á skeri og þeir stigu
upp á það til að ýta honum út, en
í því kom alda og kastaði bátnum
frá þeim, og fengu þeir þá eigi
heldur haldið sér á skerinu.—Lögr
Reykjavik, 24. Apríl 1909.
Kappglima var haldin hér i
fyrrakveld í Iðnaðarmannahúsinu.
Glímumönnum var skift í 5
flokka eftir þyngd fþyngstir í 1.
fl. 165 pd.J, ný-til-komið hér, en
algengasta flokksskifting við í-
þróttir erlendis.
Verðlaun voru ætluð þeim cr
bezt glímdi i hverjum flokk, 5 alls.
Þau hlutu:
Sigurjón Pétursson (1. fl.J
Hallgr. Benediktsson (2.)
Halldór Hansen (■$.)
Guðm. Sigurjónsson (4.)
Olafur Magnússon (5.J
Hann var þó í öðrum þyngdar-
flokki raunar, S. P., þótt verðlaun
hlyti í 1. Sá eini, er var í 1. fl.
Guðm. Stefánsson; náði eigi verð-
launum þetta skifti, en átti ekki
kost á að glima í öðrum flokki neð-
ar (léttariö En mjög er jafnt á
komið með þeim þremur, G. S., H.
B. og S. P. Eru þaulvanir orðnir
saman, enda snúast mjúklega úr
brögðum hver hjá öðrum.
Reykjavik, 1. Maí 1909.
Sambandsmálinu var lokið í gær
í neðri deild, eftir miklar umræður
og fruinvarpið samþykt með 16
atkvæðum gegn níu, beint eftir
flokkum, svo skapað, sem meiri
hluti nefndarinnar hafði lagt til,
en það er, að landið óíslandj skuli
vera frjálst og fullveðja ríki í kon
ungssambandi einu við Ðanmörku
um aldur og æfi, en öðrum sam-
bandsmál'Uim, þeim er Danmörk
fari með í umboði íslands, megi
segja lausum með skömmum frest
að 25 árum liðnum.
Málið mun verða tekið á dag-
skrá i efri deild á mánudaginn.
Þingtíminn lengdur enn. Til
annarar helgar hefir ráðgjafi enn
lengt þingtímann, þ. e. eins og
konungsleyfi er til framast. Það
er vegna sambanclsmálsins, með
því að ekki eru horfur á, að því
verði lokið fyr. Það kom svo seint
úr nefnd í neðri deild.
Þingmenn þeir er lengst eiga að
I er von um að komist heim á Valn-
um danska um miðjan þennan
mánuð.
I Stýrimannaskólamum luku sex
(neðannefndir burtfarar^irófi hinu
minna 7. f. m.:
1. Jóel Kr. Jónsson Rvik 61 st.
2. Jón O. Magnúss. Arnarf 58,
3. Guðl. Hjörleifss Arness. 54,
4. Ol. Pétursson, Rvík 49,
5. Þórarinn Olgeirss, Rvík 46,
6. Jón Árnason, Arnaf. 42.
Nr. 1, 2 og 5 voru að eins einn
vetur í skólanum.
Prófdómendur voru, auk for-
stöðumanns, séra Eiríkur Briem
og Hannes Hafliðason skipstj.
Aðfaranótt 28. Apr. brann íbúð-
i arhús á prestssetrinu Barði 1
j Fljótum niður í grunn. Fólk
komst* alt út úr húsimn, en litlu
varð bjargað af innanstokksmun-
um eða öðru, sem í húsinu var.
Presturinn, séra Jónmundur Hall-
dórsson, var ekki heima er þetta
varð; hafði brugðið sér norður á
Akureyri. Hús og munir var vá-
trygt. Ófrétt um upptök eldsins.
iKndiEa tjáog.að nyfy 1234 1232
Reykjavík, 4. Max 1909.
Mestu stórtíðindi á þessu þingi
eru og miunu talin verða um lang-
an aldur þau, er gerðust á laugar-
daginn 1. þ. m„ að samþykt var til
fullnaðar frifmvarp til laga um
bann á aðflutning i áfengra
drykkja, frá ársbyrjun 1912.
Slíkt bann hefir alls eitt þjóð-
þing i heimi samþykt áður.
Það var löggjafarþing Finna,
fyrir nokkrum missirum.
En þeim lögum var synjað stað-
festingar af þjóðhöfðingja Finna,
Rússakeisara.
Enginn ætlar það þjóðhöfðingja
vorum, Friðrik konungi VIII-;
það er siður en svo.
Þá verðum vér hin fyrsta þjóð
í heimi, er fær lögleitt aðflutnings
bann gegn áfengi.
Atkvæðamunur um málið varð
meiri að lokum en nokkur maður
mun hafa gert sér í hugarlund: 18
j atkv. gegn 6 í neðri deild, og 8
igegn s í efri.
| í fyrra kvöld brann baðstofa á
Esjubergi á Kjalarnesi að köldum
kolum. Lausamiuaium varð bjarg-
'að. Það var af sama bænum er
j bóndinn (Guðm. Kolbeinssonj
j druknaði í vetur á heimleið úr
| Reykjavík.
Reykjavík, 5. Maí 1909.
Góðtemplarasamsæti mikið var
1 haldið hér í gærkveldi í Islands-
j hótelli að fagna sigri þeim hinum
í mikla, er fenginn var til handa
bindindismálinu laugardaginn var,
er aðflutningsbannið hlaut
fullnaðarsamþykki alþingis. Þar
voru í boði þingmenn þeir allir, er
greitt höfðu atkvæði með aðfluitn-
ingsbanni. Þar var mælt fyrir
minni konungs, Islands, alþingis,
ráðgjafans fsem var þó ekki við-
) staddúry, Goodtemplarareglunnar,
) o. s. frv. Um 125 manns voru i
samsætinu, karla og kvenna. Það
stóð frá kl. 6—12, og fór hið bezta
fram. — lsafold.
Frá Vestmannaeyjum er skrifað
24. Apr.: “Hér hefir verið næg-
ur afli þegar gefið hefir á sjó.
Botpxvörpungar fremur nærgöng-
ulir, enda varðskipið ekki sézt hér
síðan 5. þ. m. Það er þó vonandi
ofan sjávar? Sýslumaður vor hinn
setti, cand. jqr. Bjöm Þórðarson,
hefir lagt sig mjög i framkróka
um að hefta yfirgang botnvörp-
unga. Eitt sinn er margir þeirra
voru hér í landhelgi með botn-
vörpuhlera útbyrðis, safnaði sýslu-
maður liði, fór að þeim og hafði
með sér 7 skipstjóra i land, og sekt
aði alla. Áður hafði hann tekið
franskan botnvörpung með líkum
hætti, og hefir gert ráðstafanir til
að einn sökudólgurinn enn verði
tekinn, þegar hann kemur til Eng-
lands, en sá var að veiða í land-
helgi og varnaði sýslumanni upp-
göngu. Þetta þykir mörgum
manni hér rösklega gert og mnnndu
kjósa að ihalda slíkum sýslu-
manni. H.”
Við íslandsbanka er nú viðbætt
nýjum bankastjóra, i viðbót við
hina tvo, sem áður vóru. Sá er
Hannes Hafstein, fyrrum ráðgj.
Þ'að gerðist fyrir 10 vikum, en
hefir verið haldið vandlega leyndj
alt til þessa, hvernig sem á því
stendur, og maðurinn alls ekki
verið látinn koma nærri banka-
stjórn þar fyr en ef það er í dag.
Er þó ráðinn frá 1. f. m. fApr.;,
til 4 ára að sinni, með 2,000 kr.
árslaunum, er hækka lum 250 kr. á
jári, auk gróða hlutdeildar. Emil
Schou á að vera yfirbankastjóri,
en þeir Sighvatur Bjarnason og
H. Hafsten einfaldir bankastjórar.
»,
Alþingi var slitið laugardag 8.
þ. m. kl. 5 siðdegis, og hafði þá
staðið tveim dögum fátt í 12 vikur.
Rolf Arpi, íslandsvinur, lézt í
Uppsölum í Sviþjóð, 15. f. m.,
fornmenjavörður þar; kominn und
ir sextugt. Hann var mætavel að
sér i tungu vorri og bókmentum,
kom fjórum sinnum til íslands, sið
ast fyrir 26 ánuim. Lengst dvald-
ist hann hér einn vetrartíma. Hann
ferðaðist víða um land, og bar
jafnan hlýjan hug til lands og
þjóðar, enda góðkunnur hér mörg-
um. — tsafold.
Koma fimtugum að haldi.
Dr. Williams’ Pink Pills færa kon-
um heilsu og krafta þegar
mest á ríður.
Fáar konur ná fimtugsaldri án
þess að líða miklar þrautir. Milli
I hálf-fimtugs og fimtugs verður
íheilsan veil, og ákafar þrautir
gera vart við sig með gigtarstingj
um, bakverkjum og lendaverk,
taugaveiklun og þunglyndi.
Á þessiutn aldri er góð heilsa al-
gerlega komin undir því, að blóöið
sé nógu mikið og hreint. Ef það
helzt ríkulegt, rautt og hreint., þá
verður heilsan góð og konan kemst
klaklaust yfir þetta hættulega
skeið. Dr. Williams’ Pink Pills
Ihjálpa fullorðnum konum betur en
nokkurt annað meðal, því þær búa
til mikið, rautf blóð, en þvi fylgir
góð heilsa og léttir þjáningamar.
Mrs. C. Donavan, Newcastle, N.
B., farast svo orð: “Fyrir hér um
bil tvem árum var eg ákaflega hor
uð orðin og heilsu minni illa kom-
ið. Eg gat varla dregist á fótum
og hafði ákafan höfuðverk en
enga matarlyst. Eg var svo að-
fram komin, að eg hirti lítið um,
hvort eg lifði eða dæi. Oft hafði
eg lesið um hvemig Dr. Williams’
Pink PiIIs hefðu reynst öðrum og
mér kom til hugar að reyna þær,
og get eg nú með sanni sagt, að
þær hafa reynst mér eins og eg
gat fremst á kosið. Meðan eg
neytti þeirra. fékk eg heilsuna
smátt og smátf aftur. Eg borðaði
meira, svaf betur, mér óx þrótbJr
að öllu leyti og áður langt um leið
var eg við svo góða heilsu að eg
hefi hana aldigi betri hafða.”
Dr. Williams’ Pink Pills lækna
með því að taka fyrir rætur sjúk-
dómsins í blóðinu. Þ'ær búa til nýtt
blóð. Þ'ess vegna geta þær lækn-
að þessa sjúkdóma: Gigt, tauga-
gi'gt, meeltingarleysi, nýmaveiki,
höfuðverk, lendaverk, bakverk og
þrautir uppvaxandi stúlkna og
fulltiða kvenna. Seldar hjá öllum
Iyfsölum eða sendar með pósti á
50C .askjan eða sex öskjur fyrir
$2.50, frá The Dr.Williams’ Medi-
cine Co., Brockville, Ont.
Isbzknr Plaiaber
G. L. STEPH&VSON.
118 Nena Street. — — Winnpeg.
Nor*an viB fyrstu lút kirkju
LEITIÐ
beztra nýrra og brúkaöra
Húsgagna,
1 ' ____ og annara nauC-
larnvöru, synlegra búsá-
| . „ 7 halda
Leirvöru
—hjá—
THE WEST END
New and Second Hand
STORE
Cor. Notre Dame & Nena
Miklar birgðir af
byggingavöru.
Fáið að vita verð hjá mér á
skrám og lömum, nöglumog pappa,
hitunarvélum og fleiru.
H. J. Egqertson,
Harðvöru-kaupmaður.
Baldur, Man.
um
Agrip af reglugjörð
heimilisréttarlönd í Canada
Norðvesturlandinu.
THE |D0,MilNI0N BANK
á horninu á Notre Dame ogNena St.
Höfuðstóll $3,983,392.38
Varasjóöir $5,300,000
Sérstakur gaumur gefinn
SPARISJÓÐSDEILDINNI
Vextir af innlögum borgaöir tvisvar á ári.
A. E. PIERCY, ráösm.
Kostaboð Lögbergs
Nýir kaupendur Lögbergs, sem
borga fyrir fram ($2.00) fyrir
einn árgang blaðsins fá ókeypis
hverjar tvær af neðangreindum
sögum, sem þeir kjósa sér:
Sáðmennimir .. .. 50C. virttí
Hefndin...........40C. "
Ránið.............30C. "
Rudolf greifi .. .. 50C. "
Svikamylnan .. .. 50C. "
Gulleyjan.........40C. "
Denver og Helga .. 50C. "
Lífs eða liðinn.. .. 50C. “
Fanginn í Zenda .. 40C. “
Allan Quatermain 50C. “
CÉRHVER manneskja, sem fjölskyldu
k“' hefir fyrir að sjá, og sérhver karlmaö-
ur, sem orðinn er 18 ára, hefir heimilisrétt
til fjórðungs úr , .section" af óteknu stjórn-
arlandi í Manitoba, Saskatchewan eða Al-
berta. Umsækjandinn verður sjálfur að
að koma á landskrifstofu stjórnarinnar eða
undirskrifstofu í því héraði. Samkvæmt
umbsði og með sérstökum skilyrðum má
faðir, móðir, sonur, dóttir, bróðir eða syst-
ir umsækjandans, sækja um landið fyrir
hans hönd á hvaða skrifstofu sem er
Skyldur. — Sex mánaða ábúð á ári og
ræktun á landinu í þrjú ár. Landnemi
niá þó búa á landi, innan 9 mílna frá heim-
ilisréttarlandinu, og ekki er minna en 80
ekrur og er eignar og ábúðarjörð hans eða
föður, móður, sonar, dóttur bróður eða
systur hans.
í vissum héruðum hefir landneminn, sem
fullnægt hefir landtöku skyldum sínum,
forkaupsrétt (pre-emtion) að sectionarfjórð-
ungi áföstum við land sitt. Verð $3 ckran.
Skyldur:—Verður að sitja 6 mánuði af ári
á landinu í 6 ár frá því er heimilisréttar-
landið var tekið (að þeim tlma meðtöldum
er til þess þarf að ná eignarbréfl á heimilis-
réttarlandinu, og 50 ekrur verður að yrkja
aukreitis.
“Landtökumaður, sem hefir þegar notað
heimilisrétt sinn og getur ekki náð for-
kaupsrétti (pre-emption) á landi, getur
keypt heimilisréttarlaud í sérstökum hér-
uðum. Verð $3 ekran. Skyldur: Verður
að sitja 6 mánuði á landinu á ári í þrjú ár,
rækta 50 ekrur og reisa hús, $300.00j.vírði.
W. W. CORY,
Deputy’of the Minister of the Interior.
N.B.—Þeir sem birta auglýsingu þessa
leyfisleysi fá euga borgun fyrir.
Orval af-
■■ -—lifandi blómum
Agætlega fallin
til skrauts og prýöi
The Rosery Florist
325 Portage Ave.
Tals. 194 Næturtals. 709
Lögmaður á Gimli,
Mr. F. Heap, sem er í lög-
mannafélaginu Heap & Stratton
í Winnipeg og Heap & Heap í
Selkirk, hefir opnaö skrifstofu aö
Gimli. Mr. F. Heap eöa Björn
Benson veröa á Gimli fyrsta og
þriöja laugardag hvers mánaöar
sveitarráösskrifstofunni.
THOS, H, JOHNSON
íslenzkur lögfræðingur
_____ og málafærslumaður.
SKRIFSTOFA:— Room 33 Canada Lief
tBlock, suðaustur horni Portage & Main.
I/tanXskrift:—|
TaLSÍMI 423 WlNNIPEG-
I H-H
Dr. B. J. BRANDSON
Office: 650 William Ave.
Telephonc: 89.
Office-tímar: 3—4 og 7—8 e. h.
Heimili: 620 McDermot Ave.
Telephone: 4300.
Winnipeg, Man.
•H-H'l-'l-l-I-I-H-H-H-I-H-1 I 1 -H
Dr, O. BJORNSON
Office: 650 William Ave.
Telephone: 89.
Office-timar: 1.30—3 og 7—8 e.h.
Heimili: 620 McDermot Ave.
Telephone: 4300.
Winnipeg, Man.
•H-I-I-I-
'I-H-H-I-H-H-I 'H-H' Hl
I. M, CLEGHORN, M.D.
lækntr og yflrsetomaðnr.
Hefir keypt lyfjabúðina á Baldur,
og hefir því sjálfur umsjón á öll-
um meBulum.
Kllzabeth St.,
BAI.DUK, - MAN.
P.S.—lalenzkur túlkur vlð hendln*
hvenser sem þörf gerlst.
•I“H-I"I"l"I"I"I-I-I“M-HiiI-I-H-l-H-
Dr. Raymond Brown,
sérfræöingur í augna-eyra-nef- og
hálssjúkijiómum.
826 Somerset Bldfl. Tals.7262.
Cor, Donald & Portage
Heima kl. io-i 3-6
J. C. Snædal
tannlœknir.
Lækningastofa: Main & Banuatyne
DUFFIN BLOCK. Tel. 5302
A. S. Bardal
121 NENA STREET,
selur líkkistur og annast
om útfarir. Allur útbún-
aður sá bezti. Ennfrem-
ur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteiaa
Telephone 3oe.
JAMES BIRCH
KLÓMSTURSALI
hefir úrval af blómum til líkkistu
skrauts.
jTals. 2638 442 Notre Dame
HUBBARD, HANNESSON &
ROSS
lögfræðingar og málafærslumenn
10 Bank of Hamllton Chambera
WINMPBO.
TALSIMI 378
H V AÐ
hafiO þér hugsaö yöur meö legsteininn
sem þér hafiö lofast til aö kanpa, en
sem alt af hefir fallið í gleymskunnar
haf, og látiö eitthvaÖ annaö sita í fyr-
irrúmi. I>ér ættuö nú ekki aÖ láta
gröfina vera lengur ómerkta þar sem
þér getiÖ bú keypt steina meö 25 perc.
afslætti. Þetta niöursetta verö hefir
gert þaö aö verkum aö margir hafa
og þér ættuö ekki aö draga þaþ lengur,
KomiÖ og taliö viö okkur.
A. L. McINTYRE
Dep. K.
Notre Danie & Albert,
WINNIPEG, - MANITOBA.
Merrick Anderson Mfg. Co.
HOT AIR
HEATING,
JARNÞYNNU-SMÍÐI
258NenaSt
Talsfmiö okkur og
viö skulum senda
Furnace-mann okk-
ar til aö gera samn-
inga.
Tals.7632