Lögberg - 03.03.1910, Blaðsíða 3

Lögberg - 03.03.1910, Blaðsíða 3
LöGBERG, FIMTUDAGINN 3- MARZ i^ia 3 ÞÆR SKIFTA ÞÚSUNDUM skilvindurnar en þó má deila þeim í tvo flokka og er DE LAVAL í öörum, en allar aörar í hinutn. * i&£> DE LAVAL er frumlegust og aðrar aðallega eftirstælingar á gömlum og nýjum De Laval einkaleyfum. Hvers kcnar umbætur og endurbætur, sem gerðar hafa verið á skilvindum, eiga rót sína að rekja til De Laval uppfundninga. Allar skilvindur, sem ná eru tilbúuar,—hverju nafni sem þær nefnast — eru gerðar eftir De Laval einkaleyfum, sem gengin eru úr gildi eða hætt hefir verið við, og þær þeirra, sem beztar eru, jafnast varla við De Laval skilvindur, sem notaðar voru fyrir tólf árum. en þó hefir HIN NÝJA ENDURBÆTTA DE LAVAL SKILVINDA stórura aukitJ þaB djúp, sem skilur þser. Stælingarnar eru kænlegt bragö, en jafnast þó aídrei við fytir- myndina frægu, sem hver skilvindu kaupandi er skyldur til a8 reyna sér a8 kostnaBarlausu, úBur en hann gerir kaupin, þ. e. a. s. hina nýju endurbættu De Laval skilvindu SkriflB eftir verBIista og spyrjiB um nafn næsta umboBsmans THE DE LAVAL SEPARATOR CO. Montreal WINNIPEG Vancouver Meðfram Califomíu- isa&IÉfl ströndum, Eftir A. Egilsson. ’Þegar laxveiöinni var lokiö i Blaine s. 1. haust, fór eg suöur til Raymond og South Bend, sem eru mylnubæir i suövesturhorni Wash- ington ríkisins. Þaö eru» 4 mílur milli þeirra bæja, en líklegt aö þei vaxi saman meö tímanum, íbúar eru 4 til s þús. Bæir þessir standa viö fljót nokkurt, er Villapa River nefnist, og eru um 20 mílur frá ströndinni. Þó flæöir sjórinn langt upp fyrir þessa bæi. 'Landiö umhverfis er mjög óslétt, einlægir hryggir, hæöir og hyldýpis gljúfur, vaxiö stórskógi, sem nú er horfinn, en stofnar eftir. Bærinn Raymond er aö mesti. leyti bygöur á láglendi á milli tveggja kvísla, er mynda ána Lar Þaö er sem þeir kalla hér tidc- lands, og flæöir sjórinn yfir ait bæjarstæðið i vatnavöxtum og stör straumum. Standa því öll húi og stræti á stólpum. Hér eru siö fleiri sögunarmylnur og öurnir verkstæði; er hér því mikil atvinna áriö um kring. Nú er verið að byggja tvær brýr yfir ána og kvísl- ina. Viðurinn er að mestu leyti fluttur ú skipiun í ýmsar áttir. Hér er fjöldi Skandínava, Ger- mana, Finna, Galla og Grikkja. Standa þeir og vinna hver viö annars hlið sem bræður. I Ray- mond eru fjórar alíslenzkar famiii- ur, það eru þeir Ólafur Magnús- son og Guðvarður Tómasson, ætt- aðir úr bygðarlagi Brennu-Njáls; hinir eru þeir Karl Grímsson og Jörundur úr Þingeyjarsýslu. South Bend, eins og áður tr sagt, er 4 miiur neðar með ánni. Fólk ferðast á gufubátum milli bæjanna. Hér eru tvær sögunarmylnur og eitt niðursuðuhús. Laxveiði er hér nokkur og sækja menn hana alt að ármynni. Selur og sjófugl er írið aður með jressunt ströndum allan árshringinn. Enda er rita, máfur og isvartbakur svo spakt, að það sit ur á húsþökum og revkháfum íbú- anna, og kroppar eða tínir rusl með hænsnum, Hér er verið aö byggja County Court tHouse, sem áætlað er að muni kosta 125 þús doll. Á orði er haft, að járnbraut verði lögð inn í bæinn, er standi i beinni linu ^við brautina til Portland í Oregon. Hér eru fimm íslenzkar fjol- skyldur, sem erti; Kristján Atla- son frá Hernlu í Landeyjum; Er- lendur Jónsson, ættaður frá Auðn- mn i Gullbringusýslu; Paul Olson frá Stykkkhólmi, J. G. Austfjörð °g Björn G. Backman frá Stem- grímsfirði á Ströndum, og sex norsk-islenzkar familiur eru i báð- um hæjunum. Flestir þessara of- angteindu manna vtnna við myln- ur og hleðsKi skipanna og vegitar fremur vel. Póstbátur gengur daglega frá South Bend til Nacotta við strönd- ina, og fór eg með honum ii Febr. þangað, tók þar lest, er leggur leið sína suður og upp með Columbia- fljótinu til Mergil, sem er um leiö ferjustöð yfir fljótiö til Astoria í Olegon ríkinu. Hér er fljótið 10 mílur á breidd og er þvi stærsta vatnsfall á Kyrrahafströndinni, og mikil laxveiði. Sigling og verzlun er hér mikil, því hér liggur leiðin upp til Portland, sem stendur við Villamette fljótið um 90 mílur upp í landi. Hér eru miklir skóg- ar og óyrkt landflæmi. Eg var eina nótt i Astoria, en um morg- uninn kom Rose City frá Portland er tók hér margt ferðafólk. Kl. 10 f. h. var lagt af istað ofan fljótið. Sundið á Columbia River er að eins hálfa mílu á breidd og þrengsl ni um þrjár milur á lengd, alsett bogum og merkjum á bæði borð. Grynningar og stórir brimsjóar á báðar hliðar, og veltur elfau kol- mórauð út á haf. Þennan dag var dimt 1 lofti og rigning, stórviðri á sunnan og nokkuð ylginn, en enginn vestan- sjór eða hafalda, þó nóg til þess að flestir urðu isjóveikir um dag- inn og nóttina, eða svo var það á því farrýnii, sem eg var á, og það alt karlmenn; um hitt vissum við ekki, en ótrúlegt að þeim hafi liðið mikið betur en oss. Af því að svo þungt var i lofti gátum við ekki séð Oregonian <ströndina, en jafnan siglt 15 til 20 mílur frá landi, og' hélzt þetta dimmviðri fram á sunnudag kl. 9; þá lygndi og birti í lofti og sást til lands, og voru það norðurstranda fjöllin í Californiu, við Humbolt Bay, ná- lægt Eureka. Bezta veður allan daginn og fram á nótt og gátu flestir etið um kvöldið, en fáir komu til morgunverðar; nokkru fleiri þó til inið-dagsverðar. Skreið nú skipið drjúgum. Það er skráð fyrir 16 mílna hraða á kl. stund, en hvort hann var svo mlk- ill nú, veit eg ekki. Rose City er stórt og mikið skip og miklu stærra en hin dönsku póstskip er sigLa til íslands. California ströndin er lágur fjallgarður fram í sjó, til og frá eru dalir, en býsna eru þeir þröng- ir. Hæðir þessar eru grasi jgrónar en hrís og grannur skógur í skoriun °g giljum, lítið undirlendi, engar sléttur og fáar sem. engar hafnir af náttúrunnar hendi; bygð er mjög strjál, svo sem engin með sjónum, og það á langri leið fyrir sunnan Eureka. Að vísu getur bygðin verið að aaistanverðu við þessar hæðir, en hún sézt ekki af sjó og vorum við þó skamt undan landi. Sóktist nú leiðin vel, því veður var stilt um kvölidiö og fram á nótt. Um morguninn þann 14. lcl. 5 kom eg á þilfar. Var þá komið noröanrok og kuldi og þó bezta leiði. Klauf nú Rósin ægisdætur Hkt og steypireiður. Var nú borð- að í snatri, þvi það sást til vitans á Seal Rock ("Selskeri) fyrir sunnan hafnarmynnið, og eftir stuttan tíma var lagt inn i Goiden Gate. Hamrabelti mynda innganginn að Gullhliðinu báðu megin og eru þau um þrjár mílur á lengd og 150 fet á hæð, en þó nokkru lægri að sunn an verðu er nær dregur bygðinni. Sitndið er rúm míla á breidd, en breikkar þegar innar dregur, og skerast úr því firðir og víkur til norðausturs, og fellur Sacramento fljótið ]>ar í sjó; en suðaustur upp í landið skerst San Francisco fló- inn, um 40 mílur. Var nú siglt inn fyrir Alcrtas eyju; þar er hafnarvitinn og frain hjá Goat Island; þar er lægi bryndreka Bandaríkjanna,; og lent við skipa- kví nr. 40. Kl. 8 var eg á Market stræti, á einni aðalgötunni í San Francisco. Kaffi, te, tóbak. Eftir norskan Jækni. í kaffi og tei er eiturefni, sem nefnt er kaffein. Það verkar bæði á vöðvana og taugamar. Það er talið sannað, að við áhrif kaffeins- ins verði vöðvarnir fyrÍT samskon- ar áreynslu eins og þegar þeir dragast saman þegar liandleggur t. a. m. er kreftur. Menn hafa gert visindalegar til- raunir til að finna fyrir víst hve niikið afl sé í lærlegg á froski. Venjulega telst svo til, að það sé 7—800 grömm. En ef kaffein er daflt inn i froskinn, má aúka aflið alt að 1,500 grömmum. Á þessu .sést, að kaffein er vel fallið til aflsauka, og má vera, að einmitt af því sé sprottin löngun manna í kaffi. En auk þess verkar kaffe- inið örfandi á heiilann, og ef neytt er óhóflega, þá fá menn einskonar vímu af því. ímyndunaraflið örf- ast og oft kemur i menn einhvers- konar óróleiki svo að menn eiga bágt ineð að halda kyrru fyrir, og um leið verður hjartað fyrir á- hrifum eitursins og menn fá hjart- j slátt og hræðsluköst. Kaffein er þó einkennilegt eit- \irefni fyrir þá sök, að það virðist ekki vera drepandi. Þess eru sein sé dæmi, að menn hafa reynt að ráða sér bana með því að taka inn alt að fjórum grömtnum af tómu kaffein, eða jafngildi þess kaffe- ins, sem er í 40 kaffibollum, án þes,s að það liafi valdið dauða. Sýking liefir vitaniega af leitt, en sjúklingi hatnað aftuc eftir nokkra daga. En það sem gerir ofnautn kaffis svo hættulega er ekki aðallega kaff.einið, heldur kaffisýran. Sú sýra er mjög vel fallin tiil að varð- veita skinn ýmiskonar eða til að súta þau. En slík sútun á ekki vel við innýfli manna. Slímhúðin í þörmunum crti.st oí mikið og ýmsir kirtíar gefa þar frá sér meiri vökva heldur en eðlilegt er og skennnast við það. Af því get- ur leitt illkynjaða meltingaróreghi og blóðleysi og megurð. I5n mörgum vísindamönnuin j kemur saman um, að eikki sé á neinn hátt hættulegit að neyta kaff- is, ef það er gert i liófi. Kaffi hefir ýmsa kosti, sem ekki' væri að þvi að finna, þó að kaffidrykkja færi nokkuð minkandi, og í þess stað væri drukkið rneira af mjólk og óáfengunr drykkjum. Te- drýkkja gæti og að nokkru komið i stað kaffidrykkju. í þvi eru að vísu óheilnæmar sýrur, en af tei þarf miklu minna en kaffi, og víðr er te miklu ódýrari drykkur. Nikotinið', eiturefnið í tóbakinu, cr aftur á móti mjög sterkt eitur, svo sterkt, að það er engu ósak næmara en blásýra ef eitrið er ó- blandað öðrum efnum. Ofmikil tó- baksnautn verkar strax á hjartað; menn fá hjartslátt, lífæðin slær ó- reglulega, og fylgja stundum kvala köst og andarteppa. Auk þess get- ur tóbakið verkað á augun, svo að sjóndepra sækir 4 menn og getur jafnve lorðið alger bHnda. Heymin getur og sljóvgast viö ofmikla tóbaksnautn, og enn fleiri kviBar geta af henni leitt, t. a. m. --------------------—jr^--------- taugaveiklun, hræðsla og handa- skjálfti, höfuöverkur og fleira og fleira. En þessir kviílar gera ekki várt við sig nema loDaksins sé neytt í óhófi. Það hefir ekki tekisí að sýna fram á skaðlegar verkanir af tóbaksnautn ef það hefir verið brúkað með hófsemd. Munntóbaksbrúkun þykir óskað- legri heldur en reykingar, því að þegar tóbakið er tuggið breytist eitrið í því svo að það verður ó- skaðlegra en þegar tóbakið er reykt. Sænskur læknir nokkur hélt því fram, eigi alls fyrir löngu, að munntóbaksbrúkun gæti valdið sér- stökum sjúkdómi, en síðar hefir mönnum þótt sem þær staðhæf- ingar hans hefðu við engin rök að styðjast. Unglingar ættu aldrei að neyta nokkurrar munaðarvöru, því að meðan líkaminn er ekki fullþrsok- aður, er hanu óhæfari miklu til að standast áhrif eitursins. Það er sannreynt, aö menn, sem hafa byrj að að brúka tóbak á ugum aldri, hafa orðið meira og minna veikl- aðir bæði á sál og likarna, og náms hæfiHeikar þeirra hafa sljófgast skjótt. Enginn unglingur ætti að brúka tóbak fyrir tvítugsaldur. Æskumennirnir eru margfalt lætur færir um að halda sér frá nautn munaðarvarnings en hinir full- orðnu, því að þeir sakna hans ekki meðan þeir þekkja hann ekki. Fréttir frá Islandi. Seyðisfirði, 8. Jan. 1910. Frá landsímastööinni á Seyðis- firði voru í desembermán. afgreidd 104 skeyti frá útlöndum fyrir sam- tals kr. 157.76, og 159 skeyti til út- landa fþar af 97 veðurskeytij fyrir samtals kr. 374.20. Símasamtöl voru afgreidd; nosamtöl með 139 vðtalsbilum frá Seyðisfirði, og 174 samtöl með 194 viðtalsbilum til Seyðisfjarðar. — Um sæsímann voru afgreidd 105 skeyti með 4,616 orðum til útlanda ('þar af 97 veð- urskeyti með 1,709 orðumj, og 430 skeyti með 8,710 orðuni frá út- löndum. Seyðisfirði, 15. Jan 1910. Sími til Sigiufjarðar verður lagður á þessu ári frá aðalsímalín- nnni i Skagafirði milli Skriðu- lands og Sauðárkróks, nálægt Við- vík, út með Skagafirði yfir Siglu- fjarðarskarð til Siglufjarðar. Gert er ráð fyrir að símalagning þessi muni kosta um 3o þús. króna. Verður fyrst einungis talsímastöð á Siglufirði, en ef nauðsyn krefur, verður þar sett upp ritsímastöð. Starfrækslu stöðvarinnar á Siglu- firði hefir hreppurinn tekið að sér að annast að öllu á sinn kostnað. Hefir Gísli Ólafsson stöðvarstjóri á Akureyri nýlega verið á Siglu- firði til þess að semja tim það við hreppsnefndina. Mun verða afannikið hagræíi að þessum síma til Siglufjarðar, fyrst og fremst fyrir skipaflotann, sem þar er á hverju sumri, og svo hag- ur fyrir landsímann. Dáin er nýlega sér í bænum kona Jóns Eyjólfssonar Vestdal, Guð- rún að nafni, dugnaðarkona og vel látin. Seyðisfirði, 22. Jan. 1910. Jarðskjálfta varð vart hér i bæn- um í morgun kl. 7150. Voru það all-snarpir kippir tveir, er mumi' hafa staðið yfir nær 1 mínútu. Jarðskjálfta þessa kvað hafa orð- ið vart samtímis um alt Norður- land og víða hér Austanlands; snarpastur er hann sagður að hafa verið á svæðinu frá Húsavík til Sauðárkróks, og á Akureyri og Sauðárkróki höfðu jafnvel brotnaff rúður og skekkst hurðir í dyraum- búningi. Á Stað í Hrútafirði fanst og jarðskjálfti þessi allsnarpur. A ísafirði og í Reykjavík varð að eins vart viö hann, en 1 Árnes- og Rangárvallasýslum fanst hann alls ekkt. — Austri. Gullbrúðkaup. Koiwit í Tjaldbúðarsöfn. geng- ust fyrir mjög myndarlegu sam- sæti nýskeð, til minningar um fim- tíu ára hjónaband hinna góðkunnu hjóna Mr. og Mrs. J. Hallson á Ellice ave hér í bænum. Samsæti þetta var haldið 1 TjaldbáðarkirkjU fyrra fimtudagskvöld 24. f. m. Þar voru saman komnir um tvö hundruð manns. The Stuart Machinery Co., Ltd. % WIN3STIPEG-, JVETVlsriTOBA. M/ \«/ \l/ w ví/ W \(/ w \l> VI/ M/ \l/ VI/ VI/ ____________________________________________ VI/ -------------------------------------------- M/ The Stuart Machinery Co., Ltd. w 764-766 Main Street. Phones 3870, 3871. ^ Hefir tekið þenna stað í blaðinu á Ieigu til ems árs og mun við og við auglýsa nokkuð af sínum fjöl- breyttu verkfæruin. Félaginu þykir ávalt vænt um að fá fyrirspurnir um verð á hverj- um hlut, sem verkfæra verzlunin hefir til sölu. Samsætinu stýrði prestur safn- aðarins, séra Friörik J. Bergmann, og hófst það uppí kirkjunni með því, að hann gerði grein fyrir til- efni þess og afhenti þeim hjónum frá söfnuðinum fimtíu dollara í gulli, hvoru fyrir sig. Þau þökk- uðu gjafirnar og vinsemd þá, sem þeim var sýnd. , Niðri í sd.sk.salnum voru fram reiddar góðar veitingar og skemt með ræðum og hljóðfæraslætti. Meðal annara töluðu þeir B. L. Baldwinson, S. Anderson, E. And- erson og fleiri. Kvæði það, seui hér fer á eftir, flutti M. Markús- son. Samsætið fór hiö beztá fraiu. Mr. og Mrs. Jón Hallson giftust 15. Nóv. 1859 °S eignuðust 1.5 böm, og lifa 5 af þeim. Jón Ilall ^on er nú 75 ára en kona hans 7» ára gömul. Kvæði, Flutt í gullbrúðkaupi Mr. og Mrs. Hallson 24. Feb. 10 Heiðruðu gestir, vinirnir vaka, vonin og ástin þar samstilla lag, sælt er að lifa og líta til baka, læra og þakka hvem samverudag. Fimtíu árin, hríinguðu hárin, hylla þig aldraði beimur og sprund; gleðin og tárin, sælan og sárin sameinuð gylla nú hamingjustuTid. Nú stafar geislum hautsins sigur sunna á sambúð tveggja, gifturíka braut, hve sælt og ljúft að eiga vin og unna, það yfirbugar sérhvert stríð og þraut. Sjá, hálfrar aldar hnígur sól aö baki, er helgum eldi vermir beggja sál, og því er skylt að vinir glaöir vaki og vígi gulli þessa hjónaskál. Það mark er öllu heimsins valdi hærra, þar hjörtun tengja ódauðleikans bönd; já, víst er hverju lífsins láni stærra um langa braut að styöjast vinarhönd; og þá er létt hið þunga starf að vinna, og þraut og reynsla hljóta sigurkrans, því göfgar sálir frið og gleði finna í fögru' skauti ljóss og kærleikans. í kvöld er sælt að fagna hér og finnast, og friði helga sérhvert bros og tár, í kvöld er ljúft á liðna tíð að minnast o.g k>fa drottin fyrir horfin ár, í kvötd er sælt að sitja hér og ræða og sjá hvað gengin braut oss hefir kent, það greiðir leið til Ijóssins sigurhæða, því lífsins reynsla er hins sanna ínanns. Já, gleðjumst meðan leiðir saman liggja, og lærum það, sem gefur hæstan arð, vor félagsbönd og bræðra hug að tryggja og byggja þar sem tímmn heggur skarð. Hið góða fræ meö degi hverjum dafnar, og dreifir blómum yfir hjam og þraut; og hann, er flestum sannleiks-perlum safnar, er sögukappinn, þegar lýkur braut. Þið, sælu hjón! er hafið leiðst svq lengi í ljósi því, sem aldrei neinum brást, þið hafíð lært að stiHa saman strengi og starfa dygg í helgri von og ást. l>ið hafið örugg hita dagsins borlð, þó höndin lýist skarpt er vil'jans stál, og enn í hjörtum vermir bliða vorið, er vígði forðum ykkar hjónaskál. Erá vinum ykkar hlýjar þakkir hljóma, er hafið gullnu sigurmarki náð. i hálfrar aldar aftanroðans ljóma ná endurskína samtengd verk og ráð. Þótt lækki sól i svölum tímans he-tmi, hln sæla von oss helgar þcnnan fund, að hawstið bltða blómin ykkar geymi er breiði lauf að hinstu dagsms stund. M. Morkússon.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.