Lögberg - 09.03.1911, Síða 6
LÖGBERG. FIMTUDAGINNq MARZ 1911.
HEFND MARIONIS
EFTIR
E. PHILLIPS OPPEN'HEIM.
“Nú, ef þér haldiB þa«, Lttmley lávaríSur, þá er
þaö bersýnilega skylda yöar aö fara burtu, eins og
eg sagöi yöur fyrir skömmu.”
“Þakka yöur fyrir. Er þaö ekki undarlegt aS
braut skyldunnar skuli alt af vera svona erfið og
ófýsileg?”
Hún svaraöi honum ekki, en tók í hendina á
Gracie og sneri heimleiðis. Hann hélt áfram viC
hliö hennar og lét sem hann sæi ekki reiðisvipinn á
henni þegar hún leit til hans.
“Mig langar til aö vita hvers vegna yður er svona
illa viö návist mina, Miss Briscoe?” spuröi hann alt
í einu.
“Það er svo fjarska margt, sem okkur langar
til að vita hér í heimi, en fáum ekki að vita samt,”
svaraði hún. “Eins og t.a.m. um það, hvað um okknr
verður eftir dauðann. Við verötrm að vera þolin-
móð og bíða þangað til fræðslan gefst”.
“Svo aö þér ætlið þá ekki aö segja mér þaö?”
“Og hyers vegna ætti eg aö gera það? En ef
yöur langar mikið til að vitaþað, þá get eg reyndar unl'
sag^t yður, aö mín ástæöa er góö og gild. Eg hefi
vanist einveru, og kann bezt viö hana. Þ.ó eg geti
ekki notið hennar aö öllu leyti, þá get ég þaö að
nokkru leyti”.
“Með þvi að vera með Gracie einni ?”.
“Já”.
“Þér eruð hreinskilin,” svaraði hann hlæj-
andi.
Hún ypti öxlum.
“Hvers vegna skyldi eg ekki segja sannleikann,
þegar ekkert vinst meö því aö skrökva
Hann varð mjög alvartegur á svip.
"Þetta er kuldalegt tal„ Miss Briscoe.”
Eg hefi enga samvizku af því,” svaraöi hún.
“Ætli að það væri ekki bezt fyrir yður aö reyna
að ná í eitthvað að skjóta?”.
Hann ætlaði að ganga fram hjá henni, en af því
að hún svaraði engu þá varð honum litið framan í
hana, og í sömu andránni hvarf honum allur brott-
fararhugur. Hann sá að tárin stóðu í dökkum aug-
uniun á henni og aö mikill titringur var á vörunum.
“Fyrirgefið mér, Miss Briscoe,” sagði hann og
hljóp til hennar. “Eg er klauffenginn bjálfi; eg
var svo hræddur um aö þér kynnuð ao halda, að eg
hefði veitt yður eftirför. Má eg vera kyr hjá
yður?”
Hún kinkaði kolli og sneri sér tnMin.
“Já, verið þér kyr,” svaraði hún blíðlega, “verið
þér kyr héma og talið við mig.”
“Þér þurfiö ekki að halda, að eg sé ístöðulítil;
en stundum liggur illa á mér — líklega af því aö mér
leiöist; — en þér hafið alt af verið mér svo góður, að
þessi breyting — hún kom mér á óvart.”
“Já, þetta var hrottaskapur af mér,” svaraði
hann lágt.
Undarleg breyting hafði orðið á henni. Röddin
var oröin innilega blíö, og alt andlitiö á henni flóði í
tárum. Þá fanst honum, að hann hefði viljað alla
hluti gefa til þess, aö mega taka hana i faðm sinn og
halda henni þar, en 'hann kæfði þær hugsanir niður
meö ráðnum huga. Nú var einmitt færi á aö sýna
henni, að óhætt var að treysta honum. Hann giætti
þess meir að segja vandlega, að láta engan við-
kvæmnishreim heyrast á röddinni.
“Þaö er notalegt að koma svona út í kvöldkulið
eftir aði hafa setið allan daginn inni í litlum lestrar-
sal yfir bókum,” sagði liann glaölega. “Sjáið þér
spóana, sem eru að flögra þarna innfrá yfir mýrun-<
Heimili Tennyson’s var þar, eins og þér vitið,
Finst yður það nokkuö óeðlilegt, aö þessi flatneskja
og rökkurmóðan undarlega, sem yfir hana legst skyldí
heilla huga hans, eins og hún gerði?”
“Já, hún er undarleg og töfrandi,” svaraöi hún
hugjsandi.
“Já, töfrandi, það er rétta orðið. Það er ekki
ósennilegt, að Tennyson hafi einmitt verrð staddur
á þessum stað, þegar hann orti hið yndislega og al-
kunna kvæði sitt ‘Locksley Hall’. Þessi staður viröist
mjög vel fallinn til að vekja viðkvæmar tilfinningar,
og rökkurmólðan eftir ofviöriö eins og núna, hæfir
honum einkar vel. Þetta land nýtur sín ekki í fögru
veðri. Fólk, sem kemur hingað 1 að sumarlagi, fer
óánægt í burtu, og þylcir hér flatlent og leiðinlegt.
Á því futðar mig eklci.”
“Þetta er dapurlegt land,” svaraði hún. “En
einmitt d&purleikinn, sem yfir því hvílir, kom mér
Hann lézt ekki taka eftir því, sem hún sagði. • • , til að fara hingað í kveld; similia similibus curantm,
‘’Miss Briscoe,” mælti hann. “Mér fellur illa j eins og þér vitið, en mér hefir þó ekki orðið! að því
þessi viðræðubragur okkar. Eg—” ; í þetta sinn.”
‘Það er auðgert að komast hjá þeim óþægind- “En hvers vegna þurfið þér að vera hrygg eða
döpur ” spurði hann blíðlega. “Eruð þér ófáanleg
um,
svaraði hún þóttalega.
“Að öllum likindum er þetta mér að kenna,
svaraði hann rólega og lét sem hann befði ekki heyrt
bituryrði hennar. Eg hefi mjög sjaldan átt tal við
kvenfólk. Allir kunningjar mínir 'hafa veriö karl-
til að gEra mig að trúnaðarmanni yðar aö einhverju
leyti ?” ' .
Hún brosti raunalega og hristi höfuðið.
“Já, þér gætuð aldrei skilið það. Spyrjið
mig
menn, og þess vegna á eg ltka svona óhægt með að : enSra spurninga; lofið mér að eins að vera einni.
haga orðurn minum heppilega, svo aö ungum stúlkum Hugsanir mmar 1 kveld ertt ömurlegir förunautar.
geðjast vel. En eitt langar mig til aö segja yður,
ef þér vilduö leyfa mér, og það er þetta: Fyrstu
kvöldin eftir aö þér komuð voru mér mjög ánægjuleg.
Þá áttum við oft tal saman, og aldrei á æfi minni
hefi cg haft eins mikla ánægju of neinu eins og því
tali okkar. Já, svona er eg nú hreinskilinn. Eg
var að vona að viö gætum oröið vinir; og eg hélt að
það væri hér um bil vist, að við yrðum það. Eg vil
ekki móðga yður meö neinu öfga tali, en ég get ekki
orða bundist tmi að segja það.að þessi viökynning
okkar varö til þess aö gera lífið fegurra og unaðs-
legra í augum mínum. Þetta er eldki of sagt. Eg
skil sizt í því, hvernig þér hafiö getað komist yfir aö
lesa og hugsa um svona ótal margt. Það kemur mér
auðvitað ekki við. Hitt finn ég og hlýt að kannast
við, að mér er það mikið ánægjuefni aö vera sam-
vistum me'ð yður. Þér hljótið aö sjá. að ég er að
reyna að segja yður alveg eins og er — og eg vona
að þér metið það réttilega. Nú langar mig að eins
til að vita, hvemig á því stendur, að þér hafið breyzt
svona gagnvart mér; hvers vegna getum viö ekki ver-
iö vinir? Viljið þér gera svo vel og segja mér það,
Miss Briscoe?”
Þetta sagði hann með hljómþýðri en karlmann-
legri bænarrödd, svo aö yndi var á aö hlýða, og í eft-
irvæntingar ákafanum eftir að heyra svar hennar,
laut liann niður, svo að fallega dökkhærða höfuðiö
nam rétt að segja við höfuð hennar. Hún þokaði sér
undan óþolinmóðlega.
“Þaö er ómögulegt,” svaraði hún kuldalega.
“Og hvers vegna ?”
“Þó að ekkert annað væri til fyrirstööu, þá væri
þaö eitt nægilegt, aö kenslukona St. Maurice lávarð-
arfrá er alls ekki samboðin vinkona Lumley lá-
varði.”
Han nroðnaöi af þessu kuklalega svan og
mælti:
“Eg bið yöur aö misvirða ekki þó að eg segi, að
þetta er í fyrsta sinni, sem eg hefi heyrt yöur komast
ósmekklega að oröi. Veriö þér sælar. Vertu sæl,
Gracie.”
Han nsneri því næst skyndilegja á stííg nokkum,
sem lá inn í skóginn og gekk hvatlega burtu, en Mar-
garetha og systir hans gengu einar heim.
XI. KAPTTULI.
Fram á sjávarhömrunum.
Aö kvöldi þessa sama dags hittust þau aftur, af
tilviljun einni. Fyrri hluti dagsins haföi verið hvass-
viöri og rigning, en rétt fyrir sólsetrið haföi lygnt og
stytt upp og grátfögur kveldsólin staröi á ólgandi
hafið. Lumley lávarður hafði leitað sér afþreyingar
um daginn við lestur og vindlingareykingar; en þeg-
ar hann sá að veðrið var aö batna, spratt hann upp,
greip hatt sinn og staf og flýtti sér út, til að hressa
sig í svalri særoksþrunginni hafgolunni og gekk
fram á sjávarhamrana; þegar hann kom þar fyrir
klettsnef eitt, vissi hann ekki fyrri til, en Margaretha
stóö þar frammi fyrir honum.
Hún stóö fremst frammi á hárri hamarsbrún.
Vindurinn stóð í föt hennar og þyrlaði til á henni
hárinu. Hún sýndist óvanalega há þar sem hún stóð
og hcrfði út á hafið, en þegar hún heyrði fótatak
hans leit hún snögt við. Hann fékk mikinn hjart-
slátt sem snöggvast, en svo mundi hann eftir hvemig
þau höfðu skilið áður um daginn.
“Mér þykir fyrir aö eg skyldi gera yður ónæði,”
sagði hann kuldalega og tók ofan. “Ef eg hefði átt
nokkra von á að þér væruð hér, þá mundi cg hafa
fariö aðra leið.”
Þaö er bezt aö lofa mér aö vera einni með þær.
Kunnið þér nokkuð úr “Salt Marshes”-kvæðum Swin-
burns?”
“Já, ofurlítið.”
‘ harið þér með það fyrir mig. Mig langar til
að losna sem snóggvast við þær hugsanir, sem nú
sækja aö mér.”
ITann gerði sem hún bað, og stóð við hliö henn,-
ar meöan hann hafði yfir eitt kvæöiö, og aðgætti
vandlega hversu eldur þessa hrífandi skáldskapar
virtist lýsa upp hugskot hennar og læsa sig inn að
instu hjartarótum. Nú skildi hann hversu ástatt var
fyrir henni. Einhverjar þungar raunir og áhyggjur
hvildu á henni. Og hann varð að hjálpa henni til að
gleyma þeim. Qg þegar hann var kominn aö sein-
asta vísuorðinu,. þá fór hann aö tala blíðlega við hana
um kvæðið, benda henni á undarlega gljáann á sjón-
um, og skuggana, sem éltu hver annan um héraðið
fyrir ofan, eyðilegt og ömurlegt. Svo fór hann aftur
að hafa yfir kvæðakafla fyrir hana, og sneiddi sem
bezt hann gat hjá öllu, sem var raunalegt og þung-
lyndislegt, jafnvel þó fagurt væri og hrífandi; en
reyndi að velja það, sem var hressandi og hvetjandi
og vekjandi nýjar vonir. Og alt i einu var hann far-
inn að fara meö kvæðið ”Maud”. Hann kunni það
reiprennandi, en þá tók hún fram í fyrir honum, ef
til V*H af Þvb henni þótti glampinn í augunum á
honum helzt til mikill.
“Nú sikulum viö koma heim,” sagði hún. “Þér
hafið verið mér einstaklega góður. Eg skal aldrei
gleyma því.”
Hann rétti henni höndina, og þau leiddust niður
á götuna, og lögðu af stað heim aö húsinu steinþegj-
andi bæði. Hann var svo hræddur um, að hann kynni
nú þá og þegar aö missa einhvers af þeirri hylli, sem
hann hafði náð. En kvíðinn fyrir þvi að sjá hana
ekki aftur gaf honum hugrekki.
“Má eg biðja yður bónar?” sagði liann blíðlega.
Hún kinkað* kolli.
‘Látið þér bónina þá vera nógu litla. Mér
þykir nærri því fyrir að þurfa líklega að neita yður
um hana.”
“Viljiö þér lcoma niöur í stofu í kveld?”
Hún hristi höfuðið.
„Eg get þaö ekki. Eg þarf að skrifa langt bréf.”
Hann varð strax mjög hryggur á svip.
“Þó ekki sé nema litla stund.”
Hún Jiikaði við.
“Já, ef yður langar mjög mikiö til þess."
“Við-erum nú orðin vinir. Er ekki svo?’
hann hikandi.
Hún leit á hann mjög bliðlega, svo aö roði hljóp
fram 1 kinnar honum og hann fékk mikinn hjartslátt.
“Jú, svaraöi hún lágt, “ef þér viljið það.”
XII. KAPITULI.
Játning Lumley lávarðar.
“Heyrðu, mamma, finst þér Míss Briscoe ekki
einkennileg stúlka?”
St. Maurice lávarðarfrú leit snögt upp frá þvi,
sem hún var aö gera. Klukkan var rett að slá níu,
og sonur hennar var nýbúinn að líta á úrið sitt og
láta þaö mjög óþolinmóðlega í vasa sinn aftur.
“Jú, það finst mér,” svaraði hún rólega. “Mér
finst hún mjög einkennileg stúlka. Hvers vegnu
spyröu að því ”
Hann ypti öxlum.
“Og eg veit eiginlega elcki. Mér fínst það hálf-
einkennilegt, að hún skuli vilja sitja ein inni í her-
bergi sinu, og þurfa að skrifa jafnmörg bréf eins og
| hún gerir. Ertu viss um, að hún viti fyrir vist, að
hún sé velkomin hér niðri hjá oklcur á kveldin ?”
“Já, eg er viss um það, Lumley. Það var jafn-
vel mér á móti skapi, að hún færi hingað kenslukona.
Við móðir hennar vorum beztu vinkonur hér fyrrum,
og eg sagði Margarethu strax, aö eg vildi helzt að
hún færi hingaö og væri hér eins og dóttir mín. Það
hefði verið mér langkærast. Það var stórlæti henn-
ar aö kenna, og engu ööru, að hún fór hingað til aö
kenna Gracie, og eg ímynda mér, aö sama sé ástæöa
þess, aö hún vill vera sem mest út af fyrir sig. Mér
þykir fyrir því, en eg get ekki gert meira en eg hefi
gert, td þess aö fá hana til að breyta til í þessum
efnum.”
Lumley stikaöi órólega stundarkorn fram og
aftur um gólfábreiðuna framan við arninn. Hann
hafði orðið einhverrar lilédrægni var hjá móður
sinni, sem gerði honum enn þá erfiöara, það sem
hann ætlaði sér að tala um viö hana. Hann sá lílca,
að hún veitti honum nána eftirtekt, og var henni
það enn hægra af því, að hún sat í mjög lágu sæti.
“Þótti þér þá mjög vænt um móöur hennar?”
“Já, mér þótti það. Hún var bezta vinkona
mín.”
“En — fyrirgeföu mér, ef eg geri þér rangt til—
stundum finst mér þér ekki vera meir en svo um
Miss Briscoe.”
“Hún gaf mér hvorki kost á að láta mér þikja
vænt um sig eöa vera illa við sig, Lumley.”
Hann hristi höfuðið.
“Eg á ekki við það. Eg hefi stundum aðgætt
þig þegar þú hefir horft á hana — eins og t. a. m.
þegar hún var að syngja Sikileyjarsönginn — og það
var cngu likara,. en — að þú værir hrædd við hana;
eins og eitthvað þaö væri í fari hennar, sem þér væri
ínesta ömun í.”
Lávarðsfrúin lagði frá sér það, sem hún var með
og leit i eldinn, sem logaði glatt á arninum. Sw
varð nokkur þögn.
“Jiú ert býsna aðgætinn, Lumley.”
“Eg ber ekki á móti því. En segöu mér lrvemig
stendur á þessu. Það leynir sér ekki, hversu þér
bregður oft við, þegar hún kemur inn aö óvöru.
Ef þaö væri ekki svo rnikil fjarstæöa, þá mundi eg
ætla, að þú værir hrædd við hana.”
Lávarðsfrúin greip hendinni snöggvast fyrir
brjóstið eins og hún kendi sárs verkjar alt í einu.
Hún endurtók orð sonar síns án þess aö lita á hann.
“Hrædd við hana! Nei, nei, Lumley. Nei, eg
er Jtrædd við annaö, annaö, sem andlit hennar minnir
mig ávalt á. Þa'ö ér eins og skuggi liöinna tíma
fylgi henni hvar sem hún fer.”
Samtalið var að fá á sig daglegan blæ. Lumley
liafði ekki ætiast til þess, en nú haföi móöir hans
vakiö forvitni hjá honum.
“Skuggi liðinna tima?” endurtók hann. “Hvern-
ig á að skilja það? Segðu mér það, mamma.”
Nú leit hún framan i hann, og hann sá að hún
var óvenjulega föl.
“Þaö er mjög skamt siðan, Lumley, aö við faöir
þinn sögðum þér, meö hve einkennilegu móti við
j hittumst fyrst og kyntumst, og hvaða atburðir gerð-
! ust um það leyti, sem við giftumst. Manstu eftir
j því ?”
“Já, eg man eftir hverju oröi, sem þið sögðuð,
, mamma.”
“Manstu eftir því, að di Maríoní greiti ætlaöi að
j neyöa föður þinn til einvígis við sig,, og eg kom í
j vreg fyrir, að jæir beröust? Manstu eftir til hvaöa
j örþrifráða að eg neyddist að grípa, og eiðnum, sem
1 læonardó — di Maríoní greifi, sór um hefnd gegn
| okkur báðum?’ ’
“Já.”
“Síðan eru liðin tuttugu og fimm ár, Lumley,
og nú er hann laus úr varðhaldinu.”
“En hvaö kemur }>að Miss Briscoe viö?” spurði
j hann undrandi.
“Hún er systurdóttir hans”.
“Systurdóttir hans! Systurdóttir hans!”
Ltimley gat engu oröi upp komið. Með ljós-
j hraða sjálfselsku karlmannsins snerust nú allar hugs-
anir hans um eitt atriði að eins. Voru þessar nýju
fréttir óskum hans til hindrunar, eða til aö greiða
fyrir þeim?
“Systir Leonardós var trygöavinkona mih. Hún
giftist manni, sem hét Briscoe og dó skömmu síðlar.
Margaretha er dóttir jreirra, og heyrðu Lumley, það
virðist ekkert af brezku blóöi renna í æðum hennar.
Hún er Marioni! Alt af sé eg augun hans og ennið
hans þegar eg lít framan í liana. Svipur hennar
minnir inig alt af á hefndareiöinn; og einhverntíma
mun hann rétta út hönd sína og fremja hina grimmi-
legu hefndarhótun sina. Og þaö hefir komið fyrir,
Lumley, að eg hefi orðið óttaslegin við að horfa
framan í þessa stúlku.”
Nú glaðnaði yfir lionum og brosvottur fór að
sjást kringum munninn.
“En sérðu ekki, mamma, að þetta er tóm ímynd-
un, að þvi er Miss Briscoe snertir?” sagöi hann.
“Hún geldur jæss, að hún er lik di Marioní greifa.
Finst þér það ekki nokkuð ranglátt? Hvaö heldurðu
að hún geti vitað um eið', sem svarinn var fyrir 25
árum, löngu áður en hún fæddist? Mér þykir trú-
legt, að hún hafi aldrei heyrt hann nefndan.”
Hún brosti raunalega.
“Mér dettur ekki i hug, Lumley, aö færa fram
neinar varnir fyrir því, að hugboö mitt sé réttmætt.
VitanJega er það næsta ósanngjamt að bendla hana
við þetta.”
“Eg vonaði. aö þú mundir lcannast við: það,
mamma.”
“En þó að eg geti ekki fært fram neinar gildar
ástæður fyrir ímyndun minni, þá hverfur hún ekki
að heldur. Hlustaðu nú á. Engin kona hefir átt
ánægjulegyi daga heldur en eg. Mér hefir stundum
fundist æfi min úr hófi unaðsleg, og samt sem áður
hafa mér aldrei úr minni liðið. hefndarhótanir Leon-
ardós. Þær lögðust yfir æfi mina Tíkt og dimmur
skuggi, sem varð þvi svartari, sem fangavistin hans
stytti meir. Loks kom að þvi, að honum var slept
úr varðhaldinu. Það eru aö eins fáir mánuöir liðnir
síðan hann var látinn laus.og rétt um það leyti sá eg
hann.”
“Sástu hann? Hvar?”
“í Lundúnum, Lumley! Hvers vegna kom hann
strax hingað til Englands , svo að segja sama daginn
sem honum var slept úr varðhaldinu? Honum var
illa við Englendinga og England hér fyrr á árum, og
þó kemur hann beint hingað í staðinn fyrir að fara
til föðurheimkynnis sins, sem honum þótti svo inni-
lega vænt um, eða í staðinn fyrir að fara til einhverra
hinna suðrænu borga, þar sem hann átti marga vini,
er tekið hefðu honum tveim höndum? Eg fann hann
í gistihúsi nckkru, farinn að heilsu og þvi nær að
dauða kominn. En þegar hann sá mig, cg heyrði
rödd mína, lifnaöi Jiatrið á ný í brjósti hans. Eg
grátbað hann fyrirgefningar, en Hann lét eins og
VEGGJA GIPS.
Vér leggjum alt kapp á
að búa til hiOtraustatíta
or finyerflasta GIPS.
f THOS. H. JOHNSON og
{ HJÁLMAR A. BERGMAN,
f ^*nxl<‘r lógfræðipgar,
- s««iwrw»:_ Roob »ii McArthur
Baildiog, Portoge Avanue
p. o. Box 1606.
_ Teitfónar: 4503 og 4504. W inoipeg
^+mmmmmmmmmmmmmmmmmmmm*
4«r • »*
fcmpire
Cements-veggja
Gips.
Viðar Gips.
Fullgerðar Gips o.fl.
ao — tta—ag^
Dr. Ð. J BRANDSON
Ot<lee|Cor. Rherbrooke & Wifliam
**a*»to«* r.Ativaso
Owia-Thi*i: 2—3 og 7—s o. h.
Hbimiu: 020 McDbomot Avb.
Taunoti carrv att
Winnipeg, Man.
JEioangis búiB til bjá)
pN HWmiMMM WWli.
! Br. •. BMRKMN I
OMn: Cor. Shtrbrooke A WUUam
kOARXT HSlm
Manitoba Gyptum Co.Ltd,
' | Hbimui:
WtnMÍptg, Mrnnit»ém
•XBirlB BFTIR BAXLINGl VOBUM. TB
—UR MðN ÞTKJA HANN ÞIM TKRDUB—
hann lieyrði það elcki og sýndi mér fyTÍrlitningu.
Hann hefir aldrei gleymt hefnd sinni. Hann fyrir-
gefur aldrei! Hann benti mér á hrumleik sinn, og
hvítu hærurnar, og á allar hörmungarnar, sem hann
hefði oröiö að jx>la í fangelsinu, og síðan formælti
hann mér á ný, með sömu brennandi heiftinni og
hefndarlönguninni, eins og fyrir tuttugu og fimm
árum! Það var hræðilegt! Eg flýBi burt þaðan
hrygg og óttaslegin, og síðan hefi eg ekki getað á
heilli mér tekið, Lumley. Hver einasti dráttur í and-
liti þessarar undrafögru stúlku, og hver einasta hreyf-
ing hennar minnir mig á, aö hún er Maríoní.”
Hún hafði staðiS upp og stóð nú við hlið sonar
síns, tíguleg en með miklum hrygðarsvip. Hann
greip hana í fang sér og kysti hana á ennið.”
“ímyndunarafl þitt fer með þig| afleiðis,
inamnia,” sagði hann blíðlega. Hugsaðu um þetta
með ró og stillingu. Við skulum setja sem svo, að
jiessi gamli inaöur ali enn þá hatur í ibrjósti til þín.
Þó svo væri, hvaða mein mundi hann geta gert?
Honum gleymist hvaöa aldarandi er nú, og í hvaöa
landi hann er! Vendettur og skáldsagna kynjaðar
mannhefndir eiga sér ekki framar stað nú oröiö; alt
slíkt er útdautt og þaö jafnvel i hans landi; hér getur
þvt vitanlega ekkert slíkt komiö til mála!”
Hún skalf á beinunum og leit framan í hann.
Það var eins og orð hans hughreystu hana þó ofur-‘
litið.
“Um þetta er eg að reyna að telja sjálfri mér
trú,” svaraði hún, “en stundum verður kvíðinn mér
yfirsterkari. Eg er ekki af brezkum ættum eins og
þú vei/.t; eg er komin af þjóðflokki, sem er miklu
hjátrúarfyllri!”
“Mér þykir fyrir því, að Miss Briscoe skyldi
verða til þess að vekja þessar sorglegu hugsanir í
brjósti þínu,” sagði hann hugsandi. "Heyröu,
mamma!’ ’
“Já, Lumley.”
“Heldurðu að þér mtmdi falla þaö mjög þungt
— ef eg — ef eg einhvern tíma bæöi þig að talca
hana þér i dóttur stað?”
Hún stóö grafkyr, en var auðsjáanlega í mikilli
geöshræringu, hún var orðin náföl t andliti.
“Er — er jær jætta alvara, Lumley?”
“Já, eg elska bana innilega.”
“Þú hefir þó liklega ekki beöið hennar?”
“Nei. Eg hafði ekki ætlað mér að minnast neitt
a þetta við þig fyrst um sinn, en eg leiddist til þess,
af því aö mér féll það svo þungt, ef yJckur gæti elcki
komið asamt — ef einhver Jcali væri á milli ykkar.
Eg var að ímynda mér að alt slíkt lcynni að hverfa,
ef eg segði þér frá jæssu.”
“Nei, }>að getur ekki horfið.”
“Mamma!”
“Lumley, það er ómögulegt. Hún horfir á mig
meö auguniun hans, hún talar til min meö röddinni
hans, og mér finst eins og því sé hvíslaö að mér, að
hún hati mig í hjarta sínu. Þú þekkir ekki þessa
Maríona. Ást jæirra og óvinátta er jafnan söm við
sig; hvorttveggja jafn óliagganlegt eins og blágrýtis-
hamarinn, sem kastalar jæirra standa á. Jafnvel
Ma,rgaretiia fyrirgaf mér það aldrei, að eg skyldi láta
setja Leonardó í fangelsi og bjargaði eg þó lífi unn-
usta hennar með því. Er það vist, að þú hafir ekkert
sagt við hana enn þá, Lumley?”
“Nei, ekkert enn.”
“Hún mundi aldrei giftast þér. Þér er óliætt að
trúa þvi„ að hún hatar okkur öll í hjarta sínu. Stund-
um dettur mér í bug að hún sé hér — að eins til—•”
“Mamma!”
Hann tók j>étt utan um mjallhvítu, skjálfandi
handleggina á henni. Hún leit við í sömu átt og
hann , og sá þá, aö Margaretha stóð í dyrunum föl
og stórlát meö skúf hvitra hýblóma nældan í barm-
inn á svarta kjólnum sínum.
“Geri eg ykkur ónæði?’ ’spurði hún rólega. “Eg
ætla heldur að koma ofan aftur eitthvert annað
kveld.”
Lumley brá við til að koma í veg fyrir að hún
færi, en móðir hans varð þó fyrri til að átta sig.
“Eg ætla að biðja yður að vera kyr, Margaretha,”
sagði hún með mestu ró. “Við vorum rétt að tala um
hvað það væri leiðinlegt, að þér kæmuð svo sjaldan
ofan til okkar á kveldin. Opnaðu hljóðfærið, Lum-
ley og náðu í nótnabækur Miss Briscoe.”
Hann leit þakklátum augum til móður sinnar og
hlýddi boði hennar. Hún tók rólega upp pappírs-
hnífinn sinn og fór að skera upp úr Mk, sem hún
var með.
2—J cg 7—• A h. ,
McDmmot An.
I CARRY aSt
Wlnalpsg, Man. 1
Dr. W. 1. MacTAVISH
OmcslMA óargcat A*e.
Tclcphoac Acrhr. Mt.
Ottca tfmar
4 1W* t. m.
] M e. -.
f im e. m.
— Hmmiu af Toronto Streot
WIMNIPEO
TBLBMOMB Sherbr. 44|.
.............
:: Dr. J, A. Johnson ■ [
PHy«idan and Surgeon ;;
: Hensel, - N. D. |
.....................
J. G. SNŒDAL
TANNLŒKMR.
ENDERTON iUILDNG.
Fertsge Are., Cor. Hargraee ft
SwU 313. Tal*. nuúa 5302.
|
I Wr, ÍBynond irown
f| 84rfTRfti|Br f angea-evra-nef- »
^ htlc-ajúkdÓMium.
SS26 Somerwt Blda.
Talafmi 7<M
* e°»' boBild A Portage Ave.
n Hcrma kí. 10—1 og 3—6.
J. H, CAILSON,
Manufacturer of
ÁHTlFiaAL LIMBS, ORTHO
PEDIC AFHLlANCES.Trusset
Phone 8425
04 Xírb 8t. WINMPE
A. S. Bardal
Itl NINA BTRECT.
eelnr UkkisMr eg aanacl
m Sifarír. AUer ItMg-
<m»r •* bettí. Kaafrcea-
■r cclar kaae -Irkrair
■iaaiavarCh og lageMiaa
-TMB-c-
Evans Gold Cure
•t Tah. M. T>7
Varealca lMkaict »MI 4rrkkjMia» á «t
««*»■ tm cokkwrrar laltr Irá <lui cftli
n»Mc ríkcc.. Ali.rl.r. artv.i. 16 ár i
Wiccici^.rc. Vppiytlac.r I lckuScu
mmmlOgrnm.
Dr. D. R. Williams,
IncUti Phrticl.c
W. L Williams.
rátuuBir
A. L HOUKES & Co.
sclja og bús til lcgetetaa úr
Granit og marmara
Tals. 6268 • 44 Albert St.
WINMPEG
W. E. GfíAY & CO.
Gera viö °g fúðra Stóla og Sofa
Sauma og leggja gólfdúka
Shirtwaist Boxesog legubekkir ,
589 Portage Ave., Tals.Sker.2572
soiw
VEGGJA-ALMANÓK
eru mjö* fallee. E» falle/rl era hau t
UMGJÖRÐ
Vér höfmn ódýruBtn ðg bectn mytdarMMna
i b»nuBri.
Winnipeg Pictnre Frame Factory
V^r BirkJtim skilam myikdnnnNi.
PhoiieMain2789 - 117 Neaa Street