Lögberg - 11.05.1911, Side 1
24. AR
WINNIPEG, MAN., Fimtudaginn 11. Maí 1911.
NR. 19
BÚSTAÐUR OG LEIKFIMISSALUR NEMENPA BÚNAÐARSKÓLANS í MANITOBA.
í ÞESSARI FÖGRU BYGGING BÚA NEMENDUR BÚNAÐARSKOLANS. — ÞAR ERU 400 IIERBERGI — LEIKFIMIS-S ALUR OG SAMKOMUSALUR
Sambandsbingið.
Frestun frá 23. Maí til 18. Júlí.
Þa® var samþykt á fundi meiri
hluta sambandsþingsins í Ottawa
5. þ. m., a?S fresta þingi frá 23. þ.
m. til 18. Júlí, e<5a sem næst um
tveggja mánaöa tima. Er búist
við, ab fjárlögin eða nokkur hluti
þeirra hafi náS samþykki á'ður en
þing’frestunin verður. ÞaS sem
m’estu rébi um þingfrestunina rni
var það, að ekki er búisit viö þvi a'ö
fullnaðardómur verði kveöinn upp
um það í senati Bandaríkjanna
ef til vill fyr en í JiilímánutSi,
hvort samningarnir við Canada
skuli samþyktir þar.
Kvenréttindi á Bretlandi
Nýtt frumvarp í neðri deild.
Georg Kemp, liiteralþingmaSuir
í Manchester fly.tur nýtt kvenrétt-
inda frumvarp í neöri deild brezka
þingsins. Er þar farið fram á,
aö veita öllum þeirn konum at-
kvæöisrétt, sem eigi sjálfar eöa
leigi sér húsnæöi, en jafnframt til-
skiliö aö giftar konur skuli ekki
greiöa atkvæði í sama kjördæmi
eins og eiginmenn þeirra. Það er
hald manna, að ef frumvarp þetta
veröi Samþykt, þá ööjlist um -eirr,
miljón kvenna á Bretlandseyjum
atkvæðisrétt. Um leiö og frum-
varp þetta var borið upp var lögö
fyrir þingið áskorun undirrituð a/
53,000 nöfnum, og voru 31,000
þeirra nöfn kvenna, sem voru
andvígar kvenréttindjum. Frum-
varp George Kemp var samþykt
meö 255 atkvæðum gegn 88 við
aðra umræðu og vísað til nefndar.
Hefir frumvarp þetta töluvert
meira fylgi í neðri deild heldur en
það kvenréttinda frumvarp, sem
Shackleton bar upp um kvenrétt-
indi í Júnímánuði x fyrra. Kon-
ur í Lundúnum hafa lofast til að
hafa sig hægar og sýna engar ó-
spektir af sér ef stjórnin leggist
ekki móti frumvarpi þessu.
Minnisvarði Victoriu
drotningar.
Afhjúpaður 16. þ. m.
Mikill viðbúnaður og hátíða-
brigði eru í Lxxndúnaborg um þess
ar mundir i tilefni af þvi, að á
þriðjudaginn i næstu viku á að
afhjúpa nvjnnisvarða .Victoriu
drotningar, sem reistur hefir ver-
ið gegnt Buckingham höllinni. Er
von á Þýzkalandskeisara og frú
hans og rnörgu öðru stórmenni til
að vera viðstaitt þessa athöfn.
Japanar og Kínverjar.
Blöðin flytja fréttir um nýjan
og vaxandi óvildarhug milli Jap-
ana og Kínverja. Er það haft
eftir rússn|eskxj|m tíðinda^mönnum
að Japanar hafi við orð að koma
fram með nýjar kvaðir á hendur
Kínverjum bæði um: ný verzlunar-
hlunnindi sem þeir krefjast af
Kínverjum og um breytingar á
toll-löggjöfinni. Japanar kváðu
hafa við hótanir ef hinir sýni
nokkra tregðu i að ganga að skil-
málum þeirra.
—Alþjóðafundur blaðamanna
stendur um þessar mundir yfir í
Rómaborg.
_Sir Wilfrid fer til Englands. t
Sir Wilfrid Laurier kvað ætla
að leggja af stað til Englands 12.
þ. m. til að sitja nýlendumála-
fxxndinum í Lundúnum fyrir hönd
Canada. Mr. Fielding fjármála-
ráðgjafi gegnir fonsætisráðherra-
störfum í fjarveru hans. Sir Wil-
frid býst að sjálfsögðu við að vera
viðstaddur krýningu konungshjón-
anna brezku í Túnímánuði.
Brezka þingið.
Ný tryggingarlög.
Hinn 4. þ.m. flutti Lloyd-George
ráðherra frumvarp sitt i brezka
þinginu til nýrra tryggingarlaga
handa verkamönnum gegn atvinnu
leysi, sjúkdómum og örkumlum.
Er sagt að allir flokkar hafi tekið
frumvarpi þessu jafnvel og þótti
það nærri einsdæmi. Fyrir
skömmu var minst hinna helztu
atriða frumvarps þessa hér í blað-
inu, svo að óþarfi er að taka þau
upp hér, en síðar mun sagt frá ör-
lögum þess í þinginu, þó að sjálf-
sagt sé það talið, að það nái sam-
þykki, því að unionistar eða mót-
stöðumenn stjómarinnar muni
ekki hafa i fullu tré að andmæla
frumvarpi sem er til jafnmikilla
umbóta á kjörum fjölmennustu
stéttar landsins, verkalýðsins.
Breytingar á lávarða-
deildinni.
Frumvarp frá Lansdowne
lávarði.
Skógareldarí Dauphin.
Járnbrautabrýr brenna.
Ivansdowne lávarður, foringi
stjórnar andstæðinga i lávarða-
deildinni bar upp frumvarp 8. þ.
m. til breytingar á fyrirkomulagi
lávarða deildarinnar. Hann lagði
það til, að lávörðunxxm yrði fækk-
að svo, að þeir yrðu ekki fleiri en
300. Eitt hundrað þeirra skyldi
kjósa til ákveðins árabils úr þing-
deildinni, sem væri, með hlutfalls-
kosningu, 50 skyldu vera helztu
og atkvæðamestu menn landsins,
svo sem ráðherrar, landstjórar ný-
lendna og aðrir mikilsháttar þjón-
ar ríkisins. Enn aðrir 50 skyldu
vera lávarðar útnefndir af ráða-
neytinu sem við völd væri og
skyldi sú útnefning gilda um vist
árabil. Loks skyldu 100 vera
kjömir af sveita og bæjartáðum,
til skamms tima. Þétta nýja
frumvarp dregur úr valdi kon-
ungs vxm að skipa nýja lávarða.
Diaz kveðst segja*aFsér.
Diaz forseti í Mexico hefir ný-
skeð lýst því yfir, að hann ætli
sér að leggja niður embætti jafn-
skjótt sem friður sé kominn á i
ríkinu. Hann segir, að því ráði
eigi valdafýsn, að hann leggi eigi
niður völd strax, enda sé það eigi
eftirsóknarvert að vera forseti í
Mexico um þessar mundir , held-
ur sé það vegna heilla og hags-
muna landsins áð hann sitji í em-
bætti xxnz friður og ró sé fengin í
landinu.
Skógareldar mjög miklir hafa
geysað í Dauphin héraðinu fyrir
síðustu helgi. C. N. R. félagið
hefir orðið fyrir miklum sköðum
af þeim. Hafa skemst af eldjnum
fjórar jámbrautarbrýr á Dauphin
Prince Albert brautinni, svo að
lestir munu ekki hafa mnnið um
hana í nokkra daga. Símastaurar
hafa og brunnið svo að skeyta-
sendingum hefir eigi orðið komið
við á allstóm svæði.—Síðari frétt-
ir segja eldinn alt af að magnast
og hafi farið yfir hér um bil
200 mílna svæði, og brannið xim
tvær rrriljónir feta ,af tx’jáviði.
Fjöldi manns við að slökkva en
gengur illa.
Regn í Alberta.
Óvenju miklir þurkar hafa ver-
ið þetta vor og óska nú nnrgir
eftir regni. í Alberta hafði kom-
ið mikil rigning í suðurhluta fylk-
isins á laugardaginn var og var
bændum mjög kærkomin. Sáning
var þar alveg lokið og horfur
mjög álitlegar.
luku á hann lofsorði. Séra Björn
hafði fermt hann og verið prestur
hans um mörg ár, en Dr. Uhler
hafði síðar kent honum og ávalt
fundist mikið til um hann.
Séra Carl J. Olson hefir notið
Margt höfum vér heyrt um Jón
Sigurðsson, en aldrei heyrt þess
getið, að hann ihafi ritað í þessi
tímarit, og minna ætti ekki að
vera heimtandi af nokkrum íslenzk-
um ritstjóra en hann vissi einhver
ágætrar mentunar; hann stundaði j deili á þessurn tveim merku tíma
fyrst nám í Minneota, en fór það- j ritum, og iritstjóra Ileinfskringlu
væri ráðlegt að glöggva sig á því,
núna undir aldar, afmæli Jóns Sig-
urðssonar, að hann fj. S.J hefir
Óánægja presta í Portúgal.
Prestar og preláitar í Portúgal
eru mjög óánægðir yfir ráðagerð
stjórnarinnar um aðskilnað ríkis
og kirkju. Telja þeir með slíku
gengið í berhögg við tign og
grundvallarreglur kirkjunnar kaþ-
ólsku. Neita þeir fastlega að
þiggja fjárveitingar þær
boði eru.
sem
Séra Carl J. OIsob.
Guðfræði kandidat Carl J. Ol-
son var prestvigður í St. Páls
kirkju i Minneota, Minn., fyrra
stinnudag, 30. f. m. Forseti
kirkjufélagsins, séra Bjöm B.
Jónsson, vígði hann, og hafði sér
til aðstoðar Dr. J. P. Uhler frá
St. Peter, Minn.
Tvær ræður vom fluttar við þá
afchöfn; aðra flutti séra B. B. Jóns-
son en hina Dr. Uhler. Báðir
töluðu hlýlega um kandídatinn og
an til Gxxstavus Alolphus College;
útskrifaðist úr Academy-deildinni
1904 og úr College-deildinni vorið
1908. En um haustið tók hann að I ekkert í þau tímarit skrifað.
nema guðfræði við lúterska presta 1
skólann i Chicago og lauk þari
prófi í vor.
Hann er ágætlega máli farinn j
og hefir oft hlotið verðlaun í
mælsku samkepni. Honum lætur
jafnvel að tala 4 íslenzku eins og
ensku, og er það aðdáunarvent,
hve vel liann er að sér í íslenzku
og vera þó fæddur og uppalinn
vestan hafs og hafa notið allrar
mentunar á enskum skólum.
Séra Carl J. Olson er fæddur
24. Nóvember 1884 x íslenzku ný-
lendúnni í Lincoln County, Minn.,
og ólst hann þar app lijá foreldr-
um sínum, sem enn eru á lifi, unz
hann fór að stunda nám. Hann er
ágætum hæfileikum gæddur, manna
kurteisastur og ljúfmannlegastur,
fríður sýnum og að öllu hinn
gervilegasti. Hann hefir hver-
vetna áunnið sér hylli manna og
vinsældir. Hahn er áhugasamur
og einlægur trúmaður og er það
von og ósk vina hans, að hann eigi
mikið og fagurt verk fyrir hönd-
um í því göfuga embœtti, er hannj
hefir tekist á hendur.
Memorandnm B. L. B.
/Ex abundantiaj
Ritstjóri Heimskringlu hefir af
mikilli góðvild og víðtækri þekk-
ing, leiðrétt ofurlitla villu, sem
var í Lögbergi hér á dögunum.
Honum var manna bezt til þess
trúandi, blessuðum. Það er sami
maðurinn, sem fræddi lesendur
sina á þvi i haust, að fundinn væri
staður, er Kristur hefði komið til
ásamt lærisveinum sínum árið
350/!!!/. Og það var hann, sem
skömmu síðar birti þau tíðindi í
blaði sínu, að Jón Sigurðsson
hefði skrifað ritgerðir í “Fjölni”
og “Ármann á alþingi.”
Hvaðanœfa.
—Þýzka guftxskipið Deutscli-
iciid lagði af stað frá Hamburg
.1. þ.m. í leiðangur til stxðurheim-
sl autsins.
—Á fjárlögum, sem liggja nú
íyrir sambandsþinginu eru $2,-
coo.ooo til byggingar Hudsons-
flóa brautarinnar.
—Innflu.tning'ur ér, nú sexrt
mestur austan um haf til Canada.
Er svo sagt. að i hverri vikxx stigi
á skip við Bretlandseyjar um
6,000 útflvtjendur, er fari til
Caiiada.
—600 manns á almennum fundi
í Atirora, Ont.. samþyktxx í einu
bljóði fundarályktun með við-
skiftafrumvarpinu. Stuðtnings-
nxaðxxr ályktxxnarinnar var Jas.
Hill. mikilsmetirm conservatívi.
—Fréttir frá Canton segja, að
friður sé aftur kominn á þar 1
eystra.
— Borden leiðtogi conservatíva
lxefir í hyggju að ferðast hér um
vestra i Túní og Júlimánuði næst-
komandi, og ræða áhugamál flokks
síns. Hatin ætlar að tala hér i
Winnipeg 19. Júní.
—Frank Oliver ber upp frum-
varp í sambandsþinginu um að
löggilda skógverndunarsvæði mik-
ið í austurhlíðum Klettafjallanna.
—Tyrkneska ráðaneytið er í
þann veg að segja af sér.
—Oeirðxmum í Marokkó held-
ur áfram. Horfur engxx friðvæn-
legri en áður.
—Þáð er haft eftir Motherwell
ráðgjafa i Regina, að ekrufjöldi,
sem sáð hafi verið i á þessu vori
þar í fylki sé 1,000,000 meiri en íj
var sáð þar i fyrra.
—Erjur halda áfram í Mexico,
og eru uppreisnarmenn ágengir.
í
—Ráðsmenn heimssýningar-
nefndarinnar fyrirhuguðu hér í
Winnipeg ætla nú að fá mjög
bráðlega fullnaðarsvar frá sam-
bandsstjóminni um það hvort hún
ætli að veita nauðsynlega fjár-
upphæð til sýningarinnar eð« ekki-
Mynd þessi er af sjálfum bún-
aðarskólanum, sem reisa á í St.
Vital á þessu sumri. Alls verða
byggingarnar þar • sambandi við
skólann 12 og standa þær á lóð, steinsteypu, mjög vandaðar og svo
sem er sex fermílur og stjómin
hefir keypt handa skólanum. —
Byggingarnar eiga að verða úr
til ætlast, að þær verði fullgerðar
í Októbermánaðarlok næstkom-
andi og kosti $1,500,000.
Ur bænum
og grendinni.
Iðnaðarsýning Manitobafylkis
fer fram hér í borginni dagana
12. til 22. Júlí. Verður mjög fjöl-
breytt og tilkomumikil.
Guð'fræði kandídat Haraldur
Sigmar kom hingað til bæjarins
sunnan frá Chicago á miðviku-
dagsmorguninn. Hann dvelur hér
fram yfir lielgina. Ráðgert er að
hann taki vígslu um kirkjuþings
leytið.
Northern Cnwn bankinn hér í
bæ hefir komist i viðskiftasam-
band við íslandsbanka. og getur
nú sent peninga ávísanir beint til
íslands, borganlegar livar sem er
á landinu. ísleiulingar geta snúið
sér til bankans hér í Lögbergs
kyggingunni. Þar er töluð ís-
lenzka.
8. þ.m. vom gefin saman í
hjónaband Snæbjörn P. Thor-
steinsson (frá Stony Hill, Man.J
og Annie Manshreck fhér úr bæ).
Dr.Jón Bjarnason gaf þau saman.
Laugardaginn 6. þ.m. andaðist
Sigríður Hólmfríður Finnboga-
son. 16 ára gömul, dóttir Jóns
Finnbogasonar og konu hans að
601 Agnes St. Hún andaðist úr
afleiðingum af taugaveiki. Séra
Jón Bjarnason jarðsöng hana 8.
þessa mánaðar.
í siðastliðnum Aprílmán. fædd-
ust i Winnipeg 365 böm, 200
pi'tar og 165 stúlkur. í þextn
mánuði önduðust 75 karlar og 56
konur. Hjónavigslur voru 186.
Hér í bænum mintust prestar
þess á prédíkunarstólum á sunnu-
daginn var, að 300 ár era liðin
siðan biblian, sú sem kend er við
Jakob konung I., var gefin út. í
minningu þess var haldinn mjög
fjölmennur fundtxr i Walker leik-
húsinu.
Samkvæmi verður haldið í
Tj a ldbúða rki rkj u máhudagskvöld-
ið 15. þ.m. til þess að gefa söfn-
úðinum tækifæri að kveðja riéra
Friðrik J. Bergmann áður en hann
leggtxr upp í hina tyrxrhuguðu fs-
landsferð sina. Byrjar kl. 8.
Miss Anna Johnson ("668 Mc-
Dermot) kom til bæjarins fyrir
helgina norðan úr Nýja íslandi.
Hún hefir haft þar á hendi bama
kenslu í skóla, sem Bjarmi heitir.
Hún fer norður á morgun.
Mr. og Mrs. Finnur Jónsson,
668 McDermot ave., ætla í kynn-
isför til íslands í þessum mánuði,
°g legg’ja af stað 17. þ.m. að
morgni. Með þeim fer Ragnar
sonur þeirra. Þau búast við að
verða um 4 mánuði að heiman.
Séra Fr. J. Bergmann ætlar að
bregða sér til íslands bráðlega.
Söfnuður hans hefir ákveðið að
halda honum skilnaðarsamsæti í
Tjaldbúðinni 15. þ.m. að kveldi.
Vestur til Banff fór og á laug-
ardaginn Friðrik O, Vopni, sér
til heilsubótar. Og vestur að
Kyrrahafi fór einnig sama dag
Stefán F. Stefánsson ihéðan úr bæ
og ætlar hann að dvelja þar vestra
fram yfir jól næstkomandi.
Hita tíð og þurka hefir gengið
undanfarið, en á þriðjudagskvöld
rigndi hér í lylkinu, og kom það
í ^óðar þarf, því að horfur vom
orðnar nokkuð ískyggilegar vegna
þurkanna. En nú fleygir öllum
gróðri fram
“Og stráin lifna, grænkar grein
og grasið vex á akur-rein,
en fuglar kvaka og kveða um tún
við kjarr og lyng og skógar-
brún.”
Séra Carl J. Olson kom hingað
til bæjarins fyrir helgina og pré-
dikaði í Fyrstxx lút. kirkju við
siðdegisguðsþjónustu á sunnudag-
inn. Héðan fór hann vestur til
Wynyard á þriðjudagsmorguninn,
og býst við að messa þar næst-
komandi sunnudag. Hann dvelur
þar vestra fram undir kirkjuþing.
Bræðurnir Baldur og Vilhjálmur
Olson fóru héðan úr bænum síð-
astliðinn laugardag áleiðis til
Banff, baðstaðarins í Klettafjöll-
um. Vilhjálmur fer þangað sér til
heilsubótar, en Baldur bróðir hans
fór honum til fylgdar og aðstoðar
á leiðinni.
Ekki vantar nú meir en svo sem
$40.00 upp i fjárhæð þá, sem
ájkveðið var áð safna til minnis-
varða Jóns Sigurðssonar. Þ'eir,
sem ætla sér að gefa, gera það nú
vonandi i þessari viku eða , hinni
næstu, svo að nefndin geti af-
lxent féð hið bráðasta.
TTr. Bjöm Walterson kom vest-
an frá Argyle síðastliðinn fimtu-
dag oig dvelur hér eitthvað. Hann
sagði alt tíðindalitið að vestan,
nema hveitisáning var lokið er
hann fór, og gekk hún greiðlega.
Gxxðm. Pálsson, sem dvalið hef-
ir um hríð að 699 Elgin ave., fór
norður til Narrow núna í vikunni.
Lögtergi hefir borist blaðið
Wasbington Posten, sem er eitt-
hvert elzta blað sem gefið er út á
danska tungu á Kyrrahafsströnd-
inni. Blaðið flytur mynd af séra
Jónasi A. Sigurðssyni lykur á
hann miklu lofsorði og getur þess
að hann hafi verið beðinn að
flytja aðalræðuna á þjóðminning-
ardegi Norðmanna í Seattle, og
enn fremur að hann verði svo sem
sjálfsagður ræðumaður á hátíð
þeirri er Islendingar ætli að halda
í \ ancouver i næsta mánuði á ald-
arafnxæli Jóns Sigurðssonar for-
seta.
Veiðimanna tímaritið Rod and
Gun er gefið út í Woodstock, Ont.
af W. J. Taylor, Ltd. Publishers,
og flytur ágætaf ritgerðir um
allskonar veiðiskap í Canada; það
er skreytt fallegum myndum og
þyrfti hver veiðimaður áö eiga
það. Maí-heftið er nýkomið og
bæði fjölbreytt ogskemtilegt. Heft-
ið kostar 15 cent.
Nemendur S. K. Hall söng-
kennara við Imperial Academy of
Music, halda “recital” 18. Maí í
Y. W. C. A. Hall á Ellice Ave.
Þar verður hin bezta skemtun og
sjálfsagt fjölmenni mikið.
Lóðir eru að hækka ákaft t
verði vestur með Portage avenue.
Á annari síðu þessa blaðs er miki/
auglýsing um lóðir í IVest Home,
sem eru ein ekra að stærð hver
um sig. Allar upplýsingar gefur
K. K. Albert, 708 McArthur Bldg.
Finnið hann a|S máli.
J