Lögberg - 24.08.1911, Side 1
24. ARGANGUR
WINNIPEG, MAMTOBA, PIMTUDAGINN 24. ÁGÚST 1911
NÚMER 34
FUNDUR
í íslenzka liberal klúbbnum
verður haldinn á fimtudags-
kvöld kl. 8 e. h. í sunnudaga-
skólasal Tjaldbúðarsafnaðar.
Allir, sem eru hlyntir stefnu
frjálslynda flokksins, eruboðnir
og velkomnir.
Stjórnmálafundir í
Vatnabygðunum.
Mr. Thos. H. Johnson, M. P. P.,
ætlar a'5 ferðast um bygðir Islend-
inga milli Grunna- og Mani-
tobavatna, og flytja tölur
á þessum stöðum;
Mánud. Sept. 4., Vestfold, 8.30 e.m.
Þriðjud. “ 5. Lundar, 2.30 e.m.
Þriðjud. “ 5. Pineview, 8.30 e.m.
Miðvikud. “ 6. Siglunes, 2.30 e.m.
Miðvikud. “ 6. Narrows, 8:30 e.m.
Fimtud. “ 7. Ashern, 8.30 e.m.
Fundinum á Siglunesi stýrir J.
H. Johnson.
Mr. Thos. H. Johnson kemur til
borgarinnar aftur á föstudag.
Það er óþarfi fyrir oss að mæla
fram með hr. Johnson sem ræðu-
manni. Hann hefir leitt hesta
sína saman við hina mestu ræðu-
kappa þessa fylkis, bæði utan þings
og innan, og aldrei borið lægra
hlut frá borði.
Flann eT hverjum manni orðfær-
ari í kappræðu, og því orðheppn-
ari, sem hann á við meiri mótstöðu
að etja. Löndum vorum í Vatna-
bygðinni gefst nú kostur á að heyra'
vorn frægasta og færasta stjórn-
málamann ræða þau mál, sem kjós
endtir varða mest í þessum kosn-
ingum, og setja sig vonandi ekki
úr færi að fjölmenna á fundi hans.
Horfur í Mexico.
Fylgi Maderós fer Jwerrandi.
Það þykir öldungis fullvíst að
fylgi Maderos fari mjög þverrandi
i Mexico, og flokkur hans muni
klofna um Jcosningarnar, því að
nokkur hluti flokksins fylgir að
málum Dr. Fransisco Gomez, er
fyrrum var hinn ötulasti liðsmað-
ur Madero’s, en hefir nú í síðari
tíð snúist móti honum.
Ennfremur hafa sumir af hers-
höfðingjum Madero’s snúist gegn
honum, þar á meðal Orozco, og
við það hefir herafli stjórnarinnar
og rýrnað. Fylgjendur Diazar
gamla eru og að færast í aukana og
hafa þeir hvað eftir annaði sent
skeyti til Diazar austur til Sviss,
þvi að hann dvelur þar nú, og skor-
að á hann að koma aftur vestur um
haf og taka við forustu flokks síns
i Msxico; Diaz hefir vjtanlega ekki
sint því neinu, en fylgismenn hans
eru liarðir á því að fá hann vestur.
Stjórnin í Mexico hefir nýskeð
tekið lán afarmikið, $10,000,000,
hjá auðfélagi nokkru í New York
með háum vöxtum, svo það hefir
orðið eitt óánægju efnið.
Hæsti himinbrjótur Bretlands.
Hæsti himinbrjótur Bretlands er
stórhýsi eitt afarmikið og reisu-
legt sem nýskeð var fullgert í
Liverpool á Bretlandi. Það er 17
lyft og klætt alt að utan með gran-
ít-plötum, svo að það er hið veg-
legasta á að sjá. Hitunarpípurnar
eru samtals fimtiu milur og raf-
magns-þræðirnir 25 m’ílna langir.
Tum er á byggingunni og í honum
stundaklukka. Skífan á henni er
25 fet að þvertnáli, en minútu vis-
iritin 14 feta langur og 3. feta br.
Klukka þessi er knúin rafurmagni.
—I fréttum frá Saskatoon er
þess getið, að skemdir af hagli hafi
orðið á ýmsum stöðum vestan til í
fylkintt; við Macklin og Salvador
braut haglið glugga.
Rósturnar á Haiti.
Uppreisnarmenn ná yfirtökum.
Uppreisnarmenn hafa náð yfir-
tökum i Haiti, náðu þeir höfuð-
borginni á sitt vald nýskeð og
skipuðu Leconte, foringja sinn.
forseta. Leconte þessi var rekinn
i útlegð þegar Simon komst til
valda. Fór hann þá til Jamaicaog
þar setti hann ráð til þess að bola
keppinaut sinn frá. I Janúarmán-
uði síðastl. hóf Leconte uppreisn,
sem þó varð að engu. Aftur byrj-
aði hann á nýjan leik í Maí og
gekk þá betur. Hann er á fertugs
aldri, kynblendingur, og hefir
lengst af fengist við lögmannsstörf
Tveir aðrir keppinautar eru og um
forseta-embættið við næstu kosn-
ingar. Annar er Antettör Firman
herforingi, en hinn Fouchard gen-
eral. Er hann nú á hraðri ferð til
Haiti. Hann kvað hafa mikið
fylgi í sunnanverðu lýðveldinu.því
að þar var hann^liðsforingi i upp-
reisninni 1908. Leconte er sjúkur
um þessar mundir og er það ætlun
ýmsra, að innanlands-styrjöldin
muni hefjast aftur innan skamms.
Simon, sonur Símons forseta, er
frá ríki var rekinn, er nýkominn til
New York. Hafði hann meðferðis
$60.000 í gulli, er hann hafði haft
brott með sér i skyndi og falið í
ferðatösku sinni. Er liann á leið til
Parísar. Hann kvað orsökin til
síðustu innanlands-óeirðanna hafa
verið óánægju almennings út af
j árnbrautamálastefnu stj órnarinnar
og hlunnindum sem ýmsum járn-
brautafélögum úr Bandaríkjum
hefði verið veitt þar í landi.
Spánn og Portúgal.
Órói innanlands.
Framkvæmdir stjórnarinnar i
Portugal með að framfylgja lögun-
ftm um aðskilnað ríkis og kirkju,
sæta afar mikilli mótspyrnu um
þessar mundir, og upphlaup orðið
á ýmsum- stöðum nýskeð af þeim
sökum. Hafa skærur þær staðið
öðru hvoru síðan í byrjun þessa
mánaðar og mest kveðið að þessu í
Lissabon. Hafa matvæli stígið af-
armikið í verði, meðal annar.«x við-
smjör, sem er ein aðalfæðutegund
fátæka fólksins, og er nýju stjórn-
inni miskunnarlaust kelnt um þetta,
Hafa stórir hópar fólks þyrpst til
stjórnarbygginganna og ámælt
stjórninni þunglega og heinitað, að
fært verði niður verð á matvælum
tafarlaust. Konungsinnar eru að
sækja i sig veðrið, og kváðu hafa
gert ráðstafanir til að taka $5,000,-
000 lán i Braziliu, og ætla að' kaupa
fyrir það fé herskip, vopn og verj-
ur, og hefir sannast, að foringjar í
hemum eru með i þessum ráða-
gerðum.
Á Spáni eru innanlands óeyrðir
ekki siður en á Portugal. Þar
liafa skipverjar á skipi einu í Cad-
ix nýlega gert upphlaup, og um
sama leyti hófust óeirðir af hálfu
lýðveldismanna í Barcelona og
víðsvegar með ströndum fram á
Spáni. Stjórnin brá skjótt við og
sendi herskip til uppreisnar bæj-
anna, fékk bælt óeirðirnar nið-
ur i bili, en fullyrt er, að lýðveldis-
sinnum aukist fylgi með degi
hverjum.
Fundur
um viðskif tasamningana
verður haldinn í
Walker leikhúsi
mánudaginn 28- Agúst
Opnað kl. 7.30 s. degis
Orchestra kl. 8 „
Fundurinn byrjar kl. 8.13
Ræðumenn:
J. H. Ashdown,
Hon. Walter Scott,
8tjórnarform. Saskatchewanfylkis
R. L. Richardson
Kvenfólki .vinsamlega boðið að vera
viðstatt.
í loftfari til norður-
skauts.
Nýr leiðangur.
Eins og menn rauna, lagði Hein-
rick prinz af Prússlandi á stað í
leiðangur i fyrrasumar norður til
Spitzbergen ásamt Zeppelin greifa
og Hergesell prófessor frá Strass-
burg, i því skyni, að kynna sér hve
mikil likindi væru til þess, að kom
ist yrði á loftfari til norðurskauts-
ins. Þjóðverjar virðast eigi falln-
ir frá ]>eirri skoðun enn að auðið
muni að! komast til skautsins á
loftskipi; má marka það meðal
annars á því. að á þessu ári hefir
Hergesell prófessor einnig boðið
út leiðangur til veðurfræðilegra at-
hugana. ' í þeim leiðangri eru 2
menn, aðstoðarmaður Hergesells
prófessors, Rempp, og Dr. Wagner
Báðir eru þeir frá Strassburg. —
Fyrir rúmri viku komu þeir til
Kristjaniu i Noregi og eru nú ný-
komnir til Spitzbergen. Vísinda-
menn þessir eru báðir mjög vel út-
búnir i leiðangurinn. og æfla því
að hafa vetursetú á Spitzbergen eða
jafnvel lengur. Mælt er áð Rempp
hafi haft með sér um 400 loftbelgi
er brúka skal til veðurfræðilégra
athuganir. Mótóra, sleða og mót-
orbáta höfðu þeir félagar og með
sér. Dr. Wagner ætlar að fást vi'ð
segulmagns-fræðilegar athuganir,
og hefir með sér til þess ýms tæki,
svo sem jarðskjálftamæla og fleira.
Ahöld sin hafa þeir félagar flest
frá Þýzkalandi, en sum fengu þeir
frá Kristjaníu.
Grundvall?.rlög Arizona
og New Mexico.
Neitun Tafts.
Arizona og Mexico verða að
biða fyrst um sinn eftir því, að
verða tekin í tölu Bandarikjanna,
af þvi að Taft forseti hefir lagt
fram neitun sína gegn því. Út á
stjórnarskrá New Mexico er ekk-
ert að setja, en í stjórnarskrá Ari-
zona eru þau ákvæði,. að vikja
megi úr embættum öllum þeim
mönnum. sem alþýðan kýs,, og
dómurum eins, þó kjörtímabilið sé
ekki útrunnið, ef þeir á einhvern
hátt hafa mist traust og álit al-
mennings. Þessu er Taft forseti
mótfallinn einkum því, að- þetta
skuli ná til dómaranna; hann held-
ur því fram, að slikt hljóti að
varpa skugga á virðing dómar-
anna. Dómarar eiga ekki að vera
þjónar meiri hluta segir hann,
heldur eiga þeir að vera þjónar al-
þýðunnar og laganna, settir til að
vernda þann, sem fyrir órétti verð-
ur, hvort sem hann er í meiri eða
minni hluta. Að vísu sé dóiúarinn
kosinn af meiri hluta, en það ráði
engu um þann skilning sem lagður
sé í lögin, er sé fyrir ofan og utan
alla flokka. Dómari, sem er öðr-
um háður, hann er háski réttarfari
hvers lands, segir Taft, og öháður
getur hann ekki verið þegar hann
veit, að einn óvinsæll dómur, sem
hann kveður upp, getur orðið til
til að svifta hann embætti.
Jafnaðarmenn í Belgíu.
Jiafnaðarmenn í Belgiu sækja
þaö fast um þessar mundir, að fá
rýmkað um kosningarrétt þar í
landi. Söfnuðust saman í þvi
skyni um 200,000 manna í Brussel
nýlega. Heimtaði mannfjöldi sá
almennan kosningarrétt af stjórn-
inni og það, að hún léti lögleiða
skólaskyldu. Allur þessi mikli
flokkur fólks hét þvi með upprétt-
um höndum, að halda fast við
kröfur þessar og gefast ekki upp
í baráttunni fyrir þeim fyr en þeim
hefði fengist framgengt.
Rússar herbúast.
Rússneska ráðaneytið hefir gert
samning um að láta smíða þrjú stór
orustuskip í Svartahafsflotann.
Orustuskip þessi eiga að vera með
nýtizkusniði og á allan háft vel út-
búin. Ennfremur hefir stjórnin
boðið út smíði á sex neðansjávar-
bátum og níu tundurbátum.
Verkfallinu á Bretlandi
lokið.
Nefnd skipuð til að íhuga
ágreiningsmálin.
Eins og búist var við. gerðu
járnbrautaþjónar viðsvegar um
Bretland verkfall í fyrri viku og
mælt að nær 300,000 manna hafi
tekið þátt i þvi. Voru um hríð hin-
ar mestu viðsjár með mönnum og
upphlaup í ýmsum stórborganna,
en þó er nú loks því nær kominn
fullur friður á alstaðar og verk-
fallinu af létt; er það mest að
þakka viturlegtim afskiftum Lloyd
George ráðgjafa. Varð það aö
samningum að skipuð skyldi fimm
manna nefnd til að í’þuga verka-
mannalögin frá 1907, sem talin eru
aðalorsök þessarar miklu óánægju,
sem verið hefir i verkamönnum á
Bretlandi í siðari tíð. \ nefnd
þessari skulu vera tveir fulltrúar
verkfallsmanna, og tveir af hálfu
vinnuveitenda, en einn óvilhallur.
Nefnd þessi var skipuð á þriöju-
daginn vár, og eru verkfallsmenn
vel ánægðir yfir nefndarskipuninni
og telja sig hafa unnið allmikið
á í þessu verkfalli, sérstaklega
vegna ]æss. að þeir hafi nú fylli-
lega fengið viðurkent félag s.itt. og
nokkra kauphækkun. Það sáu
vinnuveitendur sér ekki annað fært
en að bjóða, því að verkfall þetta
var svo viðtækt og vel undirbúið.
að samgöngur mundu að líkindum
hafa tepst um endilamgt Bretland
um nokkurn tima, ef þessi l>oð
liefði eigi verið boðin.
Ferðalag Tafts.
Taft forseti ætlar í ferðalög
mikil vestur um riki að þreifa fyr-
ir sér við kjósendur sina. Þetta
ferðalag hans kvað verða nærri því
eins langt eins og förin. ser hann
fór 1909, þegkr hann ferðaðist
13,000 tnílur og kom við í 33 ríkj-
’um. Forsetinn býst við að vera um
sex vikna tíma í þessu ferðalagi og
lialda um 200 ræður. Flokksmenn
hans gera sér miklar vonir um
þetta ferðalag Tafts. Hann ætlar
að leggja af stað í það frá Bever-
ly 17. Sept. og koma heim aftur 1.
Nóvember.
Mr. Cruise.
Sá sem býður sig fram af hendi
Li'berala í Dauphin kjördæmi er
einn hinna efnilegu bænda er nú
bjóða sig til þings viðsvegar um
Canada til fylgis við Reciprocity
og Laurier. Mr. Cruise á heima
nálægt Dauphin-bæ. hefir búið þar
búi sinu milli tíu og tuttugu ár,
er langfremsti 'bóndinn í sínum
bygðum, forsprakki í félagsmálum
þar, vinsæll, vel metinn og cinkar
vel til foringja fallinn. Hann
liefur efnast vel fyrir sjálfs sin
dugnað og forsjálni. Hann er á
bezta aldri; álitlegur maður cg
býður af sér góðan þokka. Þar
eiga bændur völ á góðum mál-
svara úr sínum eigin flokk, þar-
sem Mr. Cruise er. Það er held-
11 r enginn efi á að ]>eir taka hann
fram yfir Glen Campbell, sem allir
vita. að gerir ekkert og getur ekk-
ert gert fyrir kjördæmið.
Upp.hlaupum heldur áfram hér
og hvar á Englandi, 'þó að verk-
fallinu sé lokið a'ð mestu leyti.
Seinast í gær (þriðjud.J varð
mikið uppþot i Monmouthshire og
víðar, og helzb veizt að Gyðingum.
Lýðurinn braut búðir þeirra og
rændi. svo að senda varð herlið til
að haldá honum i skefjum. Marg-
ir særðust í þeirri viðureign og
fjöldi var handtekinn og settur i
dýflizur. — Gyðingum er fundið
til foráttu, að þeir hafi lagt undir
sig vissar tegundir varnings og
okri á þeim, svo sem matvælum,
húsbúnaði og fatnaði, svo og að
þeir okri á húsaleigu og beiti
hörku við fátæklinga, ef þeir ekki
standa i skilum. Mörg hundruð
Gyðinga hafa flúið til London og
annara staða þar sem örugga vemd
var að fá.
—Fíus páfi er mjög sjúkur um
þessar mundir. Þó hlýddi hann
messu á sunnudaginn var, en rúm-
fastur er hann og var honum lesin
messan i svefnstofu hans.
Frá Gimli.
Eins og blaðið Free Press gat
um fyrir skömmu, kom upp stór-
kostleg sjóðþurð hjá féhirði sveit-
arinnar, Gisla Magnússyni á Gimli;
sú sjóðþurð hvað nema að minnsta
kosti $3,400, Megn gremja er
hér í mönnum út af þessu,
sem ekki er að undra, ekki
aðeins við hann sjálfan, heldur og
við fylkisstjórnina, er látið hefir
þetta athæfi drasla svona, ]>ótt
henni væri löngu kunnugt af
skýrslu fylkis-yfirskoðunarmanns,
að starfsemi þessa þjóns sveitar-
innar var hin lélegasta, og megn
óánægja með hann meðal sveitar-
búa. En engum eru menn. ef til
vill. eins gramir og Geo. H. Brad-
bury. Hatin kemst að raun um
það við kosningarnar í haust,
En annað þykir mönnum hér
einnig athugavert. og það er,
hvaða hæfileikum þeir menn þurfa
að verá gæddir, er fylkisstjórnin
álítur hæfasta til að skipa em-
bætti, því hún gerði Gísla þennaft
að lögregludómara fyrir nokkru.
Ekki geta það verið vitsmunir eða
þekking, er hún heimtar, því tvis-
var í viku hefir maðurinn sjálfur
gefið út skýrslu er gerir nákvæma
grein fyrir þeim hæfileikum hans,
og hún er ljós og óyggandi á sinn
hátt. Hann nefnir skýrslu þá
“Gimlung.” Hún sýnir ljóslega
andlega sjóðþurS, skýrslan sú,
andlegt þrotabú. Hvað er það
þá sem fylkisstjórnin hér heimtar?
Hver ókjör sveitin kann að bíða
af þessu, vita menn ekki enn. Ef
til vill lx>rgar ábyrgðarfélag
sveitarféhirði “brúsann,” en ekki
mun það hafa gert það til þessa.
Skólarnir sýta og gráta : enginn t'ær
skuld sina greidda úr sveitarsjóði;
vegir ófærir, ef til, rosa bregður,
svo póststarfsemi getur orðið nokk-
uð torveld, ef ekki óvinnandi verk,
og fl. og fl.
Eg sé ekki betur. en að það sé
full skylda blaðanna, að veita at-
hygli og ræða slik mál og þetta,
hér er ekki um einstaklingsmál,
eður einka-mál að ræða, heldur
um meðferð á fé og málum al-
mennings hér: Sveitarfc og s?u'it-
armálum, sem eru í voða stödd.
Og “conservatíve” blöðunum
stendur meiri háski af þögn sinni
í þessu máli, en þau hafa hugsað.
Tilgangur þagnarinnar, hlut-
drægni og óhreinleiki—er svo auð-
sær. En vera má, að málið verði
"hart undir tönnina” fyrir Mr.
Bradbury einhverstaðar í haust.
Vildu blöðin gera sér það þmak,
að komast eftir hinu sanna í þessu
máli, þá mundu þait komast að
raun um, að hér er engu orði hall-
að frá sannleikanum. en margt
ósagt. sem einnig er satt, og stefnir
i sömu átt.
Kjósandi á Ginili.
Hvaðanæfa.
—Óeirðir hafa nýlega gerst í
Atigola í nýlendum Portúgals-
manna i Yestur-Afríkur. Ha,fa
svertingjar þar gei't Evrópumönn-
utn þungar búsifjar.
—Langvarandi þurkar hafa ver-
ið á Indlandi og hefir leitt til upp-
skeru brests.
—Ákafir jarðskjálftar konnt í
sunnanverðu Pórtúgal i fyrri viku.
Kvað mest að þeim við Lagos. Þar
gekk flóðalda á land og gerði mik-
inn skaða.
—Kóleran geysar i Triest og
fleiri l>æjum við Adriahaf.
—Franz Jósef Austurríkiskeis-
er nú orðinn fjörgamall. Hann
varð 81 árs 19. þ. m.
—í nýafstöðnu manntali, sem
tekið var í Bandaríkjum Suður-
Afriku. reyndist fólksfj.öldi þar 6
miljónir. Þar af eru hvitir menn
rúm ein miljón.
—Ráðaneytisskifti hafa orðið í
Tapan. Katsura barún fer frá en
við tekur í hans stað Saienji ntar-
greifi.
—Á þriðjudaginn var þingi
Bandarikjamanna slitið. Hafði
það þá setið nærfelt þrjá mánuði.
Þetta var aukaþitig, eins og menn
vita, og aðalstarf þess að gera út
um viðskiftafrumvarpið, sem það
samþykti með triiklum þorra at-
kvæða.
—Þess hefir verið farið á leit
við Roosetælt ofursta, að gefa kost
á sér til forseta við næstu forseta-
kosningar, en liann færist undan
þvl og kveðst muni styðja Taft,
sem sjálfsagt þykir að verði í kjöri
af hálfu republicana.
F réttabréf.
Siglunes P. O., 18. Ágúst ’u.
Herra ritstjóri!
Tiðin hefir mátt heita góð það
sem af er þessum mánuði. Þó
hafa komið smá skúrar sem tafiö
hafa fyrir heyskapnimi. Ekki
samt meir en ]>að að nýting hefir
orðið allgóð á heyjum. Annars
ekkert að frétta af bygðarhögum
hér. Verzlun Armstrongs við Siglu
nés höfn er nú byjuð. Við hana
eru miklar vörubirgðir, og ýmis-
legt með betra verði en hér hefir
verið venja. Enn eru ekki keyptar
þar neinar bændavörur, því til þess
vantar húsrúm. Hvort verzlunin
verður bygðarmönnum til hagsmuna
er ekki gott um að segja svona í
byrjun. En kostur er það, að æ-
tíð séu nægar birgðir i sveitinni,
ekki sízt á vetrum þegar færð er
ill. Vinsæld verzlunarinnar verður
undir því komin, hve vel hún
græðir úr vandræðum bænda hér, að
koma í sæmilegt verð afurðum sin-
um, án þess að þurfa að fará með
þær 50 til 100 milur til þess að fá
viðunandi verð fyrir þær.
Snemma í þessum mánuði varð
bráðkvaddur í Narrows-bygð Jón
Jónsson (alment kallaður Ekru-
JónJ. Hann var sonur Jóns Eyj-
ólfssonar er lengi bjó á Ekru t
Hjaltastaðaþinghá i N.-Múlasýslu.
Jón var ókvæntur maðtir og var nú
heimilismaður Gtsla Jónssonar
(iyrv. veitingam. á Eskifirði). Jón
hafði farið að hyggja að kindum,
og fanst örendur hálfa mílu frá
bænum. Hann hafði um mörg ár
verið heilsutæpur, og voru gjörðir
á honum fyrir vist tveir holdskurð-
Nefndarstofur Liberala
AÐAL NEFNDARSTOFA
Phone Main - - 2545
Phone “ - - 2546
Phone “ - 2547
Phone “ - - 2548
Phone “ - - 2549
I SUÐUR WINNIPEG
Farmer Building, 22 Osborne
Street
Phone Fort Rouge 2132
Cor. Pembina and Scotland
Phone “ “ 2133
í VESTUR WINNIPEG
Sherbrooke Street
Phone Garry - - 3384
Phone “ - - 3385
1499 Logan Avenue —
Phone Garry - - 4672
. I MIÐ WINNIPEG
320 Notre Dame Avenue Lib-
eral Club Building
Phone Garry - 3382
Phone “ - 3383
í NORÐUR WINNIPEG
958 Main Street
Phone Main - - 3730
Phone “ - - 3731
Queen’s Hall, Selkirk Ave.—
Phone Main - - 3392
nipeg. Síðasta tímann sem hann
var á lifi, var hann ekkert vesælli
frentur venju. Jón var vinnumað-
ur með afbrigðum, áður en heils-
an bilaði, geðgóður og glaðlyndur
ntaður, og vildi öllum greiöa gjöra.
-J. J-
Þingmannsefni í Vestur-Canada 1911.
tHANITOBA
Kjördæmi Liberal Cotiservative
Brandon A. E. Hill J. A. M. Aikins
Lisgar J. F. Greenway W. H. Sharpe
Dauphin R. Cruise Glen Campbell
Macdonald J. S. Wood (Ind.) W. D. Staples
Marquette G. A. Grierson W. J. Roche
Portage la Prairie R. Patterson A. E. Meighen
Provencher Dr. J. P. Molloy T. A. F. Bleau
Selkirk A. R. Bredin G. H. Bradbury
Souris A. M. Campbell Dr. Schaffner
Winnipeg J. H. AsKdown A. Haggart, K.C. R. A. Rigg, Socialisti
SASKATCHEWAN
Assiniboia J. G. Turriff C. C. Smith
Battleford M. J. Howell
Humboldt Dr. Neely W, H. Hearne
Mackenzie Dr. E. L. Cash Livingston
Moose Jaw W. E. Knowles S. K. Rathwell
Prince Albert W. W. Rutan Jas. McKay
Qu’Appelle L. Thompson R. S. Lake
Regina W. M. Martin Dr. Cowan
Saltcoats Thos. McNutt J. Nixon
Saskatoon G. E. McCraney ALBERTA D. McLean
Calgary J. G. Van Wart R. B. Bennett
Edmonton Hon. F. Oliver W. A. GriesbacK A. Rutherford, Ind.
Macleod D. Warnock Jobn Herron
Medicine Hat W. A. Buchanan C. A. Magrath
Red Deer A. A. McGilIivray
Strathcona J. M. Douglas G. B. Campbell
Victoria F. A. Morrison
BRITISH COLUMBIA
Comox-Atlin H. Glements
Kootenay Dr. J. H. King A. S. Goodeve
Nanaimo Ralph Smith
New Westminster, John Oliver
Vancouver City J. K. Senkler
Victoria City W. Templeman G. H. Barnado E. T. Kin’gsley, Socialisti
Y ale-Cariboo K. C. McDonald YUKON Martin Burrell
Yukon F. T. Congdon