Lögberg - 21.12.1911, Blaðsíða 1
24. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN, 21. DESEMBER 1911
NUMER 51
Ar var alda
árbók manna
rituð gullnum rúnum
ljóss frá lífheimi,
er langra nátta
styttu rökkurstundir.
Gáfu oss guðir
geislum þrungna
sól, er dimmu dreifði.
Það var hin helga
hátíð miðsvetrar:
stjarna stjörnum fegri.
Friðar fagnstöfum
fyllir jörðu
heilög hátíð jóla.
/E mun hún óðul
yndisdrauma
óskert hjartans eiga.
Synir sólheima,
synir mannheima
tryggumböndum tengjast
Gjalla ginn-helgir
gleðihljómar
veröld alla yfir.
Vy%
Björt og blessandi
barna hátíð
fyll vor hús og hjörtu.
Heill og hamingja
himinfögur
gef oss gleðileg jólin!
Ár var alda
er alþjóð kaus
sól í sorta stað.
Og á ljóss leiðar
leitar mannkyn
hærra öld frá öldu.
Þ. Þ, Þ,
GLEDILEG JÓL!