Lögberg - 18.01.1912, Page 5

Lögberg - 18.01.1912, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. JANUAR 1912. 5-- Ein orsökin Margar sögur eru á loft komn- ar um ráðleysi og dugleysi Roblins og hans félaga í stjórn talsímanna. Hitt hefir og heyrst, að meira hafi verið greitt fyrir símakerfið, en hæfilegt var, ef ekki visvitandi þá í óviti. Eitt dæmi um meðferð stjórnarinnar á almenningsfé í þessu efni, sagði Mr. Thos. H. Johnsori M. P. P. á leiðarþingi sínu í Vestur Winnipeg 8. þ. m. á þessa leið: P>ærinn Melita hafði 45 mílum telefóna yfir að ráða, mest til bænda í bygðunum í kriug, helzt í Arthur kjördæmi. Fóna-kerfi þetta var langt frá því að bera sig og bærinn var aíram um að koma því á stjórnina, þegar hún lagði út í fónakaupin, og setti 20,000 doll. upp á það. En þetta vildi stjórnin ekki borga. Hún virti fóna þessa á tæpa 98 dollara míluna, eða rúm- an fjórða part af þvi, sem bærinn setti up. Þá komu fylkiskosningarnar 1910, og var þá liberal þingmaður fyrir Arthur. Kjördæmið Arthur vildi stjórn- in ná i. Og þá varð það að samningum við Arthur, að stjórnin borgaði 20 þús. dollara af peningum Manito- ba fylkis fyrir telefóna, sem ekki voru meira virði en 5,000 doll., eftir hennar eigin mati. Þess þarf varla að geta, að lib- eralar töpuðu kosningum i Arthur. Nú fór stjórnin að athuga bet- ur, hvað hún hafði keypt, og kom það þá upp úr kafinu, að 44 mílur af þessu fóna-kerfi þurfti að b\rggja algerlega upp að nýju. Þá voru eftir 10 milur, er stjórnin hafði gefið 20 þús. dollara fyrir, eða 2 þús. doll. fyri r mílu hverja, er hún hafði áður virt á 97 doll. og 95 cent! “Það má vera,” bætti Mr. John- son við, “að þetta dæmi og önnur þvi um lík skýri það, hvers vegna stjórnarfónar Manitoba eru að verða ómagi og ólþolandi hyrði á almenningi, í stað þess að gefa inntektir og góðan arð.” Dæmdur glæpamaður. Sá atburður er alræmdur orð- inn, er gerðist í Boston fyrir ekki löngu, að prestur nokkur, ungur og efnilegur og fríður sýn- um varð sekur um morð. Hann var trúlofaður ungri og myndar- legri stúlku suður í landi, þar sem hann var fyrst prestur, en varð eftir það prestur hjá ríkra manna söfnuði í Boston og trúlofaðist þar á ný stórrikri yngismey. Hin fyrri kærasta kom þangað að ganga á skóla, og virðist hann hafa komist í bobba út af því. Tók hann þá það óráð, að hann gaf gömlu kærustunni glas með inn- tökumeðali, er ihann hafði komið eitri i, og varð það hennar bani. Hann var tekinn fastur í húsi tengdaföður sins tilvonandi, þang- að sem hann hafði flúið og fálið sig, settur í fangelsi og dæmdur til dauða. Tengdafaðir hans, sem verða átti, eyddi 25 þús. dollurum til að verja hann, en svo lauk, að hann játaði glæp sinn og verður aflífaður með rafmagni, eftir ein- rórna kröfu almennings. Til Canada hefir komið fleira fólk árið sem leið heldur en nokkurn tíma fyr- irfarandi. Höfðatalan var 292 þús. á níu mánuðum, frá 1. April til nýárs, sem er 16 per cent meira en árið fyrir. Af þeim komu ip7 þús. frá Bandaríkjum, en 187 þús. beina leið á hafnir í Canada. Alt árið i fyrra (ign) komu alls og alls til Canada 350 þús. inn- flytjendur, þar af 144 þús. frá Bretlandi, 75 þús. frá ýmsum löndum i Evrópu og 131 þús. frá Bandaríkjum. Höndlaður var í Winnipeg þessa dagana mað- ur frá New York, Ross að nafni, er þar hafði ásamt öðrum komizt yfir verðmæt skjöl er voru 87 þúsund dollara virði. Velkendur bankamaður í New York, aldraður og auðugur, bar skjölin dyra á milli i haust. Tveir menn komu að honum og ráku sig á hann, svo að hann datt, og hrökk þá skjala- böggullinn úr hendi hans. Þeir báðu hann afsökunar, hjálpuðu honum á fætur og réttu honum töggulinn; fór hann leiðar sinnar, lét böggulinn í skáp hjá sér og gáði ekki í hann fyr en þrem dög- um síðar, að hann fékk bréf um það, að hann skyldi fá tiltekin skjöl aftur, ef hann borgaði 5,000 dollara. Þá var opnaður böggull- inn og voru í honum gömul dag- blöð og ekkert annað. Þóttist þá binn gamli bankari vita með hverju móti það hefði orðið. Mennirnir, sem feldu hann, sátu fyrir honum, höfðu með sér böggul nákvæmlega líkan þeim, sem hann ihélt á, og skiftu um böggla, þegar hann misti sinn. Náðust þrír sökudólgar í New Yor*k, þar á meðal alkunnur lcgmaður, svo og einn af skrifstofu þjónum bankarans, er i vitorði var. Höfuðpauri þessa samsæris flýði til Winnipeg með þriðjung hins stolna fjár, og komst i greip- ar lögreglunnar eftir skamma dvöl, með allan auðinn. Hann er hinn hressasti í fangelsinu og segir alt af liétta, tjáir nafnkenda fésýslu menn, hafa verið í vitorði með sér og nefnir þá með nafni. Hann er vel að sér og hefir verið við blaða- mensku riðinn víða um Ameriku. Hann var sóttur í vikunni af hátt- settum lögreglumanni frá New York, er sagði hann vera einn þann slyngasta og hættulegasta glæpamann er nú væri í Ameríku. Hvaðanæfa. —Maður meiddist á sunnudag- inn i C.P.R. yards, rússneskur að uppruna, varð fyrir vagni, muld- ist fótur hans og fleiri áverka fékk hann. Nýársdagur Rússa var á sunnudaginn, og ætlaði hann að vera heima og halda hátíðina með konu sinni og fjiórum börnum ungum, en fékk boð að koma til verka og fór hann nauðugur, kvaðst mundu koma til miðdegis- verðar, er var undirbúinn með beztu föngum, sem það fátæka heimili hafði ráð á. Konan beið hans 1 fjóra tíma, og fékk þá boð að hann hefði meiðst og fóturinn hef öi verið tekinn af honum á spit- ala, og’ er hún kom þangað, var hann skilinn við. Heimilið er ná- lega allslaust eftir. —Snjór hrapaði úr fjalli nálægt Field. B. C., urðu margir menn fyrir og fórust þar. —Eldur kviknaði í brautarstöð j C. N. R. í Dauphin í vikubyrjun og brunnu tveir-þriðju hlutar húss | ins nreð allmiklum farangri og póstsendinga pokum. Bréfapokar náðust og farseðlar flestir, svo og | peningar, skjöl og bækur. Húsið ] var gamalt og verður annað bygt J með vorinu miklu stærra og glæsi- J !egra. —Arið 1910 voru fluttar út frá Neregi niðursoðnar matvörur fyr- ir 14 miljónir króna. Rúmlega helmingur af þeim vörum seldist ti.l Bandaríkja, en þriðji partur til « ■ h'tt til Ástralíu, Can- ada, Þýzkalands og yfir höfuð til flestra landa heimsins. —Maður flýði hingað cr Boyce lieitir, sunnan úr Texas, með konu auðugs bankamanns. sem heitir vSneed. Sá hélt á eftir þeim með heilan her spæjara, fékk þau hand- tekin með tilstyrk Bandarikja- stjórnar, tók konuna með sér suð- ur og sótti eftir að fá Boyce fram- seldan af Canadastjórn. Því var neitað fyrir dómstóli í Texas, að færa sakir á hann þær er valda mætti framsals kröfu, en því stóð mest í móti faðir Boyce þessa, sjö-' tugur maður stórauðugur. Þann morgun sem dómur féll, gekk Sneed að honum og skaut öldung- inn til bana, lét siðan taka sig höndum og situr í fangelsi, með því að hann ugði um líf sitt, ef J hann gengi frjáls gegn veði. — J Boyce yngri hvarf úr greipum | þeirra, sem geymdu hann hér i Winnipeg, með góðu leyfi þeirra | sjálfsagt, og vissu fáir um tima J hvar hann var niður kominn; en a mánudaginn var kom hann til Winnipeg aftur frá Regina og er nú hér í Winnipeg sem frjáls S maður og var skilað aftur fé því; er hann hafði lagt fram að veði. —Tuttugu og sjö manns drukn- uðu um miðjan dag á sunnudaginn niður um is á ánni Ems á Þýzka- landi. Áin ruddi sig skyndilega, en mörg hundruð manns rendu sér á skautum eftir isnum hjá bænum Emden er við ána stendur og bjargaðist margt nauðlega. 27 lik eru fundin, en fleiri vantar. Alt var þetta fólk á bezta aldri. —Stúlka hvarf úr Chicago ný- lega, kornung og forrík, og vissi enginn um stund hvar hún var niður komin. í fyrra dag fann spæjari hana í New York og hafði hún fengið sér þá atvinnu, að stunda veika konu. Hún tjáðist hafa strokið með vikasveini á hó- teli, og neitaði að hverfa heim aftur. Ekki greinir frá því, hvort hún var gift pilti sinum eða ekki. —Kuldakast það hið langa, er nú hefir gengið yfir Vesturlandið, er eitt hið strangasta, er menn vita af í seinni tið. Á fimtudag, þann 11., komst frostið niður í 41 stig. Svo segja blöð, að slíkur kuldi hafi ekki komið síðan 11. Janúar 1909. —Eitt 'hundrað og niu fiski- menn I hrakti út á Hafið hvíta á mánudaginn. Þeir veid^u á isi og losnaði spöng sú er þeir voru á, frá höfuðísnum, og dreif til hafs með mönnunum á. Þeir eru allir taldir af. —Stolið var enn frá C.N.R. ex- press félaginu, í þetta sinn hér í Winnipeg, og ekki nema 10,000 dollurum. Sendimaður félagsins, George Powers að nafni, fanst dauðadrukkinn eftir tveggja sól- arhringa útivi^t, og hafði þá að eins 300 dali eftir af hinni áður- nefndu upphæð, er hann hafði ver- ið sendur með i banka. Hann kvað kunningja sinn hafa boðið sér drykk, og sett í það svefnlyf, hafi hann vaknað við vondan draum, er peningasumman var horfin, og tekið til að svæfa sam- vizkuna þangað til lögreglan fann hann sein áður segir. Ymsum get- um er leitt um þetta; lögreglan geymir Powers og hefir hvern mann er hún getur tjaldað til á veiðum eftir þjófunum. Sumir ætla þá leynast í Wmnipeg, en aðrir geta sér til, að þeir séu allir á brott, en þýfið sé hér geymt, unz leitin sé afstaðin og muni þeir þá vitja þess, er þeir ætla sér ó- hætt. —81,700 doll. borgaði strætis- vagnafélagið bæjarsjóði í skatt fyrir árið sem leið, og er það meira en félagið jhefir bíorgað nokkru sinni fyr. Tekjur félags- ins þetta ár voru af strætisvögnun- um 1 mfljón 634 þúsund dollarar. 40 miljónir og 281 þúsund manns hefir félagið flutt á vögnum sin- um þetta ár, og er það meira en í nokkurri annari borg í Canada, að tiltölu við fólksfjölda. Flest fólk notar vagnana í Júlí. en fæst í Febrúar. —Rúmar níu mílur fyrir norðan Swift Current, Sask., var maðurá ferð á laugardaginn, og sá svarta þúst tilsýndar í snjónum. Hann aðgætti þetta betur, og sá að þetta var lík af kvenmanni, og skildi að hún hafði orðið úti. Lögreglunni var sagt til, var likið sótt og kom- ist fyrir hver hún var. Mrs. Car- dineau hét konan, og hafði brotist til kaupstaðar með ferðamanni. Hún hafði lokið sér af með kaup- in kl. 4 síðdegis og lagt af stað heimleiðis; þá var 38 stiga frost og bylur með sterkum stormi; kaupmaður lét keyra hana eina mílu áleiðis, lézt hún þá geta geng- ið þær 8 milur, sem eftir voru, að sögn. Konan var skilin við mann sinn fyrir allmörgum árum. hafði haft kaffisölu í Regina og gengið vel, og fengið síðan sérstakt leyfi til að taka heimilisréttarland og lukkast prýðilega. Börnum sínum vann hún fvrir, dreng 9 ára, dætr- um tveim 17 og 8 ára og fóstur- dóttur 4 ára að aldri. —Svo segir í nýkomnum stjórn- arskýrslum, að nálægt 203 miljón- n- ekrur séu hæfilegar til jarðrækt- ar í vesturhluta Canada. Þar af eru að eins 141/2 miljón undir rækt eða voru í árslok 1910. Mældar hafa verið i sléttufylkjunum til þessa að eins 145 miljónir ekra. Þó að margt flytji hingað af fólkinu. þá er nóg rúm handa þvi enn. Það má vissulega svo að orði kveða, að landið sé að eins að byrja að byggjast. —Tveir menn vopnaðir stöðv- uðu strætisvagn í Vancouver kl. 11 á laugardagskvöldið, skipuðu vagnstjóra að láta af hendi skild- ingaskrínið, og skutu hann niður, þegar hann neitaði. Eftir það létu þeir greipar sópa um fjársjóðu farþega og kúguðu út af þeim 2,000 dollara í peningum og gull- stássi, stukku siðan í bifreið, er stolið hafði verið fyr um kveldið frá einum borgara bæjarins, og liurfu út í myrkrið. Vagninn fanst um mcrguninn en þjófarnir ekki, og eru ófundnir enn. Vagnstjór- inn kemst til heilsu. Skýrsla yfir starf North Star smérgerðar- félagsins fyrir árið 1911. Kostnaður við starfrækslu:— Rjómaflutningur...........$996.74 Tilbúningur á sméri . . .. 639.95 Kassar og umbúðir . . .. 435.97 Sýra og litur.............. 30.00 ís.........................144-35 Salt.......................119.92 Eldiviður og olia.......... 52-54 Flutningsgjald á sméri . . 93.12 Vinna við' að halda köld- um “freezer”............ 69.80 Eldsábyrgð.................147-95 Rentur af lánum............ 63.25 Eaun ritara og embættis- manna...................189.00 Bækur, ritföng og frímerki 23.32 Vinna við að selja og af- henda smér.............. 23-50 Geymsla á sméri í W.peg 21.92 Rentur af stofnfé (stockj 165.20 Ymislegt................... 54-95 Alls.........$3,271.48 Á árinu var byrjað að búa til smér 1. Maí, og hætt seinasta September. A þeim tíma voru bú- in til 56,734 pund af sméri, sem seldust fyrir... .$14,259.41 Af því borgað til þeirra, er lögðu til rjómann 10,642.91 Borgaður kostnaður við við starfrækslu (sjá hér að ofanj............... 3,271.48 Lagt í varasjóð............. 345-02 Alls..........$14,259.41 Framnes, Man. 12. Jan. 1912. Jón Jónsson jr. Arsfundur Fyrsta lút. safnaðar hófst svo sem til stóð í sunnudagsskólasal kirkj- unnar á þriðjudagskveldið var. Forseti safnaðarins, herra Jón J. Vopni, stýrði fundinum, sem var allvel sóttur. — Fyrst voru lesnar upp skýrslur embættismanna, sem j voru skýrar og skipulegar. Báru | þær með sér, að tekjur safnaðar- ins síðastliðið ár voru $4,757.87, útgjöld $4,657.02; í sjóði á annað hundrað dollara. —Eignir safnað- arins eru virtar á $53,000.00; skuldir eru $13,000.00; skuldlaus- ar eignir $40,000.00. Má því heita, að hagur safnaðarins standi með blóma og fulltrúarnir, sem verið hafa síðastliðið ár, staðið á- gætlega í stöðu sinni í öllum greinum. Skýrsla prestsins, dr. Jóns Bjarnasonar, sýndi, að inn í söfnuðinn gengu síðastliðið ár 28 fullorðnir ('fermdirý og 9 böm — alls 37, auk fermingar ungmenna. Skirð börn 49, fermd ungmenni 29, hjónavígslur 41, altarisgöngur 594, útfarir 30—þar af 23 fermd- ir eða fullorðnir, en sjö böm. — Eftir að skýrslunum hafði verið vei-tt viðtaka var gengið til em- bættigmanna kosninga. Þessir lilutu kosningu; J. J. Vopni (e.k.J, M. Paulson ('e.k.J, J. J. Bildfell (e.kj, Th. E. Thorsteinsson, og Brynjólfur Árnason. —Þegar hér var komið, var orðið svo framorðið að fundi var frest- að til næsta þriðjudagskvelds 23. þ. m. Viljum vér minna safnað- arfólk á að sækja vel þann fund, því að verkefni ársfundarins er ekki hálfbúið enn þá. Bæði er eft- ir kosning djákna og yfirskoðun- armanna og ýms önnur mikilvæg mál, sem safnaðarnefndin óskar að leiða athygli að og heyra álit fólks um á fundinum 23. þ. m. Ur bœnum Lögberg hefir verið beðið að birta þessa fundarfregn frá Gimli: Almennur fundur var haldinn á Gimli 8. Janúar til að ræða um það, hvar heppilegast væri að setja minnisvarða Jóns Sigurðssonar hér vestan hafs. Fundurinn var boðaður af bæjarráði Gimli bæjar og var fjölmennur. Það virtist vera einhuga skoðun fundarmanna að Gimli væri rétti staðurinn fyr- ir minnisvarðann og sameiginleg- ur vilji að koma þeirri skoðun 1 .verklega f ramkvæmd ief auðið væri. í þessu skyni kaus fundur- inn fimtán manna nefnd til að hafa framkvæmdir i málinu. I nefnd þessa voru kosnir: H. P. Tærgesen. Sigtr. E. Jónasson, Gm. Erlendsson, Benedikt Friminns- son, Stefán Eldjárnsson, Guðni Thorsteinsson, J. P. Sólmundsson, Agúst Polson, séra A. E. Kristj- ánsson. séra Carl J. Olson. Jó- hannes Sigurðsson, Bergþ, Þórð- arson, Arni Þórðarson, Júlíus J. Sólmundsson, B. B. Olson. Prentvilla 'ér i himf. snjalla kvæði Mr. M. Markússonar, sem prentað er annarstaðar í þessu blaði. Þar stendur: “Ó morgun- stund skal lyfta lund”, en ætti að vera: “Á morgunstund” o. s. frv. Nýlátin er Mrs. Petrína Thor- láksson í Grand Forks. Hún dó úr lungnalbólgu, var á fimtugs- aldri, mesta skýrleiks og greindar- kona og hafði almenningshylli. Arsfundur Tjaldbúöarsafnaðar var haldinn á þriðjudagskvöld; fór þar fram kosning embættis- manna og skýrslur og reikningar ársins upplesnir. í safnaðarnefnd kaus fundurinn L. Jörundsson (e. kj, Bárð Sigurðsson Ce.kJ, Björn Björnsson fe.kj, J. Gottská’ksson og P. Thomsen. Nefndin skifti svo verkum með sér, að J. Gott- skálksson varð forseti og L- Jör- undsson féhirðir safnaðarins. Þessum upphæðum hefi eg veitt móttöku til styrktar íslenzkukenslu við Wesley College, síðan síðast var auglýst: H. G. Tohnson Glenboro.. $10.00 Arni Sveinsson, Glenb., .. 15.00 Ami Storm, Glenb.,.........i5-°° Teódór Jóhannsson “ 10.0O Stephen Christie “ 5-°° Christian Johnson, Baldur $25 00 B. Anderson, Baldur . . .. io.oo G. Davíðsson, Baldur .. .. 5.00 Jónas Bjömsson, Baldur 2.oo B. Arason, Husavick.........2.00 J. J. Vopni. féh. Framkvœmdir C. P. R. Varaforseti C. P. R. félagsins, G. Bury, hefir setiö á ráðstefnu i Montreal með Sir Thomas Shaug- nessy og kom það upp úr tali y Sýning úr leiknum “Dear Old Billy” á Walker í þessari viku. L-eikhúsin. þeirra, að félagið ætlar að verja 20 miljónum dollara til fram- kvæmda i ár, vestan stórvatna. Tvenna teina á að leggja alstaðar, þar sem mest er að gera, svo sem milli Regina og Chaplin, Sask., Milli Hammond, B. C. og Van- couver og milli Alyth og Senalto, Alta. Fygffja skal við brautarstöðvar í Vancouver, Calgary. Swift Curr-1 ent, Moose Jaw, Outlook, Regina, Broadview, Brandon og Fort William. í Winnipeg er gert ráð fyrir að byggja nýja stöð til meðferðar á, vörum, syo að vörulestir þurfi ekki að fara um borgina eins og nú er gert. Margar nýjar aukabrautir á að byggja, svo sem frá Swift Current 85 mílur til norðvesturs, svo og frá Medicine Hat til útsuðurs, hve langt er ekki sagt. Ekki er braut- in til Icelandic River nefnd í þetta sinn. Frá þvi á föstudagskveld þann 18. þ. m. þar til laugardagskveldið þann 20 Jan. verður leikurinn “iThe Edgea Tools” s>mdur á Walker af hinum fræga enska leik flokk, sem svo mikið þótti til koma 1 Chicago, Montreal og Toronto. Þeir höfðu leikinn með sér frá Englandi, en þar hafði mikið þótt til hans koma. Flokkurinn er að allra dómi hinn bezti, sem hér hef- ir sézt í langan tíma. Leikurinn er sniðinn upp úr skáldsögu Mer- rivals og ágætlega skemtilegur cg vel saminn. Hann er einn sá snjallasti, sem hér hefir sýndur verið og ættu allir, sem leiki sækja annað borð, að koma og sjá hann. William Howtrey, frægur mað- ur og einn hinn sniðugasti leikari, er ráðinn til Walker næstu viku og byrjar á mánudag þann 22. Mr. Hawtrey leikur í þeim afargaman- Tals. Carry 2520 Fimtudag, Föstudag og Laugardag, Janúar 18., 19. og 20. Heiry Seton tyerriman’s frægi leikur “ With Edged Tools ” Alt fyrirtaks eoskir leikarar. Alla þessu viku Matioees miðv.d. og laugard. Mr. Wm. Hawtrey og hans félag í gamanleiknum .„Dear Old Billy“ Military night, mán. 22. under the auspices of the ióth Cavalry Field Ambulance. Verð kvOldin $1.50 tiI25c Matinee $1 til25c Sætin nú til solu. PORTAGE AVENUE EAST Þrisvar á dag. Alla þessa viku SYDNEY GRANT. BENNINGTON BROS LES-GOUGETS. PHIL. BENNETT BATTLE of TRAFALGAR. Matinoes ..............lOc, IBc, 2Bc. Niehts.............10c, 20c, 25c, 3Sc. sama leik “Dear Old Billy”, með öðrum góðum leikurum. öllum þykir mikiö til Mr. Hawtrey koma hvar sem hann leikur, bæði hér í Canada og annars staðar í Ame- riku. Aður en langt um liður munu þessir leikir verða sýndir á Walk- er; “Seven Days”, sem er skemti- legur leikur, “The Girl in the Taxi”, glæsilegur nútíðarleikur og “Little Miss Fix-It”, sem enska stúlkan Alice Cloyd leikur í.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.