Lögberg - 29.02.1912, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 29. FEBRÚAR 1912.
5-
EF ÞÉR GETIÐ
LEYST
ÚR ÞESSU
Til auglýsingar hljóðfærum vorum ætlum vér að gefa öldungis ókeypis hverjum
sem sendir oss hina réttu ráðningu með smekklegustum frágangi á gátunni „TUTT-
UGU OG SJÖ“. Engin óvissa né áhætta samfara ráðningunni á þessarri gátu. Sá
fær launin sem til þeirra vinnur mest. Píanóið fær sá sem ræður gátuna rétt og gengur
smekklegast frá svarinu, og hin verðlaunin verða veitt eftir því sem svörin hafa verðleika
til. Hver og einn fær verðlaun, sem svarar rétt.
Fyrstu verðlaun:
Fallegt * Upright Piano
$350 virði
Önnur verðlaun
$350 ‘ Upright ‘ Píanó
fyrir $1‘25
Þriðju verðlaun
$350 ‘ Upright ‘ Píanó fyrir
$150
■ ■ 6
• 9
• 12
Fjórðu verðlaun
Fallegt fíólín með öllu tilheyr.
$25 virði
Fimtu verðlaun
Falleg gígja (Guitar)
$20 virði
Og áttatíu og átta verðlaun
að auki fyrir næstu 88 réttar
ráðningar.þær sem bezt er geng-
ið frá.
LEIÐBEININGAR: Takið tölurnar 5 til 13 að báðum meðtöldum og setjið í
reitina þannig, að þegar þær eru lagðar saman upp og niður og frá hægri til vinstri og á
ská, þá komi altaf út talan tuttugu og sjö. Enga tölu má nota tvívegis. Þetta blað má
nota og hvaða pappír eða annað efni sem vera vill,-
Þeir herrar, sem hafa lofað að dæma um svörin er bezta tryggingin fyrir því, að
verðlaunum verði sanngjarnlega og réttvíslega úthlutað.
Ef tveir eru jafnir, og dómendur koma sér ekki saman, þá fær hvor um sig jöfn
verðlaun.
FRESTIÐ E-KKI. SENDIÐ SVÖRIN FLJÖTT, ÞÉR GETIÐ HREPT PlANÖIÐ.
@ Öll svörin verða að vera komin í búð vora, ekki síðar en á fimtudag 7. Marz 1912. ©
Senclið eða færið
ráðningar til
Winnipeg Branch:
W. DOHERTY PIANO & ORGAN CO.
280 HARGRAVE STREET, WINNIPEG, MAN.
átta þeirra eru enn á lífi; hún á
sjötíu bamabörn á lífi og 200
barnabarnabörn, fimtiu og þrjú
barnabarnabarnabörn ög eitt
bamabarnabarnabarnabarn.
—Ótrúlega grimd sýndi maður
nokkur suöur i Pennsylvaniu ný-
lega. Hann var giftur og átti tvö
börn og var búinn aS vera tíu ár í
hjónabandi. Þá kom annar kven-
maöur til sögunnar, og vildi hann
upp úr því losna við konu sína, en
hún vildi ekki fara burt, hversu
sem hann misþyrmdi ihenni. Hann
tók svo upp það ráS, einn morgun-
inn, aS hann tók konuna í rútuinu
og batt hana ramlega; hann hafSi
með sér hamar og nagla, af vissum
lit, og tók til að reka þá inn í
bakið á konunni; ætlaði hann að
hitta á mænuna og ráða hana
þannig af dögum, þóttist vita, að
það kæmist ekki upp, með því a5
enginn mundi taka eftir nöglun-
um. Konan hljóðaði vitanlega,
en þá tróð hann upp í hana. Hon-
um tókst aö reka fjóra nagla og
var þá konan hreyfingarlaus og i
yfirliði; þóttist hann vita að hann
hefði fullgert, og mundi þetta ríða
henni að fullu og hætti við svo
búið. í sama mund fór sonur
hjónanna, lítill pilthnokki, til ná-
granna og sagði þeim frá hvað
gerst hefði. Var þá konan flutt á
spítala og þar liggur hún milli
heims og helju. Niðingurinn náð-
ist og fær vonandi makleg mála-
gjöld. i
—Kínverji nokkúr frá San
Francisco var að reyna flug í EoS
Angeles í fvrra dag- Flugvél hans
bilaði og féll til jarðar úr 150 feta
lofthæð, og varð hann undir henni,
þegar niður kom á lágt verksmiðju
þak í bænum. Vélin mölvaðist í
smátt og hugðu allir að Kínverj-
jnn væri dauður, er hann var dreg-
inn undan brotunum. Hann hafði
raenu og var fluttur á spitala;
læknar vildu svæfa hann, meðan
hann væri skoðaður, en hann af-
tók það. Við skoðunina kom það
i Ijós, að hann var ekkert meidd-
nr nema að neðri skolturinn var
úr liBi, og höfuðleðrið víða skorið
inn í bein.
%
—Auðugur maður er nýlátinn
suður 1 Randarík^iB^ er átti tvær
dætur. Hann lagtnjwo fyrir í
erfðaskrá sinni, að dætur sínar
skyldu hafa sæmilegt lifsuppeldi
af auðnum, a meðan þær lifðu og
væru ögiftar. Undir eins og þær
/æru í hjónaband, skyldu þær
öllu sviftar. Þær eru nú gjaf-
vaxta, fríðar og mestu piltagull í
þeirri borg, þar sem þær hafa al-
izt upp. Ekki segir sagan neitt
tun þaö. hvort piltarnir hafi hætt
að draga sig eftir þeim, þegar
þetta óvænta tiltæki gamla tnanns-
ins komst upp.
Höfðingleg gjöf.
Nýlega hef eg undirrituð veitt
móttöku $100 frá Dr. Jóni Bjarna-
syni. Það er gjöf til gamalmenna-
hælisins, sem kvennfélag Fyrsta
lút. 'safnaðar hefur stofnað;
þessi gjöf er frá manni, sem ekki
vi 11 láta nafns síns getið. og eng-
inn veit hver gefandinn er nema
Dr. Tón •Biarnason og kona hans.
Það væri óskandi, að fleiri vildu1
fara að dæmi hins göfuglynda
manns og leggja i þennan sjóð, þó
ekki væri i eins stórum stíl eins
og hér hefur átt sér stað; þá yrði
þess ekki langt að bíða, að hið
fyrirhugaða gamalmennahæli kom-
isf á fót. Drottinn hlessi ónefnda
gefandann. ;
HANSÍNA OLSON.
Féhirðir sjóðsins.
Tuttugasta Janúar voru þau'
Jóhanu Ámason og Kristrúu Buk-
er gefin saman í hjónaband á
heimili , Kristjáns Casper’s i
Blaine, Wash. Bæði áttu þau
heima í Blaine áður. Hjónavígs-
luna framkvæmdi séra Guttormur
Guttormsson.
Alþýðuvísur.
Herra Magnús E- Magnússon á
Arlington stræti hér í borg ritar
oss á þessa leið:
“Með öðruin fleiri alþýðuvísum
í Lögbergi frá 8. Febr. er þessi
vísa:
Fellur mjöllin feikna stinn,
fegurð völlinn rænir.
Hvlja fjöllin sóma sinn,
silungs höllin skænir.
Er sagt þar að hún 'hafi verið hús-
gangur í Suðurmúlasýslu fyrir 30
árum, og mun það satt vera, að
minsta kosti heyrði eg hana oft
fyrir 20 til 30 árum, hæði í Suður-
og Norður-Múlasýslu. en æfinlega
aðra vísu til, nefnilega þessa:
Fellur snjórinn feikna stór,
fílakórinn þekur,
grenjar sjórinn geysi órór,
gríðar óra vekur.
Og voru þessar visur eignaðar
hjónum, er bjuggu í Mjóanesi í
Skógum í Suður-Múlasýslu um
miðja 19. öld, Þorsteini Mikaels-
syni og konu hans; hjón þessi
voru bæði vel hagmælt og gerðu
það oft að gamni sínu, að yrkja
sína vísuna hvort um sama efni.
Mig minnir að fyrri vísan væri
eignuð Þorsteini, en sú síðari konu
hans. Sonur þessara hjóna var
séra Finnur Þorsteinsson, er lengi
var prestur að Klippstað í Loð-
mundarfirði.”
TTerra Jón Jónsson á Siglunesi,
fyrum alþ.maður, segir svo í bréfi
til vor;
í síðasta Lögbergi var alþýðu-
vísa, er ritstj. segir að hafi verið
í hvers manns munni í Suður-
Múlasýslu fyrir 30 árum. Svo
var og í Norður-Múlasýslu, þar-
sem eg var uppalinn. Visumar eru
tvær, og voru af flestum eignaðar
Hallgrími í Sandfellí og ikonu
hans. Srnna heyrði eg eigna þær
Þorsteini í Mjóanesi og konu hans.
Þau voru foreldrar séra Finns er
prestur var á Klippstað í Loð-
mundarfirði. Vísuniar lærði eg.
þegar eg var unglingur; en ekki
veit'eigi hvorum þeirra Hallgtimi
eða Þorsteini þær etu rétt eignað-
ar. Þær lærði eg svona:
Fýkur snjórinn feikna stór.
fýla kórinn þekur,
grenjar sjórinn geysi órór,
gríðar óra vekur.
Þá kvað konan:
Fýkur mjöllin feiikna stinn,
fegurð völlinn rænir;
hylja fjöllin sóma sinn.
silungs höllu sikænir.
TVær aðrar austfirzkar illviðris-
vísur set eg hér:
Standa þakin björgin blá,
bindúr klalci völlinn,
sandi vaka öldur á,
undir taka fjöllin,
fPáll Olafsson skáld)
Fyllir snjórinn græfur, gjár,
grillir ljórann valla;
hryllir bjórinn kræfur klár,
kvilla jórar falla.
fséra Sigig. Pálsson)
Um eða fyrir miðja síðustu öld
var kveðinn i Húnavatnssýslu
kvaöðaflokkur mikill, er Randaja'ka
visur voru kallaðar. Lögðu þar
vísur til fjöldi skálda og hagyrð-
inga. Orsökin til þessa var sú, að
maður nokkur fór yfir Blöndu í
leysingum. Var maður sá gjarn á
mismæli, og var mikið veður í hon-
um er hann kom til bæja, og var
spurður hvernig hann hefði kom-
ist yfir Blöndu. “Eg fór á randa-
jaka”, svaraði hann. Hann hafði
hlaupið yfir á hrönn er stóð föst í
ánni, og risu jakarnir víða á röð.
Vmsar af vísum þessum heyrði
eg í æsku, og lærði. Mörgum hefi
eg nú gleymt; þessar man eg:
Þó hún Blanda þyki breið.
þundum handarjaka,
millum landa Magnús reið
á mjóum randajaka.
I Þegar Blanda bar á grund
i bæði sand og lclaka,
I hlynur branda Ýmis und
j óð á randajaka.
Mæddi Blanda málmastaf,
millum andartaka,
hann m........hræðslu af
hljóp á randajaka.
Fflaust ‘kunna gamlir Húnvetn- j
ingar eitthvað af vísum þessum.
Þorsteinn hét maður, er uppi
var á Austurlandi í byrjun 19- ald-
ar, og var auknefndur pinkill. —
Hann bölvaði því er póstgöngur
voru byrjaðar, og þótti það óþarfa;
kostnaður. Um það kvað Guð-
mundur Filippusson í Húsey vísu I
þá, er hér fer á eftir. og er hún
merkileg að því leyti, að hún sýnir
hvernig ófróðari hluti aliþýðu leit |
þá á ýmsar framfaratilraunir er
nú þykja sjálfsagðar. Visan er
svona: '
Pinkill grætur póstlaunin,
þó plagi þrælinn leti.
óskar hann að andskotinn
yfirvöldin jeti.
Margar vísur, sumai meinfyndnar
eru til eftir Guðmunn Filippusson.
En flestar eru þær þannig, að ekki
þykir hlýða að prenta þær.
F4vaðanæfci.
—Frakkar halda fund þessa
dagana í Duck Lake, Sask., og
ráða ráðum sínum um viðhald
þjóðernis síns og tungu. Þar hafaj
talað prelátar þeirra og koma ræð- j
ur allar í einn stað niður. að skil-
yrði þjóðernisins sé tungan, ogj
megi hana með engu móti niður
fella. Víða ber á umbrotum með-
al franskra manna hér í landi, að j
rétta hlut máls síns, en einna mest
hjá ráðgjafa póstmála hinum .
nýja; það líður varla svo dagur,
að hann breyti ekki enskum nöfn-
um á pósthixsum og setji frönsk í j
'Staðinn. og má það heita fremur
barnalegur og fáfengilegur fram-
gangsmáti.
—Fangar voru látnir starfa að j
þvi í Prince Albert, Sask., að faka
upp ís handa betrunarhúsinu áf j
| fljóti, sem þar er nærri. Sá sem
j átti að lita eftir afbrotamönnum j
j þessum, datt ofan i eina vökina og
lá við að drukna. Hlupu þá til
tveir fangar og björguðu honum
með mikilli fyrirhöfn og nokkrum
lífsháska, að sagt er. Fangaverði
fanst svo mikið um, að hann hefir
sótt um linun á hegnlnga þessara
lífgjafa eftirlitsmannsins-
—Stærsta skip, sem nú er á
floti heitir Olympic og er eign
WLiite Star félagsins. Það er nú
---^
á leið til Evrópu frá New York, og J •'
vildi það óhapp til, að þaö rakst á [ I
flak eða rðkald, er var hálft í
kafi. Skipið var á fullri ferð og
brotnaði til muna; fregnir um ó-
happið voru þegar sendar þráð-
laust til beggja landa, og voru eig-
endur teknir að gera ráðstafanir
til að bjarga skipinu, en þá kom
önnur* fregn, sem sagði, að skipið
kæmist leiðar sinnar hjálparlaust
til næstu hafnar. Skipið er 45,000
smálestir og fer meira en 21 sjó-
úiílu á klukkustund.
—Eftir sigur þann, er raf-
magnsfélagið hefir unnið í máli
sínu við Winnipegborg, lætur það
í ljós, að það muni þegar táka til
óspiltra málanna við ýms störf.
sem frestað var meðan málið stóð
yfir. Fyrst á að reisa stóreflis
skýjabrjót á horni Albert og Notre
Dame stræta. og verður byrjað á
því verki undir eins. í annan stað
á að færa út brautir og byggja
nýjar víðsvegar um bæinn. og er
sú talin ein, sem leggjast skuli á
suðurbakka Assiniboineár þangað
sem háskólinn mun eig'a að standa
með tímanum.
I
80BINS0N SJS
Innan hús áhöld.
Heilt ,,set“ stórir baukar
(stærð fimrn) fyrir hveiti-
mjöl, sykur, te og kaffi, meö
nöfnum á. Hvítir með gylt-
um bryddingum og lokin
sömuleiðis gylt. Vanal. $2
Nú..................$1.25
Köku stokkar
Allir lagðir hvítri skel ineð
gyltri áletran. Lok á hjör-
um. Niðursett verð
.....50C, 5 5c, 650
MJOLBAUKAR Taka 25.
'50 og 100 pd.
Niðursett verð $ r, $t.5oog
$i.Óo.
ROBINSON ?J-
»* «M r ► b. »
—-««—b>—1 — —
CANA0A3
FINEST
TtlEATRE
Alla þessa viku
Matinee miöv.dag og laugardag
Ameríku mesta Prima-donna
Louise Gunning
i söagleiknum
TheBalkanPrincess
I Original New York Star and Production
Verö $2. $1.50, $1, 75C. 50C og 2$c-
Matinees $1.50, $1. 75C., 50C. og 25C.
Marz 4. 5. 6.
Matinee VVednesday
Rose Melville
in the Pretty Pastoral Plav
„Sís Hopkirís“
A play of purpose. A plot of sense.
A happy blending of fun and earnest.
Verð á kveldin $i, 75C, 50C. 25C
Matinees—50C til 25C.
Marz 7. 8. og 9
Return engagement of
The Original all Star English Company
—Einvígi háðu nafnkendir herr-
ar tveir þessa dagana í París, var
annar leikritahöfundur er samið
hafði leikrit, er rittdómari dæmdi
óvægilega. Hinn fyrri gekk að
dómara þessum, tók um nefið á
honum og sneri upp á, sló hann
svo utan undir . Þann blett vildi
dómari þvo af með blóði höfund-
ar og skoraði hann á hólm. Þeir
börðust með sverðum og siköðuðu
livor annan á handlegg'jum svo að
blóð rann, tóku svo höndum sam-
an og sættust.
LeikFiúsin.
“The Balkan Princess” verður
j leikin á Walker alla þessa viku
með Louise Gunning í stærsta hlut
j vikunni. Hún hefir einhverja þá
! beztu soþrano rödd, sem til er.
Hún syngur háa “E” í alt. eins og
að drekka. Fkki er hitt minna um
vert, hve rödd hennar er mjúk og
ofan á alt þetta er hún bezta leik-
mær, auk þess sem hún er fríð
stúlka og hefir indæla framgöngu,
Með henni eru bezut leikarar, karl
menn og kvenfólk.
“Sis Hopkins” verður byrjað að
leika á Walker á máuurag i næstu
viku og haldið áfram til miðviku-
dagskv. og matinee þann dag. Er
þetta lokaleikur Rose Melville, er
hér hefir getiö sér svo góðan orð-
stír og miklar vinsældir.
“With Edged Tools” verður
sýndur á ný fimtu- föstu og laug-
ardaginn í næstu viku að kveldi af
hinum ensku leikendum, er hér
hafa svo vinsælir orðið. Þeir hafa
leikið í ýmsum borgum vestan-
lands, síðan þeir voru hér síðast.
,With Edged Tools‘
og verið hvarvetna vel tekið.
Á EMPRFSS
sýna sig þeir víðfrægu leikaiar frá
Lundúnum, Karns og hans piltar,
og er það síðasta færi í þrjú ár. að
sjá þá. Fnn fremur Eldon og
Clifton, bræðumir Guy, Tuku og
Kisshe frá Japan, og fleiri.
Betra meðal við hósta er ekki til
heldur en Chamberlains hóstameðal
('Chamberlain’s Cough Remedy), er
vinnur eftir náttúrunnar lögum, létt-
ir á Iungunum, opnar svita holumar.
örvar uppganginn og réttir öll Itf-
færin við. Allir selja það.