Lögberg - 09.05.1912, Blaðsíða 1

Lögberg - 09.05.1912, Blaðsíða 1
Grain Commission Merchants -- 201 GRAIN EXCHANGE BUILDING - Members Winnipeg Grain Exchange, Winnipeg I ISLENZKIR KORNYRKJUMENN Sendið hveiti yðar til Fort William eða Port Arthur, og tilkynnið Alex Johnson £» Co. 201 GRAIN EXCIIANGE, WlNNlPEG. Fyrsta og eina íslenzka kornfélag í Canada. 25. ARGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 9. MAl 1912 ' NtJMER 19 Borden í Bandaríkjum. Æösti stjómandi Canada lands, sem nú er, Mr. Borden, tekur sér öSra hvoru hvild og lætur aðra stjórna okkur fyrir sig. I þeim frium fer hann altént til Banda- ríkja, aö læra pólitík; — sá lær- dómur er tollfri enn þá, — og nú hefir hann komist 'isvo langt aö halda þar ræöu. Hann var einu sinni lögmaður, og gerðu stéttar- bræöur hans 1 Chicago það af kurt eisi við hann að bjóða honum á ftind í félagi þeirra. Yfir þessum lögmönnum í Chicago talaði hann svo um reciprocity, seigt og þung- lamalega, eins og vant er, leitaði alt af að snjallasta orðinu og fann —það næsta! Hann mintist ekki einu orði á tollana eða brezku rik- isheildina, heldur kvað hann kjós- endur í Canada hafa neitað reci- procity vegna þess, að þeir hefðu sókst eftir henni hjá Bandaríkjun- um í mörg ár og ekki fengið og þegar Bandaríkin loksins létu til- leiðast þá hefði Canada sagt “nei takk” til að sýna hvað mikið þjóð- in fyndi til sín, og «etti hver sann- gjarn maður að kannast við að það væri rétt gert! Hver einasti bóndi í Sléttufylkj- unum borgar helmingi meir fyrir hvert verkfæri sem hann kaupir til jarðyrkju nú, heldur en hann mundi gert hafa, ef reciprocity hefði komist á. Nú þarf hvert bushel af hveiti, sem selt ef til útflutnings úr Sléttu fylkjunum að flytjast í vögnum alt að 2,000 mílum. Ef reciprocity hefði komist á, hefðu bændur get- að selt það fyrir sunnan línuna og fengið liœrra verð fyrir. Vagnar voru ekki nógu margir til að flytja burt hveitið allan þennan óra veg. Þvi varð margur fátækur frum- býlingur að lifa við skorinn skamt er hann gat ekki selt vöru sína og því lenti margur efnahtill kaup- maður í kröggur, er hann varð að umlíða og lána sinum við- skiftamönnum. Right Hon. R. L. Borden ætti að finna þessa pilta og flytja fyrir þeim annað eins orða tildur eins og hann las yfir lögmönnunum i Chicago. Þeir mundu kunna að segja honum hvað sanngjarnt væri. Sprengivél grandar skipi, Tyrkneskt skip rak sig á tund- urvél úti fyrir Smyrna höfn og gjörbrotnaði og fórust þar á annað hundrað manns. Þetta var póst- skip og farþega er gekk milli Con- stantinopel og Smyma, hét Texas og er sagt, að Ameríkumenn eigi hlut í því. — Þegar Italir herjuðu á litlu Asiu í vetur, lögðu Tyrkir tundurvélar fyrir höfnina við Smyrna, sem er ein stærsta og bezta höfn við Miðjarðarhaf, til að verja flota Itala inngöngu. Það er ætlun manna, að skipiö hafi rekist á eina slíka sprengivél. Dámf voveiglega. Óvenjlega fáir hafa farist vov- veiflega í Winnipeg þennan síð- asta mánuð, og miklu færri en umliðna mánuði. Tveir menn hafa fyrirfarið sér, annar drekt sér, hinn hengt sig; i varð undir strætisvagni, i fór í vinnuvél og i var myrtur. Um 4 mánuðina næst á undan fórust hér voveiflega samtals 30 manns. Forseta kjörið. Undirbúningi undir forsetakosn- ing í Bandaríkjum heldur áfram með miklu kappi og veltur á ýmsu. Svo er að sjá, sem Taft hafi yfir- tökin yfir Roosevelt í þeim rikj- um, sem mest er um vert, og er svo sagt, að “ofurstinn” þurfi ná- lega hvert atkvæði sem eftir er ó- greitt, til þess að koma til greina á kjörmanna þingi. Hvar sem kjörmenn eru kosnir beint af al- þýðu, hefir hann meira fylgi en Taft, en annars staðar hefir Taft yfirburðina, meö því aö þeir veita honum örugt fylgi, sem í embætt- um og opinberum stöðum eru. — Af forsetaefnum demókrata hefir Champ Clark enn þá sem komið er mest fylgi. Mabee dómari latinn. Látinn er þar sá maður, er Can- ada mátti sizt missa eins og nú stendur á. Hann var formaður þeirrar nefndar, sem hafði úr- skurð allra kærumála á hendur járnbrautum, og leysti það starf af hendi með frábærum skörungs- skap og óhlutdrægni. Allir báru traust til hans og hlíttu hans úr- skurðum, því að þeir voru jafnan á hinum beztu rökum bygöir. Hann vísaði á bug lagakrókum og gekk rakleitt að kjarna þess efnis, sem um var deilt og gaf því þann úrskurð, sem öllum kom jafnan saman um að væri óhlutdrægur og ágæta vel grundaður. Hann var afbragðsgóður lagamaður, kunni ágætt skyn á stjórn stórra fram- kvæmda og einkum haföi hann til að bera vit til at5 sjá hvað rétt var og öruggan vilja til þ€ss að láta það ganga fram. Jámbraut- armála nefndin er sú stofnun, sem allir báru traust til; það var sá dómstóll, er almenningur átti mik- ið undir og vissi að hvorki var háður stjórnarvöldum né auðfélög- um meðan Mabee dómari stjórn- aði gerðum hans. Þar var at- hvarf almennings i Canada til þess að koma lögum yfir hin voldugu járnbrautarfélög og dómarinn brást aldrei þeirra trausti, sem sóttu þar rétt mál. Vöflum og vifilengjum visaði hann á bug; að gera rétt var það eina, sem hann sóktist eftir. Því er það, að allir góðir Can- ada menn harma dauða hans. Nú ræöur fyrir landi sú stjórn, sem auðfélögin fylgja að málum; það er og öllum ljóst, að stjórnin á þeim mikið upp að unna; þess vegna var það svo þýðingarmikið, að hafa óháðan mann sem stjórn- anda þessarar nefndar. Það er vonandi að stjórnin reyni að fylla sæti hans eftir því sem landinu hentar bezt, en ekki flokknum eða neinni einstakri stétt. Rannsókn á ný. Byrjuð er í Lundúnum ransókn út af Titanic slysinu og hafa hátt settir embættismenn skipsins verið fyrir réttinum. Þeir bera það, sem almenningi er þegar kunnugt orðið, að skipið fór með feikna hraða í íshrönninni og hægði ekk- ert á sér, þó allir vissu að is væri nærri. Enn fremur, aö skipverj- um hafði engin tilvísun verið gerð um hversu með báta skyldi fara, ef á þyrfti að halda, og að bátar skipsins voru reglulegir mann- drápsbollar, ef nokkuð hefði verið að sjó. Vistalausir og áttavita- lausir voru bátarnir og um flest kemur það fram, að viðurbúnaður við slysum var ótrúlega lítill. Einn bátur reri fiinm mílur að skipsljósi í myrkrinu, en náði ekki í það skip. Þegar þeir sem gættu leiðar í siglutoppi sögöu til, að hætta væri beint fram undan, þá var reynt að snúa skipinu, en það tók fulla hálfa mínútu að vikja bákn- inu við. Enn þá er verið að leita líka á sjónum þar sem slysið varð. Er það dómur flestra,. að margur muni hafa verið á lífi urn morg- uninn, þegar bátunum var bjarg- að, af þeim sem í sjóinn fóru, og veita ámæli þeim, sem a vettvang kom, að leita ekki vandlegar. — Tvö skipabákn hefir félagið “White Star” í smíðum öllu stærri en Titanic, en Olympic, það skip, sem var jafnstórt Titanic, liggur á höfn með þvi að skipsmenn neit- uðu að vinna á því, nema björg- unarbátar væru hafðir fleiri og stærri en venja var. Eru nú keypt- ir fjöldamargir bátar frá Kaup- mannahöfn meö sérstöku lagi, er þar var upp fundið, og verða þeir brúkaðir á þessum stóru skipum framvegis. « Flóð enn. Fyrirhleðsla brast í ánni Miss- issippi Við ármót i þessari viku; það var í dal nokkrum í Louisiana ríkinu; flæddi áin yfir dalinn,, en fólk flýði meö það sem þaö gat með sér^flutt. Vagnar voru geynad- ir á hliðarteinum, ef til flóös skyldi koma, og voru þeir fyltir meö gripum og húsmunum og bjargað- Til Sveinbjarnar prófessors Sveinbjörnssonar. Eftir séra Jótias A. Sigurðsson. 1. Vér orktuni kvæði og kváðum ríniur, og kunnum sögur um frægð og glímur. og tónuðum stundum tvísöngsbrag. Á rúmstokknum lengi reri þjóðin og raulaði sér fyrir' munni ljóðin, en enginn söng né samdi lag. 2. Vér lærðum forna frœði og listir, í fróðleik allan jafnan þyrstir, en hver með nefi sínu söng. Og annarhvor maðr orkti bara, en allt af vantaði forsöngvara, þó sízt væri’ í landi sálma þröng. 3. Nú loks á fólk vort forsöngvara og frægast tónskáld á norðrhjara. sem túlkar vors hjarta tungumál. „Ó, guð vors lands“ ei gleymir þjóðin; það glatast fyrr Islands beztu ljóðin. — „Ó, guð vors lands“ elskar íslenzk sál. 4. Og höfundinn elska allir landar, frá yzta gnúp og til firrstu strandar, hlessa hann líkt og móðir mög. 1 kotungsbœ sem í konungshöllum kær ertu, Sveinbjörn! mönnum öllum, kær fyrir ástsemd, list og lög. 5. Hærra en íslands hvössu vindar, hærra en landsins bröttu tindar,, hærra en skálda háfleyg ljóð tala munt þú í tónsins öldum, túlka hið bezta’ í auði földum, blessa og gleðja þína þjóð. 6. Ó, guð vors lands, er list þér kenndi og lögin þín á hjörtun brenndi og gaf oss þig og þessa stund: sá guð mun fækka fölskum nótum, en fylla hjörtun kærleikshótum og gefa’ oss oeöra gleöifund; Mr. Kr. Jónsson frá Selkirk var staddur hér í bænum á mið- vikudaginn'. Hann leit inn á Lög- bergi og hafði yfir nokkrar al- þýðuvisur, sem koma í næsta blaði. Fyrra miðvikudagskveld gerðu kvenfélagskonur Fyrsta lút. safn- aðar Mrs. Hansinu Olson óvænta heimsókn til að kveðja hana áður en hún fór heim til íslands. *For- seti kvenfélagsins frú Lára Bjarna- son áyarpaði Mrs. Olson nokkrum velvöldum orðum, óskaöi henni góðrar ferðar og heillrar aftur- komu og afhenti henni síðan mjög fagra gjöf frá kvenfélags- konum. Það var gullmeni og fylgdi brjóstnál, sett demöntum. Mrs. Carolína Dalmann flutti kvæði og Mrs. F. Jónsson talaði mjög skemtilega út af heimferð sinni síðastliðið sumar. Skemtu konurnar sér síðan við viðræðúr og ágætar veitingar langt fram eftir kveldi. Mr. og Mrs. Sigfús Pálsson voru í hópi þeirra er héðan fóru heim til íslands á þriðjudagsmorguninn var. A föstudagskveld buðu þau Mr. og Mrs. Jóh. Gottskálksson Pálson’s hjónunum heim, og á laugardagskveldið komu heim til siðarnefndu . hjónanna milli 30 og 40 manns að kveðja þau áður en þau legðu af stað í langferðina. Kvaðst fólk það ætla aö fá að standa þar af sér skúr; hafði þaö1 meðferðis körfur og pinkla í um- búðufn; en er Mr. Pálsson inti eftir hvað það skyldi, þá var hon- um sagt að það væri farangur hans. Það reyndist þó vera veizlu- kostur. Séra F. J. Bergrnann afhenti Mrs. Pálsson brjóstnál úr gulli, en Mr. Pálsson ferðatösku vandaða. Kr. Á. Benediktsson flutti kvæði. Svo virðist, sem nýtt líf sé aö færast í bandalagið. Síöasti fund- ur var ágætlega vel sóttur. Þ.á kappræddu þeir séra Rúnólfur Marteinsson og Jón J. Bildfell, og mæltist báðtum ágætlega vel. Höfðu menn yfirleitt gagn og á- nægju af umræðunum. Næsti fundur núna á fimtudaginn (i kveldj ætti einnig að veröa vel sóttur. Þar flytur dr. B. J. Brandson erindi. Lögberg þorir að ábyrgjast. þó að það geti ekki aö svo stöddu auglýst um hvaöa efni doktorinn talar, að þaö borg- ar sig fyrir fólk að fjölmenna. Dr. Brandson hefir flutt hér mörg al- þýðleg og stórum uppbyggileg er- indi, og þaö er alt af einhver veig- ur í því sem hann segir. — Enn fremur veröur á þessum fundi söngur og hljóðfærasláttur til skemtana. Mrs. Paul Dalmann syngur, Miss Theodora Olafsson leikur á piano, Miss O. Oliver syngur og Fred Dalmann leikur á Cello. Á eftir veröa veitingar. Allir boðnir og velkomnir, hvort sem þeir eru í bandalaginu eöa ekki. Til Jóns Einarssonar. Til að þjóna eigin önd æpa flón og hrína; enn þá Jón á letra lönd leggur prjóna sína. Hreykinn ber á hverjar dyr, hvar sem fer og syngur; “þversum” er hann eins og fyr, andans smértitlingur. Kæfum andans ófreskjur, alt sem grandar huga, svo að strandi þreytt og þur þessi randafluga. Bragi. —Frumvarpið um heimastjórn Irlands er nú á ferðinni gegn um brezka þingið. Mr. John Redmond foringi íranna, lætur hið bezta yf- ir því. Unionistar hamast á móti því, og er litil von til að lávarða- deildin samþykki þaö fyrst um —Stjórnin á enn fult i fangi með uppreisnarmenn í Mexico; þar hafa oröið bardagar allmann- skæðir, og veitti stjómarhemum betur um stund, en þó er enn van- séð hvorir sigrast muni. Banda- nkjastjórn hefir vígbúinn her á landamærunum. -'Sam.” ist alt þaö góss. Mannskaði varð enginn, en eignatjón margar milj- ónir dala. Flóðin em svo mikil þar suður frá, að sumstaöar stend- ur ekkert upp úr vatninu nema hæstu hólar og er þaö viða, aö fólk hefir bjargast þangað og bíöur hjálpar ,nauðulega statt, og hafa viða orðið miklar skemdir og manntjón nálega á hverjum degi. Úr bænum Herra K. S- Eyford frá Gimli kom hingað til bæjar fyrir helgina. Hann ætlar að setjast að hér í bænum í Norwood fyrst um sinn. Herra Björn Walterson er ný- lega kominn hingað til bæjar vest- an frá Argyle. Sáning gengur í seinna lagi. Áfellið, sem kom, tafði fyrir hér um bil eina viku. Stöku menn höfðu þó lokið sán- ing þegar Björn fór að vestan. Munið eftir bazar Tjaldbúðar- safnaðar 14. og 15. þ. m. Hann er auglýstur á öðram stað hér í blaðinu. Margir bæir í Vestur Canada hafa byrjað smátt, en vaxið meö ótrúlegum hraöa. Hafa mjög margir menn grætt mikið á því, að kaupa lóöir í þeim, áöur en þær hækkuðu í verði. Einn slikur staö- ur er Weyburn, sem þeir Albert bræður auglýsa í blaði voru. Les- endur vorir ætttu aö athuga þá auglýsing. Mr. og Mrs. J. G. Gunnarsson frá Framnes P.O., hafa orðið fyr- ir þeirri þungbæru raun að missa son sinn, Inga, tíu ára^ gamlan. Móðir hans hafði komið með hann ■ hingað til bæjar til að leita honum ] lækninga viö slæmum hálssjúk- dómi. Sérfróöur og ágætur lækn- | ir hér í borginni tók aö sér aö gera uppskurð við sjúkdúminum. j Var farið með drenginn á spítal- ann á mánudaginn var og hann | svæfpur þar en tókst ekki aö vekja hann aftur. Allir vinir og kunn- ingjar foreldranna samhryggjast *æim sakir þessa sviplega fráfalls litla drengsins þeirra. Nýr skipskaði á Islandi. Fiskiskipið „Svanur'* brotnar. 14 menn vanta. Vélarbátur með 6 menn ferst. Nýjar og hörmulegar fréttir ber- ast enn um manntjón við Islands strendur. I ofsaveðri, sem kom um miðjan Aprílm. hafði fiski- skipið Svanur, eign H. P. Duus verzlunar rekist á franskt skip ná- lægt Vestmannaeyjum og laskast afar mikið. Franska skútan er komin til Reykjavikur með 12 menn, sem hún bjargaði af Svan- inum, en til 14 manna, sem eftir urðu á honum, 'hefir ekki spurst. Þeir voru þessir; Jóhann Hjörleifsson, Bræðra- oorgarstig, Olafur Jónsson frá Gigjarhóli í Biskupstungum, Vigfús Magnússon aí Akranesi, Sigm. Helgason af Akranesi, Sveinn Davíðsson af Akranesi, Magnús Magnússon af Akran., Bjarni Guðmundsson af Akran. Teitur Gíslason af Akranesi, Magnús Olafsson af Akranesi, Jón Pálsson úr Keflavík, Eiríkur Jónsson, Brekkustíg 3, Reykjavík, á konu og böm, Hallgrímur Eyjólfsson, Bakkar- holti, ölfusi, Jón Páll Jónsson úr Keflavík. Eiríkur Ingvarsson, Ananaust- um, Reykjavík, nýkominn hingað til bæjarins austan af Skeiðum, einkastoð gamalla foreldra þar eystra. Talið er alveg vist, aö þeir hafi allir draknað. Sömu óveðursnótt hafði vélar- bátur með sex mönnum farist við Vestmannaeyjar. Formaöur Berg- steinn Bergsteinsson. Ekki ættu þessar nýju | mann- skaðafréttir að draga úr samskot- nnum meöal Vestur-Islendinga.. Von kvað vera á átta innflytj- endum frá Islandi á morgun ( föstudagj. Afar vætusamt hefir verið hér undanfarna daga og fremur kalt 1 veðri. Yfirlit yfir þingstörfin. fNiðurl.J I fvrri hluta ritgerðar þeirrar, sem hér verður haldið áfram, var síðast skýrt frá ýmsum atriðum i ræðu, sem T. C. Norris, foringi liberala í fylkisþinginu, hafði ný- lega haldið á fjölmennum fundi hér í bænum. Nú verður sagt frá siðari hluta þeirrar ræðu og fvrst verður þá talaö um Bein löggjöf. Herra Norris sagöi að bein lög- gjöf væri eitthvert langmikilvæg- asta atriði í stefnuskrá liberala, og kvaðst geta fullvissað fylkisbúa um, að það yrði gert aö lögum, undir eins og frjálslyndi flokkur- inn kæmist ti! valda. Þingmaður- inn sagði, að hlutverk minni hluta á þingi ætti að vera pað að gagn- rýna. Meðal annars hefði minni hlutinn fundið að þeim óþarfa kostnaði, sem leiddi af skrásetn- ingu á hverju ári; til þess væri varið $25,000 árlega. ±\ undan síðustu fylkiskosningum hefði ver- ið búið að verja $100,000 til þess- ara árlegu yfirskoðana kjör- skránna, en þó hefðu kjörskrárn- ar aldrei verið jafn-ófullkomnar, ósanngjarnar og óheiðarlegar eins og 1910. Veöskuld Manitoba væri $15,000,000, og af því fé væri $10,500,000 sökt í tvennskyns þjóð nytjar, sem tapaðist á til jafnaöar á ári $250,000. Þegar þessi stjórn hefði komist til valda í Manitoba, þá hefðu veðskuldimar ekki verið nema $2,500,000, og eitt herópið þeirra conservativu i þann tíma hefði verið það, aö fjárhagur fylk- isins*væri í svo aumlegu ástandi, að ekki veitti af hygnustu “busi- ness”-mönnum í fylkinu til aö koma honum á fastan fót. Ef þetta hefði verið á rökum bygt, hvernig var ástandið nú? Skyldi þá ekki vera þörf á lagfæringu á öllum þessum nýju veðskuldum? spurði þingmaðurinn. Skólaskylda. Herra Norris sagði, aö eitt af því, sem sér lægi þyngst á hjarta, væri mentamál fylkisins. Hann kvaðst einlæglega meðmæltur skóla skyldu élófaklappj. Hann sagöi að það væri ekki til að hugsa, aö mentamálin kæmust í þolanlegt horf fyr en skólaskylda væri lög- leidd. Þetta væri einmitt eitt at- riðið í stefnuskrá liberala, og hann kvaðst ætla að halda áfram að berjast fyrir því, þangað til þaö yrði lögleitt. Gagnskiftin. Þingmaðurinn sagði að gagn- skiftin við Bandankin væru enn brennandi áhugamál almennings flófaklappj. Roblin stjórnarfor- maður væri þess ekki megnugur að svæfa þetta mál með stóryrðum sínum. Eins og kunnugt væri geröist hann aldrei eins mælskur, eins og þegar hann væri að reyna að kveða niður gagnskiftamáliö. Þingmaðurinn kvaðst hafa borið upp tillögu á síðasta þingi, sem hefði verið ný yfirlýsing um nauð- syn gagnskiftanna. Stjómarfor- maðurinn hefði sniðgengið þessa tillögu, en þegar hann hefði feng- is til að taka til máls um hana, hefði hann skipað þeim í flokk með landráöamönnum, sem heföu aðra skoðun á gagnskiftunum heldur en hann, og talið slíka menn eiga það skilið, að þeir væra gerðir landrækir. Þingmaður kvaö sér finnast, að ekki bæri að láta eins og vind um eyru þjóta þessa ákæru stjórnarformannsins, að all- ar þær þúsundir Canadamanna, sem greitt hefðu atkvæði meö gagnskiftunum, væru landráða- menn. Herra Róblin hefði þannig skírt um 600,000 Canadamenn föðurlandssvikara ftraitorsj. I fimm fylkjum Canada, af níu alls, hefði meiri hluti kjósenda greitt atkvæði með gagnskiftunum. Þess vegna væri ekki úr vegi að hafa augastað á þeim herra, sem léti sér um munn fara aðrar eins staö- hæfingar eins og þetta. Fáninn og þegnholiustan. Herra Norris sagði, að engin þörf væri á þvi fyrir liiberala, að ganga með flaksandi fána í hendi, til að sannfæra menn um þegn- hollustu sína, þó að herra Roblin veitti ekki af því, af því ekki yrði það ráðið af verkum hans, að hann væri þegnhollur. i»erra Roblin væri sá eini maður, sem hann þekti, sem hefði gert sig sekan um að hafa viðhaft verulega land- ráðamannslegar staðhæfingar. Þetta hefði stjórnarformaðurinn gert, þegar hann hefði lýst yfir því, að bezta stjórnartyrirkomu- lag. sem til væri, það væri einu veldisstjórn. Þingmanninum fanst því, að óskaráð væri fyrir herra Roblin að hverfa til Rússlands. Þar væri hklega nógu mikill ein- veldisbragur á stjórnarfarinu til þess að hann yröi ánægður og gæti unað sér þar vel. Með þess- um gapalegu ummælum sínum hefði Roblin stjórnarformaður ekki að eins skírt um 600,000 Canadamenn óþegnholla, heldar og ýmsa helstu stjórnmálamenn Bretlands, svo sem herra Asquith forsætisráðherra. Ekki væri nóg með þetta, heldur fylgdi það með, ef ummæli herra Roblins hefðu við nokkur rök að styðjast, að öll blöð afturhaldsmanna hefðu þá um eitt skeið hlotið að- vera ó- þegnholl. Tvö væru aðal einkenni stjórnarformannsins. Annað væri hringlandahátturinn, hitt sann- indaskorturinn. Herra Norris gat þess í lok ræðu sinnar, að hann hefði í hyggju að ferðast um sem flestar sveitir þessa fylkis í sumar og halda stjórnmálafundi. Kvað hann sér vera það einkar ljúft, meðal ann- ars vegna þess, aö áhugi frjáls- lynda flokksins heföi aldrei verið meiri hér í fylki heldur en nú. Gagnger breyting væri að veröa um alt fylkiö og óhugur á núver- andi fylkisstjórn aö magnast meö mánuði hverjum. Ef sá óhugur héldi þannig áfram, gæti ekki hjá því farið, að Roblinstjórninni yröi steypt við næstu kosningar.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.