Lögberg - 15.08.1912, Page 1
Merkið flutningsseðla yðar:
SHIP TO Ft. William or Port Arthur
ADVISE
ALEX. JOHNSON & CO.
GRA'N COMMISSION MERCHANTS
242 GRAIN EXCHANGE, - WINNIPEG, MAN.
ÍSLENZKIR BÆNDUR
Mér þætti vænt um, ef þér vilduö fela mér
að sclja kornbirgöir yöar á komandi hausti.
Eg get útvegaö yöur hæsta verö á öllom
korntegundum. Eg skal annast sem bezt
flokkun og sendiug korntegundana til hafn*
arstaöar.
ALEX. JOHNSON & CO., Winnipe>r, Man
25. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 15. ÁGÚST 1912
| NÚ?
NÚMER 33
Þýfið fannst.
Tyrkir í vanda.
Svo er nú sagt, aö komi'S sé aö
því, sem lengi hefir spáö veriö, aö
Tyrkja ríki sé aö liöast 1 sundur.
Flokkadrættir hafa veriö þar í
landi síöan þing komst á og Abdul
Hamid var af völdum tekinn, og
hafa þeir magnast svo mjög í
seinni tið, aö nærri stappar innan-
lands styrjöld. Ný stjórn var
sett þar i landi fyrir hálfum mán-
uöi, og rauf sú þing jafnskjótt.
Þingmenn neituöu aö fara og vildu
setja stjórnina frá, en uröu undan
aö láta fyrir vo.pnuðu herli'Bi.;
þeirra flokkur safnar síðan liði
viðsvegar um land en stjórnin i
annan stað, svo aö til ófriöar
horfir. Flestar hinar stærri borg-
ir hefir stjóirnin í herkvi.
Albaníumenn hafa gert upp-
reisn mannskæöa og hrakið burt
herliö Tvrkjanna, en í Makedoniu
logar undir niðri. Þeir í Montene-
gro færast í aukana, ekki síður en
aðrir og láta ófriðlega, svo að
sendiherra Tyrkjastjórnar er það-
an farinn. Serbia og Rúmenia
hafa gert samband sin i milli ef til
vopnaviðskifta kemur, og um
Rúlgariu er ekki að spyrja; þeir
þar gera ekki annað en setja um
færi til að taka bita af Tyrkjan-
um, þykjast líka bezt að reitum
hans komnir. í Tripolis hafa
ítalir loksins náð á vald sitt þeim
eina stað sem þeir áttu óunninn
meðfram ströndinni og í Grykk-
landshafi ganga eyjar undan þeim,
hver á fætur annari. Svo er tal-
að, a'ð ef til ófriðar kemur með
Tyrkjum og einhverjum af ná-
grönnum þeim. sem nefndir voru,
þá muni hinir ekki setja hjá, held-
ur muni allur Balkanskaginnl loga
i báli. Það er haftl eftir siimum
stórhlöðum ' Evrópu, að tryggari
væri friðurinn og betur statt ríki
Tyrkja ef gamli Abdul Flamid
væri við vöM. Það er lika haft á
orði. að sá flokkurinn sem nú sæk-
ir til valda á Tyrklandi muni taka
þann gamla bragðaref úr dýfhzu
og reyna til aö koma honum aftur
i völd, og njóta kænsku hans til
aö fresta sundrung hins tvrkneska
rikis.
Ofan á alt þetta bætist, aö
jarðskjálftar svo nviklir hafa farið
yfir landiö suðaustan til, að 3,000
eru sagðir hafa farizt, en 50 þús-
und eru húsnæðislausir og hafa
mist alt sitt, svo að hungursneyð
vofir yfir þeim. Það er enn sagt.
að jarðeldur sé upp kominn skanit
frá Miklagarði. Asíumegin við
sundið.
Stórfélögin beita sér.
Eitt með öðrum tímanna tákn-
um er það. að nú eru járnbrautar-
félögin farin að hafa samtök tij að
koma sér undan úrskurðumi þeirr-
ar dómnefndar sem á að hafa eft-
irlit og úrskurðarvald með sam-
göngunv í landinu.' Sú nefnd hef-
ir reynst ágæta vel landsbúumi til
að halda uppi rétti þeirra og hags-
mttnum, og hafði hún ágætan bak-
hjarl t stjórnartíð .Lauriers, svo
að boðum hennar og bönnum var
hlýtt orðalaust. f ár virðast járn-
brautafélögin hafa færzt i aukana
og gert samtöt til að ónýta ýmsar
fyrirskipanir nefndarinnar, þar á
meðal einkum þær, sem lúta að
vörnum gegn eldsvoða af völdum
eimlesta. Þau gerðu menn til
Ottawa. til þess að skjóta þeim
málum fyrir hæstarétt, en unnu
htið á. Allur almenningur í land-
intt ætti að hafa vakandi auga á
þessu nváli og þola nveð engu móti.
að skert sé vald nefndarinnar, tié
úrskurðir hennar ónýttir, þó að
þeir komi járnhbrautarfél. ekki
vel.
Námaslys.
Eldur kviknaði af einhverri
ástæöu i kólanámu þar sem heitir
Gerte á Þýzkalandi, og sprungu
koladampar við það, svo að þar
mistu 103 karlmenn lífið. Tveir
slösuðust til ólífis og mjög marg-
ir meira og minna. Dauðinn kom
yfir alla á einu augabragði. 650
manns voru nýfarnir ofan í nám-
una, þegar sprengingin varð, og
voru á leiðinni, hver til sinna
verka; hvellurinn heyrðist upp á
yfirborðið, og var þá strax tekið
til að bjarga, þar sem þvi varð við
komið, fyrir eldi og eiturlofti.
Allan daginn stóð á þvi að bjarga
mönnunum, mieð því að flestir
voru máttlitlir, en sumir meiddir
til skemda. Konur og börn stóðu
allan daginn kringum námumunn-
ann og biðu þess að bændutn og
feðrum þeirra væri bjargað, en
sumt sá hik þeirrai meidd og lim-
lest vera flutt úr undirdjúpunum
undir bert loft. — Keisari var að
halda hátíðlega aldarminning
verksmiðju fallbyssukóngs Krupp,
en hætti þegar er um slysið frétt-
ist.
Þeirra aðferð.
Þeir hafa sína aðferð til að los-
ast við forseta á eyjunni Hayti.
Afdrif þess seinasta urðu þau, að
i vikunni sem leið sprakk stjóm-
arhöllin í loftið og brann til kaldra
kola en forsetinn hefir ekki sést
síðan. Undir höllinni voru
geymdar miklar byrgðir skotfæra,
púður og kúlur og fallbyssur, lík-
lega til þess að hafa þær til taks
ef á þyrfti að halda, með þvi aö
eyjarskeggjum veröur Jöngum
skamt 1 milli óróa og upphlaupa.
í þeim púöurbirgöum kviknaöi,
en með hverjum hætti greinir ekki
berlega. Kona og þömi forset-
ans björguðust nauöuglega en
hann fórst sjálfur og eitthvaö um
400 af hermönnum og hallarþjón-
utn. — Það eru rúm 100 ár siöan
Haytibúar fóru aö stjórna sér
sjálfir, og hafa á þeim tíma haft
óteljandi fjölda af keisurum og
kóngum og forsetum, en aðeins
sumir oröið ellidauöir. Ue Conte
hét hinn nýdauöi forseti og haföi
margan straum ÍaSiS á fyrirfar-
antli stjórnartímum. öllu skárri
er lians stjórn talin heldur en
■margra annara, en stórum verri þó
heldur en i öörum löndum.
Skip rekst á ís.
Skipiö Corsican, sem Allan lin-
an á. er á leiðinni frá Montreal.til
Liverpool mieð nálega 300 farþega.
Skipiö rakst á ís i þokú og sendi
þráðlaus skeyti að leita hjálpar.
Annaö skip tók upp skeytiö og
tók þegar á sprett i áttina til þess.
en. fékk skömmu síðar það skeyti
frá hinu brotna skipi, að öllu væri
óhætt. Fregnin barst til lands, og
með því að stjórnendum Allan línr-
unnar var í fersku minni Titanic-
slysið, lintu þeir ekki fyr en þeir
höfðu fengið nákvæma sk’rslu Uffl
slysið ,og var hverri einustu loft-
skevtastöð á austurströnd: Canada
beitt á að ná fréttunum. Skipið
var á hálfri ferð í þoku, þegar
jakinn sást fyrir stafni og skipið
sett á fulla ferð aftur á bak jafn-
skjótt og jakinn kom 1 ljós. Eigi
að siður brotnaði skipið að fram-
an,, en þó fyrir ofan sjávarflöt,
og gat haldið áfram 1 hægðum
sinum hjálparlaust áleiðis, til Liv-
erpool. — Eftir síðustu fréttum
hefir skipið Corsican skemst meir
en látið var í fyrstu. Það. hefir
legið kyrt á sama stað í meir eu
sólarhring og annað skip hjá þvi,
sem fyrst varð vart við skeyti þess
um slysið, Þoka er mikil þar sem
skipin eru, og er látið 1 veðri vaka.
að það valdi töfinni. en ^þó eru
margir hræddir um, að slysið sé
alvarlegra en látið er.
Traustara bandalag.
Rússar og Frakkar hafa samtök
til sóknar og varnar á landi og
hafa lengi haft. Nú hafa þeir
samið það m'illi sin, að beita flota
sínum í samlögum framvegis.
Rússar eiga allmörg herskip í
Eystrasalti og vinna kappsamlega
að flotasmíð í Svartahafi. Það er
látið uppi i blöðum Breta, að sjálf
sagt sé að veita Rússum þaö, aö
renna herskipum smum gegn um
Sæviðarsund og inn í Miðjarðar-
haf. Er svo að skilja, sem hin
nýnefndu stórveldi ásamt Eng-
landi haldi í skefjum sambandinu
rikjanna þriggja: Þýzkalands,
Austurríkis og ítaliu. Ráðaneyt-
isforsetinn franski, L'oincaré. er
kominn á leið til Rúsdands, til
fundar við keisara og utanrikis-
ráðherrann Sazanoff, til þess: að
binda þessa ráðagerð sem' fastast.
Hinir gjóta hornauga til þessa
bandalags og vígbúa sig sem mest
þeir geta, þó allir segist peir elska
friðinn meir en alt annað.
Fyrir rúmu ári var stolið úr úti-
búi Montreal bankans i Westmin-
ster um 30,000 dölum, og hefir
ekki hafst upp á þjófunum enn
þá. Fyrir nokkrum dögum tók
lögreglan í Toronto karlmann og
kvennrann og fundu í fórum þeirra
rlálægt tíu þúsund dala og þar á
meðal mai'ga seðla, sem stolið var
i hinu umgetna útibúi. Geysimik-
ið af silfri höfðu þau x>g hjá sér,
er þaiv höfðu fengið þegar þau
býttuðu seðlunum.. Þau neituðu
harðlega sekt sinni, sögðust vera
leikarar og hafa deröast um Can-
ada til þess að sýna list sína, og á
því ferðalagi hefðu þau eignast
silfrið. Kvenmaðurinn hafði orð
fyrir þeim, sagði manninn vera
bónda sinn, heiðarlegan borgara
og vel metinn 1 Chicago; þau ættu
þar heima i stásslegai'ta parti bæj-
arins og væru saklaus einsog börn.
Húsiö var leitað uppi, sem þau
sögðust búa i i Chicago, og reynd-
ist það vera járnsmiðja, em næsta
hús við er alræmt þjófabæli.
Fjöldi spæjara hafa Ieitað að
bankaiþjófunum fyrir Montreal-
bankann. en ekki tekist að sanna
stuldinn upp á neinn. Þessi hjú
eru ekki grunuð um stuldinn sjálf,
heldur vitorð og um að vera
þjófsnautar.
Bourassa og herbúnaður
Ilinn franski forsprakki Nation-
alista harnast í blaði smu gegn; á-
lögum á Canada til herskipa-
smíða. Flestöll blöð prenta eftir
Maði hans kafla úr grein á þessa
leið:
“Fregnir segja, að Mr. Borden
ætli að fara til Þýzkalands í þess-
ari ferð sinni. Við skulum vona,
að hann beiti sér þá á það að fá
stjórnir Þýzkalands og Bretlands
til þess að aðgæta og rannsaka
ofan i kjölinn þá eftirgrenslan, sem
tímaritið “Investors' Review" hef-
ir byrjað á.
Þjóðir Þýzkalands og Bretlands
hafa annað og meira að gera held-
ur en að skera hvor aðra á háls til
þess að þyngja vasa Krupps,
Viekers og Maxims (stóreflis fé-
lög á Þýzkal., Bretl. o g Frakkl.,
sem smíða vopn—Þýð.),— og það
er, að koma því upp hverjir eru
hluthafar í þessum félögum, sem
öll eru í samvinnu og samtökum,
l>ó i sínu landi sé hvert, og í raun-
inni eitt og sama félag; en mark-
mið þess er það, að koma hinum
göfugustu þjóðum heimsins í hár
sarnan og einkum halda vakandi
fjandskap þeirra á meðal, er leið-
ir til tjóns og tortímingar, og alt í
því skyni gert: að þetta ofureflis-
félag græði sem mest. Annað
hlutverk þeirrar rannsóknar væri
það, að finna hver ráð þessar
blóðsugur hafa til þess að hnýta
upp í landstjómarmenn, æðstu
ráðamenn og blaðstjóra.
Mr. Borderí og embcettisbræð-
ur lians hafa aðra æðri skyldu,
heldur en að leiða hina canadisku
þjóð inn í svo ægilegan og glæp-
samlegan fíflaleik, og sú skylda
er, að beita öllum ráðum sem sam-
vizkusöm stjóm hefir í valdi smu
til þess að rekja feril og ráða-
hrugg þessa ofureflis-félags í
Canada og að finna og framselja
útsendara og samseka samverka-
menn þessa djöfullega félagsskap-
ar.
Meðan því verki er ólokiði. því
hollustu og heillaverki þjóðinni til
handa, þá ber að skoða þau blöð
viljandi og óviljandi verkfæri í
hendi Kmpps, semi halda fram
þungum álögum á Canada til her-
skipasmíða.”
Samsæri á Rússlandi.
það komst upp nýlega, að sjó-
liðar á Rússlandi höfðu samsæri
um það sín á meðal. að taka lysti-
spekkju keisarans, þegar hann
sigldi með drotninguna og börn
sin á Svartahafi. Skyldi þá kúga
keisarann til þess að afsala sér
valdi, frekar en orðið er, eða segja
af sér keisaradómi. Jafnframt
átti Eystrasalts flotinn að vera á
valdi samsærismanna. en til þess
átti að drepa alla yf’ ' ckip-
anna, leggja síðar adt,
sem er rammur k' evu
ósum. þar sem :nd-
ur. vinna höf svo
framvegis. Þessi ráðagerð komst
upp, að sögn, og voru 16 skips-
menn og einn yfirliði dæmdir til
dauða og skotnir. Hvort þetta er
annað en hviksaga kann enginn að
segja að svo stöddu. Þó hafa ni-
hilistar oft áður tekið upp marga
ráðleysu, engu líkLgri en þessa.
Órói er sagður allmikill og umbrot
í Rússlandi, þó litið hafi borið á
um nokkurt skeið.
Fjárdráttur og spilafíkn
Af rannsóknum út af lögreglu-
hneykslinu 1 New York eru sagð-
ar miklar sögur. Málið er svo
vaxið. að eigandi eins spilahúss
vikli ekki greiða lögreglunni eins
miklar mútur og neimtaö var, og
hótaði að koma upp fjárdrætti
hennar; var hann drepinn nokkru
siðar og náðust tveir morðingj-
arnir. Annar sagði sögu sína af
létta. að yfirmaður í lögreglulíð-
inu hefði kevpt tnenn til morðsins,
og væri það vandi hans og annara
yfirmanna að láta ýmsa skugga-
sveina borga skatt til þess að
mega vera í friði. lvosenthal hét
sá sem myrtur er. og mun hafa
verið GvSingur að kyni. Nokkuð
er, að> auðugir og voldugir menn
tóku upp málið, keyptu spæjara
til að safna gögnum, létu hand-
taka þann yfirmann lögreglunnar,,
sem í hlut átti og sækja hann um
morð og rannsaka málið svo rösk-
lega, að jafnvel allir bankar urðu
að segja til um innieign háttsettra
lögreglumanna. Vitnaðist þá að
sá, sem helzt er fyrir sökum hafð-
ur um morðið, hafði lagt mn 1
ýmsa hanka meir en 50 þús. dali á
einu ári, en kaup háns er að eins
2,200 á ári, og að hann þess utan
hafði keypt veröbréf svo miklu
nam. Lögreglunni 1 New York
er ekki trúað fyrir rannsókn máls-
ins, heldur þeim, sem hinir vold-
ugu menn. sem að bj.1-' standa,
velja til þess. Meir en 2 miljónir
dala er sagt að ein deild lögregl-
unnar liafi hafr út úr ymsum
glæpamönnum árið sem leið, er
keyptu sér þannig frið. Miklumi
óhug hefir slegið á borgarbúa í
New York út af þessutn samtök-
um lögreglunnar við lagabrjóta.
Þegar keisari Þýzkalands, frétti
um lögregluhneykslið i New York,
þá simaði hann til Berlínar frá
skipi sinu við Noreg, að gera gang
skör að því hafa eftirlit með spila
holum i Berlín. Lögreglan brá
þegar við og hreinsaði margar
slíkar. Á einum stkð fundu þeir
margar hefðarfrúr í karlmanna
fötum og í slæmum' selskap. Bú-
ist er við, að mörg hjón skilji út
af því, og er þetta talið mikið og
fátitt hneyksli 1 heldri manna
stétt. Svo var sagt, að mjög sé
heldra fólk á Þýzkalandi gjamt
til áhættusspila, einkum liðsfor-
ingjar,' sem þafa nógan auð en
litið að gjra. og hefir þeirra hátta-
lag stundum vakið hneyksli, svo
að kej»ari hefir skorizt i leikinn
hvað eftir annað og liafið her-
skjöld gegn býlífi og spilafíkn
tiginna liðsforingja. Nú virðast
þeir hafa fengið kvenfólkið “í
spilið”, einkum giftar höfðingja-
frúr og kárnaði þá leikurinn þang
að til lögreglan tók í taumana.
Eitt stóra félagið enn.
Þeð er eins og tímamót sjáist í
viöskiftum Canada á þessu ári að
þvii leyti til, að hvert stórfélagið
er sett á laggirnar af öðru. Síð-
asta stóreflis félagið er það, sem
koinið hefir í eina heild flestum
félögum er skip eiga á stórvötn-
unnm. og hefir 10 miljón dollara
höfuðstól. Það íélag fer vitan|
lega að eins og önnur auðfélög.
sem hafa risið upp hér í landi á
síðustu tímum: leggur undir sig
skipahryggjur og nær ölllum vöru-
flutningi frá 'öðrum auðfélögum,
gleypir svo öll hin smærri félögin,
sem eiga báta á vatninu, og færir
svo upp fargjöld og farmgjöld þeg
ar það er orðið eitt um hituna.
Það er algild reynsla með flestum
þjóðum. að áhrif stórfélaga á við-
skiftalífið er sú sem nú var lýst,
og að þau eigi mikinn þátt 1 þeirri
dýrtíð, sem nú gengur yfir löndin,
þó vitanlega liggi þar til margar
aðrar orsakir.
Stór skipaskurður.
Uiii nokkur undanfarandi ár
hefir verið starfað að því áformi
að gera skipaleið gegn um Vestur
Canada, alla leið frá Winnipeg til
Edmontoiii, gegn um Rauðá og
W'innipegvatn og Saskatchewan
fljót. Einn verkfræðingur stjóm-
arinnar hefir haft það ver.k með
hönduim að gera áætlun um tilhög-
un á verkinu og kostnað við það.
og- er bráðlega von á skýrslu hans,
svo að fé verði veitt ti! hans á
næstu fjárlögum. Gert er ráð
fyrir að skurðurinn muni kosta
margar miljónir dala en nokkuð
af kostnaðinum mun hafast upp
með þvi að nota sér fossa til raf-
magns framleiðshi, sem viða finn-
ist meðfram hinum fyrirhugaða
skurði.
Ráðherraskifti.
Kristján Jónsson ráðherra
skýrði alþingi frá því, 20. f. m.,
að hann legði niður völd. Sann-
frétt að Hannes Hafstein banka-
stjóri og fyrrum ráðherra tekur
við af Kristjáni Jónssyni.
HVAÐANÆFA
—Það slys vildi til hér i smábæ
1 fylkinu á föstudaginn að stúlku-
barn 8 ára var að leika sér að
hlaðinni skammbyssu, en systir
hennar tíu vetra stóð hjá. Þegar
minst varði reið skot af byssunni,
og kom í höfuð eldri stúlkunnar,
svo að hún dó skömmu síðar.
—Þjófar fóru. inn i leikhús í
New Westminster, B.C., sprengdu
upp peningaskápinn og hlóðu alls-
konar dóti af leiksviðinu í kring,
til þess að taka úr hvellinum, en 1
þvi kviknaði af blossanum við
sprenginguna og stóð skjótlega alt
húsið i björtu báli. Logreghunað-
ur hevrði hvellinn og fleiri aðrir
en gátu ekki greint, hvaðan koma
mundi. Þeir sáu reykinn í sama
bili en þjófarnir voru þá komnir
leðar sinnar og urðu af þýfinu, en
leikhúsið brann til öskti.
—Talsímataxtinn nýi á að gilda
frá 1. Júlí þ. á. Robson dómari
hafði fengið margar kvartaniri, en
enga svo þunga á metunum, að
hann þættist mega neita um hækk-
uina, sem dembt er a almenning
til þess að grynna á skuldasúpu
fónakerfisins.
—Nokkur félög sendu menn á
fund bæjarstjómarinnar i Toron-
to að láta hana vita^ að verka-
menn og yfirleitt allir snauðir
menn væm svo illa stundaðir 1
hinnm almenna spítala bæjarins,
að slíkir lentu i höndum grafara
og læknaskóla stúdenta og hvergi
annars staðar, að spitalavistinni
lokinni. Þeir heimtuðu nýja stofn-
ur er veitti sliktini sjúklingum
aðhjúkrun og lækningu.
—Þess er getið. að einn bóndi
er austur í fylkjum að ráða menn
til uppskerunnar á jörð sinni í
Saskatchewan. sem er 2,000 ekrur
á stærð. Hann kvað og marga af
þeim, sem vestur leita til uppskeru
vinnu líta eftir henni á götum
borganna, 1 staðinn fyrir til
sveita.
—í þorpi nokkru, 8 milur út-
norður af Duluth, skeði þaö í gær,
að tveir grimumenn gengti inn
í banka með byssur á lofti og
lokuðu féhirði inn í skjalaskáp,
tóku alla peninga sem lágu frammi
og héldtt svo leiðar sinnar. Þeir
eru eltir. ,
—Systir Þýzkalandskeisara kom
í heimsókn til frænda síns. Breta-
konungs. og fór frá London í gær.
Meðan hún var að kveðja kpn-
ungsfólkið vxti fyrir þeim vagni
sem henni var ætlaður, var gripa-
skrini hennar stolið úr vagninum,
og er þeirra nú leitaö um alla
Lundúnaborg.
—Ráðherrar á Englandi leita
hviklar um þessar mundir, en æst-
ar flokksfylgiskonur sitja um, þá.
Þess er getið, að þær gerðu Wins-
ton Churchill fyrirsát á fömumi
vegi og höfðu hlaðið reiðhjólum
sínum tim þvera götuna, til þess
að stöfcva bifreið hans. Þeim
brást sú bogalist; vagnstjóri hans
hleypti á garðinn, en kvenþjóðin
sat eftir með sárt ennið og möl-
brotin hjól.
—Fjórtán vetra piltur frá
W’innipeg var tekinn fastur suður
í Minnesota i fyrra dag fyrir að
t'ara inn í hvert hús af öðru og
stela peningum. Hann tjáist vera
vel uppaþnn skólasveinn af efn-
uðum kominn.
—Kona ók í vagni með ung-
harni sinu nálægt Portage la
Prairie, til hressingar, en mújdýr
clrógtt vagninn. Þau fældust bif-
reið, sem fram hjá fór, svo að
konan sá ekki annað ráð en fleygja
sér út úr vagninum meö bamið.
Hún lenti í skurði utan við veginn
og var rænulaus þegar hún fanst.
Hún var tvibrotin á öðrum fæti,
og ristarbeinin brákuð og viða
marin. Barnið var alheilt.
—-Galicíumaður var dæmdur til
dauða í Nevada og mátti kjósa um
dauðdaga, að hengjast eða verða
skotinn. Hann kaus lúð síðara,
en enginn hefir gefið sig fram enn
til að skjóta manninn.
—Hæsta bygging 1 veröldinni
er, einsog kunnugt er, Effel tum-
inn í I’aris, og er 984 fet á hæð.
Ung stúlka veJ búin kom einn dag
upp á efsta topp hans og steypti
sér út af honum. Grindur eða
bryggja stendur út úr tuminum
miðjum. Á henni lenti hún og
tættist i sundur.
—Geðveikra læknar af ollum
löndum héldu fund nýlega. Einn
af fundarlæknum sagöi þar í ræðu,
að eftir 300 ár mundi verða meira
af geðveiku fólki í heiminum held-
ur en geðhraustu. Árið 1859 vom
30.000 geðveikir menn á sipitölum
i veröldinni en 135.000 í ár.
—Þann 3. ágúst féll snjór 1 ein-
um stað i Pensylvania, svo að jörð
varð alhvít, en í Michigan varð
svo Imikið snjófall, að strákar gátu
farið i snjókast.
—Þegar Taft forseta var flutt
útnefning hans til forseta efnis
þá lagði hann mesta áherzlu á það
i svari smu að vernda bæri stjórn-
arskrá landsins og halda uppi toll-
um.
-Atkvæðisréttar konnir hc>íu
herskjöld í Edinburgh á Skotlandi
og — skáru niður talsima þræði. i
—Frumvarp er íram komið i
fulllrúa deild ('ComuionsJ Lund-
únaþings um að reisa skorður við
miklum útgjöldum þingmanna efna
við kostiingar. Rammar skonð.ir
hafa áður verið reistar þar í landi
við kosninga mútum, en hið néfnda
laga frumvarp tekur fyrir þi
venju, að þingmanna efni verði
við fjárbónum til félaga og fyrir-
tækja í kjördæmum sínum.
—Jach Johnson heitir sá, sem
nú þykir l>era af ölhim öðrum 1,
barsmíðum. Hann er svertingí,
og var tekinn í meðlima tölu Frí-
múrara af einni deild þess félags-
skapar í Scotlandi. Nú hefir alls-
herjar þing Frímúrara í þvi !an li
rekið þá deild úr félaginu, fyrir
bragði'ð.
—Selveiðar í Kyrrahafi norð-
antil, milli Ameríku og Asíu, htfa
farið þverrandi með ári hverju.
Því hafa þau riki sem hlut |eiga að
máli, Bandarikin, Canada, Japan
og Rússland gert samtök sín á
milli til að taka fyrir að selurinn
deyi út.
—Járnbrautar slys varð í
Braziliu nýlega og er sagt að um
hundrað farþegar hafi dáið og
slasast.
—Ekkjudrotningin í Portugal
skildi eftir gimsteina sina þegar
hún flý'ði land með syni sinum, og
fekk lánað út,á þá hjá einhverjum
banka í því landi. Hún gat ekki
borgað lánið og lét þá bankinn
selja steinana á tippboði. Þ'eir
hlaupa alls á 275 þúsund dali. Eitt
hálsmén úr 324 perlum seldist á
60 þúsund dali. Einn gripurinn
var skarband eða gullhlað, sem
frægt var af því hvað dýrt það
var og stásslegt. Það var boðið
inn aftur, þvi að ekkert boð fekkst
nógu hátt i það.
—Þess var getið að verkfalli
skipahleðslu karla i Ixmdon væri
lokið. Þegar verkamenn komu til
vinnu, voru þar margir fyrir, sem
byrjað höfðu meðan hinir voru
verklausir. Milli þeirra tókst
bardagi með byssuin og grjöti og
hverju öðru sem hönd festi á, svo
að margir særðust og margir félhv.
—Bonar Law hinn nýi foringi
Conservativa á Englandi hefir
gengið svo langt á móti heima-
stjóm á írlandi, að hann kvaddi
protestanta í því landi til vopn-
aðrar mótstöðu. Útaf því tók
W’inston Churchill ofan í við hann,
taldi hann ófæran til að takast á
henchir nokkra opinbera stöðu,
sem ábyrgð fylgdi.
—Þeir sem selja kynjalyf i
Banelaríkjum fengu nýlega á bauk-
inn hjá þinginu. Þar er nýlega
frani komið laga frumvarp um aö
leggja hegningu við ef að meðöl
eru seld með skrumi og oflofi um
verkanir þeirra.
—Icaria heitil ey x Grikklands-
hafi, 50 enskar fermílur að stærð,
með 13.000 íbium. Hún hefir
verið eign Tyrkja utn langa ævi,
en á döguntim tóku eyjarskcggjar^
sig til, hneptu embættismenn
Tyrkjastjómar í fangelsi og lýstu
eyna sjálfstæða. Eyjarskeggjar
eru flestir gnskir kolakarlar.
—Getið var í blaði vortt um við-
skiftasamning milli Canada og
Vestindia er samþyktur var á
Canada þingi í vetur. Samning-
urinn ntarðist fram nýlega á þingi
eyjarskeggja í Trinidad, sem er
ein af helztu eyjum| í Vestindinu,
með eins atkvæðis muni. Margir
töldu samninginn skaðlegan verzl-
un eyjanna, en a?rlF imttu meira,
seni sögðu hann natiðsynlegan rík-
istengslunum við Bretaríki.
—Innbrotsþjófurinn í Chicagp
sem getið var í síðasta blaði hefir
fengið sér lögmann og hefir sá
það fyrir málsbætur, að þjófnum
sé ekki sjálfrátt. heldur sé veikur
af stelvísi.
—Eldfjallið Etna á Sikiley er
byrjað að gjósa reyk og eldi úr
sínum gamla gíg, og auk þess er
kominn nýr gígur á norðurhlið
fjallsins, er gís eldi og eimyrju.
Jarðskjálfti fylgdi gosinu. en um
manitskaða og eignatjón er ekki
getið.
—Lausir eru látnir þeir ensku
menn, sem getið var í siðasta bla'ði
að teknir voru á Þýskalandi og
sakaðir um njósnirl Þeir munu
hafa tekið myndimar til þess að
gera að gamni sinu með spæjara
hræðslu Þjóðverjans.
—Lord Strathcona varð 92 ára
þann 6. ágúst. Hann er svo em
að hann hefir ennþá einsamall for-
sagnir á meðferð og stjórn sinna
miklu auðæva.
—Maður flaug í loftfari með
konu- sína, undireáns og hjóna-
vígzlan var afstaðin, frá Frakk-
landi yfir Ermasund, til Englands,
og nieð ]>eini hjónunn blaðamaður
frá Lundúnum. Þau höfðu hættu-
lega ferð, lentu í stórum skúrum
og hvassviðri og svo svörtum
skýjum, að þau vissti engar áttár.
Eitt sinn, þegar þau komu út úr
einu skýinu, stefndi loftfarið beint
niður að sjó. Þegar að landf kont
Englands megin, var veðrið svo
svipótt, að loftfarinu sló stundum
upp og stundmn niður og á ýmsar
hliðar, og Ioksins sJóg því niður í
s'kóg og mölbrotnaði ,en ferða-
fólkið slapp ómeitt með öllu.
Frá Siglunesi er kkrifað 24. f.
tn.: “Jeg hefi engar fréttir ný-
stárlegar að segja; útlitið með
grasvöxt hér varla 1 meþallagi, og
sumstaðar lítur illa út við vatnið,
vegna hleytu, þvi vatnið er með
hærra máli. Heilsufar almennt
gott, og alt gengur sinn hægfara
vanagang. Pic-nic allfjölment
héldu Goodtemplarar hér 20. þ. m.
Eg býst við þið fáið fregnir um
það frá einhverjum er þar voru
staddir.
Frá Islandi.
Reykjavík, 18. Júlí 1912.
Hestur fældist á Bergstaðastr.
1 gær og ætlaði að hendast á vagn
meS bami í, er skilinn hafSi verið
eítir á götunni. Nýfermd stúlka,
GuSrún Benedtcfsón, sá þetta,
snaraSist aS vagninum og kom
barninu méS naumindutn undan,
en iéh sjálf á götuna um leiS og
særSist dálítiSi á handlegg.
EskifirSi 9. Júli.:— TíSin hefir
veriS hin ákjósanlegasta síðan í
byrjun l>essa mán^Sar nema rétt
1! gær stórrigning með þoku.
Frá Berunesi, sem er gegnfc:
Helgustaðanámum, heyrist nú
daglega stórskotahrið. Er þar
Guðmundur húsasmiSur Jákohs—
son úr Reykjavík aS sprenging-
um. Hefir hann fundiS eitthvaði
af silfurbergi bæSi niSur við sjó»
og eins ofar nokkru. — Vísir.