Lögberg - 20.03.1913, Blaðsíða 1
26. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 20. MARZ 1913
NÚMER 12
Heiðurssamsæti •
Skandinavisku liberal klúbbarnir liér í bæ
bafa fastráðið að balda þinginanninum í Vestur-
Winnipeg, Mr. Thos. H. Jolxnson, heiðurssamsæti í
Goodtemplarasalnum, þriðjudagskveldið 25. þ. m.
Þótti klúbbunum viðeig;mdi að sýna Mr. Jolmson
þenna vott virðingar sinnar og þakklætis fyrir
liina röggsamlegu, viturlegu og drengilegu hlut‘
töku hans í baráttunni fyrir áhugamálimi kjósend-
anna í Winnipeg og liberal flokksins yfirleitt fyr
og síðar. — Ræður halda menn úr öllum klúbbun-
um, sem til samsætisins hafa efnt.
Leiðangur
Vilhjálms Stefánssonar.
Skip það er Canada stjórn hefir
keypt handa Vilhjálmi Stefánssyni
og förunautum hans í heimskauta
leiöangurinn fyrirhugaöa, heitir
“Karluk”. Er þaö nýkomiö1 tH
Esquimault í British Columbia frá
San Francisco. Skipstjórinn er
Norömaöur fæddur í Bandaríkj-
um og heitir C. Theodor Pedersen
Þó er ekki enn fullráöiö aö þessi
niaöur verði skipherra í leiðangr-
inum, vegna þess aö Canadastjórn
Befir lagt svo fyrir aö öll skips-
höfnin skuli vera hérlendir menn.
bó þykir sennilegt aö Pedersen
veröi hér undantekning, því aö
bann er sjómaöur góöur, og marg-
reyndur í ýmsum svaðilferðum.
Mútu-hneyxli.
í New York stendur yfir um-
fangsmikið sakamál út af mútu-
þágu lögregluþjóna i þeirri borg.
Báru mörg vitni sem fyrir rétt
voru kölluð það, að þau heföu
mútað lögregluþjónunum til að
sleppa við refsingu fyrir ýmsar
sakir og yfirtroðslur laganna.
Hefir það komið í ljós við réttar-
höldin að ekki að eins lögreglu-
þjónar hafa þegið mútur fyrir
áðurnefnda greiðasemi við lög-
brotsmenn, heldur og ýmsir sem
þeim standa ofar að mannviröing-
um. — Flest vitnin voru eigendur
illræmdra heimili og báru það!, aö
þeir greiddu lögreglunni viss laun
á mánuði hverjum til aö komast
bjá öllum ónáðum af hennar hálfu.
Höfðu sum vitnanna orðið að
greiða afarháan skatt. — Vínsalar
margir höfðu sömu söguna aö
segja. Lögregluna höfðu þeir
margir keypt til að fá aö selja
áfenga drykki leyfislaust. Einn
vínsalinn bar það meðal annars,
aö hann hefði verið vanur aö
gfeiða 75 dollara á mánuöi fyrir
þessi hlunnindi. Einu sinni fórst
þetta skattgjald fyrir og þá var
hann tekinn fastur. Datt honum
þá þaö snjallræði í hug að leggja
75 dollara í lófa lögregluþjónsins,
oð það dugði; maðurinn var aö
vísu leiddur inn í réttarsalinn, en
jafnskjótt slept lausum aftur,
vegna þess aö nægar sannanir
skorti fyrir sekt hans.
Alsherjar verkfall í
Belg
íu.
Þjóðræðisflokkurinn svo nefndi
í Belgiu haföi fastráðiö aö koma á
allsherjar verkfalli þar í landi á
vori komandi í því skyni að neyða
stjórnina til aðl breyta kosningar-
lögunum og rýmka um atkvæðis
•"étt landsmanna. Horfur eru þó
á, aö til þess kæmi ekki að svo
stöddu, því aö borgarstjórar og
þingmenn hafa heitiö þvi hátíðlega
að gera sitt til aö fá stjórn lands-
ins til aö lögleiða almennan at-
bvæðisrétt hið' allra fyrsta.
í stórviðrunum nú fyrir helgina
sleit upp á vetrarlegu við Stykkis-
hólm tvö skip af Dýrafirði,
“Volanter” og “Island”. Er sagt
að "Volanter” sé mikiö brotinn,
svo aö ekki verði viö hann gert,
en talið, aö við “Island” megi gera,
—Lögrétta.
Uppþot.
Meðan þeir hvíla sig og hætta
að berjast á Balkanskaga, hefjast
kvenréttinda konur handa á Eng-
landi og berjast sem ákafast. Þær
brendu nokkrar járnbrautarstöðv-
ar og reyndu til að kveikja í Brit-
ish Museum, hinu fræga safn-
húsi Breta, og ýms önnur óráð
hafa þær tekið upp. Alþýða er
orðin þeim reið,-og er víöa farið
aö gera þeim skráveifur. | Nott-
ingham héldu þær fund nýlega og
báðu lögregluna að gæta sín á
meðan. Mikill mannfjöldi safn-
aðist að fundarhúsinu og braust
inn á endanum. Var þá ekki aö
sökum spurt, heldur fór allur
söfnuðurinn i áflog, kvenfólk og
karlmenn. Margur fór illa' klór-
aður af þeim fundi, en hattfjaðr-
ir og rifnar flýkur flugu um hús-
ið og var svo lengi, að lögreglan
réði ekki við neitt. Þó tókst á
endanum að koma kvennréttinda
konum í afhýsi nokkurt og þaöan
læddust þær burt á laun. Alt var
brotið inni í húsinu, stólar og borö
og lampar, en loft og veggir voru
svartir af púöurreyk, með því að
púður kerlingar og hvellbelgir með
þefillum efnum, voru sprengdir
þar jafnt og þétt meðan á fundin-
um stóð.
bóginn þykir henni minkun að því
að hafa gengið svo gapalega í
leikinn, að hafa reist höggið eins
hátt og hún hefir gert, og veröa
síðan að lúta i lægra haldi fyrir
mótstöðumönmim sínum á þingi.
Liberalar hafa á hverjum degi
skorað á stjórnina að fresta flota-
málinu og taka á dagskrá önnur
mál, er landinu riður á að liafist
fram, og sendinefndir hafa komið I
viðsvegar að til að skora á Borden'
að gera hið sama. En liann vildi
standa við heit sitt, að brjóta mót-
stöðu liberala á bak aftur, en þeir
•vildu með engu móti láta kúgast,
Þeir hafa staðið af sér þá kúgun-
ar tilraun í hálfan mánuð meö
dæmafáum röskleik og hörku og
forsjá, og beygt hinn harða svíra
stjórnarinnar að' lokum. Stjórnin
gróf öðrum gröf og féll í hana
sjálf. Hún má sjálfri sér um ó-
farir sínar kenna.
Sá maður sem verst virtist þokk-
aður af liberölum og grunaður er
en að hann hafi ekki fengið að
farir stjórnarinnar, er, Hon. Robt
Rogers. Honum er lika kent utn
að hafa viljað ganga enn lengra.
og að hann hafi ekki fengið að
koma sínum hörkubrögðúm að
fyrir öörum. Rogers býst auð-
sjáanlega við kosningum því aö
kosninga berserkir hans úr Mani-
toba. eru nú til hans komnir til
ráðagerða, einkum hóteleigendur
er vel hafa gengið fram meö con-
servativum að undanförnu, svo og
Jackson sá, er hér gekk harðast
fram í Macdonald hneyxlinu, og
þykist sá nú vera “yfirspæjari fyr-
ir alt Canada land!!” En úr því
slíkir eru komnir á fund höfðingja
síns, þykir mega ráð'a, að ekki
muni langt til kosninga.
Sendibréf.
frá T. T. Mordon bónda z'ið
Colgate, Sask., til ceðsta ráð-
herra Canada ríkis, R. L.
Bordcn, dags. 24. Jan.
I9I3-
Prentað í The Grain Growers
Guide, 5. Febr. 1913 fbls. 30J.
Glímuhlé.
Jón Jótisson frá Sleðbrjót þýddi.
Niðurstaðan óviss.
Stjórnin í Ottawa hefir orðið að
ganga á bak orða sinna, þeirra,
að þingfundir skyldu haldnir dag
og nótt, þangað til flotaskatturinn
hefðist frant. Liberalar hafa sýnt
svo rnikla staðfestu og þekkingu á
málinu og svo mikla yfirburði á
þingi, að stjómin hefir séð sitt ó-
vænna og slakað til að nokkru
leyti. Hún þurfti sjálf að fá tóm
til að hugsa sig um, hvað gera
skyldi. Flokkadráttur er sagður í
hennar liði. Mr. Borden lét undan
síga í móti ráði og viljá Rogers
okkar, er beita vildi hörku og Iáta
kné fylgja kviði, og gekk hann af
fundi á laugardaginn með þá sem
honum vildi fylgja, þegar Bord-
en slakaði til. Forseti hótaði aö
gera þingrækan Dr. Clark frá
Red Deer, einn liinn snjallasta
ræðumann liberala; stóðu þá allir
liberalar á fætur og köíluðu einum
rómjj: "Geröu oss alla þingræka!”
Þá lét stjórnin sér segjast, frest-
aði fundi og bar seinna upp önn-
ur mál til umræðu. Hún fann að
hún var yfirunnin og vildi leita
lags til frekari ráðagerða. Nú er
bráðum komið að þeim tíma, er
fjárlög verða engin til, og verður
stjórnin að leita samþykkis liber-
ala til frekari útgjalda frá Apríl
byrjun, en þeir munu tæplega taka
því vel, nema stjórnin hætti alveg
viö að kúga flotaskattinn gegn
um þingið. Er því eitt af tvennu
líklegast: Að stjórnin felli niður
ráðagerð sína um flotaskattinn,
eftir kröfu liberala, ella rjúfi þing
og stofni til nýrra kosninga. Henni
er um og ó. Virðing hennar hefir
ekki vaxiö hjá þjóöinni, allra sizt
frá því í haust, og þykir hún mega
ganga að vísum köldum viötökum
ef til kosninga kemur, en á hinn
Brezka þingið sett.
I vikunni sem leið setti Georg
konungur brezka þingið með
venjulegum reglum. Þ.að gerðist
sögulegt í för konungs og drotn-
ingar til þinghússins að kvenrétt-
inda konur gerðu þeim aðsúg, en
voru teknar höndum, þær er ákaf-
astar voru, en hinar komu engu
fram, og fengu engin loforð hjá
konungi til styrktar sínu, máli. í
þingsetningarræðunni mintist kon-
ungur itarlega ófriðarins á Balk-
anskaga og Iét í ljós, að það væri
von sín, að stórveldin yrðu ekki ó-
sátt sín á milli út af þeim ófriði,
og ennfremur að mikil líkindi væru
til þess, að þau fengju gert rögg-
samlegar ráðstafanir til að flýta
fyrir því að friður kæmist á þar
syðra. Helztu lagaboö, sem kon-
ungur tilnefndi, aö þetta þing
fjallaði um, voru lögin urn heima-
stjórn írlands og lög um afnám
rikiskirkjunnar í Wales.
Kvenréttindi í Alaska.
Einkis þykir nú meir vant í
Alaska en kvenna, og til að bæta
úr þeim skorti hefir þingið þar
samþykt í einu hljóöi mjög frjáls
lög er veita konum fullkomiö
jafnrétti við karla, og náttúrlega
atkvæðisrétt í landsmálum og kjör-
gengi. A þingi landsins setja í
neðri deild 16 manns, en átta í
efri deild og eru allir þeir herrar
ógiftir. Annað til marks um
kvennafæðina er það; að í bænum
Ruby, voru í fyrra 2000 kailar,
35 konur og 12 börn, og af öllum
íbúum telst svo til að fjórir fimtu
hlutar séu piparsveinar. Sagt er
að í Ketchikan séu eitthvað 400
ungir menn, því nær úr öllum ríkj-
um Bandamanna, en enginn þeirra
hefir fengið konuefni til aö fylgj-
ast þangað norður meö sér. Þaö
yrði þvi líklega vandræð'alaust
fyrir stúlkur sem þangað flyttust,
að ná sér i efnilegan eiginmann.
legpa, og höguðu orðum stnum eins
einarðlega og fjandskaparlaust, eins
og þessi “Sléttufvlkjabúi”, er bréfiö
hefir ritað.
Grain Growers Guide ætti að vera
keypt miklu meir, en gjört er af ís-
Ienzkum bændum, því “hlýða skal á
báða málsparta”. Það flytur marg-
ar heilbrigðar og óháðar skoðanir.
t>ýð-
Dó ór svefnsýki.
Nýskeð lézt miðaldra kona í
Rock Island Illinois, úr svefnsýki.
Haföi hún sofið þrjátíu og fjóra
daga samfleytt áður hún lézt.
Margir læknar þar úr grendfnni
höfðu verið tilkvaddir, að lækna
hana, en þaö tókst ekki. Fyrir
fjórtán árum hafði þessi sama
kona fengið samskonar sjúkleik
og svaf þá svo að vikum skifti, en
rétti þó við aftur.
The Rt. Iion. R. L. Borden,
Prime Minister of Canada!
* .3-
Háttvirti herra!
Eg er bóndi, eg læt mér ant um
minn eigin hag, og bændastéttar-
innar. Og eg er borgari Canada-
ríkis, og læt mér annC um heiður
þess, og allra góðra drengja er
þar búa. Og þessvegna dirfist eg
aö ávarpa yður.
Fjöldi bænda í Sléttufylkjunum
hér vestra, á við mjög þröngan
hag að búa f járhagslega. Við
verðum að borga 25% meir en
vera ber, fyrir það sem viö þurf-
um til aö lifa af, og fyrir bú-
slóð okkar. Við borgum 2% til
4hærri rentu af lánum en vera
ætti. Við verðum að borga langt
of hátt flutningsgjald með járn-
brautum, Og við erum í vandræð-
um meðl að fá markað fyrir afttrð-
ir okkar. í stuttu máli, við verö-
um að borga afarháan kostnað
framyfir það sem bændur í öðr-
um landshlutum borga, en fáum
þó ei hærra verð fyrir afurðir
okkar, eftir aö við liöfum borgai
flutningsgjald svona hátt, meö
járnbrautum yfir hálft landið. Og
þetta flutningsgjald verðum við að
borga, þvi alt það er við verðutn
að kaupa, til að vinna að fram
leiðslu afuröanna, þurfum viö aö
fá flutt, meö brautum þeirra
flutnings gróöa félaga. Hvorki
þér eða neinn annar, sem þekkir
til þessa máls getur neitað því, að
framanrituð sögn, sé rétt hermd.
Þér þckkið’ vel a,*.r feikn af fé
ltefir safnast í þessu ríki næstl. 30
ár. Þér vitið vel, hverjir hafa starf-
að að.þessu auðsafni, og hver hefir
lagt frani féð til þess. Yður er ef-
laust ljóst hvaða málum þarf að fá
framgengt. til þess aö allir hafi jafn-
rétti. Og því ber eg frain fyrir yður
þessa spurningu: Viljið þér vinna
að framgangi þessara mála?
V7ið eruni ámintir um að ala upp
gripi og selja þá, en rækta minna
korn, til þess að viðhalda frjómagni
lands vors. Ástæður okkar neyða
okkur til að fylgja okkar gömlu í-
haldssömu stefnu. gætninnar og spar-
seminnar $tefnu. Efnaðir Ontario-
bændur, er flytja hingað, breyta
búskaparlaginu, samkvæmt tímans
kröfum. Það þarf langan tima tíí að
koma uppp gripum, girða lönd ín og
byggja hús- Breytingar yðar á
bankalögunum nægja ei. Þegar viö
höfum komið upp gripuni, þá er svo
langt frá liðið að hin mikla eftirspurn
sem nú er, er þá horfin.
Þegar búskapur okkar hér, er kont-
inn í það lag sem vera ber, þá er
verð gripanna fallið, af þeirri ástæöu
að þá verðuni viö að selja afurðir
gripanna til annara fíkja, að miklu
leyti, og erlend kaupskaparlög fá þá
vald yfir verðinu á markaði okkar;
þá höfum við svo mikla gripi, að við
gætum fylt upp með keti, öll stræti
uppvaxandi bæjanna í rikinu, svo i-
búar þeirra sæju ekki sólina út um
gluggana sína.
Manni f yðar stööu, ætti aö vera
það ljóst, aö engin þjóð getur blómg-
ast og blessast, ef löggjöfin i landinu
vinnur að því að hefta framfarir mik
ils lihita þjóðarinnar, á saknæinan
hátt. Viö höfum sterkar gætur áyð
ur; stjórn yðar, i hvaða átt þér stefn-
ið- Við getum, bráðum séð það, hvort
þér eruð göfugur stjórnmálamaður,
á sama hátt og Abraham Lincoln, eða
þér eruð einn af þessum stjórnmála
mönnum, sem haltra til beggja hliða.
og allir óska að geta gleymt sem
fyrst.
Yðar einlægur
T. T. M.
Fyrir mörgum árum síðan, var eg
á ferð í Seyöisf jarðarkaupstaö, meö
Þorvaldi heitnum Kerúlf lækni. Við
mættum þar á förnum vegi, Eiríki
bónda Guömundssyni frá Brú á Jök-
uldal, og áttum tal viö hann um stund
Eirikur var höfðinglegur á velli
fremur vel greindur, þýður í viðmóti
og lét lítið yfir sér, en halda vildi
hann réttti sínum, við hvern sem um
var aö etja. — Þegar Eiríkur var
nýgenginn frá okkur, sagði Þorv
Kerúlf: “Svona vildi eg allir is
lenzkir bændur væru í framgöngu,
eins og hann Eiríkur á Brú”. —
Mér duttu þessi orð Þorvaldar í hug,
er eg las framanritað bréf, og óskaöi
í huga mér aö allir Vestur-íslenzkir
bændur, hugsuðu eins skýrt og skarp-
National Transconti-
nental
brautin verður væntanlega fullger
milli Ouebec og Wpg við' næstu
áramót, eftir því sem aðalverk-
stjóranum O. Brien segist frá.
Kveðst hann búast við að geta lát-
ið 4,000 menn fylgja sér að vinnu
á því 750 mílna langa svæði, sem
enn er ólagt af brautinni, það er
aN segja, ef hann geti náð í svo
mikinn mannafla. Ef ófriðnum á
Balkanskaga linni telur hann litl-
ar bægðir munu verða á því, því
að þá muni margir þeirra manna
aftur hverfa í vinnu til hans, sem
frá honum fóru síðastliðið haust
í stríðið. Voru þeir eitthvað sex
hundruð sem austur fóru þaðhn,
til að. berja á Tyrkjanum.
Konungur Grikkja myrtur.
Á Balkanskaga
gerir hvorki að reka né ganga.
Adrianopel er ótekin enriþá og
Scutari, og vopna viðskifti eru
varla teljandi, sem orðið hafa
vikunni. Bandalagsmenn halda
fram hinum sömu kröfum og áö-
ur, en Tyrkir hafa lagt alt sitt
ráð í hendur stórveldanna, og er
svo að skilja, sem þau eigi að
skera úr. Ekki mun það hafa
fengist nauðungarlaust af Tyrkj-
um, því að herskip stórveldanna
liggja vigbúin fyrir Miklagaröi og
hafa fengið skipun um að skjóta
á borgina, ef þar komi til óeirða.
Það mun láta nærri að stjóm
Tyrkja sem nú er, muni ekki þora
að láta stór lönd af hendi, fyrir
lýðnum, og búist viö upphlaupum
ef það vitnast, aðl hún hafi gefið
sitt samþykki þar til. Þó er vant
að geta til, hvað bakvið tjöldin
gerist, með öllum þeim stórveldum
og smáveldum, sem hafa hönd í
bagga í þessu máli, en friðlegar er
látið sem stendur, heldur en áður
hefir átt sér stað. — Komin er á
loft misklíð milli Grikkja og
Serbíumanna annars vegar og
Búlgara hins vegar, útaf því
hvernig skifta skuli löndum Tyrkj-
ans, og er ekki laust við aðl til ill-
inda hafi komið meö þeim á sum-
um stöðum.
A þriðjudaginn var Georg
Grikkja konungur myrtur í Salon-
ika þeirri borg er Grikkir
unnu af Tyrkjum í vetur. Kon-
ungur hafði dvalið þar síðan um
jól, til þess að vera nærri her-
stöövum, og drotning hans sömu-
leiðis, til að stjórn hjúkrun sjúkra
manna. Morð konungs varð með
þeim atburði, að. maður hvarflaöi
að konungi þar sem hann gekk) á
götu með einum fylgdarmanni, og
skaut hann í hjartastaö. Konung-
ur féll við í faöm fylgdarmanns-
ins, en fólk kom að úr öllum átt-
um og tók morðingjann. Konung-
ur var fluttur viöstöðulaust til
spítala, en var látinn, þegar þang-
að kom. Morðinginn lézt vera
allri stjórn andstæður, þegar hann
var spurður um hvatirnar til
morðsins. Hann er grískur að
uppruna, sagður fávtsl og mikfð
illmenni, sem næfri má geta. —
Ríkiserfingi tók konungdóm eftir
föður sinn og nefnist Constantine
fyrsti. — Alexandra ekkjudrotn-
ing er mjög sorgbitin yfir afdrif-
um bróöur síns, er hún. unni mest
bræðra sinna. — Gott orð fær hinn
látni -konungur í blöðunum fyrir
starf sitt í þarfir Grikkja.
Hinn látni konungur var næst
elztur af sonum Kristjáns 9.
Danakonungs, og var kallaöur
prins Vilhelm, áður en Grikkir
kusu hann til konungs yfir sig,
eftir að þeir gerðu Otto konung
landrækan. I>að var árið 1862.
Kona hans var af keisara ætt
Rússlands, bróöurdóttir Alexand-
ers keisara 2. og hét Olga, og áttu
þau sonu nokkra, er líkjast í móð-
urætt, menn stórir og skapmiklir.
Hinn elzti þeirra heitir Constan-
tine og er giftur Sophiu, systur
\ ilhjálms Þýzkalands keisara;
hann heffir stjórnað herferö Grikkja
hinni síðustu og gefist vel.
Georg konungur var góðmenni
og lipurmenni, sem þeir ættmenn,
Bygginn í fjármáíum og varfær-
inn, þurfti líka.einatt á því aö
halda, ella hefði hann tæplega
haldið kónungdóm, allan þennan
tíma, hjá hinum vanstiltu Grikkj-
um, meö þeim flokkadráttum og
óróa, er þar. hefir löngum legið í
landi. ...
1 margan fýsa að koma á samkomu þá
er hún hefir efnt hér til.
Mrs. R. Marteinsson, sem dval-
ið hefir á heilsuhælinu í Ninette
frá því í fyrra haust kom heim til
sín á laugardagskveldið var með '1:111
manni sínum, er sótti hana vestur.
Heilsa hennar kvað1 hafa batnað
mjög mikið vestra.
Kvenfélag Fyrsta lúterska safnað-
ar biöur þess getið, að það hafi fast-
ráðið aö halda bazar á hausti kom-
andi, og verði tilhögun hans svipuð
því, sem aður hefir verið. Þetta eru
kvenfélagskonurnar beðnar að haía
hugfast-
Næsta sunnudagskveld kl. 7 verð-
ar guðsþjónusta í hinni islenzku
Kirkju á Burnell stræti viö suðurenda
Alverstone strætis. Séra Rúnólfur
Marteinsson messar.
í Mexico
Nú fer aö líða að því tækifæri,
að menn geti farið i hóp til Gra-
ham eyjarmnar. Frá þvi er sagt
annars staðar í blaðinu, og bend-
ist lesendum hérmeð á þá auglýs-
ing.
Tollar lækka.
Aukaþing hefir hinn nýkjörni
forseti Bandaríkjanna kallaö sem-
an í byrjun April mánaðar. Aö-
al verkefni þess aukaþings er það,
aö lækka eða afnema með öllu
hina háu verndartolla, sem á öll-
um varningi liggur, sem inn í
Bandaríkin flyzt. Um þaðl eru
nijög skiftar skoðanir, hversu mik-
ið skuli rjúfa af tollmúrnum. Sum-
ir vilja afnema tollana með öllu,
og koma á tekjuskatti til þess aö
bæta upp halla ríkissjóðsins, og
að vísu er búizt við, að til þess
komi áður en lýkur. Lágtolla
menn segja sem svo, að engin iðn-
aðargrein þurfi vemdartolla viö,
nema þær sem er svo klaufalega
stjórnað, aö þær eiga enga vernd
skilið, og þær sem eru í höndum
stóreflis félaga, er vilja halda
prísum u}>p úr öllu valdi til að
sjúga út almenning, og séu því
blóðsugur á þjóðinni. — Mjög er
sú barátta talin verða hörö, er um
þetta mál verður háö á þingi, með
því aö voldugir menn standa meö
verndartollunum, er leggja sig alla
frain til að halda þeim.
Það er sagt að Alex McMicken
lögregludómari hafi nýlega sagt af
sér embætti sínu; hefir hann haft
dómarastörf á hendi í 12 ár. Hann
tekur nú fast að eldast, er hálf
áttræður og einn af frumbyggjum
þessa bæjar.
segir enn af vígaferlum og her-
virkjum. Hin nýja stjóm er öðru
vísi sinnuð heldur en Madero var,
varla lét víg vega í sinni
stjórnartíð, enda varð honum aö
því. Huerta og Diaz ætla sér auð-
sjáanlega að fara aö upp á gamla
móðinn, sem lengi hefir við geng-
ist i Mexico, aö ganga á milli
bols og höfuðs á mótstööumönnum
sínum, og sálga hverjum sem ekki
snýst til fylgis við þá, og þeir fá
færi á. Lengi hefir veriö talaö um
þaö í blöðum, aö Bandaríkin ættu
aö skerast í leikinn, til þess að
taka fyrir lagaleysi og illvirki i
landinu. En til þess er lítil von.
Mexico er afarstórt land, álíka og
fjórðungur Bandaríkjanna, fjöll-
ótt og torsótt, en landsfólkið hart
og óþýtt, /vant vopnaubrði, og
mundu flokkar þeir, er nú berast
á banaspjótum, vafalaust snúast
sem einn maður gegn þeim útlenda
her, er á landið herjaöi. Því mun
stjórn Bandaríkjanna í lengstu lög
skirrast við að skerast i leikinn
með vopnum, þó að ekki vanti þá,
er þess eggja.
Frá íslandi.
Fjöldi innflytjenda flykkist nú
vestur á bóginn, bæði frá Evrópu
og annarstaðar. Frá Ontario eru
um þúsund bændur á leiöinni til
Sléttufylkjanna, flestir vel efnaðir.
Kaupmaöur einn ai Gyöinga
kyni var settur inn í 18 sinn einn
daginn fyrir óþrifnaö í matvæla-
búð sinni; hann var sektaður í 17.
sinnið, 10 dala sekt.
A laugardaginn dó í Foam Lake
bygð, einn af myndarlegustu bænd-
um þess bygöarlags, Guðbrandur
Narfason, maður við aldur; lætur
eftir sig konu og börn. Hans
verður væntanlega getið ítarlegar
síðar.
Úr bœnum
Próf. Sveinbjörn Sveinbjömsson
er væntanlegur hingað til borgar um
mánaðarmátin næstu, og heldur þá
söngsamkomu hér í borginni og því
næst út í íslenzku nýlendunum hér í
grendinni.
5. f. m. voru þau Oli Ólafsson
og Helga Goodman, bæði frá Sel-
kirk, gefin saman í hjónaband hér
í bænum. Dr. Jón Bjarnason gaf
þau saman.
Vestan úr Aðalvík er þetta rit-
að:
“Aðalvikingar eru einkennilega
fastheldnir við gamlar siðvenjur
og kreddur. Til dæmis halda þeir
helgar allar Maríumessur, Jóns-
messu og Allraheilagramessu. Eng-
um dettur í hug að fara á sjó þá
daga.”
Kunnugur maður um þær slóðir
kveður Aðalvíkinga tæpast svo
gróna í gömlum siðum. Hitt vissi
hann að fyrir kom það hér á ár-
unum einusinni, að setið var í
landi af því aö1 menn væntu heims-
slita þann daginn. Var þá bóndi
á Sléttu í Aðalvík; Hermann Sig-
urðsson, hinn gervilegasti maður,
gliminn vel og manna friðastur
sýnum. Hann var svili sér Jóns
Eyjólfssonar á Stað í Aðalvik, afa
Rögnvalds húsameistara, en dóttir
Hermanns var gefin Brynjólfi
hreppstjóra Þorsteinssyni á Sléttu.
Þennan heimsslitadag reri Her-
mann einr. Aöalvíkinga, og kvað
ekki verra aö taka dómsdegi á sjó
en landi.
Þau Þórður Ólafsson og Guö-
í árslokin 1912 eiga kirkjur í
hinum almenna kirkjusjóð 116
rún Arnadóttir frá Vita Man , voru þús. kr. Innborganir voru á árinu
gefin saman i hjónaband að 646
Agnes St., 6. þ. m. Séra R. Mar-
temsson gaf þau saman.
Miss Jóhanna Olson, píanókennari
heldur “recital” með nemendum sín-
um í Goodtemplarahúsinu mánud 7
Apríl- Prógram síöar. Miss Olson
hefir þegar fengiö orö á sig fyrir að
vera góður píanókennari og mun
Herra Chr. Benson frá Point
Roberts og Þórður Kolbeinsson
frá Saskatchewan, lögöu af staö
heim til íslands á þriðjudaginn
var. Hinn fyrnefndi hafði ætlað
aö setjast þar að, en hinn væntan-
legur vestur aftur.
11 þús., útborganir 3 þús., lán 13
þús. Þrír hlutir sjóösins eru í
láni hiá 67 kirkjum.
—Nýtt Kirkjublaff.
Það er nú orðið umtal um aö
Englendingar fái aö setja upp loft-
áburöarverksmiðjur viö Sogfoss-
ana, hvaö sem úr því veröur.
—Lögrétta.