Lögberg - 20.03.1913, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 20. MARZ 1913
r
Eru sérstakar
í sinni röð
Þaer kosta aðeins litið eitt meir en
bær sem ódýrastar eru, en spara
helmingi meira og endast fimm sinn
um lengur en aðrar skilvindur
Þær borga verðið sitt á hverju
misaeri, i saman-
burði við það að
láta mjólkina setj-
ast og á hverju ári,
8amanborið vi ð
aðrar skilvindur.en
kaupa má þær fyr-
ir peninga út í
hönd eða með svo
sanngjörnum skil-
málum að þaer
borga fyrir sig sjálf
ar með því sem þær spara.
Hver af þessum fullyrðingum er
sannanleg og áþreifanleg, sem hver
og einn getur gengið úr skugga um
með því að fara til nsesta De Laval
umböðsmanns eða með því að skrifa
beint til félagsins.
Enginn með viti, er skilvindu þarf
aetti að kaupa aðra en De Laval.
DE LAVAL DAIRY SUPPLY CO. Lm.
WIMNIPEC. V^NC0UVEf(. MONTREAL.
PETERB0R0
Alþýðuvísur.
Eg hefi haft mjög gaman af aö
Usa allmikiö af tækifærisvísum
þ«jm, sem Lögberg hefir birt á
undanförnum tíma, og dettur mér
því í hug aö leggja orð í belg og
auka viö nokkrum sem eg lærði á
minum ungdæmis árum.
Um kvenfólkiS.
Um 1840 var maður sá er Tóm-
as hét og var Sigurösson, á ýms-
um stööum í Skagafiröi, um einn
tima á Brenniborg. Tómas var
hagmæltur vel, og lét oft fjúka í
kveölingum og meðal annars orti
hann eftirfarandi vísur um kven-
fólkið:
Til hvers er aö elska sprund
eöa manni gifta
utan þig á einni stund
anægjunni svifta.
Mörg af sprettur mæöa þeim
menn sem drepur bara
fundið get eg fátt í heim
fljóöum vanstiltara.
Mig ef vildi menjavist
mjög til elsku teygja
3e, þá skyldi eg sem fyrst
óska mér að deyja.
Aldrei skal eg elska fljóö
aldrei hjá þeim sofa
ald'ei giftast auöar slóö
aldrei mig trúlofa.
Mín ef lítur ljóöin treg
linna skriða foldin
i'ún mun segja, hugsa ég:
— hvernig lætur rnoldin!
En iTómasi svaraði aftur Egg-
ert Jóhannsson, móðurbróöir Egg-
erts Jóhannssonar, fyrrum rit-
stjóra Heimskringluj:
Mér eg greini barst í blund
beðs í leyni um næturstund
það á einum þófahund
þóttist reyna ferö um gmud
Mig að dala bygöum bar •
bröndungs sala grundir þar
sá eg hal og flóöa far
fimur hjala og smíöa var.
Löndumgs eyja lundur rar
Ijóö um teigja stúlkur var
lastaði freyju liljurnar
langt úr vegi hófsemdar.
Hreldar urðu hringfoldir
hvaö ei furöa þótti mér
þær um spuröu ef vildum vér
vitnisburöinn gefa sér.
Eg ei klæða brikum brást
bragar ræöur viö aö fást
þeirra gæði er lýöum ljást
láta í kvæðum mínum sjást.
Eg svo mynda mál um þær
mínum synda þönkum fjær
dygöug yndi manns er mær
mörgum hrinda raunum fjær.
Ei þarf niöa fljóöin fín,
firöar hlýöi ræðu mín,
hittist viöa hringa lín
höfuið prýöi bónda sin.
Glaðar, fríöar, gáfaðar,
geðs með blíðar stillingar
dregla hlíðir dygðugar
dýrst er prýði veraldar.
Heims eg hliðum auðar ann
óska tiöum líka kann:
að hver bliðan eignist mann
e> sem niðing fávitran.
Misjafnt góð í sjálfri sér
sýnist þjóðin vera hver
almabjóöar ótryggver
eins og fljóöin viröist mér.
Leir sem rarta blossa bfl
breitni lasta hafa til
aungar fast eg undan skil
á né kasta steini vil.
Þá gegndi Tómas aftur;
Þú sem óðar keyrðir knör
köldum móði hlaðinn,
þér skal bjóðast þels úr vör
þessi ljóð í staðinn.
Opinbera þá skal þig
en þegi vera hulin
ef þú fer að ýfa mig
ei mun þér ódulin.
Er þig brestur ekki þá
óðar nestis mali
rið þú hesti öldum á
inn í vestur dali.
Skeifna ljóniö skarp vakra
skálda um fróniö ýttu
en ekki á hrjónum hortitta
hugar skónum slíttu.
Kvæði hasta þínu þá
þú n lasta seggi
þykist kasta engan á \
úlfa rastar neggi.
Þér af góöum þanka stig
þökk mun bjóöast gefin
Hka fljóöin faömi þig
fyrir ljóöa stefin.
Minna vegna meiöma grér
máttu fregna letur
ef þú hegna ætlar mér
eg skal gegna betur.
Um aldamótin 1800, bjó sá mað-
ur á Rein í Haganesi í Skaagfiröi
er Eyjólfur Pétursson hét og orti
hann eftirfarandi vísur og er upp-
hafsstafur vísnanna nafn hans:
Eftirlætis ununin
af þér mætust kemur
þó hart mig græti hörmungin
hjartans sæti Jesú minn.
í þínu skjóli frelsi eg finn
hrifiö róliö nauða
aö lambsins stóli leiö mig inn
líknar sólin Jesú minn.
Upp á þýðan almátt þinn
eg vil blíðan vona
taka, bíða og biðja um sinn
böl hvert líða Jesú minn.
Líknar gæöa lausnarinn
láttu mæöu dvina
veit mér ræða um vilja þinn
voldugur hæða Jesú minn.
Frels mig þjáðan forlitinn
fegurst sáðið meyja
syndum þjáðan sorgbitinn
samt mig náða Jesú minn.
Upphrópandi i sérhvert sinn
sí biðjandi hljóður
að forþénandi ströffun stinn
stýr frá grandi Jesú minn.
Rétt eg sveima ráöþrotinn.
ríkdóms eim ei safni
æ mig geymi andi þinn
frá illum heimi Jesú minn.
Píndur bæöi og blóðrunninn
blessaður gæða herrann
sárheit, mæða og sveiti þinn
sé mín ræða Jesú minn.
Enn eg skal í sérhvert sinn
í sorgar dal þó hjari
minnast kvala þunga þinn
og þig um tala Jesú minn.
Til legg fríður frelsarinn
fögnuð mínu hjarta
hrygð þó píni hugurinn
harm lát dvína Jesú minn.
Unda blóö þitt æ hvert sinn
um mig rjóöra gjöröu
þá vill að hnjóöa veröldin
veit hjálp góða Jesú minn.
. w.r
Ringan trúar reir stafinn
rétt virzt þú að styðja
að mér búa bezt hvert sinn
og bjarg af lúa Jesú minn.
Sé þitt blóð mín svölunin
sem þér flóði af hjarta
dýr mig rjóöi dreiri þinn
' Drottinn góði Jesú minn.
Sífelt þreyi eg sorgbitinn
samt skal feginn bíöa
nauö þótt beigi náö eg finn
á nátt og degi Jesú minn.
Ó, að mæöu angistin
öll þá næði dvína
fengi eg gæða friðinn þinn
og fögnuð hæöa Jesú minn
Nafn mitt ætíö, sérhvert sinn
sé þér mætum falið
í göngu, sæti, út og inn
að mér gæti Jesú minn.
Baldvin Jónsson kvað:
Hvað mun taka þar við þá
þrauta hálu skeiði
Veöramóti vik eg frá
í vistina út aö Heiði.
Slögótt gæfu gengur hjól
grýttan hæfir stiginn
minnar æfi mo’-gun sól
meina gnæfir stiginn.
Unan breitt i ófögnuð
óláns steitti á skerl
Eg er þreyttur, það veit Guö
þó ei neitt á beri.
Upham, N. D. 1913.
Jóhanns Magnússon.
Frá fyrri árutn.
1 9. blaði Lögbergs eru birtar
nokkrar vísur, sem kveðnar voru
í tilefni af draum, sem mann einn
dreymdi litlu fyrir dauöa sinn.
Þrjár af vísum þessum, — eins
og þær voru upphaflega, — eru
fallnar úr, og höfundur þeirra ekki
nefndur sinu réfcta nafni. Af því
rnaður þessi var mér skyldur, þá
vil eg aö þessi draumvitraða
dauðaspá komi öll, og óbreytt fyr-
ir almenningssjónir.
Eg vil því leyfa mér að gefa
nokkrar upplýsingar máli þessu
viðvíkjandi, ef ritstjóri Lögbergs
vill gera svo vel, að veita þeim
viðtöku.
Sá sem drauminn dreymdi, og
vísur þessar kvað, hét Ólafur Þor-
steinsson. Hann mun lengst af
hafa dvalið í Sighifirði og Héö-
insfirði í Eyjafjarðarsýslu. Þegar
hann dó, mun hann hafa verið bú-
settur á Ámá í Héðinsfiröi. ólaf-
ur var annálaður atgerfis maður,
bæöi til líkama og sálar; náttúru-
greindur og skáldmæltur i betra
lagi; glímumaður svo mikill, aö
engir stóðu honum á' sporöi í
þeirri íþrótt, hamhleypa til allra
verka og sjómaður meö afbrigö-
um. Þannig var honum lýst af
þeitn sem þektu hann.
Faðir minn og Ólafur voru ná-
frændur, og hélst með þeim vin-
átta. —
Á þeim tímum var hákarlaveiði
mikiö stunduð af Eyjafirði og
Siglufiröi, því hákarlalýsi var þá
í mjög háu verði. Ólafur var á
skipi því er nefnt var “Haffrá”
fekki HaffrúJ. Sá sem fyrir því
skipi réði hét Þorsteinn Þorvalds-
son fekki Þorvaldur ÞorvaldssonJ
sonur Þorvaldar ríka Vigfússonar
á Dölum í Eyjafjarðarsýslu. Voru
þeir bræöur vanalega nefndir Dala-
bræöur og víða þektir. !Þeir
voru skyldir Ólafi og föður min-
um. Sex voru þeir aö tölu og
hétu svo: ÞoAteinn, Páll, Jón,
Jóhann, Bjöm og Vigfús. Mikiö
orð fór af þeim bræörum fyrir;
dugnað og sjógarpar voru þeir
miklir. Þó mun Páll hafa verið
þeirra mestur, þegar til alls kom.
Sterkastir voru þeir taldir Björn
og Jtóhann og margar sögur heyrði
eg af aflraunum þeirra; líka sá eg
nokkur hreysti tök til Jóhanns,
því eg var honum samtíöa til sjós
og var hann þó kominn þá á aft-
urfara aldur. Sonur hans Oddur
hefir verið skipstjóri um mörg ár,
og ætíö talinn þar í helztu röð.
Betri og vandaðri menn, hefi eg
ekki þekt. Vigfús var sá eini af
þeim bræðrum, sem ekki varö að
manni. Hann óx ekkert eftir
þriggja ára aldur, nema höfuöið.
Hann var því ósjálfbjarga aum-
ingi alla sína æfi og vitkaðist ekki.
Þjóðtrúin áleit hann umskifting
eða annarlega veru. liann varð
ekki gamall Jón þekti eg bezt af
þeim bræðrum. Hann bjó lengi í
nábýli við foreldra mina; eg var
hjá honum fyrstu þrjá veturna,
sem eg fór til hákarlaveiða. Hann
var heppinn aflamaður, og sjó-
maður hinn mesti. Nú eru þeir
bræður allir dauöir.
Þorsteinn var giftur Guönýju
Björnsdóttur frá Vík í Héöinsfiröi.
Þau áttu einn son, sem heitinnl
var eftir föður sínum. Hann mun
hafa fæðst um sama leyti og faðirj
hans dó. Hann er nú búsettur í |
Skagafirði á íslandi. Seinna gekk
Guöný að eigi Jónatan Jónatans-
son frá Reykjarhóli í Austur
Fljótum í Skagafjaröa'sýslu.
Þeirra son er Jlón Jónatansson á
Gimli.
Eins og áöur er frá, sagt, var
Ólafur á “Haffránni” hjá Þor-
steini frænda sínum. í>að skip
átti Björn í Vík, tengdafaðir Þor-
steins. Þeir sigldu út af Siglu-
firöi aðfaranótt þess 14. apríl, —
árið get eg ekki tilgreint, þvi eg
var þá ekki fæddur; en það hefir
hlotið að vera litlu eftir 1860.
Veður hafði veriö heiðskýrt, nema
þykkur móðubakki til hafs. Seinni-
part nætur gerði voöalega stórhríð
með frosti miklu og fannfalli.
Heyrði eg fööur minn oft minn-
ast á, hvað það veður hafi veriö
ægilegt. Hann var þá ógiftur
hjá föður sínum, Jóni Ólafssyni,
er lengi bjó á Sléttu í Austur
Fljótum. Faðir minn var á skipi
er “Bhðhagi” hét. Þeir lágu við
land þá nótt, og hlektist ekkert á.
Strönduðu víða skip í þeirri hríð.
og fjárskaðar urðu mik’ir á landi,
því vel hafði viðrað áður, svo víða
var búið að sleppa sauðfé.
Skipið “Haffráin” brotnaði
spón austan á tánni á skaga þeim,
er gengur fram milli Skagafjarðar
og Húnaflóa. Líkin fundust öll
á landi uppi, og voru jarðsungin
á Ketu á Skaga.
Þennan umrædda draum
dreymdi Ólaf seinasta veturinn
sem hann lifði. Gaf hann föður
mínum vísurnar uppskrifaðar, litlu
fyrir andlát sitt. Drauminn réöi
hann sjálfur þannig, að hann
mundi drukna það vor. Handrit-
iö glataðist hjá föður mínum, en
vísurnar lærði eg af honum.
Voriö 1897 var eg á skipi, sem
oftar; Kom eg þá eitt sinn á
Hraunsvík á Skaga, og heim að
bænum Hrauni sem stendur fast
v:ð víkina. Hitti eg þar aö máli
gamlan mann, Jónas að nafni.
Kunni hann frá mörgu að segja, og
tóluöumst við viö um hríö. Hon-
um var kunn þessi sorgar saga.
Kvaðst hann fyrstur hafa fundið
þá félaga, og sá fundur liöi sér
r'drei úr minni. Sagði hann, að
óeraö heföu þeir allir komist lif-
andi á land, þvi þeir hefði legiö
hver viö annars hlið, ellefu aö
’.olu, nokkra faðma fyrir ofan
sjávarmál. Eins og gefur aö
skilja voru þeir allir sjóvotir, og
meira og minna lemstraöir. Þann
tólfta sagðist hann hafa fundið
lengra á landi uppi. Mundi hann
hafa ætlað aö leita bæja, en ekki
komist lengra. Falliö þar í faöm
dauðans, með hægri handlegginn
brotinn. Vitnaöist þaö seinna þeg-
ar nöfn mannanna urðu kunn, aö
það var Ólafur, því sum föt hans
höföu veriö merkt.
Þeim var búiö hvílurúm í kirkju-
garðinum á Kétu. Þar sofa þeir
óáreittir af 'hinum æöandi öldum
hafsins; sex i hvorri &röf.
Msurnar þrjár, setn á vantaði
eru þannig:
Mér var tíðin myrkra aum
meöur svefna vímu,
þegar slikan dreymdi draum
dags fyrir litla skímit.
Hrepti skaöa múgur manns,
meður skepnum sínum.
Sá eg eld af örfuin hans
inst í klæðum mínum.
Geröist eg í geöi óhress,
greitt til kenna mundi.
Viö Umbrotin verkjar þess
vann eg létta blundi.
Björn Pétursson.
Þessar vísur eru eftir Skúla a
Meyjarlandi; hann var vel hag-
orður og vísur hans eiga það skil-
ið, aö þær falli ekki í gleymsku:
Bak við hnúkinn hályftan
hvít með jökultröfin,
kemur dýra dagstjarnan
Drottins líknar gjöfin.
Lifna runnar lýsu grund
lítt á gárar skeri,
morgunstjarna um stilta stund
strýkur tár af gleri.
Vottinn snjáa virðum gaf
vinda þráa kliður,
flugur gráar fleygjast af
fjalli háu niður.
O. J. 0., Glenboro.
j\JARKJBT JJOTEL
Vi6 sölutorgiö og City Hall
$1.00 til $1.50 á dag
Eigandi: P. O’CONNELL.
633’ Notre Dame Phone C. 518D
REX
Custom Tailors
og FATAHREINSARAR
Vér höfum nýlega fengiö
ljómandi úrval af vor og
sumar fata efnurn á
$18 til $40
Ef þú vilt vera vel búinn, þá
komdu til okkar.
Karlmannaföt hreinsuö og
saumuC upp og gert viö
þau. KvenfatnaC sér-
stakur gaumur gefinn,
REX CUSTOM TAILORS
Cor. Notre Dame and 8herbrooke 81.
Phone: Gnrry 6180
Nœet Steen's Dry Ooods Storo
Þegfar eg geng út og inn
og ekkert hef að gera
hugsa eg um Hringinn minn
hvar hann muni vera.
Mig langar að senda Lögbergi
fáeinar vísur, sitt úr hverri átt-
inni, eg kann ekki aö ættfæra neina
þeirra:
Alt cr hendi þinni þjált
það er oss himin tjáöi,
eins og gjöri alt sig sjálft
æðsta þó meö ráði.
Eg er sestur upp í hom,
ástir þínar fala
kærleiks búiö kvæöa korn
kendu mér að tala.
Alargur slórir máttlinur
maður Hfs á vegi
þetta tórir Þorgerður
þó að aðrir deyji.
Mrs. Helga Johnson.
Ýmislegt um Akureyri.
ALLAN LINE
Konungleg Póstgufuskip
VETRAR-FERDIR
Frá St. John og Halifax Frá Portland
til til
Liverpool og Glasgow Glasgow
FARGJOLD
A FYRSTA FARRÝMI....$80.00 og upp
A Ö»RU FARRÝMI........$47.50
A pRIÐJA FARRÝMI......$31.25
Fargjald frá íslandi
(Emigration rate)
Fyrir 12 ára og eldri..... $56.1«
“ 5 til 12 ára......... 28.05
“ 2 til 5 ára........... 18,95
“ 1 til 2 ára........... >3-55
“ börn á 1. ári.......... 2.70
AUar frekari upplýsingar um gufuskipaferðirnar, far-
bréf og fargjöld gefur umboðsmaður vor H. S. BARDAL
horni Sherbrooke og Elgin, Winnipeg, sem annast um far-
gjalda sendingar til íslands fyrir þá sem til hans leita.
W. R. ALLAN
304 Mmln St., Wlnntpeg. ASalumboðanuiðar Teatnnlnnda.
Þessar vísur eru kveðnar af
Jónasi nokkrum frá Torfumýri í
Skagafirði:
Lýð af flestum lofaður
lands um norður sveitir
eldis hestur ágætur
einhver mesti snillingur.
Hár og þrekinn, hringmektur
Hjaltastaða Neisti,
burðafrekur, bráðvakur
beisladreki rauðjarpur.
Kyrð ei unir kappsfullur
kosti fús að sýna
ört fram brunar eldléttur
undir dunar skeiðflötur.
Neisti friði fram brtmar
falli kvíðir ekki,
frár sem líði lofteldar
létt um víðan stjörnu mar.
Búkinn teygir taumlipur
traustan sveigir makka,
hálsinn beygir háreistur —
hann er eigi fótstirður.
Svo er þýður sööla knör
sannri prýði búinn
frá sem Hði álmi ör
ógna striða meður för.
Yfir keldur, fen og flá
fer sem hvirfil bylur
grýttu veldi geysar á
gusar ddi steinum frá.
Yndi þjóðumi er að sjá
auk þá heldur reyna,
þegar flóða funa gná
fáknum góða situr á.
Hvar um strindi fer með fljóð
fákur myndarlegur
hepnist linda hýrri slóð
hesta indæl prýðin góð.
Þetta var kveðið um reiðhest
1 Helgu frá Hjaltastöðum í Skaga-
firöi:
Mig fýsir mín sé förin greið
fák á sit eg hröðum
þegar eg bregð mér bæjar leið
burt frá Hjaltastöðum.
Það heyrist stundum talað um
að Akureyri sé annar stærsti bær
á Islandi og höfuðstabur Norður-
lands og þar fram eftir götunum.
En þótt Akureyri eigi að heita að
standa Reykjavik næst, er þó
munurinn ákaflega mikill á þess-
um bæjum, þar sem Akureyri er
lítið meira en 1-6. á móti Reykja-
vík að höfðatölu og Iiklega er mun-
urinn meiri hvað árstekjur og
eignir sne^rtir Reykvíkinga og Ak-
ureyrarmanna. Þegar verið er aö
tala um, að Akureyri verði að fá
þetta eöa hitt, leggja í þennan eöa
hinn kostnaö til aö gera lífiö þægi-
legra fyrir bæjarmenn, af þvi að
það sé þannig í Reykjavík, verða
menn þó vel að athuga tnismun
þessara bæja og hve miklu meira
gjaldþol til almennra þarfa
Reykjavík hefir. Það1 sem er og
sérstaklega athugavert við þrána
eftir að líkjast Reykjavík, er að
sjávarútvegtir og launaðar em-
bættissýslanir hafa stórum aukist
í Reykjavík síðustu ár, einmitt
þau árin, sem Akureyri hefir svo
að segja staðið í stað, og svo er
hafnarbvgging þar í vændum, sem
eflaust mun lyfta Reykjavík og
gera hana 10 sinnum méiri verzl-
unarbæ en hugsandi er til að Akur-
eyri geti orðið'. Af þessum miklu
mismunum milli þessara bæja er
minni von til að Akureyrarbæjar-
félag geti lagt út í nándarnærri
jafnmikinn kostnað til almennra
þarfa og Reykjavík gerir.
Ástandið í Akureyrarbæ þessi
árin er alt 1 annað en glæsilegt.
Verzlunin eykst ekki svo teljandi
sé því aðsókn til verzlunar fremur
minkar úr Þingeyjarsýslu og úr
nyrðri hreppúm Eyjafjarðar, út-
vegur fremur gengur úr sér, og
innfjarðarveiði þverrar. Nokkur
atvinna er aö vísu á sutnrum við'
fiski og sildarverkun fyrir útlend
skip og skip úr öðrum landsfjórð-
ungum, en á vetrum er alment at-
vinnuleysi fvrir sjómenn og verka-
fólk frá 1. Nóv. til 1. Apríl, erjtað
langur tími; hér á ofan bætist
verðhækkun á útlendum og inn-
lendum vörum, svo þeir menn sem
hafa fastar sýslanir verða. að
leggja meira til framfærslu sér og
sínum fjölskyldum og hafa þvi
minna afgangs með sömu launum;
en erfitt oft að knýja fram launa-
viðbætur, þótt sumum hepnist það'.
Hið efnalega ástand Akureyrar-
bæjar er ískyggilegt, og lítill efi á
þvt að þröngt verði í búi hjá
mörgum á þessum vetri. Það eina
sem ofurlítiö tekur framförum á
Akureyri er, aö ræktuð tún hafa
ofurlitið aukist síðari árin, og að
klæðaverksmiðjan “Gefjun” hefir
getað tekið til starfa og fær mikla
Gísli Goodman
TINSMIÐUR
VERKSTŒÐI:
Korni Toronto of Notro Dam«
Phone : Helmllta
Omrry 29M Qarry 899
aðsókn.
1 hausti var mun meirihluti bæj-
arstjómarinnar ekki hafa litist sem
bezt á blikuna, þvi aldrei þessu
vant lækkaði hún upphæö þá sem
jafna skyldi niður eftir efnum og
ástæðum alt að því um iooo kr..
en þrátt fyrir þessa niðurfærs'.u
urðu aukaútsvörin alment ekki
lægri en í fyrra á hverjum ein-
stökum gjaldenda, sém mun hafa
stafað af því að tvær verzlanir,
sem allmikla útgerð höfðu, voru
farnar úr bænum og auk þéss 2
eða 3 efnaöir gjaldandur en engir
komnir í staöinn nema fátækling-
ar. Um það kann að vera skiftar
skoðanir hvort tiltækilegt sé að
halda inn á þá braut að fara aftur
að liækka gjöldin sem jafnað er á
almenning eftir efnum og ástæð-
um, meðan atvinnuvegir bæjar-
manna eru í engri verulegri fram-
för. Hvað sem um það veröur
sagt, mun þó flestum koma saman
uni aö, mjög varlega veröur að
fara inn á þá brautfc Og það skyldu
menn hafa hugfast, vaö veröi sú
raun á, að til muna verði dýrara
að framfleyta lífi sínu í Akureyr-
arbæ en þorpum og þurrabúðutn
annarstaðar í nágrenninu, getur
það leitt til þess, að sjómenn og
þeir sem mikinn hluta árs hafa at-
vinnu utan við kaupstaðinn, flytji
úr honum og taki sér bólfestu
annarstaðar, en í staðinn komi
mest ósjálfbjarga fólkið úr sveit-
um, sem ekki getur greitt til al-
menningsþarfa.
—Norðri.
Dominion Hotel
82S Maln 8t. . Wlnnip«K
Ðjöm B. Halldórsson, eigandi
P. S. Anderson, veitingam.
BifreiS fyrir geiti
Simi Main 1131. . Dag^æði $1.25
A. 8. BABDAL,
selnr
Granite (
Legsteina
af allskonar stærðtun. — I»eir,
sem ætla sér að kaupa LEG-
STEINA, geta því fengið þá
með mjög rýmilegu verði og
ættu að senda pantanir sem
fyrst til..........
A. S. BARDAL
84-3 Sherbrooke St.
Bardal Block - Winnnipeg
i Th. Björnsson,
| Rakari
ÝJ Nýtízku rakarastofa ásamt
k n a 11 I e i ka b or S u m t
X TH. BJÖRNSSON, Eigandi ?
♦ DOMIMON HOTEL, - WINNIPKQ i
•t-M-44♦ -I♦ ♦ t ♦ t ♦ 1'♦ ♦ 1 ♦ t ♦ I ♦
íslands fréttir.
Ef þér viljið fá kár og skegg
vel klipt og rakað
þá komið til
WfLLINGTON BtBBEB SHOP
Þessi rakstrarstofa Kefir skif t
um eigendur og Kefir veriÖ
endurbsett að miklum mun.
Vér vonum að þér lítið inn
til okkar,
H. A. POQLE, eigandi
691 WellingÝon Ave.
Reykjavík 1. Febr.
Aðfaranótt fimtudags strandaöi
á Brunnastaöartanga á Strönd
enskur botnvörpungur. Menn kom-
ust út í skipið úr landi, en skip-
verjar vildu enga hjálp þiggja.
Morguninn eftir var enn komið út
í skipið, og var þaö þá mannlaust,
en skipverjar komnir út í annan
botnvörpung, sem var þar skamt
frá. Meö næsta flóði tókst ný-
komna botnvörpungnum að draga
hinn af grunni, og lögðu svo bæði!
skipin til hafs.
Fiskifélag Islands hafði, svo^
sem kunnugt er, sótf um einka-
leyfi á steinolíu samkvæmt lögum
síðasta þings, en nú hefir ráöherra
synjaö um leyfið.
—Reykjavík.
Forngripasafniö verður 50 ára
gamalt 24. þ. m. Er ráð fyrir
gert, aö afmælisins veröi minst
með samsæti. Ritgerð um safnið,
eftir Matth. Þórðarson fornmenja-
vörð, á að koma út í Árbók Forn-
leifafélagsins þ. á.
Fiskiskúturnar eru nú margar
albúnar til þess að leggja út, en
ógæftir banna.
“Maðurinn lifir ekkí af einu
saman brauði”, og Reykvíkingar fólki bæjarins. Líklegt er að þessi
ekki heldur. Afmælishátiðir ein- skemtun verCi vel ^ me6 þvi
stakra manna og felaga, dansletk-
® flestum mun forvitm að sja hvern-
tr og sjonleikir, fjorðungamot og _ 1
sýslnamót, grímudansleikir og ó- kvenréttindakonur skemta sér
tal margt annað fæst til skemtunar og öðrum, og hvort þær gera það
um þennan tíma árs. Kvenrétt- eins og “hitt fólkið”.
indafélagið, sém flestir halda aB
sé alvarlegast allra bæjarfélaga, Rokveður var hér síöastl. nótt
ætlar nú Hka að fara að halda op- ^ útsunnan og asahláka.
inbera skemtisamkomu á föstu-t
Hann byrjaði
smátt
eins og margir aðrir, en
eftir tvö ár hafði hann
svo mikið að gera, að
hann varð að fá sér hest
og vagu til að komast
milli verkstöðva til eft-
irlits. Eftir 4 ár varð
hann að fá sér bifreið til
þess. Enginn hefir gert
betur og hitt sig sjálfan
fyrir en
G.L.STEPHENSON
The PLmber’t
Talsími Garry 2154
842 Sherbrook St., W’peg.
dagskveldið 14. febr. og hefir
heyrst að það hafi fengið sér til
aöstoðar ýmsa af helzta skemti-