Lögberg - 12.06.1913, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN
LÁT OSS SANNA
/ YÐUR ÞAÐ \
að vér gerum alla á-
nægða í gleraugna-
legu tilliti, °g verðið
svo rýmilegt að eng-
inn þarf að kvarta.
H. A. NOTT,
Optician
áður hjá '
Strains Limited
313 Portage Ave., Winnipeg
Úr bænum
iTíð þurkasöm og heldur í kald-
ara lagi. Þörf á regni allbrýn
víöast þar sem til hefir spurst
utan úr nýlendum.
Meðlimir söngflokksins “Geys-
ir” eru beðnir að koma allir á
söngæfingu i Goodtemplarahúsinu
á sunnudaginn kemur, (15. þ. m.),
og að koma í tíma kl. 3.
Herra Jón Björnsson frá Bald-
ur er hér staddur í kynnisferð og
dvelur hjá T. H. lohnson þing-
manni, syni sinum. Jón er hinn
ernasti og þó rúmlega áttræíur.
1_ v'am
Frá Harlingdon Man., ritar J.
A. Vopni þann 2. Júnx: Sáning að
mestu lokið, tíð verið hagstæð,
akrar líta vel út, en þörf á regni.”
Tveir íslenzkir nemendur út-
skrifuðust i vor af Minneota
High School, þau Sigurður Ask-
dal og Bertha Sigurðsson. Æði-
margir íslenzkir nemendur hafa
áður útskrifast af þeim skóla.
t síðastliðnum Maí mánuði
fæddust hér í Winnipeg 520 börn,
eitthvað 100 fleiri en sama mánuð
í fyrra. Fæddust því 17 börn að
jafnaði á hverjum degi í Winnipeg
5 Maímánuði þetta ár.
Gott herbergi til Ieigu að
1030 Garfield Ave.
Lík islenzka piltsiins, Sigurðar
Sveinssonar, sem druknaði í Rauðá
fyrra sunnudag, fanst í vikunni
sem leið eitthvað mílu norður við
bæinn, hafði fest í fiskilóð við
vestur árbakkann. Var flutt á
útfararstofu Moodys; líkskoðari
taldi rannsókn óþarfa, með því að
kunnugt er um hversu að barst
um dauða mannsins.
Mánuðinn sem leið sýktust
222 af næmum sóttum í Winnipeg.
Skarlatssótt reynist allra drjúgust
eins og fyr; af henni sýktust 120,
en aðeins 3 dóu úr henni. 45
mislinga tilfelli komu fyrir og 2
dóu af þeim. Af tæringu dóu 5,
en 21 nýir tæringar sjúklingar
fundust hér í Mai mánuði. Af
barnaveiki (diphtheria) sýktust 11
og dóu 3 af þeim. Sjö lögðust í
taugaveiki og einn þeirra dó.
Fjórir sýktust af bólunni og aðrir
fjórir af hlaupabólu.
“DAUFIR
TÍMAR”
er ráttl tfminn til a8 ná f góftar
byggingalófiir, vel Inn í borginni.
I>eir er kaupa nú og kanpa hyggi-
lega mnnn NtórgrretJa á þvf. Látifi
ekki peningana liggja ibjulauna.
Kf í nokkrum efa hvar sé bezt att
kaupa, lȇ finnitf niig etfa nkrifiS
Paul Johnston
312-:tl4 Nanton Buildlng
Á horni Main og Portage.
Talsími: Main 320
SNOWDRIFT
RRAUÐ
er vel bakað brauð, alveg
eins í miðju eins og að utan
Er létt í sér og bragðgott,
og kemur það til af því
að það er búið til í beztu
vélum og bakað í beztu ofn-
um.
5c brauðio
TheSpeirs-Parnell
Baking Co. Ltd.
Phone Garry 2345-2346
Pappír vafin utan um hvert brauð
Concert
heldur karlmannaflokkurinn
“GEYSIR”
Good Templars Hall
horni Sargent og McGee
17. JUNI 1913
ISLENZKUR SAMSÖNGUR
(a) Gestir íslands .. .. ••....................Crusell
(b) Yfir sveitum tíbrá titrar..................Mosart
(c) Til austurheims vil eg halda .... Sœnskur þjóffsöngur
\(á) Heyrið vella á heiðum hveri • •............Procius
Söngflokkurinn.
Duet—The Lord is a Man of War • •...............Handcl
Messrs. Thórólfsson og Jónasson
(a) Sóló—Þú bláfjalla geimur............Sænskt þjóSlag
Mr. Jónas Stefánsson (Vocal Accomp.)
(b) Vetrarnótt..........••...................IVetterling
(c) Brosandi land................................Norblin
(d) Skilnaðarsöngur..............••..........IVetterling
Quartet—Heill þér fold.........................Wetterling
Messrs. Stefánsson Anderson, Jónasson, Thórólfson
Tenor Solo and Chorus—Andvarpið.................Neithardt
Mr. Thomas H. Johnson
(a.) God Natt.............................Marchner
(b) Bass Solo and Chorus.—Sof i ro . .•....Mohring
Mr. Th. Clemens
Miss S. Fredrickson, Accomparist
Mr. H. Thórólfsson, Conductor
Byrjar kl. 8.30. Inngangsgjald 35c.
Miss S. Fredericksson hélt
“recital” með nemendum sinum á
mánudagskveldið var. Um tutt-
ugu nemendur hennar komu þar
fram og reyndu sig. Þeim sem
lengst voru ko.mnir hepnaðist vel,
en öllum sæmilega.
MJss Fredericksson hefir orð á
sér fyrir að vera góður og áhuga-
samur músikkennari.
Kvikmynda sýningarnar á
Wonderland eru vel sóttar, að
sögn, enda er þar skift daglega
um myndii'. Stjórnandi hússins
hefir tjáð oss, að hann hafi kom-
izt í samband við hin beztu mynda-
sölu félög i þessari álfu, og verði
þvi hús hans engu síðri en þau
beztu í þessari borg.
Séra H. Sigmar biður þess
getið, að hann messi á þessum
stöðum sd. 15. þ. m.:
í Mozart kl. 12 á hádegi.
í Elfros kl. 3 eftir hádegi, fensk
guðsþjónustaj.
I Leslie kl. 6 síðdegis. ('Alstað-
ar miðað við C. P. R. timaj.
Miðvikudaginn 4. Júni voru þau
Wilhelm Anderson frá Saskatoon
og B'jörg Hjálmarson frá Canda-
har gefin saman í hjónaband af
séra H. Sigmar. Hjónavígslan
fór fram að heimili T. Steinsson-
ar, Kandahar. Samdægurs lögðu
nýgiftu hjónin af stað til Saska-
toon, þar sem þau ætla að setjast
a«.
Hvcr sá, *em kynni aS vita eitthvað um
Helga Nordmann (Þorgrímason frá
Nesi), er vinsamlegast beðinn að gera mír
aðvart.
* Adam Þorgrímsson (frá Nesi)
640 Burnell St., Winnipeg
Heim til Islands fór í fyrri
viku herra J. T. Bergmann con-
tractor. Hann bjóst við að dvelja
heima á ættjörðinni þangað til um
mánaðamótin Október og Nóvem-
ber. Mr. Bergmann kom hingað
úr íslandsför fyrir eitthvað 9 ár-
um og var þá nær því efnalaus
með öllu, en hafði aflað sér tölu-
verðrar reynslu af veru sinni áður
hér vestra. Hann hefir efnast
svo vel á síðustu árum, að hann
er nú talinn einn með ríkustu Is-
lendingum hér í borg.
“Minneota Mascot” getur þess
aft nú hafi nýskeð tekist fullnað-
ar samningur um skaðabótamál
það er höfðað var gegn North-
Western járnbrautarfélaginu út af
dauðsfalli Bergvins heitins Vopn-
f jords er lét lifið í Janúar mánuði
i fyrra, fyrir eimlest áður nefnds
félags. $3000 skaðabætur hefir
félagið skuldbundið sig til að
greiða dánarbúi hins látna, sem lét
eftir sig 4 börn á ungtim aldri.
Tregt bafði gengið að fá félagið
til að greiða þessa fjárupphæð,
og mun mest og bezt að þakka
ötulli framgöngu þeirra Gíslasons
lögmanna og séra B. B. Jónssonar,
sem skipaður var forráðamaður
dánarbús Bergvins heitins.
Herra J. J. Bildfell lagði af
stað í bifreið sinni suður til Da-
kota í fjársöfnunar erindum fyrir
heimatrúboð, og býst við að dvelja
þar fram að kirkjuþingi og ferð-
ast um íslenzku bygðirnar syðra.
Margrét Gunnarsdóttir Odds-
son, rúml. 18. ára, lézt að heimili
fósturforeldra sinna, Sveins
Sveinssonar og konu hans i Ár-
borg, Man., þann 2. þessa mánað-
ar. Brjósttæring varð henni að
bana. Góð stúlka og vel látin.
Winnipeg.
ASHDOWN’5
BBP»
KÓRFTR TIL SKEMÍTFEIlflA
IIai\keys körfar, vatns oc ryk lieklar með fernu iagi:—
No. 1, sniúar, verð........................$.7.00
Xo. 2, stórar, verð......................... 8.00
N'o. 2, Die Iju.x stierð, verð..............17.50
No. 2. Auto stserð, verð................... 20.00
Sömuleiðis kiirfur ineð (liskum ok öilu tilheyraruli af tveim sta-rðum,
verð......................................$23.00 og $25.00
THERMOS-FLÖSKUR
Einnar markar, verð..................$1.25—$2.25
Tveggja marka........................$2.50—$5.50
Einnar markar með flöskufyUara . . . . $1.00—$1.25
Tveggja marka, með fyilara...........$2.00—$2.25
Matar könnur...........................$2.75—$5.50
Matarkönnu fyUir........................ $2.25
ÍTmgjörð um flöskurnar................$1.00—$3.50
HEXGIRÍ'M
Miklar birgðir hengirúma til að velja úr..$1.75—$8.00
Hengirúma dýnur, með tilheyrandi...............$18.50
Dýnur eingöngu................................. 11.50
RAFMAG3VS BLÖKUR — HALIIIf) SVALANUM
Kaupið eina af rafmagns blökum vorum, er standa á. borði,
verð................. .................$16.50
Skoðið vörudeiid vora með Sport og rafmagnsvörum.
SkoðiíS inn í glugg-
ana hjá.............
ASHDOWN’S
12. J!Tní’T9i3.
I Oddný Hannesdóttir, 85 ára
gömul, andaðist í Árborg hér í
fylkinu, þ. 26. Maí s. 1., ekkja eftir
Sigurð Jónsson, sem lengi bjó
rausnar búi á Stóru Vatnsleysu í
Gullbringusýslu. Oddný fluttist
vestur um haf 1876 “í stóra hópn-
um”, sem oft er svo nefndur. Fór
þá sfrax til Nýja Islands og var
þar ávalt síðan. Börn Sigurðar
og Oddnýjar voru 9 alls, þau er
upp kornust, fjórar stúlkur og
fimm piltar. Dæturnar eru allar
hér vestra: -Mrs. Vilborg Christie
í Árdalsbygð, Mrs. Guðlaug
Curry, Winnipeg, Mrs. Oddný
Sylvane, Dalhanse, Ont. og Mrs.
Sigríður Carscadden, vestur við
Kyrrahaf. Aðeins einn af sonum
þeirra hjóna er nú á lífi, Sigur-
mundur kaupmaður í Árborg.
Hinir voru Jón, Hannes, Kristján
og Sigurfinnur. Jón druknaði í
Winnipeg-vatni skömmu eftir að
hann kom vestur. Hann var elst-
ur bræðranna. Þar næstir voru
þeir Hannes og Kristján, báðir
dánir hér vestra fyrir æði löngu
sí’ðan. Næstur var Sigurfinnur.
Hann kom aldrei vestur. Var
lengi formaður og orðlagður sjó-
sóknari á Vatnsleysuströnd. Fór
sem margir aðrir dugnaðarmenn
þar heima, í sjóinn á endanum.
Yngstur bræðranna er Sigurmund-
ur kaupmaður, sá er áður er
nefndur. — Oddný sál. var mynd-
arkona mikil, dugleg og kjarkmik-
il með afbrigðum. Var við góða
heilsu þar til undir það siðasta að
henni fór smáhnignandi. Jarðar-
för hennar fór fram í Árborg þ.
29. f. m.
Samkvæmt konungsbréfi út-
gefnu 1. Apríl þ. á. kemur alþingi
íslendinga saman í Reykjavík
þriðjudaginn 1. Júlí næstkomandi.
Á sunnudaginn var lézt á al-
menna spítalanum konan Margrét
J. Eyford, 48 ára gömul, eftir
langvarandi sjúkleik. Maður
hennar Kristján Eyford lézt í
fvrra. Barn eitt lifir Cornell Ey-
ford. Mrs. Eyford var vinsæl
kona og vel kynt. Jlarðarför henn-
ar fór fram frá Fyrstu lút. kirkju
á mánudaginn var. Dr. Jón
Bjarnason jarðsöng.
Vestan af Kyrrahafsströnd
krm fvrir helgina Mrs. Ingi-
björg Thorarensen. Haf'ði hún
d’ alið vestra nálega hálft ár,
lengst í Vancouver. Hún átti áð-
ur heima í Selkirk, en mun nú
a'Ia að setjast að hér í borg.
Gísli Goodman
TINSMIÐUR
VERKSTŒÐI;
Horni Toronto og Notre Dame
Phone : lltirnilís
Garry 2988 Garry 899
ETID BRAUÐ!
Canadamenn yfirleitt leggja
svo hart á sig, að þeir þurfa
undirstöðu fæðu, til að gefa
voðvunum styrk.
Hveitimjöl inniheldur meir af
þesskonar efnum heldur en
nokkur önnur fæða.
CANADA BRAUÐ
er búið til úr betra mjöli heldur
en vanalegt brauð. Ef þú vilt
REGLULEGA GOTT BRAUÐ
mÍöK lystugt og bragðgott, al-
gerlega hreint og óblandað þá
biðjið um
CANADA BRAUÐ
5 cts. hvert
Fón Sherbr. 2018
Land til sölu eða leigu.
ióö ekrur, n mílur frá Oak Point
station; gott heyskapar og akur-
yrkju land, girt, með 5 ekru akri
umgirtum og góðu ibúðar húsi,
góðu fjósi fyrir 20 gripi, hænsna-
hús fyrir 60—70 hænsm, og góð-
um brunni og brunnhúsi og
geymsluhúsi, il/i mílu frá skóla.
Góðir íslenzkir nágrannar alt í
kring. Pósthús á staðnum. Eíka
geta verið til sölu 10 kýr og nokkr-
ir geldgripir; hesta “team”, sláttu
og rakstrar. vélar og fleiri áhöld.
Ef nokkur vildi sinna þessari
auglýsingu, verður hann að vera
búinn að semja við mig fýrir 1.
Ágúst 1913.
Jón Jónsson.
Hove P. O. Man.
Unglingspiltur féll í Rauðá hér
skamt norðan við borgina í fyrra
dag og varð það til lifs að með
honum var sleðahundur hans,
skozkur að kyni; hundurinn henfi
sér í ána á eftir piltinum, þá
hrakti niður streng, en þó fór svo
um síðir að hundurinn fékk dreg-
ið húsbónda sinn til lands. Pilt-
urinn var þá svo þrekaður og mátt-
farinn að hann komst ekki upp
frá ánni, en köll hans heyrðust,
svo að nágrannar komu og hjálp-
uðu honum heim. Hefur piltur-
j inn og foreldrar hans enn meiri
mætur á hundinum eftir en áður,
eins og ekki er mót von.
Fólk héðan úr bænum s er að
siná-fara norður til Gimli til sum-
ardvalar. Mrs. H. G. Hinriksson
er fyrir skemstu farin og Mrs. B.
Pétursson ('kaupmanns) fer á
föstudaginn kemur.
Herra Jónas Hall frá N. Dak.
er staddur hér þessa aagana.
Hvaða skollans læti.
Shaws
479 Notre Dame Av.
Stærzta, elzta og
bezt kynta verzlun
með brúkaða muni
í Vestur-Canada.
Alskonar fatnaður
keyptur og seldur
Sanngjarnt verð.
Phone Garry 2 6 6 6
íi
!
f
+• 1
* l
*
+ i
11
>+1
+
-
t
+
♦
*
•+ !
«+ !
* í
* I
* I
4-
+
, I
X+++++++++++++++++l-|"H»H.+)j |
Nei, rei, es? hef ekki núna hangi-
ket fyrir tíma, en strax og eg iæ það
«kal eg gala það svo hátt, að allir
landar heyri. En eg hef á boðstól-
um saltað, reykt og nýtt svínaflesk.
Nýtt og saltað nautaket og nýtt
rauðaket. Svo hef eg allskonar
könnumat, já, og tólg og svínafeiti.
Auðvitað bara þessa viku nýorpin
hænuegg 12 fyrir 25c. Flestalt er
það óheyrilega ódýrt hjá ketsalanum
ykkar
S. 0. G. Helgason
Phone:
Sherbrooke 85 0
530 Sargent Ave., Winnipeg
HREIN SÁPA
Skrífstofu Tals. Hcimílis Tals.
Maln 7723 Sherb.1704.
MíssDosiaC.Haldorson
SCIENTIFIC MASSAGE
Swedi.h 'ick Gymnasium and Manipula-
tions. Diploma Dr. Clod-Hansens lnstitute
Copenhagen, Denmark.
Face Massage and Electric Treatments a
Specialty
Suite 26 8teel Block, 360 Portage Av.
er nauSsynleg til aS halda fögrum lit-
arhætti. I>6 aS sápa sé hrein, þarf hún
ekki aS vera dýr. Vér höfum aS bjöSa
hina allra beztu sápu fyrir 5c til 35c
stykkiS. Vér mælum sérstaklega fram
meS vorri hreinu Glycerine sápu, sem
hinni allra beztu. VerS 15c, stykkiS,
tvö fyrir 25c.
FRANK WHALEY
IJrescription 'íjruggtst
724 Sargent Ave., Winnipeg
V I/Vf’ alskonar teKundir höf-
IVJ\J 1 y um við til sölu með
——— sanngjörnu verði. Þér
gerðuð vel í því að koma hingað
landar góðir og mun yður vel líka..
ANDERS0N & G00DMAN,
eigendur
G. 405. 836^ Burnell St.
Phone Sherbr. 258 og 1130
ísríómi f molum xe6a {
151 JUIIIl heilu jagj
ÁVEXTIR, SÆTINDI, VINDLAR,
TÓBAK Og SVALADRYKKIR.
Leon Foures, 874 Sherbrook St.
TIL SOLU:
tractara eða til afhendingar u
af því hann er of lítill fyrir þ<
Frekari upplýsingar fást
Motor flutnings vagn í
góðu ástandi. Getur
borið 1 500 pund. Mjög
hentugur fyrir Con-
bæinn. Verðurað seljast
i, sem nú á hann.
761 WILLIAM Ave. Tals. G. 735 Winnipeg
Nýjar tegundir sumar
hatta, prýðilegir og
ódýrir.
Xú cr tíml til kominti að velja sumar liatta tll að nota vlð f>au
ta'kilífii, sem útivistin skapar.
Pær tegundir, sem vér nú höfum að bjóða, eru með öllu ólíkar í
laginu þeim sem þér eruð vanir við á fyrirfarandi árum.
Til dæmis að taka eru liinir nýju hattar með lace í felllngum á
skygninu, mjög svo þokkalegir; þeir fara vel á höfði og eru mjög fall-
egir tll að^sjá. — Aðrir hafa flosprýði, mjög svo einkenniiega og þokka-
mikla.
Sá allra nýjasti og mest móðins af ölluni er Fanama liattnrinn,
með slútaiuil börðum og margvíslegri prýði. Annar fallegur og ein-
kennilegur nýmóðins hattur er Rattinas. Verðið er mjög sanngjamt,
að eins................................$1.50 til $3.50
Beztu kaup á karlmanna
fötum á $15, $20 og $25
Hver maðiir, sein verzlar í Hinlson's Ilay er sjáifsagður nð fá 100
centa virði fyrir dalinn sinn,—það er lians að fá það, okkar að gefa það.
petta kemur hvergi betur frain heidnr en í þessum karlmanna-
fiitiim á $15.00, $20.00 og $25.00. pau eru svo óviðjafnanlega góð,
l>a-ði efni, saumur og frágangur. að liver maður, sem vill og getur geng-
ið alminlega til fara, ætti að fá sér eln.
Frábærir skraddarar hafa fjallað uni þau. Sniðin eru fyrirtak og
frágangur allur stórlega vandaður. Gott skraddara verk sýnir sig
fljótt á fatnaði; þessi sýna það bæði utan og innan.
Á $15.00
Vel saumuð karlinannaföt úr bláu serge — tvístiinguð í hverjum
saiim, elnhnept, með vel felduni kraga og útslögnm.. .Buxurnar ágæt-
lega sniðnar. með beltis lykkjum. Allar stserðir. Endingargóð og fall-
eg föt fjTir business-menn.
Á $20.00
Vel saumiið Worsted fiit — fyrir gildlega menn, með tveim og þrem
hnöppum, elnhnept, meðallöngum uppslögum, mjúkum og laglegum,
vel feldum kraga og öxlum, sem mótaðar eru í hiindunum. Vestið hútt
upp með liliðar lykkjum og úrvasa fóðruðum með chamois. Buxurnar
meðallagl víðar, með beltislykkjum. Stærðir 38 til 45.
Á $25.00
Falleg sumarföt — Xorfolk snið, íir fögru, þunnu tweed og grá-
röndóttu sumarfata efni, ok að framan og aftan með, með laglegri fell-
ingu á búðum hliðum. Buxur hafa beltis lykkjur. Allar stærðir.
Kaupið Arrow flibba hér. Allar stœrðir
Kaup
og notið
R0YAL CR0WN S0AP SsS
Vér sýnum hér með “premlu”-grip, þýzka
vekjaraklukku, ur. 30, sem er áð eins sýn-
ishorn af okkar klukkum. Vér höfum aílar
tegundir af þeim, hentugar í hvert herbergi
og hvert heimili sem vera skal. þessi
klukka er með beztu nickel umgerS, mess*
ingarverki og gengur frábærlega rétt. Góð
vekjarakiukka ókeypis fyrir 200 sápu um-
búðir, eða 26 umbúSir og 75c. i pening-
um. Móttakandi borgar flutningsgjald. Vér
bjóðum öllum að heimsækja oss og sjá þær
premiur, sem vér höfum að 251 Notre Dame
Avenue. Ef þér getið ekki komið, þá skuluð
þér senda eftir ókeypis premiuskrá.
The ROYAL CROWN SOAPS, Ltd.
Premium Department, H WINNIPEG, MAN'.
w Mismunur á
mjöli
Gæði mjölstns sem notað er, ráða
því, hvernig bökunin tekst á bökun-
ardegi.
OQILVIE’S
Royal Household
MJEL
inniheldur meiri næringu en nokk-
urt annað mjöl í heimínum. Ðökun-
tekst vel, ef þér notið það.
0GILVIE FL0UR MILLS Co.
_ Limited
WINIMIPEQ, VANCOUVER