Lögberg


Lögberg - 03.07.1913, Qupperneq 4

Lögberg - 03.07.1913, Qupperneq 4
% LÖGBERG, FIMTTJDAGINN 3. Júli 1913. LÖGBERG GefiO út hvern fimtudag af Thb COLUMBIA PrBSS LíMITBD Corner William Ave. & StierbrooWe Street WlNNlPBG, — MANITOBA. stefán björnsson. EDITOR J. A. BLÖNDAU business manager V/ UTANÁSljRIFT TIL BLAÐSINS: <|J TheColumbiaPress.Ltd. ((] P. O. Box 3172. Winnipeg, Man. ^ UTANÁSKRIFT RITSTJÓRANS'. /(/ EDITOR ILÖGBERG, (II P. O. Box 3172, Winnipeg, <!i Manitoba. M ----------------------— ai TALSÍMI: GARRY 2156 {(] Verð blaðsins $2.00 um árið. V) Suður um Dakota. i. Heimaníerð. aldra hjón og gömul hjón aS tala tyn búskap, og landsins gagn og nauSsynjar. Þar voru nýtrúlofaö- ar persónur aS dreyma um vænt- arilega brúðkauþsferö. • ,Þar var enn mikill fjöldi kirkjuþingsmanna með hugann fullan af nýjum frumvörpum og breytingar tillög- um viö óútkljáö mál. Þar voru fréttasnatar aö dorga eftir ein- hverju, til að fylla með blöðin sín, og loks voru þar krakkar á ýmsum aldri, sem skemtu sér við að ónáða fullorðna fólkið með spurningum og kvabbi. Eftir að hafa athugað fólkið, varð manni næst fyrir að hyggja að útsýninu. Leiðin lá suður með Rauðá, en beygðist vestur á við þegar til Morris kom. Landslag er hið sama og víðast hvar á slétt- lendinu mikla í norðvestur hluta Canada. Skógur og slétta skiftast á, akrar og óræktað land, en alt er gróið og grænt og angar af þrótti og lífi. Kornfjöðrin téygir sig upp úr dökkri akur-moldinni, leitandi ljóss og yls, viðast hvar vaxtarmikil og lífvænleg, en á stöku stöðum bliknuð fyrir ofur- megni geislans og ofþerrisins. Ó- yrkti gróðurinn var lægri og kyrk- ingslegri, sakir vætuskorts, og grá og illhærukend sinan sást sumstað- ar mæna enn upp yfir grængresið. Býsna þéttbýlt .er á þessum slóð- um, sem við fórum um, og víða allreisuleg býli. Kirkjuþingið. II. I síðasta blaði var að eins laus- lega minst á skýrslu embættis- manna kirkjufélagsins, og skal það nú gert ítarlegar svo sem venja er tfl, og sjálfsagt er, til þess að al- menningi verði kunnugt um starf kirkjufélags-stjórnarinnar á um-f liðnu ári og þann grundvöll sem lagður er undir starfsemi næsta árs i skýrslum fyrnefndra embætt- ismanna. Ársskýrsla forseta er birt hér í blaðinu á öðrum stað. Má glögt af henni sjá, að forsetinn, séra Björn B. Jónsson hefir rækt em- bætti sitt með áhuga miklum og alúð, og í hvívetna borið hag i kirkjufélagsins fyrir brjósti. Marg- ar nytsamlegar bendingar hefir forseti tekið fram í skýrslu sinni, er þingið nýafstaðna hefir haft að undirstöðu atriðum framkværrt(da sinna og álvktana. Ársskýrsla skrifara kirkjufé- lagsius, séra F. Hallgrímssonar, er Ijós og vel saman sett. Þar er tekið fram, að nú séu 37 söfnuðir á safnaðarskrá kirkjufélagsins. Voru 39 i fyrra. Fólksfjöldi safn- aðanna samtals 5150, vart fjöru- tíu mönnum fleiri en á síðustu skýrslu. Ekki þætti mér ólíklegt, að flest- ir þeir, sem ekki eru beinlínis fæddir ferðalangar, hafi einhvern- tíma orðið varir við eitthvert mót- stöðu-afl gegn farfýsi sinni, þegar verið var að búa sig brott að heim- an. Ekki þætti mér ólíklegt, að þeir hafi fundið til einhvers, sem þeim virtist eins og halda í sig, þó að ferðahugurinn væri mik- iU, eitthvað sem togaði í mann heima fyrir og torveldaði brott- förina. Þ<að er vist þetta sem Stephan G. Stephansson, skáld, kallar: “íhalds-semi allra heima- vætta’’. Það er engin sérleg langferð, á hérlenda vísu, að fara frá Winni- peg til Dakota, en þó er þa$ nú svona, að jafnt þarf að gera sína heimanferð, þó að vegalengdin, sem fara á, sé ekki mjög tiltak- anlega löng. Glögt fann eg og til fyrnefndrar “íhaldssemi”, er eg var að búa mig í ferð mína suður yfir landamærin ný- skeð. Yfir höfuð að tala, eru það mínar leiðinlegustu stundir þegar eg er að búa mig að heiman, jafn- vel þó að talsverð ferðalöngun sé annars vegar. Vel má vera að sumir kalli þetta firrur, og segi að ferða-óvana sé um að kenna. Ekki er eg búinn til að fallast á það, því að hver er sínum hnútum kunnugastur. Hitt er satt, að eg hefi lengstum verið fáförull þau níu ár, sem eg hefi átt heima vestanhafs, hér í Winnipeg, með fram vegna þess, að eg hefi sjald- an átt heimangengt. Lögberg hefir kveðið fót minn “fastan o’ní hlað”, eins og þar stendur; hefi eg tinað því vel, af því að órikt er í mér flökkulýðs-eðli. Játað skal það samt, að mig hefir stundum langað töluvert til að sjá með eig- in augum sitthvað, sem lýst hefir verið fyrir mér oft og vel, lands- lag, hagi og háttu landa minna í blómlegum nýlendum þeirra sunn- an landamæranna í Dakota og Minnesota. Því var það, að þó að ýmislegt héldi í fararhugann heima fyrir, lögðum við hjónin af stað héðan frá Winnipeg með lest C. P. R. félagsins ásamt fleiru kirkjuþingsfólki, áleiðis til Moun- tain N. Ðakota að morgni 18. f. m. A suðurleið. Lestin lagði af stað meö okkur laust fyrir klukkan 9 árdegis., skrykkjalítil og skriðar drjúg, því að C. P. R. félagið veit að það borgar sig að hafa mjúka vagna, og sléttar brautir. Vagninn, sem við lentum í, var troðfullur með fólki, og var rétt svo, að við gát- J um holað okkur þar niður. Við komttm i seinna lagi. Þlar mátti sjá æruverða öldunga, hvíta fyrfr | hærum og sadda lífdaga. Þar voru menn er enn stóðu í broddi | lífsins, og horfðu hvast og kjark- lega út yfir sléttuna, eins og þá í langaði til að “nema” hana með j augunum. Þ'ar sátu gildir óðals-; bændur með hrukkuð enni og hleyptar brúnir, þvi að horfur voru á, að hitadagur væri í aðsígi, en akrarnir þeirra lágu fyrir skemdum af þurki. Þar sátu far- andsalar með föggur sínar og steinþögðu, því að þeir voru orðn- ir þreyttir á að taia. Þiar voru vinnukonur að flytja sig vistferl- um. Þíar voru ungar heimasætur komnar upp á kynnisferð, og þar voru aldraðar jómfrúr til að líta eftir. Þar voru nýgift hjón, mið- í Morden. Til Morden komum við litlu fyrir hádegi. Þar átti að hafa ; lestaskifti, og urðum við að bíða á þriðja klukkutíma eftir þeim. Við fórum þar í gistihús—hótel— } eins og lög gera ráð fyrir. Held- ur þótti okkur þar óvistlegt, höfð- um líka lent, fyrir ókunnugleika sakir, á því hótelinu, sem sumir láta minna af, og samnefnt er þessu fylki- Þ)au eru talin “vot” hótelin hérna megin “linunnar”, og jjetta í Morden, sem við lent- um á, virtist eiga það einkunnar- orð, alveg tvímælalaust og meðí öllum rétti. Það fyrsta, sem við sáum þegar inn úr dyrunum kom, voru nokkrir náungar andlits- rauðir af ölhita, og ekki sem ásátt- astir. Höfðum við litla viðdvöl þarna í bili, en þótti fýsilegrá að ganga um bæinn og skoða hann. Morden er fremur snotur bær; götur eru beinar og breiðar, en steinlagðar gangstéttir á hglztu strætum. Mörg ibúðarhúsiri eru myndarleg, en stórbyggingar fá- ar. Evrir æðimörgum árum hafði hlaupið töluverður vöxtur í þennan bæ; ýmsar umbætur verið gerðar þar, og bjuggust sumir um eitt skeið við því, að þarna ætlaði að risa upp ein stóreflis-sléttuborgin en svo dofnaði yfir bænum aftur, og hefir hann víst lítið vaxið á síðari árum. Má því vera, að hann eigi enn fyrir sér að stækka nokk- uð. Fátt mun íslendinga í Mord- en-bæ sjálfum, en nokkrar mílur þaðan er íslendingabygð; sáum við nokkra bygðarbúa þaðan, mjög viðkynnilegt fólk; leit út fyrir að því liði vel, og að það yndi hag sínum hið bezta. Yfir landamærin. Klukkan rúmlega tvö lögðum við aftur af stað með Great North- ern-lest til Hensel. Fremur var | lélegt farþegarými í lest þeirri. Innviðir gráir fyrir ryki og sæti | sálduð hveitibrauðs-mylsnu. Lest- in var víst því nær tóm af fólki þegar hún kom á stöðina, og j nægileg viðstaða til að sópa hana ! og ræsta áður lagt var af stað I með nýja farþega, ef um hefði verið hirt, en jjann “óþarfa” virt- ist Hill-félagið, sem brautina og lestina á, ekki vera um að hugsa, og óx það ekki í augum okkar við þessa viðkynning. Nú var lagt af stað suður, og gekk alt eins og í sögu. Innan ekamms fór að sjá til Pembina- fjallanna, skógivaxinna hæða á liægri hönd. Leið nú ekki á lörgu áður við runnum inn í Bandaríkin. Landslag áþekt og áður, og ríkja- merkjanna verður enginn var, nema vegna tollþjónanna, sem birtust á þeim stöðvum til að snudda ofurlítið í farangri farþega. Veður hafði verið bjart og gott • jægar við lögðum af stað um morguninn. En meðan við dvöld- um í Morden, tók að þykna í lofti, og rétt áður en við lögðum af stað þaðan, duttu drópar. En þegar til Valhalla kom, sem er fyrsta stöð sunnan landamæranna, þegar jæssi leið er farin. var kom- in hellirigning, og hélst alla leið til Hensel, sem var áfangastaður okkar með þessari lest. í Hensel tók herra Griðmundur Einarsson móti okkur kirkjuþings- fólki. Var okkur ekið þaðan í í bifreiðum til Mountain. Voru þó ' brautir allblautar af nýföllnu regni. Til Mountain komum við rétt fvrir miðaftan. S. B. fMeira.) Altarisgestir voru á árinu 2000 eða sem næst 577 fermdra safnað- arlima; heldur færri en í fyrra. Skuldlausar eignir safnaða kirkjufélagsins eru taldar í skýrslu J skrifara $109,609, rriínum 4000 hærri en í fyrra. Er þar þó hvorki með talin kirkja ÞJngvalla safn- aðar, sem enn hefir eigi verið upp kveðinn fullnaðar dómur um, né kirkja Ágústínusar-safnaðar er talin er $3000 virði Skýrslur um fjárhag sinn hafa 28 safnaðanna gefið skrifara. Árstekjur þeirra $20,702,98, en útgjöld $19,158,10; útgjöld á hvern safnaðarlim fermdan heima fyrir $5,98, til kirkjulegrar starfsemi utan safnaða hafa fyrgreindir söfnuðir gefið $1,461,17. Meðlimir ungmennafélaganna eru taldir 653, nokkru færri en í fyrra. í sunnudagsskólamálinu eru þau framför, eftir skýrslu skrifara, að nemendum hefir fjölgað á síðustu tveim árum um 180; skóladagar 68 fleiri, og kennurum fjclgað um 30. Frá 16 söfnuðum þó engar skýrslur komið um sunnudags- skólahald. Þriðja embættismanna skýrslan er skýrsla féhirðis, herra J. j. Vopni. í fjarveru hans var herra Friðjón Friðriksson, varaféhirðir kirkjufélagsins framsögumaður fjármálanna. Lagði hann fratm endurskoðaða reikninga yfir tekj- ur og útgjöld kirkjufélagsins á um- liðnu ári. Samkvæmt skýrslu þeirri eru aðal-sjóðir kirkjufélags- ins þrir; 1. Heimatrúboðssjóður. Við ; hann hefir verið bætt jubilsjóði og urðu j/á allar tekjur hans á árinu $6090.52. Útgjöldin urðu $4088.- ! 48. Þ^r er því nú í sjóði $2,002.04. 2. Heiðingjatrúboössjóður. Þar ! er nú eftir í sjóði $1,405,80. 3. Kirkjufélagssjóður. í þeim sjóði nú hjá féhirði $130.14. Tveggja mála var getið í síðasta blaði, sem afgreidd voru af þing- inu. Úrslita hinna verður getið hér á eftir. Heimatrúboff. Um það mál urðu allmiklar um- ræður og var á flestum ræðunum að heyra að æskilegt væri að söfn- uðir á heimatrúboðssvæðinu væri sameinaðir i prestaköll þar sem því yrði við komið. Meðal annars kom til umræðu ráðning séra S. Christopherssonar í heimatrúboðs- þjónustu kirkjufélagsins og enn fremur bar erindreki Lundar-safn- aðar. herra Jón Halldórsson, fram þá ósk fyrir Lundar-söfnuð og nágranna söfnuðina tvo. að kirkju- félagið, liðsinti þeim söfnuðum í því. að útvega þeim viðunanlega prestsþjónustu, helzt fastan prest sem fyrst. Hvorttveggja málaleit- an þessari var vísað til heimatrú-- boðsnefndar. Eftir tillögum þeirr- ar nefndar samþykti þingið það sem nú skal greina: 1. Að þriggja manna nefnd sé falið að annast um heimatrúboð- ið á komandi kirkjuþingsári, og sjá um að það sé unnið eftir því sem þörf gerist og fáanlegir starfskraftar leyfa. 2. Að þingið veiti Árnes-söfn- 1 uði $62.50 styrk úr heimatrúboðs- sjóði fvrir árið sem er ao llða. 3. Að • þingið veiti forseta j kirkjufélagsins heimild til að veita | framvegis efnilegum námsmönn-, um, sem kynnu að vilja búa sig undir prestsembætti innan kirkju- félagsins, og styrks væru þurfandi, fjárstyrk úr heimatrúboðssjóði [ eftir samkomulagi við heimatrú- boðsnefndina. Styrkuripn sé veitt- ur að gjöf, ep bundinn því skil- THE DOMINION BANK Slr EDMUND B. OSLEB, M. P„ Pim W. D. MATTHEW8 ,Vlve-Pra. C. A. BOGEKT, General Manager. Höfuðstóll borgaður .. . . .$5,360,000 Varasjóður Allar eignlr pJEK GETH) BYKJAD KEIKNING MEB $1.00 Sumir stærstu reikningar í sparisjóðsdeild voru birjaðir í mjög smáum stíl. Reikning má byrja með $1.00 eða meira. NOTRE DAME BRANCH: Mr. C. M. DENISON, Manager. SELKIKK HRANCH: i. GBISDALE, Manager. yrði, að styrkþegi verði 3 ár í þjónustu kirkjufélagsins eftir að hann tekur við embætti. 4- Séra S. Christophersson sé ráðinn af kirkjufélaginu fyrir þetta komandi kirkjuþingsár fyrir $600 árslaun úr heimatrúboðssjóði auk ferðakostnaðar. Verk hans skal vera að vinna að trúboði und- ir umsjón heimatrúboðsnefndar- innar; ennfremur að gegna prests- störfum hjá söfnuðum, þar sem prestar kynnu að fara frá til trú- boðsstarfs og loks að vinna að út- breiðslu rita kirkjufélagsins. 5. Þingið felur forseta kirkju- félagsins, B. B. Jónssyni að gera það, sem í hans valdi stendur til að hjálpa Lundarsöfnuði og ná- grannasöfnuðunum þar í bygðinni, ! til að fá fastan prest sem fvrst. 6. Þingið sér sér ekki fært að ! svo stöddu að ráða fram úr því, ! hvernig hægt sé að koma á sam- i einingu prestlausu safnaðanna i ; prestakall, en felur heimatrúboðs- 1 nefndinni að vinna að því eftir megni. H eiö ingjatrúboð. Milliþinganefndin í því máli skýrði frá starfi sínu í skýrslu er hún lagði fram. Samskot til heið- ingjatrúboðs á liðnu ári höfðu orð^ ið hátt á sjöunda hundrað dollara, en alls í sjóði svo sem fyr er getið, tæplega hálft annað þúsund dala. Sigrid Esbehm var veittur $500,00 styrkur til trúboðs á Indlandi, og þar að auki var Octavius Thor- laksson styrktur með $165.00 til að ljúka námi við Gustavus Adolphus College I St. Peter, Minn. Eitt þúsund dollara lán hafði Immanúelsöfnuði í Wynyard verið veitt úr sjóðinum samkyæmt fyrirmælum síðasta kirkjuþings. Samkvæmt tillögum milliþinga- nefndarinnar var samþykt að kjósa þriggja manna nefnd til að annast heiðingjatrúboðsmál kirkju- félagsins á komandi ári. Enn- fremur var samþykt að nefnd sú megi verja fé úr heiðingjatrúboðs- sjóði í ferðalíostnað handa ungfrú Esbehrn, ef hún vildi heimsækja söfnuði kirkjufélagsins næsta ár, auk þess sem greidd skulu úr fyr- nefndum sjóði árslaun hennar $500.00 eins og verið hefir. Loks var samþykt að styrkja Octavius Thorlaksson til náms framvegis eftir þörfum. Kennara-embœttiö við Wesley. Milliþinganefndin sem falið var að annast úm íslenzka-kennara- embættið við Wesley College, hafði komist að þeim samningum, er síðasta kirkjuþing fól henni c: að fá skólaráð Wesley til að taka að sér að greiða laun íslenzku kenn- arans að öllu leyti frá 1. Okt. næstkomandi; ennfremur hafði samist svo um með nefndinni og skólaráðinu, að því sé leyft af safna fé til íslenzku kennara-em- bættisins meðal safnaða kirkjufé- lagsins,, en gegn því hafi kirkju- félagið samþykkisrétt um það, hver í fyrnefnt kennara-embætti skuli skipaður; þessar ráðstafanir nefnd- arinnar samþykti þingið vitan- lega, og ennfremur að greiða úr skólasjóði rúmlega $220.00, sem kirkjufélagið skuldaði í sambandi við íslenzku-kensluna á Wesley College síðastli'ðið ár. Otgáfumát. Það var helzt álita mál við- víkjandi útgáfu á ritum kirkjufé- lagsins, hvort milliþinganefnd skyldi hafa það starf með hör.dum eða hin sama tilhögun látin þar um standa, er áður hefir verið. Samþvkt var að “Sameiningin”, Lexiublöð og Ljósgeislar hakli fyrst um sinn áfram að koma út á sama hátt og verið hefir, — Sameiningin i höndum ráðsmanns- ins, er þegar er endurkosinn, og sunnudagsskólaritin undir umsjón sunnudagsskóla nefndarinnar. Þlá er þess að geta að kirkjufélags- prestarnir hafa haft með höndum \ undirbúniríg nýrrar sálmabókar, | styttri að viðbættum nokkrum I enskum sálmum þýddum á íslenzka I tungu. Til að greiða fyrir þessari j fyrirætlun, bar einn þingnefnd-1 armaðurinn í þessu máli, herra i Júnas Jóhannesson, contractor frá! Winnipeg fram það höfðinglega boð að gefa $500.00 til þess að byrja með sjóð til útgáfu sálma- bókarinnar og á sínum tíma annara úrvalsrita kristindóminum til stuðn- ings. Þetta boð bar Mr. Johann- esson fram 21. f. m. á 25 ára gift- ingardegi þeirra hjóna, sem bæði voru stödd á kirkjuþinginu. Vott- aði þingið þeim hugheilar árnaðar- óskir sínar um leið og það þakk- aði þá fögru gjöf, sem þau báru fram á þessum heiðursdegi sínum. Til að hafa útgáfumálið með 'höndum á komandi ári var skipuð þriggja nianna nefnd; átti hún að safna fé í útgáfusjóðinn og hrinda af stað útgáfu sálmabókarinnar svo fljótt sem ástæður leyfa. Skólamálið. Samkvæm skýrslu fjárhags- nefndar skólasjóðs höfðu vext- ir á næstliðnu ári orðið $666.46. Helmingur þeirra var borgað upp í laun kennarans við Wesley College; hinn helming- ur vaxtanna var lagður við höf- uðstólinn, sem nú' er orðinn $9,010.84. Eftir að reikningar skólasjóðsins höfðu , verið sam- þyktir, var rætt um skólastoínun um hríð, en með hinni mestu hóg- værð og bróðurhug, svo að mjög stakk í stúf við umræður þess máls á sumum umliðnum þingum, þvi að þær hafa stundum verið nokkuð heitar og æsingakendar. Séra R. Marteinsson bar fram í byrjun umræðna það myndarlega boö frá Th. Oddson, að kirkjufé- lagið fengi ókeypis húsnæði næsta ár fyrir skólahald i Skjaldborgar- samkomuhúsi í Winnipeg. Þakk- aði þingið það boö í einu hljóði. En er málið hafði verið rætt tölu- vert, var því vísað til sjö manna nefndar, og voru í hana skipaðir: Dr. Jón Bjarnason, séra K. K. Ólafsson, séra Johann Bjarnason, G. B .Bjömsson, Tómas Halldórs- son, H. S. Bardal og B. Marteins- son. Formaður þeirrar nefndar, Dr. Jjón Bjarnason, lagði fram á sínum tíma álit nefndarinnar með þeim ummælum, að hún ('nefndinj hefði verið einhuga um allar þær tillögur er hún hefði fram að bera, og kvaðst framsögumaður vonast til að þingið yrði samhuga um þær eins og nefndin. Það sem nefndin lagðí til er þetta: 1. Að byrjað sé í Winnipeg á skólafyrirtæki strax á komandi hausti. 2. Að í þeim skóla skuli kend íslenzka, kristindómur og önnur fræði, eftir því sem ástæður leyfa og þarfir útheimta. 3. Að séra Runólfur Marteins- son sé kvaddur til að veita skólan- um forstöðu. 4. Að væntanlegri skólamáls- nefnd sé falið að sernja við séra Runólf um starfið, útvega aðra nauðsynlega kenslukrafta, semja reglugerð fyrir skólann, um kenslu- gjald, húsnæði, safna fé til skólans og svo fratnvegis. 5. Að kostnaður allur við fyr- irtækið sé greiddur úr skólasjóði. Alla þessa liði nefndarálitsins samþykti kirkjuþingið í einu hljóði, og fastréð þannig að byrja á skólastofnun þeirri er kirkjufé- legið hefir i meir en fjórðung ald- ar verið að hugsa um. Fyrir þessa ráðstöfun verður kirkjuþingið á Mountain 1913, talið eitthvert hið merkilegasta kirkjuþing íslenzkt, isem enn hefir verið háð í Vestur- heimi, og væntum vér að það spái góðu um skólafyrirtækið, hve ein- hua þingið réði því til lykta, og hve viðurkvæmilegt það var, að faðir skólahugmyndarinnar, Dr. Jón Bjarnason, varð framsögumaður skólastofnunar ráðstafananna, sem nú voru samþyktar með atbeina alls hins vestur-íslenzka og lút- erska þingheims. /'Niðurlag næst■) Tvö kvæði frá^íslandi og höfundur þeirra Magnús Magnússon. Einhver sá merkasti hóndi í Strandasýslu, Magnús hreppstjóri Magnússon á Hrófbergi, sem ort hefir eftirfarandi kvæði, sendi þau NORTHERN CROWN BANK AÐALSKRIFSTOfi-A í WINNIPEG $6,000,000 $2,760,000 Höfuðstóll (löggiltur) . * , Höfuðstóll (greiddur) . STJÓRNENDUR: - .... Sir D. H. McMillan, K. C. M. G. Capt. Wm. Kobinson H. T. Champion Frederick Nation W, C. Leistikow Sir R. P. Roblin, K.C.M.G, Allskonar bankastörf afgreidd.—Vér byrjum reikninga vi8 eiustaklinga eða félög og sanngjarnir skilmálar veittir.—Avísanir seldar til hvaöa staðaar sem er á slandi. — Sérstakur gaumur gefinn sparisjóðs innlögum, sem hægt er að byrja með einum dollar. Reutur lagðar við á hverjum 6 mánuðum, T. E. THORSTEINSON, Ráðsmaður. Cor. Willim Ave. og Sherbrooke St. Winnipeg, Man. Formaður Vara-formaður Jas, H. Ashdown Hon.D.C- Cameron fósturdóttur sinni hér í Winnipeg. lig álít þess vert að þau birtist í Lögbergi. Magnús Magnússon er fyrir dugnað og vitsmuni í fremstu röð bænda á íslandi, og forkólfur framfaramála sveitar sinnar hefir hann verið' yfir 30 ár, sem hrepp- stjóri og sýslunefndarmaður. Brú- arkvæði það, sem hér fer á eftir, er kveðið við vígslu brúar á Víði- dalsá í Steingrímsfirði síðast liðið sumar. Sú á hefir verið með mannskæðustu ám á landinu, en getur mint á gandreið og Gnitaheiðar flugskeið. Hér var gulli’ í sand sáð sízt það verður afmáð auðurinn er afls ráð ef að fylgir manndáð. Blessa drottinn verk vor viljaþrek og hvert spor. Send oss náðar nýtt vor nógan kraft og gott þor. Til stúlku. Þessar vísur voru skrifaðar neðan við bréf til fósturdóttur hefir nú orðið að lúta vilja og hönd mannsins, eins og hér segir. G. Brúarkvœði. Magnúsar; Væri hægt til Winnipeg viðtal láta heyra, skyndilega skyldi eg skrafa við þig meira. Hér er smíðuð breið brú, búalýður sér nú saman kominn mannmúg manna’ að skoða verk drjúg. Yfir Gjallar breitt bak brúar liggur hátt þak; þakka flytur kært kvak komendanna hugtak. Áin sú var ógóð — illsku mikið vatnsflóð. j íta dró í sinn sjóð sára þyrst í mannsþlóð. Fólk er voða frá leyst fljótt og vel það gat breyzt yfir bygging alreist, uppá hana skal treyst. Yfir straum er hátt hólf handa gildum “ísólf” — Nú vér skoðum nýtt gólf nítján hundruð og tólf. Þ/essi nýja loft leið lýðum finst ei ógreið — Farir þú að finna senn fósturlandið hvíta, gæti skeð eg ætti enn eftir, þig að líta. Nú ef ferðast heim um hæl hýrleg silkivörin, kom þú blessuð, sigursæl, sjáðu gömlu skörin. Manninn þinn eg mætti sjá mætan, búinn seimi þið mér segðuð fréttir frá fögrum Vesturheimi. Eg þó frá sé ekki skamt aðseturstað þínum. flyt minn kos$ og kveðju samt kærastanum þinum. Ó, eg vissi að mér bar athugult að rima, kannske hafir, hvort sem var kyst hann einhvem tíma? Lifðu bæði lengi’ og vel ~ lagleg baugatróða — þig eg lífs og liðna fel lausnaranum góða. * Arsskýrsla forseta 1913. Háttvirta kirkjuþing! Eftir síðasta kirkjuþing var tala safnaðanna í kirkjufélag- inu 38. Meðan á því þingi stóð, kom bréf frá 'Smá-söfnuðJ einum, Péturs-söfnuði í N. Dakota, þess efnis, að sá söfnuður segi slitið sambandi við kirkjufélagið. Var mér á þinginu falið að heimsækja söfnuðinn og eiga vinsamlegt tal við hann. Eg kom til Péturs-safnaðar sunnudaginn 27. Jhili, flutti guðsþjón- ustu þar í kirkjunni og átti á eftir samtal við söfnuðinn út-af úrsögninni. Söfnuðurinn tók mér vingjarnlega og var samtalið i alla staði bróðurlegt. Eg komst að því, að formgallar voru aö sönnu á fundarsamþykt safnaðarins, að áhrif utan-frá höfðu miklu ráðið og all-mikill partur safnaðarins vildi vera kyrr í kirkjufélaginu. En vegna þess, að mér skildist að fleiri vildu að sambandinu væri slitið' og eg aleit það friðvænlegra fyrir söfn- uðinn, þá tók eg úrsögn safnaðarins gilda og bað skrifara að strika hann út af safnaða-skrá kirkjufelagsins. Ekki þykir mér ólíklegt, að söfnuðurinn komi síðar aftur í félag vort, því enga óvild varð eg var við í garð kirkjufélagsins. Söfnuðir kirkjufélagsins eru því 37. En nú sækja á þessu þingi sex nýir söfnuðir um inngöngu í kirkjufélagið. Eg tel víst að þeir verði allir teknir í félagið og boðnir hjartanlega vel- komnir. Söfnuðir þessir eru: Blaine-söfnuður í Blaine, Wash- ington: Þrenningar-söfnuður á Point Roberts, Washington; Vancouver-söfnuður í Vancouver, British Columbia; Vestfold- söfnuður i Shoal Lake bygð í Manitoba; Grunnavatns-söfnuður í sömu bygð; og Skjaldborgar-söfnuður í Winnipeg. Allir þess- ir söfnuðir, nema hinn síðast nefndi, hafa myndast fyrir trú- boðs-starf kirkjufélagsins. Hinn nýi söfnuður í Winnipeg hefir komið sem áframhald af “missión”, sem Fyrsti Iút. söfn. í W’peg stofnaði til i suður-bænum. Prestar kirkjufélagsins eru nú eins og i fyrra 15 að tölu. Þrír þeirra eru þó ekki sem steridur þjónandi prestar í kirkju- félaginu. Séra Hans B. Thorgrímsen flutti um kirkjuþings- levti í fyrra til Grand Forks og tók þar að sér þjónustu norskra safnaða; áfram heldur hann samt að vera i félagi voru. Séra Runólfur Fjeldsted hvarf síðast liðið haust austur til Cambridge, Mass., og hefir þar siðan stundað nám viði Havrard háskóla. Séra Pétur Hjálmsson er búsettur i Alberta, en hefir ekki fasta prestsþjónustu með höndum. Síðasta kirkjuþing fór fram á þjið við séra Rúnólf Mar- teinsson, að hann gerðist missíónar-prestur kirkjufélagsins, en hann sá sér engan veginn fært að taka köllun þeirri. Hatin hefir liðið ár sem að undanförnu verið kennari við Wesley* College í Winnipeg, en auk þess hefir hann haldið uppi sunnu- daga-guðsþjónustum í suður parti borgarinnar og nú myndað þar söfnuð, Skjaldborgar-söfnuð, sem fyrr var nefndur, og hefir herra Þjorsteinn Oddson að mestu staðið straum af því fyrirtæki hingað til. Á því svæði er búsett margt fólk af þjóð- flokki vorum, sem siður nær til kirkju annars staðar, og ætti hinn ungi söfnuður að eiga góða framtíð fyrir höndum. Séra Hjörtur Leó lét af þeirri fyrirætlun sinni að fara frá um hrið til aukins skólanáms vegna hinnar brýnu þarfar kirkju- félagsins á starfsmönnum. Hann hefir alt árið verið í þjón- ustu kirkjufélagsins og unnið mikiðí verk. Vestur á Kyrra- hafs-strönd dvaldi hann vetrar-tímann og varð sá árangur af starfi hans, að þar hafa myndast þrír söfnuðir. En fyrir fram var það að skilyrði gert, að séra Hjörtur gerðist fastur prestur þeirra og með vilyrði í þá átt, að starfinu yrði haldið áfram, stofnaði séra Hjörtur söfnuðina. Þegar er söfnuðirnir voru fullmyndaðir, kölluðu þeir séra Hjört sem fastan prest sinn. Tók ééra Hjörtur þeirri köllun. Fer hann nú til safnaða sinna véstra þegar eftir þetta þing, en siðan í vor snemma hefir hann

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.