Lögberg - 24.07.1913, Síða 3
IjOGUEKG, FiMTUOAGliSN
24. Júli 1913.
hORSTEINN h. hORSTEINSSON.
GAMLIR NEISTAR.
III. AUGUN.
('m)
Eg horfði í þau augu svo hrein og skær
og himinblá!
Sem vorblóm á sóldegi vóx þá upp
mín vakin þrá.
Hún nærðist á geislum frá sjafnar sól,
er sat und brá.
Eg allur var bundinn við augun þín
svo ung og blá.
Eg horfði í þau augu svo hrein og skær—
svo himinblá.
Og ljósmynd sumars frá sóldag þeim
mín sála á.
Ei upplitast myndin af augum þeim
við ára þvott.—
Hún fylgir mér eftir, sú fagra mynd,
ef flyt eg brott.
Og drauminn þann bjarta í djúpi vors,
sem dreymdi sál,
að birta hann öðrum í búning ríms
mig brestur mál.
Eg get eigi framleitt svo fagran lit —
svo fagra mynd,
er sýni það speglandi sólskinshaf—
þá sælulind.
Eg get ei með líking þér líkt til hálfs,
þú lífs mins blóm!
Eg get eigi framleitt þá draumadýrð—
svo djúpan hljóm.
Þótt hjarta mitt eigi svo heilagt mál,
sem hæfir þér,
vill tungan ei lána þau lýsingarorð,
sem líka mér.
Mér vaknaði annað og æðra líf
þá ást eg leit
i augunum þeim, þar sem æskan bjó
svo ung og heit.
Það ómælisdýpi, það draumsjónaland,
sú dýrð, það ljós!
sem lá bak við augnanna ljósbláa hvel,
er lífs míns rós.
Sú rós, sem er upphaf míns æðra lífs
urn andans lönd.
Sú rós, sem að aldrei skal upprætt burt
af alda hönd.
Sú rós, sem er áranna aðal-sól—
minn ástarkoss.
Sú rós, sem er augnanna endurskin—
mitt æðsta hnoss.
Eg horfði i þau augu svo hrein og skær
og himinblá.
Og enn þá hún horfir i augu þau,
min æskuþrá.—
Þótt Iifið sé brott og það ljósið slökt
og lokuð brá,
eg horfi í þau augu svo hrein og skær
og himinblá!
Alþingi sett.
Ingólfur hefir orðið fyrstur til
aö flytja oss vestur fréttir af Al-
þingi þ. á. Hann segir svo frá
þingtiðindum sem gerst hafa og
flokkaskipun:
—Ritstj.
Alþingi var. sett í gær, eins og
lög skipa. — Þingsetning hófst á
hádegi með kirkjugöngu að vanda.
Séra Kristinn Danielsson, 2.
þingm. Gullbr.- og Kjósarsýslu,
prédikaði í Dómkirkjunni.
Ráðherra las skipunarbréf kon-
ungs til sín um setning Alþingis
og bað aldursforseta fjúlius Hav-
steenj að stýra kosningu samein-
aðs þings. En með því, að þing-
sköp ákveða, að fyrst skuli athuga
kjörbréf nýkosinna þingmanna, þá
varð sú athöfn að ganga fyrir.
Reyndust kjörbréf þingmannatina
fjögra í lagi og eins skipunarbréf
hins nýja konungkjörna.
Þá hófst kosning og hlaut Jón
Magnússón bæjarfógeti 20 atkv.,
Lárus H. Bjarnason 18. en tveir
seðlar voru auðir. Var Iátið heita
svo, sem Jón Magnússon hefði
náð kosningu og lét hann sér að
góðu verða, en reyndar var þessi
forsetakosning ólöglcg og þvert
ofan i aðra grein þingskapa, sem
beint ákveður, að “rétt kjörinn
forseti sé sá, er hefir meira en
helming atkvæða’’ og leiðir af því,
að rangt kjörinn forseti er sá, er
hefir ekki nema helming atkvæöa,
en allir vita að 40 atkvæði eru alls
í þinginu, þegar allir þingmenn
eru nærstaddir.
Mun það nýung i þingsögunni,
að Alþingi skarti með ólöglega
kjörinn forseta.
Varaforseti var kosinn séra Sig-
urður úr Vigur nteð 20 atkv.
Eirikur Briem fékk 7 atkv., 10
seðlar auðir.
Skrifarar sam. þings voru Jó-
hannes Jóhannesson (23. atkv.J
og Ólafur Briem (19. atkv.J.
Margir seðlar auðir.
Til efri deildar var kjörinn Há-
kon Kristófersson þm. Barðstrend-
inga með 20 atkv. Magnús Krist-
jánsson fékk 19 atkv, Kr. Dan-
íelsson 1 atkv.
Þá skiftist þingheimur í deild-
ir..
Forseti neðri deildar var kjö.rinfl
Magnús Andrésson með 15 atkv.,
Jón Ólafsson fékk 9 atkv. þrír
una 9 atkv.
Kosning varaforseta var ólög-
leg í fyrra skiftið, og því vildi
ráðherra að hún væri látin gilda,
eins og kosning forseta sameinaðs
þings, en forseti fM. A.) mat meir
þingsköpin.
Annar forseti varð við þriðju
atrennu Valtýr Guðmundsson með
12 atkv., með bundnum kosning
um milli hans og Péturs á Gaut-
löndum. Pétur fékk þá 10 atkv.
— í fyrri skiftin fékk enginn
nógu mörg atkvæði, því að kosn-
ing fór nokkuð dreift og margir
skiluðu auðum seðlum. Ráðherra
vildi ólmur láta ólöglegu kosning-
una gilda. Flokkur hans studdi
Pétur við þessa kosningu.
Skrifarar deildarinnar voru
Eggert Pálsson með 22 atkv. og
Jón sagnfræðingur með 11 atkv.
eftir hlutkesti milli hans og Jóh.
Jóhannessonar.
Forseti efri deildar var kjörinn
Stefán Stefánsson konungkjörni
með 11 atkv. — J]úlíus Havsteen
fékk 2 atkv., einn seðill auður.
(Bræðingsmönnum þótti hann
ekki nógu auðsveipur um atvinnu-
bitlingana handa "verðugum’
mönnum í fyrra, og svo vildi hann
ekki ganga i “sambandsflokkinn’’.
Varaforsetar Guðjón Guðlaugs-
son með 7 og Einar Jónsson með
8 atkvæðum.
Skrifarar e. d. Steingrímur
Jónsson og Björn Þprláksson.
Skrifstofustjóri Alþingis er
Halldór Daníelsson yfirdómari;
skrifstofustarfsmenn: Einar Þor-
kelsson og Guðm. Magnússon.
Flokkaskipan á þingi.
Bræðingsmenn voru 33 á síð-
asta þingi, sællar minningar
stofnuðu þá flokkinn með fær-
eyska nafninu, “Sambandsflokk-
inn”. fDanski flokkurinn í Fær-
evjum heitir líka “Sambandsflokk-
ur”J.
Ólánsflokkur þessi fór að trosna
á jólaföstu, er Hannes kom með
“grútinn” frá Danmörku. Varð
ráðherra þá að heykjast á samn-
ingafarganinu og láta málið bíðá
þings.
Þegar er þingmenn komu til
Ibæjarins var svo farið að halda
fundi i þessum stóra samábyrgð-
arflokki. Hófst fundur á sunnu-
dagskveldið og var frestað til
mánudagskvelds. Þ|rír flokks-
menn voru dánir og tveir aðrir
seðlar auðir. (< I höfðu látið af þingmensku, en
Fyrri varaforseti var kosinn ' a^'r Þe'r> er kosnir voru í skarðið
Jjón Ólafsson við endurtekna kosn- | voru boðnir á fundinn.
ing með 14 atkv. Valtýr Guð- i Ráðherra varð að viðurkenna,
mundsson (er Hafsteinsliðar , að hann hefði engu fram komið,
studdu) fékk við seinni kosning- nema “grútnum”, og taldi hann
fyrir sitt leyti aðgengilegan, en sá
þó ekki annað fært en láta flokk-
inn samþykkja að hreyfa alls ekki
við sambandsmálinu á þessu þingi!
Nú þótti ýmsnm flokksmönnum
sjálfsagt, að flokkurinn leystist
þegar sundur, þar sem það eina
mál væri alveg úr sögunni, er
flokkurinn hefði sameinast um. —
óað vildi Hafstein ekki, heldur að
flokkurinn héldi áfram að styðja
sig, þótt stefnuskráin væri engin.
Jafnframt áttu samábyrgðarmenn
þessir að ganga til fulls úr þeim
flokkum, er þeir höfðu áður talist
tiL
Þá var sumum heimastjórnar-
mónnum nóg boðið, vildu ekki
eyðileggja flokk sinn og gengu úr
grútarflokknum: Urðu þeir tíu í
Þingmenn Rangæinga, jungmenn
Reykvíkinga, þingmenn Sunnmýl-
inga, Halldór Sveinsson, Stefán
Stefánsson Eyf., Jiúlíus Havsteen
og Eirikur Briem.
Ennfremur hefir Valtýr Guð-
mundsson gengið úr grútarflokkn-
um og Sigurður Sigurðsson og
munu sem stendur utan flokka.
Grútarflokkurinn hjarir þó enn,
þótt engin sé stefnuskrá önnur en
sú, að geyma H. Hafstein i völd-
unum.
Til bráðabyrgðar hvilir á stjórn-
arliðinu að styðja stjórnarfrum-
vörpin: aukning embættislauna,
fjplgun embætta og hækkun skatta
á almenningi.
í þessum veglega flokki er tal-
inn afgangur heimastjórnarliðsins
(11 mennj, þ. e. Lögréttuliðið, og
auk þeirra Sig. Stefánsson, Ól.
Briem (og Jósep?J, Björn Þþrláks-
son piíklegfa vegna bannlaganna,
sem stjórnin vill nú afnema!) Jón
Jónatansson flangar þó í nýjan
flokkj, Jóh. Jóh. og Stef. konung-
kjörni.
Loks gekk herra Kristján Jóns-
son háyfirdómari i grútarflokkinn
á mánudagskveldið!
Sama daginn hafði Hannes
Hafstein útvegað háyfirdómaran-
um undirbankastjórastöðuna i
hlutafélagsstofnuninni fslands-
banka. Fær háyfirdómarinn að
sitja þar meðan ráðherrann þarf
ekki sjálfur á sæti sínu að halda.
Sjálfstæðismenn eru nú átta á
þingi, þótt ekki sé allir taldir í
flokk. Eru það þeir; Þorl. Jóns-
son, Sig. Eggerz, Kristinn Daní-
elsson, B., Kr., Sk. Th., Ben. Sv.,
og Hákon Kristófersson.
Ánœgjuleg heimsókn.
Það er ekki stór söfnuður, Melank-
tonssöfnuður í Mouse River bygðinni,
en hann er allvel mentur. Hann er
skipaður mönnum, sem mjög vel veita
eftirtekt því, sem er að gerast í hinum
andlega heimi Vestur-íslendinga, og
með alls ekki Iitlum áhuga fyrir krist-
indómsmálum |>eirra. Enda mátti sjá
þess ljósan vott er 12 manns úr bygð-
inni sóttu að kirkjuþinginu á Moun-
tain, bæði konur og karlar, til að sjá
og heyra hvað þar gerðist. Það var
mikil ánægja og skemtun að sitja á
þessu kirkjuþingi sem talið er eitt hið
allra liezta ])ing kirkjufélagsins, sök-
um friðar og samkomulags. Daginn
eftir að þingi var slitið héldu vestan-
menn heimjeiðis, og urðu til að prýða
förina þeir forseti kirkjufélagsins séra
Björn B. Jónsson, Séra Kristinn K OI-
afsson og Bjarni Jones þingmaður frá
Minneota. Kom flokkurinn til bygð-
arinnar hinn 25. Júní að kveldi dags.
Tóku gestirnir gistingu að heimili hr.
Guðnnmdar Freemans. Hið sama
kveld var gert nokkurs konar örvaboð
um alla íslenzku byygðina, að hver
maöur, karl og kona, ungir og gamlir,
skyldu komnir næsta dag kl. 2 e.h., er
var fimtudagur, 26. Júní, að samkomu
húsi bygðarinnar. Allir voru stund-
vísir, en fáum kom til hugar hvað und-
ir bjó, annað en fagna komu forseta
kirkjufélagsins.
Samkoman var sett af formanni
dagsins og framkvæmdarmanni sam-
kvæmisins, Stefáni S. Einarssyni, seni
þá gerði opinbert hvað á bak við
hefði legið, er allir voru komnir í sæti
sín. að þennan dag væri 25 ára hjóna-
bandsafmæli Guðmundar Freemans og
Guðbjargar Helgadóttur konu hans.
Að því búnu flutti forseti kirkjufé-
lagsins hjónavigslu ræðu mjög fagra;
svo flutti séra K. K. Ólafsson ræðu til
safnaðarins mjög fagra og vingjarn-
lega, sem honum er lagið. Þar næst
afhenti Stefán Einarsson silfurbrúð-
°S | hjónunum sitt silfurúrið hvoru, sem
gjöf frá söfnuðinum til minningar um
þennan merkilega dag í lífi þeirra og
þessa hátíðlegu athöfn. Að jiví loknu
var sezt að veitingum svo vel fram
reiddum og myndarlegum að marga
undraði að slíkt mætti færa í fram-
kvæmd á jafn stuttum tíma, þar öllum
var clulin gestkoman; en um 20 manns
sáttt samkvæmiö. Er menn höfðu um
stund nært líkamann, hófust ræðuhöld.
Þeir, sem bezt skemtu fólkinu, voru
prestarnir séra Björn B. Jónsson og
kirkjuþingsmaður Bjarni Jones.
Af bygðarmönnum auk forseta dags-
ins. Stefáns Einarssonar, er alt gerði
sem honum var auðið til að stundin
væri sem skemtilegust, töluðu þeir Ás-
mundur Benson lögfræðisnemi og Sig-
ttrður Jónsson.
Samsæti þettá var það skemtileg-
asta sem hér hefir verið haldið, því
engar samkomur okkar hafa verið
prýddar jafn virðulegum og mörgum
gestum sem þessi; því flestar okkar
santkomur eru haldnar án þess að
nokkur gestur sé við staddur; þess
vegna var það viðbrigði fyrir okkur
Komizt áfram
með j>ví að ganga á Success Business College á Portage Ave. og Ed-
monton St. eða aukaskólana í Regina, Moose Jaw, Weyburn, Calgary,
Letbridge, Wetaskiwin, Lacombe og Vancouver. Nálega allir Islend-
ingar í Vestur Canada, sem stúdéra upp á verzlunarveginn, ganga á
Success Business College. Oss þykir mikið til þeirra koma. Þeir eru
góðir námsmenn. Sendið strax eftir ókeypis skólaskýrslu til skólastjóra,
F. G. GARBUTT.
ustu og merkustu prestum til að prýða
þetta heiðurs samsæti; enda var það
að maklegleikunt að það færi vel og
skemtilega frarn, þar sem silfurbrúð-
hjónin eru frumbyggjendtir bygðar-
innar og hin fyrstu hjón, sem vígð
hafa verið í hjónaband í þessari bygð,
og í öll þessi 25 ár gengið á undan
öðriim bygðarmönnum með prúð-
mensku, háttprýði, reglusemi og ráð-
deild, og alla þessa stund verið meðal
þjóða umhverfis íslenzku þjóðinni til
sóma
t S. J.
Bindindismenn og þing-
fylgi.
í því kjördæmi í Ontario, sem
heitir North Grey, fór fram þing-
kosning nýlega, er fór á þá leið,
aö þingmannsefni conservativa
hlaut kosningu með 278 atkvæða
meiri hluta. 1 því kjördæmi er einn
staður, sem getur kallast borg, og i
heitir Owen Sount. Þ]essari borg j
fór sem flestum öðrum í Canada, j
að hún gaf conservativum stór- j
mikinn meiri hluta. Þingmanns-
efni Liberala hafði 12 atkvæði
fram yfir hinn i öllum hinum
kjörstöðum kjördæmisins, en í
Owen Sound var hann 290 atkvæð-
um á eftir þeim conservativa.
Kjördæmið hefir áður all-lengi
verið á valdi Liberala, og var full-
trúi þess um hríð Hon. Mackay,
sem var foringi þeirra í Ontario
þingi um nokkur ár, þartil hann
lagði niður þá stöðu fyrir tveim
árum, flutti sig til Edmonton
og náði sæti á Alberta þingi í síð-
ustu kosningum þess fylkis. Hann
var mikilhæfur maður og vel met-
inn og einstaklega vinsæll í kjör-
dæmi sinu. Það mikla atkvæða
magn, sem honum hlotnaðist vlð
síðustu kosningar í North Grey,
kom til af persónulegum vinsæld-
um hans, en ekki af því, að kjör-
dæmið væri ekki vafasamt.
Hin nýafstaðna kosning i North
Grey kjördæmi er merkileg, ekki
eingöngu af því, að Whitney
stjórnin fékk þar sigur, þrátt fyrir
það hneyxlis mál, sem sótt hefir
verið á hendur henni á síðasta
Ontario ])ingi, heldur af annari
ástæðu, sem er athuga verð fyrir
stjórnmála menn og flokka einnig
í voru fylki. í öllum sveitum
kjördæmisins er “local option”,
og binclindi i traustu lagi, að þvi
er virzt hefir. Nú er það aðal-
málið á stefnuskrá liberala í þvi
fylki, aö takmarka sem allra mest
vínsölu, oe allra helzt taka fyrir
alla vínverzlun og vin veitingar
innan fylkisins, — að farið verði
með vínið eins og hvert annað
meðal eða eitur, sem selt er úr
lvfjabúðum aðeins eftir læknis
fyrirmælum. Nú hefði mátt ætla,
að bindindismenn í hinu umrædda
kjördæmi hefðu haft svo mikla
elsku á þessu málefni, að þeir
hefðu stutt örugglega þann mann-
inn, sem þvi vildi fylgi veita. En
svo reyndist ])ó ekki. Þeir gáfu
ekki liaft þá afsökun, að á sama
stæði, hvorum þeir greiddu at-
kvæði, þvi að hið trausta bindind-
isfélag “Dominion Alliance”, sendi
nefnd til að tala við ])ingmanns
efnin og að prófaðri stefnu þeirra
beggja, gaf stjórn nefnds félags
út áskorun til kjósenda, að veita
þingmanns efni liberala fylgi,
með því að það væri nauðsynlegt
fyrir viðgang bindindisins. Eigi
að síður brugðust bindindismenn í
þessu kjördæmi. Þeir tóku hönd-
um saman við hóteleigendur til að
bola þann manninn frá, sem hafði
vínbannslög á stefnuskrá sinni og
ótvíræð meðmæli frá stærsta bind-*
índisfélagi í landinu.
Mr. Rowell, hinn röski og dug-
mikli forsprakki liberala í Ontario,
hefir ekki látið þennan mótblástur
á sig bíta, heldur lagt af stað i
nýjan leiðangur, til að sannfæra
almenning um þá heill, sem landinu
mundi standa af algerðum vin-
bannslögum. Og þeir sem þekkja
kapp og þrótt mannsins spá hon-
um sigri, þó seint verði ef til vill,
í bardaganum við hin öflugu sam-
tök afturhalds og vínverzlunar.
Alt um það er hætt við, að stjórn-
málamenn i landinu fari sér hægra
en áður í fylgi við bindindislög-
gjöf. Það hefir sýnt sig svo oft,
að bindindismönnum er ekki treyst-
andi til að fylgja þeim mönnum,
sem bera það málefni fyrir brjósti,
heldur láta margt annað sitja í
fyrirrúmi. Þlví miður eru margir
þeirra fylgjandi því með vörunum
eingöngu, en víkja af hólmi, þeg-
ar því skal fylgi veita i verkinu.
Þúsundir
manna, sem orðiö hafa
heilsulitlir, hafa haft stór-
mikið gagn af hófsamlegri
brúkun á
DREWRYS
Elmwood Lager
Hreinasta malt-tonic
Æfinlega eins á bragð
ið og jafn góður.
REYNIÐ ÞAÐ
ROBINSON
&Co.
Limitcd
KVENKÁPUR
Hér eru nýkomnar fallegar kápur
handa kvenfólki, skósíðar, viðar,
með smekklega kraga og uppslög-
um á ermum, með ýmislegum lit og
áferð. Allar stærðir. Þetta er sér-
stök kjörkaup á. £ *7CT
Skoðið þær í nýju <nll / 3
deildinni á 2. lofti. Y 9 ^
JAPANSKT POSTULÍN
Nú stendur yfir stórkostleg kjör-
kaupa útsala á japönsku postulíni,
Það er handmálað og hver og einn
mun (undrast, að vér skulum geta
selt það með svo vægu verði. Eng-
inn hefiir ráð á að láta þessa sölu
fara fram hjá sér, svo lágt sem verðið
er og postulínið prýðilegt.
75c virði fyrir......
25c
ROBINSON
& Co.
Llmitcd
indi til að málefninu verði sigurs
auðið.
-áhöld
Þessi mynd sýnir
Milwaukee
steínsteypu
Vjel
Spyrjið eftir verði
THE STUART MACHINERY
COMPANY LIMITED.
764 Main St.,
Winnip>eg, Man
Eitraðar eldspítur eru að hverfa
Hættulcg efni eru ekki notuð á
EDDY S Ses-qui hættulausu eld-
spítur, Gætið þess að kaupa alla
jafnan EDDY’S og engar aðrar,
sem taldar eru „rétt eins góðar“.
Það er ábyrgst, að þær séu hættu
Iausar í alla staði. Biðjið altaf
um EDDY’S nýju
Kaupmaður
yðar hefir
þær
c •<«
,,oes-qui
Eldspítur
KARLMANNA BUXUR
Hentugar á vorin.
Hentugar til daglegs brúks
Hentugar til vinnu
Hentugar til spari.
Hver sem kaupir huxur hér,
verður ánægður með kaupin.
Þær eru þokkalegar og end-
ast vel, seldar sanngjarnlega.
Venjið yður á að koma til
WHITE & MANAHAN
500 Main Street,
CtibÚKverzlun i Kenora
WINNIPEG
að hafa tvo af okkar allra mikilhæf- Meðan svo stendur, eru lítil lík-
Samsœri í Mexico.
Ellefu menn hafa verið hand-
teknir i höfuðborg þess lands fyrir
hlutdeild í samsæri til að taka af
lífi forsetann Huerta, Felix Diaz
og hermálaráðgjafann Blanquet.
Meðal samsæris manna var einn
þingmaður. Á þeim fundust skjöl
er sönnuðu sök þeirra, að sögn, en
sumir liafa játað á sig sökina.
Þeir höfðu leigt sér stóra hlöðu
til að æfa sig í að kasta sprengi-
kúlum og höfðu þar nægar byrgð-
ir morðtóla. Svo er sagt, að mikl-
ar æsingar séu víða um land gegn
Bandaríkjum og óvild til þeirra
komi opinberlega fram í blöðun-
um; fundir eru haldnir uridir beru
lofti til að ámæla Bandaríkja
stjórn og áskoranir út gefnar til
almennings, að standa sem einn
maður gegn áleitni Bandamanna.
Japanar eru ])ar mjög vinsæiir
sem stendur, vegna þeirrar deilu,
sem nú stendur milli þeirra og
Bandaríkja stjórnar. Huerta
stjórnin virðist álita, að Banda-
menn veiti uppreisnar mönnum
liðsinni, bæði með vopna sending-
um og vista, og eitt meðal annars
er það, aö þegar uppreisnarherinn
sat um sjúvarborg nokkra, ])á hélt
herskip eitj Bandamanna, er á
höfninni lá, rafmagns ljósi yfir
borginni, til ])ess að uppreisnar-
menn gætu miðað ])ess betur, og
margar aðrar sakargiftir ber
stjórnin á Bandamenn. Þeir hafa
kvatt heim sendiherra sinn, til við-
urtals, og sent sérstakan sendi-
mann suður, til að grenslast eftir
hvernig sakir standa, en ekki hafa
þeir ennþá viðurkent Huerta
stjórnina, ])ó aö Evrópu stjórnir
hafi lagt að þeim að gera annað
hvort, skakka leikinn eða viður-
kenna þá stjórn, sem við völdin er.
Hermála ráðgjafinn í stjórn Wil-
sons forseta er á ferðalagi til eft-
irlits suður við landamæri og þyk-
ir það benda á, að ekki sé at með
feldu.
THOS. JAGKSON & SON
BYGOINOAEFNI
AÐALSK RIFSTOFA og birgSaból 370 COLONY ST
TALS. Sherbr. 62 og 64
WINNIPEG, MAN.
GEYMSLUPLÁSS:
Vesturbœnum: horni Ellice og Wall St., Fón Sherb. 63
í Elmwood: horni Gordon og Levis, Fón, St. John 498
I Ft. Rouge: Pembina Highway og Scotland,
Vér seljum þessi efni í byggingar:
Múrstein, cement, malað grjót,'
(allar stærð.), eldtraustan múrstein,
og eldleir, Flue Lining, möl, Hard-
wall Plaster, hár, Keene’s Cement,
hvítt og grátt kalk, hydrated kalk,
viðar og málm lath, gyps, Rubble
stone, Sand, ræsapípur, weeping
drain Tile, Wood Fibre Plastur,
Einnig Mortar, rautt, gult, brúnt,
standard og douhle strength black.
Tuttugu menn
óskast strax.
Vér skulum borga þeim gott
kaup meðan þeir eru í Moler’s
Rakara skóla. Vér kennum rakara
iðn til fullnustu á tveim mánuöum
og útvegum lærisveinum beztu
stöður að afstöðriu námi með $15
til $35 kaupi um viku. Griðarleg
eftirspurn eftir Moler rökurum
sem hafa Moler vottorð. Varið
ykkur á eftirhermum. Komið-og
skoðið stærsta Rakara Skóla í
heimi og fáið fagurt kver ókeypis.
Gætið að nafninu Moler á horni
King og Pacific stræta, Winnipeg
eða 1709 Broad St. Regina.
J. J. Swanson & Co.
Verzla með fasteignir. Sjá um
leigu á húsum. Annast lán og
eldsábyrgðir o. fl.
1 ALBERT/y BLOCK- Portage & Carry
Phone Main 2597
FURNITURE
oi' Liv,
OVERLAND
V A1 v« ’ *. L l * *. N 01R
FORT ROUCE
THEATRE an'’
Hreyíimynda lcikhús
Beztu myndir sýndar
J. JÓNASSON, eigandi.
Eg hefi 320 ekrur af landi nálægt
Yarbo, Sask. (V* sect.J, sem seljast á
með góðum skilmálum; eign í eða um-
hverfis Winnipeg tekin í skiftum. A
landinu eru um 90 ekrur plægðar og af
þeim 50 undir akri nú. Alt landiö inn-
girt og á því um þúsund doll. virði af
húsum ásamt góðu vatnsbóli.
5. SIGURJÓNSSON,
689 Agnes Stræti, Winnipeg.