Lögberg - 09.10.1913, Qupperneq 5
.oUBELíO - ^MTUDAGliN xn
9. Október 1913.
5
uppá því aö viö slægjum saman
■og geröum einn fund úr þeim, sem
þeir höfðu boðað og eg hafði aug-
3ýst. Varð það úr. En áður en
kennarafundinum var slitið geng-
um við a-ð' búnu borði í skólanum
'Og þágum kaffi og gómsætt brauð,
sem skólabörnin höfðu tilreitt og
fórst þeim það myndarlega.
Um kveldið stýrði vinur minn
Jóhannes Eiriksson fundinum. Dr.
Beattie talaði í ræðu sinni mjög
Elýlega um skólahugmynd vora og
árnaði henni alls góðs. Þegar eg
tók til máls, lét eg í ljósi þá ósk,
að ávalt yrði eins góð samvinna
milli mentamáladeildarinnar og
skóla vors eins og væri það kveld
milli erindreka hennar og mín.
Þegar eg hafði lokið erindi mínu,
tóku ýmsir til máls. Miss Ólafía
Jónsson talaði hlýlega og myndar-
lega um skólahugmyndina og lauk
lofsorði á fræðsludeildina. Hr.
Jóhann Sólmundsson flutti beitta
hegningarræðu um 'þá sem ekki
höfðu haft nógu mikinn áhuga til
að koma. Því miður voru þeir
ekki viðstaddir til að fá makleg
málagjöld. Þess utan talaði hann
af velvild um skólann. Hr. Bene-
'dikt Frímannsson tók einnig til
máls og talaði, að vanda,| með
•djúpum alvöruþunga, en lítið snerti
Tiann skólamálið, ræddi þvi nær
eingöngu um heimiliskenslu. Því
miður sloknuðu ljósin í kirkjunni
áður en búið var. Annars hefði
'líklega verið haldið áfram til mið-
nættis. Margt gott og hlýlegt sagði
forsetinn um málið áðu-r en fund-
inum lauk. t
í síðustu viku fór eg vestur til
hinnar ^onefndu Argyle-bygðar
og dvaldi þar frá miðvikudegi til
laugardags. Sú bygð hefir lengi
verið talin ein hin farsælasta bygð
íslendinga í Ameríku og fáir eru
"þeir, sem- um hana hafa talað, án
þess að ljúka lofsorði á hana, og
satt er< það, farsæl er bygðin.
Menn komu þangað bláfátækir,
sem nú eru orðnir verulegir bænda-
kóngar, búa í stórhýsum og hafa
-allsnægtir. .En velmegun hefir
stundum sinn þunga einsog fátækt-
in. Þegar verksviðið ver.ður
stærra, aukast áhyggjur. Mér
finst sumir ekki hafa farið var-
hluta af þeim þunga, og eg óskað-i
heitt, að hjá sumu fólki þar væri
meiri bjartsýni svo að gleðisól guðs
fengi að skína þar með allri sinni
himnesku, indælu birtu.
Með þessu er ekki sagt að neinn
þungi hvili yfir bygðinni í heild
sinni. Þaö er sannarlega ánægju-
legt að ferðast um hana og hverr
vetna mætir manni hlýleiki og hin-
;ar ágætustu viðtökur. Og Argyle-
bygð hefir ætíð verið í fremstu röð
með styrk til allra sameiginlegra
velferðarmála Vestur-íslendinga.
Með-an eg dvaldi; í bygðinni,
’hafði eg aðsetur hjá séra Eriðriki
Hallgrimssyni og konu hans
Bentínu Björnsdóttur, sem búa i
bænum . Baldur. Sannarlega er
ekki skortur á gestrisni hjá þeim-
hjónu-m. Naut eg þar hinnar mestu
alúðar.
Daginn eftir að eg kom. þangað,
‘kom hr. Ámi Sveinsson norðan úr
bygð og sonur hans Kristján með
’bifreið sína, til að flytja okkur um
bygðina. Voru þau prestshjónin
með í förinni. Miðdag höfðurn við
á heimili Áma og hans goðu konu,
en vorum að miklu leyti á ferð-
inni allan daginn; fórum þangað
sem við höfðum helzt von um nem-
endur á skólann, töluðum máli
skólans hvar sem við gátum.
F-erðin var hin ánægjulegasta.
Að þjóta áfram eftir hinum ákjós-
anlegustu vegum, framhjá reisu-
legum húsum, bleikum ökrum, upp
hæðir, ofan í dældir, meðfram
■grænum grundum, marglitum
skógum, speglandi vötnum, að
teiga hreina loftið rétt eins og
maður væri að drekka lífið sjálft,
er unaðslegt og hressandi.
Árni flutti okkur suður að Bald-
tvr um kveldið. Höfðum við mikla
ánægju af þessari ferð. Árni er
•alvarlegur maður, og gengur hon-
um erfitt að semja sig að stimu því
sem séra Guttormur vill leiðbeina
honum. Hann er drengur hinn
Tvezti. þó hann sé einn af þeim
mönnum, sem ekki binda bagga
sína algerlega sömu hnútum og
samferðamennirnir.
. Um kveldið stóð fundur um
skólamálið í íslenzku kirkjunni í
Kaldur. Var þar eftir mætti leitast
við að vekja fólk til að hugsa um
þetta mál og nokkur árangur von-
vim vér að verði af því.
Daginn eftir fór Mr. Christian
Johnson, sem lengi hefir búið í
Baldur og orðlagð-ur er fyrir bjart-
öýni og hlýleik, með okkur í bif-
reið sinni norður og austur um
hvgð. Fórum við víða um, hitt-
um nvargt manna og fluttum al-
staðar boðskap skólans. Þessum
tveimur mönnum sem svo drengi-
lega fluttu mig um bygðina er eg
af hjarta þakklátur.
Um kveldið tók eg dálitinn þátt
1 skemtilegri samkomu, sem banda-
Tagið á Baldu-r hélt.
Unv árangur af ferðinni get eg
ekki með neinni vissu sagt, en vona
að fólkið í heild sinni gefi málinu
meiri gaum en áður og að nokkr-
i'r nemcndur komi v skólann úr
Argyle.
En einu má eg ekki gley-ma, sem
mér þótti mikils um vert. Eg sá
í bænum Baldur litla glóhærða
stúlku, á að gizka svo sem fimm
ára. Hún á vslenzka, móður en
canadiskan föður. Þegar svo
stendur á er vanalega ekki talið
viðlit að kenna börnunum íslenzku
og sumir alislenzkir foreldrar hafa
það álit á börnunum, sínum, að þau
séu svo miklir andlegir aumingjar,
að þau geti ekki lært bæði málin
islenzku og ensku; en þessi litla
stúlka talar lítalaust; og jafnvel
bæði íslenzku og ensku. Þegar
hún talar ensku dytti manni ekki í
hug að hún kynni neitt annað
tungumál, en þegar hún talar is-
lenzku heyrist ekki neinn ensku
keimur.
R. Martcinsson.
Bókafregn.
/ HELHEIMI. Bftir Arna Garborg.
býðing eftir Bjarna Jónsson frá
V ogi.
Þetta er áframhald af þeirri bók,
sem Bjarni þýddi eftir sama höfund
fyrir allmörgum árum. Hin umkomu-
lausa telpa, er sá sýnir og trúði á
huldufólk og hverskyns fyrirburði, er
nú leidd gegn um dáinna manna
heima. Systir hennar leiðir hana við
hönd sér og skýrir fyrir henni það
er fyrir augun ber, hughreystir hana
og talar fyrir henni á marga vegu, en
á undan þeim gengur vizkugyðjan og
“Förina ljóstákn lifsins greiðir
skinið af helgum hangameiði”;
hún er svo máttug, að alt verður
henni að hlýða:
Ef bjóðandi sveiflar hún
sverði björtu
þú glögt mundir sjá
x gröfinni svörtu.
Ef rúnasveiflu
hún setur á
í sýnum hið dulda
birtist þá.
Til kröfu ef táknið
hún teygir hátt,
þú hugsanir leyndustu
heyra mátt.
En verði ’enni eitthvert
orð á munni
er óðara svarað
frá neðsta grunni.”
I Með slíkri leiðsögn leggur telpan á
fund framliðinna og verða þá fyrir
henni svipir þeirra manna, sem geng-
ið hafa aftur af of miklum “moldar-
hug”, en iðrast þess sárlega og taka
loks lausn af kirkjunni og léttir þá
af þeim
afturgöngu og
jarðfjöturs meinum.
Síðan fara þær til Heljar og verða
mörg býsn á vegi þeirra, sem lýst er
átakánlega; svipir skreiðast í veg fyr-
ir völvttna, telja tölur sínar og biðja
hana að vísa sér veg til himnaríkis.
Allir eru þeir á leiðinn norður og
niður, þó þeir fegnir vildu komast
upp á við. Völvan og systir telpunn-
ar segja henni spaklega til hvernig á
því stendur.
Þá koma þær að hreinsunareldin-
um og horfa á mannfjöldann rigna
ofan í hann og verða að engu, því að
Það hafa þeir
sálar auðsins eitt:
auladóm, hégóma
og ekki neitt.
Enn eru telpunni gefnar itarlegar
skýringar á því, hvað til þess beri, að
mannskepnurnar verða þannig að
yngu.
Á leiðinni niður í Myrkheim verða
þær að fara yfir elfuna Gjöll, þarsem
Hrægult löðrið
hamar strýkur,
fram hjá margskonar hættum, þar til
hin blásvarta Helja slæf opnum hel-
grindum og hleypir þeim inn í hina
ferlegu auðn Myrkheims. Af lýsing-
unni á þeirn stað skulu að eins tilfærð
fáein dæmi. Þar var heitt undir
fæti:
Helheiminn allan úlfúð fyllir
með eilifri svíðandi glóð.
Þar er blóði lituð glæta í stað dags-
birtu:
Því valda svik og sárbeitt orft,
særing og rangir eiðar.
Ulkvikindi elta sálirnar:
Illir hugir og hugrenningar,
sem hér þetta gervi velja.
Eftir það er lýst kvölum hinna fram-
liðnu og afbrotum þeirra með mjög
margvíslegu móti. Þeir sem “ilt og
ljótt uku í heimi”, þeir ágjörnu, þjóf-
óttu, síngjörnu og yfirleitt þeir sem
settu hug sinn á heiminn, og “týndu
sál sinni”:
Alt kemur fram, hver óbætt synd
og ilt, sem þeim tókst að leyna.
Allan þann harm, sem þeir öðr-
um gerðu,
eiga þeir hér að reyna.
Þeir sem sviku aðra í ástum, karl-
ar og konur, þeir grimdarfullu,
hefndar gjörnu og margir og margir
aðrir, svala elsku sinni til þessara
lasta með hræðilegu móti, og
brenni þeir ekki af hefndum hér
þeir herðast og djöflar verða.
Enn eru jxar lærðir vitringar, sem
hugsa ekki um að leita sannleikans,
heldur fá hrós fyrir speki og lærdóm,
jxjónar Mammons, er
sýður úr blóði gull;
bókvitrir heimskingjar,
er bygðu sér út úr lifsins Ijósi
með löngum bókamúr.
Þar eru prestar, skáld, listamenn, sem
gleymdu köllun sinni og þeir, sem
fullir eru búksorgar og ágirndar:
“Veit Jrú oss ásjá,
almáttug króna!”
Þar eru meðal annara ritstjórar, sem
gáfu út
fláráð, nagandi fárskaparblöð
er fylla lífið af hatri.
Eftir þetta fara þær til Niflheims,
þar sem þær sjá höfuðból ilskunnar,
og er sú lýsing ærið stórkostleg. Síð-
an halda J>ær upp aftur og sjá þá
skara fara til himnaríkis, sem stríddu
við hið vonda hér á jörðu, sem
alt ilt og saurugt bræddu og
brendu
og bægðu huganum úr.
Loks segir frá því, er stúlkan vaknar
við og þamæst frá þvi, sem á daga
hennar dreif til æfiloka.
Þessi kvæðaflokkur er upphaflega
kveðinn á bændamáli Norðmanna og
er mjög frægur og kær Norðmoþnum.
Það er líka sannast að segja, að hann
er að mörgu leyti snjall, stundum
blíður sem barnsraddir í sálmasöng,
stundum hvell, stundum með þungum
nið einsog brimhljóð álengdar og
finnur hver og einn strax, að höfund-
urinn er spakur að viti og skáld gott.
Arne Garborg kann manna bezt að
dæma um kveðskap annara skálda og
er ekki ' að efa smekkvísi hans.
Fátt mundi ungum skáldum betur
gegna en að eignast þennan kvæða-
flokk á nýnorsku og reyna að brjóta
hann til mergjar. Garborg notar
skáldgáfu sína til að húðstrýkja
heiminn, en reiðilestur hans helzt þó
löngum fyx^r innan takmörk listar-
innar, og má af því marka, hve mikið
skáld hann er.
Þýðingin er vafalaust mjög ná-
kvæm, víða haglega gerð, sumstaðar
snjöll, þó er ekki laust við að hún sé
sumstaðar með Jxulubrag, þar sem
frumkvæðið hefir látlausan þokka
hins einfalda alþýðukveðskapart.
Bjarna frá Vogi er léttara um að
rínxa en flestum öðrum mönnum og
væri óskandi að hann beitti þeirri
gáfu til að snúa á vora tungu öðrum
merkilegum kvæðum. Það er lítill)
efi á að þessir kvæðaflokkar, “Hul-
iðsheimar” og “í Helheimi” verði
vinsælir, þegar stundir líða. Það er
svo mikið í þá spunnið bæði af viti
og snild, að þeir hljóta að ryðja sér
til rúms.
Stjórnarskráarbreytingin.
fFramh. frá 3. bls.J
Þingmenn, kosnir, óhlutbundn-
um kosningum, skulu kosnir til 6
ára, en þingmenn, kosnir hlut-
bundnum- kosningum, til 12 ára, og
fer helmingur þeirra frá sjötta
hvert ár. Þingrof nær ekki til
þingmenna þeirra, sem kosnir eru
hlutbundnum kosningum.
Deyi þingmaður, kosinn óhlut-
bundinni kosningu, rneðan á kjör-
tímanum stendur, eða fari frá, þá
skal kjósa þingmann í stað hans,
fvrir jxað, sem eftir er kjörtimans.
Verði á sama hátt autt sæti þing-
manns, kosins Nilutbundinni kosn-
ingu, tekur sæti hans varamaður
sá, er í hlut á, en varamenn skulu
vera jafn margir og þingmenn,
kosnir hlutbundnum kosningum,
enda kosnir á sama hátt og samtímn
is-5j
10. gr. 6. gr. s’tjómarskipunar-
laga 3. Okt. 1903 (17. stjórnar-
skrárinnarj, falli burt, en í staðinn
konii;
Kosningarétt við óhlutbundnar
kosningar til alþingis hafa karlár
og konur, senx fædd eru hér. á
landi eða hafa átt hér lögheimili
síðastliðin 5 ár og era 25 ára, er
kosningin fer fram; þó getur eng-
inn átt kosningarrétt, nema hann
hafi óflekkað mannorð, hafi verið
heimilisfastur í kjördæminu í 1 ár
og sé fjár síns ráðandi, enda
ekki í skuld við þeginn sveitastyrk.
Ennfremur eru þau skilyrði sett,
að liinir-nýju kjósendur, konur og
þeir karlmenn, er ekki hafa kosn-
ingarrétt samkvæmt kosningarlög-
unum 1903, fái ekki rétt þann, er
hér ræðir um, öll í einu, heldur
þannig, að þegar semja á alþingis-
kjörskrá i næsta sinn, eftir að lög 1
þessi eru komin í gildi, skal setja j
á kjörskrána þá nýju kjósendur j
eina. sem eru 40 ára eða eldri, og
að öðru leyti fullnægja hinum al-1
mennu skilyrðum til kosningarrétt-
ar. Næsta ár skal á sama hátt
bæta við þeim nýju kjósendum, sem
eru 39 ára, og svo framvegis, lækka
aldurstakmarkið um eitt ár i hvert'
sinn, til þess er allir kjósendur,
konur sem lýarlar, hafa náð kosn-
ingarrétti, svo sem segrr í upphafi
þessarar greinar.
Nú hafa hjón óskilinn fjárhag,
og missir ekki konan kosningar-
rétt sinn fyrir því.
Með sömu skilyrðum hafa karlar
og konur, sem eru 35 ára eða eldri,
kosningarrétt til hlutbundinna kosn-i
inga. Að öðru leyti setja kosnign-
arlög nánari reglur um kosningar
og um það, í hverri röð verkamenn
skuli koma i stað aðalmanna í efri
deild.6 J
11. gr. 18. gr. stjórnarskrárinn-
ar orðist Jxannig:
Kjörgengur við óhlutbundnar
kosningar er hver sá, sem kosning-
arrétt á til þeirra; kjósa má samt
þann mann, sem á heima utan kjör-
dæmis, eða hefir átt þar heima
skemur en eitt ár. Kjörgengur við
hlutbundnar kosningar er hver sá,
er kosningarrétt á til þeirra. Heim-
6) petta er stærsta breytingin, og
var ekki mikill ágreiningur í þinginu
um hana.
ilisfesta innan lands er skilyrði
fyrir kjörgengi, bæði við hlutbundn-
ar og óhlutbundnar kosningar.
Þeir dómendur, er hafa ekki um-
boðsstörf á hendi, era þó hvorki
kjörgengir til efri né neðri deild-
ar .6)
12. gr. 7. gr. stjórnarskipunar-
laga 3. Okt. 1903 (19. gr. stjórnar-
skrárinnarj falli burt, en í staðinn
komi:
ReglulegtJ alþingi skal saman,
koma lögmætan dag annaðhvort ár,
hafi konungur ekki tiltekið annan
samkomudag fyrri það ár. Breyta
má þessu með lögum.
Nú krefst meiri hluti þingtnanna
heillar deildar, að aukaþing sé
haldið, og kveður þá konungur al-
þingi til setu svo fljótt sem unt er.
Eigi má það þing legur sitja en 4
vikur, án samþykkis konungs.7j
13. gr. Á undan 20. gr. stjórn-
látandi:
Alþingi er friðheilagt. Enginn
má raska friði þess eða frelsi.
14. gr. 8. gr. stjórnarskipunar-
laga 3. Okt. 1903 (1. málsgr. 25.
rg. stjórnarskrárinnar) falli burt,
en í staðinn komi:
Fyrir hvert reglulegt alþingi skal,
undir eins og það er saman komið,
leggja frumvarp til fjárlaga fyrir
það f járhagstihiabil, sem í hönd
fer.8J
15. gr. 26: gr. stjórnarskrárinn-
ar falli burt, en í staðinn komi:
• Sameinað aiþingi kýs 3 yfir-
skoðunarmenn, og skulu þeim veitt
laun fyrir starfa sinn. Þeir sjoilu
kosnir með hlutfallskosningu. Yfir-
skoðunarmenn eiga að gagnskoða
árlega reikninga um tekjur og
gjöld landsins/og gæta þess, hvort
tekjur landsins séu J>ar allar tald-
ar, og hvort nokkuð hafi verið út
goldið án heimildar. Þeir geta,
hver u.m sig, tveir eða allir, krafist
að fá allar skýrslur J>ær og skjöl,
sem þeim þykir þurfa. Síðan skal
safna þessum reikningumj fyrir
hvert f járhagstimabil í einn reikn-
ing og leggja hann fyrir alþingi
ásamt athugasemdum yfirskoðun-
armanna, og skal J>ví næst sam-
þykkja hann með lögum.
Rétt er' yfirskoðunarmönnum,
einum eða fleirum, að fá að sjá
reikninga og bækur gjaldkera
landssjóðs, og sömuleiðis stjómar-
ráðsins, fyrir ár það, sem er að liða
eða liðið er. Þyki Jxeim nokkuð at-
hugavert, skulu þeir gefa eftir-
mönnum sinum vísbendingty um
það skriflega.pj
16. gr. 29. gr. stjórnarskrárinn-
ar falli burt, en í staðinn korni:
Alþingi sker sjálft úr, hvort
J>ingmenn þess sé löglegt kosnir,
svo og úr því, hvort J>ingmaður
hafi mist kjörgengi.icj
17. gr. Aftan við 45. gr. stjóm-
arskrárinnar bætist:
Breyta má Jxessu með lögum.
18. gr. Aftan við 47. gr. stjórn-
arskrárinnar bætist:
Enginn er skyldur til að inna af
hendi persónuleg gjöld til neinnar
annarar guðsdýrkunar en þeirrar,
er hann sjálfur aðhyllist.
Nú er maður utan þjóðkii'kjunn-
ar, og geldvir hann J>á til háskóla
fslands, eða einhvers styrktarsjóðs
við þann skóla, eftir því sem á
verður kveðið, gjöld þau, er honum
ella hefði bori'ð að greiða til þjóð-
kirkjunnar, enda heyri hann ekki
til öð rum, trúarbragðaflokki, er
viðurkendur sé í landinu.
Brevta má þessu með Iögum.i2j
19. gr. 48. gr. stjórnarskrárinn-
ar falli burt, en í hennar stað komi;
Hvern þann, sem tekinn er fa$t-
ur, skal án undandráttar leiða fyrir
dómara. Sé hann eigi jafnskjótt
látinn laus, skal dómari. áður sól-
arhringur sé liðinn, leggja rök-
studdan úrskurð á, hvort hann
skuli settur í varðhald. Megi láta
hann lausan gegn veði, þá skal á-
kveða í úrskurði, hvert og hversu
mikið það skuli vera.
Úrskurði clómara má þegar skjóta
til æðra dóms, og fer um birting og
áfrýjun slíks órskurðar sem um
birting og áfrýjun dóms í sakamál-
um.
Engan má setja í gæsluvarðhald
fyrir sök, er að eins varðar fésekt
eða einföldu fangelsi.i3j
BLAÐIÐ ÞITT!
SJÁLFSAGT ánægjulegra
að lesa Lögberg ef búið
er að borga fyrir það.
Viltu aðgæta hvernig sakir
standa með blaðið þitt?
Athugaðu litla miðann sem
límdur er á blaðið þitt, hann sýn-
ir upp að hvaða tíma þú hefir
borgað Lögberg.
7) Stðarl málsgreinin, um rétt meiri
hluta þingmanna til aS krefjast auka-
þinys. er ný viSbót.
8) Hér er breyting só, að ekki sé
fastákveðiS, aÖ fjárhagstimabiliS skuli
vera 2 ár, eins og gert er I núgildancli
stj.skrá, og er þaS I samræmi viC 20.
gr. stj.skrárinnar, er heimilar breyting]
þá metS einföldum lögum a8 alþingi
verSi haldið oftar eöa sjaldnar en
annaðhvort ár.
9) Nú kjósa deildir þingsins sinn
endrskoðunarmanninn hvor. Hér er
nokkru nánara ákveðið um starf end-
ui skofunarmanna en áður.
10) Hér er það ný viSbót, að alþingi
er falið að skera úr þvl, hvort þiug-
maður hafi mist kjörgengi.
11) 45. gr. núgild. stj.skrár mælir
svo fyrir, að hin evaog. lúterska kirkja
skxili vera þjóSkirkia á Islandi og 'nið
opinbera að þvi leyti styðja hana og
vernda. Má nú með einföldum lög-
um breyta þessu.
12) 47. gr. núgild. stj.skrár er svo-
hljóðandi: “Enginn má neins i missa
af borgaralegum og þjóðlegum rétt-
indum fyrir sakir trúarbragða slnna,
né heldur má nokkur fyrir þá sök
skorast undan almennri félagsskyldu”.
13) Aðalbreytingin er hér, atS sett
er “áSur sólarhringur sé liðinn” fyrir
“áSur 3 dagar séu liðnir” i núgildandi
stjórnarskrá.
20. gr. 6o. gr. stjórnarskrárinn-
ar orðist svo:
Sérréttindi, er bundin sé við aðal,
nafnbætur og lögtign, má eigi lög-
leiða.
21. gr. 6i. gr. Stjórnarskrár-
innar orðist svo:
Tillögur, hvort sem eru til breyt-
inga eða viðauka á stjórnarskrá
þessari, má bera uvp bæði á reglu-
legu alþingi ag auka-alþingi. Nái
tillagan samþt^kkif beggja þing-
deildanna, skal rjúfa aljiingi þá
þegar og stofna til almenm-a kosn-
inga að nýju. Samþykki báðar
deildir þingsins ályktunina ó-
breytta, og nái hún staðfestu kon-
ungs, J>á hefir hún gildi sem stjórn-
arskipunarlög. >
Nú samþykkir alþingi breyting á
sambandinu milli Islands og Dan-
merkur, og skal ]>á feggþajað má
merkur, og skal þá leggja það mál
undir atkvæði allra kosningarbærra
manna í landinu til samþyktar eða
synjunar, og skal atkvæðisgreiðslan
vera leynileg.i^J
Akvæði um stundar sakir.
Umboð konungkjörinna þing-
manna falla niður, þegar stjórnar-
skipunarlög þessi koma í gildi, og
skulu þá kosnir í fyrsta sinn 6
þingmenn til efri deildar og jafn-
margir) varamenn með hlutfalls-
kosningum um land alt.
Á fyrsta reglulegu alþingi eftir j
kosningar skal ákveða með hlut- !
kesti, hverjir skuli fara frá eftir j
6 ár, þeirra sem> kosnir eru hlut- I
bundnum kosningum.
Almennar óhlutbundnar kosning-;
ar skulu fara fram sem fyrst eft- j
ir hlutfallskosningar, og ekki síð-
ar en innan ársfjórðungs.
2. málsgrein 11. gr. tekur ekki til [
dómara þeirra er nú sitja lands- \
yfirréttinn.
Heimilisfesta innanlands er ekki j
skilyrði fyrir kjörgengi þeirra
manna. sem þá kunna að eiga setu
á Alþingi, er stjórnarskipunarlög
J>essi öðlast gildi.
•—Lögrétta.
Hvaðanœfa.
— Rússnesk stúlka giftist ^nsk-
um manni fyrir nokkrum árum og
settust þau að vestur í Saskat-
chewan; þegar fram liðu stundir,
var hann vondur við hana, og lagði
jafnvel hendur á hana og hótaði
henni og barriinu hennar bana.
Loksins skarst vinnumaður þeirra,
sömuleiðis engelskur, í leikinn, eitt
sinn er bóndinn barði koun sína,
og veittu þau bóndanum bana.
Konan var dærnd á fimtudaginn
var í 40 ára fangelsi fyrir mann-
dráp, en vinnumaðurinn í fimm
ára fangelsi fyrir vitorð. Þau
höfðu borið líkið út í hesthús, til
þess að láta halda, að hestur hefði
slegið hann inni og troðið hann
undir fótum.
— Gufuskip afarstórt, er hét
Templeton, Iagði upp frá Balti-
more einn daginn, áleiðis til Liv-
erpool, hla'ðið bómull, olíu og dýr-
um við. Þegar komið var 800
mílur undan landi, kviknaði í
bómullinni af einhverjum ástæð-
um, og síðar í hverju lestarrúmi
af öðru, þartil alt skipið stóð í
björtu báli. Loftskeyti voru send
i allar áttir að leita skipa og svar-
aði eitt í 50 mílna fjarska. Skips-
höfnin á Templeton, 54 manns,
leituðu í bátana og var þeim öll-
um bjargað eftir nokkrar klukku-
stundir og fluttir til baka til Ame-
ríku, af skipi því sem náðst hafði
i með loftskevtum.
— Með Kínverjum og Mongo-
liumönnum stóð orusta nýlega á
þeim stað sem heitir Dolonnor, 145
mílur frá Peking. Kínverjar biðu
ósigur og flýðu.
— Tilraun var gerð nýlega til
að drepa forseta Portugals. Fimm
samsærismenn’ náðust og biða
dauða síns.
— Rússneskir ræningjar rifu
upp járnbrautarteina milli Baku
og Batoun við Svartahaf, fórust
40 manns á næstu lest, sem að kom
en meir en hundrað meiddust.
— Franskur flugmaður að
nafni Garros, flaug yfir Miðjarð-
arhaf nýlega frá Frakklandi til
Tunis, 558 mílur, á 7 stundum og
53 mínútum. Það er lengsta flug
er þreytt hefir verið hvíldarlaust.
—Hollendingar ætla að auka við
land sitt með því að hlaða fyrir
hinn mikla fjörð sem gengur
norðan í landið frá Englandshafi,
og síðan utan með honum á allar
hliðar. Fjörðurinn heitir Zuyder
Seé og var stöðuvatn áður en
sjórinn braut landið.
— Kennari nokkur við John
Hopkins háskóla í Chicago hefir
fundið áhald til þess að vita hvort
maður hefir tekið inn eitur, svo
og hvaða tegund eiturs, jafnvel J>ó
mjög lítið sé.
Thorsteinsson Bros.
& Co.
Byggja hús. Selja lóðir. Útvega
lán og eldsábyrgð.
Fónn: M. 2992. 815 Somerset Bldg
Heimaí.: G .736. Winnipeg, Man.
E. J. Skjöld
Lyfsali
Horni Wellington og Simcoe
Phone Garry 4368
Eftirmaður Cairn’s lyfsala.
Fáið ánægju
af skóakaup-
um með því
að kaupa þá í
Quebec Shoe Store
639 Main Street, Winnipeg
Rétt fyrir norðan Logan Ave.
ím
CANADA3
FINEST
.THEATRI
14) Síðari málsgreinin.um almenna
atkvæðagreiðslu um breyting á sam-
bandi Islands og Danmerkur, er ný
viíbót.
Hjálp í neyö.
Til Sigurlaugar GuSmundsdóttur.
Ónefnd í Baldur, Man. .. $i oo
Ónefndur í Mortlach, Sask. i oo
Safnað hefir séra J. Bjarnason:(.
Guðm. Jóhannesson, Árborg i oo
Mrs. Guðfinna Þórðardóttir,
Icel. River................. i oo
Mrs. Arnfríður Jónsson,
Hnausa...................... i oo
Mrs. Ósk B. Johnson,
Mountain............... 50
Mrs. Sigríður B. Johnson
Mountain............... 50
Samtals $6 00
Áður auglýst.........$190 50
Nú alls............... 196 50
The Whitney Opera Company sýna
—“THE RETURN OF MY HERO"—
THE
Chocolate Soldier
MUSÍK EFTIIl OSCAU STRAUSS
— 60 IÆIKENDUH I HÓPNUM 60 —
Sérstaknr músíkflokkur
Tjöld og nllur útbúnaður hið fegursta. 0
Tickets seld 3. Okt.
Kveld $2 til 25c.; Mats. Sl.50 til 25o,
—íimia axssux V I IV—
Matinee Miðvikud. og og Uaugard.
I MARGARET \T
*LLINGTO™
í leiknum
„Within the Law“
Kveld $2 til 25C. Mats. $1.50 til 250.
Leikhúsin.
“The Chocolate Soldier” heldur
einlægt áfram að skemta fólkinu,
aðrir leikir hverfa, en þessi kem-'
ur altaf aftur og laðar fólkiðí.
Matinees miðku og laugardaga.
Margaret Illington verður á
Walker alla næstu viku með
matinee miðku og laugardaga og
, leikur hið fræga leikrit “Within
' the Law”. Hún er gáfuð og for-
kunnar fríð sýnum. Leikurinn
hefir verið sýndur ævalengi í New
York.
“What happened to Mary” er
seinasti atkvæða leikurinn er kem-
ur á Walker eftir nokkrar vikur.