Lögberg - 12.03.1914, Blaðsíða 7

Lögberg - 12.03.1914, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 12. MARZ 1914. r Þáttur frá Þorláki prófasti Þórarinssyni skáldi. Eftir Gísla Konráðsson. Þórarinn hét bóndi á Látrnm noröur á Látraströnd, hann var son Lorláks, er stú<kmt var og numiö haföi í Hólaskóla, og var 'son Þórarins prests Ólafssonar, er fyrst var djákn aö Þingeyrum, var hann síöan prestur í Grimsey, en síöast aö Bæsá til þess árið 1664. En móöir Þórarins prests var Málmfríöur Jónsdóttir Stígssonar prests á Miklabæí Blönduhlíö, launsonar Bjamar prófasts Gísla- sonar í Saurbæ. En móöir Þórar- ins tónda á Látrum var Valgerö- ’ur, dóttir Einars prests Magnús- •sonar er var á Myrká og Heigu dóttur Jóns prentara. Þórarinn á Látrum átti konti þá er Þorgerður Eét, dóttur Eyjólfs Hallssonar, dóttursonar Sigfúsar Ólafssonar er nefndarmaður var í Vaölaþingi. er hans síðast getið i Táigréttu i6i;8. var hann hálfbróöir Halldórs lög- manns á Stónt-Ökrum i Blöndu- hliö ólafssonar Jónssonar rebba. •Þau Þórarinn á Látrum og t*or- geröttr, áttu son þann er Þorlákur hét, eftir afa sínutn Þorláki stú- dent Þórarinssyni. Var hann þeg- ar bráöþroska, og afar fríður sýn- um; ólst hann upp með fööur og móður til þess á 12. ári, því þá tók hann til fósturs Hannes Scheving og Klausturlialdhri á Mööruvöll- um og Guðrún Vigfúsdóttir köna hans, og komu þau honum 15 vetra í skóla á Hólum og varð hann útritaður tvítugur. \retri síö- ax var ltann djákn gjörr á Möðru- vallaklaustri af Steini biskttpi og giftist áriö 1738, þeirri konu er Guðrún hét Þórðardóttir, en mælt er aö allnauðugur gengi hann að því, fyrir því að húti var kona ó- frið sýnum, en þó kölluð góðlát; en mjög var hann til þess hyattur, sokum þess að þunguð var hún orðin af hans völdum. En það segja menn úr Eyjafirði, 11 marks um óvild hans aö ganga með henni. að eitt sinn er hún bjó sig til veizlu og íeit i spegil, mælti hann : “Skoð- aðu þig ekki kona, þú ert herfi- feg!'’ En sjálfur var hann manna friðastur sýnum, og hefir lengi orðlagt veriö, aö heyra eða sjá hann fyrir altari í messu klæöum. Hann bjó nteð konu sinni fyrst.tvö ár að Revstará og síöan á Asi alla æfi sína. Djákn var hann alls 14 vetur áður Jóhann Kristinn Eingel amtmaður veitti lionum Möðnivalla klausturúrauð árið 1745, var hann vigður 'fyrsta sunnudag í jólaföstu af Þorleifi ■stiptaprófasti Skaptasyni og settur itin i brauöið þegar hinn 12. dag Desetnbe rmán aða r af Þorsteini prófasti Ketilssyni á Rafnagili. Það er eitt sagt frii Þorláki presti, að eitt sinn færi hann njósn- arferð á bæ einn, þar nafnagiftir vortt um hönd hafðar, og hann haföi spurt þaö; komst hann i bæ- inn um myrkurvöku og bar heima- fnönnum þá rnargt á gótna, áður Prestur gaf hljóö af sér, þvt um hrið hafði hann staðið framan við pallstokk í baðstofunni. Kvað bann þá: Ekki þykir Láka langt lít'ö stúrir kallintt hann hefir ekki stritið strangt að styðja sig við pallinn. Ueimamönnimi varð all hverft viö, þvi að eigi áttu þeir von á þeim Resti; er sagt hann vítti þá harö- Lga fyrir þær framfarir stnar, haföi hann og færi þess, því al- ^næli eru að hann vært ræðumaður ; inikdl svo mjög var aö oröum haft; , °n eigi lét hann mál þetta fara | ^ngra, lofuðu og hrimamenn að hæta ráö sitt. Þorlákur prestur var og skáld j mikið, og hefir margt kveðið og ; °ft var hann dulkvæður — er j tnargt fleira sagt eftir hann, en , það prentað er t ljóðasafni hans, er tnenn kalla: ‘ Þorláks kver”. — j Kvæði hefir hann kveðið um flátt- shap heims, áttj>ætting aö bragar- hætti, og er þetta uppltaf af: Öll er frægö og jjjóðlags jxægð jækking hægð og röksentd fægð kúgun plægð við klækja mægð kaerleiks nægð ef frá er bægð. Ertt það 64 erindi; svo hið síöasta: ; Hyggin þjóð ntinn þiggi óð þíöu góð ttm blíðu slóð mærö ófróö í væröir vóð vendast móð á enda ljóð. Þorgrimur hét ntaður er bjó stúdent að Á í Ólafsfirði, hann var Jóns prests Þorgrímssonar að Hálsi í Fnjóskadal prests Hjalta- s°nar að Saurbæ. Höfðu þeir e®gar allir verið afburða menn llt^ afl og vöxt, svo var og Þor- Srimur á Á. Honum sendi Þorlák- prestur spjald og á dulkveönar yis»r, alls 14, eru þær meö útþýð- 'n£u skáldsins, aö því er menn YKgja. Voru Jæir Þórgrímur vjnir miklir, að jWí er sjá er af yísum þeim; er þetta tipphaf að þeim: Eja, öðlingar háir Eja, mæringja freyur Eja, auðverðir búar Eja, drótt hálmi vegin Eja, önnungar þægir Eja, böm, kv'nnur, meyjar Eja, alfjörnis grúi ; Eja, land gjörvalt segi. En svo er niðurlag vísnanna; Sælu alla sól mildust sætt J)inni ætt hlynni foreldrum farsælda full byrði gullvirðum að hranni frið finni frægð ráð og nægð dtða jtér allir hýr hollir hress dafnir prests nafnið. Og enn var vísa á spjaldinu: Voriö hiö bliða vottar hinn fríða vom æsku blóma sumarið þíða jirátt aldur liða | jtrifnað og sóma I ltausi:ð heims kvíða hlattp elli tiða i hnignan og dróma | veturinn stríða stund dáins hríöa ; og stefnu til dóma. j Son Þorgríms á Á var Tón [ hraustmenni, en þótti lítt vitur en jk) skilgóður, átti hann son þann ! Páll hét, var hann maður vel styrk- j tir, sem frændur hans. hann lézt I um þrítugt og hafði ]>á son getið I v'ð Guðríði Jóhannesdóttir frá i Breiðavaði, ekkjti Gottskálks gull- sntiðs á Völlttm í \ allhóhni, var I hún síðari kona hatis, hét sveinn sá 1 Páll og dó 7 vetra. Jón hét maður Pálsson. Eyfirð- ingur einn. skáld, ltefir hann kveðið hálíar Þögnarímur. Hann ! kvað vístt J>essa eitt shn við Þor- lák prest: Min j>aö hlerar minnis slóð með óþveran orða kur fæstir gera eins vel óð og hann séra Þorlakttr. Prestur kvað aftur, en við seint: Ýmsir rnenn í svörum sín sattina nenna’ að spjömm mín liróðrar máfa hörin dvtn haf ]>ú gát á vöntm þín. Þorlákur prestur ól 6 börn við ! Guðrúnu konu sinni, 5 sveina. Benedikta 3. Þórarinn og Jón; dóu þeir allir ungir, en Sigríður hét dóttir J>eirra. En ]>að var ár- ið 1751.' tveimur vetrttm fyrir ; hrossafellis veturinn ltinn mikla, ! er XorðletMingar kölluöu Hregg- við, að Þorlákur prestur var kjör- inn og skipaður prófastur í \ aöla- ! ]>ingi, en e gi liélt ltann sýslan þeirri nerna á J>riðja ár. Var ]>á Halldór Brynjólfsson Hólabiskttp. i [ Heldttr ]>ótti Þorlákur prófastur ; ! kvettkær, en siðlátur mjög að öðru : og ltibýla prúöur. komst hann og í kvenna mál, j>ó vér vitum eigi glögt að greina hvern’g j>að við vissi; getur hann og kvennamála í Tíðavísum sínum. er hann kveðið hefir, um 15 eða 16 ár, og enn eru til — 0g 0r sagt hann sværi fyrir ! eina, er ltann lýsti föður. — Fyrir j j)ví var j>að siöan. er hann tók i | vanmátt t lvna vinstri hendi, að ; 1 óvildannenn ltans sögðu að hon- j um hegndi með ]>ví fyrir tneinsær- ið; J)ó eigi mundi hann svarið hafa 1 með hinni vinstri ltendi. Og má ætla litla eða enga hæfu fyrir því vera. I»að er alsagt, að svo kæmi æfi Þorláks prófasts, að tnjög þrerði hann eftir dattða sinttm, og helzt eftir það hann gerðist vanheill. l>að er í sögnum, að það segði hann fvrir, að skjótt mundi hann af heimi fara og drukna í Hörgá. Varð j>að spámæli. Það varð nú árið 1773, hinn 9. Júlí mánaðar, að Þorlákur prófast- ur reið frá Ósi og með honum sveinn hálfvaxinn og yfir að Stóru Vindheimum á Þelamörk og dvaldi j>ar lengi dags, og j>að J>ótt sveinn- 1 inn ámálgaði oftar en einu sinni j heim að ríða. Þótti ltann og fá- látari en vrandi hans var til og j)áði lttinn eöur engan beina. Að lyktum riöu j>eir heim a leið, og áöur Jæir riðu á Hörgá, steig pró- fastur af baki og gerði bæn stna; en er hann stóð upp, bað hann j sveininn engum að segja lát sitt, nema djákna á Möðruvöllum. Tvét svemninn að eigi mundi það svo skjótt að bera, og eigi í ánni, er hún var i litlum vexti. .En er þeir komu út á ána, hnetg prófast- ttr ofan í ána og druknaöi J>ar; ; var hann þá á öðru ári um sextugt. 28 ár hafði ltann prestur verið, en í hjúskap 33 vetur, og lifði Guð- rún kona hans fáar vilcttr eftir ltann. Böm hafði ltann skýrt 432, sungið yfir dauðum 422, fermt unglinga 402, cn 80 hjóna saman vígt. — Sveinninn reið Jægar til Möðruvalla og sagði atburð þenn- an djáknanum, var J>á v-ð brugöiö og mönnum safnað, og er sagt að lík þrófasts yrð.i brátt fundið og jarðar veglega. Var J>etta hin sömu misseri og Bjarni sýslumaöur á Þingeyrum lézt og prentverk var fært í Hrappsev, en saltverk í fsa- fjörö. Þorlákur prófastur var skáld mikið, og mttnu fæstir dýrara kveðið ltafa og betur af hendi leyst, en lrvæði hans, þau er vér vitum prcntuö og hve nær hann kveðið hefir. Þagrtannál kvað hann 19 vetra, einu ári áöur en hann var útritaður, en }>á hafði hann djákn gerst hið sama ár og hann kvað brúðkaupsvísur til Jóns prests í Saurbæ í Eyjafirði Sig- fússonar og Þuriðar Guðmundar- dóttur; voru j)e;rra börn Sigfús faðir Bjarnar á Svaðastöðum og Sigriður Jónsdóttir, er átti tvö böm í föðurgarði með bónda þeim er Ólafur hét í Rauðhúsum, Bene- riikt og Salome, fór Benedikt sá ut- an; var Evphemía Iaundóttir ltans með Sigriði Jónsdóttur pórfasts á i Hjaltastað. Siðan fékk Sigriðar j Bjarni bóndi í Djúpadal, þeirra ] synir Eirikur prestur og Hannes : prestur skáld. En J>á hafði Þor- lákur verið djákn 4 vetur, er hann kvað útfararminning eftir Jens ! sýslumann Spendrup í Hegranes- j jvngi. er druknaði i Héraðsvöttium ; milli þess 5. og .. Október og graf- | inn að Reynistað hinn 18. sama ! mánaðar. Þau misseri kvað hann og eftir Tngveldi SöTvadóttir, um tvitugt. Ári síðar kvað ltann j hamingjuóskir á brúökaupsdegi hinn 17. Október, Björns prests Schevings á Evjadalsá. bróður ! TTans Schevings klausturhaldara i og Sigríðar Jónsdóttur. önnur ! mis'seri kvað hann eftir Hallgrim ! Magnússon og Höskuld Jónssoti, I ungan mann, hálf þrítugan — og næsta ár gerði hantt erfiljóð eftir ! systnr tvær. Guðrúnu og Guönýu í Ing mundardætur, var önnttr ekkja on önnur gift; önduðust ]>ær báðar | sumardag fyrsta. — Hattn kvað j og eftir Þorgerði Eyjólfsdóttur | móður sína; hafði hún þá sjúk I legið ttm 13 vetur og lézt um j f'imtugt. Þórarinn faðir skáldsins j lézt um vorð hann 17. Maí árið 1739, og kvað hann eftir hann. j Það varð tveim vetrum síðar, að Lártis son TTans Schevmgs klaust- urhaldara lézt, hinn 6. Júní, á heintsiglingu til íslands 18 vetra, ! og kvað Þorlákur djákn eftir i hann ; var Lárus jarðsettur í Nor- egþ — Skúli Illugason smiðs og ! Lögréttumanns að Nesi í Höfða- hverfi. hafði Möðrttvalla klaustur- Ihrauð. andaðist hann árið 1744; kvað Þorláktír djákn eftir hann. ! Son skúla prests var Tómas prestur frá Grenjaðarstað, faðir j Jæirra Skftla prests á Nesi og Múla-Einars aðstoðarprests að Múla og Ólafur prestur í Blöndtt- dalshólttm, En J>að var 14 vetr- j.unt siðar aö Þorlákur prófastur kvaö eftir Jón bónda Jónsson í ' Vöglum i Hörgádral, undir nafni barna hans. En J>að A’ar 6 vetrtim áðttr prófastur lézt, að Guörún X'igfúsdóttir fóstra hans andaðist; kvað hann eftir hana. En það vitum vér ógjörla hvenær Þorlák- ur prófastur kvað vísu þá er Dvergmál kannast og er þannig: t Hveim er likast lífiö manna 1 heim’ ? eitni. Hvað er þaö sern hver girnist snatiður? auðttr. Hvað má gagna harm þrtmgnu lyndi ? yndi. Hvað cr heimsins fordild og frami? ami. Hvernig gengur aura þegnum ágimd aö fylla? illa. Hvert mun natiðum náttúrtinnar venda? að enda. \Iagnús prestur á Tjörn í Svarf- aðardal skáld gott. son Einars Itónda á Nesi og Stórahóli, kvað erfiljóð eftir Þorlák prófast og lýsir honum svo í Jæim: Skapnaðarblóma skærum bezt skrýddur sem hér inn bind til limanna sóma lagð st flest ljós svo að á var hind fagur róntur og mikill mest mttndi titt hljóma, ó! þann prest sem bar svo mannlega mynd. Atlcvæðamaður mikill ltann mundi á sinni tið djúpt grtindvallaðtir kallast kann kostgæfinn fyrr og síð hugspekin stað hjá honttm fann hevrðist J>að á nær tala vann ræðan fögttr og fríð. Kenningin frægða rann fram rétt röksemd og bliðu með ströffunin væg en jx> svo þétt sem þurfti lifernið skeð httggunin þæga h-num sett og hetrningin væg sem báru mett af harmi hjarta’ og geö. Þaö hefir jafnan sagt veriö, aö litltt eftir það Þorlákur prófastur druknaði, dreymdi það konu eina. að hann kæmi að sér og kvæði þetta fyrir sér, er hún kunni þeg- ar hún vaknaði: Dattðinn fór djarft aö mér riauðanum enginn ver datiðinn er súr og sætur samt er hann mjög ágætur þeir sem í drotni deyja ’ dóminttm eftir þreyja. Sigríður dótt'r þeirra Þorláks prófasts og Gttðrúnar konu hans, orkti sálm eftir föður sinn; var hútt vcl viti borin, einkttm í and- legu, en eigi allvæn sýnttm og líkt st ttm ]>að móður sinni. Hennar fékk Ilallgríntur hreppstjóri Ein- arsson úr Grimsey Hallgrímsson- ar, voru j>eir bræður Hallgríms hreppstjóra Snorri á Reistará er druknaði fyrir Sýrdalsvogum. fað- ir Rögnvalds á Baluursheimi og Sigríðar er átti Flóvent Markússon á Kúg'li. Þriðji sonttr Einars \'ar Eiríkur á Reistará, faðir Einars geldings eða Geldinga-Einars; kölltiðu og Eyfirðingar hann Fald. Þær vortt systur þeirra Hallgríms hreppstjóra: Guðrún Einarsdóttir átti Sigurð Jónsson og Ólöf Ein- arsdóttir átti Guðmund Guðmunds son á Hvarfi í Skíðadal; voru þeirra tx'im : 1. Einar á Hraunum i Fljótum, umboðsntaður og Dbr,- maður, faðir þeirra Baldvins bræðra er dó utanlands, Bessa og Guðmttndar. 2. Guðmundur á Hvarfi átti Sigríði Jónsdóttur Sigurðssonar frá Krophól í Skiða- dal. 3. Una átti Jón Jónsson frá Svðra-ITvárfi. 4. Jón á Hrafna- gili í Þorvaldsdal. Þau Hallgrímur hreppstjóri ög Sigríður Þorláksdóttir bjuggu að Ósi og vortt Jæirra böm: Þórlákttr er prestur varð að Svalbarða í Þistilfirðí; þótti-. hann ei all-mik- 511 námsmaður. en atall í hvívetna öðru bæði til lands og sæfar. Hann átti Guðrúnu Ásmundar- dóttur auðga, systur þeirra Tóm- asar hreþpstjóra á Steinstöðum í Yxnadal, Jóns er um hríð var spítalahöldur á Hallbjarnareyri og Ásmundar bónda á írafelli 5 Tungusveit. Guðrún var og dóttir ]>eirra Hallgríms og Sigriðar, væn kona, átti hana Jón kallaður af sumum voti, sökum sjófara hans og sóknar; voru }>eirra börn mörg: Hallgrímttr, Þorlákttr, Jón, Guð- rúnar tvær, S:gríður og Margrét. Guðrún kona Jóns andaðist í Ey- hildarholti mislinga sumarið, og hafði Jóh þá eigi heila sinnu síð- an; hvarf ltann og tveim vetram stðar fnt Eyhildarholti og ætluðu menn hann týndi sér í Héraðsvötn- um, því ferja sú á Eyhildarholts- kvísl eður Vesturvötnum, er menn drógu sig á milli bæareyar og stöðuls, á land, föstum kaöli bei’gia vegar, var út komin á miðja kvísl- ina er t'l var komið; hafði Jón og freistað áður að flevgja sér i Vötnin og varð stðan að gæta hans. Jón fanst fánt vetrtun síðar rek- inn úr Vesturvötnum ('1850) neð- an Hróaldsdals. En það var nótt- ina áður en Jón fanst, að það dreymdi Þórunni ölafsdóttur frá Vindhæli, konu Sigttrðar hrepp- stjóra Péturssonar í Ási i Hegra- nesi, að Jón kæmi að sér og bæði sig að lána sér sængina sína að liggja á. En Sigurður maður hennar haföi keypt sæng Jóns eft- ir ltann, á sölufundi, og lá grið- kona þeirra ein á henni í Ási. Stóð og Sigttrðtir fyrir útför Jóns. Rósa var og dóttir Hallgríms og Sigriðar, átti hún Svein Rögn- valdsson á Ásláksstað i Kræklinga- hlíö: voru þeirra börn: Bened’kt, Þórarinn, Jón, Rögnvaldur og Þóra. Sjávarstórflóð. Rontshvalanesi, 7. Febr. 1914. Aðfaranótt j>riðjudags, 27. Jan., var hér stórviðri af landsuðri með feikna úrferð. Um morguninn gekk veðttr til útsuðurs með ofsaroki. Fór bá sjór að gerast ærið úfinn og um hádegi var komið stórbrim. Taldi eg víst, að töluverð flóðhæð mundi verða um kvöldið, }>areð stórstrejmii var og brimið jókst með hverjum klukkutíma. Kl. tæplega 4 stóð eg úti á svölum húss míns og var -að horfa á brimið milli blindhríðaréljanna. Sé eg þá hvar norðan úr Reykjanesröst ketnur líðandi áfram, eins og blár fjallgarður í fjarska, feiknastór alda. Hefi eg aldrei séö neina likingu af annari eins undra-risavaxinni sjón, þau 48 ár, sem eg er búinn aö vera hér í Hafnahreppi. Brátt færðist alda þessi nær, og J>egar hún var komin innan til við Hafnaberg, fór eg að geta glöggvað ntig vel á þess- ari undrasión. Aldan rann nú áfram meö feikna- hraða, var engu líkara en }>ar væri komin “Esjan” tneð hvítum snjó- sköflum í efstu brúnum, og brunaði hún áfram, knúð af einhverju undra- afli. Öðrti hvoru risu upp stórir sjó- ir á öldunni og steyptust svo hvít- freyðandi fram af henni eins og foss af hamrabrún. Hélt svo aldan hröðum fetum inn Hafnaleir, beina línu á Kirkjuvogs- hverfið að sjá, svo á móts viö Kal- manstjörn var hún hér um bil eina röst frá landi. Hvarf svo skaðræðis- gripur }>essi sjónunt mtnurn á bak við hæðir þær, sem em noröur af Kal- manstjöm og hylja allan gntnnleir fram af Kirkjuvogi. Eg hrósaði happi, að ekki var nema hálffallið að. Annars held eg vist að Kirkjuvogs- hverfið hefði fengið ój>ægilegan skell af bákni þessu, en happið var ekki eins mikið og eg hélt. Alda þessi spurði hvorki um flóð né fjöru. Hún fór sinna ferða, hvernig sem á sjó stóð, æöandi áfram eins og vitlaus ófreskja, drepandi alt, sem á vegi hennar varð, þar til hún skall mátt- vana niöur, 50 til 200 faðma lengra uppi á land en vanalcga nteö stór- strautnsflóði. Kemttr hér lýsing menja }>eirra, er aldan lét eftir sig. Eg fór t morgun inn að Kirkjuvogi til þess að vita hvort fleiri en eg hefðu séð sjó J>ennan, og jafnframt til að vita, hvort nokkurt tjón hefði hlotist af honum. Þegar eg kom inn að Merkinesi, sem er kirkjujörð mitt á milli Kalmanstjarnar og Kirkju- vogs, sá eg að í öllum sjávargörðum |>ar var ekki steinn yfir steini stand andi og alt túnið ein stórgirj’tisurð. Hélt eg svo inn að Kirkjuvogshverfi og mætti mér }>ar hin sama sjón, nema öllu verri. Skýrði Ketill bróð ir minn mér frá því, að hann, kl. 4, hefði staðið vestan undir fjárhúsi sínu, sem er nálega 60 faðnta frá í- veruhúsinu. Sér hann þá eftir eitt élið, hvar voðasjór kerr.ur og stefnir beint á land; þóttist hann sjá, að sjór þessi mundi verða æði nærgöngull, þótt ekki væri nema hálffallinn sjór að, og fjaran öll hvít af snjó, sem sjórinn ekki var farinn að ná til. Tekur Ketill nú til fótanna og hleyp- ur setn má heim til sín, en áður en hann nær forstofutröppum sínum, er sjórinn kominn á undan honum, svartur eins og öskubingur af moldu og grjóti, sem hann reif upp með sér úr túngörðunum um leið og hann sópaði }>eiin um. Þegar út fjaraði, sáust ntenjar þær, sem hann skildi eftir. Nálega enginn steinn yfir steini i öllunt sjávargörðum Kirkju vogshverfis; fjögur skip, sem stóðu efst upp t naustum, hentust með út- soginu frant á sjó, sum hentust að landi aftur, öll meira og minna brot- in; tveir smábátar fóru og sömu leið. Fjárhús, sem Vilhjálmur bóndi í Görðum á. sprengdist upp og fyltist af sjó. í húsinu voru yfir 30 fjár fullorðið, og drapst J>að alt í einni kös }>ar inni. Sjór J>essi untkringdi bæ satna manns (V. ].) svo að bær- inn var eins og þúfa upp úr sjónum, æddi hann inn í bæinn og fylti öll húsin upp að rúmbríkum, barmafylti kjallarann og eyðilagði þar alla lífs- björg V. J., kaffi, sykur, rúgmjöl, rúg, kartöflur og margt fleira, en fólkið slapp út úr bænunt undan ó- sköpurn þessunt á elleftu stundu. V. J. var fyrir 12 árum búinn að fá út- mælda j>urrabúðarlóð, 1800 ferfaðma sem hattn síðastliðið árHauk við að rækta að fullu, en nú sjást lítil merki j>ess, að ]>ar hafi manttshönd að verki verið: Urð eintóm, stórgrýtis- urð. auðn og sandur, það eru menj- arnar, sem ófreskja þessi eftirskildi. Allar jarðir. í hrepnum, sem sjáv- argarðar fylg/a, hafa orðið fyrir nteiri og minni skcmdum, nema Kal- manstjörn ein. Fram hjá henni fór sjór ]>essi eins og áður er skýrt frá og raskaðist þar ekki einn steinn í görðum: Utn ílóðið, milli kl. 6 og 7 varö engra stórra sjóa vart, en kl. 9]/2 kom aftur sjór, setít fór yfir allan sjávargarðinn í Junkaragerði og sóp- aði honum í fjórurn pörtum t burtu, en gerði j>ó engin spell á túni. Svæði það á landi sem aldan mikla rann yfir ntun vera nál. 1200 faðma eða tneð öðrum orðum frá Merkinesi og inn fyrir Kirkjuvogslendingu. Heyrt hefi eg að á Miðnesi hafi orðið miklar skemdir af hafróti þessu og }>ykist vita, að Grindavíkurhrepp- ur ltafi fengið sinn mæli fullan, þar sent öldurótið kotn alt úr suðurhaf- inu, en ekki af vestri. Þeir, setn fyrir mestu tjóni hafa orðið af öldu þessari, eru: Guðmundur Sigvaldason, bóndi i Merkinesi, Magnús Gunnlaugsson, bóndi í Garðhúsum, Ketill Ketilsson, óðalsbóndi í Kotvogi, Vilhjálmur Kctilsson í Kirkjuvogi og Vilhjálm- ur Jónsson, bóndi í Görðum. Hefir hinn síðastnefndi orðið fyrir tilfinn- anlegasta tjóninu. Jörð hans alveg eyðilögð, fjárstofn allur drepinn og ársforði heimilisins eyddur. Mörg hundruð dagsverk eru hér nú óunnin í túngarðahleðslu, auk þeirrar feiknavinnu, sem liggur t að hreinsa alt stórgrýti, möl og sand af túnun- um sjálfutn. Skyldi ekki stjórnarvöldunum ís- lenzku hafa fundist }>etta tilfinnan- legt tjón og bótavert, ef Rangvell- ingar hefðu íengið annað því líkt af jarðskjálftum ? ÓI. Ketilsson. —ísafold. ALLAN LINE Konungleg Póstgufuskip VETRAR-FERDIR Frá St. John og Halifax Frá Portland. * tU Ul Liverpool og Glasgow. Glaagow FARGJOLD A PYI18TA FARKÝMI . . . . . . . , IAO.M og upp A ÖORtJ FARKÝMI.......»47.50 A plttlUA FARRÝMI........>31.15 Fargjald frá fslandi (Emigration rate) Fyrir 12 ára ug eldri...... $56. ia “ 5 til 12 ára........... 28.05 “ 2 til 5 ára............ 18,95 “ 1 til 2 ára............ 13.55 “ börn á 1. ári............ 2.70 Allar frékari upplýsingar um gufuskipaferBirnar, far- bréf og fargjöld gefur umboðsmaður vor, H. S. BABDAL, horui Sherbrooke og Elgin, Winnipeg, sem annast um far- gjalda sendingar til íslands fyrir þá sem til hans leita. W. R. ALLAN 304 Main St., VVInnipeK. ASaluxnboðamaSujr veatanianda. Frá Islandi. lx>rð, og vildi svo tlla til að heíillinn lenti á hendinni og sneið af fing- urna. í gær viltist brezkur botnvörpung- ur. Minor frá Grimsby inn á Skerja-; fjörð í hríð, en aðrir sögðu að hann; hefði verið að leita að Port Reykja- vik. Hann lenti á Lönguskerjum. Geir var kallaður til og er að reyna að bjarga honutn af skerinu. Þann 8. Febr. lézt austur á Hæli i Hreppmn Ragnheiður Thorarensen, ekkja Vigfúss Thorarensens fSig- urðssonar prests í Hraungerðij er stðast var sýslumaður . í Stranda- sýslu (d. 1854J. Frú Ragnheiði skorti tvö ár á tírætt. Hún var næstelzt hinna tnörgti barna Páls amtmanns Melsteð, 4 árutn yngri en Páll. Lifði hún Pál ein allra Jæirra systkina. — Með henni eru þau öll dáin. Meðal barna fni Ragnheiðar er Anna, ekkja Péturs bæjargjaldkera, nióðir dr. Helga Péturss, Sigríður Thorarensen kenslukdna og Steinunn húsfreyja á Hæli, inóðir Gests bónda. Frú Ragnheiður var tíguleg myndar- kona ok valkvendi. Á Akureyri lézt í fyrradag Guð- jón Steinsson, faðir Friðfinns prent- ara og leikara. Hann var hálfbróðir Friðbjamar bóksala, kominn hátt á sjötug aldur.—Isafold. ÆFIMINÍÍING Reykjavík, 14. Febr. 1914. Arið 1912 lézt i Khöfn efnilegur islenzkur námsmaður, Olafur P. Pét- rsson, bónda t Hrólfsskála á Sel- tjarnarnesi. Hann var grafinn hér heinta, en í stað þess að leggja blóm- sveig á kistuna var efnt til dálítils sjóðs í ntinningu hans, sem ætlaður er til að styrkja berklaveika menn á Seltjamamesi, er þess þurfa. Þeir eiga að ganga fyrir, sem eru í fram- farafélagi þeirra Seltirninganna. — Sjóðurinn er nú orðinn eitthvað á 5. hundrað kr., en eigi verður farið að veita styrk úr honum fyr en hann netnur 2,000 kr. — Ólafur heit, Pété- ursson var hvers manns hugljúfi og munu }>ví sjálfsagt margir, er [>ektu hann, vilja leggja í sjóðinn eða heita á hann. Móti gjöfum taka Kristín Ólafsdóttir húsfreyja í Nesi og Guð- tnundur uðmundsson i Sanitas-rerk- smiðjttnni. Læknapróf við háskólann, fyrra hluta, hafa þeir lokið nýlega Helgi Sknlason frá Odda og Þórhallur Jó- hannesson, báðir með 1. eink. Brydes verzlun í Borgarnesi hefir Gísli Jónsson, sem }>ar hefir verið verzlunarstjóri nokkur ár, keypt ]>essa dagana og ætlar að fara að reka hana upp á eigin spýtur.—Isaf. Inni í verkmiðjunni Völundur vildi það slys til í gær að maður einn Guð- tnundur Jónsson, misti fjóra fingur af vinstri hendi. Hann var að hefla Aðfaranótt }>ess 30. Júli siöastl. lézt á heimili sínu aö Akra, N. Dak., öldungurinn Friðrik Jóhannesson, liðlega 81 árs að aldti. Friðrik heit- inn var fæddur 1 Garði í Fnjóskadal | 23. Marz 1832. Hann var sonur Jó- hannesar Oddssonar og konu hans Guðnýjar Kristjánsdóttur, sem þar bjuggu. Með íoreldrum sínum fluttist hann á unga aldri að Tjörn í Aðalreykja- dal og vann hjá þeim þangað tiLvor- tð 1855 að hann gekk að eiga Sol- veigtt Benediktsdóttur frá Baraafelli t Kinn. Þau bjuggu á Fljótsbakka. Þau eignuðUst tvö börn, Jóhann Tryggva bónda hjá Canadahar, Sask. og Friðriku Sigríði, sem dó fimnt ára götnul. Til Ameríku fluttist Friðrik sálugi árið 1874 og var fyrstu fjögur árin í Nova Scotia. Þaðan fór hann til VVinnipeg og var þar í lausavinnu 1 um eins árs tima. Síðan fór hann til I Dakota og nam land sunnarlega t' Garðarbvgð. Árið 1884 gekk hann aö eiga Ingi-1 björgu Guðinundsdóttur, ættaða úr| Fáskrúðsfirði i Suðurmúlasýslu. Þau! eignuðust tvær dætttr, sú eldri, Guö-1 ný Margrét gift Bimi Thorwaldssyni j á Akra, og Guðrun gift Gunnari Th. i Gunnarssyni í Garðarbvgð; einnig lifir hann stjúpsonur hans, Guðni Goodman nú í Winnipeg. Þá lifa hann og fjögur systkini, öll hnigin á efri aldur. Friðrik sálugi misti sjónina á báð- um augum þegar hann var liðugt sextugur að aldri, og var hann búinn að vera 19 ár blindur þegar hann dó. En þann þunga kross bar liantt með stakri þolinmæði, og kom það sér þá oft vel fyrir hann hvað af- bragðs þrekmaðttr hann var til sálar og likama. Hans mesta skemtun var að lesið j væri fyrir hann og var hann vd ' minnugur og bar gott skyn á flest ; málefni, sem rædd voru. Hann var vel að sér í fomsögum íslendinga, og gantan hafði hann af kveðskap fom- , mn og nýjutn, og marga skemtistund ' haföi hann af því í myrkursetu sinni | að rifja upp ýmislegt af því sem ■ hann hafði lagt á minnið á ýmsutn tímum. Og furðulegt mátti það ]>ykja, hvað hann fylgdist með nú- tiðarmálum. TTattn var trúmaður góður og misti aldrei sjónar á því sem er háleitast og bezt í kristninni. Hann var jarðsettur 3. Ágúst í Vídalins grafreit, að viðstöcklum ættingjum og vinum. Blessuð sé minning hins látna. Vina. ÞESS VIL F.G MINNAST. Nú, er eg er að íara úr Winnipcg, eftir mánaðar-dvöl mér til lækning- ar; vil eg með fám orðum minnast tneð }>akklæti þess góða fólks, sem sýnt hefir mér svo tnikla umönnun og kærleik, setn væri eg náskvld þvá. Fyrst vil eg minnast á hintt góða Leknir, Dr. B. J. Brandson, er gerði uppskurð á mér 14. Febr. við hættu- legum magasjúkdótni, er hefði brátt dregið mig til dauða; og tókst það svo vel, að eg var komin á fætur og út af spítalanum eftir liðugar tvær vikur, með betri heilsu, en eg hefi átt að fagna t mörg ár. Alúð og nærgætni Dr. Brandsons get eg ekki og þarf ekki að lýsa; er hann svo vel þektur að nákvæntni við sjúklitiga sína, sem starf hans er frægt orðið. Með lotning og þakk- læti mun eg lengi minnast Dr. Brand- sons fyrir það er hann hefir fyrir mig gjört. Einnig vil eg minnast hinnar góðu hjúkrunarkonu, Miss T. Hermann, er hafði umsjón yfir þeirri deild spítal- ans, sem eg lá í, og lét ekkert ógert til þess að tnér liði sem bezt. Er eg henni og hinutn hjúkrunarkonunum sent stunduðu tnig (þær eru enskar) innilega þakklát fyrir nteðferðina á mér, þann tíma er eg dvaldi á spít- aitanum. Þá vil eg minnast allra þeirra mörgu ntannvina er heimsóktu mig á spitalann, er eg fór að frískast og gerðu dvölina þar aö sannefndutn sæludögntn. — Eg nafngreini ekki það fólk, það er svo margt, en inargt ir þeirra buðu mér að dvelja hjá sér er eg færi út af spítalanum, og þáði eg það boð frá Mr. og Mrs. Kristján Albert að 719 William Ave. Hafa j>att reynst mér sannir vinir. Öllu þessu góða fólki, ásamt hin- utn góða lækni, j>akka eg, maður minn og böm innilega og biðjum guð að launa mannkærleik þess. Winnipeg, 9. Marz 1914. Sigriður H. SigurSsson.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.