Lögberg - 18.06.1914, Síða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. JCNÍ 1914.
3
Heilbrigði.
Að tyggja vel.
Eftir W -E. Willmott tannlœkni
í Toronto.
Þannig er venjulega litiS á sem
þaS að tyggja vel, sé að eins það
að mala fæðuna vel eöa merja í
smáagnir til þess, að hægra sé að
renna henni niöur og að melta
hana. Þar kemur samt fleira til
greina.
1. Fæðan byrjar að meltast á með-
an verið er að tyggja hana.
2. Við það að tyggja styrkjast og
þroskast andlitsvöðvarnir, og
það hefir áhrif á svip og útlit.
3. Tennurnar og kjálkarnir verða
sterkari og heilbrigðari.
4. Vöðvarnir og himnurnar i háls-
inum og öllum efri öndunarfær-
unum verða hraustari og afl-
meiri.
5. Munnvatnið eykst á meðan ver-
ið er að tyggja og það býr fæð-
' una undir meltinguna -t- byrjar
meira að segja að melta hana.
Þegar tuggið er malast fæðan í
sundur milli efri og neðri tann-
anna. í þeim dýrum sem kjöt éta,
hreifast kjálkarnir við tuggning-
una aðeins upp og niður og fæðan
er kramin eða mulin í sundur á
þann hátt milli tannanna, sem eru
afar ósléttar og ójafnar, en i þeim
dýrum sem gras éta hreifast kjálk-
arnir til hliða — þau jótra, eins
og við köllum það. Þar er fæðan
möluð rnilli tannanna, eins og á
milli kvarnarsteina; þess vegna eru
tennumar í jórturdýrum sléttar og
jafnar, en í hinum dýmnum gödd-
óttar og ósléttar.
Vegna þess að fæða sú sem
maðurinn nærist af er margskon-
ar og breytileg. eru tennumar i
honum bæði jafnar og ójafnar —
blandaðar tennur. Þar að auki
getur maður hreift kjálkana bæði
til hliða og upp og niður og fram
og aftur. Þegar fæöan er komin
upp í niunninn, færir tungan hana
aftur á milli jaxlanna; þar mal-
ast hún í sundur í smáagnir;
hreifing tungunnar og kinnavöðv-
anna og varanna hjálpa til þess að
halda fæðunni á réttum stað,
þangað til hún blandast saman við
munnvatnið; þá er hún tilbúin til'
þess að renna henni niður. Aldrei
ætti að reyna að renna niður, fyr
en vel er tuggið, og fæðan blönd-
uð nógu miklu munnvatni.
Það er áður tekið fram að
hægra sé að melta ef vel sé tuggiö.
Það er oft vegna þess live hægt er
að renna niður án þess að tyggja
vel, hve erfitt er að melta ýmsar
fæðutegundir. Magavökvanum er
auðvelt að melta kjöt og egg t. d..
ef það er vel tuggið, en sé því rent
niður í stórum stykkjum. getur
það legið fyrir í maganum ómelt
um langan tima.
Þegar tuggið er, finst bragðið
að fæðunni; það hefir þau áhrif
á taugaendana að munnvatnið
eykst. Þegar tuggið er, þrístir
fæðan og vöðvarnir og beinin, sem
þátt taka i tugningunni, á kirtla í
munninum, og það eykur einnig
munnvatnið. Metra að segja
magavökvinn eykst þegar verið er
að tyggja. Af þessu er það auð-
skilið að því betur sem tuggið er,
því auðveldari verður meltingin
fyrir magann.
Vöðvarnir sem vinna að því að
tyggja, eru sérstaklega stórir í
samanburði við beinin, sem þeir
eru festir við. Það er afarárið-
andi að, þessir vöövar séu ekki að-
gerðarlausir — að þeim sé veitt
tækifæri til þess að þroskast upp-
haflega og haldast svo við. Ef
þeir eru látnir starfa — ef ekki er
svikist um að tyggja — þá vaxa
þeir og halda kröftum sjálfir, og
einnig aðrir partar. sem nálægt
þeim eru, og þeir hafa áhrif á, svo
sem kjálkarnir, mnnnvatnskirtl-
arnir. gómurinn og hálsinn að inn-
an. Heilbrigði og þroski beina
er að rniklu Ievti komið undir því
að vöðvarnir sem við þau eru
festir, séu látnir starfa. Þess
vegna er það að unglingur sem
hefir veriö vaninn á það í upphafi
að tyggja vel, hefir venjulega
stóra og fallega kjálka. regluleg-
ar tennur og sterkar, stóra tungu
og munnvatnskirtla, rúmgóðan
háls og himnurnar í munninum og
hálsinum heilbrigðar.
Vegna þess að tennurnar vaxa
og þroskast innan í kjálkanum,
taka þær auðvitað þátt í vexti og
heilbrigði kjálkanna. Ef kjálk-
arnir því eru notaðir hæfilega með
því að tyggja vel á uppvaxtarár-
unum, þá verða tennumar sterk-
ar og hraustar og siður hætt við
veiki. Bezta vörn við tannpínu og
tannrotnun er þvi það að tyggja
vel. Það er einnig ettirtektavert,
að á þeim, sem vel tyggja, falla
tennurnar vel saman, efri tenn-
urnar verða jafnar að neðan og
þær neðri að ofan, þær verða þvi
miklu betur til þess fallnar að
mala eða kremja fæðuna.
Algengasta ástæðan fyrir því aö
menn tyggja illa er það, að menn
éta mikið af þeirri fæðu sem er
lin og hægt að renna niður; fólk-
ið venst því á það að tyggja ekki.
Þetta sést glögt á börnum, þegar
nauðsyn fyrir því að tyggja hverf-
ur, þá venjast börnin af því, þau
velta aðeins fæðunni í munninum
þangað til þau geta kyngt henni,
og þetta fer svo langt að þau vilja
ekki fæðu sem þau verða að
tvggja. Foreldrar ættu að gæta
þess að venja börn sín á það að
tyggja vel; gefa þeim eitthvað
sem þau vcröa að tyggja. Margir
flýta sér of mikið við máltiðir,
og venjast þannig á að tyggja iila.
Sumir hafa þannig tima varið að
þeir verða að flýta sér, en fyrir
flestum er það að ástæðulausu.
Eitt af því illa sem af því leiéir
að ekki er vel tuggið, er það að
rnenn borða meira en þeir þurfa.
Ef vel væri tuggið, þyrfti í raun
og veru minna að borða, sökum
þess að betur notaðist að fæðunni.
Það hefir enga þýðingu að láta
það í magann. sem ekki meltist.
Það er alveg sarna og að fleygja
einhverju í hitunarvélina, sem
ekki getur brunnið. Kolin sem
látin eru á eldinn og loga, gefa
hita, steinn sem ekki brennur, er
gagnslaus eða gagnslítill. Það er
sama með meltinguna og fæðuna.
Þegar fæðunni er rent niður ó-
tugginni og hún liggur i mag-
anum án þess að meltast, þá veik-
ir hún meltingarfærin og skapar
sjúkdóma. Vöðvarnir í maganum
gera sitt ítrasta til þess að vinna
á henni og melta hana; sama gera
magavökvakirtlarnir; sú tilraun
er til ónýtis, að eins erfiði til
einskis; magakirtlamir og maga-
himnan veikist og sýkist; melting-
arleysi byrjar; óreglulegar hægðir
og maginn getur ekki melt, jafnvel
það sem meltanlegt er; þetta get-
ur haldið áfram þangað til maga-
sár og krabbamein leika siðasta
þáttinn í þessari sjálfsköpuðu
sorgarsögu. Auk þess er þeim
sem illa tyggja hættara við alls
konar hálsveiki. Vöðvamir í
hálsinum og slímhimnan veikist af
oflítilli áreynslu og verða mót-
tækilegri fyrir veiki. Kverkabólga
og hálsbólga og hálskýli og and-
þrengsli geta því verið óbeinar af-
leiðingar þess að illa ei1 tuggið.
Þegar tuggið er streymir blóð-
ið að munninum, tönnunum, kjálk-
unum og öllum pörtum sem þátt
taka i tugningunni. Það gefur því
lif og þrótt og næringu og heilsu;
eftir því sem betur er tuggið verð-
ur þetta fullkomnara; þegar svik-
ist er um að tyggja verða allir
þessir partar blóðlitlir og þrótt-
lausir og hætt við veikindum.
Foreldrarnir ættu að gera sér
það að reglu að venja böm sín á
það sem fyrst, að hafa eitthvað að
tvggja; gefa þeim ekki eintóma
vökvun. Til að byrja með má
láta þau naga harðan, guttaperka-
hring, en þegar að tanntöku kem-
ur. er béinhringur betri.
Það er sarnt betra að láta bam-
ið hafa eitthvað, sem ekki er ein-
ungis hart. heldur einnig gefur
næringu. Kjötbein er ágætt til
þess; bezt er að taka af þvi ná-
lega alt kjöt. Barnið unir sér bet-
ur við það, nagar það með meiri
ánægju og áfergju, og úr þvi fær
það nokkra næringu. Þegar barn-
ið hefir tekið tönnur, þarf að æfa
tönnurnar og munninn á því að
tyggja; brauðskorpa eða hörð'
kaka er vel til þess fallin. Engin
máltíð ætti nokkru sinni að vera
höfö. hvorki fvrir unga né gamla,
án þess að hafa eitthvað sem þarf
að tvggja.
Þegar menn eru einu sinni bún-
ir að venja sig á það að tvggja vel,
þá veitist þeim það auðvelt; það'
verður eins og þvað annað að
vana, sem fylgt er umhugsunar-
laust. Það verður þá hér um bil
ómögulegt aö renna niður án þess
að vel sé tuggið. Það þarf þá
eins mikinn setning til þess að
venja sig af þvi, eins og þurfti til
þess að venja sig á það.
Hér skal það endurtekið sem
leiðir af því að vel sé tuggið:
r. Það malar eða kremur fæðuna
í smáagnir.
2. Það evkur munnvatnið.
3. Það blandar fæðunni við munn-
vatnið.
4. Það gerir auðveldara að renna
niður.
5. Það byrjar á að nrelta fæðuna.
6. Það evkur meltingarvökvann í
maganum.
7. Það þroskar vöðvana sem taka
þátt í tugningunni o'g gefur
þannig fegri svip.
8. Það þroskar og styrkir tenn-
1 urnar og gerir þær heilbrigð-
ari.
9. Það gjörir hálsinn heilbrigð-
ari.
10. Það \'er meltingarlevsi, rrjaga-
sári og krabbameini.
Fréttabréf.
Langruth, Man.
Heiðraði ritstjóri Lögbergs,
fornvinur og félagsbróðir.
Eg hefi lengi verið búinn að á-
kveða að senda þér línur héðan að
utan, en það hefir dregist svona á
langinn, eins og oft kemur fyrir,
þangað til nú að eigi er lengur til
setu boðið. Sagan heldur áfram,
þó enginn skrifi. Viðburðirnir
hlaðast yfir höfuð manns. Svo
ef eigi er ritað jafnhliða, fær
þjóðlífið á sig bakþróunar blæ.
Og hvað verður þá um siðmenn-
ingu vora? Nei, sagan verður að
ritast. Saga daglegra viðburða.
saga framfara, saga baráttu og
stríðs, saga byltinga og framsókna,
saga mannástar og þjóðfélags
endurbóta. Einnig saga aftur-
halds og kúgunar, þrællyndis, of-
urvalds, ranginda, brennivins og
þess valds, saga Roblins o. s. frv.
En nú held eg að eg ætli að fara
að lenda út i pólitík, svo hér
verður að stanza í þetta sinn og
snúa sér að fréttum bygðar þeirr-
ar, er eg er í nágrenni við.
Þann 2. júní siðastl. skeði það
hér í bygð að gefin voru saman i
hjónaband af séra Bjarna Thor-
arinssyni, þau Jón Hannesson og
Helga Erlendsson. Jón er sonur
Árna Hannessonar og Guðrimar
Hallgrímsdóttur, er búa í March-
land bygðinni. Helga er dóttir
Erlinds Erlindssonar og Margrét-
ar Finnbogadóttur, er búa í Big
Point bygð.
Veizlan var haldin i samkomu-
húsi Big Point bygðar, um 4 mil-
ur héðan. \7ar þar margt manna
sáman komið úr báðum bygðun-
um, því sem næst 200 manns. Er-
lindur Erlindsson stóð fyrir veizl-
unni. Voru veitingar rausnarlegar
og fór alt fram með hinni beztú
reglu. Gestirnir skemtu sér vel
fram á morgun.
Að aflokinni giftingarathöfninni
voru fluttar ræður og kvæði. Var
fyrstur séra Bjarni með minni
brúðhjónanna. Þar næst kom
Ingimundur Ólafsson með minni
foreldra brúðurinnar. Þá flutti
Mrs. G. Valdemarsson kvæði. Svo
kom Nikulás Snædal með minni
foreldra brúðgumans. Siðan flutti
Þiðrik Eyvindsson stutta tölu.
Seinastur kom undirritaður með
kvæði til brúðhjónanna.
Að loknum þessum andlegu
skemtunum tók yngra fólkið við
og dansaði það sem eftir var næt-
ur. Var nóttin i heild sinni mjög
skemtileg og veizlan hin allra
myndarlegasta. Fóru ge'stimir
heim glaðir í huga og árnuðu brúð-
hjónunum langra og fagra lífdaga.
Gifting þessara ungu hjóna hef-
ir félagslega þýðingu fyrir þessa
bygð á þann veg, að sameinuð eru
nánar þessi tvö bygðarlög. For-
eldrar þeirra eru vel metnir, hvort
í sínu bygðarlagi og eiga hér marga
frændur og niðja. Erlindson
bræður sem verzla í Langruth, eru
bræður brúðurinnar, efnismenn til
sálar og líkama og drengir góðir.
Jón Hannesson er greindur
maður með góðri mentun, fríður
sýnum og viðmóts þiður, af öllum
vel látinn. Fylgja honum og þeim
báðum hlýr hugur allra.
Hér á að verða mikil skemtihá-
tíð í júlí næstk. að samkvæmisstað
bygðarinnar, er áður var nefndur.
Uppskeruhorfur eru hér allgóð-
ar, en þó hefir forsjónin verið
heldur spör á rigningunum um
tíma.
Hægt fer hér undirbúningur
manna undir næstu kosningar.
Hér er öllu tekið með knúsandi ró.
En vel líkar mönnum Lögberg nú
á dögum. Og aldrei hefir það
barist drengilegar fyrir heilbrigð-
um s'koöunum og sönnum mann-
réttindum, en nú. Sömuleiðis
þykir oss “Kringlan" gbtt og stór-
endurbætt blað, enda þótt rnargir
myndu kjósa að hún hefði aðra
stefnu, bæði í bindindis og menta-
málum.
Eg legg hér með afskrift af
þessu brúðkaupskvæði mínu, og
bið þig að hola því niður einhvers-
staöar.
Að svo mæltu bið eg þig vel að
lifa — já, og lifa sem lengst.
Þinn einl.
S. Bencdictsson.
Aths.:.. Kvæðið kemur í næsta
blaði. — Ritstj.
Heillaskeyti
til Norðmanna frá forsetum Al-
þingis, Stúdentafélaginu í Rvík
og Norðmönnum í Rvík 17.
maí, ásamt svörum frá
Norcgi.
Alþingi.
sendi Stórþingi Noregs þetta skeyti
“Dótturlandið sendir móðurland-
inu og bróðurþjóðinni hugheilustu
kveðju og heillaósk af tilefni dags-
ins. Farsæld og heiður Noregs,
er gleði og stolt Islands.
Fyrir hönd Alþingis
Júlíus Hafstcen, Jón Ölafsson
p. t. forsetar Alþingis.
til Stórþingsfns i Kristjaniu.
Svar Stórþingsins.
Forsetar Alþingis fengu svofelt
svar 17. mai:
1 “Krsitjania 18. maí 1914.
Forsetar Alþingis á Islandi.
Hið fagra símskeyti var lagt
fram i Stórþinginu í Rikisráðs-
salnum á Eiðsvelli i gær og fagn-
að með mikilli gleði. Forsetunum
var falið á hendur að senda hjart-
anlegt þakklætisskeyti frá móður-
landinu til bræöranna á Sögueyj-
unni.
Vér óskum íslandi góðrar fram-
tiðar með framförum og blómgun
í atvinnumálum, bókmentum og
allri menningu til heiðurs og hag-
sældar hinum norrænu þjóðum.
Forsetar Stórþingsins
Sövland og Aarstad.
Stjórn Stúdcntafélagsins.
sendi hátíðanefndinni á Eiðsvelli
svolátandi skeyli 17. mai:
“Hugheilar hamingjuóskir sam-
huga frænda á íslandi. Fögur
verði framtið Isem fortið.
Stúdcntafclagið.”
Svofclt svar
fékk stjórn félagsins næsta dag:
“Þökk fyrir hátíðakveðjuna,
Vér óskum frændum vorum allrar
hamingju og blessunar.
Hátíðisnefndin á EuSvrvelli 1914.'’
Norðmenn í Rcykjavík
símuðu til Hákonar konungs á
þessa leið:
“Til konungsins í Kristjaniu.
Norskir menn i Reykjavik senda
Noregskonungi kveðju sína í dag
með þessari ósk; Heill sé Noregi.”
Svar konungs.
“Þakkir séu Norðmönnum fyrir
kveð jusendinguna.
Hákon.”
Ennfremur sendi bæjarstjórnin
í Revkjavik svofelt símskevti:
"Til norska ræðismannsins og
Norðmannasamkonm Reykjavíkur
17. maí 1914:
“Borgarar, bæjarstjóm og borg-
arstjóri Reykjavikyr taka þátt i
samfagnaði Norðmanna á þessum
aldarminningardegi. gleðjast með
þeim vfir framförum og þroska
bræðraþjóðarinnar á liðinni öld og
óska Noregi og norsku þjóðinni
af heilum Img og einlægu
bræðraþeli alls góðs um ókomnar
aldir.
Páll Einarsson.”
Enn fleiri símskeyti fékk ræð-
ismaður Norðmanna þann dag, t.
d. frá Ólafi Björnssyni ritstjóra
ísafoldar. Auk þess var hann
heimsóttur af Alþingisforsetum og
ræðismönnum annara ríkja.
—Visir.
Til afsökunar.
Eg sé að stnágrein með fyrir-
sögninni: Nýjar prcd'ikamr í
Reykjavik, sem stóð i Breiðablik-
um, bls. 160 þ. á., hefír valdið
misskilningi og verið leiðrétt í
blöðunum af herra konsúl Asgeiri
Sigurðssyni. Það eru niðurlags-
orðin, sem um er að ræða: “H.
N. hefir gefið kost á þessu (c:
að prédika annan hvern sunnudag)
fyrir 1500 krónur um árið.” Þetta
var alls ekki sagt í þeim tllgangi
að gefa í skyn, að H. N. prófessor
hefði sett nokkuð upp. Það sem
eg hafði í huga var: "H. N. hefir
gefið kost á þessu og hafa verið
boðnar 1500 krónur fyrir.” Svo
hafði eg skilið vinsamleg ummæli,
sem þetta var bygt á, og hugsana-
sambandið eitthvað á þessa leið:
"Fleiri eru farnir að láta sér ant
í trúmálum en vér Vesturíslend-
ingar.” Mér fanst þetta vera
fvrirtækiiju og öllum hlutaðeigend-
um svo mikill sórni, að eg gat ekki
yfir því þagað. Eg gerði mér grein
fyrir þessu svo, að séra H. N.
hefði verið tregur til þess að bæta
svo miklu verki við sig, en þegar
honum hefði orðið ljóst. hve ant
mönnum var og áhuginn mikill,
hefði hann látið tilleiðast. Með
þessu fanst mér svo mikill sómi
sýndur, og þetta vera svo áþreifan-
legt dæmi um lofsverðan áhuga í
andlegum efnum, er vaknaður væri
í höfuðstaðnum, að ekki rnætti
liggja í láginni. Að nokkuð ann-
að en þetta hafi verið á bak við
orð min, vonast eg til að enginn
ætli. Ummælin áttu að vera öllum
til sæmdar, er hlut áttu að máli.
Þó eg sjálfur hefði verið í hópi
þeirra, hefði mér ekki getað verið
annara um. Eg bið afsökunar á
að orðunum skyldi eigi svo hagað,
að enginn gæti misskilið. Hér
fyrir vestan veit eg ekki til að
neinn misskilningur hafi átt sér
stað. Annars hefði verið búið að
leiðrétta þetta fyrir löngu.
Winnipeg, Man. 12. júní 1914
F. J. Bcrgmann.
Frá Islandi.
Sigurbjörn Ástv, Gíslason er
erlendis í sumar. Verður hann
'fulltrúi Goodtemplara félagsins á
þinginu sem haldið verður í
Kristjaniu. Hann ætlar að ferðast
um Svíþjóð, Noreg og Danmörku.
Kvikmyndir úr sögunni “Que
Yadis”, hafa verið sýndar í
Revkjavik nýlega, og þótti mikið
til koma.
Bjarni Jónsson frá \’ogi er byrj-
aöur á aö þýða leikritið "Faust”
eftir skáldið Goethe. Er byrjun
þess birt í Birkibeinum og væri
gaman að sjá allan leikinn i heild
sinni þýddan á islenzku. Bjarni
Jónsson þýðir manna bezt og er
einkar fær i þýzku.
Hjálpræðisherinn í Reykjavík
ætlar að byggja stórhýsi þar.
Hefir hann verið að safna fé til
þess og er upphæðinni þegar
safnað að und^nteknum 1000 kr. .
Tíðarfar afskaplega stirt, frost
og snjóar.
Bogi Þórðarson bóndi á Lága-
felli hefir keypt “Öminn”, skip
miljónafélagsins. Er sagt að hann
ætli að flytja ketilinn úr þvi upp
að Álafossi og nota hann við ullar-
verksmiðjurnar þar.
Ágúst Bjarnason háskólakenn-
ari hélt nýlega fyrirlestur í Reykja-
vik um dulöfl mannsins, og var
gerður góður rómur aö. Hann
kvað hafa í ryggju að flytja um
það fyrirlestra við háskólann að
vetri, og er sagt að hann ætli þá
meðal annars að athuga drauma
Hermanns Jónassonar.
Sveinn Oddssön er tejkinn til
starfa heima við bifreiðasölun?:
auglýsir hann nú i ákafa i blöðun-
um heima.
Sigurður Fanndal verzlunar-
stjóri frá Húsavik, er nýbúinn að
setja upp kaffi og matsöluhús á
Akureyri.
Geysimikið bygt í sumar af hús-
um á Akureyri, þar á meðal 6 stór
steinhús.
Jón Böðvarsson á Akureyri
slasaðist nýlega þannig að hann
setti fótinn i vélina á mótorbát og
molaðist beinið.
Hundraðsárahátiðar Norðmanna
var minst í Reykjavík 17. maí
með sanisæti á Hótel Reykjavik.
Norðmenn i hafnarfirði gengust
fyrir minningarguðsþjónustu í frí-
kirkjunni þar, og talaði David
östlund.
Arsfundur Búnaðarfélags Is-
lands var haldinn 16. mai; 25
nianns mættu. Meðlimum félags-
ins fjölgar óðum. 60 nýir meðlim-
ir bættust við i ár. Bændur eru
farnir að gefa sonum sínum fé-
lagsskírteini i fermingargjöf og
einn Vesturíslendingur hefir sent
4 bræðrum sinum heinia að gjöf
sitt félagsskírteinið hverjum.
Vísir hefir tekið upp greinina
úr Lögbergi. "Hvernig það er að
vera forseti”, eftir Wilson.
15. maí andaðist Ágiistina Guð-
brandsdóttir, kona Guðjóns Jóns-
sonar skipasmiðs í Rvík. Hún dóá
Landakotsspítalanum.
Oddur Hermannsson bæjarfó-
getafulltrúi og Þóra kjördóttir
Jóns bæjarfógeta Magnússonar
voru gefin saman í hjónaband 22.
maí." Oddur er bróðir Halldórs
Hermannssonar bókavarðar í New
York.
Agíet síldveiði á Akureyri; feng-
ust 40 tunnur i einum drætti 22.
maí, og tunnan seld á 8 krónur.
Látin er í Reykjavik Valgerður
Einarsdóttir kona Olafs lögreglu-
þjóns Jónssonar. Ölafur er bróð-
ir séra stefáns Jónssonar á Staðar-
hrauni. Heilablóðfall varð henni
að bana. Valgerður var dóttir
einars umboðsmanns Ingimundar-
sonar í Kaldaðarnesi, fædd 1859.
Bjarni Hannesson bóndi frá
Bakkárholti 1 Ölfusi lézt i Rvík
ur lungnabólgu 17. mai.
Jóhann Kristjánsson ættfræð-
ingur og Sigriður Petra Jónsdótt-
ir eru nýlega gift.
Helgi Helgason tónskáld hefir
tekið við stjóm lúðraflokksins í
Reykjavik og þykir farast vel.
Jón Jónsson sagnfræðingur hef-
ir dvalið i kaupmannahöfn i þrjá
mánuði til þess að rannsaka þar
islenzk handrit, en er nú kominn
heim aftur.
Þórhallur biskup Bjamarson
hefir verið gerður heiðursfélagi i
brezka bibliufélaginu.
Frú Katrin Einarsdóttir, móðir
Einars Benediktssonar skálds,
andaðist á Landakotsspítalanum
17. mai. Hennar verður minst
nánar siðar.
Einkennilega uppástungu og
góða flytur ísafold i sambandi við
hjónaband Odds Hermannssonar
og konu hans. Blaðið segir að
EITRADAR ELDSPÝTUR
Innan tæpra tveggja ára verður það ólöglegt að
kaupa eða nota eldspýtur með eitruðum Kvítum
brennisteini.
Hver einasti maður ætti að byrja á því að
nota
Eddy’s Eiturlausu
Sesqui - Eldspýtur
°g tryggja sér þannig öryggi á heimilinu.
________________________________________i
Áður en þú girðir grasflötinn þinn
ættirBu a8 íðna til okk-
ar og láta umboSsmann
koma heim til þln og
sýna þér allar þær teg-
undir sem viB röfum.
G68 gir8ing borgar sig
betur en flest anna8 er
þú getur lagt peninga I;
ekki einungis a8 þa8
fegri heldur eykur og
verSmæti eignarinnar.
VerSskrá vor og sýnis
bók kostar ekkert.
The Manitoba Ancor Fence Co., Ltd.
Henry og Beaeon Strects Phone: Garry 13#2 WIJíNIPEG
Stóra járnvörubúðin í Winnipeg
í Boyd byggingunni.
Allar mögulegar járnvörur. Búðin okkar er ný og öll okkar áhöld
fullkomin; þi getið því verið viss um, að til okkar er gott að koma.
Afgreiðsla fljót og góð. Komið og skiftið við okkur.
Builders Harðvöru Construction Harðvörn
Finishing Harðvöru Smíðatól og Handiðnar
Verkfœri
Mál Olía Varnish
Prufuherbergin okkar eru bezt útbúin allra prufuherbergja í bæn-
um. Það er því auðvelt fyrir ykkur að velja úr.
Aikenhead Clark Hardware Co, Ltd.
Stórsölu og smásölu járnvöru kauproenn.
BOYD BUILDING Ho0r?Xr?*0l?:on TALSÍMAR: Main 7150-1
kirkjan hafi verið troðfull, og. alt eru brotin merglaus bein.
getur þess til, að við þess konar
tækifæri niundu menn jafnvel fúsir
að borga fyrir inngöngu. Vill það
að ‘guðsgista' sé við kirkjudym-
ar sem öllum er inn fara sé gert
að skyldu að leggja í og þvi var-
ið til glaðnings fátæku fólki á jól-
unum eða annari stórhátíð.
Ýmsa mettar sporlaus spá
spaka og rétta halda
og vefréttar anda þá
af öðrum hnetti þykjast fá.
Ef hans flettir augum frá
að hið rétta sjái,
láta fettur ljóða þá
líkt og slettur hvítu á.
Th. Thorsteinsson kaupm. og
frú hans, héldu silfurbrúðkaup
sitt 11. maí í Reykjavík.
Þórarinn Tulinius hefir keypt
nýtt norskt strandferðaskip, er
“Vibrand” heitir.
Aldír sléttubönd.
Hrannir skína, lifir ljós,
ljómar allur heimur,
fannir dvína, yfir ós
ómar snjallur hreimur.
Nýjum klæðum grundin grær,
gleðin hyllir voga,
hlýjum klæðum mundin mær
meðan stillir boga.
Svifin bandi fanna frá
foldar klæðin rísa,
hrifinn andi manna má
moldar gæðin prísa.
Kifsins þrautir falla frá
fjörug kvæðin hljóma,
lífsins brautir allar á
örugg gæðin ljóma.
Æða blóðið nærir nýtt
niður tærra strauma.
Kvæða hljóðið færir frítt
friður værra drauma.
M. Markússon.
Til kunningja míns.
Skýrðu slétt og skörugt frá
skáldaprettum öllum;
hans nijög létt er ljóða skrá
lögð ef rétta vog er á.
Vefur fléttum völuspá
varpar réttu máli,
dregur hettu höfuð á
hugurinn grettur verður þá.
Vitt um hnetti hygst að sjá
hugurinn brettir vængi,
leitar frétta langt í frá,
lýgin sett á verður skrá.
Gleymsku yzt í geymist víst,
gleðin fyrst; þau rotni,
iþví hans frysta ljóðalist
lifir á kistubotni.
Alt er klofið innra manns
eðli; dofa megnum ;
hver vill lofa ljóðin hans
lymskan rofar gagnum.
Ruddaslóð og rakta sé
rógs í óðarveitu,
hver vill rjóða rofin vé
refs úr blóði heitu.
Sina mötu sjaldan við
situr flötum beinum,
Þrándur í Götu þiggur frið
þrefar hvöt að biðja um grið. >
Rétt ef er Sem minnir mig
munið þér og kunnið.
Hyrði hver, sem hyggur sig
hafa sér til unnið.
brándur í Götu.
Hljóðan óðinn bundinn ber
bróður hljóða njínum,
góðan óðinn lundin lér
Ijóða sjóði þínum.
Ef hendur viltu þínar þvo
og þekkir vel hans heiti,
heiðra skaltu skálkinn svo
skaða’ hann ekki veiti.
Þú afræður sorasáld
senda — gæðahnekki,
þó ákvæða þvkist skáld
það mig hræðir ekki.
Vizkuhyl þeir hyggja flest
hvað æi skilur mengi;
eru til í langri lest —
ljóð þá dylur efni bezt.
Málið rotað, mælska nein
menta þrotum lýsir
hverjum notast orðin ein,
Dr. R. M. Simpson 1 Winnipeg
sagði ]>að í opinberri ræðu á föstu-
dagskveldið að hann hefði gaman
af því aö mæta Th. H. Johnson á
opinberum fundi og.láta hann éta
ofan í sig staðhæfingarnar um það
að íhaldsmenn liefðu logið upp
1500 nöfnum, til þess að setja þau
1 á kjörskrá. Th. H. Johnson skrif-
aði Dr. Simpson jafnskjótt, skor-
aði á hann að mæta og bauð hon-
um að tiltaka stund og stað.
Simpson hefir ekki tekið boðinu
ennþá..— Hvers vegna?
Th. II. Johnson hefir kært menn
fyrir stjórninni um stærsta glæp
sem til er. Er rétti og lögum
landsins framfylgt með því að
stjórnin beri það á Johnson að hann
hafi lika brotið?
«
«