Lögberg


Lögberg - 18.06.1914, Qupperneq 5

Lögberg - 18.06.1914, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 11. JÚNl 1914 0 The Empire Sash & Door Co. ------------- Limited ---------- HENRY AVE. EAST - WINNIPEG VIÐUR ”LATH“ ÞAKSPÓNN Fljót afgreiðsla. Ábyrgst að kaupendur séu ánægðir Þegar Roblin kom til valda 1900 voru vínsöluleyfi í Manitoba 170. Þegar hann heföi veriö 12 ár við völd 1912, voru þau komin upp í 300; þeim haföi fjölgað um 130. Þetta er efni til umhugsun- ar. Greenway stjórnin gaf Manitoba búum héraösbannlögin. Roblin hefir því enga bindindislöggjöf gefiö þeim, aöeins verið neiddur til þess aö bxta héraðsbannið smátt og smátt. “Drykkjuskapur er þaö sem lyftir mönnum á æðra stig og hefur þá upp yfir rýrin. Ef drykkjuskapurinn hverfur, er mað- urinn kominn í tölu villidýranna >og öll siðmenning úr sögunni.’’ — Roblin í marz 1912. Þetta geta menn fengið að sjá -prentað i hans eigin blaði “Tele- •gram” og þingtiðindunum. “Drykkjuskapurinn er manni meðskapuður og eitt af beztu og æðsut eiginlegleikum sem guð hef- ir gefið oss.” — Coldwell menta- málaráðherra Roblins 1. marz 1912. Fyrsta vinsöluleyfi veitt klúbb- um var 1909, og 1912 voru þeir •orðnir 16. Roblin er því faðir 'þeirra og fóstri. “Þú, Roblin, ræntir fólkið 1 Manitoba vínsölubannslögum, sem það átti. Það er því ómögulegt að trúa þvi að þú sért bindindis- vinur. Það er ómögulegt að trúa öðru en að þú sért bindindisfjand- maður.” — Dr. G. B. Wilson 6. febr. 1914. Roblin neyddi vínsöluleyfi upp á Norwoodbúa þvert ofan i mót- mæli 90% allra borgara þar. “Eins og það er víst að Filistear bundu Samson og stungu augun úr honum, eins víst er það, Roblin, að brennivinsvaldið hefir bundið þig og blindað.” — Dr. G. B. Wilson 6. febr. 1914. Þegar Greenway stjórnin fór frá völdum, voru skuldir fylkisins rúmar tvær miljónir; eftir fjórtán ára stjórn Roblins eru þær orðnar seytján miljónir; þœr hafa vaxið um miljón á ári. Roblin hefir látið blað sitt “Telegram” fá af fé fylkisins $523,295. Þessa fimm hundruð tuttugu og þrjú þúsund, tvö hundr- uð níutiu og fimm dali hefir hann tekið af fé fólksins. Það eru $40,253, fjörutíu þúsund tvö bundruð, fimtíu og tveir doliarar á ári, til eins blaðs. Á 12 ánim sem Greenæay- -stjórnin sat að völdum, lækkaði Tiún flutningsgjald á hveiti frá Manitoba austur að vötnum um 10 •cent á hver 100 pund. A þrettán áram sem Roblinstjórnin hefir set- 'ið að völdum, hefir hún aðeins ‘lækkaði það um eitt cent og fjóra fimtu á 100 punlin. Greenwaystjórnin $8000 á hverja mílu af C. N. R. brautum. Þegar þéttbýlla var orðið og hægara að byggja þær ábyrgðist Roblinstjómin $13,000 á hverja mílu. Svo fullkomin eru yfirráð vor yfir flutningsgjaldi með C. N. R. brautinni, að vér getum fært það niður eins l^gt og oss sýnist.” — Roblin í ágúst 1903. “Vér höfum takmarkalaus og skilyrðalaus yfirráð yfir flutnings- gjaldi með C. N. R. brautinni í Manitoba.” — Roblin 7. júní 1908. “Fylkið hefir nú orðið alls engin yfirráð yfir flutningsgjaldi með C. N. R. brautinni.” — Roblin 28. sept. 1909. Fylkið hafði samkvæmt þessu full yfirráð, en gaf þau alveg frá sér eða tapaði þeim. Vel á haldið! Sagt er að kosningar muni fara fram 9. júli. Það er hengingar- dagur Krafchenco. Kanske þeir verði samferða hetjurnar, Kraf- chenko og Roblin. Dixon þingmannsefni verka- manna var veikur nýlega af blóð- eitrun. Tribune segir að hann hafi fengið það af því að eiga við Roblin — kveður það óþokkalegt verk og sérlega hættulegt. Það er víst engin lýgi. Roblin sagði það á opinberum fundi í vetur að hann byði hverj- um sem þyrði að mæta sér á opin- berri samkomu, til þess að ræða mentamál fylkisins. Kvað þau fullkomnari en í nokkru öðru fylki. Th. H. Johnson skrifaði lionum samstundis bréf, bauðst til að mæta honum og bað hann að til- taka stað og stund. Svarið er ó- komið enn. Hvað skyldi valda? Þégar blaðið er að fara í press- una kemur sú frétt, að Roblin kunni ekki við það að láta kosn- ingar fara fram sama dag og Krafchenko sé hengdur. Þær verða því ekki fyr en daginn eftir —10. júlí. Það mætti nú samt draga það einn dag að jarða Kraf- cbenko, til þess að nota sömu gröfina. g ... , Ef Th. H. Johnson hefir logið því að íhaldsmenn hafi falsað mörg hundruð nöfn, þá er hægur leikur fyrir þá að koma honum frá þingmensku. Ef þeir gera það ekki, hvort ætli það sé þá af hlífð við hann eða við þá sálfa? Hvað halda menn um það? Er ekki stjómin skyld að láta rannsaka hvorartveggja kærurnar Er hún ekki vemdari glæpa ef hún gerir það ekki? ihaldsmenn hafa gefið borgara- bréf mörg hundruð mönnum, sem aldrei hafa verið til. Þeir bera umhyggju fyrir óbomum borgur- um. Langt nær umhyggja þeirra. “Svona eiga sýslumenn að vera,” sagði Skuggasveinn. Fylkiskosningarnar fara fram 1 0. Júlí. Úr bygðum Islend- inga. Dakota. Tvöfalt silfurbrúðkaup var haldið á Gardar í Norður Dakota 8. maí. Siifurbrúðkaupshjónin voru S. Thorleifsson og kona hans og S. Johnson og kona hans. Streymdi fjöldi gesta til brúð- hjónanna beggja víðsvegar að úr bygðinni. Veitingar voru rausn- arlegar, sem fólkið flutti með sér; ræður voru fluttar og skemtu menn sér á ýmsan hátt. Hvorum hjónunum um sig var gefinn silf- urborðbúnaður. Mikill undirbúningur er í Norður Dakota undir kosningarn- ar sem í hönd fara. Sveinn Thorwaldson á Mountain sækir um féhirðis embætti, og er talið víst að hann nái kosningu. Nýlega voru þau gefin saman í hjónaband Þorsteinn Dalstead frá Svold og Kolfinna Halldórson frá Backov. Samkyæmi var haldið á mið- vikudaginn að heimili Mr. og Mrs. K. Kristjánsson, nálægt Mountain. Var það brúðkaupsveizla Thos. Thomason og Miss Soffia Krist- jánson voru brúðhjónin. Kristbjörg Kristjánson frá Mountain kom heim frá Wynyard í vikunni sem leið; hún hefir kent á skóla nálægt Wynyard; býst hún við að verða heima tveggja vikna tima. Með henni kom Kristbjörg Árnason frá Wynyard. Cacolia Eyjólfson á Gardar, hefir verið veik um tíma of botn- bangabólgu. Hún fór til Winni- peg fyrra mánudag, til þess að fara undir uppskurð. Skemtisamkomu á að halda að Gardar 19. júní, með alls konar skemtunum, andlegum og líkam- legum. Tíðin hagstæð og útlit gott. Haglstormurinn sem kom hér í rikinu nýlega, gerði engan skaða í Islendingabygðunum. Minnesota. Mikill undirbúningur er undir 4. júlí hátíðahald í bænum Minne- sota. Minnesota menn eru prestlausir sem stendur, en halda húslestra í kirkjum sínum. S. B. Eiriksson og H. J. Frost hafa verið kosnir fulltrúar á kirkjuþingið í sumar. 7. þ. m. kom ofsarok í Minne- sota. Meðal annara skemda færð- ist afarstórt fjós um 2 fet af grunni nálægt Minneota. Páll Jökull var eigandi þess. Samsæti var þeim haldið séra B. B. Jónssyni og frú hans, áður en þau fóru norður til Winnipeg. Var þess minst hverstl mikið og stórt skarð væri höggvið í hóp Is- lendinganna i Minnesota við burt- för þeirra. Séra Björn hefir ver- ið þar lífið og sálin í öllum félags- skap yfir 20 ára tíma. Hann hef- ir ekki takmarkað áhrif sin og störf við prestsverkin, heldur ver- ið fremstur manna á öllum svæð- um félagsskapar og menningar. Auk þess hafði hann í ýmsu tilliti verið fulltrúi íslendinga meðal hérlendra manna ; látið áhrifa sinna gæta langt út fyrir íslenzka hóp- inn. Var þess minst í samsæti þessu að sárt væri hans saknað, en innilega væri honum óskað til hamingju í nýju stöðunni. Minne- sota Mascott flytur mynd af séra Birni og stutta grein um hann, þar sem á hann er lokið miklu lofs- orði. V atnabygðirnar. Jón Guðnason á Kandahar seldi nýlega á uppboði húshluti sína og áhöld. Hann verður að bregða búi sökum veikinda. Jón er einn allra fremstu bænda bygðarinnar og stór skaði að hann skuli verða að hætta búnaði. Kappplæging fór fram 18. þ. m. hjá Steingrími Jónssyni bónda að Kandahar. Steingrimur á einhvern fegursta og mesta búgarð, sem til er i allri vatnabygð. Hveiti fyrir vestan Kandaliar er orðið um 20 þumlunga hátt. Útlit hið allra bezta. Árshátíð Wynyard-bæjar verð- ur haldin á föstudagmn 19. þ. m. með mikilli viðhöfn. Niðursett far frá öllum bæjum i nágrenninu Nýja Tsland. Talsverð frost hafa verið i norð- urhluta bygðarinnar i vikunni sem leið. Er talið að það muni verða jarðarávöxtum nokkur hnekkir. Á meðan strjálbygt var og erf- itt að Þyggja járnbrautir ábyrgðist fl ln: Oheyrileg svívirðing. ----0---- \ Borgarabréf hafa verið gefin út til 1500 manna sem engan rétt hafa til þeirra og fjöldi þeirra hefir aldrei verið til og mnn aldrei verða til. T. H. Johnson sýnir fram á sam- særi til þess að svíkja kjósendur og vinna einhvern stœrsta pólitíska glœp sem hœgt er að fremja. Sanrr sœrið getið og fætt á skrifstofu M. J. Johnstone, aðaleftirlitsmannsvín- söluleyfa. Útbúið og smíðað af mönnum í þjónustu stjórnarinnar, sem þjóðin borgar til að vernda lögin. Baldur Olson Iæknaskólastúdent, sem stundar lækningar á Gimli í sumar með Dr. Dunn verð- ur öðru hvoru á Arborg í fjar- veru Jóhannesar læknis Pálssonar, sem er úti á meðal Indiána í heil- brigðis eftirliti og verður þar um tveggja mánaða tíma. Þau hafa skilið nýlega Dr. Dunn á Gimli og kona hans; er hún komin í burtu frá honum með bæði bömin. Talsverður undirbúningur er á Gimli til þess að taka á móti kirkjuþingsgestum og Goodtempl- urum. Tæpast um annað talað en stjórnmál, og að engu unnið eins kappsamlega og þeim. Hvorir- tveggja þykjast vissir um sigur. Argyle. Samkoma var haldin í Skálholt samkomuhúsinu 29. maí; var á- góðanum varið til styrktar fátækri ekkju sem Helga Stephanson heitir. Tíðin indæl; grasspretta fyrir- tak og útlit með korntegundir ágætt. Séra Friðrik Friðriksson frá Reykjavik dvelur hér um tíma. Vel gezt öllum að þeim manni; enda fara svo sögur af honum að hann sé óvenjulega sannur maður. Til ritstjóra Hkr. Ritstjóri Heimskringlu segir að takmarkalaust megi selja áfengi í hversu lítilli bæjarholu sem er i Saskatdhewan. Að þessu er hann hér með lýst- ur opinber ósannindamaður. ;Til þess að fá eitt vínsöluleyfi þar i bæ, verður að vera vtss tala íbúa. Til þess að fá annað leyfi verða að vera $2000 manns. Ritstjóri Heimskringlu segir í siðasta blaði, að ef hótel brenni eða verði fyrir einhverja aðra or- sök að hætta, þá sé opnuð vínsölu- búð í rakarastofu í Saskatchewan og gefur hann i skyn, að það sé með leyfi stjómarinnar. Að þessu er hann lýstur opinber ósannindamaður. Einn hótelhald- ari braut lög þannig að hann seldi vin i rakarabúð í leyfisleysi, þeg- ar hótel hans brann. Þegar stjórnin vissi um það, sendi hún tafarlaust mann til að loka, vin- salinn var sektaður og sviftur þeim rétti að geta fengið vinsöluleyfi. Þegar ekki er annað til vopna en vísvitandi lýgi, þá er málstaðurinn orðinn veikur. Þegar menn láta siga sér til þess að fara með vísvitandi lýgi i opinberum blöðum, þá er sjálfs- virðingin farin að lækka. íslenzk einkenni. Th. H. Johnson kærði stjóm- ina fyrir nafnafölsun svo hundr- uðum skifti. Df. R. M. Simpson, fulltrúi stjórnarinnar, kvaðst hafa gaman af að mæta Johnson og láta hann éta þetta ofan i sig. Johnson skrifaði Dr. Simpson og bauðst til að mæta honum hvar og hvenær sem hann, æskti; hann mætti nefna stund og stað. Dr. Simpson þorði ekki einu sinni að svara. Nokkru síðar segist Dr. Simp- son skuli gefa $100 hverjum sem sannað geti nokkra nafnafölsun á stjórnina; en kveður hina hafa falsað nöfn. Johnson skrifar honum og skorar á hann að koma með sér á fund stjómarinnar pgf krefjast rannsóknar á báðar hliðar og þess að þeim sé hegnt sem sekir finn- ist. Dr. Simpson þorir ekki að svara. Þama sést munur á einkenni Islendingsins og Englendingsins. Islendingurinn fer ekki með sinar kærur af stað, fyr en hann veit að þær eru sannar; Englendingurinn slær út hverju sem er, til þess að blekkja. Islendingurinn er reiðu- búinn að fylgja máli sínu fram og láta réttlætið ráða. Englend- ingurinn hleypur undan sínu eigin merki og dirfist ekki að mæta andstæðingi sínum á sléttum velli. Þessi viðskifti þeirra Simpsons og Johnsons bera það svo greinilega með sér að enskurinn laug en lanl- inn sagði satt. Islendingar ættu að muna það kosningadaginn. Bókmentir. Merkileg skáldsaga í líkingu við Heljarslóðarorustu. Fyndni og skop óviðjafnanlegt. Islendingar eru ekki auðugir af kýmnisskáldum. Benedikt Grön- dal má heita sá eini sem nokkuð hefir verulega kveðið að í þeim stil meðal vor. Fyndni og sárbeitt háð i sc%um hans var svo átakan- legt stundum, að sá, er byrjaði að lesa bók eftir hann, gat ekki slept henni fyr en hún var öll lesin, og THB ALBERT GOUGH SUPPLY CO. BYGGINGAEFNI OG ALLAR VIÐARTEGUNDIR OFFICE: 411 TRIBXJJÍE BUILDING - - PHONE: MAINT 1246 WARE HOUSE: WALL SREET. PHONE: SHEIÍBROOKE 2665 timinn sem til þess fór að lesa sög- ur hans, þegar þær birtust, var ó- slitinn skellihlátur. Sæti Gröndals hefir verið óskip- að fram að þessum tima, en nú er að rætast úr þvx. * Nú er nýr höf- undur að koma fram meðal þjóð- ar vorrar, sem fer svo vel af stað í þvi að rita háðsögu, að Gröndal verður barn hjá honum, ef hann heldur eins áfram og hann byrjar. Það er ómögulegt annað en velt- ast um af hlátri við lestur þessar- ar nýju sögu. Það var ekkert hlægilegt að lesa um Eyjólf ljós- toll með þorskhausinn á milli fót- anna i Þórðarsögu Gröndals, í samanburði við þetta. Og það voru Vesturislendingar, sem áttu því láni að fagna að eignast mann, til þess að skipa sæti Gröndals Það hefir hing- að til verið álit austanhafs, að bókmentir vorar hér vestra séu fremur á lágu stigi, en vart trúi eg því að ekki breytist sú skoðun, þegar þessi saga, sem hér er um að ræða. kemur á markaðinn. Það er aðeins eitt, sem að henni mætti finna, og það er það hversu miskunnarlausum tökum skáldið tekur á þeim rnanni, sem það hefir gert að söguhetju sinni; háðið fer svo langt að það liggur við í köflum að lesandanum sé nóg boðið, og kenni r brjósti um manninn sem hæddur er. Svo langt mega háðsögur aldrei fara; það dregur úr áhrifum þeirra. en að þessu eina atriði undan- skyldu, er sagan reglulegt meist- araverk. Höfundinn þekkja allir. Hann er bókmentamaður mikill og rit- höfundur, þótt aldrei hefðu menn búist við að hann yrði Benedikt Gröndal annar. Nafn sögunnar er dálítið óvið- kunnanlegt eða stirt, en er einkar vel til fallið. það hafa rithöfund- ar og skáld sagt oftar en einu sinni, að erfiðast væri að finna sögum sínum nafn, en i háðsögum sérstaklega er helmingur kýmninn- ar oft falinn í nafninu, og svo er hér. Sagan heitir “Framfarasaga Manitoba siðan 1899” og er að birtast i Heimskringlu. Allra hlægilegustu aðriðin verða tekin upp í næsta blaði. Það væri ranglátt að reyna að þegja í hel annað eins listaverk og þessi saga er. *.* ' Áhrifa mikið félaghefst handa gegn Roblin. Jafnréttis félag fylkisins (The Political Equality LeagueJ hélt fund á fimtudaginn og samþykti þar í einu hljóði eftirfarandi- til- lögu: “Með því að félag þetta er ein- ungis í þeim tilgangi stofnað að vinna fyrir pólitísku jafnrétti kvenna við karlmenn í Manitoba, og með því að Roblin sem leiðtogi íhaldsflokksins, hefir lýst því yf- ir að hann og flokkurinn sé ein- dregið á móti réttindum kvenna og með því að Verkamannafélögin og Framsóknarflokkurinn hafa lýst því yfir að þau séu með jafn- rétti kvenna og tekið það á stefnu- skrá sina, þá er þvi hérmeð lýst yfir að jafnréttisfélag Manitoba- fylkis, er þakklátt, bæði Verka- mannafélögunum og Framsóknar- flokknum, og skorar félagið á meðlimi sína að veita þeim einum fylgi við næstu kosningar, sem styðja vilja jafnrétti kvenna, hvort sem þeir eru Framsóknarmenn, ]\f ARK£T J JOTEL ViB sölutorgið og City Hall $1.00 til $1.50 á dag Eigandi: P. O’CONNELL. Verkamannafulltrúar eða óháðir.” Með öðrum orðum, félagið sam- þykkir í einu hljóði að styðja hvert þingmannsefni sem sé, ef það sé með þessu mikilvæga máli og sé ekki af Roblinflokknum, því það liggur í augum uppi, að jafnvel þótt einhver sé svo blindur eða ósvífinn að fylgja Roblin og telja sig samt kvenréttindamann, þá væri hann i því máli til engra heilla. Fugl í búri. Minn litli fuglinn, fjötrum bundinn, þú fangi aleinn bíður hér; þín frelsis saknar ljúfust lundin, og litla hjartað dapurt er. Þú syngur þýtt með sorgar hljómi, um sælu mista, er lífið á, í ljóða þinna unaðs ómi er angurblíðu falin þrá. Þótt ljóðin þín á þrautastundum oft þjóðum unað hafi veitt, og dregið sviða’ úr sárum undum og söknuð þrátt í gleði breytt. Það er nú gleymt, þú aleinn syrgir og engum kynnir beiskan harm; með ljúfum söng þú löngun byrgir, sem leynist djúpt í særðum barm. Hve gjarna nú um geiminn víða þú glaður þreyttir vængjaflug °g syngir unaðssöngva blíða og sælu nytir léttum hug. En þú ert bundinn. Bætir eigi það bölið sára, vinur neinn til frelsis enga veiztu vegi, og vakir friði nætur einn. Það inst í hjarta sárt mig særir að sjá þig einan bundinn hér. Þú læðing vafða vængi hrærir, sem vildir flugs til lyfta þér. Að vera bundinn sárt þig svíður af sorgum titrar brjóstið þítt; þitt ástríkt hjarta angur líður, því enginn skilur kvak þitt blítt. Ó, hjartans fugl, eg fegin vildi þér frelsi veita, ljós og yl; þig leysa úr böndum brátt eg skyldi og bera’ í faðmi gleði til, — en fugl minn, eg er einnig bundin, og enga björg þér veita má. Við fögnum bæði, er frelsisstundin oss flytur kjörum þungum frá. Þú, kæri fugl, sá kemur dagur, er kastað veðjum sæll þú fær; þér rennur morgunroði fagur, og rís upp frelsissólin skær. Þá muntu, fugl minn, fjötrum gleyma, og fljúga hátt með gleðisöng þar fjarri sorg um fagra geima, og friðar njóta dægur löng. Maria G. Amason. Samskot TIIj MISS PETERSON. Kvenfélag Árdalssafnaðar $ 5,00 Rev. Jóhann Bjamason .. 2,00 Björn Walters Wpg .... 2,00 Þóríds Johnson, Way Idaho 2.00 L. B. Nordal, Leslie Sask. 15,00 Mrs. Steinunn Sigurðson Mountain N. D......... 2,00 Áður auglýst..........$610.70 Nú alls.......... $638.70 The Frost Mission Design (Girðingar) STERKAR, FAUUEGAR, ÓBROTNAR, ÓDÝRAR Hentugar í kring um íbúðarliús, skólablettl, opinberar byggingar o.s.frv. Skrautlegar girðingar, sterkar, sem kosta mik'u minna en vanalegar járngirtSingar, búin til úr grennra eíni. Láttu umboðssalann okkar koma til þfn og sýna þér hinar mörgu teg- undir. sem viB höfum, og segja þér hvaC þaC kostar aC bæta og prýSa eign þína meC "FROST GIRÐINGU. The Frost Wire Fence Co., Limited Garry 4312 ONT. 1018 Shcrbrooke St„ WINNIPEG HAMILTON, ONT, WINNIPEG. MAN. CANADfliS nriEST TMEATSí VIKUNA FRA 8. JÚNÍ SAGAN ÓGLEYMANUEGA AF CAPT. SCOTT sögð nieð 100 sannarlega fögrum hreyfimyndum VIKUNA FRA 15. JÚNl CHAUCEY OLCOTT leikur þá i “SHAMEEN DHU” ALLA N STU VIKU Mats. Miðv.d. og Laugard. Hin árlega hingaðkoma CHAUNCEY O L C O T T í nýjum lelk eftir Rida Jolinson Young, sem heitir —“SHAMEEN DHU”— Sætasala byrjar Föstudag kl. 10 f.h. Kveld $2 til 25c. Mats. $1.50 til 25C. Piltar, hér er tæki- færið Kaup goldlS meSan þér læriS rakara iSn I Moler skölum. Vér kennum rak- ara ISn tii fullnustu á tveim mánuSusa. StöSur útvegaSar að loknu námi, ella geta menn sett upp rakstofur fyrlr sig sjálfa. Vér getum bent ySur & vænlega staBi. Mlkil eftirspurn eftir rökurum, sem. hafa útskrlfast fr* Moler skölum. VariS ySur á eftiis hermum. KomiS eSa skrlflS eftl> nýjum catalogue. GætlS aS nafnlnu Moler, á horni King St. og Paclfle Ave., Winn'ipeg, eSa útibúum I 176$ Road St„ Regina, og 230 Simpson St, Fort William, Ont. Þér fáið yður rakaðan og kliptan frittupp á loftifrákl.9f.h. til 1 e.h 1000 manna, sem oröiö hafa heilsulitlir, hafa haft stór- mikiö gagn af hófsamlegri brúkun á DREWRYS Redwood Lager Hreinasta malt-tonic Æfinlega eins á bragö iö og jafn góöur. REYNIÐ ÞAÐ J. J. BILDFELL FASTEIQn ASALI Room 520 Union Bank - TEL. 2S86 Selur hús og lóBir og annast alt þar aS lútandi. Peningalán Gísli Goodman TINSMIÐUR VERKSTŒÐI: Homi Toronto Phone Oarry 2988 og Notre Dame : Helmtlla Oarry 898 Fáið ánægju af skóakaup- um með því að kaupa þá í Quebec Shoe Store 639 Main Street, Winnípeg Rétt fyrir norðun Loga-i Ave. Thorsteinsson Bros. & Co. Byggja hús. Selja lóðir. Útve*a lán og eldsábyrgð. Fónn: M. 29*2. 815 Somenet BU| Hetm&f.: G .73«. Wlnnlpeg, Mm, Þetta erum vér The Coast Lumber Yards, Ltd. 185 Lombard St. Phone Main 765 prjú “yards” J. J. Swanson & Co. Verzla með fasteignir. Sjá um leigu á húeum. Annast lán og eldaábyrgðir o. fl. t ALBERTA B L0Ck.. Portage & Carry Phonm Maén 2697

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.