Lögberg - 16.07.1914, Síða 1
MEIRI HLUTI FÓLKSINS KÝS FRAMSÓKN-
ARFLOKKINN. — MESTI SIDFERDIS SIGUR
T. C. NORRIS, M. P. P.
Foringi Fram8óknarmanna, scm kosinn var með nœr Hmm hundruð atkvæðum
fram yfir mótsækjenda sinn.
Almennar fréttir.
Evrópa.
Á leiksviSi Musikháskólans í
Berlín, var nýlega leikinn þáttur
úr skáldverki einu eftir Anny
Wothe í Leipzig. Sagan heitir
“Zauberrunen”. Gjörist hún á
Islandi og í Noregi, en aöalpersón-
urnar eru íslenzkar: Þórður mynd-
höggvari og Gunna fósturdóttir
hans. Á leiksviðinu var Gunna
sýnd í islenzkum skautbúningi og
var að þvi ger góður rómur, enda
á hún að vera hvorttveggja i einu,
frið og göfug kona. Nokkuð lýtir
það söguna, hve nöfnin eru af-
skræmd, t. d. Jóm fyrir Jón, Gúnna
fyrir Gunna, og þórður og Bjöm
kallaðir Selfoss-synir, af því þeir
eru frá Selfossi.
Heinrik Erkes í Köln vill selja
bókasafn sitt, íslenzkt. Það er hér
um bil 4000 bindi alls. Þar á með-
al fjöldi íslenzkra, fágætra bóka,
er hann hefir safnað á ferðum sín-
um viðsvegar um Island. Og auk
Maðurinn sem flest
atkvœðin fékk
F. J. Dixon.
Sem kosinn var í Mið-Winnipeg
með yfir 1400 atkvæða mun, fram
yfir mótsækjanda sinn. Mr.
Dixon er óháður, en fylgir Fram-
sóknarflokknum i öllum aðal-mál-
um.
þess nær allar bækur erlendar, er
snerta Island að einhverju leyti.
\'erðið er ákveðið 20 þúsund
mörk.
Fyrir nokkru varð allmikið upp*-
þot i sumurn dönskum blöðum út
af því, að sjúklingar í ríkis-sjúkra-
húsinu veiktust tugum saman, eftir
að þeir höfðu neytt kjötréttar er
þeim var borinn. Útaf þessu varð,
sem nærri má geta, mikil reki-
stefna. Sagt er að sóttkveykjur
hafi magnast í réttinum, af því að
hann hafi verið geymdur of lengi,
áður en hans var neytt. — Vísir.
I Alpafjöllunum eru mörg póst-
hús 2000 metra yfir sjávarfleti.
Og eitt pósthús, sem sendir póst
frá sér 4 sínnum á dag. Hggur
3000 metra fyrir ofan sjávarmál.
20. júni kom hræðilegur felli-
*bylur á Java eyjunni. Mörg
hundruð manna fórust og eigi.a-
tjón er afskaplegt.
Aðflutningsbann á ópium gekk í
gildi i héruðunum Chekiang og
Honan í Kína hinn 16. júní.
Joseph Morand hét maður aust-
ur undir Quebec. Hann skaut ný-
lega til bana þrjá menn. Hvarf
siðan sjálfur. en er nýfundinn.
dauður þó; hafði ráðiö sjálfum sér
bana. Maðurinn er álitinn að ha^a
verið geðveikur.
Linrgren hét bankaþjófur einn í
Stokkhólmi. Hann stal frá bank-
anum yfir 90 þúsunj króna og
strauk á brott. En nokkru seinna
sást hann og var tekinn fastur
suður í Túnis. Hafði hann þá eft-
ir 80 þúsund.
Druknun að Gimli.
Hinn 9. þ. m. vildi það sorg-
lega slys til, að drengur, 7 ára að
aldri, er George Greenwood hét.
druknaði, er hann var að baða sig.
Hann hafði verið búinn að vera
æðitíma í vatninu, þegar móðirin
saknaði hans. En þá fann Mrs.
Grezory barnið og flutti til lands.
Hjúkrunarkona ein kom þangað og
reyndi lífgunartilraunir, án árang-
urs. Hálfri klukkustund siðar
kom Dr. Dunn og gerði allar hugs-
anlegar tilraunir, en það kom fvr-
ir ekki, litli drengtirinn var dáinn.
Líkið var sent hingað til bæjarins
daginn eftir.
Blöðin segja að ekki hafi orðið
slys að baði á þes'sum stað síðastlið-
in 10 ár.
T. H. Johnson kosinn med
afarmiklum meiri hluta
Afturhaldsstjórnin hangir að iíkindum við völd með stór-
kostlegum minni hluta kjósenda, með öðrum orð-
um, á móti vilja þjóðarinnar
Katólska klerkavaldið, Franskir kynblendingar og Galizíumenn taka
saman höndum til þess að halda í spiltustu stjórn, sem Manitoba
hefir nokkurn tíma átt. Einn ráðgjafinn féll og annar í hættu.
Eftir öUu títliti hangir Rob-
linstjóxnin við völd moð örfá-
um í meirihluta, en eins og sjá
má af tölunum, hefir Manito-
ba-þjóðin í heild sinni kosið
Framsóknarflokkinn en for-
dæmt stjórnina. Stjórnin er
því ekki fulltrúastjórn fólks-
ins, heldur auðvalds, brenni-
vínsvaldsins og ósiðferðisins.
Hugh Armstrong, fjármála-
ráðgjafi Roblin-stjórnarinnar,
féll í valinn í Portage la Prairie
og talið er víst að Montague,
ráðgjafi opinberra verka, missi
sitt sæti, þar sem liann ekki
hefir nema 3 atkv. fram yfir
Mr. Prout, gagnsækjanda sinn.
Þessir voru kosnir:—
Kjörd. Meirihl.
Framsóknarmenn:
Arthur—John Williams .. ,. .. 65
Birtle—G.J.H.Malcolm ......315
Carillon—T. B. Molloy..........7
Deloraine—Dr. Thornton.......206
Gladstone—Dr. Armstrong .. . .295
Glenwood—J. W. Breakey .. . .104
Hamiota—J. H. McConnell.. ..398
Lansdowne—T.C.Norris.........448
Minnedosa—Geo. A. Grierson ..238
Morden—Val. Winkler..........136
Mountain—J. B. Baird.........685
Norfolk—John Graham...........68
Port. la Pr.—E.A.McPherson .. 7
Russell—D. C. McDonald .. .. 33
St. Clements—D. A. Ross......211
Swan River—W.H.Sims...........33
Virden—Dr.Geo.Clingan.........81
Mið-Winnipeg:—
T. H. Johnson............1,050
F. J. Dixon..............1,413
Suður-Winnipeg:
A. B. Hudson...............969
V. L. Parrish..............808
Alls
.7,470
Brandon—G. R. Coldwell. .. ..163
Cypress—Geo. Steele....... ..16
Dauphin—W. Buchanan....... ..316
Duf f erin—R.P.Roblin........140
Elmwood—H.D.McWhirter .. . .364
Emerson—Dr.McFadden...........46
Gilb. Plains—Samuel Hughes ..336
Gimli—S. Ttforwaldson........682
Iberville—A. Benard (1 e.hl.J
Kildonan—Dr. Montague .. . . 3
Killarney—Geo. Lawrence .. .. 67
Lakeside—J. J. Garland........13
La Verandry—J.B.Lauzon.......60
Manitou—J. Morrow.............73
Morris—Jacques Parent........273
Roblin—F. Y. Newton .........470
Rockwood—Isaac Riley..........15
St. Boniface—Jos. Bernier .. . .342
St. Rose—Jos. Hamelin.........62
Turtie Mount.—J. Johnstone. .. 62
North Winnipeg:—
Joseph Foley................319
D. McLean...................633
Afturhaldsmenn: j Alls 24 ................. 4,877
Assiniboia—J. T. Haig.......274 Vafasamt enn hvor þeirra er kos-
Beaut. Plains—J. H. Howden ... 27 inn Taylor eða Skúli..
Roblin sagði að ekki skyldi
verða meira en lyktin eftir af,
Dixon eftir 10. júlí. Hann finnur(
það, karltetrið, þegar á þing kem-
ur. Dixon hafði 1500 í meiri
hluta.
Roblin hótaði að rífa skinnið af
Johnson og troða hann svo niöur i
skarnið. Hvenær skyldi hann
framkvæma þa,ð hrevstiverk?
Skafti Brynjólfsson hótaði að
fleygja Jóhanni Sólmundssyni út
um glugga í Mikley. Jóhann hélt
að það mundi taka dálítinn tíma;
Skafti hefir víst trúað því; að
minsta kosti varð ekkert úr fram-
kvæmdum á hreystiverkinu.
” I
Það er svo sem ekki furða þótt
Roblin sé á móti skylduskólament-
un. Það er ólæsa fólkið sem hélt
honum við völdin.
Sagt er að sumir afturhalds-
menn séu gramir fyrir hönd
Andrews, yfir því, að hann hafi
fengið minna en McArthur.
$10.000 er viðunanlegt kaup i 2
vikur. þó $15,000 sé meira.
Telegram kallar Andrews Röksemdir beggja blaðanna,
“Napoleon Winnipegbæjar”. Nú Heimskringlu og Lögbergs, á með-
hefir þessi Napoleon fallið fyrir an a kosningum stóð, eru fyrir
hinum íslenzka Wellington — ekk- augum almennings. Lögberg ótt-
ert eftir nema fylgja honum til St. as* samanburðinn; ekki vegna
Helena. Þess a® Lögbergingar þykist betri
' menn Kringlungum, neldur vegna
Winnipeg á heiður skilið. Hún þess að þegar málstaður er góður,
greiddi nálega 8000 atkvæði á móti þá er auðvelt að finna rök; þegar
stjórninni. menn aftur á móti skrifa sam-
1 kvæmt virðingarverSi, þá er öðru
Roblin kvaðst geta fullvissað I máli að gegna.
vini sína um það eftir kosningarn-1
ar, að hann hefði tneiri hluta fó'ks-
ins að baki sér — og samt hafði
hann 5000 manns í meiri hluta ó
móti sér.
Kl. 10 á föstudagskveldið var
verið að selja Telegram með
myndum af Andrews og McArthur
þar sem sagt var að þeir væru
kosnir; þetta er ótrúlegt, en það
er satt.
A lánar B $100 fyrir 50% á ári;
næsta ár hækkar A rentuna upp í
73 %• Þetta er sama sem að færa
rentuna upp um 50% eftir Heims-
kringlureikningi; með öðrum orð-
um, 73 er helmingi meira (50%)
en 50.
Blaðið vonzkast yfir því að mað-
ur skuli ekki skilja þetta. Það
reynir á þolinmæðina að kenna
svona erfiða visindagrein.
Skúli Sigfússon
Honum hefir svo aukist álit í
þessum kosningum að Islendingum
er stórsæmd að. Það er viðurkent
af Öllum, sem við kosningamar
voru riðnir, að hreinni aðferð og
drengilegri, hafi aldrei verið háð
af hendi nokkurs manns, en hans
við þessar kosningar. Það er að
Sveinn Thorwaldson
var kosinn fyrir Gimli kjör-
dæmi með miklurn atkvæða-
fjölda. Sveinn er nýtur mað-
ur, gáfaður og vel gjör um
marga hluti; hefir hann ver-
ið einn allra mestu fram-
kvæmdarmanna í sveit sinni
og gegnt þar mörgum trún-
aðarstörfum. Það hefði
verið heiður og gleðiefni að
sjá hann kosinn á þing, ef
hann hefði borið gæfu til að
skipa sér í þann fylkingar-
arminn, sem fyrir heiðri og
siðferði berst; en hans góðu
kraftar og miklu hæfileikar
verða, því miður, að minna
liði en ella fyrir þá sök, að ó-
heillaflokkurinn náði tökum á
honum.
Skúli Sigfússon.
vísu vafasamt ennþá, hvort hann
nær kosningu eði ekki; en þótt svo
kunni að fara áð Taylor verði
lýstur kjörinn, þá hafa þar verið
höfð svo niörg brögð í frammi af
hálfu Afturhaldsflokksins að kosn-
ingar fara fram að nýju, og þá er
Skúla sigurinn vís. Hann má þvi
óhætt telja meðal þeirra, sem þing-
sæti skipa næst.
THOS. H. JOHNSON, M. P. P.
Kosinn þingmaÖur fyrir MiÖ-Winnipeg með yfir þúsund atkveeðum fram yfir
mótsækjenda sinn, Mr. Andrews.
Heimskringla kveðst ekki vita
hvaða skýrslur það séu sem Lög-
berg vísi til í stjórnmálastaðhæf-
ingum sínum. Því er fljót svarað.
Það eru skýrslur Manitobafylkis.
Vilji ritstjórinn leggja það á sig
að lesa þær, þá er velkomið að rit-,
stjóri Lögbergs vísi honum á stað-
ina, sem staðhæfingarnar eru tekn-,
ar úr. En við skýrslurnar þarf i
stundum útreikninga og þeir fást
ekki með því að taka það sem
gefið að 73 sé helmingi meira en
Sö.
I hverju hefir Lögberg ófrægt
Skafta Brynjólfsson? Aðeins haft
eftir 'honum' hans eigin ummæli.
Er honum ófrægð að þeim?
Það sem talað var við kjósend-
urna um að steypa stjórninni, hef-
ir ekki komið við hjarta þeirra,
eftir því sem Heimskringla segir.
Er hún nú viss um það? Hvers
vegna greiddu þá þúsundir kjós-
enda atkvæði á móti stjórninni
fram yfir þá, sem með henni voru?
Svar!
Enn staglast Heimskringla á
virðingan'crSinu.
Virðingarvert.
“The Toronto World”, eitt aðal-
blað Ihaldsflokksins í Ontario.
hefir flutt ritstjómargrein,. þar
sem því er skýlaust lýst yfir að
íhaldsmenn í Ontario geti ekki
verið þektir fyrir að mæla bót
stjórnaraðferð RobHns eða Aftur-:
haldsflokksins í Manitoba; hefir
lýst því yfir að það vilji ekkert
með Roblin hafa lengur” segir
blaðið. “Hans eigin flokksmenn
hafa þar metið heiður fylkisins og
siðferði þjóðarinnar meira en
i flokksfylgi, og er það virðingar-
, vert. Sérstaklega eru úrslitin i
Winnipeg eftirtektaverð. Það
væri hnekkir fyrir IJialdsmenn í
Canada og mundi spilla fyrir áliti
Bordenstjórnarinnar, ef nokkuð
væri gjört til þe?s að halda uppi
svörum fyrir Roblin og framferði
hans'.” Þessi orð eins helzta blaðs
Ihaldsflokksins eru mikilsverð.
Þau sýna það ljóslega að flokkur-
inn er á móti óhæfu þeirri, sem
þessi harðstjóri hefir levft sér að
fremja. Flokkurinn á Heiður skil-
ið fyrir það að taka svona í málið.
Hinir kjörnu þingmenn Framsóknar-
flokksins fyrir Suður Winnipeg
Mr. Parrish. Mr. Hudson.