Lögberg - 16.07.1914, Page 8
f
1 pund gerir 250 bolla
6 bollar á EITT CENT
BLDE RIBBON
er hið langdrýgsta, hollasta
og bragðbezta te-
Biðjið hiklaust um BLUE RIBBON
Sendið þessa auglýsing ásamt25 centum og þá
fáið þér „BLUE RIBBON CuOK BOOK“
Skrifið nafn og heimili yðar greinilega
THE WINNIPEG SUPPLY &
FUEL CB. Limited
298 Rietta St. - Winnipeg
STÓR-KAUPMENN
og SMÁSALAR
VERZLA MEÐ
mulið grjót og óunnið.snið-
inn byggingastein, fínan
sand, möl, „plastur" kalk,
tígulstein og alt annað er
múrarar nota við bygging-
ar,
Einnig beztu tegundir
af linum og hörðum kól-
um,
Vér komi^nv tafarlaust til skila
öllum pöntunum og óskum að þér
grenslist eftir viðskiftaskilmálum
VÍð OS8.
Talsíml: Garry 2910
Fjórir sölustaðir í bænum.
*Ur bænum
Mr. Jón Ólafsson kaupmaöur
frá Leslie, kom til bæjarins á
föstudagsmorguninn var og fór
samdægurs heim. Hann sagBi eng-
in tíhindi.
Miss María Hermann, 695
Home stræti, lagði af stað síðast-
liðinn föstudag, til Dauphine, Man.
Miss Hermann er kvödd til að
vera forstöðukona spítalans þar.
Prófessor Jón Helgason kom
hingað til bæjarins á miðvikudag-
inn, heiman frá Islandi.
Mr. Jón Hallsson frá Wynyard.
kom til bæjarins á fimtudaginn
var, dvaldi hér nokkra daga.
Mr. Bjöm Þorbergsson frá
Þingvallabygð er i bænum um þess-
ar mundir, ásamt konu sinni og
dóttur. Þau fóru ofan til NFýja
Islands, en verða hér eitthvað um
sýningartímann. — Mr. Þorbergs-
son lætur dável af útliti vestra.
Mr Hariy Thier og Anna Thor-
steinsson. dóttir Jóns Thorsteins-
sonar hjólhestasala, voru gefin
saman að heimili brúðarinnar, 523
Ellice Ave.. 16. júní siðastl., af
séra F. J. Bergmann.
Hinn 4. júlí voru Herbert Gor-
don Bennett og Elisabet Gillis.
bæði til heimilis hér í Winnipeg,
gefin saman að 488 Toronto St.,
af séra Fr. J. Bergmann.
Ungfrú Ólafía Jóhannsdóttir er
búsett í Noregi, vinnur þar að ým-
iskonar siðbóta starfsemi meðal
ungra karla og kvenna.
BEZfA RÁÐIÐ
til þess að fá fljótt.vel og með sann-
gjörnu verÖi gjörða pappiringu. cal-
aomining og hverskonar málningu
sem yður líkar, er að finna
VIGLUND DAVIDSON
942 Sherburrj St. eða Tel. Carry 2S38
Paul Johnston
Real Estate
&
Financial Broker
S12-314 Nanton Bnlldlng
A hornl Matn eg Portage.
Talsíml: Maln 82* ^
Nú er eg loksins búinn að fá
þrjú ‘‘car load” af “granite” leg-
steinum, sem eg hefi verið að bíða
eftir í þrjá mánuði. Svo nú ætla
eg að biðja þá, sem hafa verið að
biðja mig um legsteina, og þá, sem
ætla að fá sér legsteina í sumar, að
finna mig sem fyrst eða skrifa.
Eg ábyrgist að gjöra eins vel og
aðrir, ef ekki betur.
Yðar einl.
A S. Bardal.
Skemtiför sína hlna árlegu fóru
Goodtemplarastúkumar Hekla og
I Skuld til Gimli 26. júni síðastl. í
för þeirri var nálægt þrem hundr-
uðum manna. Veðrið var fyrir-
tak, og hafði því fólkið skemt sér
hið bezta. Ræður héldu auk for-
seta dagsins Sig. Bjömsson, borg-
arstjórinn á Gimli hr. St. Thorson,
Séra Carl J. Olson, Dr. Sig. Júl.
Jóhannesson, séra Bjöm B. Jóns-
son og séra Kr. Ólafsson. Ahugi
mikill fyrir bindindismálinu ein-
kendi allar þessar ræður. All-
langt kvæði flutti þar Þ. Þ. Þor-
steinsson skáld.
Ef til vill gefst blaðinu tækifæri
siðar að flytja greinilegri fregn af
þessari miklu og merkilegu skemti-
för.
Mr. Eiríkur Bjarnason úr Þing-
vallabygð kom til bæjarins á mið-
vikudaginn var. Hann er hér á
kynnisför og vildi nota jafnframt
tækifærið til að skoða sýninguna.
sem byrjar 10 júl. — Hann kvað
líðan fólks allgóða, 0g heilsufar í
góðu lagi. Þurka heldur mikla,
og uppskera þv* ærið óviss ef
ekki rigndi. Hann dvelur hér hjá
dóttur sinni, Mrs. Sigfús Jóe1, áð
682 Agnes St.
Mr. Sveinn Jónsson trá Hensel.
N. Dak., kom inn á skrifstofu
blaðsins á miðvikudagsmorguninn
var. Hann er nýkominn úr kynn-
isför heiman af Islandi. Hann er
ættaður úr Skagafirði. —Mr. Jóns-
son kvaðst hafa haft mikla ánægju
af förinni heim; og þótti honum
all-miklar framfarir hafa átt sér
stað heima i jarðabótum, húsagerð
og íleiru. Kvað hann áhuga fólks
i þvi efni vera mikinn.
Mr. Sveinn Jónsson og Einar
skáld Benediktsson, em systkina
synir. Hann hafði góð orð um
að senda Lögbergi dálítinn ferða-
pistil við tækifæri. Hann bað Lög-
berg að skila sinni kærustu kveðju
til allra vina og kunningja, er hann
hitti í íslandsför sinni.
Hinn 27. júní siðastl. vom Björn
! S. Olgeirsson frá Mountain, N. D..
! og Guðrún Finnbogadóttir frá
; Duluth, Minn., gefin saman af
séra Fr. J. Bergmann, að 259
Spence St.
Barnastúkan á Gimli nr. 7, var
endurreist 23. maí síðastl. Og
voru þá þessi ungmenni sett í em- |
bætti:
Æ. T.—Inga Tergesen,
F. Æ. T.—Jón Þórðarson,
| V. T.—Margrét Pálson,
Drótts.—Florence Jónasson,
Aðst.dr.—Wyatt Pálson,
Fjárm.rit.—Florence Pálson,
Gjaldk.—Pétur Pétursson,
Ritari—Elin Magnússon,
Aðst.rit.—Robert Tergesen,
Kapílán—Agústa Pálson,
Vörður—Edvin Jónasson,
Útv.—Jóhannes Jónasson.
Lögberg óskar stúkunni til ham- *
ingju og vonar að hún eigi fyrir
höndum. langa og fagra framtíð. ■
Og víljum vér hvetja foreldrana
til að sjá um, að börnin sæki sem
allra bezt fundina. Það er skil-1
irðið fyrir framtíð stúkunnar.
Mr. Þorbjörn Sveinbjamarson j
trésmiður er nýkomirn til bæjarins.!
Hann hefir verið f jarverandi um I
tveggja mánaða tíma. Hyggst hann
að dvelja hér í borginni það sem
eftir er sumars.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. JÚLÍ 1914.
Peninga lán
Fljót afgreiðsla
H. J. EGGERTSON,
204 MclntyreBlk. Tal. M.3364
Jónas Pálsson
verður á Gimli á þriðjudögum
og miðvikudögum fyrst um
sinn og kennir þar Kljóðfæra-
slátt.
VEGGJALÚSAEITUR
vort er mjög notað. Það er óbrigð-
ult, efnasamsetningin fyrirtak. Það
skemmir hvorki húsmuni né fatnað.
Mjög auðvelt að nota. Glasið kostar
að eins 25 cent. — Ef þú þarft að
hreinsa til, þá fáðu þér annað hvort
duft eða eitt g)as frá okkur; hvort-
tveggja kostar 25 cent.
C. REISS, 575 TORONTO St.
Fón. Sherbr. 3529.
ÞEGAR þér komið að skoða
Raf eldavélina sem þér haf-
ið ráðgert að kaupa, þá lof-
ið oss að sýna yður þvottavél-
arnar og straujárnin ódýru og
góðu.
JOHNSON’S ELECTRiC C00K0, LTD.
281 Donald St., á móti Eatön’s.
Talsími Main 4152
Mr. Gunnlaugur BjÖrnsson frá
Leslie, Sask, kom til bæjarins á
föstudagsmorguninn og dvelur hér
nokkra daga. Kvað hann sum-
staðar horfa til vandræða sökum
regnskorts.
----------- . 1
Flest íslenzku blöðin hafa skrif- |
að rækileg og fögur eftirmæli eftirj
Dr. Jón heitinn Bjarnason. Hvern-i
ig væri að safna saman því helzta
og gefa út í einu lagi?
___________
Eins og kunnugt er, hafa bæði
íslenzku blöðin, Logberg og |
Heimskringla, gengist fyrir ogj
hvatt til þess að manntal Islend- J
inga hér í bæ færi fram, og er það i
hið mesta nauðsynjamál. Menn j
eru ámintir um að gleyma ekki að j
skrifa nöfn sin á listana.
KENNARA vantar við Brú skóia-
hérað Nr. 368. Kennsla byrjar um
17. Ágúst 1914. Umsækjandi verður
að hafa annars eða þriðja flokks
kennaraleyfi og segja hvaða reynslu
hann hefir og hvaða kaup hann ætl-
ast til að fá. — Brú P.O., Man.,
Harvey Hayes, fjármálaritari.
Wonderland
Lucille Love .
1 1. partur
Sýndur Miðvikudag og Fimtudag
í hverri viku
Million Dollar
Mystery
Annar partur
Sýndur föstudag og laugardag.
„Gegnum eld og auðœfi“
eða ..Sokkni bærinn", í fimm afbragðs
þáttum. KomiÖ I tíma að s)á og skoða.
Aðgangur lOc. Opnað kl. I e. m.
Dugnaður og vandvirkni er
bezta auglýsing til allra. Allir
óska eftir góðri undirstöðu undir
hús sín og góðri plastringu. Það
fáið þið ef þið snúið yður til
Bjarna Sveinssonar,
929 Sherburn St.
Eða reynið Garry 3923.
KENNARA vantar til Laufas,
S. D. nr. 1211, yfir 8i mánuði,
byrjar 15. sept. næstkomaridi. —
Einn mánuð uppihald, frá 15. des.
Helzt óskað eftir kennara sem hafi
2. próf “normal certificate”, gild-
andi í Manitoba. Tilboðum, sem
tiltaki kaup ásamt æfingu o. s. frv..
verða meðtekin af undirrituðum til
15. ágúst.
Geysir, Man. 7. júlí 1914.
B. Johannson, Sec. Treas..
Dómarinn.
Þú dæmdir djarft og hart
og dæmdir helzt til margt,
en þér er reyndar farið eins og
flestum.
I dag við dómstólinn
þú dæmdir bróður þinn
en ert þó sjálfur búinn sömu
brestum! ^
Einar P. Jónsson.
Miss Hallfríður Kristjánsson
frá Gimli og Mr. J. G. Jones lög-
reglumaður í Fort Churchill, voru
gefin saman i hjónaband 7. þ. m.
í York. — Miss Kristjánsson gekk
ferðin norður til unnusta sins ágæt-
lega í alla staði. Og líður ungu
hjónunum vel. Brúðurinni var
haldið fjölment samsæti af vinum
og kunningjum á Gimli, áður en
hún fór. Og sendu þeir, ásamt
mörgum öðrumt, ungu hjónunum1
sinar hugheilar heillaóskir.
KENNARA vantar fyrir 9
mánuði við Kjama skóla nr. 647
Byyar, 1. september. Umsækjandi
þarf að hafa “Second” eða “Third
Class Professional Certificate”.
Tilboðum veitt móttaka til 15.
Ágúst 1914.
Skafti Arason. Sec. Treas.
Husavick, Man.
Unglingspiltur, sem er vel að
sér, getur fengið atvinnu á North-
ern Crown bankanum í Columbia
byggingunni. Semja má við
bankastjórann Th. Thorsteinsson.
Heilbrigðis og barnabálkur Lög-
bergs byrjar aftur í næsta blaði.
Lögberg sér enga ástæðu til að yrð-
ast frekar við Heimskringlu að
sinni. Þykist ekki skulda henni til
muna eftir kosningaviðskiftin.
Skyldi einhverjir landar fara vest-
ur að hafi bráðlega, væri vel gert ef
þeir vildu taka með sér unglings-
stúlku nýkomna frá íslandi, sem um-
sjár þarfnast. Upplýsingar gefur G.
Thordarsorf bakari, 988 Burnell St.
Sænsk stórstúka var stofnuð hér í
borginni af Mrs. Búason á mánudags
kvöldið var. Eitt með því fyrsta,
sem stúkan samþykti, var að lýsa yfir
einlægu fylgi sínu við bindindis-
stefnu framsóknarflokksins.
Mr. Guðmundur Kristjánsson
frá Elfros, er í bænum um þessar
mundir.
Mr. Sigurbjörn Sigurbjömsson
frá Le'slie, kom til bæjarins á laug-
ardaginn ; hann fór á þriðjudaginn.
Sagði alt fréttalaust.
, Mr. J. H. Johnson frá Oak
Point, er á ferð í bænum um þess-
ar mundir.
Mr. Stefán G. Jónsson frá
Argylebygð er-hér á ferð sér til
skemtunar í borginni um sýningar-
timann. Hann kvað alt tíðinda-
laust þar um slóðir.
Mr. Hannes Kristjánsson kaup-
maður frá Gimli, kom til bæjarins
á mánudaginn. Hann segir all-
gott líf í verzlun og viðskiftum
manna á meðal, og árferði gott:
en heMur dauft um fiskiveiðar í
vatninu.
Mr. Páll Sveinsson hóteleigandi
í Wynyard, Sask., kom til bæjar-
ins á laugardagsmorguninn og
dvelur hér fram yfir sýningartim-
ann.
Mr. Ólafur A. Eggertsson, Mort-
lacke, Sask., kom til bæjarins, 400
milur vegar, til þess að greiða at-
kvæði með Tt. H. Johnson við
kosningarnar. Hann lætur vel af
stjómarfarinu í Saskatchewan, og
kvaðst hann hafa viljað leggja
fram sinn skerf með atkvæði sínu,
til þess að Manitobabúar mættu
eignast eins góða stjórn, ef unt
væri. — Uppskeruhorfur vestra
telur hann mjög góðar.
Mr. S. F. Samson frá Kandahar
er í bænum um sýningartímann.
Uppskeruhorfur yfirleitt heldur
góðar þar vestra. ;
Mr. Guðni P>r>njólfsson frá
Churchbridge, Sask., kom til bæj-
arins á laugardaginn var; er að
leita sér lækninga.
Björn Lindal, Markiand P. O.,
var á ferðinni á þriðjudaginn.
Hann sagði ýmislegt fróðlegt frá
kosningunum i St. George. Sem
merki þess hve vinsæll Skúli er,
gat hann þess, að menn hefðu kom-
ið fótgangandi langar leiðir til þess
að greiða honum atkvæði. Taylor
hafði úti öll ráð til þess að hóa
saman kjósendum fyrir sig, en
Skúli skrifaði mönnum bréf, þar
sem hann lagði ríkt á við þá að
neyta einskis, sem ekki væri strang-
heiðarlegt. Kvaðst hann þess fús
að falla með heiðri og telja það
meiri sæmd, en vinna með brögð-
um. Hefir vegur Skúla vaxið
mjög við þessar kosningar.
Mr. deirfinnur Pétursson frá
Narrows er á ferð í bænum; segir
hann engin nýstárleg tíðindi.
Telur hann að rigningin síðasta
hafi orðið til mikilla nota norður
þar.
Mr. Guðmupdur Jónsson klæð-
skeri frá Wynyard, kom til bæjar-
ins sunnan frá Pembina á mánu-
dagskveldið; dvelur hann hér í
borginni nokkra daga.
Þegar blaðið er að fara í vélina.
kemur sú frétt frá Gimli, að Miss
Björg Johnson frá Winnipeg
hafi dáið þar í gærmorgun af
hjartaslagi.
Mr. Pétur Árnason frá Lundar
er í bænum íim þessar mundir, og
einnig Mr. Jón Einarsson frá sama
stað. Þeir komu hingað á sýning-
una.
Bezta skyrtutilboð í borginni á $1.00
Menn úr öllum pörtum borgarinnar munu kannast við það. Núna allra síðustu
mánuðina seljum við hvert hundraðið á fætur öðru. Þetta eru ekki venjulegar
skyrtur. Þær eru léttar og nægilega víðar. Efni ágætt og þær eru ekki eins jjjröngar
um herðarnar eins og sumar innflnttar tegundir eru. Þú hefir handleggina alveg
frjálsa. Það er vel að athuga. Skyrturnar hafa úgtan kraga, sem fer vel um hálsinn.
Þetta eru beztu dollars skyrturnar. Saumur allur er vandaður og sniðið fyrirtak. —
Allar stærðir. Komið og skoðið þessar frægu skyrtur á....................$1.00
Hudson’s Bay Karlmannaföt hafa staðist
reynsluna með heiðri
“The Bay” karlmanna föt hafa gengið í gegn um hreinsunareldinn — þau
liafa verið grandskoðuð og gagnrýnd af sérfræðingum, sem eins vel þekkja
efni og ágæti, eins og hið ytra snið. Og þau hafa sýnt sig að vera hin allra
beztu föt fyrir unga menn. Við höfum sett verðið svo lágt, að furðu gegnir,
er tekið er tillit til gæðanna. Þetta frá $8.15 til $35.00. Og það er okkar
skoðun, að þér gerið betri kaup, meðan þetta lága verð er, hjá okkur, en
nokkrum öðrum. Það er bezt að reyna.
A $18.50—Mjög gðS og snotur,
vel saumuS föt úr bezta ullarefni,
fallegt snið og Uðmandi litur.
Alt eftir nýjustu tlzku, frá 1.
flokks klæSskera.
Föt fyrir $15.00—Úr þunnu
alullarefni, eftir alveg nýjustu
ttzku, einhnept, meS 2 eSa 3
hnöppum. BerSu þessi föt sam-
an viS föt annarstaSar á sama
verSi, þá muntu sannfærast um
kostina.
Föt á $25.00—Eru öll hand-
gaumuS, bflin til úr mjúku al-
ullarefni ensku, afar vönduS og
vel sniSin, meS hátízku litum.
Einhnept, meS 2 og 3 hnöppum.
Frágangur allur hinn bezti sem
nokkur getur hugsaS sér. Kom-
iS og kaupiS.
236 King Street,
W’peg. ™*ry2590
J. Henderson & Co.
Eina fsl. skinnavöru búðin í AVinnipeg
Vér kaupum og verzlum meB hflSir og gærur og allar sortlr af dýra-
skinnum, einnig kaupum vér ull og Seneca Root og margt fieira. Borgum
hæsta verB. Fljðt afgreiSsla.
þegar þér kaupið
Það er ekki aðeins okkar eða ykkar álits, sem
vitnað er til. Það er álit allra hinna annara not-
enda Remington, og þeir eru hátt upp í miljón
manna. Og bezta sönnunin fyrir ágæti og út-
breiðslu Remington, er sú, að vél er seld á hverri
míniitu.
Þegar þú kaupir Remington, veiztu hvað þú
lireppir.
Vélar nieð íslenzku letri til staðar.
Skrifið eftir verðlista vorum, hinum síðasta,
með myndum, sem sýnir ykkur 10—11 nýjar teg-
undir.
220 DONALD STREET, WINNIPEG
BYSSUR og SKOTFÆRI
og alt sem að ,,Sporti“ lýtur.
Stærsta verzlun í Canada, rem verzlar með slíkan varning
o(STOFNAÐ 1879)
SendiS 088 póstspjald og biÖjið um nýjasla lysi uveiSIiflErr.
The Hingston Smith Arms Co., Limited
Main St. (Opposite City Hall) WINNIPEG
Söngsamkomu
hcldur söugfélag Lundar-bygbar laugardaginn 1. Ágúst. Flokkurinn
hefir verið um alllangan tíma æfðtir af ágætum söngstjóra, Jóni
Friöfinnssyni tónskáldi frá Winnipeg. Þessi lög verða sungin á
jamkomunni:
“Ó guð vors Iands”.......................Svb. Ssjcinbjörnsson
Söngflokkurinn.
Dalvísur.. ,..............................Arni Thorsteinsson
Jón Sigurðsson. Sigfús Einarsson.
Söngflokkurinn.
‘‘Hcim til fjalla”.............................Jónas Pálsson
Söngflokkurinn.
“ísland, ísland, ó ættarland”........................Pacius
Söngflokkurinn.
“Guð hæst í hæð”................................... Schuls
Söngflokkurinn.
“‘Eins og sólin hjúpi hulin”................Jón Friðfinnsson
Sóló og Kór.
Sólskríkjan...... .. ...................JónLaxdal
Sóló.
“Góða nótt!” Schustcr
Söngflokkurinn.
“Eldganila ísafold”—sungið af öllum.
Sámkoman byrjar kl. 8.
Halldór Johnson.
Fæði og húsnæði selur
GUÐRÚN JÓHANNSS0N,
794 Victor Street
Allir kaupcndur Lögbergs eru vin-
sanilega heðnir að standa vel og
drcngilcga í skilum vlð blaðlð, og sjerí-
lagi eru þeir, sem skulda enn fjTÍr ár-
ganga, flelrt eða fœrrl, beðnlr að*
styðja blaðið með því að borga rögg-
samlega og fljótt.
♦ Þegar VEIKINDI ganga
X hjá yður
+ þá erum vér reiðubúnir að láta yð-
+ ur hafa meðöl, bœði hrein og fersk.
J Sérstaklega lætur oss vel, að svara
♦ meðölum út á lyfseðla.
Vér seljum Möller’s þorskalýsi.
E. J. SKJOLD, Druggist
i Tals. C. 4368 Cor. Wellington & Simcoe
Á einu augnabliki.
Fljót afgreiSsla viSskiftavlna vorra
er eitt aSal atriSIS t búS vorrl. Vér
látum ySur ekkt blSa eftir meSölum
þegar þér komiS meS læknls ávlsan,
lengur en nauSsýnlegt er til þess aS
setja meSölin samvizkusamlega sam-
an. Ef þér eigiS annrlkt þá komiö
hingaS meS méSalaávIsanir ySar.
FRANKWHALEY
$u0mption TDntQQtst
Phone Sherbr. 258 og 1130
Horni Sargent og Agnes St.
Shaws
479 Notre Dame Av.
!•++++ +++++++++++++++++
Stærzta. elzta og
bezt kynta verzlun
með brúkaöa muni
í Vestur-Canada.
Alskonar fatnaöur
keyptur og seldur +
Sanngjarnt verö. X
+++++++++++++++++++++Í J»
? Phone Garry 2666 í
*++++++++++++++++++++++*♦»
KARLMENN ÓSKAST. —
Fáið kaup meðan þér lærið. Vor
nýja aðferð til að kenna bifreiða
og gasvéla meðferð er þannig, að
þér getið unnið meðan þér eruð að
læra. Þeir sem læra í vorum
vinnustofum, vinna við bifreiðar
og gaso’invélar. Þeir sem tekití
hafa próf hjá oss fá frá $5 til $7
á dag. Eftirspurn hefir aldrei ver-
ið meiri. Vér ábyrgjumst stöðu,
ef þér viljið byrja lærdóminn inn-
an næstu io daga. Komið strax.
Komið eða skrifið eftir ókeypis
skýrslu með myndum. The Omar
School, 505 Main Street. Beint á
móti City Hall, Winnípeg.
*■ *• fliounDaow TaIs- Sherbri 27gf
fS. A. SICURÐSSON & C0.
BYCCIfiCAI^EþN og F/\STEICN/\SALAR
Skrifstofa:
208 Carlton Blk.
Talsími M 4463
Wínnipég