Lögberg - 03.09.1914, Blaðsíða 3

Lögberg - 03.09.1914, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 3. SEPTEMBER 1914 3 Vjer borgum flutningsgjald A ÖLIATM VAKMNGI VÖLDUM KiriU SKRA VOItlU pegar þér sjáiS verðskrá vora, þá vitiS þér upp á hár hvaS vörur þær sem þár pantiS muni kosta ySur komnar á næstu járn- brautarstöS eSa næsta pósthús. I>ér vitiS þá algerlega hvaS þér þurfiS aS borga jafnvel áSur en þér sendiS pöntunina, alveg eins og þó þér væruö aS kaupa sjálfur I búS. SKRIFIÐ EFTIR VEROSKRANNI Ef þér hafiS ekki allareiSu eignast eintak af verSskrá vorri, þá skrifiS eftir henni. þaS er ágæt bók til eignar og einkar þægileg, þvf hún sýnir ekki aS eins nýjustu og vinsælustu tízku I hvívetna, heldur býSur og hin beztu kjörkaup, sem þér hafiS átt kost á aS líta, kjörkaup, sem aS eins eru möguleg á þann hátt aS kaupa beint frá verk- smiSjunni og selja beint til þess sem kaupa þarf, og meS þvf aS fara meS jpóstpantan- ir vorar á einfaldasta og bein- asta hátt sem unt er. Hlö AGÆTA FYRIRKOMULAG VORT. Ekki aS eins spörum vér mikiö f aSferS þeirri er vér höfum f meSferS varningsins, sem er hin einfaldasta og fullkomnasta, sem til er, heldur er oss og mögulegt aS sinna pöntunum á ofurlitlum hluta hins vanalega tíma eftir gömlu aSferSinni. Með mjög fáum undantekningum er þaS regla vor, aS senda pantanir sama daginn sem vér fáum þær; og vér höfum fengiS mörg bréf frá viSskifta- vinum vorum þess efnis aö þeir séu mjög ánægöir yfir þvf hvaS fljótt og vel vér höfum sint pöntunum þeirra. ChRISTIE GrANT Co. Limited WlNKIPEG Canada Óskum yðar sint fljótt og vel Þegar þér þarfnist einhvers þá ættuð þér að verzla hér Builders Harðvöru Finisbing Harðvöru Construction Harðvöru Smíðatól og Handiðnar Verkfœri Mál Olia Varnish Prufuherbergin okkar eru bezt útbúin allra prufuherbergja í bæn- um. ÞaS er því auövelt fyrir ykkur aö velja úr. Aikenhead Clark Hardware Co, Ltd. Stórsölu og smásölu járnvöru kaupmenn. BOYD BUILDING HoogiPfodrTa°ireton TALSÍMAR: Main 7150-1 Unga fólkið o.s.frv. (Framh. frá 2. bls.j innanlandsmál aö traustum grund- velli fyrir flokkskiftingu; og orsök þess er í mínum augurn einföld van- þekking. Vér höfum ekki átt neinn afburöamann á þessu sviöi, sem hafi séö ljóslega alla heildina, veriö bæöi læröur og reyndur í þesurn málum og getað skapaö skýra raunhæfa stefnu- skrá. fringið og frjóðin. Ekki verður annað séð af ávörpum eða stefnuskrám þeint, sem flokkar vorir birta viö hátiðleg tækifæri, en að helzt sé til þess ætlast að endur- reisn atvinnuveganna eigi helzt að konia frá alþingi, stuðningi og styrk- veitingum þess. Að minsta kosti kveður mest að þessum fyrirheitum um stuðning atvinnuvega undir al- þingiskosningar. Eg felst fúslega á það, að niiklu rnáli skiftir unt afskifti og aðgerðir þingsins í atvinnumálum. Eg sé það getur að minsta kosti unnið hið mesta ógagn í þessa átt. Eg efa það ekki, að það geti unnið mikið gagn, ef vel er á haldið, þó það sé vissulega miklu rneiri vandi, Hins vegar sýnist mér reynsla annara landa benda á það, að mestu—langmestu niáli skiftir dáð og dugur þjóðarinnar, einstaklinganna, sem reka hverskonar atvinnu. Al- þingi getur ekki verið og á að minstu leyti að vera húsbóndi og forráða- maður fólksins í þessum efnum. Það má ef til vill um það segja, með Wil- son forseta Bandaríkjanna: Free men need no guardians (frjálsir menn þurfa ekki á fjárhalds, eða forráða- mönnurn að haldaj. Hvað er það, sem mest og bezt hef- ir skapað allar framfarir vorrar ald- ar, gerbreytt heiminum á minna en einni öld og hlaðið þjóðirnar gulli og gersemum ? Eru það þing og stjórn- ir landanna? Ekkert er fjær öllurn sanni. Fátækir og oft litilsvirtir hug- vitsmenn fundu gufuvélina, rafmagn- ið, allar aðferðir, vélar og áhöld, sem öll framförin bygðust á, stjórnunum að þakkalausu Frantsýnir dugnaðar- menn hagnýttu sér síðan uppgötvan- anirnar, reistu verksmiðjur, bygðu skip, grófu nárnur, sköpuðu stóreflis atvinnugreinir fyrir miljónir manna og mótuðu "gull rautt húsum fullum ’ úr skarpskygni fátæku hugvitsmann- anna. Svo komu stjórnirnar eftir dúk og disk, lögðu á hverskonar skatta, sem ekki að minstu leyti gengu í óarðsaman herhúnað, og sópuðu vinnumönnum, sem auðinn bjuggu til í herþjónustu. Þennan skerf lögðu þær mestan til framfaranna. Hvað hefir t. d. danska stjórnin gert til þess að skapa atvinnuvegi handa unga fólkinu sem bæzt hefir við í landinu? Það hefir flest feng- ið atvinnu við iðnað og nýjar verk- smiðjur, scm dugnaðarmenn hafa á fót komið. Stjórnin hefir svo hirt skattana. Húsniennirnir eru fáir í samanburði við verksmiðjulýðinn. Er það alþingi og stjórnin, sem hefir komið hér á fót togara-útgerðinni ? Hún bannaði sjómönnum að skifta við útlendu togarana og sektaði þá ef því varð komið við, en sjómenn- irnir hlýddu þessu miður vel, kyn-t ust útlendu sjómönnunum, lærðu veiði-aðferðina og tóku síðan hönd- um saman við dugnaðarmenn í landi til þess að eignast sjálfir skip. Stjórnin hirti auðvitað útflutnings- gjald, farntgjald og aðra skatta. — Þess munu yfirleitt fá dæmi. en nokk- ur þó, að stjórn eða þing skapi heil- brigða, öfluga atvinnuvegi, nerna ef telja skal embætti og hermensku. Eg held að rétt sé að gera sér þetta ljóst. Það sýnir að tnjög mikils er ekki að vænta af þingi og stjórn i þessum efnum, þótt það sé almenn skoðun hér á landi. Vér getum ekki varpað allri áhyggjunni á þingið. Arðvœnlegustu írœðin. Að svo ntiklu leyti sem þing og stjórn getur látið til sín taka í at- vinnumálum, þá veltur alt á því að geta greint þau atriðin frá, sem mestar hafa framtíðarhorfur, leggja alla áherzluna á þau og greiða eftir megni fyrir vexti þeirra og viðgangi. Góð stjórn þarf helzt að hafa meira en Heimdallar heyrn, svo að hún heyri ekki eingöngu hvar grasið vex, heldur hvar það ætlar að vaxa, sjái hvar toppbrum atvinnuveganna eru að myndast, svo hún geti varið þau frosti og fári. Ef til dæmis þing og stjórn hefði strax rent grun i þýð- ingti og framtíð togaraútvegsins fyrir oss, þá hefðu eflaust fyrstu afskiftin af togurunum orðið nokkuð á annan veg. Sumum er gefin óvenjuleg glöggskygni í þessa átt, en flestum verður staðgóð þekking vissaka leið- beiningin, og það er engin furða þótt hún sé af skornum skamti hjá stjórn- málamönnum vorum, því að stjórn- máfastörfin eru oftast höfð í hjá- verkum. Eg held vér fáum tæplega góða og gilda stefnuskrá í innanlandsmálum fyr en einhver dugnaðarmaður vinn- ur að því til langframa og með ó- skiftum hug að rannsaka þau og framtíðarhorfur þeirra. Vér höfum ekki úr öðrum atvinnu- vegum að spila, sem geti aukist til stórra muna og veitt sivaxandi at- vinnu, en sveitabúskap, sjávarútveg og iðnað. Hvað er það í þessum at- vinnuvegum, sem búast má við að geti fyrst blómgast, gefið flestum at- vinnu og borgað sig bezt? Ef eitt er öðru fremra að þessu leyti, ætti það að sitja í fyrirrúmi. Sveitabúskapur. Eg hefi áður getið þess, að með því lagi sem nú er, sé hæpið að sveita búskapur fleyti miklu fleiri mönnum. Ef þetta á að takast, verður býlum að fjölga og heyfengur að vaxa stór- kostlega við aukna rækt, túnrækt eða engjarækt. Túnræktin er það sem mest rækt hefir verið lögð við um langan tíma af fjárveitingavaldinu. Taða og túnastærð hefir líka aukist til mikilla muna, nálega tvöfaldast á rúmum 30 árum, eftir skýrslum að dæma, en þó miðar þúfnasléttum vorum svo seint, að heila öld þyrfti til þess að slétta öll tún lanndsins einu sinni með þvi áframhaldi sem verið hefir síðustu 20 árin! Ef þess er gætt, hve mikið hefir verið hlynt að túnrækt, verður ekki annað sagt en að henni miði ótrúlega seint. Dœmið um bóndann. Eg held $ð lítið dæmi sýni það ljós- ast, hvernig auðveldast er og fljót- legast að auka heyfeng vorn, en hann er undirstaða þess að býlum geti fjölgað. Hugsum oss að duglegur bóndi reisti bú á sveitajörð sem væri þannig háttað, að hús væru léleg, fjórir fimtu hlutar af túni þýfðir og ræktin miður góð, en nógir móar ef auka skyldi stærð túnsins. Gerum ráð fyrir að neðan túnsins lægi all- mikil en rýr landspilda, sem auðveld- lega mætti ná á nógu og góðu vatni og gera að flæðiengi. Eg er ekki í efa um, að bóndinn léti engið sitja í fyrirrúmi og græddi mest á því að veita vatninu á það. Það eitt gæti ef til vill tvöfaldað heyskap hans á fám árum, ef engið væri til áveitu fallið. Aukið úthey gxfi síðan aukinn áburo og hann aukna töðu. Þegar flæði- engið væri komið i gott lag, sneri hann sér fyrir alvöru að túnræktinni, en ekki fyr. Gamla túnið yrði girt og sléttað á rúmum áratug eða minnna og að lokum ráðist á móana og þeim breytt í tún eftir því sem áburður entist til. Þá ættu lika efnin og bú- ið að hafa aukist svo, að traust og gott hús kæmi í stað gamla og hrör- lega bæjarins—Þannig myndi ötull bóndi fara að ráði sínu og jörðin taka meiri stakkaskiftum á einum mannsaldri en hún hafði tekið frá landnámstíð. Eg held að allir bænd- ur muni vera mér samdóma um þetta. frjóðin og bóndinn. Ef menn geta fallist á að þetta búskaparlag bóndans hafi verið hyggilegt og framkvæmdir hans í réttri, hagkvæmri röð, þá má full- yrða, að eins er ástatt fyrir þjóðinni. Húsakynni íiennar eu léleg og þurfa að rísa úr rústum. Að eins einn- hluti túnanna er sléttur, hitt að mestu þýft og í miður góðri rtekt viðast hvar. Móar og mýrar eru víðast nægar, ef stækka skal túnin. En svo á þjóðin, þótt ekki sé fyrir hvers manns dyrum, stóreflis undirlendis- flæmi í sumum héruðum, sem liggja vel við áveitu. Þau eru margföld að flatarmáli við öll tún landsins Ef þau væru orðin að góðum flæðiengj- um, myndi hey af dagsláttu verða litlu minna en af meðaltúni og ekki standa langt að baki töðu, eftir því sem reynslan sýnir um gulstör vora og aðrar flæðiengjajurtir. Slík engja rækt kostar ekki nema lítinn hluta þess sem túnræktin krefst, með allri fyrirhöfninni við sléttun, áburð og á- vinslu. Hún er margfalt arðsamari en túnræktin, þar sem vel hagar til. Flóavcitan. Að eins eitt af undirlendum vorum hefir verið athugað vandlega í því augnamiði að veita á stóreflis svæði og þurka það jafnframt upp, svo yf- ir vatninu megi hafa fult vald. Það er Flóinn. Hér er að tala um mikið og dýrt fyrirtæki, sem kostar 600— 800,000 kr. Svæðið er um 3 fermíl- ur, eða álíka og öll tún landsins sam- anlögð. Nokkra hugmynd má gera sér um það, hverjum stakkaskiftum héraðið tæki þegar áveitan væri komin og á- hrif hennar sæjust til fulls. í eftirfarandi lauslegu yfirliti styðst eg að sjálfsögðu við það sem Sig. Sigurðsson alþm. og Thalbitzer verkfræðingur hafa skrifað um þetta mál. iþað sem eg hefi áætlað, er merkt með stjörnu. Flóinn nú: Tala býla um .. .. . ..........200 (ábúendur alls 248) Mannfjöldi (sveit og .sjórj .. 3,500 Heyskapur— Taða............. 20,000 .. Úthey............ 70,000 Samtals . . . . 90,000 Heyskapur á býli....... 368 hestar Kýr alls . . . ..........um 1,000 Flóinn eftir áveituna: *Tala býla............................um 1,000 ‘Mannfjöldi...................9,000 Heyskapur: *Taða.. .. .. 150,000 ‘Úthey......... 400,000 Samtals.. .. 550,000 *Heyskapur á býli .. .. 550 hestar Kýr alls...............um 10,000 (Atah.—Eg geri kúnni 55 hesta, því sumarbeit yrði liklega aðeins að tala um i rúman mánaðartíma. Hér er gert ráð fyrir að alt hey gangi til kúnna, en að sjálfsögðu fer nokkur hluti þess í hesta o.s.frv. Þetta breyt- ir ekki að miklu er þess er gætt hve taða er áætluð lágtý Aðalatriðið í þessari áætlun er að úthey vaxi úr 70,000 hestum upp í 400,000 hesta. Sig. Sigurðsson gerir ráð fyrir að það nemi 470,000 hestum (Fjallkonan 1907,). Þetta svarar því að 9 hestar fáist valladagsláttu, en eg hefi gert ráS fyrir hér um bil 7. Eg sé ekki, að þessi áætlun sé á nokkurn hátt ógætileg.en vil þó ekki sökum ó- kunnugleika á svæðinu, fullyrða neitt um það Hin atriðin um áhrif á- veitunnar má sjá í hendi sinni. Eg hefi gert ráð fyrir, að hvert býli hefði meiru úr að spila en nú er og hækkað heyskapinn úr 368 hestum upp í 550 hesta. Efnahagurinn ætti því að verða mun betri. Auðvitað yrði aöallega um kúabúskap að tala og sennilega líka talsverða svina- rækt. Héraðið ætti eftir þessu að taka geysilegum stakkaskiftum ! Sveitabýli eru þar nú því sem næst 200 og mannfjöldi þeirra líklega ekki yfir 1,500. Á veitan skapaði um 800 nýbýli handa 1,600 af unga fólkinu, sem bæt- ist við i landinu, og með tímanum fleyttu þau, ef 6 manns væru í heim- ili, 4,800 mönnum. Þessu gætum vér þá ef til vill hrundið af stað með 600—800,000 kr., með fé sem svarar kaffi- og tó- bakstolli eins árs. Sig. Sigurðsson telur, að áveitan borgaði sig langdrægt á einu ári. Þó hér væri að tala um 2—3 ár, þá er gróðuripn stórfengilegur. Þetta ættu þá islenákar sveitir að geta gert, ef vel er á öllu haldið, þó fólkið sé að flýja þær. Geri aðrir atvinnuvegir betur! En cr þetta ekki loftkastalif Ekki lái eg það alþýðu manna, þó hún spyrji í fylstu alvöru. Vér erum ekki vanir slíkum byltingpim í sveita- búskap vorum. Þó höfum yér allir séð hið sama í smáum stýl á fjölda jarða. Alt er á því bygt, að hver túnadagsl. á flæðienginu gefi um 7 hesta af heyi. Þetta gera góð flæði- engi. Safamýri, sem náttúran hefir veitt á áratug eftir áratug, þó miklu meira sé en góðu hófi gegnir, hefir gefið af sér sem svarar 10 hestum af dagsláttu þegar vatnið er' hóflegt. Hún er rétt við Flóann og jarðveg- urinn var þar upprunalega engu betri en í Flóanum. Þetta eitt er ærin sönnun fyrir þvi, að hér sé ekki um loftakastala að ræða. Auðœfi sveitanna. Vér höfum séð, að góðar horfur eru á því að Flóinn geti bætt við sig 4—5,000 mönnum þegar tímar líða og gefið 800 heimilisfeðum sjálfstæða góða atvinnu, hús og heimili fyrir sig og sína. Þetta segir þó ekki mik- ið. ef sjá skal fyrir 1,000 manna við- bót á ári hverju. En Flóinn er að eins eitt svæði af mörgum, sem rækta má á sama hátt, og gæfist Flóaveitan vel myndu aðrar sveitir koma á eftir. Það er óhætt að segja, að Fló- inn myndi þá íifaldast og 8,000 ný- býli koma í stað 800. Og þó hefi eg hér aðalllega engjaræktina fyrir augum. Hitt er auk þess vist. að túnræktin á eftir að aukast stórlega hvað sem öllum áveitum líður, að minsta kosti tvöfaldast. Þessari auknu framleiðslu fylgdi eflaust að jörðum yrði skift og býli fjölguðu þó seinna gengi. Það er okkur sjálf- um að kenna ef sveitir vorar geta ekki tekið við öllum, sem í sveit vilja vera áratug eftir áratug. Og þær geta boðið alt annað en vinnu- mensku, sem mörgum er þó góð og farsæl atvinna. Þær geta boðið þús- undum manna að verða sjálfstæðir bændur og afkomu sem þoli fyllilega samanburð við nágrannalöndin. En erfitt verður að hrinda þessu á leiðis, ef ekki nýtur aðstoðar þings- ins. Hér er að tala um svo stór í- ræði, að bændur brestur bæði fé og áræði til þeirrra, jafnvel þó þau væru mjög arðsöm. Það er ólíku auðveldara þó dýrt sé að leggja sam- an í togara en að veita á Flóann. í öðrum löndum hefir það og gengið svo að stjórnirnar hafa orðið að beitast fyrir stórum áveitum (Egipta- land, Indland og viðarj eða'afveit- um (Holland/- Sjávarútvegur. En eins og áður er getið, virðist alt benda ýil þess, að togaraútvegur- inn sé ein^ útvegsgreinin sem sé í uppgangi, sú sem gefur mesta at- vinnu og mest i aðra hönd Ef stjórn á að styðja sjávarútveg, þá er að styðja togarana. En hvað getur stjórn gert í þessa átt? Eg get ekki betur séð, en að stjórn standi hér miklu lakar að vígi en í landbúnaðarmálum. Það er aðallega tvent sem ætlast má til af henni: Það verður að gæta þess, að lög- gjöfin vinni henni ekki skaða með ó- hentugum lögum eða ósanngjörnum sköttum. Þá getur og stjórnin ef til vill greitt fyrir því að útgerðarmenn eig sæmilega greiðan aðgang að láns- fé með sem beztum kjörum. Hinu hefi eg ekki trú á, að stjórnin eigi að sækja mjög fast að fjölga skipum t. d. með stórlánum í þessu auganmiði. Það yrði sennilega til þess, að fleiri legðu út í togara-útgerð en færir væru til þess, að mennirnir á skipun- um yrðu miður valdir og mætti þetta verða útvegnum að tjóni. Togaraút- vegurinn er nú kominn á þann rek- spöl, að ef hann borgar sig vel ,þá vex hann hraðara af eigin ramleik, en fari hann að bera sig illa, er hverri stjórn ofætlun að halda hon- um uppi. Sjór og sveit. Það munu margir ætla, að sjávar- aflinn gefi ólíku méira í aðra hönd en sveitabúskapurinn. Það bendir margt á að svo sé ekki eða þurfi ekki að vera. Eg held að sú hafi verið reynsla undanfarandi alda, að sjávarmenn hafi yfirleitt hvörki ver- ið ríkari né liðið betur en flestum sveitamönnum. Segja má, að nú sé þetta breytt, eftir að pokanætur og botnvörpur hafa komið til sögunnar. Eigi að síður, ef áætlun manna um Flóaveituna fer nærri lagi, þá er það fljótséð, að enginn togari getur á- vaxtað svo féð sem til hans gengur eins og Flóamýraranar. Annað atriði er og eftirtektavert: Sjávaraflinn verður líklega ætið svip- ulli en sveitabúskapurinn, meira háð- ur allskonar áhrifum. sem vér ekki höfum vald yfir, og fljót eru skipin að líða undir lok, ef gróðinn hrekkur ekki vel til þess að endurnýja þau; en vel ræktað sveitabýli, sem nýtur t. d. stuðnings af góðu flæðiengi, get- ur staðið meðan landið er bygt, ef jarðeldur grandar því ekk. Þá er heldur engin vissa fyrir því, að' fiskimið vor séu sú óþrjótandi upp- spretta, sem aldrei verði tæmd, hve mörg hundruð botnvörpunga sem þar stunda veiðar mestan hluta árs. Það er hugsanlegt. að fiskinum verði svo fækkað á miðum vorum eftir hálfa ölcj, að botnvörpuútgerð borgi sig ekki, og að sjálfsögðu myndi þá líka bátaútvegur eiga erfitt uppdrátt- ar. Þá stendur eða fellur landið með sveitabúskapnum, sem ætíð hef- ir verið traustasti atvinnuvegur vor og langflestir hafa lifað á. Þá er það að lokum þýðingar- mikið mál, að sjórinn hefir önnur á- hrif á fólkið en sveitin, elur upp öðruvisi fólk. Svo hefir þetta reynst hvarvetna. Reglubundna sveitalífið og fasta heimilið venur fólk að öllum jafnaði á reglusemi, sparsemi og iðju semi, þó jafnframt vilji það oftast brenna við, að það verður smátækt og íhaldssamt. Hvikuli sjórinn, sem stundum gefur stórgróða á stuttum tíma, freistar til fyrirhyggjuleysis og eyðslusemi, eins og síldveiðar vorar hafa oft sýnt ljóslega. Ekki er það heldur allskostar heppilegt, að heim- ilisfaðirinn er nálega ætíð úti á sjón- um og sér að eins konu og börn á mánaðafresti. Áhrif hlýtur það að hafa á uppeldi barna og margt ann- að. Það ber þannig margt til þess, að í öllum löndum er sveitafólkið tal- ið traustasti og þrautseigasti þáttur þjóðarinnar, og er þetta ekki sagt sjómönnum til lasts. íslenzkir sjó- menn hafa getið sér góðan orðstír. en sjómannastéttin stendur nú einu sinni á hálara svelli en sveitafólkið. Það þarf ekki annað en t.d. bera saman sjómannamálið með öllum þess orð- skrípum, við hreina sveitamálið, sem sjá má á þjóðsögum vorum, en vitan- lega á eg hér einkum við sjómensku á hafskipum. V erksmiðju-iðnaður. I stærri verksmiðjuiðnaði er að- eins um tvent að gera, að frátöldum tóverksmiðjum, niðursoðin matvæli og áburð unninn úr loftinu. Einstak- lingar verða eflaust að brjóta hér is- inn sem víða annarsstaðar, og vafa- samt að þingið geti mikið fyrir þess- um málum greitt. Heittt ilis- ið nað ur. Frá landnámstið og til þess um miðja síðustu öld, hefir land vort verið iðnaðarland, þó í smáum stíl væri. Þegar heyönnum og haust- verkum var lokið, var óðara sezt við heimilis-iðnað: karlar kembdu, kon- ur spunnu og smiðurinn tók til við smíðar sínar. Stutta sumarið, þriðj- ung ársins, stunduðu menn landbún- að. Allan veturinn, tvo þriðjunga ársins, var landið iðnaðarland. Gildi gamla iðnaðarins sést bezt á því, að alin vaðmála var gerð að verðmæli. Fólkið hafði atvinnu alt árið. Á síð- ustu áratugum hefir þetta gerbreyzt. Gamli heimilisiðnaðurinn hefir oltið um koll og orðið undir i samkepninni við erlendan verksmiðju - varning. Þetta hefir meðal annars haft þau áhrif, að sumarkaup verkafólks er orðið tiltölulega hátt, því af því verð- ur að lifa alt árið; eigi að síður er árskaupið mun lægra en viðast ann- arsstaðar i heiminum. Flestar tillögur manna um endur- bætur á atvinnuvegum vorum lúta að því, hversu gera megi arðsama tím- ann enn arðsamari. Hitt liggur þó í augum uppi, að vér verðum að finna einhver ráð til þess að gera oss vet- urinn arðsaman. Eina ráðið til þess er iðnaður, og til þess að almenningi komi hann að haldi, verður hann að vera heimilisiðnaður. Það er vonlaust að endurreisa gamla heimilisiðnaðinn í því formi sem hann var. Hann er nú orðinn úreltur. Vér verðum að fylgjast með tímanum og koma upp iðnaði. sem hentar vorum tímum og þolir samkepnina. Fjöldi af iðnaðarvör- um er með því marki brendur, að vél- ar geta ekki unnið þær nema að nokkru leyti, geta ekki komið í stað mannshandarinnar, margar léttavara og efnislitlar í samanburði við verð- ið. Vér ættum að geta gert oss slík- an iðnað að vetrarvinnu. Það fer fjarri, að allar iðnaðar- vörur séu i verksmiðjum gerðar. í Þýzkalandi lifir hálf miljón manna af heimilisiðnaði. í Sviss eru 19% af öllum iðnaðarvörum heimilisiðnaður, í Austurríki 34%. í Noregi 25%. Heimilisiðnaður lifir enn góðu lífi víðsvegar um lönd, og vér stöndum ekki allskostar ver að vígi en allir aðrir. Fyrir nokkru var stofnað félag hér í Reykjavík til þess að efla heimilis- iðnað. Ef það hefði eitthvað álitlegt fyrir stafni, væri alþingi skylt að styrkja það. Þá gæti og eflaust kom- ið til tals, að leggja nokktirn toil á sttmar iðnaðarvörur, t.d. tilbúin föt, og efla með því iðnaðinn í landinu. Mér kemur ekki til hugar, að heím- ilisiðnaður verði út af fyrir sig stór atvinnuvegur fyrir unga fólkið, en held að hann geti orðið þvi og öllum landslýð góður stuðningur og auka- atvinna eins og hann hefir verið frá landnámstíð. Yfirlit. Ef vér lítum yfir það, sem sagt hefir verið hér að framan, eru aðal- atriðin þessi: 1J Sem stendur er landið lítið, rúrnar ekki unga fólkið, setn árlega bætist við, nenta það sé óvenju lítil- þægt. 2J Vér getum áreiðanl^ga stækkað landið, gefið öllurn atvinnu, sem þess þurfa, og fjöldanum öllum sjálf- stæða stöðu. 3J Vissasti og farsælasti vegurinn til þess er aukin ræktun landsins, sveitarbúskapur, en ekki sjávarútveg- ur. að minsta kosti fyrsta áratuginn,. Þrátt fyrir alla kosti túnrækt- arinnar, og þeir eru rniklir, á land- stjórnin að láta engjarækt sitja í fyr- irrúmi fyrir öllu öðru. Hún ein get- ur gert stórfelda breytingu á sveita- búskapnum á stuttum tíma. 5J Engjarækt í stórum stíl er ó- framkvæmanleg, nema með öflugri aðstoð alþingis. Hún er helzta verk- efni þess i atvinnumálum. Guðm. Hannesson. —Skírnir. íslenzkar listir og vísindi. Stnágreinir eftir borst. Erlingsson. VIII. Eg þykist vita, að eitthvað af mönnum rámi i það, af því aö þess var getið hér i blöðum rétt fyrir skömniu, að Sig. Júl. Jóhannesson hefði skrifað grein í Lögberg í Win- nipeg og stungið upp á þvi, að ís- lendingar vestra þar keyptu öll verk Einars Jónssonar og kiptu þeim og honum vestur um haf. Til eru þeir menn vafalaust sem hugsa, að uppástunga þessi geti verið gerð af yesturheimskri fordild eða mikillæti, til þess að sýna, hvað þá þar vestra munar lítið um, að lyfta þeim pausa til klakks, sem við heima hér gátum ekki vatnað. En hér er þó alt annað i öskjuunm. Það er fyrst, að eg veit ekkert um það, að þeir sem kallaðir eru góðir menn vestra, hafi státað meira af þeim stórvirkjum, sem þeir ætluðu sér ekki að framkvæma, heldur en þeir menn af vorum stórvirkjum, sem vér köllum góða hér. Þeir vestra hafa sýnt, að þeir bæði vildu og gátu lyft þungum böggum þegar á lá. Nei. Hér víkur annan veg við. Sigurður Júlíus er listelskur og sér hvað er í húfi; hann heimsækir Einar í Höfn, sér hve skapandi lista- andi þar er, og hver snillingur þar er að verki, og undir öll þessi mörgu og stórmerkilegu listaverk, hefir hann af fátækt neyðst til að leigja gamla vöruskemmu, og þar eru gipsið og leirinn orðin svo brákuð af flutningum, að alt er að molna niður og vanséð mjög, að það þoli einn flutninginn enn þá, og eina björgin ef það yrði sett i umbúðir til flutninga á verustað sinn. Einar er efnalaus; hann á engin lífsins ráð til að forða því, að alt fari í hrúgu. Hann hefir reynt síðasta úrræðið, boðið landi sínu það alt saman að gjöf, en alþingi hefir hafnað boðinu fyrir hönd þjóðarinnar. Það veitti Einari að eins ofurlítinn áissstyrk, líklega í þakklætisskyni. Meirihlut- inn hafði ekkert hugboð haft um hvað hann var að vinna, hann hélt hann væri að spara fé eins og bæjar- stjórn Reykjavíkur, þegar hún vildi ekki katrpa Elliðaárnar fyrir 15,000 kr.. en varð svo fám árum síðar að kaupa þær fyrir 150 þúsundir. Þarna horfðu menn nú á fullvita og vakandi, hvað var að berjast fyrir lífinu í myrkrinu, en augu þeirra voru svo haldin, að engin líkindi voru til að þau lykist upp fyrri en þeir sæu beinin á öræfunum, eúþað yrði þá. Til hvers átti að grípa? Var engin von til að landar hans vestra skyldu þetta betur og ynnu þetta örlitla handarvik íslenzkri list til bjargar, og þjóðerni sínu og sér til ævarandi sæmdar? Hann gat ekki öðru trúað, og svo skrifar hann grein sína fulla af skiln- ingi, sannfæringarmætti ag góðvilja. Mér er nú ókunnugt um, hvers grein þessi hefir mátt sín eða má hjá löndum okkar vestra. en flokk- arnir hafa sýnt, að þeir geta vel þvegið af sér markaðskritina og fylkt fast saman, þegar þeir hugðu að landinu gamla lægi eitthvað við, eða sameiginlegum sóma þeirra og vor. Af þeim finst mér því einskis ör- vænt hér. Eg skrifa og ekki þessa greina- stúfa af því, að eg ynni þeim ekki vel bæði listaverkanna og sómans af að hafa bjargað þeim. — Mér hefir jafnvel fundist stundum, sem eg gæti unt þeim mikils meira héðan, ef þeim hefði þótt það þess vert að bjarga því frá vansæmd, og viljað þiggja^það. IX. En hér er önnur torfæra á leið- inni, sem óhægt verður að sneiða hjá. Einar Jónsson hefir fastráðið það með sjálfum sér, að til íslands skuli öll hans verk á eitt safn, ef nokkur kraftur megni að koma þeim þangað. Og hann er svo gerður. að yrði hann að horfa á, að safn sitt færi annað, þá yrði það honum það reið- arslag, sem hann veit sjálfur víst ekki hvað mundi lama. Tilfinning- ar hans og öll hugsun er svo rót- fléttuð íslenzkri mold, og öllu sem íslenzkt er, að honum væri t. a. m. enginn kostur, að skrifa eða yrkja á útlendu máli, þótt hann væri rithöf- undur. Hann mundi heldur neyðast til að leggja af sér pennann. Svo að menn skilji mig, og sjái, að þessi orð eru hér ekki sögð jafn hugsunarlaust og oft er títt, þá skal eg nefna dæmi: Færeyingar biðja Einar, aö gera minnisvarða yfir einn af ágætustu gagnsemdarmönnum þeirra. Nú mætti hugsa sér það ekki svo ósenni- legt, að Einar hefði sett yfir þennan þjóðnýta Færeying einn af hinum fríðu og afar einkennilegu toppfjöll- um þeirra, og kalla mátti vel til fundið. En það verður Einari ekki fyrir. Yfir þennan mann, seni Iyft hafði því, sem aðrir gátu ekki, sæk- ir Einar legsteininn heim til íslands. Þar var hann á hverri hæð. Það var Grettis-takið. Því heldur jötunsterk hönd á lófa sínum yfir minningu þessa afreksmanns. Eg nefni þetta sem dæmi, en ekki af því, að það taki sig sérstaklega út úr verkum Einars; þau eru mörg fremri, bæði að háfleygi og snild. Eg skil ekki annað, en flestum þeim mönnum, sem til geta fundið, mundi renna til rifja sum bréf Ein- ars, sem hann hefir skrifað einstök- um mönnum hér, þótt orðin séu blátt áfram og stundum jafnvel barnslega einlæg. Þráin að geta komist heim til ættjarðarinnar með alt sitt, er svo rik, að á hana sér alt af hvernig sem hún ætlar að fela sig. Og hvernig á annað að vera eins og þar er alt í garðinn búiö. Þótt það væri margfaldrar þakkar vert af löndum okkar vestra, að reynast drengir Einari og verkum hans, þá er ekki með því borgið þrám hans né tilfinningum, og þvi síður álitinu, sem ókonmir tímar fá á menningu okkar hér nú, eða á drengskap okkar, jafnvel þótt skiln- inginn skorti. Það er eðlileg afleiðing og engin illspá, að þar fáist seint gleymska og fyrirgefning.—Isafold.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.