Lögberg - 15.10.1914, Síða 6

Lögberg - 15.10.1914, Síða 6
6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. OKTÓBER 1914 LÆKNIRINN. SAGA FRA KLETTAFJÖLLU M eftir RALPH CONNOR Svona uríu þá vonadraumarnir a8 fara. Svona urðu þeir að flæmasj í burtu. Svona urðu loftkast- alarnir að hrynja, og verst af öllu, þeir fóru svona fyrir hendi hans. Hún las bréfið aftur yfir í flýti. “Hann vill ekki láta mig skifta mér af Dr. Bulling”. Hún mundi eftir einni setningu í bréf; læknisins. “Láttu engan og ekkert hamla þér frá aö taka þessu boöi”. Fásinna. Þetta er heimskulegi af Barney. Hann er svo hræðilega smámunasamur. Hann skilur ekki þessa hluti. Þeir hafa auðvitaf rifist um eitthvaB, og nú býður hann mér að tala ekk viö Dr. Bulling”. Hún leit aftur á bréfiö. “Ham skipar mér þaö auövitáð ekki, en þaö er það sama — “þú veist hvemig þú átt aö taka honum”. Hann ei of stoltur til aö bjóða mér, en hann ætlast samt ti þess. En þaö væri alveg bandvitlaust að hlýöa því Haldið þiö ekki aö Duff Charrington og Evelyi Redd yröi ekki skemt. Það nær engri átt. Eg verö aö fara. Eg skal fara.” Iola gaf tilfinningum sinum sjaldan lausan tauminn. Hún vildi helzt aldrei veröa mjög reið. Hún vildi foröast öll veruleg þrætuefni. En nú forðaðist hún það ekki. Hún varð svo öskureið, að þegar hún kom aftur til sjálfs sín, þá varð hún fegin að enginn hafi verið nærstaddur. “Hvað gengur annars að mér?” spurði hún sjálfa sig. Hún vissi ekki, að þráin sem fylgt haföi mestan hluta lífs hennar, haföi rekist á hinn bjargfasta vilja mannsins, sem hún elskaði. Hún vissi þaö, aö hann mundi aldrei láta undan síga. “Hvað á eg að gera? hrópaði hún og æddi um gólfið. “Margrét getur hjálpaö mér. Nei, hún er á hans bandi. Hún mundi kalla það ósið að fara þetta á sunnudegi, og þar að auki veit hún hvað Barney er fastur fyrir. Eg vildi aö eg gæti talað við Dick. Hann mundi skilja þetta. Hann hefir reynt fleira og — æ, hann er ekki svona þegar hann var sestur, var hún búin aö ná valdi yfir sjálfri sér. “Eg kom bara til aö segja þér tíöindin.” “Nefnilega?” “Eg er hissa; veistu það ekki ? Þetta Phil- harmonic mál er útkljáð. Þú skilur hvað eg á viö.” Iola lét sem hún kæmi út úr hól. “Veiztu ekki að Duff Charrington fólkið hefir látið undan?” Iola kannaðist viö orö Dr. Bullings: “Látiö undan? Viö hvaö áttu?” “Þú veist þó hvað á hefir gengið. Duff Charr- ingtcsi fólkiö hefir dregiö taum Rauðu stúlkunnar.*j “Nú skil eg; svo það hefir dregiö taum Rauðu stúlkunnar? Ungfrú Evelyn Redd, býst eg við? Það er eins og þetta eigi eitthvað skylt viö veðreiðar.” “Veðreiöar! Ha, ha, ha Veðreiðar eiga ekkert skylt viö þetta. En Bulling dró þinn taum og þú hefir sigraö.” “Þetta er skrítið. Eg hélt að þegar “sólóistar” væru valdir, þá væri eingöngu farið eftir hæfileikum.” Iola virtist vera róleg, og það var ekki laust við drambsemi í rómnum. “Já, vissulega eftir hæfileikum; það er auðvitað. En þú veist hvernig þetta gengur til.” Foxmore var farinn að verða órólegur. Honum gramdist aö þessi lítt þekta sveitastúlka skyldi tala svona drembilega. “Þú kemur þá”, bætti hann við, og reyndi aö gera sig stimamjúkan, “þú veist hvað viö höldum um hæfi- leika þína.” “Og hvað haldiö þiö um þá?” Það var dálítill forvitnis blær í röddinni. “Eg held—eg veit að þú getur leyst verkið miklu betur af hendi heldur en Evelyn Redd.” “Hefirðu nokkum tíma heyrt til ungfrú Redd? Eg veit þú hefir aldrei heyrt til mín.” “Nei, eg hefi aldrei heyrt til þín; en eg veit að þú hefir svo fallega rödd, að hún fellur öllum vel í geö.” “Þakka þér fyrir” sagði Iola brosandi. “En mér þykir það leitt, að Dr. Bulling skyldi eyða .svona miklu af sínum dýrmæta tíma í mínar þarfir.” “Um þaö er ekki að fást”, sagði Foxmore. “Við höföum bara ánægju af því.” “Þiö eruð óviðjafnanlegir! Og þú drógst líka minn taum, Dr. Foxmore?” “Viö hjálpuðumst að því svo lítið bar á” sagði Foxmore ánægjulega. “Eg býst viö aö þið Dr. Bulling hafiö líka séö fyrir þessari skemtiför með skútunni. Þú getur ekki óttalega hörundsár. Eg skal ná í Dick til að tala við hann.” Hún vildi ekki kannast við þaö, að hún^ráað Þv'> Dr. Foxmore, hvað þaö er mikill léttir, aö var sárfegin því, að Bamey gat ekki komiö. Ei hún gat sent honum línu, fengiö Dick til að fara ti hans og á meðan þegiö boðið. “Eg ætla aö þiggj: bqðið strax. Eg vildi að eg heföi gert það áður ei eg las bréfiö. Eg var í rauninni búin aö þiggja þat í huganum og alt er undir búið. Eg skrifa bréfit samstundis.” Hún flýtti sér aö brenna brýrnar af: baki sér, svo að hún gæti ekki hörfaö undan. “Svona” sagði hún um leið og hún lokaði bréfunum. skrifaði utan á og lét frímerkin á þau. “Eg vildi að þau væru komin í bréfakassann. Eg er svo hrædd um aö mér snúist hugur. En mér getur ekki snú'st hugur. Eg má ekki sleppa þessu færi. Eg hefi unnið of lengi og of mikið. Barney ætti ekki að láta sér detta annað eins í hug.” Hún aumkaði sjálfa sig og við það hægði henni um stund. Barnev vildi vissulega ekki gera henni þetta á móti skapi; hann vildi ekk neyða hana tii aö sitja af sér þetta færi. Hún hélt áfram að hugsa um þetta. Hún hugsaði sér að hún Væri bágstödd og einmana kona og Bamey væri sá eini sem hefði skyldu og einkarétt til aö hjálpa henni “Nú fer eg með bréfin og !æt þau í kassan” sagð húrt. Hún lét á sig hattinn og hljóp niður meö bréf- in. Hún vissi að Barney mundi aldrei vilja samsinna þessa, og hélt því áfram að aumka sjálfa sig, til þess að forðast hugsunina um mótspyrnu. “Svona, nú er það búið,” sagöi hún við sjálfa sig, þegar lokið á kassanum skall aftur. “Ó, eg veit ekki — eg vildi að eg hefði ekki gert það.” Það hafði komið fram sem hún óttaðist. Sjálfsaumk- unin hafði rokiö í burtu og horfið eins og þoka fyrii sól og vindi og nú stóð hún augliti til auglitis við af- leiðingamar. Hún sá hið dökka, alvarlega andlit hans og djúpsæ augun. “Hann kemur því altaf svc fyrir, að þér finst þú hafa á röngu að standa” sagð hún óþolinmóölega. “Manni verður ávalt orðfa'l Hann virðist jafnan hafa^rétt fyrir sér og hann hefii venjulega rétt mál að verja” bætti hún við. “En, það gerir ekkert til, Dick hjálpar mér.” Hún hristi af sér okið og hljóp heimleiðis. Viö dyrnar mætti hún Dr. Foxmore. “Góöan daginn” sagöi hann og brosti svo aö skein í hvítar tennurnar undir stroknu og vaxbornu yfirvara skegginu. “Og hvernig líöur ungfrúnni í góða veðrinu?” Iola varð að taka á öllu viljaþreki sínu til þess að láta ekki á því bera, að henni bauð við manninum. Þama var einn af vinum Dr. Bullings. Henni fanst hann vera samsafn alls þess, sem hún hafði mestui hafa áðra til að hugsa um alt þetta fyrir sig. Mað- hr þarf um ekkert að hugsa.” Iola brosti eins og saklaust bam. Dr. Foxmore skotraði augvmum til hennar og flýtti sér að breyta um umtalsefni. “Þú kemur á laugardaginn; ætlarðu ekki að gera þaö ?” “Eg er ekki alveg viss um það enn þá” sagði Iola. ‘Þú veist að þú verður aö koma. Mrs. Duff Charrington yrði viti sínu fjær af gremju, að ógleymd- um Dr. Bulling. Hann lagði sig i líma til að koma vilja sínum fram og þetta heimboð er merki um stundarfriö.” “Það er ófriðarblær á orðum þínum, Dr. Fox- more og eg skil ekki til hlýtar hvað þú átt við. En þar sem eg sé að þið Dr. Bulling hafið orðið að leggja svona hart á ykkur, þá held eg að eg ætti að hafna boðinu” sagði Iola, með drembnis keim. Dr. Fox- more hann vera að missa fótfestu. En ef mér verður boöið að taka að mér þetta hlutverk, þá skal eg ihuga það.” “íhuga það!” sagði Foxmore og varð hissa. Það var sannarlega tími til kominn að láta þessa ungu, drambsömu stúlku skilja hvílíkan heiður og liag þeir Dr. Bulling voru að reyna að veita henni. Honum sámaði. “Jæja”, sagði hann, “eg hefi ekki öðru við að bæta en því, að ef þú veist hvað þér er fyrir beztu, þá gríptu þetta tækifæri.” Iola stóð upp og rétti úr sér. Dr. Foxmore hélt að hún væri ekki svona stór. Hún var ofurlítið föl- ari en að vanda og augun virtust stærri, en röddin var jafn þýð og venja var til. Hún spurði snjöllum rómi: ‘Komstu hingað til að ógna mér?” “Eg kom” sagði hann blátt áfram, “til þess aö láta þig vita hvílík hamingja hefir fallið þér í skaut, og vara þig við, að láta enga vini þína né vandamenn hafa þig til aö gera nokkuð sem mætti verða þér að tjóni.” “Vini mína?” Iola reigði sig drembilega. “Og eg þekki vini þina. Það er sérstaklega einn — eg get sagt þér það — þessi ungi læknisnemi, Boyle, honum er ekki mikið um Dr. Bulling gefið. Hann kynni að hafa á móti þessari ferð þinni.” Iola fann að hún þrútnaði af reiði. En hún stóö þegjandi dálitla stund, þangað til hún var viss um að ekki heyrðist á mæli hennar. Vinir mínir mundu aldrei dirfast að hafa á móti því sem eg sjálf vil.” Það getur verið. En þessi ungi Boyle hefir þó andstygð á. Tilraun hennar að hylja þetta olli því!verið afskiftasamari en heppilegt hefir verið fyrir einu, að hún bara brosti enn þá yndislegar. Foxmorelharai' Hann verí5l,r> v°nandi< gætnari framvegis.” óx hugur við það. Hann hafði þá skoðun, að kon- um fyndist hann alveg ómótstæðilegur. Það gat ver- ið, að Bulling væri tekinn fram yfir hann vegna auð- legðar sinnar og metorða. En ef þeir stæðu jafnt að vígi, þá skyldi heimurinn sjá, hvor sigurinn bæri úr býtum. Mér datt í hug í morgun að láta það eftir mér að íeimsækja þig.” “Boyle er göfugmenni. Eg þori að treysta hon- um. Hann mundi aldrei gera neitt nema það sem hann álitur að sé rétt.” “Hann hugsar sig kannske betur um, áður en hann skiftir sér af Dr. Bulling aftur”, sagði Foxmore. “Dr. Bulling?” “Já. Hann móðgaði Dr. Bulling mikillega, svo Dr. Bulling varð að refsa honum.” “Refsa Boyle!” hrópaði Iola; henni gramdist svo að hún gat ekki stilt sig. “Það getur ekki verið satt. “Er þaö mögulegt. Gerðu svo vel að koma inn.” Iola átti í þungu stríði við sjálfa sig. Bamey hafði barist gegn þessum manni og vinum hans fyrir heiðri hennar. Iola gekk á undan honum upp stigann aö vinnustofu sinni og ansaði engu sem hann sagðiJingarÓrtic‘"red»’sem’MWr ÍTuCur.—pfn' ) I>ess ber at! gæta, aC ættarnafn stúlkunnar, sem |um er aC ræCa, var Redd. paC er bor(C fram eins og lýs- Þaö getur ekki hafa komiö fyrir.” “En eg er að segja þér að þetta kom fyrir! Eg var viðstaddur og sá það með mínum eigin augum. Það var svoleiöis —” Iola bandaði meö hendinni. “Dr. Foxmore” sagöi hún, “þú þarft ekki að segja meira. Eg er bú- in að segja þér að þaö getur ekki verið satt!” Dr. Foxmore stokkroðnaði af gremju og gleymdi allri kurteisi i oröum. “Kallarðu mig lygara?” hrópaði hann. “Ertu að hugsa um að refsa mér lika?” Læknirinn stóð i ráðaleysi, gat ekkert sagt og starði á Iolu; hún var róleg og brosti. “Eg var asni að eg skýldi koma!” tautaði hann. “Eg vildi hvorki rengja þig né slá hendinni á móti góðum ráðum.” Læknirinn blótaði í huganum og rauk út þegj- andi. Iola stóð þejandi og hreyfingarlaus þangað til hann var horfinn út úr dyrunum. Hún varp öndinni, spenti greipar og sagði hálfhátt: “Eg vildi aö eg væri karlmaður.” Hún lokaði hurðinni, settist niöur og var hugsi. “Hvað skyldi annars hafa komði fyr- ir? Eg verð strax að finna Diek. Hann segir mér það. Þetta er alt svo andstyggilegt.” Hún sá sjálfa sig í fyrsta sinn frá sjónarmiði Dr. Bullings. Ef hún söng í Philharmonic, þá var þaö hinum góðu meðmælum hans að þakka og með náðugu leyfi Duff * Charrington fólksins. Það var auövitað einskis met- ið, að hún hafði ágæta rödd og gat leyst þetta hlut- verk miklu betur af hendi en Evelyn Redd. Hvað hún var auðvirðileg! En hún varð að halda áfram. Ekkert skyldi hindra hana frá að bera sigur úr být- um. Þetta var fyrsta trausta rimin í stiganum upp á frægðartindinn. Ef hún komst þangað varð hún | óháð Bulling og þessum viðbjóðslegu félögum hans. j Það var gott ráð fyrir hana að fara með þeim á skemt- un. Hún þurfti ekkert að skifta sér af Dr. Bulling, og hún ætlaði sér ekki heldur að gera það, því aö Barney mundi sárna þaö og það mundi særa hann. í Það auðvitað sýndist bera vott um ótrúmensku við hann, að hafa vinsamlegt samneyti við mann, sem hafði farið svona illa með hann En hvað hún hat- aði sjálfa sig. Hún mátti ekki láta þetta færi ganga sér úr greipum. Hún ætlaði að segja Barney hvað bágt hún átti og hún ætlaði að senda Dick til hans. Hann mundi þó vilja tala við Dick. Veslings Iola! Án þess að vita af stóð hún á krossgötum og var að kjósa þann veg, sem leiddi hana frá þeirri trú, þeim hugsjónum og vinum, sem henni voru kærastir allra. Alla æfina hafði hún verið að búa sig undir þetta val. Hún var þannig gerð, að hún varð að beita öllu þreki sinu til að öðlast það, sem hún þráði. Það var ekkert efamál, að hún mundi særa þann mann djúpu sári, sem elskaði hana meira en lífið í brjósti sínu. En þegar hún átti að velja, þá stóð hún vopnlaus á valdi metorðagimdar sinnar. Og eftir rodd hennar valdi hún. XII. KAPITULI. Sá sem elskar líf sitt. Duff Charrington, húsfreyja, var ekki nærri eins óviðfeldin þegar maður var nálægt henni, eins og til að sjá. Hún var stór og þreklega vaxin, hávær i tali, rauðleit í andliti og á efri vör mótaði fyrir skeggstæði. Tilsýndar skaut þetta mörgum skelk x bringu. En þegar nær var komið, drógu hin gráu, vingjamlegu, titrandi augu talsvert úr þessu ófríða útliti. Hún bauð Iolu innilega velkomna’ En hún haföi í svo mörgu að snúast: skipa fyrir og koma ýínsum flutningi á sinn stað, að hún gaf sér ekki tíma til að skifta sér af gestum sínum. Bryggjan sem Petrel lá við, var alþakin fólki þetta laugardagskveld. Þar voru ótal hópar á leíð niður að gufuskipum, ferjum og skútum, sem lágu þar. Það var búið að vinda upp stórseglið á Petrel, svo að skipið lagðist í böndin, sem héldu þvx við bryggjuna. Iola stóð á þilfarinu og horfði á manngrúann. Svo fór hún að hugsa um hvemig Dick mundi hafa gengið erindið við bróður sinn. Þegar hún var að hugsa um þetta, sá hún hvar Dr. Bulling var á leið til hennar, með bros á vör að vanda. En þegar hann ætlaöi að fara að ávarpa hana, festi hann auga á einhverju efst á bryggjunni og starði á það. Iolu varð litið þangað líka, og sá hvar maður mddi sér braut í gegnum þyrpinguna. Það var Bamey. Hún sá að hann stanzaði til þess að spyrja einn mannann sem vann við höfnina, að ein- hverju. Bulling blótaði í hljóði og hljóp að skips- festinni aftur á. “Leystu festina, Murdoff”, kallaði hann til mannsins sem stóð þar. “Hreyfðu þig nú!” Um leið og hann sagði þetta löysti hann fest- ina og greip stýrið til þess ?ð Murdoff yrði að flýta sér að gera það sem hann hafði skipað honum. Skútan snéri samstundis frá landi og á milli hennar og bryggjunnar lá vatnið fagurblátt. Það mátti held- ur ekki tæpara standa. y Bamey kom hlaupandi niður bryggjuna og hrinti frá sér á báða bóga. Þegar hann kom niður á bryggjuna, kom hann auga á Iolu og Dr. Bulling. Hann færði annan fótinn aftur fyrir hinn, eins og hann ætlaði að reyna að hlaupa á eftir skútunni. “Gerðu ekki þetta, Barney” hrópaði lola í ofboði. Duff Charrington vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. “Hvað gengur á?” kallaöi hún. “Hvernig stend- ur á þessu? Við emm komin frá landi! Bulling, hvern skollann — hver ræður þessu?” Duff Charr- ingtog var, eins og hún sjálf mundi hafa orðað það, “alveg hreint steinhissa”. I sama bili tók hún eftir að Iola var náföl í andliti og Dr. Bulling var engu betri. “Hvað gengur á?” kallaði hún aftur. Hefirðu séð afturgöngu, Lane? C)g þú líka, Bulling?” Hexmi varð itið upp á bryggjuna. “Það hefir einhver orðið eftir! Hver er þessi ungi maður, Daisy? Það er maðurinn sem vann medalíuna; er það ekki? Þekk- ir þú hann, Bulling? Eigum viö aö snúa viö eftir honum ?” “Nei, nei! Ekki fyrir nokkum mun. Þetta er vitf irringur!” “Fyrirgefðu, Dr. Bulling” sagði Iola snjalt og skýrt. “Hann er vinur minn, mjög góður vinur, og eg get sagt ykkur það, aö hann er með öllu viti.” Um leið og hún sagði þetta veifaði hún hendi til Bamey; en hann gaf ekki merki til svars. “Vinur þinn; er hann þaö?” sagði Duff Charr- ington. “Þá er hann eflaust enginn vitfirringur. Þarf hann að tala við þig? Eigutn við að snúa við eftir honum ?” “Nei, hann þarf ekki að tala við mig” sagði Iola. “Charrington”, sagði Bulling, “honum er kalt til mín, af því hann heldur að eg hafi gert á hluta sinn.” “Nú skil eg” sagði Duff Charrington. Lane, hvað segir þú um þetta? Við getum gjaman snúið við.” “Við skulum ekki fást meira tun þetta” sagði Iola; “hann er farinn.” “Eins og þér þóknast, Daisy, farðu með Dr. Buíling ofan í káetu. Hann lítur út fyrir að þurfa hressingu með. Eg skal taka við stýrinu.” “Duff Charrington”, mælti Iola lágt, þegar Bulling hvarf niður í skipið, “þetta var Boyle vinur minn. Eg vonast til að þú skoðir hann sem mjög ráðvandan og heiðvirðan mann. En honum fellur ekki við Dr. Búlling. Hann treystir honum ekki.” “Góða, bezta”, sagði Duff Charrington, “hugs- aðu ekkert um hann. Eg hefi ekki lifað fimtíu ár til einskis. Þessir karlmenn, þessir karlmenn! Þeir þykjast vera svo viðkvæmir, þessir veslingar. En þeir em rétt eins og við, hafa bara dálítið meira sjálfsálit, en miklu minna vit. Og þeir eiga ekki skilið, að við hugsum eins mikið um þá og við gerum. En eg verð að kynnast þessum manni Hann hafði hreint og fallegt yfirbragð. Eg hefi heyrt John hrosa honum. John er sonur minn; hann er ungur; þetta er fyrsta árið hans í læknaskólanum. Eg verð reyndar að kannast við það, að það er ekki alt af að reiða sig á það sem hann segir. Hann er mikið gef- inn fyrir heiminn og ýmsar sögur cm sagðar um hann. En eg veit svo mikið, hvað sem öllu öðru liður, að hann er alveg bandvitlaus eftir þér, og svei mer ef mig furðar nokkuð á því. Ef eg væri ungur maður, þá skyldi eg spenna þig örmum eins fljótt og eg gæti.” lola fann að henni hitnaði um hjarta þegar hún hlustaði á Duff Charrington. Þó að hún væri nokk- uð svarraleg, þá var hún góðhjörtuð og gat verið meinfyndin. “Eg sé ekki eftir að eg kom” sagði Iola ánægju- Iega; “Eg hélt að þú værir ekki —” Hún þagnaði og það kom fát á hana. “Eg get fullvissað þig um, aö' eg er ekki eins afleit og sagt er.” “Kæra Charrington, eg meinti ekki þig; eg var hrædd um, að það sem Dr. Bulling —”. Hún hikaði aftur. “Þú þarft ekki að segja mér það” sagði Charr- ington, þegar hún sá hve mikið fát var á henni. “Bulling hefir sjálfsagt gefið það í skyn, að hann hafi fengið mig til að bjóða þér að fara þessa för. Berðu ekki á móti því.” Hún deplaði augunum kæn- lega til Iolu. “En Bulling er lygari, afleitur lygari og lítur mikiö á sig. En hann átti engan þátt í þessu boði mínu, þó að hann þakki sér það. Hann er ekki hæfileikalaus, en hann getur ekki kent langömmu sinni að sjóða egg. Eg skal segja þér hvers vegna þú ert hér kominn. Eg get hrósað sjálfri mér fyrir það, að þekkja þá úr sem líklegir eru til að vinna sig- ur. Eg álít þig eina af þeim. Þess vegna áttu að syngja í Philharmonic. Evelyn Redd hefir laglega rödd. Hún er frændkona eins vinar míns og um tíma hélt eg að hún mundi duga. En hún er sálar- laus, ástarlaus; en sönglistin, eins og karlmermirnir, heimtar ást. Að iðka sönglist, og elska hana ekki, er glæpur gegn listinni. Svo að eg sagði Duff, hann er formaður framkvæmdarnefndarinnar, eins og þú veist, að það' væri ómögulegt að notast við hana og að við vrðum að ná i þig. Eg hefi heyrt þig syngja, og eg þekki söngkenniteiknin á andliti, hálsi og aug- um fólks. Þú hefir þau öll. Þú hefir röddina, skap- lyndið og ástúðina. Þú verður fræg einn góðan veðurdag, miklu frægari en eg; og með von um að njóta af frægð þinni, hefi eg einsett mér að hjálpa þér fjárhagslega.” Iola stamaði einhverju þakklæti, þó hún vissi ekki hvað hún ætti að segja; en Duff Charrington skeytti þvi engu. “Hugsaðu bara um sjálfa þig” sagði hún, “bara um sjálfa þig. Skeyttu ekkert um Bulling. Hann sigrar líka; eg hefi valið mér hann. Hann er dug- legur. Það kveður einhvem tíma að honum. Hneigð- ur fyrir pólitík. Hann er auðvitað nokkuð ruddaleg- ur; en hann sigrar, því hann er efnaður og af háum ættum, hvorttveggja gott, bamið mitt. En eg ætla að hafa auga með honum í þessari ferð. Eg vona að þú skemtir þér vel.” Lögberqs-sögur FÁST GEFINS MEÐ ÞVÍ AÐ GERAST KAUPANDI AÐ BLAÐINU. PANTIÐ STRAX! Dr.R. L. HUR5T, Member of Royal Coll. of S«rpwi Eng., úukrifaöur af Royai Collaft of? Phyaiciana, London. Séríne6inf«r I brjóat- tauga og kven-sjúkdómum. — Skrifst. 305 Kennedy Bklg, Portafs > Ave. (í móti Eaton’s). Tala. M. I14. Tími til viðtals, 10-12, 3-5, 7-9. THOS. H. JOHNSON og HJÁLMAR A. BERGMAN, fslenzkir lógfræOÍBgar, Skrifstofa:— Room 811 McArtbur BuildinR, Portage Avenue Xritun: P. o. Box 1650, Telefónar: 4503 og 4504. Winnipeg ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦** ♦■ý E ÓLAFUR LÁRUSSON BJÖRN PÁLSSON : YFIRDÓMSLÖCMENN . „ Annast Ittgfrœðiutörf á Islandi fyrir [ • * Veatur-Islendinga. Utvega jarðir og • ' ‘ hús. Spyrjið Lögberg um okkur. E Reykjavlk, - lceland ; P. O. Box A 41 GARLAND & ANDERSON Arni Anderson E. P. Garlaud LÖGFRÆÐINGAR 801 Electric Railway Chambera Phone: Main 1561 Joseph T, Thorson íslenzkur lögfræðingar Arltun: MESSRS. McFADDEN & THORSON 1107 McArthur Building Winnipeg, Man. Phone: M. 2671. Dr. B. J. BRANDSON Office: Cor. Sherbrooke & William Telepiione garry 320 Office-Tímar: 2—3 og 7—8 e. h. Heimill: 776 VictorSt. TEtSPBONS GARRY 321 Winnipeg, Man. Dr. O. BJORNSON Office: Cor. Sherbrooke & William Cki_f.phoneigarry 33« Office tímar: 2—3 og 7—8 e. h. Heimili: 8to 2 KENWOOD AP’T’a. Maryland Street ISLEPHONEl GARRY TB3 Winnipeg, Man. Vér leggjum sérstaka úherzlu * aH selja meðöl eftir forskriptum lækna. Hin beztu meðöl, sem hsegt er aB M, eru notuð eingöngu. pegar þér koadS með forskriptina tll vor. meglð |t> vera viss um að fá rétt það sem laha- irinn tekur til. COIiCIÆUGH & CO. Notre Ðame Ave. og Sherbrook* M. Phone. Garry 2690 og 2691. GiftingaleyfisbrM seié. Dr. W. J. MacTAVISH Offich 724J óargent Ave. Telephone .íherbr. 040. I 10-12 f. m. Office tfmar J 3-6 e. m ( 7-0 e. m! — Heimili 467 Toronto Street __ WINNIPEG tblephonh Sherbr. 432. J. G. SNŒDAL TANNLŒKN/R. ENDERTON BUILDNG, Portage Ave., Cor. Hargrave St. Suite 313. Tals. main 5302. Dr. Raymond Brown, I Sérfræðingur í augna-eyra-nef- og ? háls-sjúkdómum. |r 326 Somerset Bldg. £ Talsími 7262 Cor. Donald & PortageAve- Heima kl. io— 12 og 3—5 k A. S. Bardal 843 SHERBROOKE ST, selur líkkistur og annast nm útíarir. Allur útbún- aður sá bezti. Ennfrem- nr selur hann allskonar minnisvarða og legsteina I»'A He mlli Oarry 2181 11 OfVice „ 300 og 378 H. J. Pálmason Chaktered Accountant 807-0 Somersst Bldg. Tals. k|. 273g 1

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.