Lögberg - 08.04.1915, Síða 2
2
LÖGBERtf, FIMTUDAGINN 8. APRIL 1915.
Eg veit ei hvað því veldur.
Eg veit ei hvaS því veldur,
mér vonin ljúfa brást.
Hví kveikja Rögn í klökku brjósti
kvalafulla ást?
en hrinda von á hafið út,
hvar heljar-boðinn gín,
er sekkur henni í svarta kaf,
þars sólin aldrei skín.
Eg veit ei hvaS því veldur,
mér varpar út á hjam
þaS undra-vald—er samt mig
seiddi
síSan eg var barn.
HvaS hefi’ eg brotiS,—góSi guS!
aS gjaldiS yrSi þaS
aS nomin alt af leiti lags
aS leggja i hjartasaS?
Eg v'eit ei hvaS því veldur
aS voriS gaf mér þrá,
sem aldrei hefir auSnast þaS
í uppfylling aS ná.
Þó berst hún enn meS brotinn
væng
og blóSugt hjartasár.
En helzt er henni hugfró nú
eg hnigi bráSum nár.
—Þú ert svo góS, aS ársól lifsins
aSstoS hjá þér fann.
í faSmi þér sú farsæld býr,
sem frelsar sérhvern mann—.
En þaS er fyrir annan alt,
en ekki fyrir mig,
Því eg er allslaus—einskis virSi,
— ekkert fyrir þig. —
Því dreg ég nú á djúpiS sama
og dána vonin mín,
og sami boSinn svelgir mig
þars sólin aldrei skín.
Eg dáinn faSma dána von,
mitt dýrsta—er þó var tál—’
en yfir bratta boSann svífur
burt mín þreytta sál.
30-3-15.
J. S. (frá Kaldbak.)
Sögulegar athafnir
skurðlækna.
1 síSasta hefti tímaritsins Skímis
ritar Steingr. læknir Matthíasson all-
sögulega um furSuleg handbrögS
skurSlækna, og birtist hér brot úr
þeirri ritgerS:
Fram á síSustu tíma hefir sú skoS-
un veriS ríkjandi, aS frá taugakerf-
inu stjórnuSust allar v'orar ltfshrær-
ingar og aS jafnvel hver sella líkam-
ans væri háS stjórn þess, og gæti
ekki lifaS nema örstutta stund, ef
sambandinu viS taugakerfiS vseri
slitiS; meS sellum taugakerfisins
dæju meS öSrum orSum allar aSrar
sellur líkamans.
ÞaS er engum vafa bundiS, aS
heilinn er mikilvægasta líffæriS. Þar
á stjórnarráSiS heima. Reyndar sjá-
um vér stundum aS hauslaus kálfur
getur staSiS á fætur og aS hæns geta
flogiS höfuSlaus dálítinn spöl, og vér
vitum nú, aS þau mundu halda fjör-
inu talsvert lengur, ef komiS væri i
veg fyrir, aS þeim blæddi til ólífis.
ÞaS hefir hepnast aS halda hund-
um lifandi nokkurn tíma eftir aS
stóri heilinn var skorinn úr þeim.
Þegar stjórnarráSiS er úr sögunni,
geta sem sé lægri stjórnarstöSv'ar,
nokkurs konar amtsráS, sýslunefndir
og bæjarstjórnir, sem eiga heima í
mænunni og taugahnoSunum (gang-
lítmunrý, gegnt eftirlitinu um stund
og haldiS lífinu vakandi. En heila-
laus hundur er ekki upp á marga
fiska. Hann er skynlaus skepna í
orSsins fylsta skilningi. Skilningar-
vitin eru horfin—og hann er vitlaus
og viljalaus. Hann liggur hreyfing-
arlaus þangaS til hann er reistur á
lappirnar. Hann gengur, ef honum
er komiS af staS. ÞaS verSur aS
troSa ofan í magann á honum matn-
um, en hann er rænulau til aS leita
sér bjargar. Hann er meS öSrum
orSuni eins og vél, sem má koma í
gang, en vitiS vantar, aSeins undir-
vitiS, sem býr í mænu og taugahnoS-
um, er eftir, og stjórnar enn vöSv-
um og innýflum. Væri nú mænan
og taugahnoSurnar teknar burtu,
höfttm vér til skamms tima haldiS, aS
þá væri meS öllu lífi lokiS og engar
sellur gætu lengur lifaS. Rannsókn-
ir seinni tima hafa sýnt oss, aS þetta
er eigi áS öllu leyti rétt. Vér vitum
nú fyrir víst, aö innrensli kirtla og
hormón frá ýmsum selluvefum geta
engu síöur en taugarnar kontiS líf-
færum til aS starfa.
Þýzki læknirinn Karl Basch hefir
t. d. sýnt, aS júfurhormóniö verkar
á mjólkurkirtlana eins fyrir þaS, þó
júfriS sé sett úr öllu taugasambandi
viö mænuna. ,
Hvernig geta nú efnin verkaö á
fjarlæg líffæri án þestr aS leiSast
eftir ákveSnum brautum, eins og
aflstraumar þeir, er leiöast frá
tatigasellunum (í heila, mænu og
taugahnoSumý eftir símum þeirra?
Dænii úr efnafræSinni, sem öllum er
kunnugt úr daglega lífinu, gefur
okkur dálitla bendingu hvernig hægt
sé aS hugsa sér þessi fyrirbrigSi.
Eirts og nokkrir dropar af hleypi
geta verkaS þannig á fulla merkur-
skál af volgri mjélk aS mjólkin
hleypur saman og gjörbreytist á lít-
illi stundu, eins liggur nærri aS
halda, aö efni frá sellunum, er kom-
ast í blóöiö, geti gagntekiö og haft
áhrif á selluhópa eSa líffæri, þó þau
séu langt frá því líffæri þar sem
efnin myndast.
Heili, mæna og taugahnoöu eru
aS vísu afar mikilvæg stjórnarlíf-
færi í líkamanum, en lífiS og lífs-
starf sellanna er ekki eingöngu undir
þeim komiS. Vér þekkjum margar
lægri v'erur sem lifa og þróast tauga-
kerfislausar. Sellurnar geta líka
lifaö sínu lífi, jafnvel heil líffæri
geta lifaS án nokkurs sambands viS
taugakerfiö. Þetta hafa hinar merki-
legu uppgötvanlr Karrels og annara
líffræSinga sannfært oss um, betur
en allar fyrri rannsóknir.
ÞaS er langt síSan aS menn tóku
eftir því, aS hægt er aS geyma hjarta
úr froski eöa skjaldböku nokkurn
tima í saltvatni og aS hjartaö heldur
áfram aS slá eins og þaS geröi í lif-
andi dýrinu. Þetta var þakkaS
taugahnoSum sem eru í hjartaveggn-
um, en nú v'itum vér aS hægt er aS
geyma hjartasellur í aft aS 2 mánuöi
og þær halda áfram aS dragast sam-
meS jöfnu millibili eins og áöur. Og
nú vitum Vér, aS þaS er ekki einung-
is hægt aS geyma lifandi sellur og
jafnvel heil líffæri úr dýrum meS
köldu blóSi, heldur einnig úr spen-
dýrum meS heitu blóöi, og þá mann-
inum líka.
ÞaS eru einkuni 3 menn, sem mega
teljast frumkvöölar þessara mikil-
vægu uppgötvana: Harrison, Bur-
rows og Carrel, allir ameriskir vís-
indamenn. En einkum er þaS þó
hinn síöastnefndi, sem mestan heiö-
ur á skilinn, því hann hefir skaraö
langt fram úr öllum öSrum í því aS
leiSa þessar miklu nýjungar í ljós.
Carrel hefir tekist aS geyma í
margar vikur óskemda og Iifandi
ýmsa líffærahluta, sem ýmist eru
skornir út.úr lifandi dýrum eSa dýr-
um, sem eru nýdáin. Og þaö eru
ekki einungis heilbrigöir partar lík-
amans, sem hægt er aS geyma, held-
ur einnig æxli og meinsemdir, eins
og t.d. krabbamein. ÞaS v'ar lengi
mestu erfiSIeikum bundiS, aö halda
líkamspörtum óskemdum og varna
bakteríum aögöngu aS þeim, og svo
þurfti aö finna ýms skilyrSi sem
sellurnar heimta til aS geta dafnaö
vel. Þær þurfa t.d. jafnan hita,
sama og líkamshitann, og næringar-
vökva, sem er líkastur blóSi eöa
lymfu, eSa saltvatn (0,6%) meS dá-
litlu af kalíum og kalki (svonefnd-
ur Ringersvökviý.
Þegar þessi og fleiri skilyröi eru
fengin, geta sellurnar lifaö eftir sem
áöur og vaxiS og margfaldast.
Harrison og Carrel hafa meö smá-
sjá getaö fylgt því hvernig tauga-
sellur, bandv’efssellur og beinsellur
fara aö vaxa , hvernig sár gróa, o.
s. frv.
Frægastur hefir Carrell oröiö fyr-
ir þaS, hve fimur hann er í þvi aS
sauma saman æöar og græöa af-
skorna holdparta viö líkamann aft-
ur. ÞaS ertl engar ýkjur, aS segja
mætti meö sanni um Carrel, þaS sem
vísan hermir um Jón heitinn Péturs-
son lækni:
“bóg hann tók af svörtum sauS
og setti á þann hvita”—
því Carrel hefir tekist aö framkvæma
þaö í verki, sem ímyndunarafl vísu-
höfundarins feöa alþýöuhviksagaj
eignaSi Jóni meS röngu, nfl., aS
flytja lim af einu dýri á annaö.
Hann hefir flutt löpp af einum hundi
á annan, saumaö saman æöar, taug-
ar, vöSva, beinhimnu og bein hvert í
sínu lagi, svo löppin greri viö stúf-
inn. Hann hefir haft nýrnaskifti á
tveimur skepnum og hann hefir tek-
iS nýra úr hundi og flutt þaS upp á
háls og komiS því til aS gróa þar fast
pndir húöinni ; en til þess varS hann
aö sauma nýrnaæöahnútana inn í op
er hann geröi á stóru æöarnar á háls-
inum, en þvagpípuna úr nýranu lét
hann opnasl útúr hliSinni. Þetta háls
nýra geröi svipaS gagn á þessum ó-
v'analega staS og gaf frá sér þvag
eftir sem áöur. Á líkan hátt hefir
hann flutt tii milti, æxlunar kirtla og
önnur liffæri bæöi til annara staSa í
sama líkama Og úr einu dýri í annaS.
Einhver merkilegasta tilraun, sem
Carrel hefir hepnast, er sú, aS taka
í einu lagi öll helztu innýflin út úr
ketti — hjartaö, lungun, lifur, mag-
ann og nokkuS af görnum, brisiS,
nýrun og miltiS og halda öllu þessu
lifandi í rúmar 13 klukkustundir.
ASfed5 Carrels var þessi: .
Fyrst svæfSi hann köttinn meS
eter. Þá skar hann fyrst sundur vél-
indiö og batt fyrir opiö. SíSan skar
hann sundur barkann og setti gler-
pípu i opiö. Þ.vínæst opnaöi hann
kviöinn og batt fyrir og skar sund-
ur stórslagæöina og holæöina neöar-
lega í kviSarholinu; sama gerSi
hann viö þvagpípurnar frá nýrun-
um. Nú losaöi hann stóru æöarnar
frá hryggnum ,batt fyrir allar grein-
ar aörar en þær sem liggja til inn-
ýflanna og skar sundur innýflataug-
arnar sem ganga frá taugahnoöunum
viö hrygginn. Þegar hann nú haföi
losaö kviöarholsinnýflin hjúpaöi hann
þau í japönskum silkiklút feins og
“Kjósarost í snýtuklút” mundi Grön-
dal hafa sagtj. Þessu næst opnaöi
hann brjóstholið og losaöi þindina
alt í kring frá brjóstveggnum. Þá
gat kisa ekki lengur dregiS andann,
en þá tók Carrel til sinna ráSa og
dældi nú lofti inn i lungun og út úr
þeim á víxl. En þar á eftir skar
hann sundur og batt fyrir stóru háls-
æöarnar sem ganga til höfuðsins, en
um leiö misti heilinn stjórn yfir öllu
og kötturinn dó, þaö er aS segja sá
köttur, sem getur kallast meS öllum
mjalla, þ.e. meö öllum skilningar-
vitum, og eftir var aö eins “skynlaus
köttur.”
Hann skar síöan sundur allar æð-
ar og taugar, sem liggja til innýfl-
anna frá likamshlutunum í kring, og
losaði nú innýflin út úr kettinum og
setti þau í einu lagi niSur í ker meS
38 st. heitum næringarvökva fRing-
ers vökv'aj. Nú gætti hann þess aS
cngar æöar spýttu lengur og stööv-
aði vel alla blóörás.
ÞaS gat ekki hjá því fariS, aö
töluvert blóS færi til spillis viö þenn-
an mikla uppskurS; hjartaö hélt þóá-
fram aS slá, en hjartslátturinn var
farinn mjög aS linast. Þá opnaöi
Carrel öörum ketti æS og lét blóö
streyma úr honum til holæöarinnar
í innýflum dauöa kattarins. ViS
þetta hrestist hjartaS og varS eins
og heilbrigt. Meltingarhreyfingar
sáust greinilega bæöi i maga og
görnum; þvag rann úr nýrunum, og
þaS þurfti aS opna neSri garnarend-
ann til þess aö þessi innýfla köttur
gæti fengiS hægöir. Gall streymdi
úr lifrinni og þaö var hægt aS sann-
færast um, aS maturinn sem í mag-
anum var meltist sem í lifanda lífi.
Carrel hefir endurtekiS þennan
uppskurS hvaS eftir annaS (en ekki
þó á sama kettinumlj og lengst hef-
ir honum tekist aS halda innýflunum
öllum lifandi í rúmlega 13 klukku-
stundir, eins og fyr var sagt. En
stundum dóu líffærin miklu fyr, sum
snögglega eftir 3-4 tíma, en stundum
seinna. ÞaS kom fyrir, aS lífhimnu-
bólga kom og flýtti dauöanum, en
oftast tókst aS halda sóttkv'eikjunni
frá.
ÞaS er þegar oröiö áugljóst, aS
tilraunir o^ uppgötvanir Carrels hafa
mikla þýðingu í læknisfræöinni.
MeS aSferðum Carrels hefir tekist
að veita blóSi úr heilbrigöum mann-
eskjum í sjúka eöa blóSlitla. Þaö
hefir lánast aS geyma bein og liöa-
mót úr nýdánum mónnum, til að
setja inn í staöinn fyrif bein og liðu
sem hafa veriS skorin burtu vegna
meinsemda. Nokkrir læknar í Evr-
ópu, þar á meöal Rovsing í Dan-
mörku, hafa grætt liöamót og leggi
úr mönnum, sem dáiS höföu snögg-
lega af slysum, inn í skarðið fyrir
beinmeinsemdir sem skornar voru
burtu, og hefir sumt af því hepnast
furöanlega. — ÞaS gengur sú saga
um Carrel, aö þegar sáralækna í
Ameriku vanhagi um einhvern lík-
amshluta, þá sími þeir til Carrels og
hann sendi óðara meS hraðlestinni
þaö líffæri sem spurt er um, ef hann
þá á þaö í fórum sínum.
Engan skyldi furSa á, þó fyrir
kynni aö koma aS Carrel vaknaöi
stundum meS andfælum viö aS ein-
hver framliöinn kæmi að heimta
hold af sínu holdi eöa bein af sínum
beinum. “Fáöu mér aftur beiniS
mitt, Gunna,” stendur í þjóðsögun-
um okkar. Og maöur skyldi halda,
að hrindingar og pústrar kynni síöar
meir aS hljótast af holdsins upprisu.
Fjölkyngi Carrels í aS græða v'ið
hold og limu, hefir vakiö svo mikla
eftirtekt, af því aö áöur haföi það
eigi hepnast nema um fáa líkams-
hluta.
ÞaS var t.d. kunnugt, aS hægt var
aS græöa húðsnepla af einum lík-
amshluta á annan, eöa einum manni
á annan, og koma með því sárum til
að skinnga. Einnig voru kunnug
dæmi þess, aö afskorin nef og eyrna-
sneplar gætu gróið við, ef vel var
bundiö um, — þýzkur læknir, Hof-
acker, sem oft hafði veriö kvaddur til
að vera viö einvígi, segir frá því í
riti, sem kom út 1836, aS hann hafi
oítar en einu sinni grætt við nef og
aðra hoklparta, sem höföu verið af-
höggnir, og það jafnvel þó liðin
hefði verið hálf klukkustund eftir aö
áverkinn átti sér stað. Hann þekti
])ó engin sárameðul önnur en vatn
og vínanda.
Frakkneskur læknir segir frá
mörgu þessu aSlútandi, meöal annars
segir hann frá 27 tilfellum, þar sem
tókst að græSa afhöggvin nef viö
aftur. Ein sagan er sérlega eftir-
tektarverð:
Dáti lenti í ryskingar viS félaga
sinn utan við Veitingahús, og voru
báðir vel drukknir. Dátinn varð^
undir en félagi hans, sem var orð.inn
all-reiður lét kné fylgja kviöi og
beit af honum nefiS. Honum lá við
klýju af blóðugum og volgum nef-
bútnum, hrækti honum út úr sér, og
sparkaöi honum út í göturennuna.
Þar lá nefið.
Dátinn steig á fætur, neflaus og al-
blóðugur í framan. Hann tók upp
nefið sitt og kastaði því í bræði eftir
fjandmanni sinum. En þaö lenti inn
um opinn gluggann hjá rakaranum
Galin. Galin tók sendinguna upp og
sá fljótt hvaö var. ''Hann þvoöi nef-
iS undir vatnskrananum, og þegar
dátinn kom þar aö, til aö fá bundiS
um sár sitt, þvoði Galin það upp úr
volgu víni. Því næst festi hann
nefiö á dátann með heftiplástri. Það
fór strax aS festast daginn eftir, og
4 dögum seinna skoðaði læknirinn
Garengeot sjúklinginn og vottaöi að
nefiö væri “parfeitement bien reuni
et cicarticé”, þ. e. í allra bezta lagi
og á góðum vegi aS gróa.
Þessar og þvílíkar sögur eru tals-
vert ýktar en þó í aðalatriðunum
sannar. Þær vekja enga sérlega að-
dáun vora fyrir læknislistinni eins
og frægöarverk Carrels, heldur sýna
þær einungis hið dásamlega græðandi
afl náttúrunnar, (vis medicatrix na-
turaej. Alex Carrel er frakkneskur
að uppruna, og að eins rúmlega fer-
tugur aS aldri og á því sennilega
margt eftir óstarfaS enn.
í Göngu-Hrólfs sögu segir frá því
að Möndull dvergur græddi fæturna
á Hrólf ,og hafði hann geymt þá ó-
skemda fyrir Hrólf, sem lengi hafði
bagaS fótaleysið. Þessi sögusögn er
eitt af mörgum dæmum þess hvernig
skáldin dreymir um ýmsa ótrúlega
hluti og kraftaverk, sem seinna kom-
ast til verulegra framkvæmda fyrir
vaxandi þekkingu og þj-oskun manns
andans. Hver veit nema að allir
draumar rætist einhverntíma?
Þegar Kolskeggur hjó fótinn und-
an Kol í bardaganum viS Knafahóla,
“þá leit Kolur á stúfinn, en Kol-
skeggur mælti: ‘Eigi þarft þú að
líta á, jafnt er sem þér sýnist, af er
fóturinn’. Kolur fell þá dauður
niöur.”
LítiS mun Kolskegg hafa grunaS
þá, aS þeir tímar mundu koma, aS til
tals gæti komiS aS græða við af-
höggna fætur og limi. Gunnar og
Kolskeggur drápu tveir einir fjórtán
manns í þessum bardaga, og hafa
margir síðan dáSst aS því þrekvirki.
En sennilega mundi þó meira hafa
verið dáðst aö þeim, er hefði getað
grætt viö löppina á vesalings Kol,
þó mörgum hafi ef til vill fundist
lítill mannskaöi að honum.
Steingr. Matthíasson.
—Skírnir.
Ráð til að eyða rótarstofnum.
HiS erfiöasta sem margir landí-
nemar hafa viö aS fást, er ekki að
fella trén á löndum sínum, heldur
aö eyöa stofnunum. Til þess er
nú fundið ráS, svo einfalt og
ódýrt, að sögn, að mikill léttir má
Sáu forlögin fyrir.
Yíöa mundi þess verða vart ef
vel væri leitaS, aö ýmsir málsmet-
andi og skarpskygnlr menn á
Þýzkalandi óttuSust, aS matar-
skortur mundi sverfa aö þjóöinni,
ef hún lenti í ófriöi viS England.
Þeir 'hafa fyrir löngu búist viS
þvi, aS England mundi reyna aS
“svelta” Þýzkaland, er til ófriðar
drægi, eins og Þjóðverjar hafa
þegar sýnt í verkinu, aö þeir
mundu svelta England, ef þó
brysti ekki bolmagn til þess. Uítl
aldamótin síðustu skrifaSi Goltz
barón urn þetta í “Deutsche
Rundschau”. Bendir hann meðal
annars á, aö Norðurríkin í Ame-
ríku 'hafi sigrast á Suöurríkjunum
vegna þess að þau gátu vamaö
öllum siglingum til Suðurrikjanna.
Um aldamótin var því nær einn
fimti hluti allra matvæla sem neytt
var i Þýzkaland'i aðfluttur og síS-
an hefir aSflutningur matvæla
aukist ár frá ári.
“Þar af leiöandi,” segir höfund-
ur, “mundi oss vanta 500 miljón
marka virSi af matvæulm árlega ef
siglingar til Þýzkalands teptust.
Ef vér þar aS auki ættum í höggi
viS Erakkland og Rússland, mundi
oss skorta 1000 miljón marka
viröi. Þess vegna getum viö ekki
sigrað í slíku stríði nema viS get-
um haldið höfnum vorum opnum
fyrír verzlunarskipum. Dýrtið;
mundi koma upp og vér yröum
neyddir til að semja friö.” Fyrir
því álítur hann, að ÞjóSverjar
þurfi að auka flota sinn.
Ofmikið af keti.
Canada menn eta meiri ketmat
en aðrar þjóðir, aö tveim undan-
teknum: Ástraliu og Bandaríkjum.
Því er nú 'haldiö á lofti af ýmsum,
aS landsmenn geri of mikiö aS
því, einkanlega nú, er ket er aö
komast í geypiverS, og því sé sjálf-
sagt aS fá annað til matar í þess
stað, er ódýrara sé og fult eins
holt.
James Eong heitir einn brezkur
matarspekingur, er herstjórn lands-
ins hefir í ráöum um mataræSi 'her-
liösins. Hann heldur því fram, aS
vera, þeim sem það veröa að gera.
Sagt er, að ef þaö er brúkaö, þurfij “jam” sé frábærlega nærandi og
lítiö eða ekkert aS grafa til róta, holl fæða. “Næringargíldi þess er
og því fylgir ekki það jarðrask,
sem sprengingum er samfara.
Verkfærín eru járnhetta og blást-
ursbelgur, knúður vél. I rOtarstoín
þann, sem eyða skal er boruö hola
og hann klofinn með dynamite.
Eftir þaS er jámhulunm steypt
yfir stofninn og mold hlaöiS utan-
meS, svo aö hitinn komist ekki út.
SíSan er kveikt í og byrjað aö
blása, og svo skarpur verður hit-
inn innan í jámhettunni, að rótin
brennur á skömmum tíma. Þetta
var reynt fyrir skömrnu á blautum
stofni í Gladstone, Ore., 4 feta há-
um og 20 feta gildum viö jörö.
Eftir sex stundir var hann eyddur
og var kostnaðurinn $1.15. Fimm
hettur má nota í einu frá sama
blástri. Þegar þaö sem upp úr
stendur erbrunniö, er 'hettan tekin
af, glóöin falin og brenna þá ræt-
urnar af sjálfu sér.
Friðrik VI. og presturinn.
ÞaS var siSur FriSriks Dana-
konungs VI. meö því nafni að
veita almenningi viðtal á hverjum
m/mudegi. Komu venjulega svo
margir sem óskuöu aö tala viö
hans hátign, að konungur haföi
ekki viS aö veita þeim áheym.
Til að sýna að enginn greinarmun-
ur væri gerSur á fátækum og rík-
um, háum og láum, var gestunum
gefin númer og sendir til kon-
ungs í sömu röö og þeir komu.
Einu sinni vildi þó svo illa til, aö
út af þessu brá. Ungur maður
sem inn hafði komið, hafSi verið
i svo djúpurn þönkum, aS hann
tók ekki eftir þegar númer hans
var nefnt. Tók
eftir honum fyr en viötalstíminn
var út runninn. Hélt hann samt
aS konungur væri enn í viðtals-
salnum og lét manninn fara inn.
En konungur var farinn inn í
annaö herbergi til aö boröa. Hinn
ungi maöur var útskrifaöur úr
prestaskóla, en hafði fengið lágan
vitnisburð, gekk því illa aö fá em-
bætti, og ætlaöi nú aS biðja kóng-
inn aö leyfa sér aö fara til Græn-
Iands og gerast þar prestur. MeáS
því nú aö konungttr var ekk’i sjá-
anlegur í salnum hélt presturinn
inn í næsta herbergi. Þegar kon-
ungur sá hann rauk nannt upp og
kallaöi: “Hvert ætlið þér aö
fara?” “Eg vildi komast til
Grænlands, yðar hátign,” sagöi
maöurinn og hneigöi sig auömjúk-
lega. “Ha, ha. Þetta er nú reynd-
ar ekki leiðin til Grænlands. En
fyrst eg fæ ekki áö vera í friöi
fyrir yöur, þá er læzt að þér farið
þangaö.” Konungur stóö viö orö
sín; presturinn fékk embæ.tið og
tók við þvi tneð mestu þöl kum.
afarmikiS, af sykri sem þaö inni-
heldur, enda er þaS þrisvar sinn-
um næringarmeira en smér og vel
það. Helmingur þess er sykur,
sem nauösynlegur er fyrir líkami-
ann, inn'iheldur líka efni úr berki
ávaxta og er einkar holt og hent-
ugt til aS örva meltingu. Bezta
“jam” er úr plómum, apricots,
gooseberry og kúrenum, þó ber aS
taka þaS jam fram yfir allar aSr-
ar tegundir, sem búiö er til úr
plómum og eplum til samans. Jam
ber ekki aö skoSa sem sætindi,
heldur sem holla og nærandi
fæðu,” segir þessi fræðimaSur.
Annar 'honum likur, sem heitir
Dr. Stutt, í þjónustu stjórnar vors
lands, brýnir fyrir almenningi hve
holl og hentug fæöa káliS sé, éink-
um nýtt, sem tekið er upp úr görö-
um og látiö í pottinn jafnóöum.
Hann íýsir því hvílíkur búbætir
sé aS því, fyrir borgart>ua, að hafa
smáan kálgarö aS húsabaki, spara
þarmeð kaup á garSamat og eink-
anlega njóta þeirrar hollustu, sem
kálmeti hefir fyrir næringu líkam-
ans. Þessi lærSi maöur segir svo,
meöal annars:
"Vér ættum að hafa þaö hug-
fast, að mörg af þeim meinum, sem
holdiö þjá, eiga rót sína. að rekja
til óvarkárni í mataræði, og því
yngri sem vér erum, þegar vér
veitum þessu eftirtekt, því betra.
Margir af oss, sem í borgum búa,
eta of mikiS. Þar af kemur það,
aS vér verðum of feitir þegar á
æfina líður, og völdum meS þvi
móti líffærum líkamans af mikilli
nreynslu, er þau Vinna haröara en
ella, til þess aö losa likamann við
þaS sem honum er ekki nauðsyn-
____legt til viöurhalds. Ennfremur er
þjónninn ekki) l’^ árerðanícgt, aS vér sem sitjum
nnkið fyrir, etum of mikiö ket.
Sá maður sem s'itur viS skrifborS-
ið allan daginn eða stendur viS
búöardiskinn, 'kann aS leysa .f
hendi eins mikiS verk og sá sem
gengur meö plóginum allan daginn,
en þaS er alt öðru visi vinna. Til
hennar útheimtist hvergi nærri
eins kröftug fæöa. Ekki vil eg
halda því fram, aS vér ættum aS
haga mataræði voru eftir vissum,
ófrávikjanlegum forskiftum, eöá
vega á lyfjavog hverja matarteg-
und fyrir sig, en vér ættum aS
haga mataræöinu slcynsamlega og
gæta þess hvaö vísindin segja, aS
þurfa muni til þess aö viðhalda
hita og kröftunf líkamans.
“Nýtt kálmeti er holt, Iystugt
og nytsamlegt til góðrar heilsu.
Þó að ket hafi meira næringar-
gildi en kál, þa skyldi enginn |
halda, að ]>aö skorti þau efni sem
líkamanum eru nauSsynfeg til viS-
halds og vaxtar. Það væri mögu-
legt, þó tæplega rpætti kallast fýsi-
legt, að lifa eingöngu á urtafæðu.
En kálið ber ekki eingöngu aö
skoöa frá því sjónarmiiöi, hve
næringarmikið þaö er, þó vel
jafnist það á viS aörar fæðuteg-
undir, að því Ieyti til, né heldur
]>arf að mæla meö þvi fyrir þaS,
hve lystugt þaö er og hentugt til
tilbreytinga. ÞaS hefir þar að
auki þann mikla kost, aö hafa
beinar heilspsamlegar verkanir á
líkamann, örvar meltlnguna og
hafa þar aS auki þá fyrirferð, sem
nauðsynleg er, til þess að melting-
arfærin vinni sem bezt aS fæðunni.
Flestur garöamatur inniheldur sölt
sem ýta undir meltingu fæðunnar
og fyrírbyggja meltingartregðu,
þann almenna unuaniara svo
margra hættulegra, og stundum
banvænna, sjúkdóma. Ennfremur
hefir margt kálmeti, sér í lagi það
sem notaS er í “salads”, þann
kost aS kæla blóöið, og er því ein-
staklega holt, ekki sízt um sumar-
tímann.
Nýtt kálmeti er stórum betra en
það sem geymt hefir veriö, þó ekki
sé nema í fáa daga. Til þess aö
garðamatur njóti sem bezt allra
kosta sinna, veröur aS eta hann
nýjan”, segir þessi efnafræðingur.
Sótt í sjóinn.
StöSugt hefir verið unniö að
því, að kanna þann stað, þarsem
“Empress of Ireland” sökk i St.
Lawrence flóa, og er nú svo kom-
iS, aS búið er að ná öllum bréfum
og silfurstöngum, sem skipið haföi
meSferðis, svo og öllurn líkum,
sem til náðist í skipinu. Þarsem
slysið vildi til, er dýpiS 138 fet um
fjöru, en skipiö sökk í leðjuna á
botninum og lagSist á ‘hliðina.
Kafarar urSu að vinna á 160 feta
dýpi með köflum og þykir það
furðulegt, hve inikið þeir hafa
áorkaS. Þó að verkið væri háska-
legt, þá bar aöeins eitt slys aS
höndum, meöan á þvi stóS, einn af
köfurum, sem þar störfuðu, misti
lifið.
ÁSur en kafarar voru sendir
niöur, var líkan búiS til af skip-
inu, og þeir látnir kynna sér þaö
rækilega, einkum leiöina aS pen-
ingaksápum þess. Til frekari var-
úðar, var það látið vera fyrsta.
verk kafaranna, eftir að þeir voru
búnir aS bora gat á skipiö, aS loka
öllum dyrum, öðrum en þeim sem
þeir þurftu aS nota, svo aS enginn
þyrfti aS villast seinna meir, eSa
flækja loftpípu sína, síma eöa líf-
streng. Vegna þess þáska, sem verk-
inu var samfara, var enginn kaf-
ari látinn fara einn sér, heldur
tveir saman, og jafnskjótt og tveir
komu upp voru aörir tveir l'itnir
fara niöur í þeirra stað. Björg-
unarskipið sem að þessu starfi
vann, hafði nýjan útbúnaS til aö
koma hreinu lofti til kafaranna,
því var ekki dælt til þeirra, einsog
áöur haföi gert veriö, 'heldur lagöi
]>að niður til þeirra úr þróm, meS
samanþjöppuSu lofti. Kafarinn
sem lífiS misti hrapaöi af skips-
hliöinni ofan í hyl, þrýstingurinn
ofan á honum jókst viö það
skyndilega, á því mun liann elcki
hafa áttaö sig, og lókaöi spjaldi á
loftpípu sinni, í staS þess aö opna
þaS. Eftir það var breytt tilhög-
un á loftpipum, svo að slík slys
skyldu ekki koma fyrir aftur.
Þegar búið var að bjarga bréf-
um og fjármunum og koma öllurn
likum á land, sem fundust, voru
stálsiglur skipsins sagaöar af viö
þiljur, til þess að öörum skipum
skyldi ekkí stafa nein hætta af
þeim.
Stór ritvél.
Einn af sýnisgripum á sýning-
unni i San Francisco er rétvélar-
bákn 2000 sinnum stærra en vana-
legar ritvélar. Hún var búin til x
auglýsinga skyni, en er mikiö not-
uS til aS rita ágrip af blaðafrétt-
um, sem lesa má í margra faSma
fjarska. Vélin er 21 fet á breidd,
15 fet á 'hæö og hefir kostaS $100,-
000 aS sögn. Stafimir eru þrír
þml. á hæS og eru tveir þml. á’
milli hverra stafa, á pappimum.
Hún er þrjátíu og fimrn vættir á
þyngd, en nóturnar, sem stutt er
á, í vánalegum ritvélum, eru sjö
þuml. aö þvennáli. Valsinn, sem
er holur, er svo stór, aS fullorö-
inn ntaSur getur skriðið í gegnum
hann. Pappírinn sem skrifað er
á, þarf aö vera 9 fet á breidd. Sá
sem vélinni beitir, situr viö aSra
smáa vitvél, er hann beitir eins og
vant er, en svo er um búiö, aS
stafimir á stóru vélinni hreyfast
eftir þeirri smáu. Tvö ár var
vélin x smiSum og fjórar rafmagns-
vélar þarf til aS knýja hana.
Á mynd sem vér höfxxm séö af
þessu vélar bákni, sitja 16 stúlk-
ur á henni til og frá, en sumar
standa, og sýnist þó vera rúm
fyrir meir en helmingi fleiri.
Þakklæti.
Þar eS eg hefi nú orSið að reyna
allmikiö sj úkdómsstríð og margir í
því stríði hafa rétt mér hjálparhönd,
finn eg mér skylt að tjá þeim opin-
berlega þakklæti mitt. Hjálpin
byrjaði þannig, að þegai^ eg lá veik
á heimili minu í Árnes-bygS í Nýja
íslandi, komu þau hjónin Sigurjón
og GuSrún Jónsson frá Odda og
grensluöust eftir ástæðum mínum.
ÞaS leiddi til þess, aS þau, ásamt
þeim hjónum Ólafi og Helgu Jónas-
son, gengust fyrir samskotum mér
til styrktar. Alls safnaðist $28.70 í
peningum auk þess sem ýmsir veittu
mér gjafir í ööru.
MeS þaS, sem fyrir hendi var,
lagði eg af staS til Winnipeg og leit-
aði þar til Dr. Brandsonar, sem sv’o
mörgum hefir hjálpaS. Hann kom
mér fyrir á hinum almenna spítala
bæjarins, geröi á mér uppskurö og
tók fyrir þaS vandaverk alls enga
borgun. Á spítalanum var eg frá 7.
Febrúar til 11. Marz og naut þar
hinnar beztu hjúkrunar. Á meSan
eg var þar, heimótti mig maSur, er
hafði í þeim tilgangi ferSast 200 míl-
ur, og gaf hann mér $20.00.
Þegar eg kom af spitalanum var
eg um þriggja vikna tíma hjá þeim
hjónunum Rafnkeli og SigríSi Berg-
son aS 692 Banning St. og naut þar
kærleiksríkrar umönnunar án nokk-
urs endurgjalds.
Mrs. James Stanish auösýndi mér
einnig hjálp á margan hátt meðan eg
var í bænum.
Öllum þessum og öllum öörum, er
hafa rétt mér hjálparhönd í þessum
erviSleikum mínum, ekki sízt Bif-
rastar-sveit, sejn borgar fyrir veru
mína á spítalanum þakka eg af öllu
hjarta, og biS eg góðan guö aS launa
öllum þessum vinum, er svo drengi-
1 lega hlupu undir bagga, þegar eg af
eigin ramleik hefði mér enga hjálp
getaS veitt. En umfram alla aðra
þakka eg lækninum, sem eg á þaS að
þakka, meS guös hjálp, aö eg er á
góöum batav'egi aS ná fullri heilsu.
MaSurinn minn og börnin eru mér
samtaka í því aS bera fram af
hrærðu hjarta þetta þakklæti.
Stödd í Winipeg 29. Marz 1915.
(Mrs.) Halldóra Pálsson.
Árnes, Man.
Nýtt áhald.
Danskur vísindajnaSur og kenn-
ari, Ea Cour í Kaupmaruiahöfn,
hefir fundið upp nýtt áhald og
efni til aS hita vatn á örlitlu brot'i
úf minútu. Efninu er komiö fyrir
í litlu hitahylki sem er aS lögun og
stærS eins og vaselinöskjur, en
miklu þyngra, því bæð'i er eldiviö-
urinn miklu þyngri en vaselín og
öskjurnar eru úr jámi; má bera
þessar öskjur í vasanum aS ósekju.
Er dósinni stungiö í þar tií geröa
hvylft á botni ketilsins áSur en
kveikt er i. Til þess aö hitinn
komi aS sem beztum notxun og
sem minst fari forgörötim er ket
illinn settur á jörð niöur og mold
eða sandi sópaS upp aS alt uím
kring, því efniS í 'hylkinu brennur
án þess loft eða súrefni þurfi aS
komast þar aö. Eftir örfá augna-
blik er vatniö sjóSandi heitt.
Hentugt hlýtur þetta áhald aS
vera fyrir þá sem ferðasí um fjöll
og óbygöir, ef rétt ef hermt frá
kostum þess.
• HAFIÐ ÞER NOTAÐ •
• .SILKSTONE' • •
• Hið indaelis fallega •
Flat-veggja-mál. ,
• • það má þvo • •
| $1.00 afsláttur á
tonni af kolum
L.esið afsláttarmiðann. Seudið hann
með pöntun yðar.
Kynnist CHINOOK
Ný reyklaus kol
$9.50 tonnið
Enginn reykur. Ekkert sót
Ekkert gjall.
Agœtt fyrir eldavélar og
ofnat einnig fyrir aðrar
hitavélar haust og vor.
Þetta boð vort stendur til 7. nóv-
ember 1914.
Pantið sem fyrst.
J.G. HARGRAVE & CO., Ltd.
334 MAIN STREET
Phone Main 432-431
Klipp úr og sýn með pöntun.
$1.00 Afsláttur $1.00
Ef þér kauplB eitt tonn af
Chinoolc kolum á $9.50, þá
glldir þessi mlBl einu dollar,
ef einhver umboBsmaBur fé-
lagslns skrlfar undlr hann.
J. G. Ilargrave A Co., Ltd.
(önýtur án undirskrlftar.)
I