Lögberg - 08.04.1915, Blaðsíða 8

Lögberg - 08.04.1915, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 8. APRIL 1915. Blue Ribbon KAFFI og Bökunarduft Biðjiö ætíð um Blue Ribbon kaffi og bökunar- duft. Eins og öll Blue Ribbon hreina matvara eru þau framúrskarandi að gæðum og seld með ábyrgð fyrir að þau muni gera kaupendur á- nægða, ella andvirðinu skilað aftur Ur bænum Guðsþjónustur—sunud. 11. Apríl: (1) í Kristnes skólahúsi kl. 12 á há- degi; (2) í Leslie kl. 3.30 e.h. Herra GuSjón Hemiannsson kotn að austan um helgina, vegav'innu lok- ið þar urn mánaðamót, vegna fjár- skorts stjórnarinnar að sögn. Ekki vonlaust, að byrjað verði á ný um miðjan næsta mánuð. Kvenfélag Únítarasafnaðarin held- ur samkomu í samkomusalnum þ. 8. þ.m. Þar verður dregið um mjög vandað olíumálverk af Þingvöllum eftir Friðrik Sveinsson. Myndinni þarf ekki að mæla með, listamaður- inn er þektur meðal allra íslendinga. Einnig góðar skemtanir. Inngangur og einn dráttur 25 cent. , Kvenmaður óskast á efnaheimili úti á landi. Fargjald lagt út fyrir- fram. Upplýsingar að Lögbergi. Herra R. G. Nordal frá Leslie P. O. kom við í borginni á ferð til Ar- gyle-bygðar. Mr. Nordal bjó lengi í Argyie, en flptti þaðan fyrir tveim árum til dóttuF sinnar, sem búsett er nálægt Leslie. Nú ætlar hann taka Jantl sitt og vlnna Jjað í sumar, ásamt syni sínum. Hann segir gott tíðarfar og almenna yellíðan meðal landa vorra umhverfis Leslie. Bruni varð í þorpinu nýlega, og fórust þar fjórir hestar, sem búðarhaldari nokk- ur átti, og hey og viður, sem Lárus Árnason átti. Skaðinn áætlaður um 2,000 dali, Mr. H. Hermann, starfsmaður Col- umbia Press félagsins, skrapp norð- ur til Árborgar um helgina í erinda- gerðttm sinum. Almenn v'ellíðan er þar nyrðra, alt veltiþurt, sem er annáisvert, snjórinn lítill undan v'etr- inum og tók upp smátt og smátt í j blíðviðrinu; akraverk byrjar í þess-1 ari viku J. M. Borgfjörð, sem er j einna stórvirkastur akurgerðarmaður j í þeim bygðum. Hörundskvillar MeSal þeirra húðsjflkdóma, er oftast nser læknast ef fariS er aS ráfum þessarar stofnunar vorr- ar, eru þessir hinir helztu: Ec- zema, Acne, klátSi. sár, bólur og vörtur o.s.frv. Allir þessir sjúk- dómar hafa verið nákvæmlega rannsakaðir af frægustu vlsinda mönnum NorSurálfunnar og vér höfum kynt oss aSferðir þeirra. Oss hefir þvl oft tekist að lækna þessa sjúkdóma, þótt fólk hafi verið búiS aS þjást af þeim I 10 til 20 ár. Gigt Taugaveiklun Svefnleysi Sciatica Catarrh Eg hefi nú nægar byrgðir af ‘granite” legsteinunum “góðu”, stöðugt við hendina handa öllum sem þurfa. Svo nú ætla eg að biðja þá, sem hafa verið að biðja mig um legsteina, og þá, sem ætla að fá sér legsteina í sumar, að finna mig sem fyrst eða skrifa. Eg ábyrgist að gera eins vel og aðrir, ef ekki betur. Yðar einlægur, A. S. Bardal. Árni Eggertsson hefir til leigu löndin “Nýhaga” og “Lundur”, hálfa aðra og tvær mílur fyrir norðan Gimii; bæði löndin á v'atnsbakkan- anum. Ræktað hey fyrir nálægt 16 fullorðna gripi; lindar vatnsból með ágætu vatni; nýtt, gott timburhús. Fiskveiði alla tíma ársins rétt fyrir framan landsteinana. — Eftir frek- ari upplýsingum má skrifa eða leita til Ama Bggertssonar, 204 Mclntyre Block, Fónn: M. 3364. Winnipeg. Bandalagsfundur Næsti fundur bandalags Fyrsta lút. safnaðar verður haldinn á fimtu- dagskvöld 8. þ.m. (\ kvöldJ. Ókeypis y'eftingar. Hr. Páll Bjarnarson kom aftur til borgarinnar á páskadag, eftir tnánaðardvöl að Crescent, hjá Mr. og Mrs. Sveini Brynjólfssyrti, Mf. Bjarnarson segir, að vfeðrið í Marz þar vestra hafi engrt Ííkara verið Ért á íslandi gerðist urrl blíða Júhí-daga. Svalt er þar þegar andvara leggur af sjó. Átta karlmenn voru á heim- ili Mr. Brynjólfssonar og lætur hann færa niður sáð í það land, sem sótt er í skóginn. Samsöng mikinn héldti Sviaf og Norðmenn í sænskri kirkju á Logan Ave. til styrktar vinnulausum mönn- um af þeim þjóðflokkum. Kór karl- manna, milli þrjátíu og fjörutíu, söng þar uppáhalds lög þessara þjóða, og tókst prýðisvel. Mr. H. S. Helgason hafði æft flokk þann og stjórnaði söngnum og fór vel úr hendi, að vanda. Hið vandasama lag “Ólafur Trvggvason”, til dæmis að taka, var furðu vel sungið. Þrjár stúlkur sungu á sænsku mjög svo laglega; Enn fremur léku nemendur Th. Johnston, fiðlukennara, á fiðlu, mæta vel. Loks má geta þess, að hr. Ingv- ar Olson, ritstjóri hins norska blaðs "Norröna", hélt snjalla tölu. Sam- koma þessi var mjög skemtileg og var söngstjóranum að lokum þakkað fyrir sína frammistöðu, og ötula æf- ingu á söngflokknum. Iþrótta-félagið “Sleipnir” leggur ppp í ferðalag til Nýja íslands í næstu viku, hinir fræknustu menn í þeitn félagsskap, að sýna íþróttir, sérstaklega íslenzka glímu. Augna- miðið er að vekja áhuga meðal landa vorra fyrir glímunni og öðrum karl- manlegum athöfnum ungra inanna. Flokkurinn er fjölmennur, svo að ferðin er ekki gerð til fjár. Lesið auglýsingu um ferðina á öðrum stað í blaðinu. Ásamt mörgum öSrum svipuS- um sjúkdómum hefir oss tekist mjög vel aS lækna. Sjúklingum batnar þvínær undantekningar- laust. Meltingarleysi þetta er eitthvert allra versta böl mannkynsins og orsökin I allra flestum veikindum, hefir ieitt oss til aS rannsaka svo ná- kvæmlega sem auSið er orsök og upptök þessa sjúkdóms. Alveg ókeypis Vér höfum stóra bók með myndum, sem er mjög frððleg og gagnleg og gefur ágæt ráS viS ótal veikindum. pessi bók er send ókeypis, ef óskaö., er. ATHUGID —The Na^tfanal In- stitute er stærsta og bezt útbúna stofnun sinnar tegundar I Vestur Canada. par er ailra heilbrigSis- reglna gætt. FáiS þessa stóru myndabók; það kostar yður ekkert; en af henni sjáið þér hvernig hægt er meS nýmóðins aSferð að lækna sjúkdóma, þegar rétt er að farið. National Institute CARUTON BI.OCK Cor. Carlton and Portage Ave., Wlnnlpeg. Phone M. 2544. Oplð á kveldin. Eins og auglýst er hér á öðrum stað í blaðinu, verður samsöngur haldinn í Tjaldbúðarkirkju þann 13. Apríl næstkomandi. Mjög hefir verið til þessarar samkomu vandað; það má segja, að tjaldað sé með flestöllum beztu söngkröftum úr öllum íslenzku kirkjunum hér í , Winnipeg. Um fimtíu manns eru í flokknum og hin nafnkunni harmón- ítileikari, Mr. James W. Mathtws, spilar undir. Eins og sjá má af aug- lýsingunni eru lögin vel valin og verðið er óvanalega lágt fyrir svona stóra samkomu, því það þarf enginn að efa, að þar verður góð skemtun. í Það hefir áður sannast, að naumast J er unt að fá betri skemtun, en þegar | íslenzku söngflokkarnir hér í Winni- [ peg sameinast, eins og nú á sér stað. | Lesið auglýsinguna i þessu blaði. Bjarmi, bandalag Skjaldborgar- i safnaðar, heldur fund næsta þriðju- dagskveld og er utanfélagsfólki sér- staklega boðið þangað. Gott pró- gram og veitingar fyrir alla. Allir velkomnir. Vorsáning er byrjuð í Moose-Jaw héraði fyrir nokkrum dögum og víð- ar í Saskatchewan fylki. Verður voranna eflaust ekki iangt að bíða, ef biíðviðrið, sem staðið hefir und- anfarna daga, helzt framvegis. OIsonBros. geía almenningi til kynna að þeir hafa keypt Fóðurröru - verzlun A. M. Harvie 651 Sarjent ave. Garry 4929 Munið ataðinn KENNARA vantar fyrir Stone Lake skólahérað Nr. 1371, með 2. eða 3 .flokks skírteini, um sex mán- uði t sumar. Skóli byrjar 1. Mai, endar 1. Des. frí um ágústmánuð. Tiltakið kaup og áritun. W. A. Tetlock, sec.-treas. Lundar, Man. Biblíufyrirlestur í Good Templara húsinu, cor. Sar- gent og McGee, þriðjudaginn 13. Apr., kl. 8 síðd. Efni: Er nokkrir útvaldir til eilífs lífs og sælu, en aðrir ekki ? Verða allir að lokum hólpnir? Verður sérhver hólpinn í sinni trú? — Allir velkomnir. Davíð Guðbrandsson. Við finnum okkur bæði ljúft og skylt að þakka af hjarta öllum þeim nær og fjær seni með alúð og hjálp- emi sýndu okkur innilega hluttekn- ing víð andlát okkar elskuðu eigin- konu og móður, sem að bar kl. 4 að morgni hins 24. f.m Sömuleiðis þökkum við öilum hinum mörgu, sem heiðruðu minningu hinnar látnu við jarðarförina, er fram fór 30. s.m. og voru viðstaddir við húskveðjuna á heimilinu á Mountain og v'ið sorgar- athöfnina í kirkju Vídalíns-safnaðar. Mountain P.O., N. Dak., 3. Apríl 1915. Vigfús Hallson. Mrs. Rósa Westman. Mrs. Arnfríður Hudson Helgi Hallson. J. G. Hallson. Iþróttasýning hefir íþróttafélagið “Sleipnir” frá Winnipeg, undir stjórn Guðm. Sig- urjónssonar íþróttakennara, á Gimli 12, í Riverton 13, að Geysi 14. og í Árborg 15. Apríl. Skemti-atriði: 1. Ensk glíma fcatch-as-catch-canj. 2. Leikfimi fgymnasticsj, 3. Grísk-rómversk glitna fGreek- Ro.manJ. 4. Hnefaieikur fBoxingJ. ð. íslenzk glíma. Enn fremur verður dans á eftir fhljóðfæraleikendur frá Winnipeg.J Sýningin hefst kl. 8.30 e. m. Inngangseyrir 35c. Fyrirspurn. Hvað segist á því að gera tilraun til að spilla milli unglings finnan lögaldursj og foreldra, föður eða móður? Ráðleggja unglingnum að gera þvert á móti foreldrinu. Spyrj- andi óskar eftir fullgildandi svari, er byggja má á fyrir dómi. —Slíkt svar er ekki vort að gefa. Hitt má segja spyrjanda, að ef þetta á sér stað að ástæðulausu, sem hann lýsir, þá er honum óhætt að leita að- stoðar dómstólanna til að taka fyrir það.—Ritstj. Dorkas félagið í Fyrsta lút. söfn. heldur samkomu á föstudagskvöldið 16. þ.m. í efri sal G. T. hússins. Með öðru verður þar leikinn stuttur leikur og sýndar lifandi myndir. Sérstaklega góð skemtun. Aðgang- ur 25c. Mynd af Jóni Sigurðssyni forseta, olíumálverk eftir Friðrik Sveinsson málara verður til sýnis nokkra daga í búð H. S. Bardals bóksala. Vinnukonu vantar strax í hæga vist. Upplýsingar að 564 Maryland stræti. Bifreiðar eru fyrir nokkru teknar að keppa við strætisvagna félagið um mannflutninga í borginni. Taka bif- reiða eigendur 5 cent fyrir farið eins og strætisvagnafélagið. En sá galli ,er á þeirri gjöf Njarðar, að bifreið- arnar flytja fólk að eins frá miðbiki bæjarins út að bæjarlínu fyrir þetta verð. Ef ferðinni er heitið frá ein- um enda borgar til annars, kostar förin því 10 cent. — Á mánudaginn var vildi einni af þessum bifreiðum til slys í fyrsta sinni, ók með fullum hraða upp á gangstétt og varð konu að bana. Er ökumaður kærður fyrir að fara ineð bifreið án leyfis borg- arinnar. Einmuna tíð er og hefir verið hér að undanförnu, sólskin og bliða á daginn og að eins einstaka sinnum stirðnandi á nóttum. Herra Jón Björnsson, gamall l>óndi frá Grund i Nýja íslandi, en nú til heimilis hjá dóttur sinni í Tungu við íslendingafljót, kom að sjá oss einn daginn. Hann hefir dvalið um nokkrar vikur hjá dóttur sinni, Mrs. Sa'inson Samson. Jón skortir nú tvö ár á áttrætt, en er þó ern og hress bæði í tali og hreyfingum. Um Stephan G. Stephanson. Óðar gand um Braga braut bjóður randa færir; ljóðin vandar—þrýtur þraut— þjóðar anda nærir. /. J. Húnberg. IIENDUR FEGRAÐAR. ANDUIT SLÉTTUD Ilefðarfólk leitar tll vor—10 ór að verkl Elite Hairdressing Parlor 207 NEW ENDERTON BLDG. TAL8. M. 4435 Hornl Hargrave og Portage (uppi, taklS lyftivél) HöfuSsvörður meðhöndlaSur. HöfuSbaS úr mjúku vatnl. Fætur fegraSar. Llkþorn aftekin. Neglur réttar. Slgg og alls- konar fótakvillar meðhöndlaSlr vlsindalega CHIROPODIST 207 New Enderton Bldg. Tals. M. Portage og Hargrave SÖNGSAM [K0M A 1 TJALDBÚÐARKIRKJU Þriðjudagskvöldið 13. Aprí o 1915 1. SÖNGSKRÁ: Söngur—(a.) “Vorið er komið” (b) “Táp og fjör” .. 2 SÓNGFLOKKURINN. Vocal Solo 3. MRS. P. S. DALMANN. SöngurT— (aj "Eins og skjöldur” .. .. Stuns (b) "Sönglistin” .. .. 4. SÖNGFLOKKURINN. Vocal Solo . . MISS M. ANDERSON. 5. Söngur—(a) "Meðal leiðanna Iágu” (b) “Vordísin” 6. SÖNGFLOKKURINN. Vocal Duet—“Friðþjófur og Björn” MÉSSRS. STEFÁNSSON og THÓRÓLFSSON 7. Söngur—“I upphafi var orðið”.. . . Bjórgvin Guðmundsson 8. SÖNGFLOKKURINN. Vocal Solo 9. MR. JÓNAS STEFÁNSSON Söngur—“And the Glory of the Lord” . . Handel 10. SÖNGFLOKKURINN. Vocal Solo 11. MR. H. THÓRÓLFSSON. Söngur—“Ólafur Tryggvason” 12. SÖNGFLOKKURINN. Vocal Solo 13. MISS M. ANDERSON. Söngur—“Glory to God” 14. SÖNGFLOKKURINN. Vocal Solo 15. MRS. P. S. DALMANN. Söngur—“Hallelujah Chorus” . . Handel 16. SÖNGFLOKKURINN. “GOD SAVE THE KING. Fylgiraddir spilar Mr. James W. Matthews. Aðgöngumiðar 35c og 25. fyrir börn. Byrjar kl. 8.15 Herra Geirfinnur Pétursson að Oak View P. O. kom inn til bæjar eftir helgina í erindagerðum sínum. Hann segir með lang lægsta móti í v'atninu, bæði af lítilli úrkomu i fyrra og óvenjulega lítilli snjókomu í vetur. Allan snjó hefir leyst upp þar ytra, svo að varla sést hvítur díll. Rigning og súld var þar á páskadag- inn; of þurt ætlar hann að þar verði fyrir góða uppskeru nema rigningar verði með meira móti fram eftir vor- jnu. Vellíðan almenn í íslenzku bygðunum með vatninu. Siglunes P.O., 31. Marz 1915. "Tíðin inndæl; jörð orðin að mestu auð utanskóga svo keyra verður á Vögnum. Hagur flestra sæmilega góður, eftir því sem kostur er á á þessum tímum.— Nýdáinn er einn af elztu og merkustu landnemum þess- arar bygðar, Jón Methúsalemsson, 73 ára að aldri. fFlutti hér vestur frá Fossvöllum í Jökulsárhlíð árið 1887J. Útför hans fór fram sunnud. 28. þ. m. að viðstödduni miklum meiri hluta bygðarmanna. Séra Albert Kristj- ánsson framkvæmdi útfararathöfnina og hélt snjalla ræðu. Mannfjöldinn, sem viðstaddur var og öll sorgar- athöfnin bar þess vott, að hér væri verið að kveðja einn hinn merkasta og vinsælasta öndvegishöld þessarar bygðar.” J. J. — Eldur koirn upp í póstliúsinu í Eyebrow, Sask., kl. rúmlega þrjú á núðvikudagsinorgun, brann það: til kaldra kola ásamt glysvörubúð, j lyf jabúð og telefónstöð bæjarins. j Skaðinn metinn $20.000. Látinn er W. W. Buchanan, al- þektur forsprakki bindindismálsins, er oft var á ferðalagi að brýna bind- indi fyrir almenningi. Hann var mikið riðinn við Social Service fé- lagsskapinn, sem allmikið hefir látið til sín taka í seinni tíð. Séra Jakob Rövik Larson, bapt- ista prestur frá St. Paul, Minn, var hér á ferðinni í erindum fyrir sína kirkjudeild. Hann leit inn tíl Lög- bergs og bað oss að geta þess, a?5 hann hefði haft hina mestu ánægju af því að hitta íslendinga hér í borg- inni. einkuni séra Björn R. Jónsson, er hann heyrði prédika á páskadag- inn; hafði aldrei heyrt íslenzku tal- aða fyrri. Séra Larson er norrænn í anda og þykir mikið koma til fornra hókmenta islenzkra. Flest sæti v'oru skipuð í Fyrstu lút. kirkjunni við hádegis guðsþjónust- una á páskadag. Að loknu forspili hófst guðsþjónustan með þvi, að nokkur l>örn sungu “Sigurhátíð sæl og blíð” og þótti mikið til þess koma. Unt kvöldið neyttu um 80 manns hinnar helgu máltíðar. Má af því marka, að ekki er þessi söfnuður tölu þeirra, er að mestu eða leyti hafa lagt niður þann helga sið. Thorsteinsson Bros. & Company Byggj a hús, selja lóöir, útvega lán og eldsábyrgö Pón: M. 2902. 815 Somereet Bld«. Heimaf.; G. 733. Wtnipeg, Man. TALS. G. 2252 Royal Oak Hotel GHAS. GUSTAFSON, Eiganoi Eina norræna hótelið í bænum. Gisting og máltíðir $1.50 á dag Sérstakar máltíðir 35c. Sérstakir skiln álar fyrir stöðuga gesti 281-283 Market St., Winnipeg Eruö þér reiðubúnir aö deyja? ef ekki, þá finnið E. H. Williams Insurance Agent «06 Lindsay Bloclf Phone Main 2075 Umboðsmaður fyrir: The Mut- ual Life of Canada; The Ðominion of Canada Guar. Accldent Co.; og og elnnlg fyrlr eldsábyrgðarfélög, Plate Glass. Bifreiðar, Burglary og Bonds. Á laugardaginn fyrir páska urðu flestir, sem út á stræti komu, að kaupa blátt blóni. Hrundu tíu centin hundruðum saman í safnbauka stúlknanna er blómin seldu. Létu menn þau með ánægju af hendi rakna því hvert cent, sem safnaðist, geng- ur til að hjálpa fátækum börnum. — Fyrir milligöngu sendiherra l!an(laríkjanna í Brussel gaf þýzka stjórnin ölluni brezkum konum ásamt bönium þeirra far- arleyfi 25. marz. Voru þær sam- dægurs sendar á sérstakri járn- brautarlest til landámæra Hollands og Belgiu. Hafa þær eflaust orð- ið fegnar frelsinu. WILKINSDN & ELUS Matvöru íogfiKjötsalar rlorni Bannatyne og Isabel St. Sérstök kjörkaup á hverjum Föstu- og Laugardegi. Sfm- ið o«s eftir kjörkaupum á hænsum, öndum, tyrkjum, smjöri’og eggjum. GŒÐA VÖRUR FYRIR LITLA PENLNGA Tals. Garry 788 BYSSUR »«SKOTFÆRI Vér höfani stærstar og fjölbreytilegutar blrgðlr mí ■kotvopnum í Canada. Rlflar vorir ern frá bextn verksmiðhim, svo sem Wlnchester, Martln, Remlng- ton, Savage, Stevens og Ross; eln og tví hleyptar, svo ' hraðskota oyssnr af mörgnm tegundnm. The Hingston Smith Arms Co., Ltd. MAIN STREET (gegnt Clty Hall) WINNIPEG +4+-f+4-Í-4 4-M-f+44-41-f-l'-f m 1 W. H. Graham 4- f + f *f I i i t t KLÆDSKERI ♦ ♦ Alt verk ábyrgst. Síðaata tizka f -f m I I i + f * f + f 4- * X m 190 James St. Winnipeg Tals. M. 3076 +-M,ftff4f,l'f'fH"M,Hfff4ff t t Canadian RennvatingCo. Tals S. 1990 599 Ellice Ave. Kvenna og Karla föt búin til eftir máli. FötJ hreinsuð, pressuð og gert við Vérsniöum föt upp að nýju Scandinavian Renovators&Tailors hreinsa, pressa og gera við föt. Þaulœfðir menn, Föt send og þeim sktlað. $5.00 sparnaður að panta alfatnað hjá oss. Alla- konar kvenfatnaður. Snið og verk ábyrgst M. JORGENSEN, 398 Logan Ave. Tals. G. 3196 WINNIPEG, MAN. „THE BUILDER“ Sjúklinga Portvín. Inniheldur aðeins egta gamalt Oporto vín. Þessu vlni er sterklega hælt sem mjög góðn styrkingarmeðali eftir bnng- arlegur, sem gert hefir menn máttfarna Verí $1.00 hver flaska $11.00 kassi með 12 flöskum .y/mpof/bM cf'Qtiaáty cz&qu&uAó ShOMaínStWmhifjebGimda ■itórmlkið úrval af blóma og jurta útsæðl. AS gróðursetja slæmt útsæðl er verra en ógert. Vér seljum Steele Briggs Seeds og seljum það með sanngjörnu verði. paS sáð er alt frá slðasta árs upp- skeru og tekið I ábyrgð, að frjósamt sé og áreiðanlegt. páð sáð er vlst að verða að gagnl og óhætt að relða sig á það. FRANKWHALEY þjvcsrnption 'Tðruggiat Phone Sherbr. 258 og 1130 Horni Sargent og Agnes St. LAND mitt fl60 ekrurj viS Yar- bo, Sask., vil eg nú selja meö vorinu og myndi taka fyrir það eign hér í bæ eða annarsstaðar. Verð til 1. Apríl $2500. 35 ekrur undirbúnar til sáningar, mikið heyland og alt með girðingum. — S. Sigurjónsson, 689 Agnes St., Winnipeg. Sigfús Pálsson dL'J'An með lægsta verði.if Annast um alls- konar flutning. WEST WINNIPEG TRANSFER CD. Toronto og Sargent. Tals, Sh.|l619 RAKARASTOfA og KNATTLEIKABORD 694 Sargent Cor. Victor Þar líður timinn fljótt. Alt nýtt ogmeð nýjustu tlzku. Vindlar og tóbak selt. J. 8. Thorsteinsson, eigandi Ný deild tilheyrandi The King George Tailoring Co. L0ÐFÖT! +f,4-f+-f+-f+-f,i-f4-f'l-f+>-l-f4-f4-f'É-f t L0ÐFÖT! L0ÐFÖT! t f + ---------------------- f gerð upp og endurbætt T NÚ ER TlMINN t -f ---------------------—------ + $5.00 $5.00 | Þessi miði gildir $5 með pönt- un á kvenna eða karlmanna fatnaði eða yfirhöfnum.| T T/\LSIMI Sh. 2932 676 ELLICE AVE. X-f+-f+-f+-f+-f+-f+-f+-f+-f+-f'l"f 4-f HRESSI-LYF sem eykur matarlyst Dr. Lang’s INVALID PORT WINE Fjörgar þreytta llml, gerir blóð- lð þykkra, styrklr taugarnar og allan llkamann I hlnni óstöðugu vorveðráttu. Pað er vörn gegn velkindum, Þvl það styrklr blóðið svo það stenst árásir berkla. Petta vin ættl að vera tll á hverju heimili, einkum um þetta leyti árs. Verð $1 flaskan Fæst að eins hjá lyfsölum. Spyrjið lyfsala yðar eftir þvi. Dr, LANG MEDICINE ICO. WINNIPEG, MAN. Ættjarðarvinir Verndið heilsuna og komist hjá réikningum frá læknum og sjúkra- húsum með því að eiga flöskts fulla af R0DERICK DHU Pantið tafarlaust. The City Liquor Store, 308—310 Notre Dame Ave Garry 2286. Búðinni lokað kl. 6.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.