Lögberg - 22.04.1915, Side 5

Lögberg - 22.04.1915, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGÍNN 22. APRIL 1915 5 ÍS-TÍMI SUMAR- sins byrjar I^Maí næstk. Þá byrjum vér að flytja Is heim á heimili hvar sem er í borginni. The Arctic Ice Company LIMITED I 56 Bell Avenue Mið-bæjar starfstofa á neðata gólfi í Lindsay Bldg. Eftir öllum upplýsingum ber að síma til FORT ROUGE 981 ( 5 lines) Það kostaryður EKKERT að reyna Record áftur en þér kaupitt rjómaskilvindu. RECORI> er einmitt skilvindan, sem be7.t. á viB fyrir bændur, er hafa ekki fleiri en 6 KÝR l»egar þér reynið þessu véi, munutS þér brátt sannfærast um, ab hún tekur öllum ötSrum fram af sömu stærö og vertti. Ef þér notifi RECORD, fáiÖ þér meira smjör, hún er aubveldari mebferbar, traustari, aubhreinsabri og seld n\o lágu verbi, atS abrir geta ekki eftir leikið. SkrifiÖ eftir söluskilmálum og öll- um applýsingum, til The Swedish Canadian Sales Ltd. 234 Logan Avenue, Winnipeg. fáir kjósendur, [Hver einasti kjós- andi, sem hefir vit og samvizku til að bera, gerir meir en æskja þess, hann lítur eftir bæði loforöum og efndum, og hagar sér þar eft- ir. — Ritstj.]. sem taka vilja undir meö F. J. Dixon er hann sagöi i fylkisþinginu i vetur: “Við höfum hingaö til orðið að una því að þingmennirnir gæddu okku'r á góöum loforðutn fyrir kosningar. Hér eftir óskum við að þeir vildu gæöa okkur á nytsönrum fram- kvæmdum eftir kosningar.” Þýðandinn. . Frá íslandi. Reykjavík 17. rnarz 1915. H. Hafstein bankastjóri er með “Botníu’’, sem er í Vestmannaeyj- um í dag og kemur 'hingaö á morg- un. Kuldar hafa verið það sem af er þessari viku, og norðanátt, en þó ekki hvast. Ilafís er nú kominn að Vestur- landi. liggur úti fyrir ísafjarðar- djúpi og hefir rekið inn á Dýra- fjörð og firðina þar í milli. Það er sagt, og mun vera áreið- anlegt, að í Isaf., sem koma átti út síðastl. miðvikudag,' hafi verið bú- ið að setja upp langa grein eftir Svein Bjömsson, þar sem meðal annars var farið mjög 'hörðum orð" um um “utanstefnur’’ og hörð árás gerð á H. Hafstein fyrir að hafa orðiö við tilmælum konungs um, að koma á fund hans til viðtals. En áður en blaðið kæmi út með greinina kom konungsskeytið til Sveins, og varð það þá hans fyrsta verk, að hlaupa niður í prent- smiðju og stöðva blaðið. En svo mikið varð ísaf. um þetta, að hún gat alls ekki komið út fyr en á Laugardag, því nú varð hún að klæða sig alveg um. Vélarbáturinn “Haffari” frá Sandgerði, sá er bjargað var ný- lega suðvestur af Reykjanesi, strandaði aðfaranótt 11. þ. m. á Bæjarskeri á Miðnesi og gereyði- lagðist, en skipverjum var bjargið. Báturinn hafði verið vátrygður fyrir 600 kr. Konungsráðanautaritlr þrír fóru héðan með “Vestu” síðastl. laugar- dagkveld og ráðgerðu að koma aft- ur með “Gullfossi” snemma í april, Reykjavík 20. marz 1915. Norðanstormur er i dag og mik- ið frost. Hafisinn kvað vera að þokast frá Vesturlandinu. En við Norð- urland hefir 'hann ekki sés tenn. Jón Ólafsson rithöfundur er hálfsjötugur i dag. Skipshöfnin á “Gullfoss” fór til K'hafnar með “Vestu” síðastl. laug- ardag. Skipstjóri verður Sigurður Pétursson frá Hrólfsskála; stýri- menn: 1. Jón Erlendsson, 2. Einar Stefánsson frá Knararnesi; véla- meistarar: 1. Haraldur Sigurðsson frá Flatey, 2. Brynjólfur Magnús- son; hásetar: Ásgeir Jónasson, Ófeigur Guðnason, Kristján Jóns- son, Jón Rögnvaldsson, Guðni Þórarinsson og Jón Júl. Bjama- son, Karl Brynjólfsson, Einar Eiríksson og Gunnar Jónsson. Brytinn er danskur og heitir Johs. Klein, en þjónn á 1. farrými Bjami Guðnason og irammistöðu- stúlka Theodína Þórsteinsdóttir. — “Gullfoss” kvað þegar 'hafa fengið fullfermi af vörum frá Khöfn. Sýslumannssetrið Arnarholti í Mýrasýslu er selt Hirti alþingism. Snorrasyni á Skeljabrekku og þar með alt búið. Sigurður sýslum- kvað fara liingað til bæjarins næst- komandi haust. Hjörtur hefir aftur selt Skeljabrekku og búið •þar. Mjóafjarðarprestakall er veitt séra Jönmundi Halldórssyni á Baröi. —Lögrétta. Útsvör í Reykjavík eru þessi yfir 1000 kr.: Steinolíu félagið 6000 kr., Fiskiveiðafélagið ísland 3400 kr.; Hlutafélagið Kveldúlfur 2200 kr.; Fiskifél. Njörður 1000 kr.; Fiskifél. Bragi 2000 kr.; Ol. Johnson kaupm. 1500 kr.; Kaaber kaupm. 1500 kr.; Sláturfél. Suð- urlands 1300 kr.; Th. Thorsteins- son 3700 kr.; J. Zimsen konsúll 1600 kr.; Trolle umboðsmaður 1000 kr. Af embættismönnum hefir Jón Magnússon bæjarfógeti hæst útsvar, 850 krónur. Dáinn er í Reykjavík Magnús Steindórsson, fyrrum bóndi í Hnausum í Húnaþingi, nálægt 76 ára gam*Il. fengið meiri afla en venjulega, og þó einkum þilskip. Fríkirkjusöfnuður er myndaður á Fáskrúðsfirði og hefir verið kosinn forstöðumaður hans Stefán1 Björnsson cand. theol., áður ritstj. Lögbergs. Ráðherra staðfesti kosningu hans 15. þ. m. Dýraverndarinn heitir nýtt blað, sem faríð er að koma hér út, gefið út af Dýraverndunarfélagi Islands. Það á að koma út einu sinni hvem ársfjórðung, og kostar árg. 50 au. Þrímenningarnir, sem 'hjá kon- ungi eru nú, hafa ekkert lát'iö op- inberlega til sírí heyra hér heima annað en það, að þeir komu til Khafnar síðastliðinn laugardag (20. marz). Nú hafa þeir verið þar í viku, svo að eitt- hvað ætti að fara að fréttast af þe'im. -— Lögrétta. Hvaðanœfa. — Frá Berlín berst sú fregn,, að til 1. april hafi Þjóðverjar tekið 812,808 stríðsfanga: 10,175 f°r" ingja og 802,633 soldáta. Þar af eru 242,364 frá Frakklandi, 509,- 350 frá Rússlandi, 40,267 frá Belgíu og 20,827 úr liði Breta. — Bakarar í Triest hafa orðið að leggja niður iðn sína því hvergi er mél að fá. Vofir 'hungur yfir borginni, lesta þeir er geta út úr borginni og fara margir af landi brott, einkum til ItaKu. —TJegar Kedivinn i Egyptalandi ók um Cairo borg í opnum vagni 8. apríl á leið til móður sinnar er liggur þungt haldin, skaut ungur verzlunarmaður að vagni hans en misti markið. Kannast maðurinn við, að Kedívanum 'hafi kúlan ver- ið ætluð og hafi hann lengi 'haft i hyggju að veita honum banatil- ræðrer færi byðist. — Sjómála stjórn Breta hefir lýst því yfir, að til þess geti kom- ið, að nauðsynlegt verði að banna skipum að sigla inn á sumar hafn- ir innan brezka veldisins og skip sem eiga þangað að fara skyldu fara varlega og gæta allra merkja, því 'hættur niegi búast við að séu á leiðinni. Meðal þeirra hafna sem getið er, eru mynni og hafnir flestra fljóta er skipaleið liggur um í Bretlandi, þar á meðal Thames, Mersev, Tyne, Tees og Humber, höfnin í Esquimalt, Halifax og Quebec og nokkrar aðrar í ný- lendum Breta. Getið er þess til að tundurdufl verði lögð svo þétt á þessar slóðir að sérstök hætta stafi af. Leikhúsin ?,....wmmmm WALKER. “Pet of the Regiment” er leikið í Walker Jiessa viku og dregur fjölda fólks. Söngurinn, sem er ágætur og einkennisbúningarnir auka mjög á fegurð leiksins. “The “Chocolate Soldier” er sá söngleikur, sem hefir laðað hugi þjóðanna; hann hefir farið sigurför unt London, París og Vín. Hvert lag er listasmíði sinnar tegundar. Blíðublærinn og ylurinn í sumum erindunum og lögunum verður enn áhrifameiri fyrir ósvífnina, sem kentur frant í öðrum þeirra. “The Chocolate Soldier” verður aftur leikinn í Walker leikhúsinu fimm kveld og verður sýndur þar í fyrsta sinn á þriðjudagskveld í vik- unni sem kemur, með matinees á miðvikudag og laugardag. 25 hljóð- 1 færaleikendur. Aðgangur á kveldin frá $1 til 25c., en við Mats. 50c. og 25c. Dr. Guðmundur Finnbogason flutti erindi um vinnu vísindi í Iðnó á sunnudaginn var. Vísindi nefndi hann árang- ur af nákvæmum tilraunum er gerðar hafa verið, einkum í Bandaríkjum Ameriku, til þess að fá líkamlega vinnu leysta fljótara og betur af hendi en áður hefir tíðkast. Arangurinn hefir orðið afarmikill, vinnan í sumum grein- um margfaldast, án þess að þreyt- an hafi aukist, kaup verkamanna aukist stómm, og ]>á ekki síður ágóði vinnuveitenda. Sjálfsagt verður erindið prentað, enda allar líkur til þess, að vorri þjóð gæti orðið stfennikið gagn að sams kon- ar tilraunum sem þeim, er ræðu- niaður gerði að umtalsefni. Urn kraftaverk fyr og nú flutti próf. Har. Nielsson af- arfjölsótt erindi i Frikirkjunni á laugardagskveldiö var. öll sæti voru skipuð og margir stóðu. Kraftaverk í kristilegum skilningi taldi ræðutmður þá atburði, sem ekki verði skýrðir samkævmt venjulegri rás viðburðanna, er beri sérstakt vitni um gæzku og mátt rírottins. Þessir atburðir hefðu einkent frumkristnina framar öðru, og fvrir þá hefði 'hún einkum eflst. Reykjavík 24. marz 1915. Hingað er komið nýsmíðað is- lenzkt botnvörpuskip frá Geste- mynde á Þýzkalandi, hið fyrsta af íslenzku botnvörpuskipunum, sem smiðað er þar í landi. Skipið heitir “Rán” og er eign útgerðarfé- lagsins “Æjgir”, sem Magnús |TH. Blöndahl er framkvæmdarstjóri fyrir, og hefir hann dvalið ytra frá því í desember til þess að sjá um smiði skipsins og kom hingað með því. Skipið er fallegt og mjög vandað. Þá nýung hefir það fram yfir hin eldri botnvörpuskip ‘hér, að i því eru lifrarbræðsluáhöld. Raflýsing er um alt skipið og all- ur útbúnaður yfir böfuð eftir nýj- ustu tízku. “Rán fór i gegnum Kielarskurðinn á leið hingað og komst alla leiðina hingað án þess að verða fj'rir töfum af enskum herskipum. Reykjavík 27. marz 1915. Siðastliðinn laugard. og sunnud. var hér mikið frost, 14 st. C að morgni. A mánud'. kom hríðar- kast og hláka, en síðan hafa verið stillur og góðviðri. Afli hefir komið hér svo mikill á Iand i vetu'r, að aldrei 'hefir verið eins áður á sama tima. Bæði botnvörpungar og þilskip 'hafa DOMINION. Gamanleikurinn “Charley’s Aunt” sem allir hlæja 'að, verður leikinn alla næstu v'iku í Dominion leikhús- inu, Mr. Fred. Cununings, einn af hin- um beztu leikendum félagsins, hefir verið lasburða síðari hluta vetrar og ekki komið á leiksvið fyr en Miss Maude Fealy kom og lék í “moths”. Mr. Cumings hefir aldrei betur tekist en i þessum leik og þetta er í þriðja skiftið, sem hann leikur í þessum gamanleik. Þeir sem sækja þetta leikhús mega reiða sig á að þeir hafa sjaldan notiö þar betri sk^mtunar en þeir gera i næsu viku. Auk þess verður leikinn smáleik- ur í einum þætti er heitir “Her De- cision.” “Charley’s Aunt” verður leikinn alla næstu viku með venjulegunt matinees á þriðjudag, fimtudag og laugardag. PANTAGES. “The Six Kirksmith Sisters” er aðal leikurinn í Pantages leikhúsinu næstu viku. í honum leika Weber systurnar þrjár og Halley og Noble. “Service” er annar ágætur járn- brautarleikur, er fer fram á hraðlest á Overland brautinni milli kl. 4.30 og 5 f. m. “The Warrens of Virgina”” er aðal kvikmyndin, sem sýnd v'erður næstu viku; leikur Blanche Sweet aðal hultverkið- Miss Sweet er ein- hver allra þekkasta kvikmyndastúlk- an, sem nú er uppi. Miss Sweet leikur Warren, suð- ræna stúlku, sem hefir fengið ást á New York búa áður en stríðið byrjaði. Viðburðir stríðsins að- skilja þau og hann gengur í her Norðurríkjanna. Þótt Warren hati þá, getur hún ekki bugað ást sína með öllu og leggur sjálfa sig í hættu er hann var í nauðum staddur. Eft- ir ófriðinn víkkar sjóndeildrhringur liennar, svo að hún blandar ekki ást og pólitík saman upp frá því. „Heimkoman-“ Undir umsjón Ungmennafélags Únítara var “Heimkoman”, eftir Hermann Sudermann leikin í Goodtemplarahúsinu á mánudags- kvöldiö í fyrsta sinn. Aðal-efni leiksins er í stuttu máli þetta: Robert, fátækur piltur. hefir gengið í þjónustu auðugs kaupmanns, er rekur kaffi og kryddverzlun á Indlandi; hefir Robert verið sendur þangað og rakað saman auð fjár fyrir hús- bónda sinn, þvi sökum dugnaðar síns stýrir hann verzluninni, þótt annar sé talinn verzlunarstjóri. Kemst hann þar i kunningsskap; við greifa nokkurn og bindast þeir trvggum vináttuböndum. Eftir tíu ára burtuveru hverfur Robert, á- samt greifanum, lieim til foreldra sinna og heitmeyjar, er hann hafði verið trídofaður á laun, því hún var- dóttir hins auðuga húsbónda hans. Höfðu þau alist upp sam- an, þvi Mukling faðir hennait býr í “framhúsinu”, en Heinecke, faðir Roberts í “bakhúsinu”. Þykist Robert hart leikinn eftir jafn langa og dvgga þjónustu, er hann verður þess áskynja, að bróðir beitmeyjar lians, hefir tælt yngri systur Roberts, er hann elskar næst sinu eigin lífi. Verður úr þessu svo alvarleg ádeila. að Robert er sagt upp vinnunni og Mukling vill hvorki heyra hann né sjá. strákinn úr “bakhúsinu”. Jafnar karl sig þó aftur er greif- inn heitir Robert auði sinum og fær hann að njóta 'heitmeyjar sinn- ar. Flestir leikendanna leystu hlut- verk sín sæmilega af hendi, sum- ir vel. Mr. John Tait leikur Heinecke gamla, húsbóndann í “bakhúsinu”, mjög laglega og með góðum skilningi á hlutverki sínu. Frú Heinecke fMiss Elin Hall) var og allvel leikin. Mr. Ami Sigurðsson leikur Robert son þeirra og tókst vel að vanda. Var það vel, að fögnuður Roberts stóð ekki lengi eftir ’heimkomuna, þvi miklu betur nýtur Mr. Sigurðsson sin þessu hlutverki, eftir að al- varan færist yfir hann. Miss Steina Hallsson leikur ölmu syst- ur Roberts og leysir hlutverk sitt mjög vel af hendi. Tekst henni einkar vel að sýna tilfinningar sín- ar, ekki sist er mest reynir á. Dró það úr áhrifum leiks hennar, er hún lá grátandi fram á hendur sínar, að Mr. Sigurðssyni tókst ekki svo vel sem æskilegt hefði verið að hugga hana, enda eru slikar sýningar vandléiknar. j Ágústa (TCristín Oliver) systir þeirra ölmu og Roberts, og Mick- alsky fMr. Aðalbjörn Jónasson) vom og allvel leikin. Fjölskyldunni í “framhúsinu” tókst lakar við hlutverk sin en fjölskyldunni í “bakhúsinu”, eink- um systkinunum. Hvorki foreldr- unum né Ivurt syni þeirra tekst nógu vel að sýna þann sjálfbyrg- ingsskap og hroka og fúlmensku, er höfundur bersýnilega ætlast til að auðurinn hafi skapað í brjóst- urn þeirra og of litið kveður að Iveónóru. heitmey Roberts. Mr. Guðm. Thorsteinsson, er leikur Trast greifa, fer laglega með hlutverk sitt, skilur það vel og vekur traust áhorfenda. Að hlutverkum hinna leikendanna kveður litið, enda eru þau sæmi- lega af hendi leyst. Þegar þess er gætt að leikend- urnir hafa unnið þetta verk í hjáverkum, er það þakklætis vert hve vel þeim tókst. Hefðu þeir átti skilið að miklu fleiri hefðu sótt leikinn en raun varð í fyrsta skifti er hann var sýndur. Leikur og sýniugar. Samkoma sú, er Dorkas félag Fyrsta lút. safnaðar hélt á föstu- dags kveldið var, í Goodtemplara- húsinu var fjölsótt, enda er það almanna róniur, að betri skemtun hafi ekki verið haldin löndum vor- um hér í vetur. Fyrsta atriðið á skemtiskránni var það, að leikinn var alvöru blandinn gamanleikur, er nefnist “The Littlc Woraen”, af sex ungum stúlkum og tveim piltum. Leikurinn er um ekkju (Miss OHva Thorgeirsson) með fjórum dætruni, er hún þarf að gæta. Sú elzta og settasta var mjög vel leikin af Miss Aurora Vopni, sú líflegasta einkar skemti- lega sýnd af Miss Anna Jónsson, hinar tvær, Beth og Ami léku þær Miss L. Johannesson og Miss CANADA? , FINEST THEATBÍ I 1 LEIKURIXN pESSA VIKU og Uagar. Matinee er lcikinn af The Winnipeg Operatic Societj, og er liin ljúfl ieikur eftir Salómon, er heitir “THE PET OF THE REGIMENT” pa8 er hinn stðrfengilegasti leikur, sem nokkru sinni hefir sýndur veriö hér af heimalningum. FIMM KVELD, pRIÐJUD. 27. APR. Mats. Miðv. og Laug. Leikur Wliitney féhtgið leikinn "THE CHOCOUATE SOLDIER” Afar fagur söngflolckur fylgir þar með og Whitneys 25 hljóðfæramenn liágt verð—Kveld Orclieslra gólf, $1, Balcony hringur 75c„ Balc. 50c. Uoftsvalir 25c. Mats. 50c og 25c. Mary Freeman, en þjónustustúlku i þessu jómfrúbúmi lék Miss Caroline Thorgeirsson. Piltana i leiknum léku þeir Emil Jónsson og Alfred Albert. Þetta unga fólk bafði auðsjáanlega búið sig vel undir og æft sig rækilega; þar kendi lítið sem ekkert þeirra galla, sem vanalega verður vart hjá við- vaningum; hlutverkin fóru þeim vel úr hendi og var hin bezta skemtun að leiknum. Næsta atriði var nefnt “The Dream Girl” og var með þvi móti að piltar nokkrir komu. fram á leiksviðið og sungu um það sem þeir óskuðu sér helzt. Sá sem seinast kom fram og söng sinn hjartans óð hitti sá óskastundina, tjaldið opnaðist að baki honum, kemur þar i ljós fríð og prúðbúin stúlka (Miss Frida Johannssoní og kastaði til hans blómi og lauk með því þeirri sýningu. Næsta sýning var með þeim hætti að kona nokkur (er Miss D. Hermann sýndi) lét sér fátt um finnast trúboðs starfsemi meðal heiðinna og litt siðaðra þjóða. En er hún sofnaði, þá dreymdi hana að ýms lönd komu til hennar í gerfi ungra kvenna og báru fram kveinstafi um kjör sin og andlegt volæði. Fyrst kom Siam, svo Kína og síðan hvert landið af öðru, loks Hindúa ekkja og önnur sjö ára gömul, en síðast af öllu kom samvizkan og fór öllum meyjum prýðilega að segja það sem hverri var ætlað. Sýningin var nefnd “The Voices of Womerí’ og var næsta hugþekk. Loks er að geta þess að hljóð- færasláttur og söngur fór fram milli sýminga. Nemenclur Mr. Th. Johnston, fiðlukennara léku fim- lega, að vanda, ungfrúrnar Oliver og Bardal sungu einsöngva og Miss Tliomas lék á piano. Söngflokkur tingra pilta skemti með kórsöng. JJm þessa samkomu höfum vér ekkert heyrt nema lof þeirra sem viðstaddir voru. Aðeins einn út- ásetning 'höfum vér orðið varir við, — þann að húsrúmiö hafi j verið of lítið. Allir sem sætum . náðu láta hið bezta yfir þeirri j skemtun, sem unga fólkið veitti J þeim. SigurSur J. 0. Magnússon | Minn kyhstafur fríði er fallinn í dá á fegursta æskunnar skeiði, svo gervöllu stríði hann frelstur j er frá, i í friðarins bríðheimi guðs börnum hjá hins lífssól nú Ijómar í heiði. Þótt farinn sértu, frændi minn, til frelsarans í himininn, eg eflaust glevnii aldrei þér; þú ei niunt heldur gleyma mér^ unz saman okkar liggur leið, nær lokið mitt er æfiskeið. | Hér árdegis þitt enti skeið, I því ungur hlauzt að mæta devð, en óspiltur að öllu þó; í efa sízt því nokkur dró, að sannan hlytir sigurkrans og sæluvistir himnaranns. Vors fósturlandsins fríði son varst frænda þinna ást og von, er rannst hér upp á æskustund, sem engilfagurt blóm á grund, unz náklukkunnar heyrðir hljóm, er hringt var að lesnum Skuldar dóm. Þi) mannsefni hið mesta varst, áf meðbræðrum í flestu barst, í öllu sýndir dáð og dygð, e.r drottins var á rétti bvgð; þín lífs var stefna holl og hrein, er hugði sérhvers græða mein. Hér foreldra og frænda lið, er fyr þú dapitrt skildis við, og dýpstu hlutu sorgar sár og saknaðs höfug feldu tár, nú huggast trúar vissu við, að vita þig í himna frið. Þau sjá í anda anda þinn nú upp stiginn í himininn, þars lifað færðu um eilíf ár, hvar engin þekkist sorg né ár, en drottins ljómar dýrðin skær, er dauðleg tunga skýrt ei fær. Þá skilnaður framar enginn er, um eilífð saman búum vér með ódauðlegri anda sveit, þeim ódáins í helgireit, hvar allir frelstir eiga skjól og eilif ljómar kærleikssól. S. J. Jóhannesson. Sérstök sa!a á lokkum "mmTnúsh"fa Hárlokkar sem áður kostuðu $3 og $4, kosta nú .................. Skriflegum pöntunum sérstakur gaumur gefinn. Send eftir verðrská Manitoba Hair Goods Co. M Person ráðsm. timbur, fjalviður af öllum geirettur og als- Nýjar vörubirgðir konar aðrir strikaðir tiglar, hurðir og gluggar með margvís- legri tilbreytni. Komið og sjáið vörur vorar. Ætíð glaðir aðsýna þó ekkert sé keypt. The Empire Sash & Door Co. —-------------- Limited -------------- HENRY AVE. EAST - WINNIPEG BARNAÞURKUR—Vatnsheldar I>PNhar (nirkur *kal leKKja utan yfir vanaloRar þurkur. Þær eni gerður úr á- ga*tu togleðri, hægit a» þvo þær ok marg- horga Nig ú sköminum tfma, þvi þær halda nærfötnm barna hreinum ogr þurrum. — Sendar með pÓNti burðurgjalds frítt fj'rir 40e. ef borgað er fyrirfram. O. L. BOYD 312 BGYD BLDG., WINNIPEG —Eg hefi mjög fi.litlega atvinnu 1 boUi fyrir mann, sem vill fara um I Winnijyeg og nfigrenninu og sýna vörur. — Flnniö mig að máli milli 11 og 12 t. m. Kosningar fara fram 15. Júní 1915 að Lögbergi Atkvæðagreiðslan byrjar nú þegar. Hr. H. Hermann, bók- haldari félagsins, The Columbia Press, er kjörstjórinn; hann tekur á móti öllum atkvæðum, sem send verða til hans í lokuðum umslög- um, frá þessum degi til 15. Júní, að þeim degi meðtöldum. Klippið úr kjörseðilinn fyllið hann inn sem fyrst og sendið hann ásamt peningum, samkvæmt þessu kostaboði, til Mr. H. Hermanns, Columbia Press, Ltd., Winnipeg Man. — Seðlarnir verða v'andlega geymdir og taldir á ofannefndum degi og verðlaunum úthlutað. n , ■- ™ REGLUGERÐ UM GILDI ATKVÆÐA. $1.00 fyrirframborgun í 6 mán. fyrir blaðið Lögberg.. 50 atkv. 2.00 fyrirfram borgun í 6 mán., 2 kaupendur.......... 150 atkv. 2.00 fyrirfram borgun í eitt ár, 1 kaupandi.......... 200 atkv. 3.00 fyrirfram borgun í 6 mán., 3 kaupendur.......... 400 atkv. 4.00 fyrirfram borgun í tvö ár, 2 kaupendur........ 500 atkv. 6.00 fyrirfram borgun í þrjú ár, 3 kaupendur....... 800 atkv. 8.00 fyrirfram borgun í fjögur ár, 4 kaupendur .. . . 1000 atkv. 10.00 fyrirfram borgun i fimm ár, 5 kaupendur........ 1200 atkv. Fyrir hvern nýjan kaupanda, sem sendir eru af sama umkepp- anda ásamt $2 fyrifram borgun, yfir tíu doll...... 500 atkv. Ekki þarf að senda öll atkvæði i einu, því hver sá, sem um þetta keppir, fær, eftir ofangreindri reglugerð, fyrir öll þau áskriftargjöld sem hann sendir inn, alveg eins þótt atkvæðaseðlarnir komi ekki allir í einu. 900 atkvæði minst til að geta kept um 3 fyrstu verðl. VERÐLAUNA-SKRAIN. Fyrstu verðl.—ávísun upp á $10 viröi af ljósmyndum og $5 í pen. Önur verðl.—$15.00 ávísun upp á ljósmyndir. Þriðju verðl.—$10.00 ávísun upp á ljósmyndir. Fjórðu verðl.—Borðklukka og vasaúr. Fimtu verðl.—Sjálfblekingur og Varinn Rakhnífur. Sjöttu verðl.—Fjórar bækur, eftir frjálsu vali úr bókaskrá sem prentuð er í þessu blaði. Sjöundu verðl.—þrjár bækur úr áðurnefndri skrá. Áttundu verðl.—borðklukka. Níundu verðl.—varinn rakhnífur. Tíundu verðl.—sjálfblekingui —Allir þeir, sem senda inn einn eða fleiri seðla, með borgun fyrir blaðið, en ekki ná ofannefndum verðlaunum mega velja um tvær bækur eða sjálfblekung eða varinn rakhníf í verðlaun. — Þann- ig fá allir verðlaun, sem eitthvað senda. Þessi samkepni er a® eins um nýja áskrifendur. GILDI VERDLAUNANNA. Borðklukkka, “forsilfruð”, með góðu Wrki, $2.50. Snoturt vasaúr í “nickel” kassa '1.50. Varinn rakhnifur i umbúðum, $1.50. Sjálfblekungur, $1.00. Bókaskráin er þessi:— Útlendingurinn, saga úr Saskatchewan, eftir Ralph Connor, 75 centa virði. Fátæki ráðsmaðurinn, saga eftir Octav'e Feulllet, 40c. virði Fölvar rósir, ljóðabók eftir Bjarna Lyngholt, með mynd höf- undarins, 75c. virði. Kjördóttirin, skáldsaga í þrem þáttum, eftir Archibald Gunter, 75c. virði. Miljónir Brevvsters, eftir G. B. McCutcheon, 35c. virði. ‘ María, eftir H. Rider Haggard, 50c. virði. Lávarðarnir í norðrinu, eftir Agnes C. Laut, 50r. virði. í herbúðum Xapóleons, eftir Sir Conan Doyle, 35c. virði. Svikamylnan, eftir A. W. Marchmond, 50c. virði. Fanginn i Zenda, eftir Anthony Hope, 40c. virði. Allan Quatermain, eftir Rider Haggard, 50c. virði. Hefnd Marionis, eftir E. Phillips Oppenheim, 40c. v'irði. Ólíkir erfingjar, eftir Guy Boothby, 35c. virði. Gulleyjan, eftir R. L. Stevenson, 35c. virði. Rupert Hentzau, 40c. virði. Hulda, smásaga, 25c. virði. t Dalurinn minn, rslenzk sveitasaga eftir Þorstein Jóhannes- son, 25c. virði. Sýnishorn af kjörseðli: COLUMBIA PRESS, LTD., P. O. Box 3172, Winnipeg, Man. Inniagðir $....... fvrir ....... nýja áskrifendur Lögbergs. — Atkvæðin séu innfærð í minn reikning, sam- kvæmt atkvæðisgreiðslu-reglum yðar við verðlauna um- kepni. Nöfn áskrifenda fylgja hér með. Nafn með fullum stöfum............................. Pósthús ..................................... Fylki ..................................... Þennan miða má klippa úr blaðinu, undirskrifa og senda oss eða gera afskrift af honum, s«m gildir alveg hið sama.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.