Lögberg - 24.06.1915, Síða 2

Lögberg - 24.06.1915, Síða 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 24. JÚNÍ 1915. Ónotað land í Canada Mackenzie fljót. British Columbia og Alberta ná norður að 6o. breiddar baug. Land- ið þar fyrir norðan, til hafs, er kent við Mackenzie fljót, frá Yukon austur til fjallanna við Slave og Great Bear vötn. Það svæði er afarstórt, sem vatn rennur af til fljótsins, 677,400 fermílur. Um miðbikið er vatnsmagn árinnar um 500,000 cubic fet á sekúndu. Aðalámar, sem í hana renna að vestan, hafa upptök sin í Kletta- fjöllum, sjávarmegin við þau, og brjótast austur gegnum fjöllin, sem er eins dæmi, að upptök og vatnasúð fljóts séu að háfjallabaki og stefni frá sjó. Liard á og Peace fljót, aðalkvíslarnar, spretta upp vestanmegin fjallanna en Athabasca kemur úr austur hlíð- urn þeirra. Lönlin sem vatn renn- ur frá til fljótsins, eru afar breytileg, sjálf Klettafjöllin liggja eftir vatnasvæði elfunnar, um fimtán mælistig, svo og hálendiö vestur af þeim, næsú er að telja norðurhluta sléttunnar og hið skógi vaxna og mosa klædda land norður af henni, en að austan koma henni fjölda margar ár ór hæðum og hálendis drögum og auðnum (“Barren Lands’9 þar norður af. Frá Great Slave vatni til sjávar er Markenzie elfan sannkallaður fljótajöfur, víðast hvar ekki minna en míla á breidd og á löngum köflum helmingi breiðari. Vatnið í ánni er hreint að sjá, farvegurinn víða þráð- beinn, nvergi krappir bugir á. Hún rennur eftir víð'uam dal, hvergi djúpum, sem fylgir bugð- um elfunnar nákvæmlega. Eyjar og hólmar eru víða í ánni, alla Ieið. og um langt skeið blasa við- eða blána í fjarska fögur og tign- arleg fjöll. hæfileg umgerð fyrir þennan mikla konung fljótanna á norðurhveli heimsins. Áin ber þetta nafn, er hún rennur úr stóra Þrælavatni, en J>angað renn- ur Þrælafljót úr Athal>asca vatni og kemur Peace-elfarT í fljótið, þarsem það rennur úr vatninu. Skipaferðir. Hávaðar eru i Þrælafljóti á ein- um stað, 16 milna langir, en ann- ars er allur þe'ssi vatnavegur skipgengur væramr gufubátum alla leið til ósa. Hinar mörgu kvislar Mackenzie elfu. þarsem hún rennur til sjávar, eru lítt kannaðar, en það var eitt af ætl- unarverkum Vilhjálms Stefánsson- ar í norðurför hans hinni síðústu, að láta kanna ósana, og er starf- að að því verki, að fyrirsögn hans, j>ó að sjálfur sé hann langt þaðan. — Hudson Bay félagið liefir um mörg ár haldið uppi skipaferðum á fljótinu, frá Forth Srnith, sem er syðsta stöðin á þessu svæði, vió Þrælafljót, til Fort McPherson sem er nyrst allra, þarsem Mac- kenzie áin- kvíslast til útfalls í Is- liafið. Vegalengdin milli jæssara staða er 1270 mílur. Með straumi fara gufubátarnir rúmar tiu mlmr á klukkustund að meðaltali. alla leiðina á 120 timum. en á moti straumnum tekur alt ferðalagið þá 215 klukkutíma. Alla þessa leið geta bátar farið, sem rista sjö eða átta fet, og ef ósarnir skyldu reynast ]>eim færir, er skipaleiðin frá hinum áðurnefndu flúðum í Þrælafljóti, til Ishafsins 1340 mílna löng. En ef j>eir löngu. skipgengu kaflar í Peace, Liard og Afhabasca fljótum eru taldir meö, svo og vatnsflákarnir Athabasca og stóra Þrælavatn, þá er skipaleiðin talin 3360 míiur. Dýpi Mackenzie elfu. en sex fet í þvermál, og sannaði af því, að einhver ósakvísl fljóts- ins hlyti að vera rmeir en sex feta djúp, en þær eru flestar grunnar og sandbomar. Mannabygð. Meðfram fljótinu hafa loð- skinna kaupa félög haft bæki- stöðvar sínar í nokkra mannsaldra og heita þær ýmsum nöfnum, sem öll byrja á “Fort” (virkij. Kring- um þau hefir risið mannabygð, flest eða öll og er fjölmennasta þorpið njá Fort Rea, með 774 íbúum, 766 hjá Ft. Resalution, 473 'hjá Ft. Providence, vestur af Þræla- vatni. Pljá næst nyrsta "virkinu", Ft. Good Hope, eru 434 íbúar, j>að er rétt sunnan vio norður- heimskauts baug. Þar fer aldrei gaddur úr jörðu, fjögur fet fyrir neðan svörð; j>ó j>rífast kartöflur þar og rófur og jafnvel barley, í sumum árum. Jarðvegur og gróður. Meðfram fljótinu er kragi af skógi, sem að vestanverðu nær upp í fjallaskóga, en að austan- verðu er nokkrar mílur á breidd, jafnvel fjörntíu, iviðasthvar, cn miklu breiðari þarsem ár renna i fljótið. Austur af j>eim skógar- jaðri eru auðnir og eyðimerkur, mosaváxnar og mjög blautar. Hjá öllum stöðvum Hudsons flóa félagsins, norðlur að heimskauts baug, eru kálgarðar með venju- legum garðamat, svo og sunpan til akrar, með barley og oats og jafnvel hveiti. Þeir sem kunnug- ir eru, segja að þar megi rækta alt korn, sem með þurfi, þegar fólk- inu fjölgar, j>ó plógland sé lítið á borð við auðnina, aðeins meðfram ánum, hjá Þrælafljóti, Mackenzie fljóti ofantil og einkum meðfram Liard fljóti. Grasvöxtur er sagður góður á þessu svæði og einkanlegal hentug ur til að fita skepnur. Snjór liggur á jörð fram eftir vorinu og erí grasið mjög kraftgott j>ess vegna. enda er það alþekt. að gras- ið er því hentugra tll titunar, sem norðar dregur. 1 Texas verða skepnur ekki fitaðar jk> á góðum haga séu, og verður að reka þær norður á I>óginn, til þess að fá hold á þær. Álitið er, að rnikil framtíð sé fyrir gripabú á jæssu svæði. Jnnigjöfin er að visu Iöng, en veðrátt^ ekki ómildari en ann- arsstaðar gerist vestanlands, eink- um vegna hlýrra vestanvinda, sem teg&H eftir árdalnum öð'rtt hvoru. Vonir ferða- og könnunarntanna um framtíð landsins, eru nokkuð sundurleitar, segja sumir að hún sé glæsileg og benda á, að fyrir vel tveim mannsöldrum hafi það verið alment áfitið, að j>að land, þarsem nú eru rikin Iowa Missouri og Illinois, verið álitið óbyggilegt, eil nú eru |>au ríki frjósömust og blómiiegust allra; sama muni verða um nið norðlæga land, sem hér er um að ræða, þar muni rísa upp blómlegar bygðir með auknum santgöngum og vaxandi land- j>rengslum. Hitar verða j>ar ntikl- ir á sumrum, öðru hvoru, en þó hita skorti haust og vor, á við það sem á öðrum stöðum gerist, í þessu landi, þá bættst gro'Orinum það tipp að nokkrti íeyti, af því hve dagarnir eru langir og næt- urnar stuttar. 1 * Samanburður. :Til samanburðar við j>etta mikla landflæmi, er tekið það land í Rússlandi, sent hefir líka hnatt- stöðu; það heitir Vologda, er nyrzti partur landsins og veit að tshafinu, 150 þús. fermílur á stærð og rennur áin Dvvina í gegnum ]>að, til Gandvíkur. Þetta hérað tekur yfir 7 mælistig, frá 58° til 65°. Afrakstur j>ess er fluttur eftir Dwina fljóti til Ar- Svo segir skipstjóri á gufubát Hudsons Bay félagsins að hvergi viti hann af minna en ellefu feta dýpi í ánni, en að visu er það efni litið kannað enn. Sir Alexander Mackenzie, sem áin er kend við, fór eftir henni fyrstur rnanna ár- ið 1789 og kannaði dýptina með sökku, þartil taumurinn slitnaði og sakkan tapaðist. Hvergi hefir orðið vart við grynningar í ánni, nema við Þrælavatn hið mikla, en vafalaust er talið, að J>ar muni finnast djúpur áll, einn eða fleiri, þegar vandlega er leitað. Arið 1887 gekk hvalur i ána, upp að þrengslum, sem eru ná- lægt 400 milum frá sjó. Indiánar urðti fyrst skelkaðir' við blástra hans, en urðu djarfari, þegar frá leið' og skutu á hvalinn, hvenær sem hann kom nærri landi. Þegar fljótið lagði, hættu blástrarnir að sjást. sem von var til. og um vor- ið eftir fanst hann rekinn á land, nokkru neðar en hann hafði hald- ið sig um sumarið. Indiánar mið- uðu lengd hans við báta sína og þverskurðinn við hæð sína, enginn þeirra var svo stór, að upp úr honum stæði; af því markaði ferðamaður er þar fór um til landkönnunar, að hvalurinn hefði verið 25—30 feta langur og meir kangel. álíka og j>eir, sem £læsi- legastar vonir gera sér, segja að gert verði hér, vörur fluttar á Mackenzie fljóti til hafs. Ósar Dwina fljóts liggja á 650, nokkru sunnar en Mackenzie ósar. Lofts- lag í báðum löndunum er mjög líkt, vetrar harðir, sumrin heit, miklu minna um rigningar, 'heldúr en við strendur Atlants og Kyrra- nafs. Frá hinu rússneska héraði Yologda er flutt út rúgur, barley, flax, homp og pulse, jarðbik og terpentina. Hrossa rækt og gripa | er j>ar mikil og svinaverzlun. I íbúar héraðsins eru 1,161,000. Nú segir sá, sem rannsakað hefir hið norðlæga land í Canada, af hendi stjórnarinnar, fyrir ajl- mörgum árum, að ofantil méð' fram Peace River séu rneir en 30.000 fermílur af akralandi, er vel geti framfleitt 500,000 manns, en aðrir sem það hafa rannsakað síðar, taka miklu dýpra í árinni. Norðar, meðfram Mackenzie elfu, segir sami maður álíka mikið i akuryrkju land, er fram fleytt geti án alss vafa hálfri miljón til, enj meðfram vötnum sein í hana renna úr fjöllunum sé fagurt framtíðar heimkynni fyrir 500,000 til. Álíka margt fólk muni geta lifað af námugrefti, skógaverki, veiðum, flutningum og verzlun, svo og á frjósömum blettum, sem yíða finnast. Með því móti muni sá partur Canada verða heimkynni 3. miljóna mæltra manna. Aðrir hafa tekið' til samanburð ar héruð í Siberiu, sem hafa sömu legu á hnettinum, einkanlega To- bolsk. Þar eru þrjár borgir, Tobolsk með 20/ þús., Omsk með 43 ]>ús. og Tomsk með 52 þús. íbúum, en alt héraðið Tobolsk telur 1,769,000 íbúa. Tomsk er á sama breiddarstigi og Fort Chipewyan við Athabasca vatn. Margar aðrar smærri borgir eru í Jæssu siberiska héraði, sú nyrzta með 1200 íbúum, á 63°, 50 breidd- arstigi, álíka norðarlega og Fort Wrigley við Mackenzie fljót, en j>ar búa nú 79 manneskjur. ÍTr þessu héraði, Tobolsk í Siberiu, voru útfluttar árið 1906: 11,700,- 000 bus. af hveiti, 4^4 miljón bus. af rúgi, 830 þús. bús. ^af barley, 14 miljón bus. af oats. IMeðalhiti ársins í Tobolsk er hinn sami og í Fort Simpson við Mackenzie fljót. í útnorður af Great Slave Lake, en þar hetir verið ræktað hveiti til reynslu, sem reynst hefir vel. En yfirleitt voru staðimir, þarsem Hudsons Bay setti kaupstaði sína, ekki valdir eftir landgæðum, heldur ]>ví, hvernig þeir lágu við til loð- skinnakaupa. Hveitigróður. Úr umræðum nokkurra merkra manna. er suntir voru. sendir til landkönnunar, um hveitigróður l>æði þar nyrðra og annars staðar, þykir rétt að birtj lítinn kafla, sem kann að þykja fróðlegur j>eim Lesendum vorurn, er hafa langa og ýtarlega reynslu í þessu efni. Einn J>essara lærðu manna, er hann hélt fram, að akurrækt mundi þrífast vel á ]>essum norðurslóð- um, segir svo: “Þegar korni, sem sprottið hefir i einhverju landi, er sáð á ný, ]>á lagast það eftir því sem til hagar og þroskast fyr, ef þörf er á, vegna veðrafars; j>ví hafa frost sem snemma koma, einsog áður gerðist í Manitoba, engin áhrif, j>egar fram líða stundir, því að kornið þroskast áður en J>au koma. Það er vafa- laust, að hveiti þroskast nú fyr í norðvestur landinu en áður, og margir álíta, að loftslagið hafi breyzt. þó að hitt sé sannara, að hveitikomiö hefir samj>ýðzt og lagað sig eftir landi og veðráttu- fari.” Þessu svarar annar kunnugur og lærður á }>essa leið. “Eg get ekki verið jæssu fullkomlega sam- þykkur. Eg hika ekki við að segja, að mikið hefir batnað um, eftir því, sem árin liðu, en eg vil skýra það á annan veg. Ef liveiti er ræktað á sléttunum, þarsem al- drei hefir verið sáð fyr, þá nær það ef til viíl manni í öxl fyrsta árið. Árið eftir verður þa® ekki fult svo hátt. Þriðja árið vex }>að máske ekki eins hátt) og ann- að árið, en þroskast fyr. Ef ann ari tegund er sáð i þennan akttr næstu árin, eitt eða tvö, og síðan hveiti á eftir, j>á verður það fult svo hátt sem J>að var annað árið eða jafnvel ]>að fyrsta, og þrosk- ast fyr.' Jarðvegurinn hefir breyzt og batnað við hvíldina.” \ Mikils vænta menn framvegis af þvt, fyrir akrarækt á þessum slóöum, að leitast hefir verið við, með atbeina landbúnaðar ráða- neytisins, að finna hveititegund, sem ]>roskast fimm dögum fyr en 1 þær, sem nú ertt algengastar. Ef sú tegund finst, sem þroskast f jór- um dögum, eða helzt viku fyr, þá verða stórar spildur að akurlönd- um, sem nú er hæpið að vinna til hveitiræktar. Prófessor Macoun, er kannaði þetta land árin 1872 og 1873, sagðí svo nýlega um j>að: “Loftslagið er stöðugf og landið batnar eftir j>vi sem bygðin vex; þarsem nú eru aðeins smáir blettir, sem 'kallaðir eru gott land, þar verða stór svæði nefnd því nafni. Landið er ekki hátt yfir sjávarmál ag^ dagsbirtan löng, og það breytist hvorugt. Skógarnir verða ruddir og foræð- in þurkuð og þegar landið ]>omar, minkar kuldinn í jörðinni og verð- ur þar þá gott land til manna- bygðar”. Trjávöxtur og skógarhögg. Afarmiklir skógar finnast á vatnasvæði Mackenzie árinnar, meðfram ánum og vötnum, en þess í milli eru stór fen og foræði. Hvítgreni er þar helzta tegundin, milli sléttunnar og Klettafjalla, og er sagt að skógarhöggs viður vaxi alla leið norður fyrir heim- skaúts baug, og jafnvel fast að Ishafinu, stórum lengra norður j>ar, en austan til í Canada, svo sem í Labrador. Auk hvítgrenis finnast j>ar black spruce, tamrack, jackpine og balsam tré. Ösp eða poplar vex alla leið norður að fljóts ósum, svo og birki, er Indi- ánar hafa til bátasmíða. Öspin er góð, hæfileg til pappírsgerðar, svo og í gólf. Mest . ber á spruce skógunum; sum hýítgreni-trén eru þrjú fet að ummáir og 150 fet a hæð, einkum í Þrælafljóts dal, þarsem greniskógurinn er stór- vexnastur. Grenitrén vaxa með- fram ánum, langt inn á eyðimerk- ur og finnast stórir skógar þeirra á víð og dreif j>ar nyrðra.. Nærri allur bygginga viður, sem notaður er j>ar nyrðra, er úr greniskógnum. X’iðurinn er mjúkur og gott að vinna hann. Rætur grenitrjánna eru grannar og seinar, og Indián- ar nota þær til að sauma saman birkibörk í báta sína og áhöld. Berkinum fletta menn þar nyrðra af grenitrjánum og hafa í þök, í staöinn fyrir þakspón, allstaðar nema á stöku stað, sem betur stendur að vigi. Jarðmálmur. Þetta svæði hefir verið lítið rannsakað af mönnum, sem þekkja á jarðiög og málma; þó að slíkir hafi farið um vissa parta þess, hafa þeir hraðað ferð sinni og ekki rannsakað neitt nemá það sem leið þeirra lá um, enda hafa engar námur verið unnar þar, né dýrir málmar fundzt, sem borgað hefir sig að grafa eftir. Það sem heyrzt liefir um, þess kyns, eru helzt náttúru fyrirburðir, seni' engin not eru að, en ekki málmur. Meðal slíkra má telja tjöruhveri við Slave Lake og brennisteins- hveri við hinn enda vatnsins. Oliu verður vart í bergi, víðsvegar meðfram Mackenðie á, og halda jarðfræðingar að þar séu olíunám- ur í jörðu. jafnvel alstaðar í þeim langa dal, sem áin rennur eftir. Viðarkol eru }>ar víða í leir og bergi, sumstaðar níu feta þykk lög, en léleg eru þau og á mörgum stöðum brunnin. Þegar hinir fyrstu komumenn fóru þar| um, loguðu þau, og síð'an hafa ]>eir eldar vakað og aldrei sloknað til fulls. Þegar lögin ent mikið brunnin á einum stað, hrynur leirinn niður á eldana og drepur þá, en jafnan' lifir einhver neisti, og áður en langt um líður. taka kolin að brenna á ný. Hvorki rigningar. byljir né skriður hafa megnað að kæfa þá til lengdar og með þessu móti hafa kolin eyðst mjög mikið, sem er skaði, því að þau mætti hafa til hitunar. þó með öllu séu þau ónýt til smíðá. Sum- staðar er vellandi bik í jörðu. sem engum verður not að, nema Hud- sons Bay mönnum, sem brúka það til að bræða báta sína. — Salt hefir fundist nálægt- Fort Smith, Jarðvarma, og er mikið notað af íbúum þessa landsparts, og á stöku stað annarsstaðar hefir salts orðjð vart. Meðfram ströndum fyrir aust- an Mackenzie ósa, svo og á eyju fyrir landi, eru svo kölluð Terti- ary kol; í þeim kviknar sjálf- krafa, þegar þau koma í hreint loft. Allmargir hafa farið til land könnunar á þessu svæði, hin slð^- ustu ár, og einstaka horfið þang- að aftur með áhöld til graftar og mikinn vistaforða, en af aðgerðum ]>eirrá* hefir ekkert frézt, því að (Framh. á 3. bls.). Vínsala og löggjöf. Þingræða flutt á Saskatchewan þingi 14. Júní 1915 af W. H. PAULSON, M.L.A/ 7 1 Herra forseti:— Þó að tæplega sé hægt að færa til ný rök, gild eða merkileg, á þessu stigi málsins, hinum fjórða degi umræðunnar, þá vil eg leyfa mér að fara nokkrum orðum um það. Það er mjög svo eðlilegt, að háttv. jjingmenn vilji segja til skoðunar sinnar á þessu þýðing- armikla máli, með öðru ýtarlegra móti en því, að greiða atkvæði um það, þegar að því kemur. Ákvæði j>essa lagafrumvarps, sem hér ligg- ur fvrir, hafa það umfram önnur, að þau eru orðin þjóðkunnari og hafa vakið meiri eftirtekt, eni dæmi eru til um nokkurt annað frumvarp, er boriðriiefir verið upp á þessu þingi, eða jafnvel á nokkru fylkisþingi í þessu landi, frá því hér var stofnað allsherjar- ríki. Þegar stjórnarformaðurinn Scott kvaddi hér hljóðte með læðu sinni í Oxbow þann 18. marz siðastliðinn, þá gerðist j>aðj að hver karlmaður og kvenmaður í Saskatrhewan fylki leit við, eða öllu heldur vaknaði við; hver og einn sannfærðist um, að hér var ekki um orðin tóm að gera, ekki óljós ávæningur á huldu um hvað gera mætti, lieldur var þar kveðið skörulega upp úr um það, hvað gera skyldi, og þar lá einbeittur og óbifanlegur vilji á bak við. Allir fundu til þess, að ákvæði hinna fyrirhuguðu laga, er boðuð voru í ræðunni, mundu ganga í gildi, og að þau mundu varða miklu fyrir framtíð fylkisins, og valda miklum breytingum á félagslífi og fjárhag J>ess. ) Yitanlega hlaut svo mikið og stórkostlegt nýmæli að sæta mót- mælum frá vissum mönnum, er hagsmuna sinna vildu gæta. Ein mótbáran var sú, að stjórnarfor- ntaðurinn hefði kveðið upp fyrir- ætlun sína án þess að ráðfæra sig við nokkurn mann utan ráðaneyt- is síns, jafnvel ekki við fylgismenn sína á þingi. Þeim sém þessari mótbáru halda á lofti, er eg al- gerlega ósamþykkur. I fyrsta lagi er þess að gæta, að ef stjórn- ar formaðurjnn hefði tilkynt flokksmönnum sínum hvað hann hefði í hyggju. þá 'hefðu þeir feng- ið færi til að gera vinum sínum, sem vínsölu stunduðu, aðvart, svo að þeir gætu komið varningi sín- um á aðra, og íneð því móti notað sér að þeir vissu meir en allur almenningur. Eina sanngjarna ráðið var það, sem stjórnar for- maðurinn tók, að gera engum betri kosti en öðrum. heldur láta til- kynningu sína koma fyrir hvern einasta mann í fylkinu á einum og sama tíma, svo að enginn hefði af hag eða halla, öðrum fremur. 1 öðru lagi er þess að gæta, að með j>ví að þessi tilkynning var birt nálega tveim mánuðum fyrir þing- byrjttn, þá var kappnógur tími til að íhuga og ræða hin fyrirhuguðu laga nýmæli. Þar með var þing- mönnum lika gefið færi til að komast eftir vilja þeirra, er þeim höfðu falið, að fara með umboð sitt á þingi, en þess hefði ekki kostur verið, ef ráðagerðin hefði ekki verið kveðin upp fyr en á jxinginu. Eg get sagt með sanni, að eg notaði mér þann tíma vel. Þingmanni er ekkert eins mikils vert né meiri aðstoð að neinu heldur en því, að kynnast vilja og skoðunum fólksins á nýmælum, er snerta liagi ]>ess. Almenning- ur hefir til að bera stór- mikla greind og liver sem lætur stjórnast af því sem fólkið vill vera láta í ráðum og framkvæmd- um opinberra ináli, fer viturlega með sínu ráði. 1 mínu kjördæmi hefir þetta mál verið rætt, hvarsem raenn hafa komið saman, með öllu meiri áhuga, heldur en jafnvel striðið. írá því nýmælið var birt í Oxbow, og eg þykist vita, að líkt hafi átt sér stað í öðrum kjördæmum; og j>ó að eg hafi heyrt menn svo hundruðum skiftir, segja skoðun sína á þvi, þá hef eg þó enn ekki hitt þann mann í mínu kjördæmi, er ekki hafi verið málinu fylgjandi af alhuga. Eg vil ennfremur taka það fram, að af þeim ellefu hótel- eigendum, sem í mínu kjördæmi eru búsettir, hefir enginn leitað til min í þvi skyni ’að fá mig til að standa í móti þessari fyrirhuguðu löggjöf, er án alls vafa hefir mikil áhrif á hagsmuni þeirra. Nálægt viku fyrir þingbyrjun var stofnað til fundar af bæjar- stjóra i Wynyard, til að ræða um |>etta mál, og til hans boðið körl- um og konuini af öllum stéttum, hverrar skoöunar sem voru. Vilji fundarins kom fram, eftir skemti- legar og fjörugar umræður, er stóðu í tvær stundir, í i þessari ályktun, er samþykt var i einu hljóði—: “Fundurinn er eindregið fylgj- andi stjórninni í ]>eirri kjark- miklu og öruggu stefnu sem hún hefir tekið og fyrirhuguðum ráðum til að framkvæma vilja almennings í því efni, að af- nema vinveitingar á gististöðum og taka fyrir hlutdeild einstakra manna í vinsölunni.” t Eg gat þess að hver og einn hefði vaknað við, þegar Oxbow tilkynningin var birt. Þar á með- al var vitanlega hinn háttvirti for- sprakki stjómar andstæðinga. Það var svo að sjá í byrjuninni, að bæði hann og Tory blöðin í fylkinu væri á báðum áttum, væru í vandræðum hvort þau ættu að taka undir með kröfum almenn- ings' og eindregnuín vilja hans við nýmælið. Jafnframt gerðust vín- sölumenn í fylkinu mjög umsvifa- miklir, sem vænta mátti. Þeir settu á stað orrahrið gegn bind- indishreyfingunni og sendu út á- skorun um alt fylkið, er margir skrifuðu undir, þess efnis að láta almenna atkvæðagreiðslu fara frant um það, hvort afnema skyldi veitingastaði, í stað þess að lög- taka þá breytingu. Þegar það kom í ljós, að vínsalar fylkisins, með aðstoð vínsala í Winnipeg. er selja áfengi í stórsölu, væru ráðn- ir til að deyja seinurn dauða, og verja sér öllum til mótstöðu gegn Albert Gough Supply Co. Wall Street and Kildonan West ALSKONAR YGGINGAEFNI Talsimar: Sher. 3089 og St. Jonn 2904 laganýmælinu, þá leið ekki á löngu, þartil hinn liáttv. forsprakki mót- stöðuliðsins, með einhverjum leyf- um flokks síns og fylgi Tory blaðanna, breytti stefnu sinni og þar kom, að hann lét lokkast í herbúðir vínvaldsins. Á þessu þarf nú varla að1 furða sig. Hitt er furðulegra, að hann og félagar hans skuli ætla al- menningi' í Saskatchewan að trúa því, að þeir muni verða bindind- ismálinu að meira liði, heldur en Scott stjórnin. Sú stefnuskrá, sem andstæðinga maðurinn kallar “permanent policy”, eða ævarandi stefnumið íhaldsflokksins, var birt af honum fyrir fám vikum, í Moose Jaw, í ræðu sem var berg- mál af kröfuhljóðumi vinsalanna um almenna atkvæðagreiðslu. Hvað vínsölunum gengur til, er auðséð. Þeir reyna ekki að fela það. Þeir að minsta kosti eru hreinskilnir og hræsnislausir í því efni. Þeir vonuðust tu þess, að geta brotið málið á bak aftur með sínum öflugu samtökum og öruggu liðveizlu auðugra öl- og vínbrugg- ara, sem hlut áttu að máli. Það er næsta kátlegt, að horfa upp á yínsala og conservativa hópinn beita nákvæmlega sömu ráðunum til svo ólíkra markmiðla Hér á tilgangurinn ekki að helga meðölin eða ráðin, heldur hið gagnstæða: ineðölin eiga að helga takmarkið, að svo miklu leyti sem oonservative flokkurinn á hlut að máli. Eg álít að foringi þess flokks hljóti að hafa mikla trölla- trú á trúgirni fólksins, ef hann ætlar ]>ví að 'halda, að hamn1 tali í alvöru. En hvað sem segja má eða álykta um tilgang vors háttvirta vinar og fylgismanna hans, þá fylgir enginn vafi hans “per- manent policy”, hvað aðferðina snertir. Aðferðln á aði verða hini sama og sú, sem vínvaldið beitir. Þetta sést á ummælum þess manns, sem miklu ræður í con- servative flokknum, Mr. Donald1 McLeans frá Saskatoon, í sam- tali við blaðamann io. þ. m. Þáð er alþekt, að sá maður getur djarft úr flokki sinum talað, enda varð eg þess var fyrir rúmu ári síðan, er hann kom þjótandi inn í kjör- dæmi mitt og hóaði saman fundi til að útnefna conservative þing- mannsefni fyrir næstu kosningar innan fylkisins. Eg get þessa til að sýnlT hvar sá maður stendur í flokknum, en ekki til að kvarta yfir aðförum hans. Mér skilst að í raun og sannleika hafi Mr. McLean verið heldur meinlaus, og engin banahögg greitt, 'hvorki liberala flokknum í þvi héraði, né þingmannsefni Iiberala, hver svo sem hann verður. í hinu áminsta samtali sagði Mr. McLean, að enginn vafi gæti á því leikið, að stefna Mr. Willoughby's væri miklu hliðhollari bindindis- málinu. Gallinn á Mr. Willough- bv, kvað hann, væri sá, að hann sæti ekki að völdurn. Þar er eg gersamlega á alt öðru máli en hann. Vér höfum oft séð mikla og merkilega menn í broddi minni hluta á ]>ingi. Gallinn við Vr. Willoughby er ekki sá, að hann hefir ekki stjórn á hendi, — held- ur liggur aðalmeinið í “permanent policy” eða ævaranai stetnuskrá flokksins, sem er — af tilviljun — alveg sú sama og vinsalanna. Ef skoðun Mr. McLeans einsog hún kemur fram í þessari blaðagrein, væri sú eina skoðun sem fram hefði komið utan að frá, þá væri hún ef til vill athugunar verð. En j>egar hún er borin saman við fjölda af ályktunum um fylgi við stefnu Scott stjórnarinnar, sem nálega hver félagsskapur hefir sam]>ykt, sem nokkurs er vert um, að undanteknum félagsskap vín- salanna. þá' verður skoðun Mr. McLeans nauða vesalleg. Þessar mörgu ályktanir hafa verið send- ar stjórnarformaninum og venð rækilega tilgreindar af honum; j>ær sanna og sýna að allar stéttir almennings, sein láta sig bindindi nokkurs varða, eru eindregið fylgjandi stefnu stjórnarinnar. Dærni j>ess eru svo mörg að þau verða ekki talin. Eg vil að eins nefna eitt sem eg varð var við einn daginn. Mrs. Armstrong í Regina, forseti í “Womens Christian Temperance Union”, mintist hinn- ar fyrirhuguðu löggjafar með lof- samlegum orðum og lýsti fullu fylgi sínu við hana. Hver mundi ekki virða skoðun kontt í slíkri stöðu meira heldur en — ja, eg vil segja hundrað blaðagreinar uppúr Mr. McLean? Eg gat þess áðan, að tilkynning Scott stjórnarformanns í Oxbow hefði vakið stórmikla eftirtekt — víðar en i þessu fylki, víðar en í þessu landi, þvi að mjög rnörg helztu blöð og tímarit i Ameríku hafa gert þetta mál að umtals efni. Eg vil leyfa mér að skír- skota til ritgerðar í maí-hefti “Amer. Review of Reviews”, er nefnist “Prohibition in Canada”. Þar er gefið nákvæmt yfirlit yfir hvar málinu er komið í hverju fylki í Canada, svo og greint, hvernig hinir pólitísku flokkar hafa staðið að bindindismálinu. Eg ætti aðeins að tilfæra þann kafla ritgerðarinnar ,sem 'hljóðar um vesturfylkin, en til þess að sýna háttv. þingmönnum, að hér kemur enginn pólitískur flokka- dráttur til greina, þá álít eg rétt- ast að byrja á því sem sagt er um Ontario, en j>ar lýkur höf. lofs- orði á hinn látna foringja con- servative ftokksins. “Fyrstar í röðinni 'voru kosn- ingar í Ontario í júní síðastl., en í þeim gerði Hon. N. W. Rowell orðin “Banish the Bar” að herópi sínu. Fylgismönnum hans á þingi fjölgaði litið í þeim kosningum, en það mun hafa komið til af þvi, að kjósendur fylgdu- fastar flokki en ]>ví sem þeir álitu réttast vera í þessu máli, svo og af því, að “local option” hefir gefist þar ágætlega vel og að hinn aldraði stjómarformaður, Sir James Whitney, sem var vel þokkaður af stjórn sinni, reis upp af dánarbeð sínum til að vera í broddi sinna inartna í þeirri kosninga hríð. “Kosningarnar í Manitoba komu skömmu síðar, og 'höfðu stjórnar andstæðingar þar, undir forustu Hon. T. C. Norris, áþekt heróp. Niðurstaðan þar varð sú, að þing- fylgi Sir Rodmond Roblins var stórum minkað ogNjiafði hún minni hluta meðal kjósenda í fylkinu. “Tafnframt hefir Alberta starf- að fast að því að setja saman lög- gjöf ura afnám vínsölu á gistinga húsum, og ^verða atkvæði greidd um lög ]>ar að lútandi, ]>ann 21. júlí í sumar, og er þar kappsam- lega safnað fylgi við það laga- frumvarp, er fer fram á að fá smásölu vins til lækninga. kirkju- og vísindalegs brúks, í hendur mönnum er stjórnin skipar. “Mesta nýlundan gerðist í Saskatchewan, er fékk fylkisrétt- indi árið 1905, einsog Alberta. Þann 20. marz birti stjómarfor- maðurinn þar, Hon. Walter Scott, að fylkisþing yrði kallað saman í maímánuði, til að afgreiða lög um afnám vínsölu í gistiskálum og fé- laga húsum, frá 1. júlí til stríðs- loka — en ]>á skyldu kjósendur skera úr, hvort hún skyldi aftur fara í sama horf, en þó ekki fyr en i desember 1916. Þángaðtil tekur stjómin að sér heildsölu víns, en sú vefzlun verður afnum- in með atkvæðagreiðslu árið 1919, ef kjósendum sýnist svo. í til- kynningunni var einnig gefið í skyni að veitingastöðum yrði lokað kl. 7 á kveldin, í stað 11, einsog síður var. Engin fyrirhuguð eða framkvæmd bindindislöggjöf í Canada 'hefir vakið svo almenna eftirtekt. “British Columbia er eina fylk- ið, sem ekkert hefir heyrzt frá, en enginn veit hvað fyrir getur kom- ið þar, eftir þau miklu tíðindi sem í Saskatchewan gerðust, jafnvel þó að ]>ar-sitji íhaldsstjórn við völd, undir forustu Sir Richard McBride, en í öllum hinum fylkj- unum hafa iiberalar átt upptökin til afnáms víiiveitinga, með lögum. Pað lítur út fyrir, að sá tími sé kominn, í Canada landi, að hver sá flokkur, sem hafnar umbótum i bindindis áttina, hinum ýtmstu og gagnlegustu, hljóti að1 falla um koll og eyðast.” Hvað hugsa minir háttvirtu vinir hinumegin um ]>essa skýrslu um framkvæmdir flokkanna? Er hún ekki likleg til að styrkja gruninn um það, að þeir séu ekki einlægir og hræsnislausir í 'hinnl svokölluðu bindindis-stefnu sinni ? F.11 ef satt skal segja, herra for- seti, þá liggur mér stefna minna liáttv. kunningja hinumegin, í léttu rúmi. Sú stefna er einskis nýt og einskis virðí og verður að engu, — er aðeins 'tilrauna kák til að bregða fæti fyrir umbóta lög. Það eina sem mér liggur nokkuð á sinni, éða réttara sagt, það eina (Framh. á 7. bls.).

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.