Lögberg


Lögberg - 11.11.1915, Qupperneq 4

Lögberg - 11.11.1915, Qupperneq 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 11. NÓVEMBER 1915. XöqbeiQ Gefið út hvern Fimtudag af The Col- umbia Press, Ltd., Cor. William Ave. & Sherbrook Str., Winnipeg, Man. TALSIMI: CARRY 2156 SIG. JÚL. JÓHANNESSON, Editor J. J. VOFNI, Business Manauer (Jtanáskrilt til blaðsin^: THE C0LUM|BU\ PIJE5S, Ltd., Box3172, Winnipeg, Haq- Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, l^an. VERÐ BLAÐSINS: $2.00 um árið. Stríðið. Nú hefir þetta stríS staðið yfir í fimtán mánuði. Þegar það skall á mundi engum hafa komið til hug- ar að það yrði eins vxðtækt og alvarlegt og raun er á orðin. Skoðanir manna þá yfir höfuð voru svo skiftar og á reiki, einsj og eðlilegt var. Þetta skall á eins og þruma tir heiðskýru lofti. Þegar enginn átti sér neins ills von. (Sönnunin fyrir því að þetta kom á óvörum er sú, auk ótal margs annars, að Englendingar voru alger- lega óviðbúnir. Jafnvel mestu og beztu menn Breta- veldis; þeir sem framsýnastir og hyggnastir teljast, létu sér ekki detta neitt slíkt í hug. Edward Grey lávarður, sem manna bezt hefði átt að hafa hugmynd um það sem var að gerast, hefir lýst því yfir sjálfur að hann hafi einskis striðs átt von um langan tima. Það var álitið að Englendingar, Rússar og Frakk- ar í bandalagi, mundu geta ráðið niðurlögum á Þjóð- verjum og Austurríkismönnum á stuttum tima og án mjög mikils mannfalls eða kostnaðar. En timinn hefir leitt í ljós hið gagnstæða. Þjóð- verjar hafa búist undir þetta stríð meira en nokkum grunaði og þarf því á meira liði og tilkostnaði að halda en ætlað var. Hér í Canada, eins og á Englandi, voru menn atíð- vitað ekki við þessu búnir, og skoðuðu það í fyrstu í alt öðru ljósi en þeir hljóta að gera nú. Samt sem áður má svo segja að þegar menn voru búnir að átta sig á því, hvaðan veðrið stóð og hverj- ar voru orsakir þess að þá stæði canadiska þjóðin sem einn maður með einni skoðun og einu takmarki, í því að leggja fram alt það, er mögulegt var brezka ríkinu til liðs í þessu mikla stríði. Pólitískar skoðanir héldu aö sjálfsögðu áfram að vera eins breytilegar og andstæðar og þær höfðu áð- ur verið að öðru Ieyti, en um stríðið urðu menn brátt samdóma yfirleitt. Stjórnmálaforingjarnir voru hliðstæðingar á op- inberum samkomum i sameiginlegri vörn; hversu mjög sein þá greindi á í öðru, þá var þetta þeirra samhygð- armál; hversu snarplega sem þeir skiftust á vopnum á öðrum svæðum opinberra málefna, þá tóku þeir hér höndum saman. Meira að segja hversu ólikar skoð- anir sem þeir höfðu haft á hermálum, var allur ágreiningur lagður niður þegar hér kom. Sambandsstjórnin hafði auðvitað alt framkvæmd- arvaldið i sínum höndum í þessu máli, en andstæð- ingar stjórnarinnar, með Laurier í broddi fylkingar, lögðu fram alt sitt lið til þess að hjálpa stjóminni í því að afskifti hennar af striðinu og framkvæmdir mættu sem mestu til vegar koma. Það var öllum lýðum ljóst að hermálastefnur Bordens og Lauriers upp á síðkastið höfðu verið and- stæðar, þó Borden til skamms tíma hefði fylgt ná- kvæmlega sömu stefnu og Laurier hefir altaf gert. Stefna Lauriers var sú að Canada kæmi sér upp herskipa flota, er landið ætti sjálft, sér til varnar ef á þyrfti að halda, og auk þess rjkinu í heild sinni. Kvað hann Canada þá vera við því búna að ljá móð- urlandinu, Englandi, þessi herskip mönnuð og vopn- uð þeim til liðs ef þörf gerðist. Stefna Bordens eða conservativa aftur á móti var sú að gefa Englandi ákveðna miljónatölu úr ríkis- fjárhirzlunni til styrktar enska flotanum heima á Englandi. Með þvi að smíða skipin hér og eiga þau sjálfir voru Canadamenn að gefa sinni eigin þjóð atvinnu í fyrsta lagi. Hitt að senda féð út úr landinu var að svifta Canadamenn því starfi, sem þeir áttu heimt- ing á að fá og njóta. í öðru lagi var það óendanlega meiri hjálp Eng- lendingum að fá flota frá Canada almannaðan og al- tilbúinn, eins og verið hefði, ef stefnu Lauriers hefði verið fylgt. Englendingar eru engir fátæklingar; þeir þurftu ekki á peninga gjöfum að halda frá frumbýlingunum í Canada; en það hefði komið sér vel fyrir þá að fá mönnuð skip þegar í nauðir rak. Með stefnu Lauriers heföi Canada nú átt i§ herskip á takteinunum og hefði það ekki verið lítil hjálp; en í stað þess vom ekki til nema tvö skip, sem Laurier var búinn að koma upp áður en hann fór frá. Til J>ess að sýna að hér er með rétt mál farið, þarf ekki annað en fletta upp ríkisskýrslunum. Þar sést það að auglýst var eftir tilboðum til þess að smiða herskip fyrir canadiska flotann i júlímánuði 1910; meira en ári áður en Laurier fór frá völdum. Nitján félög svöruðu Jæssari auglýsingu. Stjómin varð að setja ýms skilyrði til tryggingar og voru það aðeins 13 félög sem þau skilyrði gitu uppfylt; síðar kom það i ljós að þau urðu aðeins tíu. Þessum fé- lögum öllum voru sendar upplýsingar; af þeim sendu sjö tilboð samkvæmt settum reglum og sendu banka- ávísun fyrir ábyrgðarfé því er krafist var. Fjórða febrúar 1911 var sent út stjómarbréf við- vikjandi tilboðum undirritað af G. J. Desbarats að- stoðar flotamálaráðherra. Var það í þessu bréfi, sem hér segir: “Fjögur stór hreskip af Bristol flokknum, sem eru heljarstór skipj beztu tegund; ennfremur 6 minni herskip af beztu tegund ætlar canadastjórnin að láta smíða og óskar eftir tilboðum á þeim.. Fyrsta stórskipið verður að vera fullgert innan þriggja ára frá undirskrift samningsins og eitt stórt (crusier) skip á ári eftir það. Tvö hinna smærri herskipa (torpedo) verða að vera fullgerð innan þriggja ára frá undirskrift samingsins og eitt skip eftir það á hverjum 9 mánuðum. Öll eiga skipin að vera smíðuð og fullgerð innan sex ára.” Það var ennfremur gert að skilyrði að skipin yrðu að vera smíðuð í Canada og þar sett upp her- skipasmíða stöð, fullkomin í alla staði. Seinasta til- boð varð að vera komið í hendur stjórnarinnar ekki síðar en 1. maí 1911. Sjö félög buðust tu að taka þessu. Eitt félagið bauðst til að byggja skipasmíða- stöð í Canada, sem kostaði frá $125,000 til $1,500,000. Sjö áreiðanleg félög voru þannig við því búin og til þess fús að smíða flota fyrir Canada með cana- diskum verkamönnum, úr canadisku efni, og í land- inu sjálfu. Sum þessara félaga voru meðal stærstu herskipa smiða félaga í heimi. Til þess að sýna að hægt var að smíða þessi skip hér má geta þess að canadiskt skipasmíðafélag smíð- aði neðansjávarbáta nýlega og reyndust þeir svo vel að fjórir þeirra ferðuðust með eigin afli til Dardanella sundsins, og þykja vera meðal beztu sxipa Danda- manna. Samningunum um skipasmíðina var frestað þang- að til eftir kosningarnar 1911, en þær kosningar voru aðallega um viðskiftasamninginn við Bandaríkin. Þær kosningar fóru þannig að auðvald og kúgunar- afl landsins vann sigur á málefni alþýðunnar. Þegar Borden kom til valda lá það auðvitað beint við að hann héldi áfram með það sem svo langt var komið; en það brást. 1909 hafði Borden flokkurinn ákveðið fylgt þess- ari sömu flotamálastefnu, en Nationalistamir voru henni andstæðir, hann komst að fyrir þeirra fýlgi og var því af þeim neyddur til að ganga gegn eigin lof- orðum. Hann hélt því aldrei áfram með að láta smíða canadiska flotann. Engum dettur í hug að álíta að nokkur landráð eða ótrúmenska af ásettu ráði gagnvart brezka ríkinu eða Canada hafi þar ráðið huga Bordens. Um það efast enginn að hann sé inst í eðli sínu ríkinu trúr; en það voru pólitísku böndin, sem glöptu honum sýn eða leiddu hann þann óheillaveg sem raun varð á. Svo skall stríðið á og þrátt fyrir það þótt ekki hefði verið að faríð eins og heillavænlegast var að undanfömu, þá fanst Laurier það sjálfsagt að taka öllu eins og það var og vinna í einingu með Borden að hermálunum, eins og þau lágu fyrir. Til þess að sýna hversu alment álit Laurier fékk fyrir framkomu sína í því máli má geta þess hvað íhaldsblöðin sögðu um hann þegar hann komst á fæt- ur aftur eftir leguna á sjúkrahúsinu nýlega. Meðal annars birtist þetta í “Montreal Star”, sem er eitt aðalmálgagn conservativa í Austur Canada, 2. októ- ber 1915: “Bati Sir Wilfrid Lauriers og koma hans frá sjúkrahúsinu, veldur almennri gleði í öllu Canadariki. Sir Wilfrid er mikilhæfur og viðurkendur áhrifa- sterkur leiðtogi í opinberum málum. Jafnvel þessi stundarveikindi hans eru svo mikill skaði fyrir þjóð- líf vort, að það veldur hugraun og áhyggjum. Þjóð- in í heild sinni finnur til þess að hana hefir vantað eitthvað; en nú er, sem betur fer, úr því bætt og Sir Wilfrid orðinn heill heilsu aftur. Stefna Sir Wilfrids síðan stríðið hófst hefir ver- ið slik að vinir hans mega vera stoltir af og þjóðin í heild sinni þakklát og ánægð. Hvað svo sem þeir hafa sagt eða gert sem minna. kveður að, þá er það víst að Sir Wilfrid hefir lagt niður alla flokkshugsun og flokksbrellur á þessum alvarlegu tímum. Hann hefir staðið alvarlega og opinberlega stjórn- innii við hlið í störfum hennar til þess að neyta alls afls í einingu þeirri, er stríðið heimtar, og hefir hann hvað eftir annað beitt sinni miklu mælsku og sannfæringarafli tíl þess að hvetja menn til þátttöku í vernd rikisins í þessu atriði, — hefir hann jafnvel lagt heilsu sína í stórhættu til þess að vinna brezka ríkinu ómetanlegt gagn á þennan hátt. Það má svo að orði komast að hahn hafi farið beina leið af stríðs- velli ræðupallsins á hospítalið. Með sína æfilöngu ást á þjóðfrelsisstjóm og ein- staklingsfrelsi hefir Sir Wilfrid ávalt verið reiðu- búinni að berjast gegn prússnesku einveldi. Hann hitti naglann á höfuðið þegar hann sagði þessi orð í ræðu, sem hann hélt í Sherbrooke: “Þetta stríð er orusta milli þýzks og brezks fyrirkomulags: Brezkt fyrirkomulag þýðir frelsi, þýzkt fyrirkomulag þýðir harðstjórn. Það er af þessum ástæðum að vér sem Canadamenn skoðum þetta stríð umfram alt vort stríð.” Þegar stríðið byrjaði fyrst þá lýsti hann því yfir í þinginu að barátta bandamanna væri barátta fyrir frelsi og þjóðstjórn á móti harðstjórn og einveldi. Öll canadiska þjóðin gleðst yfir því að svo ótrauð- ur Iiðsmaður fyrir grundvallarlegu frelsi, er enn þá einu sinni orðinn fær um að taka upp vopnin.” Þessi kafli úr einu allra fremsta blaði conserva- tiva, er aðeins eitt dæmi af ótal sem sýna hversu hæfileikar og einlægni og þjóðhollusta Lauriers er metin, ekki einungis af þeim er honum fylgja, heldur einnig andstæðingum hans. McDonald lögin. Hvað þau gera og hvað þau gera ekki. Eins og kunnugt er lofaði Norris stjórnin því að bindindismenn mættu sjálfir undirbúa lagafrumvarp, er þeir gerðu sig ánægða með um takmörkun áfengis- sölu í fylkinu. Átti svo að bera það frumvarp undir atkvæði fólksins, við fyrsta tækifæri. Það er mönnum 'eirmig ljóst að bindindismenn hafa þegar ákveðið þá stefnu, er þeir taka í þessu máli, og er hún sú að biðja um þau lög staðfest, er þeim var lofað fyrir 15 árum, en J>eir voru sviknir um. Þau lög eru kend (við Hugh John McDonald sökum þess að hann var þá stjómarformaður í Manitoba. Lögin eru löng, eins og gefur að skilja og því ekki sem auðskildust; auk þess eru þau ekki í allra hönd- um; margir hafa, ef til vill, áldrei séð þau. Nú er það áríðandi, að það sem atkvæði á að greiða um sé ljóst í hugum fólksins, svo ekkert sé um að villast. Þess vegna hefir siðabótafélag Manitoba dregið saman í stutt atriði og auðskilið alt það sem lögin gera að því að takmarka vínsölu, og eins það sem þau gera ekki. Þess ber vel að gæ;ta að lögin eru ekki algerð vínbannslög. Þau fara eins langt í þá átt og lög geta farið, en fylkið hefir ekki heimild til þess að semja algerð vínbannslög, þótt ótrúlegt sé. Það er sam- bandsmál og utan valdatakmarka fylkisstjórnarinnar. Það sem hér segir, er það sem lögin gera. 1. Bannar öllum að selja áfengi innan fylkis, nema lyfjasölum. 2. Afnemur þar af leiðandi alla vínsölu á öllum gistihúsum (hótelum), í skemtifélögum (clubs) og heildsöluhúsum. 3. Leyfir að áfengi sé selt sem meðal, til iðnaðar og efnafræðisrannsókna, og til altarisgöngu. En það verður að vera selt í þessu skyni aðeins í lyfjabúð- um. 4. Leyfir sjúkrahúsum og sjúklingum eftir læknis- ráði að hafa áfengi um hönd. 5. Leyfir læknum og meðalafræðingum að kaupa áfengi til notkunar. 6. Leyfir húsráðendum að hafa áfengi á heimili sinu til prívat nautnar; því aðeins þó að það sé ekki keypt innan fylkis. 7. Bannar að hafa áfengi þannig í gistihúsum, skemtifélögum, verzlunarstöðum, sknifstofum, og svo framvegis. 8. Ákveður þunga refsingu og sekt þeim sem lögin brýtur. Það sem lögin gera ekki. 1. Banna ekki tilbúning áfengis í fylkinu. Til þess hefir fylkið ekki vald, það er í höndum sambands- stjórnarinnar. 2. Bannar ekki flutning áfengis inn í fylkið frá öðrum fylkjum eða öðrum löndum. Það er einn- ig utan valdatakmarka fylkisstjórnarinnar, en í hóndum sambandsstjórnarinnar. En engum er heimilt að selja það nema lyfjafræðingum. Þetta eru aðalatriði laganna. Þótt þau séu ófull- komin að ýmsu leyti, þá fara þau eins langt og fylkið hefir vald til. Þau hafa verið reynd lögfræðislega fyrir hæstu dómstólum ríkisins og staðist þá. Þess vegna er ekki hægt fyrir vinsalana að tefja fyrir því að lögin komist i gildi með hártogunum eða mála- rekstri og þau hafa verið samþykt af öllum bindind is- og siðabótafélögum fylkisins. Þau verða borin undir almenn atkvæði í marzmánuði næstkomandi, og er það þá um að gera að allir bindindisvinir og brennivínsandstæðingar verði samtaka. Aðalhættan er fólgin í því að menn verði of vissir um sigur. Traust er gott og nauðsynlegt, en oftraust er skaðlegt og hættulegt. Þess mega bindindismenn vera vissir að vínsalar neyta allra bragða til þess að fella lögin við atkvæðagreiðsluna. Þeir eru þektir að því að láta sér ekki alt fyrir brjósti brenna 0g má búast við öllum hugsanlegum og óhugsanlegum brell- um við atkvæðagreiðsluna í vor. Er því áríðandi að standa setn einn maður og beita öllum þeim heiðar- legur áhrifum sem til eru máli sínu til sigurs. Fyrst og fremst þurfa allir bindindismenn að vera á sama bandi; i öðru lagi þurfa þeir að hafa öll ærleg áhrif á aðra og í þriðja lagi er um að gera að þeir allir komi á atkvæðisstaðinn. Skömm fyrir Canada. 8,562 hestar voru keyptir í einu til stríðsins í fyrra haust. Af þeim voru aðeins 6,700 í þolanlegu ásig- komulagi þegar til Englands kom. 481 voru seldir á uppboði í Quebec fyrir sama sem ekki neitt, en fjölda marga varð að drepa, því enginn vildi þig*gja þá fyrir neitt. Sumir hurfu og hafa aldrei fundist. í þingskýrslum Englands (Hansard) 10. marz 1915 á bls. 1406, stendur þetta: Mr. Rendall spurði aðstoðarhermálaritarann hvort hann viti að hermála- deildin hafi um nokkurn tíma heimilað slátrunarhús hesta í viðarbyggingum meðfram aðalveginum frá Avonmouth til Shirehampton; hvort hanrx vm ao ýldulyktin af hrossskrokkunum sé stöðug og berist langar leiðir, svo að ómögulegt sé að fara eftir vegin- um án þess að anda að sér heilsuspillandi lofti. Hvort hann viti að landfarsótt af illkynjaðri hálsveiki hafi átt sér stað í Avonmouth, sérstaklega meðal skóla- bama, sem verði að fara framhjá þessu stúrhýsi dag- lega; og hvort hann geti séð svo um að slátrunarhús- ið verði flutt í burtu lengra frá veginum. Mr. Tennant svaraði þannig: “Slátrunarhúsið sem um er að ræða, sem er aðeins bráðabyrgðar bygging, varð að vera bygt hjá góðum vegi, og það eins fljótt og hægt var til þess að geta tekið á móti hestunum sem varð að drepa þegar þeir komu frá Canada.” Sumir hestamir voru haltir, aðrir meiddir; sumir tannlausir, aðrir eineygðir. Sumir voru milli þrítugs og fertugs að aldri — J>ó ótrúlegt sé þá sannaðist það fyrir rannsóknarrétti. En J>eim er ekkert hegnt, sem seldu og sviku og stálu. NORTHERN CROWN BANK A»ALSKRIFSTOPA í WINNTPEG Höfuðstóll (löggiltur) ~ - $6,000,000 Höfuðstóll (greiddur) - - - $2,850.000 STJÓRNKNT>TJR : Formaður.........._ - - Slr I>. H. McMILLAN, K.C.M.G. Vara-formaður - -- -- -- -- Capt. WM. ROBINSON Sir D. C. CAMERON, K.C.M.G., J. H. ASHDOWN. H. T. CHAMPION W. J. CHRISTIE, A. McTAVISH CAMPBELL, JOHN STOVEL Allskonar bankastörf afsrreidd. — Vðr byrjum reikninsra við ein- staklinsra eða félös off sann*;jarnir skilmálar veittir. — Avísantr aeldar til hvaða staðar sem er á Islandi. — Sérntakur saumur Kefinn sparl- sjóðs innlögum, sein byrja má með elnum dollar. Rentiir lasrðar vlð á hverjum sex mánuðum. T E. THORSTEINSSON, RáSsm»iiur Gor. William Ave. og Sherbrooke St., Winnipeg, Man. THE DOMINION BANK Mr KUMtiNU B. IIUI UI. X P., frr» H. U. MATTHKWS ,-VlM-l'rm C. A. BOGERT. Generai Managnr. Stofnsjóður..................$6.000.000 Varasjóður og óskiftur gróði.. . . $7,300,000 SP/ÍRISJODSDEILD er ein deildin I öllum útibúum bankans. par m& ávaxta $1.00 eSa meira. Vanalegir vextir greiddir. I>aS er óhultur og þægilegur geymslustaður fyrir spari- skildinga yðar. Notre Dame Branch—W. M. HAMILTON, Manager. Selkirk Branch—M. S. BURGF.lt, Manager. St. Louis Fur&Hide Cd. 736 Banning St., Winnipeg t Sendið oss húÖir yðar kálfskinn og kindarskinn, ull og alskonar loðskinn. Vér getum borgað yður allra hæsta verð og borg- um út í hönd við móitöku. Vér kaupum lifandi hæns endur, gæsir, tyrkja, smjör og ejjg einnig slátruðsvín Um allar upplýsingar sem þér ósk- ið eftir má skrifa oss um á ísl. og vér svö um á yðar eigin máli. Nefn- ið Lögberg þegar þér skrifið. Prívat veðurathuganir á hverju heimili Áreiðanlegur veðurmael ir, nákvæmur hitamæltr. Rétt stærð er 13 þml.á hæð óhjákvæmilegt hjá öllum bændum, verzlunarmönn- um, embættismönnum.bif reiðarmönnum, í stuttu máli öllum sem ættu að vita fyrirfram hvernig veðrið verði. Sparar bæði peninga og tíma V e ð n r m æ I i r sem spáir v-ðri mörgum klukkustundam fyrirfram Aðeins $2 var áður $3 Sama verð í allri Canada og Ðandaríkj- um. Fyrirfram borgun. Sendið $2,00 í póstávísu^i eða “Ex- press” ávisun eða í trygðu bréfi og verður þá hitamælir sendur tafarlaust. Alvin Sales Co. Dept. 24 - P.O. Box 66 WINNIPEG, CANADAl “Ví»t er það skrítið, en satt er það samt.” Eitt af aöalumrætSuefnum bæjar- ins og blaöanna um nokkra daga að undanförnu, hefir verið að- finningarræða, sem Robson dóm- ari hélt um ráðsmensku bæjar- stjómarinnar. Ræðan var flutt fyrra mánudagskveld á fundi verzlunarmannafélagsins. Komst hann að þeirri niður- stöðu að bænum væri svo ráSlaus- lega stjómaS í flestu tilliti, aS ekki væri viS unandi. Bærinn ætti ýmsar gróðastofnanir, sem ættu að gefa af sér stórfé, ef skaplega væri á haldið, og væri regluleg auðsuppspretta ef þær væru í hagsýnna manna höndum. En í stað þess kvað hann flestar þessar stofnanir annaShvort vera þungar ómagabyrgðar á herðum gjaldenda eða gersamlega arðlaus- ar, þegar bezt léti. r.t ekkí væri hér um óráðvendni að ræða, kvað hann það liggja í augum uppi að það væri ráðleysi, óstjóm og skortur á hagsýni, sem drægi bæ- inn árlega niður í hyldýpi skulda og skatta. Robson dómari kvað nauðsyn aS skifta um ráðsmenn, sópa og hreinsa: “Hér er brýn þörf á nýjum vöndum,” sagði hann. Enn fremur lagði hann það til að skipuð væri rannsókn á með- ferð t>æjarfjár. Slóðaskapur, þekkingarleysi, eftirlitsskortur og deyfð sagði hann að væri alráS- andi í bæjarstjórninni og Jæir, sem þar ættu sæti, alls ekki verk- inu vaxnir í neinum skilningi. OrS dómarans voru eins og eld- ur í sinu. Sumir stukku upp til handa og fóta af gremju og reiði og kváðu þetta sleggjudóm, á eng- um sönnunum bygðan. A'örir tóldu dóminn réttan og þetta orð í tíma töluS. Yfir höfuB vakti ræSan af- armikla eftirtekt, og ekki ólíklegt aB hún hafi alvarlegar afleiSingar að einhverju leyti. Robson stendur betur að vigi að vita um hvað hann talar, en flestir aðrir í þessu efni. Hann hefir verið umboSs- og úrskurðar- maður opinberra stofnana hér i fylkinu, og þannig gefist kostur á nánari rannsókn en alment gerist. Það er því tæplega hægt að huma fram af sér dóma hans eða ákær- ur. Viti bæjarstjórnin sig seka um það sem henni er boriB á brýn, þá er hætt við að henni verði ekki um þaS að láta rannsaka, eins og Robson stakk upp á; sé hún aftur á móti saklaus af ákærunum, þá yrði það að sjálisogou hennar fyrsta verk að heimta rannsókn tafarlaust; en það hefir hún ekki gert enn þá að minsta kosti. En þaS sem er skrítnast og samt satt í sambandi viS þetta mál, er þaS að landi okkar Ami Eggertsson flutti hér um bil sömu ræðuna á kjósendafundi í Weston, viku áður en Robson kom með hana. AuSvitaS vom orö og setningaskipun mismunandi, en á- kærumar og staShæfingamar, og rökin og tillögumar nákvæmlega eins. Er enginn efi á þvi aS þessi ræða Robsons verður Áma til ómetanlegs stuðnings við kosning- arnar; og það af tvennum ástæð- um. í fyrsta lagi vekur hún grun um ódugnað ef ekki óráðvendni þeirra, sem nú standa fyrir bæj- armálum, og sýnir mönnum þann sannleika að hollara muni að skifta um. Arni hefir því miklu betra tækifæri til þess að ná kosningu, einmitt fyrir þá sök. í öðru lagi sýnir þetta ljóst og áþreifanlega hversu glöggskygn og framsýnn og djarfur maSur er í kjöri þar sem Ámi Eggertsson er, kjósendur minnast þess að hann hreyfði fyrstur þessu stóra máli og fékk með ræðu Robsons stað- festingu eins áhrifamesta dómara ríkisins fyrir því að orð hans hafi verið sönn og tillögur hans skyn- samlegar. ÞaS er skrítið, en samt er það satt, að reynt var að humma fram af sér með þögninni ákærur og til- lögur Árna. Líklega ekki ein- göngu af því að hann er íslend- ingur, en sjálfsagt meðfram. AS- allega hefir það auðvitaS verið fyrir þá sök aS hlutaðeigendur vissu sig seka og þagnardauðinn er þess konar málum altaf þægi- legur. En þegar J>ögnin var rof- in af rödd, sem allir urðu að heyra, þá var ekki hægt að sofa lengur og það varð að reyna mót- mæli. En öll mótmæli eru árang- urslaust; sekir menn játa aldrei nema þeir séu neyddir til þess með rannsókn. Rannsókn er því það sem bæjarmenn etga að krefj- ast; og rannsókn er það sem stjórnendur bæjarins eiga að krefjast, ef þeir vita hendur sínar hreinar. I

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.