Lögberg - 23.03.1916, Side 2
1 3 lausaleiks krakkar.
Harðstjórinn á hundalestinni.
Ó, lifseiju dýr, sem aö lappiS um fold
með lafandi tungur af mæði,
svo mögur og bólgin, þvi marið er hold
og merg'.aus af ónýtu fæði.
Þið íliö og veinið af angist og pín
meö andlit n þrútin af harrni,
þau sanna þaö, maður, að samvizka þin
er sofandi á helvítis barmi.
Og áfram þú keirir meö ólátum þeim
sem undrun og hneixlunum valda,
þá blóðstorknu hun 'a sem bera þig heim
um brautina hrjóstruga og kalda.
í hálfmilu fjarlæjö má heyra þitt blót
og höggin frá keirinu ’anga,
en skepnurnar auglýsa illvirkin ljót
er augun úr höfðunum ganga.
Og aldrei þú leyfir þeim augnabliks dvöl
frá uppruna sólar til nætur,
ef Jeggjast þeir niður af lúa og kvöl
|>ú lemur þá aftur á fætur.
Þvi vægöar er al.lrei að vænta frá þér
er vonskan í hjartanu svellur,
og þjakaðar skepnurnar þrælmenatð ber
já, þar til hin siðasta fellur.
I*ú heldur að skaparinn heyri ekki það,
að hálfdauðar skepnurnar kveina
og vijli ekki sjá þeirra blóöuga bað
og böivun þér tak st að leyna.
En það getur svikið þinti synduga mann
er santvizkan kiagað þig hefur,
því Itart er að deila viö dómarann þann
sem dóminn að siðustu gefur.
Kveðja.
Ear vel á braut. þú gamia góöa ár
þin glaða. bjarta sól er rttnnin undir,
far vel með gleði, brot og brennhcit tár
og beztu þakk r fyrir allar stundir.
Eg sé hvað tíniinn hratt á brott |>ig ber,
eg b'essa þig og geynti i fersku ntinui
og þegar kyrlátt kvöldið siðsta |>ver
þig kveðja vil sem bróðir hinsta sinni.
Svikul ást.
Illa hve sttmra samleið fer
sorglegt |>að virð st mér.
Illmæ'gi og brixl sem aldrei þver
ávexti dauðans ber,
Enginn |>ar gleði geisla sér,
grát’.eg er hörmung slik,
þar sem að blessuö ástin er
útskriðin götótt fhk.
Þeir sem að hafna heill og frið
heimilum sinum á,
basl og hörmúngar búa við
biessun guðs langt í frá,
getle ðir rata grýtta leið
grátandi í vöku og dúr,
umkringdir böl og allskyns neyð
alþrotið kærleiks búr.
pað veit á gott, þá gamli afi syngur.
Vísa þessi er vinsamlega tileinkuð öltum
íslenzkum kaffikonum.
Lag: Hva8 er svo glatt o.s.frv. ,
Lag: “Hvað er svo glatt’’ o.s.frv.
Það veit á gott, þá gam’.i afi syngur
því góðan dreitil þá hann ætlar mér
ég 1 fna og hýma, leik við hvern minn fingpir
er Ijúfan sopa ég að vörum ber.
Þó viti menn að margt er það að sönnu
sem mönnum veitir gleöi, fjör og yl,
Þá ann eg mest þeim Katli gamla og Könnu
sem kaffið góða ávalt hafa til.
Kaffiketilinn ka!la eg afa, því Ketill hét afi höfundar.
Kenning liðinna alda.
Samkvæmt þýðing S. E. i Lögbergi.
Minna af Bakkusi, meira af auði,
meira af húsnæð , fatnaði og brauði,
meira af he lbrigði og heimilis friði,
meira hreinlæti að búa við.
Minna af Bakkusi, meira af .vinnu,
meira af heilbrigðri, vakandi sinnu.
M nna af eitri og andlegri sýki
eflir kærleikans ríki.
Hollari en ölið er álitið núna
ánægja og hvíld, fyrir gigtveika og lúna
Meira af siðfágan, minna af öli
mennina læknar af a!ls konar böli.
Meira af lífsþrótt og menn ngar andanum,
minna af trausti á Bakkusi og f jandanum.
Minna af öli og minna af sýki,
meira af himnaríki.
Minna af ö!i er minna af glæpum,
minna af ráni og spillingar knæpum.
Minna af blótmælgi, lastmælgi og lýgi
og löstum á versta stigi.
Minna af rifrildi, moéðum og kukli,
minna af áflogum, lauslæti’ og þukli,
minna af slæpingjum, minna af spýjum
og mannfé'.ags svína stíum.
M'nna af ekkjum og munaðarleysingjum,
minna af flakkandi, sníkjandi letingjum.
Minna af guðleysi og grátandi konum
og gremju af sviknum vonum.
Minna af slösuðum, viltum og völtum,
voluðum öreigum, blindum og höltum.
Minna af öli, en meira af dölum,
m nna af helvítis kvölum .
Minna af Bakkusi, meira af viti,
meira af háfleygtt. andlegu striti.
Meira af htigsjónum, menningu og fræðum,
meira af frelsi og eilífum gæðum.
Meira af kærleika og sólsk'ni í sál
sendi oss hamingian friðar mál,
útrýmum Bakkusi, bö'i og sýki
og búurn oss himnaríki.
V. J. Guttormsson.
Nýtt landnám.
Eftir Jón Dtíason.
Niðurl.
Eins og kunnugt er þí er Græn-
land nú dönsk nýlenda. Stórveldin
hafa viðurkent rétt þeirra til mest-
allrar vesturstrandarinnar og parts
af austurströndinni sunnan til,
samtals 14,000 herhymings mílur.
Aðr!r hlutar landsins eru ekki við-
urkendir neins eign. Það er okk-
ur mikið lán, að Grænland er í
höndum Dana, norrænnar þjóðar,
en ekki i höndum annara oíbeldis-
seggja. Danir stjórna landinu ekki
sem viturlegast, og Skrælingjar,
sem drápu frændur vora vopn'ausa,
eru öllu eyðandi vi'.l lýður. Danir
reka á Grænlandi kryolit- Og kop-
arnámur og er hvorttveggja gróða-
fyrirtæki. Á einokunarverzluninni
1 hafa þeir aftur á móti tapað, þrátt
fyrir það, að útflutningurinn er alt
að því helm'ngi meiri en innflutn-
ingurinn til Grænlands 1912, inn-
flutningur til námufélaganna og
útflutningur frá þeim ekki talinn
með. Samt er tekjuafgangur, af
því námufélögin greiða mikið fé!
fyrlr aö fá að reka námumar. Gott
sýnishom af ráðslaginu er það, að
æðarfuglinn fær ekki að lifa og út
eru flutt ein 160 kg. af dún 1912,
álika og frá einu eða tveimur varp-
heimilum á íslandi.
Dönum hefir þannig ekki orð'ð
mikið úr Grænlandi. Því verður
þó ekki núið þeim um nasir að þeir
séu óduglegir. Væri það þvi
drengilegt af okkur að hlaupa und-
j ir bagga og hjálpa til að rétta hag
Grænlands við. Að Dönum hefir
ekki orðið meira úr Grænlandi gæti
helzt stafað af því, að löndin eru
svo ólík að atvinnuvegir Dana em
lagaðir eftir alt öðrum staðháttum
en þeim, sem eru á Grænlandi. Þar
á móti mundu atvinnuvegir okkar
eiga þar vel við, þótt þeim sé í
ýmsu ábótavant. Til fiskiveiða
kunnum við vel og betur mörgum
öðrum þjóðum. Æðarvörpunum og
fuglavörpunum ættum við að geta
komið í gott lag. Inni í dölunum
ætti að geta risið upp blómleg nor-
ræn bygð, og íslenzkt búfé mundi
una sér þar vel. Ekki er ólíklegt,
að Danir gætu stutt á ýmsan hátt
að viðreisn Grænlands. Danir em
að verða iðnaðarþjóö, en iönaður
á mikla framtíð fyrir sér á Græn-
landi. í vcrzlun mætti og nokkurs
af þeim vænta. Mestan gróða gæt-
um við haft af Grænlandi af því
að reka þar grávöruframleiðslu,
halda þar hálfvi.tar hjarðir af
hreindýrum, moskussauðum o. fl.
Það er ástæða til að halda, að
Danir mundu taka þessu máli vel.
Danir eru óágengnastir allra Norð-
urlandaþjóða. Þeir hafa stöðugt
haldið því fram, að þeir vilji ein-
ungis styðja velferð Grænlands, en
hvorki þrælka það né gera að fé-
þúfu. Það hefir jafnvel komið til
orða að gefa landinu sjálfstjóm.
Tilgangur okkar með landnámi á
Grænlandi gæti ekki verið nema að
tryggja það, að Grænland verði
norrænt land í framtíðinni, frænd-
land okkar líkt og Danmörk, Nor-
egur og Svíþjóð. Jafnvel þótt
þróunin í landinu héldi áfram á
sama hátt og hingað til undir yfir-
rlðum Dana, og hvorki Englend-
ingar, Ameríkumenn eða Rússar
tækju það, em engar líkur til, að
landið yrði norrænt. Varla gæti
ísleridingi komið til hugar, að við
ættum að leggja landið undir okk-
ur eða hneppa landa okkar þar í
einskonar ánauð.
Þjóð eins og Frakkar, sem fjölgar
ekki og flytur ekki úr landi, en
berst samt fyrir nýlendum, hún
berst fyrir þeim mest til þess að
geta lagt fé þar í fyrirtæki, fé, sem
fólkið í landinu hefir sparað, en
ekiki er hægt að haenýta sér heima
i landinu. Ef við hygðum á að
nema ný lönd, ætti tilgangurinn
með þvi að vera sá, að veita út-
flytjendum úr landinu nýtt heim-
kynni, þar sem þeir geta haldið
áfram að vera íslendingar eða þá
ný norræn frændaþjóð, að opna
ósjálfstæðu og eignalausu fólki
möguleika til að verða efnað og
sjálfstætt í nýja landinu, og greiða
útflytjendum frá öðrum Norður-
löndum götu. Hugsum okkur, að
allar þær þúsundir, sem farið hafa
til Canada, hefðu 1 stað þess farið
til Grænlands. Þeir væru þar ís-
lenzkir Grænlendingar og yrðu það
um óyfirsjáanlega tið, en nú er
haldið, að ís’.endingar í Canada
verði orðnir enskir eftir mannsald-
ur, týndir og tröllum gefnir.
Menning okkar er þannig, að við
emm vel fallnir til að vera braitt-
ryðjendur og ganga á undan öðr-
um Norðurlandaþjóðum í að nema
lönd. Fyrst í stað þurfum vér ekki
annað en rekja slóðir fcðra vorra.
En svo þarf að setja markið hærra.
Vestur af Græn'andi em ónumin
lönd. f einu þeirra fann Vilhj'dm-
ur Stefánsson hvíta menn, sem
lifðu á Skrælingja visu. Hann
þóttist þar kenna landa sína og
hugði. að það væru afkomendur ís-
lendinga, sem flúið hefðu af Græn-
landi og ætlað til Vínlands. Reyn-
i«t þetta rétt. ber okkur að rækja
við þá frændsemi á drengilegan
hátt og gefa þeim aftur alt, sem
þe r hafa mist.
íslenzkt landnám ætti einnig að
hafa efnalegar afleiðingar. Fram-
leiðsla okkar er mjög einhl ða, svo
fiestar lifsnauðsynjar þarf að flytja
og kaupa frá útlöndum. Hve lítið
sem úr þessu væri bætt, væri það
bót, sem gerði okkur ofurlítiö
sjálfstæðari. Þetta er sérstaklega
tilf nnanlegt með vöm eins og kol,
sem ekki er aðeins nauðsynjavara
fyrir vaxandi fjölda af heimilum,
heldur og vara, sem skip landsins
geta ekki ánverið. Vanti kol verða
öll fyrirtæki, sem rekin eru meö
gufuafli að hætta, sk p og vélar
ryðga, en fólkið sveltur vinnulaust.
Þótt kol séu fáanleg geta þau samt
orðið svo dýr, að það sé til mikils
baga, og að menn verði að láta skip
og verksmiðjur ganga þrátt fyrir
mikið tap, af því það yrði enn
meira tap að hætta rekstrinum.
Almenn ngur fær auðvitað að una
sér í kuldanum, þegar kolin em
orðin “ókaupandi”. Þessi styrjöld
og reynsla undanfarandi ár ætti að
hafa kent mönnum nokkuð í þessu
efni. Árið 1912 voru flutt inn kol
fvrir 2 milj. kr. Var það tæpum
helminga meira en 1909. Við höf-
um því þörf fyrir nýlendu, sem
gæti blrgt okkur að kolum, svo
kolavandærðin væru úr sögunni.
ísland er fossaland. Ómælanleg-
ur er kraftur þess vatnsþunga, sem
steypist frá hæðunum niöur í djúp-
ið. En “not” fossanna eru “falin”.
Það vantar fé og þekkingu til að
beizla þá. En þótt við elgðum við
fossana og létum þá sjóða fyrir
okkur matinn, hita og lýsa híbýlin,
plægja jörðina, sá, slá og raka,
knýja fram jámbrautarlestir, reið-
ar og sporvagna, þá er alt þetta lítil
vik handa slíkum bergrisum. Full-
kominn starfa fáum við fyrst
handa fossunum þegar við förum
að nota þá til að reka verksmiðjur,
og þó ekki sé vert að gylla þessa at-
vinnugreln, er ekki heldur rétt að
loka augunum fyrir þessum sann-
leika. En til iðnaðar hefir ísland
varla neitt netna vatnsaflið. Væri
bætt við fsland málm og kolaauð-
ugri landspildu, sem verði þessarar
landspildu næmi, þvi þá væri feng-
inn möguleiki til þess, að alt vatns-
afl landsins gæti komið að notum,
og af því mundu fossarnir og alt
gamla landið hækka i veröi. Við
þetta ynnist skilyrðltlaus, að fleira
fólk gæti lifað í landinu. Að verð-
hækkun landsins komi þjóðinni að
notum er ekki víst. Eigi einstakir
menn jörðina (náttúrunaj, er af-
le ðingin af verðhækkuninni sú, að
fólkið verður að greiða hærri jarð-
rentu en áður. Þetta er þó öfug
framsetning, af því jarðarverðið
er jarðrentan metin til höfuðstó’.s.
Ef þjóðin vill ekki að alalr fram-
farir og umbætur verði að meira
eða minna leyti hrís á hana sjálfa,
verður að afnema jarðrentu og alla
elnokunarrentu. Hvað jarðrentuna
snertir verður það gert á þann hátt
aö leggja skatt á jarðarverðiö, sem
er jafn stór jarðrentunni. í hug-
takinu “jörð” felst engin verk eða
umbætur gerðar af manna höndum.
Árið 1194 gerðist sá merkisat-
burður, að íslendingar fundu Sval-
barð. Það heitir nú Spitzbergen.
í fornöld var talin fjögra daga
sigling þangað norður í hafsbotn.
Stendur það alt helma. Síðan
sýndist svalbarð, en fanst aftur í
Iok 18. aldar af HoIIlendingum. Þá
hófust þar miklar hval- og rost-
ungaveiðar og stóð sú tíð yfir 100
ár. Þá var hvalnum að mestu út-
rýmt, en selur einn eftir. Englend-
ingar og Holelndingar keptu um
veiðina. Danakonungur kallaði sig
eiga landið, því það var í upphafi
hald manna, að Svalbarð væri áfast
við Græn’.and. Kristján IV. sendi
þangað herskip til að sýna veldi sitt
og gæta hagsmuna ríkisins. Danir
tóku þátt í veiðlnni. í lok 18. ald-
ar tóku Norðmenn að stunda sel-
veiðar við Svalbarð og gera þaö
enn.
Svalbarð er eyjaklasi á milli
76%° og 80y2° nbr. og 10I0 til
28° austl. Flatarmáilð er 68.000
ferhymings km. ? — eða lítið stærra
en hálft ísland. Flóastraumur
rennur vestan um landið, svo að
loft og sjór eru miklu hlýrri en
búast mætti við eftir breidarstigi.
Stærsta eyjan er Vestur-Svalbarð.
Hið innra af landinu er hulið jökli,
en strendumar eru víðast auðar.
Að vetrinum lykur ís um allar eyj-
arnar, en frá því apríl—maí og
þangað til í október—nóvember er
sjórinn við vesturströndina íslaus.
Jurtaríkið er ærið fátækt. Af
alnddýrum er ísbjörn, heimskauta-
refur og harðgerð hreindýrategund,
sem vert væri að flytja 11 íslands.
En þessum dýrum hefir fækkað
eins og spendýrum í sjó. Af fugli
er mikið, einkum æðarfugl og
bjargfugl. Hafið er grunt og auð-
ugt af fiski. Síld, loðna og gol-
þorskur vaða þar ístórum torfum.
Ileil.agfiskis og hákarlamið eru
ágæt. Mest er þó vert um gæði
þau, sem eru í jörð á Svalbarði.
Land ð er mjög gamalt að mynd-
un. Lítið eitt er bvgt af eldgömlu
graníti og gosgrjóti. Hitt hefir
myndast i vatni. Þrívegis hefir
landið hafist yfir sjávarflöt og frá
öllum þessum tímabilum finnast
þar kolalög hvert yfir öðru; kola-
lögin eru geysi þykk og víðáttu-
mikil og gæði kolanna eru að sama
skapi.
Víðátta kolalaganna er víst lítið
amnsökuð. “Berlingske Tidende”
flutti 1914 frétt um að sænskur
námufræðingur, sem stjórn Svía
hefði sent til Svalbarös, heföi kom-
ist að því, að í sænska hlutanum
einum væru meiri kol en á öllu
Bretalndi. Sama ár flutti sama
b!að frétt um að norskt félag hefði
kastað eign sinni á alt það svæði á
Svalbarði, þar sem fundist hefði
gull í jörð, og þar sem líku rværu
til að fyndust gimsteinar. Líklega
er hér tát við norð-austur hluta
Svalbarðs, sem er e’.dgamalt að
myndun, en hvoruga þessa frétt
hefir höf. átt kost á að rannsaka
og þær eru því settar hé reinungis
sem blaðafréttir, en ekki sannleiki.
Kolanámurnar var byrjað að
vinna 1899. Bezt gengur vinnan
hjá amerísku félagi í Advent Bay.
Það hefir hagað öllu, sem rekstr-
inum viðvikur, mjög snildarlega.
Kuldinn er ekki meiri en svo, að
hægt er að vinna að vetrinum.
Loftið er mjög heilnæmt og svo
gerlasnautt, að flegin bjarnahræ
hafa legið úti árum saman án þess
að geta rotnað. Hjá ameriska fé-
laginu hefir kaupið verið 6—15
krónur á dag. Gröfturinn ætti að
geta borið sig með hærra kaupgjaldi
Margir sem flytja til Ameríku fara
þangað upphaflega í þeim tilgangi
að safna peningum til að geta byrj-
að sjálfstæða atvinnu heima á Is-
landi. Svalbarð væri land fyrir
þá. í Ameríku reynist vinnan
stopul, vinnulaununum stundum
eytt í solli, svo framundan liggur
ekki annað en strit og fátækt. Á
Svalbarði e rvinnan stöðug og ekk-
ert færi á að eyða. Námufélög, sem
stofnuð hafa verið í ýmsum lönd-
um, hafa kastað eign sinni á kola-
svæðin. Norðmenn, Svíar, Rússar,
Þjóðverjar, Englendingar, Ame-
ríkumenn og ef lil vill fleiri eigi
þar námur.
Þú getur rétt til, að mörg þjóð
muni ágimast Svalbarö. Það er
fyrsta heimskautalandiö, sem tekiö
er til skifta. Þegar hvalveiðin var
á þrotum, hugðu menn Svalbarð
vera einskis virði og engin þjóð
kærði sig um það. 1870 gerðu
Norðmenn kröfu til þess, en Rúss-
ar vi’.du ekki viðurkenna eignarrétt
þeirra. Norðmenn fylgdu málinu
ekki fast fram, ef til vill af þvx, að
sami lúa hugsunarhátturinn hafi
ríkt þar og á íslandi, að menn megi
ekki seilast út fyrir landsteinana,
meðan nokkur blettur sé ónotaður
heima. Eftir aldamótin var svo
málið vakið upp á ný. Eftir að
námugröftur byrjaði, hefir skortur
alga og framkvæmdarvalds verið
mjög bagalegur. Námufélögin
deila um réttindi sín hvert við ann-
að. Námumenn og veiðimenn
ganga hver á annars hlut, og menn
geta yfirleitt leyft sér hvað sem
vera skal. Nú hafa stórveldin
komið sér saman um að Svalbarð
sku’.i vera “terra nullius” þ. e.
einskis land. Norðmenn vildu, að
sér yrði falið að halda þar uppi
lögum og rétti, en þess var þeim
ekki unnað, af því búist var við,
að þá fengju þei rof mikil tök á
landinu. í þess stað var sett
þriggja manna nefnd til að annast
þetta, einn frá Noregi, annar frá
Svíþjóð og þriðji frá Rússlandi.
Næsta nefndarfundi er frestað
þangað til ófriðnum er lokið.
Auðvitað er þessi nefnd vand-
ræðastjórn, og málið hlýtur að fá
annan enda. Að vísu gætum viö
ekki kept um Svalbarð á móti
Norðmönnum eða Svíum. En nú
eru varla líkur til, að annari hvorri
þessari þjóð verri unnað eyjanna.
Þar á móti er ekki óhugsandi, að
okkur yrði unnað þeirra, eða að
minsta kosti falið að halda þar uppi
lögum og dæma mál manna. Við
íslendingar erum engin stórþjóð
og ekki líklegir til stórræða í aug-
um heimsins. En stórþjóöir hafa
oft unnað smáþjóðum þess, sem
þær liafa ekki getað unnað hvor
annari. Við gætum ef til vill
fengið lið Svia og Norðmanna til
þessa máls, því að hugsun okkar
ætti að vera að styðja hagsmuni
þeirra á Svalbarði og jafnframt
gera okkur aðnjótandi gæða lands-
ins þeim að meinalausu. Mál þetta
verður utanríkisráðaneyti Dana að
reka fyrir okkur og af Dönum er
góðs að vænta, af því okkar hagur
er ríkislns hagur, meðan við erum
bandamenn þeirra, af því Danir
koma sér vel við allar þjóöir, og
af því við eigum vel skilið að fá
nokkra uppbót fyri rþað tjón og þá
erfiðleika, sem við höfum hlotið af
ófriðnum. Sú skoðun, sem breið-
ist meira og meira út, að Norður-
álfuþjóðir eigi að halda saman, ætti
að greiða götu þessa má’.s, eins og
hreifingin er hin viturelgasta í
sjálfu sér og hefir fylgi allra hinna
beztu manna. Saga tveggja hinna
síðustu al !a gengur út á það, að
skyldar þjóðir hafa sameinast, að
ríkin hafa stækkað við landvinn-
inga og landnám og náð yfir stærri
fjarlægð en áður hefir þekst, án
þess þó að á þeim sjáist nokkur
HEIMSINS BEZTA
MUNNTÓBAK
Kaupmannahafnar
Hefir góðan
keim
Munntóbak sem
endist vel
Hjá öllom tébakssölum
dauðamörk. Að ríki geta verið
svona stór er að þakka samgöngu-
færum vorra tíma. I fornöld urðu
konungar aö hafa jarla, af þvi erf-
itt var að komast milli landshlut-
anna og þessi hindrun mun eiga
mestan þátt í því, að Norðurlönd
uröu ekki eitt ríki þegar í fornöld.
Skifting Norðurlanda hefir verið
ógæfa norrænna manna alt frá elztu
tímum þangað til nú. í samband
við sundrung þessa má setja marga
og mikla ógæfu, b’.óðsúthellingar
milli þjóöanna, tap nýlendanna á
Bretlandseyjum; Frakklandi og
Rússlandi, tap Vínlands og Græn-
lands og það sem af því hefir elitt,
tap Austurvegs, Finn’.ands og Suð-
ur-Jótlands. Vökina þrengir. Jafn-
vel á friðartímum eru tollmúramir
milli landanna til hindrunar eðli-
legum vexti og þróun atvinnuveg-
anna og betri efnahag. Á þessu
sviði virðist vera verkefni handa
íslendingum, handhöfum hinnar
forn-norrænu menningar. Þessi
alnorræna stefna ríður ekki í bága
við sjálfstæöisbaráttu okkar, ef
sjálfstæðishugsunin skyggir ekki á
þi hagsmuni, sem bændalag við
frændþjóðirnar getur boðið. Það
er Fjallkontinni ekki samboöið að
sitja eins og niðurseta úti í homi og
munnhöggvast við Dani. Kraftur
ag vald þarf að standa að baki öll-
um okkar orðum eins og var fyr á
dögum. Fjallkonunni sæmdi bezt
að vera i fararbroddi. — Kæmist
samvinna á milli allra norrænu
þjóðanna gæti hraustasta kynkvísl-
in i Norðuráflunni horft vonglöð
og örugg á tímann sem kemur.
Sjálfsagt er að öll okkar stjóm-
mál verða að miða að þvt að
styrkja og ef’.a okkar litlu þjóð og
tryggja tilveru hennar á ókomnum
öldum. Þetta gemm við með því
að leggja ný lönd og auðsuppsprett-
ur náttúrunnar inn imdir ráðrúm
og starfsviö þjóöarinnar. Enginn
neitar því, að landið okkar sé gott,
en það er öllum kunnugt, þótt' fátt
sé um það talað, að í svo norðlægu
landi þarf ógna auðmagn, til þess
að hrífa gæð n úr skauti náttúrunn-
ar. Við höfum nokkra togara
handa tæpum helmingi Iands-
manna, sem lifir á sjávarútvegi, og
varla nein sæmileg reksturstæki
handa þeim sem lifa á landbúnaði,
ekki einu sinni vatnsveitur. Við
stöndum með tvær hendur tómar
og ilfum eins og gaddhestar á þvi,
sem forsjónin æltur standa upp úr
fönninni. Þegar nú þjóðin eyðir
3—4 miljónum fyrir skaðlega mun-
aðarvöru, þar af sérlega vænum
skerf fysir tóbak, er þetta ægilegt
þjóðarmein. Þegar það nú þar á
ofan er a’.þýða, fátækl ngar, sem
greiða þetta fé af fátækt sinni, er
full átsæða til að ákalla alt, sem
heilbrigt er í þjóðinni, til að berj-
ast móti þessu vanviti. Við þurf-
um að spara of fjá rti lað leggja í
gerbreyting á atvinnuvegum helma,
og nemum við lönd, þurfum við
einnig að hagnýta okkur auðsupp-
sprettur þeirra á fu’.lkomnasta hátt.
Ef ræða er um efling þjóðarinn-
ar er ekki nóg að nema lönd og
safna auði. Skilyrðin fvrir því að
hægt sé að gera þetta liggja i þjóB-
inni sjálfri. Hvað hún vill, hvað
hún þorir að leggja út í, alt okkar
þjóðlíf, á hvaða sviði sem er, er
fyrst og fremst komið undir því
hver þjóðin er. Það verður þá
ljóst, að mentamálin, aukning á
andlegum og líkamlegum þroska
með þjóðinni er undirstaða undir
öllu öðru og á því að vera aðalmál
og grundvallaratriði í baráttu fyrir
viðreisn landsins. Þótt hægt sé t.
d. að minka munaðarvörukaup
landsmanna að miklum mun með
skynsamlegri löggjöf, þá er það þó
andlegt þroskaleysi fólks, sem er
orsök óhófseminnar. Væri sálar-
þroskinn meiri mundu menn telja
sig hafa fjárins meiri not með því
að leggja það í framleiðslu og láta
það afal nýrra gæða og létta undir
með sér í lífsbaráttunni.
En verkefn'n kalla að úr öllum
áttum. í Noðrur-Asíu, þ.e. Síberíu,
eru feiknamikil skóglönd og gras-
sléttur, sem gætu orðið blómelgir
akrar. í jörðinni er gnægð af
málmurn. Siðan um aldamótin, að
Síberíujárnbrautin var lögð, hefir
landið tekið miklum framförum,
sem nálgast það, sem þekst hefir
frá Ameríku í því efni. Lelðin
þaðan á markaðinn í Vestur-Evrópu
er svo löng, að það er ókleift að
senda þungavöru eins og t.d. korn
eða viö þangað meö járnbraut. En
þessar vörur er hægt aö frameliða
þar ódýrt af því að jörðin kostar
þar nær ekkert og vinnulaun eru
ekki há. Aö flytja vörurnar sjó-
teiðis er langttxm ódýrara. Mikill
hagnaður er einnig að þvt að flytja
iBnaðarvörur frá Norður- og Vest-
urálfu tll Siberiu sjóveg, í stað þess
að senda þær með Síberíubrautinni.
í Noregi er stofnað félag til |>ess
að reka sjóverzlun við Síberiu.
Skipin fara noröur um Rússland
yfir Kyrra-hafið og upp í árnar
Ob og Jenesei. Kolalög kváöu vera
þar eystra, svo ef þau yrðu unnin,
þyrftu skipin ekki að hafa með sér
kol nema til annarar leiðarlnnar.
Mestum erfiðleikum hefir haftsinn
valdið í Kyrrahafinu. Friðþjófur
Nansen, sem er einn þeirra ntanna,
sem bezt skyn ber á strauma og ís-
rek t íshafinu, fór sumarið 1913
með einu af skipum Síberíufélags-
ins austur í Síbertu. í ferðabók
s nni, “Gennem Siberien”, Kria
1914, hefir hann safnaö miklum
fróðleik santan viövíkjandi sigling-
um um Kyrrahafið. Niðurstaðan,
sem hann kemst að, er sú, að með
þeim tækjum, sem nú standa til
boða, muni vera hægt að sigla yfir
Kyrrahafið i öllum eða ná’.ega öll-
um árum. Hann leggur til að gerð-
ar séu út 3—4 lltlar hreyfiskútur
með þráðlausum símatækjum til að
rannsaka strauma lofts og lagar og
alt um áhrif þeirra á ísinn. Til að
rannsaka hvernig ísinn Iiggur og
hvar eg hægt að sigla, leggur hann
til að hafðar séu flugvélar og flog-
ið á þeim út yfir hafið öðru hvoru,
og að fréttimar um ísinn séu sím-
aöar með þárðlausum skeytum til
gufuskipanna, sem eru á leiðinni,
og svo til Evrópu. Hann gerir ráð
fyrir, aö flugvélar geti komið að
miklum notum þar, sem líkt sé á-
statt og þama og erfitt sé að kom-
ast áfram fyrir ís.
Þetta mál ætti víst erindi til
okkar, og e'ns gæti verzlun við
Sibertu orðið arðvænleg. Island
Hggur ekki fjarri skipalinu frá
Bandaríkjunum norður um Noreg
til Síberíu, og heldur ekki langt frá
skipalinu frá Norðurlöndum til
Hudsonsflóalandanna, en sú ltna
liggur yfir Hvarf á Grænlandi.
Gæti það orðið til hagsbóta fyrir
þá, sem Grænland eiga að byggja.
Ef ísland ætti aö verfa stöð fyrir
skipalinur, þurfum vrö að hafa eitt-
hvað að bjóða skipunum af því, sem
þau þurfa, og þá fyrst og fremst
kol. Eftir þvi sem bygðin færist
norður á bóginn beggja megin At-
lantzhafsins verður ísland minna
afsiðis, og skilyrðin fyrir því, aö
ísland geti orðið verzulnarland,
vaxa. En t allri atvinnu, og ekki
sízt t verzlun, fá þeir bezta útreið,
sem fyrst sjá leik á borði og nota
hann. Svo mun og vera um
verzlun við Síberíu og Norður-
Canada.
—Skimir...
Kornyrkjumenn (Grain Grcwers)
verzla með búpening
Eftir nærri 10 ára reynslu í þvi
að sejla kom fyrir umboðslaun, hef-
ir “Grain Growers Grain Co. Ltd.”
í Winnipeg byrjað skrifstofu á
Sambands gripastöðinni (Union
Stock YardJ í Winn peg, og hafiö
umboðssölu og flutning á búpen-
ingi.
Þeir eru tiltölulega fáir sem
ekki vita hvílíkum umbótum þetta
félag hefir komið til leiðar í korn-
verzlun í Vestur Canada, og er eng-
inn efi á því að þaö gerir einnig
mikiö til þess aö auka hag þeirra
sem selja nautgrlpi, sauðfé og svín.
Kornyrkjumanna kornfélagið
htfir ráðið reyndan og færan mann
til þess aö hafa þetta verk með
höndum, það er Albert Duncan.
Hefir hann verið riðinn við þess
konar starf og fengið reynslu í þvt
um síðastliðin 25 ár, og er fullfær
áð dæma um búpening. Hann hef-
ir einnig færa aðstoðarmenn og
góðar skrlfstofur. Bændur, og fé-
lög í Vestur Cánada þurfa ekki að
veigra sér viö að nota Kornyrkju-
manna féa’gið til þess að verzla
með búpening þeirra. Skrifið fé-
laerinu og af!ið yður upplýsinea, eða
biðjiö það að senda yður vikulega
verðskrá sina.