Lögberg - 04.05.1916, Side 1
Peerless Bakeries
Heildsöluverzlun
Búa til beztu tegundir af sætabrauði. Ekkert sparað
til að hafa það sem ljúffengast. Giftingar kökur búnar
og prýddar sérataklega vel af manni sem er meistari Iþeirri
iðn. Kringlur og tvíbökur einnig til sölu. Pantanir frá
verzlunarmönnum út um landið fljótt afgreiddar.
C. HJALMARSON, Eigandi,
11 B6-8 ln£ersoll 8t. - Tals. G. 4140
ÞETTA PLÁSS ER
TIL SÖLU
29. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 4. MAÍ 1916
NÚMER 18
Herskyldu frumvarp
er borið upp í þinginu
á Englandi í dag. Talið
vístað það verði sam-
þykt.
Stríðsfréttir
Þýzkur fallbyssubátur skaut á
tvo bæ. í Englandi fyrra þriðjudag.
Þeir hétu Lowestoft og Yarmouth.
í fyrri staönum varö tálsveröur
skaöi; fáeinir menn mistu lífiö og
3—4 hús voru eyðilögð. í hinum
bænum varö skaðinn svo aö segja
enginn.
Efrimátstofu þingmaður í Wash-
ington frá sérveldisflokknum ('De-
rmocrats) 1 sti því yfir á miðviku-
daginn að hann hefði ioöo bréf,
þar siem á hann sé skorað að hefja
sterkan andróður gegn því, að
haldið sé áfram að selja hervörur
og skotvopn til Evrópu.
Bretar halda 36,000 tunnum af
amerísku rúgi i Kirkwall á norsku
gnfuskipi. Ástæðan er taiin sú að
skipiö sé keypt frá Hollandi og fyr-
ir þaö hafi veriö borgaö með þýzkri
mint.
Sagt er að brezka neðansjávar-
bátnum E.-22 hafi verið sökt af
þýzku skipi.
Talsvert af enskri herdeild varð
að gefast upp í Egyptalandi á páska-
daginn og var handtekin. Átti sú
fleild við ofurefli að etja og varðist
lengi, en mátti ekki við margnum.
Utanríkisritari Bandaríkjanna
éLansing), sendi skeyti til Bret-
lands í vikunni senr leið og krafðist
þess að 38 fangar væru látnir laus-
ir. sem telcnir höfðu vei'ð af ame-
ríska gufuskipinu Kína nálægt
Shanghai. Eru rnenn þessir Þjóð-
verjar, Austurríkismenn og Tyrkir.
líretar halda því f-am að þeir hafi
lekíð mennina af þ' > að þeir hafi
verið : samsæri að vinna skaðsemd-
arvcrk gegn Englan h
Uppreistin á írlandi var bæld
niður á laugardaginn, í bráðina að
minsta kosti; en um það eru menn
alment hræddir að þar logi upp aft-
ur þegar minst vari.
Þjóðverjar gerðu harða árás á
her bandamanna hjá Dauðsmanns
hæð á laugardaginn, en urðu þó frá
að hverfa og biðu mikið manntjón.
707 manns voru teknir fastir, af
þeim sem uppreistina gerðu á ír-
landi.
Fréttir hafa komið um það að
Þjóðverjar hafi í hyggju að sökkva
hverju skipi sem vistir flytji til
Englands, hvaða þjóðar sem sé.
Þjóðverjar náðu hersvæði frá
Rússum suður af Narocz vatni
milli Stanarocze og Stachowee á
föstudaginn og hertóku um 6000
fanga.
Hæsti réttur Bandaríkjanna hef-
ir úrskurðað að Timothy Tribich
Lincoln, fyrverandi þingmaður á
Englandi verði að fara heim til þess
að standast rannsókn. Lincoln hef-
ir játað það á sig að hann sé njósn-
ari og peningafalsari.
Fréttir frá Englandi segja að
800 rnanns hafi fallið af Winnipeg-
herdeildinni í orustunni sem ný-
lega var í Flanders. Það þykir
líklegt að þessi frétt sé orðum aukin.
Tveim stórunr skipum söktu
Þjóðverjar nýlega fyrir Englend-
ingum, þau hétu “City of Luck-
now” og “Teal”.
$10,000,000 er sagt að skaðinn
hafi orðið af uppreistinni á írlandi
að því er eignir snertir. Mestan
skaða gerði eldurinn.
Uppreistin á írlandi hélt áfrarn
eftir að siðustu fréttir voru skrif-
aðar, og kvað svo mikið að því að
alt Irland var sett undir herrétt
fyrra miðvikudag. Höfðu þá upp-
reistarmiennimir tekið nokkrar stór-
byggingar í Dublin. Sir John Max-
well, sem stjórnaði bezta liðinu í
Egyptalandi, var sendur þangað
með fullvddi til þess að taka til
sinna ráða í meöferð málsins í öllu
landinu. Edward' Carson og John
Redmond, sem erfiðastir iiafa
stundum verið að undanförnu, ern
ejndregið á móti þessari uppreisn
og hjálpa ensku stjóminni eftir
mætti.
Almennar fréttir.
Edward Farrer, frægur biaða-
maður og trúnaðarmaður Laurier-
stjómarinnar áöur fyr, andað'st i
Ottawa á fimtudagsmorguninn.
Hann var gamall Winnipegbúi. \rar
hann ritstjóri blaðanna “Tímes” og
“Sun”. Áður fyr var hann við rit-
stjórn blaðsins “Toronto Daily
Telegraph” og “The Mail”, síðar
blaðsins “New York World” og
“Toronto Globe”. Hann var fyrst
kaþólskur prestur, en hneigðist frá
því og að blaðamensku.
Eldur kom upp í vopnabúrinu í
Ottawa fyrra miðvi'kudag. Skað-
inn er talinn um $5,000 og veit eng-
inn mn orsök eldsins. Er þó álitið
aö ikviknað hafi af vindli.
Thos . H. Johnson ráðherra og
Waugh bæjarstjóri í Winnipeg
fóru á fimtudaginn að skoða járn-
brautinu á blaytusvæðinu og landið
þar í kring. Er búist við að John-
son hugsi sér að láta gera góðan
skurð þar i gegn í vor til þess að
þurka landið, þvi mikið er af akur-
landi í grend við Winnipeg ef það
væri þurkað.
Sáning er ailment byrjuð í Mani-
toba, þar sem ekki er of blautt, en
svo að segja helminguritrn af öllum
sléttunum umhverfis Portage la
Prairie eru undir vatni.
Dr. R. M. Simpson, sá er riðinn
er við Roblin málin, kom hingað
fyrra þriðjudag. Er hann laus
þangað til mál hans kemur fyrir
gegn $50,000 veðfé.
“Dætur rikisins” (l. O. D. EJ
héldu þitrg hér í bænum í vikunni
sem leið og voru þar mættir um 80
fulltrúar. Höfðu þær safnað $45,-
000 árið sem leið. Var miklu meira
en helmingi þess safnað úti á landi.
28.000 manns' hjá akuryrkju-
verkfærafélögum og jámbrauta í
Ghicago gerðu verkfall í vikunni
senr leið og krefjast þess að þurfa
ekki að vitrna lengur en 8 tíma á
dag. Svo varð hitinn mikill milli
þeirra er verkfallið gerðu og hinna
senr móti þeim stóðu að kalla varð
til lögreglunnar.
Sagt er að um 50 vitni verði leidd
fram i máli Dr. R. M. Simpsons.
Verða þar að koma franr öll þau
sönru vitrri senr yfirheyrð voru i
ráðlierramállunum, því vitnisburð-
urinn verður að vera frá fyrsta
nranni, en ekki tekinn upp úr öðr-
um skjölum, þótt eiðfest séu.
Mathers dómari hefir gefið
skýrslu sína í sambandi við bygg-
inguna á réttarhúsinu, og hefir þar
ekkert fundist er glæpsanrlegt verði
talið. Tekur lrann Jrað sérstaklega
i franr aö Dr. Montague hafi í sanr-
ningum um það verk gætt liags-
muna fylkisins. Mikið er enn ó-
borgað þeim er vierksamninga höfðu
frá aðalvenkstjóranum, en samning-
ar við þá eru þannig að stjórnin
ber enga ábyrgð á þeim, og þarf
því ekki að borga meira en henni
gott þykir eða hún telur sanngjanrt.
AMs' eru þessum smærri félögum
óborgaðir $109,000, en stjórnin á
aðeins óborgaða $4,900; hefir þvi
C. H. Simpson aðalmaðurinn haft
í sinn vasa um $100,000.
Maltfólagshúsið í St. Boniface
brann á föstudaginn var, er skaðinn
metnnn á $350,000. Brann ]rar
mikið af komi. Enginn veit um
orsök eldsins.
Manitobastjómin hefir grætt
$43-543 ' marzmánuöi; alls voru
tekjurnar yfir $150,000. Fylkið
hefir grætt um $160,000 síðastliðna
fjóra mánuði.
Eldur kom upp i St. Charles
hóteltnu hér í bænum á laugardag-
inn og varð skaðinn $5,000. Hafði
kviknað í eldhúsinu. Manntjón
varö ekkert.
Mikið er talað um þá uppástungu
Hjálprreðishersins að flytja hingað
5000 ekkjur fallinna hermanna frá
Englandi. Hafa flestir þá skoðun
að það sé í alla staði óráðlegt og er
nú talið víst að ekkert verðii úr.
Stríðsfréttir....................
Bandamenn sikutu niður fjögur
þýzilc loftskip á fimtudaginn, senr
köstuðu sprengikúlum á bæi á
Frakklandi. Varð lítill skaði af
kúllunum.
Brezka herskipið Russell rakst á
tundurdufl i Miðjarðarhafinu í
viktinni sem leið og fórust 100
manns.
Þjóðverjar söktu nýlega enska
skipinu Industry, og var skipshöfn-
inni bjargað af Bandaríkjaskipinu
Finland.
Charles Townsend yfir herfor-
ingi brezka liðsins í Mesojrotamiu,
sem hefir verið umsletinn i bænum
Kut-el-Anrara af her Tyrkja síðan
í Desember mánuði, gafst upp með
menn sína í vi'kunni sem leið, en áð-
ur en hann gafst upp er sagt að
hann haffi eyðilagt byssur og áhöld
í bænum, til þess að Tyrkir hefðu
þess ékki not. — Townsend lrers-
höfðingi hafði tekið Ixeinn 3. júnt
1915, en Tyrkir settust um hann 3.
desiember; er talið víst að vista-
skortur hafi orðið til þess að
Townsend varð að gefast upp. Með
lronum voru teknir 13,000 manns.
I bænum Sarajevo i Bosniu voru
16 manns dæmdir til dauða nýlega
og 68 í fangelsli fyrir landráð. Það
var í þessum bæ sem ríkiserfinginn
frá Austurriki og koita hatrs' vortt
myrt.
Samsæri hefir komist upp í
Tyrtklandi, sem hafði það fyrir
markmið að myrða soldán og tvo
ráðherra hans, setja á fót nýja
stjórn og breyta öllu fyrirkomulagi.
Tveir aðalsbomir menn vortt meðal
samsærismannanna. Þeir eru nú
allir fytlir herrétti og er talið víst að
þeir verði liflátnir.
Það þykir tíðindum sæta að
Bretakonungur og Asquith forsæt-
isráðhérra sátu lengi á ráðstefnu á
föstudaginn. Eru miklar getgátur
um það um hvað þeir lrafi rætt og
þykjast sunrir vita til þess eða hafa
grun um, að eitthvað sé alvarlegt á
seyði nreð stjórn.ma—jafnvel stjórn-
arski fti.
Sex Þjóðverjar senr voru her-
fangar i Letbridge lrafa sloppið.
höfðu þeir grafið unr 100 feta löng
göng 4/2 fet niðri í förðinni og
komist þar út; höfðu þeir náð í
verkfæri úr eldhúsinu til þess að
vinna verkið með.
Frá Islandi.
Húsið 10C við Lækjargötu í
Reykjavík brann 27. marz. Var
það kallað Waages húsið. Tvær
fjölskyldur voru i húsinu; Magnús
Blöndal verzlunarfulltrúi niðri, en
Lárus Fjeldsted málaflutningsmað-
ur uppi. Tengdanróðir Magnúsar
á níræðisaldri var borin út og burt
frá eldinum. Fröken Ragnheiður
Blöndal var hætt komin i eldinum,
sviðnaði hár Irennar og fékk hún
brunasár á andliti og höndunr. Slökt
var áður en húsið brynni alt og
ekki konrst eldurinn út þótt stór-
viðri væri og þótti það þrekvirki af
eldliðinu. Ditlev Tliomsen átti
húsið.
Hlaðafli bæði á seglskip og botn-
vörpunga 29. marz.
Báti hvolfdi við Landeyjasand
23. nrarz; komust menn af, en tveir
]>eirra meiddust mikið og dó annar
litlu síðar. Var það sigurgeir Ein-
arsson bóndi i Hlíð, kvæntur mað-
ur og tveggja barna faðir.
Dómur er fallinn í málinu milli
Sigurðar læknis' Hjörleifssönar og
ísafoldar út af samningsrofi, er
honuni var sagt upp ritstjórnar-
starfi 1913. Vann hann málið og
fékk sér dæmdar 1650 kr. skaða-
bætur, en undirréttur hafði dæmt
honunr 2800 kr.
Hafísinn er sagður horfinn um
mánaðarmótin marz og april.
Frú Kristjana Hafstein varð fyr-
ir slysi 25. nrarz, datt á götu og fót-
brotnaði.
Miðstöðvarlritun á nú að setja í
Laugamesspítalann. hefir verið
sanrið um það við Ólaf Hjaltested
og er lrann erlendis til þess að
kaupa hitunartækin.
Sweitzers björgunarfélagið ætlar
að konra upp viðgerðanstöð fyrir
botnvörpunga í Reykjavík og jafn-
vel skipasmíðastöð ; er verkfræðing-
ur nýkominn i þeini erindum.
Guðmundur Þórarinsson 65 ára
gamall bóndi í Vestmannaeyjum
féll útbyrðis af báti við Alsey 27.
marz og druknaði. Var að flvtja
fé i eytra, en bátinn fylti.
Mál 'það senr Sigurður læknir
Hjörleifsson höfðaði gegn Ártra Jó-
hannessyni bankaritara út af þeim
hluta ritstjórnarlaunanna við Isa-
fold 1912—1913, sem Ámi átti að
borga, hefir verið dæmt í yifirrétti,
og vann Sigurður. Hann hafði
tapað fyrir undirrétti.
Lögrétta frá 5. apríl segir slænra
tíð, sérstaklega á ÁTorðurIandi, en
fiskiafla góðan.
Séra Haraildur Nielsson flutti
nýlega fyrirlestur unr afstöðu sína
til kirkjunnar. Kveðst hann vera
nær frumkristninni en prestar væru
nú alment.
Benedikt Jóhannsson frá Lindar-
götu 4 í Reykjavík dó af slysi 3.
april. Var hann við botnvörpuveið-
ar á bátnunr “Rán”; hafði vörpu-
vírinn brokkið úr skorðum og sleg-
ið manninn svo að hann beið bana
af.
Skip er “Hernrann” hét frá
Vatnsleysu fórst nýlega og
druknuðu þar Jressir menn: Sig-
urður L. Jónsson 38 ára, kvætnur
niaður og átti 3 börn. Helgi Jón-
asson 33 ára, kvæntur og átti 2
börn; Jón bróðir Helga 23 ára. Jón
Runólfsson 23 ára; Sigurður Gisla-
son kvæntur 58 ára frá Kletti í
1 Borgarnesi; Sveinbjöm sonur
hans 21. árs, og Guðbrandur Áma-
son 20 ára frá Miðdalskoti í Laug-
ardal. Sömuleiðis druknaði maður
er Ögnrundur hét af vélabátnunr
“Sæborg” frá Vatnsleysuströnd.
“Vísir” getur þess að þrátt fyrir
]rað þótt frakknes k fiskiskip séu
enn eigi á fiskimiðunr íslands, þá
hafi sanrt spítalafélag tslands i
Dunkerque á Frakklandi fyrir
milligöngu frakkneska ræðismanns-
ins látið opna franska spitalann
sem bygður hefir verið í Vest-
tnannaeyjum til afnota hinum mörgu
sjómönnum þar, islenzkum og
enskunr.
Franski ræðismaðurinn mun vera
Halldór læknir Gunnlaugsson.
Þórarinn Þorláksson lrefir ný-
lega lokið við málverk sem sýnir út-
sýni frá Laxfossi í Mýrasýslu með
Baulu í baksýn. Seldist málverk
]>etta undir eins. Keypti það Thor
kaupm. Jensen fyrir 500 krónur.
Fyrir skönrmu var þess getið i
Lögbergi að Bandarikjamenn ætl-
uðu að senrja sögu Anreríku í
myndastyttum meðfram California
firðinum og ætti Þórfinnur Karls-
efni binn islenzki að verða fyrsti
kaflinn í þeirri sögu. Bandamenn
Irafa samið við F.inar Tónsson
myndlröggvarann fræga, senr nú
dvelur i Reykjavík, unr það að gera
þessa mynd; hefir hann þegar gert
uppkast af lrenni og á hún
að birtast í “Óðni” innan skamms.
eftir því sem Lögrétta segir.
Ritstjóróói Lögréttu Þorsteinn
Gislason hefir fengið föðurnafn sitt
Gíslason lögfest sem ættarnafn fyr-
ir sig, konu sina og börn.
“Fréttir” segja frá því að Ás-
geir Pétursson kaupmaður á Ak-
ureyri lrafi nýlega keypt gufuskipið
Kristján IX. af Sameinaða gufu-
skipafélaginu fyrir 320,000 krónur.
Tveinr dögum eftir kaupin gat hann
selt það fyrir 50,000 kr. hærra verð
en hann keypti það fyrir, en hafn-
aöi boðinu. Hann hefir skipið til
flutninga Sami maður keypti ný-
lega fjögur mótorskip i Dannrörku,
senr eiga að stunda síldarveiði.
Steingrínrur læknir Matthíasson
er nýkominn heim úr Þýzkalands-
för sinni. Dvaldi hann alllengi í
Berlín og kveður þar nriklu ódýr-
ara að lifa en i Kaupmannahöfn.
w
fsl’enzku kolin. senr Guðmundur
E. Guðmundsson hefir verið að
vinna að undanförnu, hafa verið
rannsökuð af svenskunr efnafræð-
ingi. Telur hann þau allgóð til
húsahitunar, en ekki til notkunar á
skipunr, það er að segja það af
þeini senr rannsakað lrefir verið ; en
með því að það er tekið ofarlega
álítur efnafræðingurinn að þau
nruni verða góð einnig til þess þeg-
ar neðar komi í nániuna.
...... 'W W'
Gunnar Ólafsson kaupmaður í
Vestnrannaeyjum er skipaður
norskur ræðismaður í Vestmanna-
eyjunr.
Y fyr síldarmatsmenn eru skipað-
ir af ráðherra Snorri Sigfússon á
ísafirði og Jón Scheving á Seyð-
isfirði.
Landsbankinn ætlar að byggja
stórt og vandað lrús fyrir sjálfan
sig norðan við Hafnarstræti; hefir
lrann beðið unr 1,500 fermetra
keypta hjá bænunr í þvi skyni.
Stærsta íbúðarhús i Reykjavík
með mörgum íbúðum heitir
“Bjamaborg”; ]>að hús ætlar bær-
inn að kaupa til þess að bafa það
handa þurfamönnum, er bærinn
verður að sjá um. Verðið er 38,-
000 kr.
“Njörður” lieitir nýtt blað, sem
farið er að koma út á ísafirði; er
ritstjóri þess séra Guðmundur Guð-
mundsson fyrrum prestur i Gufu-
dal. *
26. febrúar voru boðnar upp 9
kýr í Reykjavík; þrjár seldust á
255> 265 og 285 kr., en hinar voru
boðanr inn aftur þvi aðeins voru
boðnar i þær 240 til 270 kr. og þótti
það ekkert verð.
Englendignar gerðu upptækan
bögglapóst sem fór frá íslandi til
útlanda nreð Gullfossi i marzmán-
uði.
Símon Dalaskáld segir “Vísir”
nýlátinn norður í Skagafirði.
Merkis kona látin.
Kona séra J. N. McLean, skrif-
ara siðbótafélagsins lézt á heimili
sínu fyrra þrtðjudag eftir ör-
stutta legu. Hún var merk kona og
vel gefin og önnur hönd manns
síns í hinu mikla verki, sem hann
hefir með höndum; er að henni mik-
ill mannskaði. Hún lætur eftir sig
tvo unga drengi.
Unglingar í hernnm.
Kvenfélög bæjarins hafa haldið
fundi til þess að tala um og mót-
mæla því að drengir innan 18 ára
séu teknir í stríðið. Voru þær all-
ar á eitt sáttar um það að slíkt væri
óhæfa í öllum skilnihgi. Þetta væru
óharðnaðir unglingar, óákveðnir í
hugsunum og óhjákvæmilega til lít-
ils gagns.
Hermanna ekkjnr.
Hjálpræðisherinn konr fram með
þá uppástungu að flytja hingað
vestur 5000 ekkjur fallinna her-
manna frá Englandi, ásamt börnum
þeirra, og vildi fá til þess' einhvern
styrk frá stjórninni. Konur i
Winnipeg héldu fund til þess að
mótmæla þessu og sömuleiðis
verkamenn. Er því líklegt að það
verði ekki að framkvæmdum.
Eignasala.
Eignir i Winnipeg sem ekki hafa
verið greiddir skattar af fyrir árið
!9i3 og áður, verða innan skamms
seldar á uppboði. AIls eru skattar
sem frá þeim tíma eru fallnir í
gjalddaga $600,000, eða mikið yfir
lrálfa miljón. Eru þannig miklu
fleiri eignir en dæmi séu til áður í
sögu bæjarins.
Sprengiknla í töskn.
Grunur féll á mai)n er Newton
heitir í Buffalo um það að hann
færi með sprengiefni i fórum sín-
unr fyrra föstudag. Var hann tek-
inn fastur og pjönkur hans rann-
takaðar; fundust þá margar sprengi-
kúlur í tösku sem hann hafði með-
ferðis og er ætlað að með Jreim hafi
átt að sprengja upp lrergagnaverk-
smiðjur í Canada.
Stórkostlegur bruni.
Fyrra föstudag brann til kaldra
kola stór bygging í Iowa; var það
ein af byggingunr háskólans, þar
sem námsmenn hafa sofið. Enginn
veit um orsök brunans en skaðinn
er metinn á $350,000.
Samsœri kemst upp.
Maður var nýlega tekinn fastur
og er í gæzluvarðhaldi í Bandaríkj-
unum. Hann er þýzkur og heitir
Horst Von Der Goltz. Hefir hann
gefið skriflega játningu um það,
eftir því sem skýrt er frá á Eng-
landi fyrra föstudag. að hann lrafi
verið einn af mörgunr samsæris-
mönnunr til þess að vinna skenrdir
og manntjón hér í Canada. Meðal
annara sem með þeini voru í sam-
særinu voru þeir Boy-Ed og Von
Papen. Ætluðu þeir að sprengja
upp verksmiðjur, brýr og bygging-
ar og þar á meðal berbúðimar i
Valcartier.
Mentamálaþing.
25., 26. og 27. þ.nr. fmánudag,
þriðjudag og nriðvikudag) var hald-
ið kennaraþing í Winnipeg þar sem
1000 kennarar víðsvegar að úr fylk-
inu voru saman komnir. Þingið
var haldið i Kelvin skólanum. Dr.
Thornton mentamálaráðherra, Dr.
Stewart frá Ninette, og fleiri merk-
ir menn fluttu þar ræður.
Stór bruni í Winnipeg,
$400,000 skaði. Bygg-
ing Stovel prentfélags-
ins brennur til kaldra
kola.
Bókmentir.
Nýr leikur var sýndur hér á
fimtudaginn og föstudaginn í Good-
templarahúsinu. Hann er frum-
saniinn á ísienzku, og er höfundur-
inn Arni leikari Sigurðsson. Leik-
urinn lreitir “Lygasvipir” og er efn-
ið þetta.
Fullorðinn kaupm. er kvæntur
ungri konu. Hann ann lrenni hug-
ástum, en er lítið heima, með því
að hann er niðursokkinn i verzlun-
arstörf sín. Konan tekur engan
þátt í störfum hans og ber hann
einn saman allar áhyggjur. Mað-
urinn heitir Hinrik Johnson, en
kona hans María.
Maður er nefndur Sam Good-
man, kemst hann í kynni við maríu
og nær þannig valdi yfir henni að
hún lofar að strjúka með honum.
Telur hann henni trú um að Hinrik
þyki ekkert vænt um hana, en sjálf-
ur kveðst hann geta veitt henni al-
sælu þá, sem ástin hafi í för með
9er.
Þá kemur til sögunanr nraður,
sem heitir Jón Sigurðsson Jónsson,
rammur íslendingur. Hafði hann
sett sér það mark að segja aldrei
ósatt, hvernig sem á stæði og hver
sem í hlut ætti. Hann ræðst sem
vinnumaður hjá Hinrik. Hafði
hann aldrei getað haldið neintri
stöðu fyrir þá sök að hann sagði
æfinlega satt, var þvi altaf rekinn.
Eru sérlega hlægileg dæmi sögð um
það, þegar hann var að segja fólki
sannleikann og móðgaði það. Hann
segir Hinrik alt satt, sem hann
kemst að unr konu hans og henni
eins eftir Hinrik. Kemst hann að
því að Maria ætlar að strjúka nreð
Sanr, en segir henni frá því að Sanr
hafi verið rekinn frá verzlun fyrir
þjófnað, eigi alls fyrir löngu; auk
þess segir hann henni frá því að
Sanr eigi bæði kontt og börn. Verð-
ur María frá sér numin af sorg og
vonbrigðunr og ákveðttr að lrætta
við áfornr sitt. Þegar Sanr kemur
að sækja lrana, neitar hún að fara,
en fyrst hefir Jón Sigurðsson Jóns-
son tekið á móti honum. Eru fund-
ir þeirra nrjög hlægilegir, en jafn-
franrt alvarlegir.
Nú er María í vandræðtttn, því
nraður hennar veit að hún ætlar að
strjúka. Verður honum svo mikið
unr það að hann býst til 'þess að
yfirgefa heimilið og láta henni það
eftir. En María biður Jón Sigurðs-
son Jónsson eins og guð sér til
hjálpar að sætta Hinrik við sig
nreð því að segja lronum að hann
hafi logið þvi að hún ætlaði að
strjúka. Jón er tregur til, en lætur
þó loksins tilleiðast, af því hatrtr
kennir í brjósti um konuna. Fer
hann til Hinriks og kveðst hafa
logið upp allri sögunni unr Maritt
og Sanr. Verður það til þess að
Hinrik tekur konu sitra i sátt, en
rekur auðvitað Jón Sigurðsson
Jónsson. fFrh.J.
Almennar fréttir.
Verkamenn í kornhlöðununr i
Fort Willianr geröu verkfall á
mánudagsmorguninn og krefjast
hærra kaups en þeir lrafa.
Námunrenn í Baiidaríkjunum
hafa gert verkfall og kref jast hærra
kaups'. Samkomulagi var stungið
upp á i New York á mánudaginn,
þar senr tilboð verkveitenda er
þannig að það hækkar alls kaup
námumanna unr $9,000,000 næstu
fjögur ár, ef samningar takast.
Sá flokkur Indiána í Britislr Col-
umbia senr Nisga kallast sendi
tvær sendinefndir á fund sam-
bandsstjómarinnar unr helgina senr
leið, til þess aö kvarta yfir nreðferð
á sér af hálfu stjórnarinnar i
'Britislr Colunrbia. Hafði stjórnin
tekið sig til og selt lönd þeirra, en
þeir kváðust aldrei ltafa látið þatt
laus. Krefjast þeir þess að þetta
sé lagfært og lofaði Borden að
ratrnsaka málið.
Mjög þykir óvíst unr framtíð
Lloyd George, sagt að sambands-
menn i þinginu ('Unionistar) séu
ófúsir á að viðurkenna hann sem
leiðtoga og hinir enn þá fráhverf-
ari þvi að gefa sig honunr á vald í
sanreiningarstjórn (coalition).
Fyrirlestur
Dr. Guðm. Finnbogason flytur
fyrirlestur á eftirfylgjandi stöðum
og tímum;
Lundar kirkju, Mánudag 8. Maí
Klukkan 8 e.h.
Otto Unitarakirkju Þriðjud. 9. Maí
Klukkan 2 e.h,
Vestfold skóla, Þriðjud. 9. Maí
Klukkan 8 e.h.
Silver Bay, Miðvikud. 10. Maí
Klukkan 8 e.h.
Hayland Hall, Fimtudag 11. Maí
Klukkan 2 e.h.
Aðstoðarfélag stofnað
Almennur fundur nreðal Skandi-
nava var haldinn á laugardaginn
var til þess að stofna aðstoðarfé-
lag, til liðs Skandinavisku deildinni
nr. 223. Forseti fundarins var
Thos. H. Johnson ráðherra. 36
innrituðust í félagið og var sam-
þykt tillaga um það að gera alt
mögulegt til þess að hvetja kven-
fólk utanbæjar, þar sem menn
hafa koniið frá í deildina, til þess
að stofna aðstoðardeildir, er vinni
í samræmi við þá sem er í bœnum.
Kvenfólkið í Langruth i Manitoba
stofnaði fyrstu deildina og sendi
herdeildinni $140 hermönnunum til
þæginda; var þeirri upphæð safn-
að í strjálbygðu, nýju héraði.
Mrs. O. Albredhtsen kona yfir-
foringja deildarinnar var kjörin
forsætiskona félagsins í einu hljóði.
Mrs. Thos. H. Johnson heiðursfor-
sætiskona, Mrs. O. Lund varafor-
sætiskona fyrir norska partinn,
Mrs. M.H.Hannesson varaforsætis-
kona fyrir íslenzka partinn; kosn-
ing varaforsætiskonu fyrir svenska
partinn var frestað til næsta fund-
ar, sömuleiðis fyrir danska partinn.
Mrs. G. A. Axford var kosin skrif-
ari félagsins og Miss S. J. Stefáns-
son viðskiftaritari; féhirðis kosning
var frestað. Allar embœttiskonur
voru kosnar í einu hljóði.
|Thos. H. Johnson ráðherra. sem
er formaður borgaranefndar þeirr-
ar sem í sambandi við deildina
vinnur, óskaði hinu nýmyndaða fé-
lagi til allra lreilla og lýsti óbland-
inni ánægju sinni yfir því að
Skandinavar—bæði menn og konur,
ynnu saman í einingu sem þjóðholl-
ir þegnar að velferð rikisins.
BITAR
Kannske Snjólfur vilji gera svo ,
vel og leggja út á íslenzku orðið
“Sergeant”?
Ásmundur Jóhannsson fór norð-
t ur til Selkirk nýlega. — Skyldi
j nokkuð birtast í Heimsk i dag?
Mrs. Madeline Tahnage Force
i Astor eyðir $27,593 árlega til upp-
eldis fjögra ára syni sinum. Svona
stórbrjáluð kona ætti að vera í
fangelsi eða á vitlausra spítala.
Vinur vor Ámi Sveinsson nrælist
til þess að ekki sé minst á að elli-
mörk sjáist á ritsnriði Magnúsar
1 Skaptasonar. Þau tilmæli eru auð-
; vitað af brjóstgæðunr sprottin og
| eru því virðingarverð.
Snjólfur heldur að England sé
alt Bretaveldi; ]>að er álika rétt og
ef einhver segði að Snjólfur væri
öll islenzka þjóðin. — En svo held-
ur hann nú kannske að það væri
ekki fjarri sanni.
Hreggviður segir að "Rósa” hafi
sagt orðrétt það senr lrann skrifaði
lrenni unr samtal okkar—með öðr-
um orðum hann segist bafa logið.
Hann um það.
Svo Hreggviður hefir aldrei fyr
sagt ósatt á æfi sinni. Þá ætti að
fyrirgefa honum í ]>etta s'kifti.
Snjólfur sagði í Heimskringlu í
hitteð fyrra að Jóhann Snjólfsson
gæti lræft 22 sinnunr á mínútu fyr-
ir ofan mitti. Það er 1320 sinnum
á klukkustund eða 13,200 á dag
nreð tiu tínra vinnu eða 396,000
sinnum á nránuði eða 7,920,000 á
20 mánuðum. Hefði hann þvi
verið sendrtr strax t striðið, þá væri
hann nú búinn að drepa 8,000,000
(átta miljónir) Þjóðverja, þótt
]>eir séu ekki taldir senr lrann lrefði
skotið fyrir neðan nritti.
Lesandi Lögbergs spyr hvort
réttara sé að skrifa “Hreggviska”
eða “Hreggvizka". Það er réttara
að skrifa z, af þvi “ð”ið fellur úr.
Aftur á nróti er Snjólfska skrifað
nreð “s”.