Lögberg - 04.05.1916, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN
4. MAI 1916.
Frá vöruhúsi til borös yöar.
Nnú er svo vandlega búiB um
a8 þa8 getur með engu móti skemst.
Pakkarnir í gömlu umslögunum seldust vel—en þær
voru ófullkomnar. Hver húsmóðir þekkir þær. Veikar
BUE MBBON
—rifnuðu oft—fólk var ánægt með þær af vana.
Hinar nýju “BLUE RIBBON” umbúöir eru fullkomnar
og hinar beztu. Sterkar, hreinar, liölegar, rykheldar,
v'atnsheldar. I stuttu máli
GALLALAUSAR UMBÚÐIR UM GALLALAPST TE
Eins og áöur, peningum skilaS aftur ef kaupandi er
ekki ánægöiír. SpyrjiS matsala yöar.
Or bænum
Góö kjör þjóöast fyrir röskan
mann til aö selja auglýsingar.
Ráösmaður Lögbergs visar á.
Þeir sem pantaö hafa Bœjartal á
Islandi gjöri svo vel og vitji þess
á skrifstofu Lögbergs.
Gott herbergi til leigu aö 624
Victor stræti, nálægt Sargent, til
Sýnis hvenær sem er.
Lárus Johannsson trúboöi pré-
dikar 3., 4. og 5. maí kl. 8 aö kveld-
inu í West End Gospel Hall, á homi
Ellice og Beverley stræta.
Allir velkomnir.
Siguröur Mýrdúl, sem lengi hef-
ir haft heimilisfang i Victoria B.C.,
hefir skift um bústaö, og er áritan
hans nú: Point Roberts, Wash.
Box 6.
Eg hefi nú nægar byrgöir af
“granite” legsteinwnum “góöu"
stöSugt viS hendina handa öllum,
sem þurfa. Svo nú ætla eg aö biSja
þá, sem hafa veriS aS biöja mig um
legsteina, og þá, sem ætla aö fá jér
legsteina í sumar, aö finn mig sem
fyrst eöa skrífa. Eg ábyrgist aö
gera eins Vel og aörir, ef ekki betur.
Yöar einlægur,
A. S. Bordal.
Vill Lögberg gera svo vel aö
flytja kæra kveöju og hjartans
þakklæti til allra íslendinga í
Poplar Park, en þó einkum og sér
i lagi til Mrs. Albinu Anderson fyr-
ir allar gleöi og ánægjustundirnar,
er viö nutum þar fyrir hennar sí-
glaöa og skemtilega viömót. Við
óskum þeim öllum allra heilla og
blessunar í framtíöinni.
Binar, Solveig og Guðrún Johnson
Bsblíufyrirlestur
Daniel Georgsson iThorsteinsson
á íslandsbréf á skrifstofu Lögbergs.
Séra B. B. Jónsson er fluttur frá
120 Emily stræti að 659 William
Ave. Talsiminn er sami og áöur,
Garry 3818.
Munið vel eftir því að sækja
hlutaveltuna i Goodtemplarahúsinu.
Þar veröa margir verðmætir munir.
Benedikt Hjálmsson kom til
bæjarins um helgina og dvaldi hér
þangað til í gærdag; fór hann þá
noröur aö Árborg og verður þar um
tíma.
Þor.steinn Gíslason kaupmaður
frá Brown var á ferö í bænum fyrir
helgina í verzlunarerindum; hann
skrapp noröur til Nýja íslands, en
fór heim aftur í dag.
Kvenfélag Skjaldborgar safnað-
ar er að undirbúa útsölu (Bazar),
sem haldin verður þann 18. og 19.
þ. m. í Skjaldborg. Þetta ættu
Winnipeg íslendingar að festa í
minnisbækur sínar.
Þess láðist aö geta í siðasta blaöi
aö 22. apríl voru gefin saman í
hjónaband af séra Johns' í Mac
Gregor, Manitoba þau E. W. Good-
man og Miss Elenora Mac Watson
aö heimili brúðarinnar. Mjög
rausnarleg veizla var haldin á eftir.
sömuleiðis dálítið samsæti 24. apríl
hjá foreldrum hans að 783 Mc-
Dermot Ave.
í bréfi frá San Francisco til Ara-
sons prentara Lögbergs er þessi
grein: “Frá Battle Creek man eg
engar fréttir, nema ef eg ætti að
nefna þaö aö Guðrún B. Oddson
hélt fyrirlestur um fsland 2. april
á kvenfélagsfundi þar og segir svo
í Battle Creek blaöi, sem mér var
sent: “Miss Oddson talaöi fyrst og
flutti einkar skemtilega ræðu um
ættland sitt, ísland. Miss Oddson
hefir aöeins verið fjögur ár hár i
landi og talar enska tungu ágætlega
vel. Hún lýsti landinu, skólafyrir-
komulagi, iðnaðar fyrirkomulagi,
flutningafærum, klæðaburöi, trúar-
brögöum, nöfnum og þjóðlegum
íþróttum.”
“Gunna er sannarlegur Islend-
ingur, og er mér lítið um þá gefiö,
sem á bjagaðri Ensku gefa manni
til kynna aS þeir hafi gleymt ís-
lenzkunni og geti ekki talað hana.
Eg hitti mann i vikunni sem leið
frá IwOs Angeles, sem er fæddur hér
og uppalinn og móöir hans kom
hingað þegar hún var barn 6 ára;
hann hefir ekki heyrt Íslenzku stð-
an hann var lítill snáöi og samt tal-
ar hann hana allvel og skilur mest-
alt sem sagt er og langar til að læra
betur. Þetta likar mér.”
Fundur verður haldinn í Good-
templarahúsinu á horninu á Sargent
og McGee í knattleikafélagi
(iTennis Club) Fálkanna, mánudags
kveldið 8. maí kl. 8. Allir félags-
menn beönir aö mæta, og sömuleið-
is þeir sem vilja ganga í félagið.
Frost og héla á hverri nóttu i
Winnipeg.
Dr. Guðmundur Finnbogason
flutti fvrirlestur sinn i Fyrstu lút.
kirkjunni á þriðjudagskveldiö fyrir
troöfullu húsi; veröur hans ítarlega
minst í næsta blaði.
verður haldinn að 804)4 Sargent
Ave. (milli Arlington og Alverstone
stræta) fimtudaginn 4. mai kl. 8
síðdegis. Efni: Hvert er ríkið eða
valdið, sem hefir reynt að breyta
lögmáli guðs? Tala dýrsins verður
útreiknuð. Sjá Opinb. 13 k. 18. v.
Sunnudaginn 7. maí kl. 4 e. h.
verður umræðuefnið: Boðskapur
hinna þriggja engla. Sjá Opinb. 14.
kap. 6—12 vers. Verður þessi boð-
skapur liinn síðasti til heimsins?—
Myndir veröa sýndar fyrirlestrun-
um til skýringar. Inngangur ó-
keypis. Allir velkomnir.
Davíð Guðbrandsson.
Frá 1. janúar til 1. apríl 1916
komu umsðknir um lífsábyrgðir til
New York Life félagsins frá 36,-
833 manns; eru þaö 10 þúsund
fleiri en á næstu þremur mánuðum
næst á undan. Á sama tíma borg-
aði Nevv York Life félagið 2,401
dánarkröfu; 157 dóu undir 30 ára
aldri, en aðeins 13 fyrir ellisakir,
322 dóu af lungnabólgu; 315 af
hjartasjúkdómum, 214 af tæringu,
106 af slysförum, en aöeins 54
féllu í Evrópustriðinu. Það sýnir
að vígvöllurinn er ekki það allra
hættulegasta fyrir lífsábyrgðarfé-
lögin, enn sem komiö er.
Dr. Baldur Olson herlæknir og
kona hans komu vestan frá Vatna-
bygðum á þriðjudaginn.
Kvenfélagið “Björk” í Tjaldbúö-
arsöfnuði heldur útsölu (BazarJ
mánudaginn 15. mai næstkomandi.
Siguröur Árnason frá Höfnum
er nýlega gengínn í herinn.
Tryggvi Jónasson frá Gimli var
á ferö hér í bænum á fimtudaginn
og fór heim aftur á föstudaginn.
J. Magnús Bjamason skáld kom
hingað vestan frá hafi í vikunni
sem leið, ásamt konu sinni og
tengdamóður. Er hann alfluttur
hingað austur og hefir tekið þriggja
ára köllun sem kennari við samein-
uðu skólana að Ottó í Grunnavatns-
bygð. Fá þeir þar góðan mann og
uppbyggilegan.
Einar J. Skafel háskólapiltur frá
Mozart fór heim til sin héðan á
föstudaginn var aö afloknu vetrar-
námi og vetrarprófum. Hann
veröur kennari við barnaskóla þar
vestra í sumar.
Sveinn Björnsson hefir nýlega
lokiö við læknispróf hér í Winnipeg.
Hann er aö hugsa um að taka einn-
ig próf fvrir alla Canada i júní
mánuöi. Sveinn lagði af stað
vestur til Leslie á mánudagskveldið
og býst við að dvelja þar um stund.
Páll Bjarnason fasteignasali frá
Wynyard kom til bæjarins á sunnu-
dagsmorguninn og fór heim aftur
samdægurs. Hann var að sækja
konu sína, börn og tengdamóöur,
sem dvalið hafa hér um tíma.
Þorsteinn Helgason frá Mikley
var á ferð í bænum á mánudaginn;
fór hann samdægurs til Selkirk og
býst við að dvelja þar um tíma.
Hann kvað isinn á vatninu hafa
verið rétt aðeins manngengan þeg-
ar hann fór úr eyjunni og bjóst
viS að hann væri nú allur brotinn
upp. Heilbrigði og vellíðan sagði
hann þar nyrðra.
Joseph H. Hanson, aktýgjasmið-
ur á Gimli, er aö ganga i herinn.
Hann hefir til sölu verzlun sína og
efni; fáist ekki kaupandi, er hann
til með aö leigja það alt sanngjarn-
lega. Verkstofan er í afturenda
byggingarinnar en búö aö framan.
Þetta er á bezta stað i bænum; var
verzlunin byrjuð fyrir ic» árum og
hefir sífelt aukist. Þess má geta,
að engin aktýgja verzlun né' vinnu-
stofa er nær en 40 milur í burtu.
Upplýsingar fást hjá Great West
Sadlery eða Joseph H. Hanson,
Gimli.
Guðsþjónustur. Sunnudaginn 7.
maí: (1) 1 Wallhalla skólahúsi kl.
11. f. h. (2) í Kristnes skólahúsi
kl. 3 e.h. Allir velkomnir.
H. Sigmar.
Andrés Skagfeld póstmeistari frá
Hove og John H. Johnson komu til
bæjarins á laugardaginn í þeim er-
indum aö finna verkamálaráðherr-
ann og biðja hann um fé til vega-
geröar á milli sveitanna St. Law-
rence og Coldwell. Kvað Skagfeld
stjórnina hafa lagt þar fram nokk-
urt fé í fyrra, en meira væri nauð-
synlegt; Boblinstjórnin sæla heföi
byrjað á þessum vegi rétt fyrir
kosningar, en hætt við þegar kosn-
ingarnar voru um garö gengnar.
Norrisstjómin heföi farið alveg öf-
ugt að því; hún hefði engu hreyft
fyr en eftir kosningar, þá hefði hún
lagt fram féð. — Skagfeld sagði tið
mjög kalda þar ytra; var svo mikið
frost á laugardagsmorguninn aö
uppi hélt hestum nema þar sem vatn
var, og þar var svo þykkur ís að
hætta var aÖ og miklar tafir.
Lárus Jóhannsson trúboði, sem
lengi þefir dvalið á Islandi kom til
Winnipeg í vikunni sem leið. Hann
kom til New York í haust, fór þaö-
an til Chicago og svo hingað; býst
hann við að veröa hér um tima aö
minsta kosti.
Mrs. R. Þorsteinsson sem hefir
verið hér í bænum aö undanförnu
til lækninga fór til Keewatin á
laugardaginn til fólks síns. Mrs.
Jóhannes Sigurðsson hér í bænum
fylgdi henni þangað út og kom heim
aftur á sunnudaginn.
Rittsjóri Lögbergs var við jarö-
arför Mrs. J. N. McLean á föstu-
daginn. Var likið flutt 10 mílur
norður og skilið þar eftir i geysmlu
í grafhvelfingu mikilli (Mousole-
um), sem þar er veriö aö byggja.
Er það fyrsta grafhvelfing hér í
Vesturlandinu og munu fáir vita
af því að hún er til. Byggingin á
aö verða stórkostleg, ef henni verð-
ur vel tekið, eins og útlit er fyrir.
Til að byrja með er hún aöeins fyr-
ir 104 lík. Er heljar mikill skáli í
miðri byggingu eftir henni endi-
langri og bogahvelfing yfir, en
beinir veggir til beggja handa, alt
úr hvítgráum marmara. Eru mar-
maraplöturnar í veggjunum- allar
jafnstórar; má taka hverja þeirra
úr fyrir sig, er þar þá hol inn í
vegginn, þar sem líkkistum er rent
inn á endann; er síðan marmara-
platan látin fyrir aftur. Þarna
geymast líkin von úr viti og geta
hlutaðeigendur fengið að sjá þau
hvenær sem er.
Fjöldi ritgerða og kvæða verður
að bíða vegna rúmleysis. Þar á
meðal gullfallegt kvæði eftir Steph.
G. Stephansson, fréttagrein löng frá
J. B., grein frá G. P. Thordarsyni
o. fl.
Þorgrímur Pétursson kom vest-
an frá Elfros á laugardaginn; fór
norður til Selkirk samdægurs, en út
til Morden í gær og verður þar í
vinnu í sumar. Hann sagði allar
beztu fréttir úr Vatnabygðinni.
Olga Elenora dóttir Josephs
Johnson byggingamanns og konu
hans á Victor stræti hér i bænum,
andaðist að heimili foreldra sinna
21. apríl (föstudaginn langa). Hún
var á 6. ári. Var hún jarðsett á
laugardaginn frá heimilinu af séra
B. B. Jónssyni.
Takið vel eftir grein í nœsta
blaði, sem gefur allar upplýsingar
viðvíkjandi kúm þeirn er búnaðar-
deildin í Manitoba veitir fátœkum
bccndum.
Hátíðleg guðsþjónusta var hald-
in í Fyrstu lút. kirkjunni á sunnu-
dagsmorguninn með sérstöku tilliti
til hermannanna; voru þeir þar
fjölmennir. Séra B. B. Jónsson
pnédikaöi og er mikið látið af ræðu
hans alment. Dr. Guðm. Finnboga-
son var þar staddur og fanst hon-
um íslenzkt mál og islenzk sögu-
þekking vera með fullum lífsmerkj-
um hjá séra Bimi.
Séra Carl Olson prédikar í
Skjaldborg kl. 11. f. h. á sunnudag-
inn og kl. 7 e. h.
Fjárframlagsskrá í Rauða kross
sjóðinn og til 223. herdeiidarinnar
birtist í næsta blaði.
Gjafir til “Betel”.
Mrs. E. K. Reykjalín, Sher-
wood, N.-Dakota...........$15.00
Tryggvi Thorsteinsson, Tan-
tallon, Sask............... 5.00
Garland & Anderson, Wpg 16.25
Fyrir þessar gjafir er innilega
þakkað, fyrir hönd nefndarinnar.
J. Jóhannesson, féhirðir.
675 McDermot Ave. Winnipeg.
CONCERT
undir umsjón Dorkas félagsins í Fyrstu
lút. kirkju verður haldið í
GOOD TEMPLAR HALL
Þriðjudagskveld 9. Maí
Program:
Chorous.—By the Sea Shore.
Selection.—Miss Marjorie Guthrie.
Solo.—Miss Olive Oliver.
Recitation.—Mrs. Gordon Paulson.
Play.—Old Maids Matrimonial Club
Piano Solo.—Miss S. Frederickson.
Selection.—Miss Marjorie Guthrie.
Sóló.—Miss H. Friðfinnsson.
Tableaux.
Verið er að prenta fyrirlestur
séra F. J. Bergmanns “Hvert
stefnir”, og sömuleiðis fyrirlestur
Þ. Björnssonar um sama efni.
Almennar fréttir.
John Jacob Astor, miljónerinn
sem druknaði á Titanic, lét eftir sig
nýfæddan son, sem nú er fjögra
ára og hefir það kostað móður
hans $27,593 á ári að sjá fyrir hon-
um.
Dewey flotaforingi Bandaríkj-
anna hefir lýst því yfir að samning-
ar hafi verið á ferðinni um það að
Þjóðverjar keyptu Filippiu eyjarn-
ar af Spáni, rétt fyrir stríðið milli
Spánar og Bandaríkjanna.
2,000 konur eru að læra að
stjóma vögnum á Englandi; er þar
orðið svo mannfátt að ekki fást
nógir karlmenn til þeirra starfa.
Frá því er sagt með gildum rök-
um að Winston Churohill muni
láta af hermensku bráðlega og
snúa sér aftur að stjórnmálum.
Sambandsstjómin ætlar að lána
G. |T. P. járnbrautarfélaginu $10,-
000,000 og C.N.R félaginu $15,-
000,000, og leggja fram $3,200 á
hverja mílu til St. Joþn Valley
járnbrautarinnar í Nýúu Brunsvík,
sem er 191 míla á lengd eða alls
$611,200.
W. T. Crummy, sonur forseta
Wesley skólans hefir fallið í stríð-
inu, sömuleiöis John Spiers, vel-
þektur maður héðan frá Winnipeg.
Fréttir komu á mánudaginn til
Englands um skipið “Suffolk”, sem
fórst í Hvítahafinu á leið til Arc-
hangel stuttu fyrir jólin. Voru á
því 27 manns og fórust allir af
kulda og hungri, nema þrír sem
bjargað var. Skipstjórinn misti
vitið af hungri og fyrirfór sér og
liðu mennimir fádæma kvalir.
Skáldsaga.
Um upphlaup á Irlandi og sam-
særi Casements er óhætt að rita sem
v'irkileika; en á sama tíma kemur út
i blöðunum önnur saga, sem tæp-
lega er hægt að trúa; hún er likust
þvi að hún væri skáldsaga, og get-
ur vel verið það.
Maður sem Max Lynar Louden
heitir var kærður í New York um
fjölkvæni og fundinn sannur aö
sök. Hann er borgari Bandaríkj-
anna, en þýzkur aö uppruna.
Hann hefir sagt lögreglunni í
New York frá því að Þjóöverjar í
Bandaríkjunum hafi haft i hyggju
að hertaka Canada, og hafi hann
sjálfur átt að vera herforinginn.
Kvað hann 150,000 manns hafa
ætlað að taka þátt í herför þessari
og hefðu þýzkir auðmenn í Banda-
ríkjunum lagt fram í því skyni
$16,000,000. Samsærið kveður hann
hafa byrjað í október 1914 og iha.fi
margir leynifundir verið haldnir i
New York og víðar, en áhlaupið
átti að byrja í vor. Kvaðst Louden
hafa fariö á fund Garrisons fyr-
verandi hermálaritara í Wash-
ington og sagt honuni frá öllu sam-
an. Kvaðst hann hafa látið hann
vita, að ef Bandaríkin færu í stríð
við Þýzkaland, þá yrði þessu liði
beitt á móti Bandaríkjunum; en ef
þau færu i stríð á móti Englandi,
þá berðist það undir merkjum
|>eirra og á móti Englendingum.
Þegar árásin yrði gerð áttu 120,-
000 að fara, en 30,000 að biða til
liðveizlu síðar, ef á þyrfti að halda.
Liðinu átti að skifta í fjórar deildir,
átti ein að hafa aðalstöðvar sínar í
New York, önnur í Philadelphia,
sú þriðja í Buffalo og sú fjórða
einhversstaðar á milli Detroit og
Miiwaukee. Áttti deildirnar að
kalia sig söngfélög, til þess að eng-
an grunaði neitt, “því Þjóðverjar
geta bæði sungið og baríst með
augnabliks fyrirvara”, sagöi Loud-
en.
Þegar merki væri gefið áttu allir
að vera við því búnir að fara af
stað innan tíu daga td Ontario
vatnsins, og átti jafnframt að senda
boð til Þjóðverja víðsvegar í Can-
ada. Yrðu þeir grunaðir og reynt
að hindra för þeirra, þá ætluðu jieir
á augabragði aö breyta förinni í
söngferðalag.
Þegar þeir væru tilbúnir átti aö
hefja förina á næturþeli þegar
dimm væri nótt, á 84 ferðaskipum;
en áður áttu að vera fluttar á skip-
in alls konar vistir, vopn og
klæöi. Ein deildin átti að lenda við
“Windmi'll Point”, önnur viö “Port
Hope”, sú þriðja viö “Kingston”
og sú fjóröa við “Windsor”. Átti
síðan að höggva alla málþræði og
ritsíma, en aö því búnu átti Louden
með fimtu deildina eða fara frá
Comwall til Ottawa; geröu þeir
ráð fyrir að herinn mundi annað-
hvort gefast upp eða falla eftir 24
kilukkustundir og átti þá að eyði-
leggja Welland skurðinn og taka
Canada Þjóðverjum til handa.
“Hefði eg haldið áfram, hefði þetta
verið lafihægt”, sagði Louden.
Má vel vera að eitthvaö sé hæft
í þessari sögu, en líkari er hún þó
skáldskap en virkileika..
Sendið nú eftir fullkomnri skrá
er sýnir mörg
VERDLAUN
sem gefin eru í skiftum fyrir
Roy al Cro wnSoap Coupon
---------------Og-----------------
Royal Crowa Sápu Umbúðum
Ef þér sendið bréf eða póstspjald
fáiÖ f>ér verðlaunaskrá með næsta
pósti og borgið undir
Byrjið strax að safna miðum, þeir
eru mjög verðmœtir.
ÖLL VERÐLAUN
TALINUPPÍ VERÐ-
USTANUM FYRIR 1.
APRlL 1916 ERU NO
AFTURKÖLLUÐ.
♦
NÁIÐ I NÝJA
VERÐLISTANN.
Skrifið utan á til:
THE ROYAL CROWN SOAPS
Limited
PREMIUM DEPARTMENT WINNIPEG, MAN.
V iðskiftabálkur.
Spyrjandinn, sem segir frá þvi
aö tekinn hafi veriö niður girðinga-
vír á landi hans og negldur niðri
við jörð, getur krafist þess að lag-
fært sé aftur eða skaðabætur
greiddar, eða hvorttveggja, eftir
ástæðum.
223. Canadíska-Skandi-
nava herdeildin.
Frá skrifstofu 223 deildarinnar.
Til íbúanna í Langruth, Wild
Oa)k, ísafold og Rockville héruðun-
um.
NorsUmeriska Linan
Ný og fullkomin núttSar gufu-
sklp til póstflutnlnga og farþega
frá. New Tork beina leiS ttl Nor-
egs, þannig:
“Bergensfjord’’ 13. Mal.
"Kristlanafjord” 3. Júnl.
"Bergensfjord" 28. Júnl.
"Kristlanafjord” 1B. Júll.
"Bergensfjord”, 5. Ágúst.
"Kristiansfjord” 26. Ágúst.
Gufuskipin koma fyrst tli Bergen
I Noregi og eru ferSlr tll |slands
þægilegar þaSan.
Farþegar geta farlS eftlr Balti-
more og Ohlo J&ribrautinnl frá
Chicago til New Tork, og þannig
er tæklfæri aS dvelja 1 Washtng-
ton án aukagjalds.
Eg tel mér það skylt að þakka
fólkinu í ofangreindum héruðum
fyrir það hversu ágætlega það hefir
styrkt 223. herdeildina Skandinav-
isku, sem eg stjórna, og fullvissa
það um að sú hjálp er með fullri
viðurkenningu [>egin og að mikið
þykir varið í það traust er fól’kið
hefir sýnt deildinni, bæði að því er
mig sjálfan snertir og menn mína,
og ennfremur skal fólkið fullvissað
um það að eklkert skal látið ógert
til þess að verðskulda það traust
sem það hefir í ljósi látið.
A. Lawrence Johannson, sonur
Eggerts Johannsonar fyrrum rit-
stjóra Heimskringlu, vinnur nú að
liðsöfnun fyrir Canadisku-Skandi-
navisku herdeildina nr. 223. í Van-
vouver og þar í grendinni. Þessi
ungi maður er einn þeirra manna
sem valdir hafa verið sem foringj-
ar í þessari deild. Hann er Islend-
ingum vel kunnur fyrir ágætis
frammistöðu sína við háskóla þessa
fylkis, þar sem hann útskrifaðist
vorið 1915. Síðan fluttist hann
með foreldrum sinum vestur að
Kyrrahafi, og hefir hann lesið þar
lög. Útskrifaðist hann í lögum við
Manitoba háskólann i fyrra vor.
þótt sjálfur hafi hann verið vestur
við haf. Hann veitir móttöku
mönnum sem ganga vilja í hermn
að Room 26 Canada Life Building
að 640 Hastings St. í Vestur Van
couver og einnig að heimili sinu að
1564 Charles St.
Fréttir frá 223. Skandinavisku
deildinni undir stjóm C. Albrerht-
sen herforingja.
Eftirfarandi ágætar fjárveiting-
ar hafa komið til 223. deildarinnar
frá Ingimundi Ólafssyni og eru jxer
meðteknar með bezta þakklæti.
Frá Beckville P.O., Man.:
Bjöm Thordarson........$5.00
Johannes Baldvinson...... 5.00'
Frá Langruth, Man.:
Jón Thordarson.........$5.00
Frá ísafold, Man.:
Ámason bræður..........$5.00
Jón A. Magnússon....... 6.00
Miss M. Magnússon....... 2.00
Miss H. Magnússon......... 2.00
Elías Eliasson............ 2.00
Kristján Jónsson...... i.oo'
C. C. Jónsson........... 1.00
Guðmundur Sturlason .... 1.00
Árni Hannesson .. .... . . 5.00
Grímur Guðmundson . . . . 5.00
Árni Breidfjord............ 4.00
Samtals...........$49.00
Emil Jónsson, sonur séra B. B.
Jónssonar forstööumanns Ilins ísl.
lútersika kirkjufélags hefir innritast
í 223. Canadisku-Skandinavisku
deildina.
Eftirfylgjandi menn hafa innrit-
ast í Canadisku-Skandinavisku
deildina nú hina síSustu dagana:
Emil Jónsson, Winnipeg, Man.
Marel T. Einarson, Churchbridge
Ragnar Johannesson, Wynyard
|Thorsteinn Benson, Wynyard, Sask
Erhard Monson, Meadow Bank
B. F. Thorsteinson, Mozart, Sask.
Raymond Howe, Foain Lake, Sask.
Rolært Mowk, Saskatoon, Sask.
Jens Christen Paulsen, Saskatoon
Oskar Engebretson, Camrose, Alta.
G. K. Jónatansson, Wynyard, Sask.
John B. Larson, Cloverdale, B.C.
Ture N. Johansson, Lea Park, Alta.
John Cristenson, Camerose, Alta.
Siguröur Johnson, Hayland, Man.
Charlie Oddson, Árborg, Man.
Olafur Goodman, Gimli, Man.
Charles Young, Saskatoon, Sask.
John Carlson, Saskatoon, Sask.
Louis Olson, Round Hill, Alta.
Arthur Fowell, Saskatoon, Sask.
LeaitiS upplýsinga um fargjald
og annaS hjá
HOBE & CO., G.N.W.A.
123 S. 3rd Street, Minneapolia eSa
H. S. BARDAL,
892 Sherbrooke Street, Winnipeg.
C. H. DIXON,
Lögfroeðingnr, Notary Public
Lánar peninga, Rentar húa,
lnnheimtir skuldir
265 PortaKO Avo.
TalsM 1 73* i Winnipes
Til minnis.
Fundur í Skuld á hverjum naiSviku
degi kl. 8 e. h.
Fundu/ i Heklu á hverjum fðstu-
degi kl. 8 e. h.
Fundur i barnastúkunni "Æskan”
á hverjum laugardegi kl. 4 e. h.
Fundur i framkvtrmdamefnd stór-
stúkunnar annan þriCjudag í
hverjum mánuSi.
Fundur i Bandalagi Fyrsta lúterska
safnaðar á hverjum fimtudegi
kl. 8 e. h.
Fundur i Bjarma (bandal. Skjald-
borgar) á hverjum þriöjudegi
kl. 8 e. h.
Fundur i bondolagi Tjaldbúðar
safnaðar á hverjum þriöjudegi
kl. 8 e. h.
Fundur i Unglingafilagi Onitara
annanhvom fimtudag aci. 8 e. n.
Fundur i Liberal klúbbnum á hverj
um föstudegi kl. 8 e. h.
Járnbrautarlest til Islendingafljóts
á hverjum degi nema sunnu-
dögum kl. 2.40 e. h.
Járnbrautorlest tU Arborgar á
hverjum degi nema sunnudögum
kl. 5.40 e. h.
Járnbrautarlest til Vatnabygða á
hverjum degi kl. 11.40 e. h.
Special Harness
Bridla Round Blinda Check to
hooka...................J inch
Lines good and strong .. . . | "
Hames Steel Bolts
Traces. ringincenter heel
chain..................| J
Belly band folded........| J "
Back Pads with Hooks
Terrils.................14 "
Breast straps........... IJ "
Msrtingales............. IJ "
Back strap with crupper
and Trace carrier....... 2 ‘‘
Good Collars, stata the size of Collar when
ordering
Harnesi complete S45.00
Marteinn F. Sveinson,
ELFROS, - SASK.
SEND HVERT SEM VERA VILL
Reynið hið styrkjandi
VOR-MEÐAL NYAL’S
við slappleik þeitn er þér
þjáist af
Verð $1.00
WHALEYS LYFJABOÐ
Phone 9heebr. 258 og 1130
Horni Sargent Ave. og Agnes St.
Miss Thordís Gillies á bréf með
mynd í á skrifstofu I/igbergs.
Bréfiö er frá íslandi.
Eruö þér reiöubúnir
aö deyja?
ef ekki, þá finnið
E. H. Williams
inanranoe A(*nt
eee IJndsay Biock
Phone Maln 9076
\Tmbo6amaóur fyrir: The Mut-
ual Llfe of Canada; The Ðomlnlon
of Canada Guar. Accident Co.; og
og einnlg fyrlr elds&byrgtlarf«lSg,
Plate Glass, BlfrelCar, Burglary
og Bonds.
H. EMERY,
homi Notre Dame og Gertie sca
TAL8. GARBY 48
ÆtliC þér aC flytja yCur? HJf
yCur er ant um aC húsbúnaCur
yCar skemmist ekkl I flutnlngn-
um, þá finniC oss. Vér leggjum
■érstaklega stund á þ& ICnaCar-
grein og ábyrgjumst aC þér verC-
iC ánægC. Koi og viCur eeM
lægsta verCi.
Baggage and Bxprees
Lœríð símritun
LærlC s/mritun; jflrnbrautar oe:
verzlunarmönnum kent. Verk-
leg kensla. Engar námsdeildir.
Einstakllngs kensla. SkrifiC eft-
ir boðsriti. Dept. "G”, Western
Schools, Telegraphy and Rall-
roading, 607 BuiKdera* Exchsnge,
Winnipeg. Nýir umsjónarmenn.
Öryggishnífar
•*«tv skerptir RAZOR8
Ef þér er ant um að fá góöa
brýnslu, þá höfum viö sérstaklega
gott tækifæri aö brýna fyrir þig
rakhnífa og skæri. “Gilett’s” ör-
yggisblöö eru endurbrýnd og “Dwp-
lex” einnig, 30c. fyrir tylftina; ein-
föld blöö 25c. tylftina. Ef rakhníf-
ur þinn bítur ekki, þá láttu okkur
sýna þér hversu auövelt þaö er aö
raka þegar v'ér höfum endurbrýnt
blööin. — Einföld blöö einnig lög-
uö og bætt. — Einnig brýnum viö
skæri fyrir lOc.—75c.
Tlii Razor & Sbeir Sharpening Co.
4. lofti, 614 Ðuildera Exchange Grinding Dpt.
333i Portage Are., Winnipeg
VJER
KAUPUM
SELJUM OG SKIFTUM
GÖMUL
FRIMERKI
frá öllum lönduni, nema ekki þesei
va nalegu 1 og 2 eenta frá Canada og
Bandaríkjunuin. Skrifið á ensku.
O. K. PRESS, Printers,
ILm. 1, 340 Main St. Winnipeg
Ef eitthvaS gengur aS úrinu
þínu þá er þér langbezt a6 xodt
þaS til hans G. Thotnas. Hann er
í Bardals byggingunni og þú mktt
trúa þvi aö úrin kasta ellSbdgn-
um í höndunum á honum.
ÓskaS er eftir aö heyra frá
kvenmanni, sem hugsanlega vildi
og gæti tekið aö sér búsýslu með
einbúa á landi.
Nöfnum verður haldið leyndum.
B. G. Gíslason
R. No. 2 Box 90
Bellingham, Wash.