Lögberg - 18.05.1916, Síða 8
8
LÖGBEBÖ, FIMTUDAGINN 18. MAI 1916.
The Swan Manufacturing Cn.
býr til hinar velþektu súgræmur „Swan
Weather Strips“. Gerir við allskonar hús-
gögn. Leysir af hendi ýmiskonar trésmíð-
ar. Sérstök athygli veitt flugnavírsgluggum
hurðum og sólbirgjum (Verandas).
Vinnustofa að 676 Sargent Ave. TrIs. S. 494
HALLDOR METHUSALEMS
Eg hefi nú nægar byrgíir af
“granite’’ legsteinunum “góSu”
stööugt viö hendina handa öllum,
sem þurfa. Svo nú ætla eg aö biöja
þá, sem hafa verið atS biðja mig um
legsteina, og þá, sem ætla að fá sér
legsteina í sumar, að finna mig sem
fyrst eða skrifa. Eg ábyrgist að
gera eins vel og aðrir, ef ekki betur.
Yðar einlægur.
A. S. Bardal.
Or bænum
Guömundur Sigurjónsson leik-
fimiskennari hefir gengið í liknar-
deild hersins ("223. deildarinnar).
Baldvin Guðmundsson frá
Narrows var á ferð í bænum í vik-
unni sem leið, og fór heimleiðis
aftur á föstudaginn.
Séra K. K. Ólafsson frá Moun-
tain kom hingað í vikunni sem leið
til þess að vera á skólaráðsfundin-
um.
Halldór Jóhannesson trésmiður
fór norður í Mikley á mánudaginn
og verður þar um tíma, býst við að
vinna þar að húsasmíðum.
Kona séra Haraldar Sigmar og
tveir bræður hennar Friðrik og
Hálfdán komu til bæjarins á föstu-
daginn til þess að vera við giftingu
Octaviusar bróður síns.
Wynyard Advance segr frá því
að systurnar Þorbjörg og Lilja
Eyrikson, dætur Sigurjóns Eyríks-
sonar hafi tekið kennarapróf
Ýorkton 8. og 9. marz.
V. B. Hallgrímsson frá Wynyard
kom til bæjarins i fyrri viku með
systur sinni húsfrú F. S. Finnson.
Hún kom hingað til lækninga; var
skorin upp við botnlangabólgu
fyrra föstudag. Dr. Brandson gerði
uppskurðinn.
Theodor Þórðarson frá Mikley
var á ferð í bænum; kom fyrir
helgina og fór aftur á mánudaginn.
Hann var að kaupa efni í hús sem
hann ætlar að fara að byggja.
Vorstökur 1916.
Sólar æðar allar blæða,
yfir hæðir, grund og dal,
lifna kvæði, lækir flæða,
ljósin bræða jökul sal.
Skína tindar, roðna rindar,
runnar mynda fríðan kranz,
blíðir kynda vorsins vindar
von og yndi hjarta manns.
Eftir kvíða hels og hríða,
hjarn og stríðið blóði skráð,
vorsins tíðin vonar blíða
veitir lýðura himins náð.
Meðan þjóðir baðast blóði,
brendar glóð sem heimskan ól,
blómin góðu guðs úr sjóði
glitra rjóð við dagsins sól.
M. Markússon.
Goodtemplarar!
Næsti fundur stúkunnar Heklu
á föstudaginn 19. maí, verður
skemtifundur og fróðleiksfundur.
Séra Rögnvaldur Pétursson flytur
fyrirlestur. . .Fleyra verður til
skemtunar. Þess væri óskandi að
1 allir Goodtemplarar sæktu fundinn.
Það mundi engan iðra þess.
Red Cross.
Kvenfél. “Hlín”, Markland $5.00
Geo. Goodman, Winnipeg . . 5.00
Frá J. H. Johnson, Dog Creek,
Man sem ágóða af samkomu
undir umsjón Goodtemplara-
stúkunnar “Djörfung” .. $112.50
T. E. Thorsteinson.
Féhirðir ísl. nefnd.
í æfiminning sem nýlega birtist í
Lögbergi er sagt að Albert Þiðriks-
son og Elin kona hans hafi búið
á Hólum í Hjaltadal, en það er ekki
rétt, Albert var þar vinnumaður.
Johann Stephanson frá Kanda-
har kom til bæjarins á fimtudaginn ;
var hann að leita sér lækninga og
var skorinn upp á laugardaginn;
gerði Dr. Brandson uppskurðinn.
Stephanson sagði að ofsarok hefði
verið þar vestra á sunnudaginn og
hefði sumstaðar tæplega sést í heið-
an himininn fyrir moldroki þegar
stormhviðurnar voru sem verstar.
Stephanson var búinn að sá hveiti
í rúmar 500 ekrur; kvað hann sán-
ingu langt komna. En illa þótti
honum líta út á sléttunum vestur
af Winnipeg, þær voru allar blaut-
ar og svo að segja hvergi hreyfður
plógur.
Jón Ámason læknaskólanemi kom
til bæjarins á laugardaginn og fór
aftur á mánudaginn. Hann er
bamakennari á Vestfold, eins og
fyr er frá skýrt.
Jarðarför húsfrú H. Skaftfeld
fór fram á föstudaginn eins og aug-
lýst hafði verið. Tvær ræður voru
fluttar á heimilinu og aðrar tvær i
kirkjunni, sin af hvorum grestanna
séra F. J. Bergmann og séra Bjarna
Þórarinssyni, á báðum stöðum.
Auk þess söng ungfrú Halldóra
Friðfinnsson “Tárið” í kirkjunni.
Fjöldi fólks var við jarðarförina,
eins og vænta mátti.
Valdimar Jónasson, ungur mað-
ur sonur Júlíusar Jónassonar tré-
smiðs hér í bænum og Kristínar
konu hans, lést á almenna sjúkra-
húsinu á laugardaginn var eftir
langa legu. Hann var jarðaður á
mánudaginn af séra F. J. Berg-
mann.
Kveldguðsþjónustan i Skjaldborg
á sunnudaginn verður sérstaklega
tileinkuð unga fólkinu; auðvitað
eru alþ'r velkomnir eins og vant er,
en unga fólkið einkum ámint um að
koma. Guðsþjónusta verður einnig
haldin að morgninum kl. ix.
Tvitug stúlka i Winnipeg, sem
Torrenia Skobleska heitir, játaði
það á sig fyrir rétti fyrra miðviku-
dag að hún hefði borið út bam sem
hún hefði alið.
Séra Bjami Þórarinsson frá
Langruth og kona hans komu til
bæjarins á fimtudaginn til þess að
vera við jarðarför húsfrú H.
Skaftfeld. Séra Bjarni býst við að
leggja af stað alfarinn heim til ís-
lands með fjölskyldu sína síðari
part sumars. Hann fór norður til
Langruth aftur á sunnudaginn og
verður þar um stund, en kona hans
fór norður að Gimli. þangað fer
hann einnig innan Skamms og bú-
ast þau hjón við að dvelja þar um
tíma í sumar.
S - J-O-N-L-E-I-K-l-R
“LYGASVIPIR”
leikur í 2 þáttum eftir Arna Sigurðsson
---------og---
“VARASKEIFAN”
gamanleikur í 3 þáttum eftir Erick Böghe
verða endurteknir í síðasta sinni í
GOODTEMPLAR HUSINU OQ
ÞRIÐJUDAGSKVELDIÐ .. lYiai
Johnstons Orchestra spilar m.lli þátta.
INNGANGUR 35 cts. Byrjar klukkan 8 e. h.
Aðgöngumiðar aðeins seldÍT við innganginn.—LEIKNEFNDIN
í bréfi frá Thos. H. Johnson
segir hann frá því að hann hafi
tækifæri að afla sér margra og
merkilegra upplýsinga þar sem
hann er á þingi í Cincinati viðvíkj-
andi bættri meðferð á föngum að
ýmsu leyti. Það mál er að fá byr
undir báða vængi og er það vel
farið.
Snorri Jónsson frá Islendinga-
fljóti kom til bæjarins á mánudag-
inn og fór heimleiðis aftur á
þriðjudag. Almenna vellíðan sagði
hann þar nyrðra.
Bréf kom nýlega frá Capt. J.
Bergmann, sem er i hemum austur
í Evrópu; lætur hann illa af ýmsu
þar eystra og er alls ekki ánægður.
Vinnukona óskast; enginn þvott-
ur né línsléttun ólroning).
Upplýsingar að 438 Assiniboine
Ave. Talsími Main 4105.
Guðmundur Sigurjónsson Ieik-
fimiskennari fór vestur til Lög-
bergs og Vatnabygða á sunnudags-
kveldið og verður þar nokkra daga.
“Lygasvipir” og “Varaskeifan”
verða leikin í Goodtemplarahúsinu
á þriðjudagskveldið 23. þ. m. Þeir
munu hafa verið margir sem ekki
sáu nýja leikinn en gjama hefðu
viljað vera þar, ef ástæður hefðu
leyft. Nú gefst tækifærið í siðasta
sinni og ættu menn að nota það.
Dr. Guðmundur Finnbogason og
Jón Bildfell fóru út til Lundar og
Grunnavatnsbygðar í vikunni sem
leiö; hélt Guðmundur þar fyrir-
lestra á ýmsura stöðum. Þeir ætl-
uðu út til Hayland og Narrows,
eins og auglýst hafði verið, en
komust ekki lengra en til Ashem,
urðu þá a® snúa aftur, því vegir
vom gersamlega ófærir. Þeir
Guðmundur og séra B. B. Jónsson
fóru á sunnudagskveldið vestur i
þingvallabygð og vatnabygðir.
Steingrimur Octavius Thorlak-
son, sonur séra Steingríms Thor-
lakssonar, og ungfrú Carolina
Thomas, dóttir Guðjóns GuIIsmiðs
voru gefin saman í hjónaband á
föstudaginn var. Brúðhjónin fóm
til Selkirk eftir hjónabandið til þess
að heimsækja foreldra brúðgum-
ans.
Jón Þorsteinsson og Ágúst
Ámundason frá Mikley vom á ferð
í bænum á laugardaginn. Jón var
að leita sér lækninga hjá Dr. Jóni
Stefánssyni. Hann fór heim aftur
i gær. Alt það bezta sagði hann þar
að utan; íbúum eyjarinnar hefir
fjölgað mjög upp á síðkastið, hafa
margir tekið þar heimilisréttar lönd
nýlega, og eru það alt íslendingar.
John Lae eigandi St. Regis hó-
telsins', hefir nýlega verið kærður
hvað eftir annað fyrir lögbrot;
hefir hótelinu verið lokað öðru
hvoru, en hann altaf brotið jafn-
harðan aftur.
Tveggja ára gamall drengur sem
Harold Buchanan hét að 893 Ash-
burn stræti andaðist fyrra miðviku-
dag af afleiðingum þess að hann
helti yfir sig sjóðandi vatni.
Piltbarn nýfætt fanst i St.
Marys kirkjugarðinum í Fort
Rouge fyrra þriðjudag. Hafði
barnið verið borið út, en það sást
við likskoðun að það hafði fæðst
andvana. Enginn veit um for-
eldrana.
Thos. H. Johnson ráðherra fór
suðvestur að hafi og til Cincinati
í vikunni sem leið og verður þar
tveggja vikna tima. Hann fer þar
á þing um vegabætur og bætta með-
ferð á föngum.
Ingvar Jónsson frá Geysi kom
til bæjarins fyrra föstudag; var
hann að koma með Guðnýju móður
sína til lækninga til Dr. Brandsson-
ar. þau fóm heim aftur á þriðju-
daginn og er hún á góðum bata-
vegi. Þau létu mikið af því hversu
vel Dr. Brandssyni hefði farist við
þau í alla staði.
í dánarfregn Sigríðar dóttur
Árna Jónssonar í Selkirk í Lögbergi
27. apríl er sagt að hún hafi verið
systir Stefáns J. Stefánssonar, en
það átti að vera systir Stefaníu
konu Jóns Stefánssonar.
Fred Conrad Dalman hljómleik-
ari og kona hans, sem dvaláð hafa í
Edmonton í vetur, komu alflutt
hingað á mánudaginn var. Jón
Dalman bróðir hans ásamt konu
sinni og bömum hefir verið í Prince
Albert í vetur og eru þau einnig al-
flutt hingað aftur.
Ritdómur.
Yrkir níð af mliklum móð
mannúð fótum treður.
Fávís gapi glæpa ljóð
grönnu viti kveður.
Helgi Jóhannsson frá Árnesi
kom til bæjarins á mánudaginn og
fór heimleiðis aftur næsta dag.
Joseph Petursson og Guðrún
Margrét Goodman, bæði frá Gimli,
voru gefin saman í hjónaband 11.
þ. m. að 493 Lipton St. af séra R.
Marteinssyni.
J Glaðar stundir f
Svo var mikið frost og kuldi i
fyrradag og gær og þykkur ís var á
vatni og reglulegt vetrarveður.
400 ökumenn gerðu verkfall á
fimtudaginn hjá jámbrautar félög-
um C. P. R.; C. N. R. og G. T. P.
Krefjast þeir hærri launa. Þeir
hafa um $2.00—$2,25 en fullyrða
að ekki sé mögulegt að lifa á
minna en $2.50 á dag og heimta það
alla daga að sunnudögum meðtöld-
um.
Börnin í Winnipeg hefðu átt
glaða stund við snjókast fyrra mið-
vikudag, ef ekki hefði verið kuldi
og óstætt veður af roki.
78. herdeildin fór af stað áleiðis
til Englands fyrra mánudag. Með
þeirri herdeild fóru þessir tslend-
ingar:
Alexander Daviðsson frá Baldur,
Conráð Sigtryggsson frá Glenboro,
Pétur Goodman frá Glenboro,
Páll Pálsson frá Glenboro,
Egill Stephansson frá Winnipeg,
Oskar Goodman frá Winnipeg,
Oskar Finnbogason frá Winnipeg,
Bjöm Hjörleifsson frá Isl. fljóti
—Lögberg óskar þessum Löudum
góðs gengis og heillar afturkomu að
unnum sigri.
Jón Halldórsson frá Sinclair
kom til bæjarins fyrra mánudag og
fór heim aftur á fimtudaginn.
Hann sagði góða líðan þar ytra,
sáning stóð yfir og var langt komin.
íslendingar eru fremur fámennir í
þeirri bygð, tóku margir heimilis-
réttar lönd þar fyrrum en hættu við
þau sumir og aðrir seldu. Hall-
dórsson er gamall Argyle maður,
var þar í 12 ár, en þrjátíu ár hefir
hann verið í þessu landi og samt er
íslenzka ekkert ryðguð á tungu
hans.
Jóhannes Baldvinsson frá Beck-
ville var hér á ferð á þriðjudaginn
og fer heim aftur næsta sunnudag.
Hann kvað hveitisáningu langt
komna þar í kring og land miklu
þurrara en þegar nær drægi Winni-
peg-
Vér viljum vekja athygli fólks
hér í borginni á útsölu þeirri sem
haldin veTður í Skjaldborg tvö
næstu kvöld (Yimtudags- og föstu-
dags kveld). Þar eru margir nyt-
samir munir og eigulegir til sölu og
ýmsar fáséðar hannyrðir sem kon-
uranr í Skjaldborg hafa nú í lang-
an tíma veríb að undirbúa. Einnig
verða þar ýmsar góðgerðir handa
öllum sem koma.
Gunnlaugur Martin frá Hnau*-
um var á ferð i bænum á mánuaag-
inn og fór heim aftur á þriðjudag-
inn. Hann kvað bleytur miklar
þar nyrðra og sáningu ganga seint;
sumir engu búnir að sá, aðrir ný-
byrjaðir, svo að segja engír búnir.
Munið eftir “Lygasvipum”, nýja
leiknum, sem auglýstur er á öðrum
stað i blaðinu.
Björn Pétursson hér í bænum
og Sigurður Jónsson frá Bantry
Norður Dakota hafa báðir gefið
Lögbergi þær upplýsingar að sein-
ustu sumar páskar hafi verið 1905,
en næstu þar á undan 1886. Enn
fremur kveður Björn næstu sumar
páska verða 1943. Góupáskar
segir hann að hafi verið síðast 1913
og verði þeir aðeins einu sinni aft-
ur á þessari öld, 4tið 1970.
Sér Steingrímur Ttorláksson frá
Selkirk var á ferð i bænum fyrir
síðustu helgi; var hann hér á skóla-
ráðsfundi sem haldinn var á
fimtudaginn.
Hrólfur Sigurðsson kaupmaður
frá Ámesi kom hingað í verzlunar
erindum á mánudaginn og fór heim
aftur næsta dag. Sagði hann sömu
fréttírnar þaðan og Gunnlaugur
Martin frá Hnausum; sáning geng-
ur afar illa bæði vegna bleytu og
kulda. Verzlun sagði hann að
hefði verið allgóð í Árnesi í vetur,
en væri fremur dauf um þetta leyti.
Þar eru nú fjórar verzlanir alls.
Nýkomið er bréf frá E. Bald-
vinssynii frá Evrópu. Lætur hann
vel af líðan sinni að öllu nema því
að hann hefir ekki enn fengið
ýmislegt er honum hefir veríð sent.
Hann vinnur við að flytja stórar
kúlur.
I.
;Bamasamkoma var haldin í
Skjaldborg fyrra miðvikudagskveld.
Voru það einungis börn sem þátt
tóku í skemtiskránni og var mesta
unun á að horfa og hlusta. Kenn-
arar sunnudagaskólans höfðu æft
bömin i mörgum flokkum til alls-
konar skemtana, svo sem söngs,
hljóðfærasláttar, íþrótta, samtals og
leikja.
Til þess að æfa þannig börn þarf
mikla lipurð og þolinmæði, langan
tíma og sérstaka fyrirhöfn.
Það er ekki nema fáum gefið að
geta unnið meðal barnanna svo að
notum komi, en það er þó meira
virði en margur hyggur.
Það skemtilegasta á þessari sam-
komu var æfing, sem nokkrar stúlk-
ur sýndu, þar sem þær fléttuðu
saman langar ræmur klæðis í þrem-
ur litum, rautt, hvitt og blátt. flétt-
uðu það einungis með því að stíga
léttan dans á vissan hátt; þegar það
var gert röktu þær fléttuna upp
aftur á sama hátt. Þetta tók
langan tíma og mikinn setning, en
þó fibaðist stúlkunum aldrei, þrátt
fyrir það að þær stigu dansinn við-
stöðulaust. Slikar æfingar eru
bæði fagrar og nytsamar, þar sem
fylgjast verður að liðugur líkami og
hugsanafesta. Það er því ment-
andi, auk þess sem það er skemt-
andi.
Það er víst að menn skemtu sér
vel við þetta tækifæri og mun
margur hafa færst í anda til
bemsku sinnar og óskað þess að
vera orðinn bam aftur. Það er
fátt sem þíðir hugann betur og ylj-
ar hann en það að horfa og hlusta
á saklausa bamagleði.
“Því hvað væri oss lífið þá lengur
ef litum ei hlæjándi bam?
Sem frjóvana firnindi að baki,
og framundan gróðurlaust hjarn."
II.
Fyrirlestur um Island flutti
enskur maður á sunnudaginn var i
Hjálpræðisherskastalanum á Elgin
Ave. Maðurinn heitir Souuton og
er yfirmaður hjálpræðishersins hér
í fylki. Hafði hann komið til Is-
lands árið 1906 og auðsjáanlega
veitt því athygli sem fyrir augun
bar og fest það i minni sem honum
hafði verið sagt. Hann er eini út-
lendingurinn sem vér höfum heyrt
tala um ísland án þess að fara með
nokkrar fjarstæður.
Hafði hann farið heim með skip-
inu Láru og fengið versta veður.
Samferða honum frá Engl. varð
H. Hafstein fyrv. ráðherra og hafði
hann gefið honum margar upplýs-
ingar og búið augu hans, eyru og
tilfinningar undir það að taka á
móti ‘því sem hann mætti þegar
hann kæmi til Islands. Er slíkur
undirbúningur mikils virði fyrir
ferðamann.
Hafsteinn hafði meðal annars
sagt honum frá því—eins og satt
er—að Island væri eitt hinna fáu
landa í heimi sem ekkert skuldaði.
Áður hafði ræðumaður vitað það
að ísland var land sagnafróðleiks
og skáldskapar, vísinda og bók-
menta.
Stjórnarfarinu lýsti hann einkar
einkennilega; kvaöst hann hafa
sannar sögur af þvi að þjóðin væri
mesta pólitíska þjóð sem sólin skini
á. Þar væru svo skiftar skoðanir
að fjölda margir flokkar væru í
hverri þingdeild og ekki nema 2—3
í mörgum flokkum — jafnvel ekki
nema einn í sumum. Þetta kvað
hann lýsa sjálfstæði og einstaklings
karakter. Þar teymdi ekki hver
annan, eins og víða ætti sér stað
annarsstaðar.
Mikið fanst honum um það
hve mikla áherzlu landsmenn lögðu
á það að halda málinu óblönduðu
og islenzku. Sagði hann þess mörg
dæmi, svo sem þessi: Þegar þráð-
laus sambönd komu heim þangað
var ekki tiltök að kalla það “Traad-
löse Telegraf”, sem er danska
nafnið. Það var sama sem guð-
last á íslandi. Það varð að búa til
nýtt orð íslenzkt; og það var loft-
skeyti. Sama var að segja þegar
reiðhjól komu þangað; þau heita
á dönsku “Cykkel”, en það hneyksl-
aði íslenzku eyrun. Annað orð varð
að smíða íslenzkt og þvi var búið til
orðið hjólhestur. Þegar fituefni
það var fyrst flutt til íslands er
“Margarin” kallast, varð enn að
smiða nýtt orð, og þá fæddist orð-
ið smjörlíki. Souuton hélt því
fram að íslendingar sýndu afar-
miikla list í því hevrsu orðhagir
þeir væru; orðin næðu svo undur
vel hugtakinu. Eitt af því allra
merkasta þegar um sögu landsins
væri að ræða þótti honum það að
á annað þúsund ár væru liðin síðan
íslendingar hefðu haft þjóðstjóm;
Englendingar t. d. sem teldu sig
fremsta í þjóðstjórnarhugmyndum
yrðu þar að líta upp til íslendinga
sem lærifeðra og fyrirrennara.
Lýsti hann þvi hvernig menn
hefðu komið saman á Þingvelli í
fyrri daga, samið þar lög og útkljáð
mál sín. Um alt stjórnarfar lands-
ins til forna hafði H. Hafstein sagt
honum vel og greinilega.
Sem eitt merki um vísindaleg ein-
kenni þjóðarinnar nefndi hann fjár-
mörkin og markatöflurnar. Kvað
hann það undrun sæta að allar kind-
ur í landinu væru þannig merktar
á eyrunum að hver eigandi gæti
helgað sér sína kind; væru þetta
regluleg vísindi, enda til lærdóms-
ríkar bækur, sem ekki fjölluðu um
neitt annað en fjármörk.
Hann lýsti laugunum í Reykja-
vik, þessum opinberu þvottahúsum
þar sem allir hafa jafnan aðgang
að, hvort sem þeir eru æðri eða
lægri, rikari eða fátækari. Kvaðst
hann hafa staðið undrandi þar sem
hann horfði á þetta eilífsjóðandi
vatn í hinum sjálfgerðu kötlum þar
sem kynt var undir í iðrum jarðar-
innar og aldrei kólnaði.
Það þótti honum illa farið að
ekki skyldu vera nema 80,000 íbúar
á landinu i stað þess að þar gætu
auðvekllega 500,000 lifað góðu lífi.
Aðeins fáeinir innlendir bátar væru
þar sem afla flyttu i Iand úr gull-
kistunni miklu, en megnið af fisk-
inum væri rifið upp af útlendum
þjóðum og flutt í burtu.
Tölumaður sagði frá ýmsum sið-
um á íslandi er honum þóttu ein-
Fáið nýia fl—«■■■— O' Gerið hæg-
listann KnilQl I.PnUfll S» 113 ara fyrir
okkar | IIUjul Ul UvVlllla|Ju við þvott-
Coupons og umbúðir eru mikils virði, geymið þær og
eignist ókeypis verðlaun.
Verðlaun sem geíin eru eru valin með mestu fyrir-
hyggju og ætíð reynt að fá beztu vöru sem fáanleg er.
Vér höfum nýlega gefið út nýjan verðlista, eignist
hann—hann kostar ekkert.
011 verðlaun, sem sýnd eru á listum er út hafa verið
gefnir fyrir maí 1916, eru nú afturkölluð. og geta ekki fengist.
Pegar þér pantið verðlaun þá veljið 2, svo enginn drátt-
ur verði á sendingu.
IHE ROYAL CROWN SOAPS
Limited
PREMIUM DEPARTMENT
WINNIPEG, MAN.
Norsk-Ameriska Linan
Ný og fullkomin nfltltSar grufu-
skip til póstflutninga og farþega
frð. New York beina leið til Nor-
egs, þannig:
“Kristianafjord” 3. Júnl.
"BERGENSFJORD”, 24. Júni
“Kristianafjord” 15. Júll.
“Bergensfjord”, 5. Agúst.
"Kristiansfjord” 26. Ágúst.
“BERGENSFJORD,” 16. Sept.
Gufuskipin koma fyrst til Bergen
1 Noregi og eru ferC'lr tll |slands
þægilegar þaCan.
Farþegar geta fariC eftir Balti-
more og Ohio járibrautinnl fr&
Chicago til New York, og þannig
er tækifæri aC dvelja I Washlng-
ton &n aukagjaids.
LeaitiC upplýstnga um fargjald
og annaC hjá
HOBE & CO., G.N.W.A.
123 S. 3rd Street, Minneapolis, eða
H. S. BARDAL,
892 Sherbrooke Street, Winnipeg.
C. H. DIXON,
Lögfrœðingur, Notary Public
Lánar peninga, Rentar hús,
Innheimtir skuldir
265 Portaae Ave.
Tals M 1 734 Winnipeg
Ef eitthvað gengur að úrínu
þínu þá er þér langbezt að senda
það til hans G. Thomas. Hann er
í Bardals byggingunni og þú mátt
trúa því að úrin kasta ellibelgn-
um í höndunum á honum.
YFIRKENNARA vantar við
Lundar Cons. skóla No. 1670, ár-
langt, frá 5. september næstkom-
andi. Umsækjandi verður að hafa
fyrsta eða annars stigs “Profes-
sional Certificate” og tilgreina æf-
ingu, aldur og kaup. Tilboðum
sint fram til 20. júní næstkomandi.
D. J. Lindal, Sec. Treas.
Lundar, Man.
kennilegir. Þegar menn mættust
kvað hann hverja spurninguna
jafnan reka aðra, svo sem þessar:
“Hvað heitirðu? Hvaðan kemurðu?
Hvert ætlarðu ? Hvað er að frétta?”
Svona kvað hann fróðleiksfýsnina
koma fram í daglegu lifi og um-
gengni manna hvers við annan,
enda væri íslenzka alþýðan einkar
fróð. Menn hittust þannig uppi á
heiðum eða öræfum, spyrðust frétta
og fengju þær og bæru þær svo
hver heim í sitt hérað.
Það þótti honum fallegt orðatil-
tæki að þegar þakkað væri fyrir
mat eða guðað á glugga, þá væri
svarað: “Guð blessi þig”. í sam-
bandi við það fór hann út í saman-
burð á enskri tungu og íslenzkri
og komst að þeirri niðurstöðu að
Vikingarnir fomu hefðu haft afar-
mikil áhrif á þá tungu sem nú væri
töluð á Bretlandi; t. d. mintist hann
á þann auðsæja skyldleika sem væri
með orðinu blessun á íslenzku og
“blessing” á Ensku.
Að endingu mintist hann á ferð-
ir hinna fornu Islendinga, hversu
víða þeir hefðu siglt um höf og
hversu mikinn orðstýr og góðan
þeir hefðu getið sér. Fór hann
nokkrum orðum um landafundi
þeirra og kvað það heiður mikinn
oss íslendingum að Eiríkur rauði
hefði verið fyrsti hvíti maður sem
fæti sínum hefði stigið á land í
þessari álfu.
Séra B. B. Jónsson stýrði sam-
komunni; flutti stutta og velvið-
eigandi ræðu um áhrif Hjálpræðis-
hersins og það mikla verk er hann
hefði leyst af hendi í öllum löndum
heimsins. Þar væru þeim opnastar
dyrnar sem mesta hefðu þörfina.
Kvaðst hann minnast þess þegar
hann hefði verið drengur hér í bæ
að grunsemdar- og tortrygnis aug-
um hefði verið litið á þetta nýja
félag, en sem betur færi hefði það
nú fyrir löngu hlotið verðuga við-
urkenningu.
Þess má geta að Souuton mintist
á að íslendingur hefði fyrst unnið
að stofnun Hersins á Fróni. ÞaS
var Þorsteinn Davíðsson bróðir R.
J. Davidson hér i borg.
H. EMERY,
homl Notre Dame og Gertie sts.
TAIjS. GAIIRY 48
ÆtliC þér aC fiytja yCur? Eí
yCur er ant um aC húsbúnaCur
yCar skemmist ekki 1 flutningn-
um, þ& finnlC oss. Vér leggjum
■érstaklega stund & þ& lCnaCar-
greln og ábyrgjumst aC þér verO-
1C ftnægC. Kol og vlCur seR
lægsta verCl.
Baggage and Express
Lœrið símritun
LæriC simritun: járnbrautar og
verzlunarmönnum kent. Verk-
leg kensla. Engar n&msdeiidir.
Einstaklings kensla. Skrifið eft-
ir boCsriti. Dept. “G”, Western
Schools, Telegraphy and Rail-
roading, 607 Bullders’ Excliange,
Winnipeg. Nýir umsjónarmenn.
•AFETV
Öryggishnífar
skerptir
RAZORS
Ef þér er ant um að fá góða
brýnslu, þá höfum við sérstaklega
gott tækifæri að brýna fyrir þig
rakhnífa og skæri. “Gilett’s” ör-
yggisblöð eru endurbrýnd og “Dup-
lex” einnig, 30c. fyrir tylftina; ein-
föld blöð 2öc. tylftina. Ef rakhníf-
ur þinn bítur ekki, þá láttu okkur
sýna þér hversu auðvelt það er að
raka þegar vér höfum endurbrýnt
blöðin. — Einföld blöð einnig lög-
uð og bætt. — Einnig brýnum við
skæri fyrir lOc.—75c.
The Razor 8 Shear Sharpening Co.
4. lofti. 614 Ðuilders Exchange Grinding Dpt.
333£ Portage Ave., Winnipeg
VJER
KAUPUM
SELJXJM OG SKIFTUM
GÖMUL
FRIMERKI
frá öllum löndum, nema ekkl þeset
vanalcgu 1 og 2 centa frá Canada og
Bandaríkjunum. Skrlfið á ensku.
O. K. PRESS, Printers,
Rm. 1, 340 Main St. Winnlpeg
Til
minms.
Fundur í Skuld á hverjum miðviku
degi kl. 8 e. h.
Fundur i Heklu á hverjum föstu-
degi kl. 8 e. h.
Fundur i barnastúkunni “Æskon”
á hverjum laugardegi kl. 4 e. h.
Fundur i framkvcemdamefnd stór-
stúkunnar annan þriðjudag í
hverjum mánuði.
Fundur i Btmdalagi Fyrsto lúterska
safnaffar á hverjum fimtudegi
kl. 8 e. h.
Fundur i Bjarmo fbandal. Skjald-
borgar) á hverjum þriðjudegi
kl. 8 e. h.
Fundur i bandolagi Tjaldbúðar
safnaSar á hverjum þriðjudegi
kl. 8 e. h.
Fundur í Unglingafélagi Onitara
annanhvom fimtuoag *i. 5 e. n.
Járnbrautarlest til Islendingafljóts
á hverjum degi nema sunnu-
dögum kl. 2.40 e. h.
Járnbrautarlest til Arborgar á
hverjum degi nema sunnudögum
kl. 5.40 e. h.
Járnbrautarlest til VatnabygSa á
hverjum degi kl. 11.40 e. h.
Reynið hið styrkjandi
VOR-MEÐAL NYAL’S
við slappleik þeim er þér
þjáist af
Verð $1.00
WHALEYS LYFJABÚÐ
Phone Slwbr. 258 og 1130
Horni Sargent Ave. og Agnes St.