Lögberg - 31.05.1917, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 31. MAÍ 1917
3
Dœtur Oakburns
lávarðar.
Eftir MRS. HENRY WOOD.
Fyrsti kafli.
I. KAPfTULI.
Konan.
Lítið þorp í miðju Englandi var fyrir nokkrum
árum síðan véttvangur sorglegs viðburðar. Eg
verð að biðja lesendur mína að vera umburðar-
lynda á meðan eg segi frá honum. Afbrotunum,
sem orsakast af hinni vondu ástríðu í eðli voru,
er alls ekki þægilegt að lýsa með orðum; en því
verður ekki neitað,'að þau hafa áhrif á allmarga,
já, næstum því töfrandi áhrif. Eg vona að eftir-
íarandi lýsing á því, senvfram fór, muni hafa slík
áhrif á lesendur mína.
South Wennock, nafnið á plássinu, var næstum
því að eins grein eða frjóangi af Great Wennock,
allstórum bæ, sem var í hálfrar milu fjarlægð
þaðan.
Jámbrautarleiðirnar, sem frá London og öðr-
um bæjum mættust í Great Wennock, náðu eklci
til South Wennock, og þar af leiðandi varð ferða-
fólkið, sem kom með lestinni, að gera sér að góðu
að nota almenningsvagn, ef það vildi fara til litla
bæjarins.
pessi hálfrar mílu vegur, sem almennings-
vagninn varð að fara eftir, var að líkindum sá allra
versti vegur er mögulegt er að finna hjá menta-
þjóðum. pegar almenningsvagninn hafði hossast
áfram yfir þenna veg, ók hann inn í miðju bæjar^
ins South Wennock, sem heita mátti að væri að-
eins ein löng gata, og stóðu húsin dreifð meðfram
henni; gatan var kölluð High Street. Á síðari
tímum höfðu bæzt við nokkrar byggingar við
endana á gömlu götunni. önnur deildin, þar sem
byggingarnar voru aðallega dreifðar og stóðu á
hæðum með veggsvölum, var gatan kölluð Palace
Street, af þeirri ástæðu að hún lá að skemtihöll
biskupsins í héraðinu; hin deildin, við hinn enda
High Streets, var kölluð “Bakkinn”, af því jarð-
vegurinn hækkaði þar smátt að smátt á löngu
svæði, og þar voru flestar byggingranar dreiíð
skemtihús, sum lítil, önnur stór.
Síðari hluta föstudags, hinn 10. marz 1848,
kom almenningsvagn stöðvarinnar, fremur lítill
vagn með sex sætum aðeins, hossandi eftir braut-
inni, því þjóðbrautin myndaði réttan vinkil með
bænum, og hefði almenningsvagninn getað haldið
áfram sem jámbrautarlest án tillits til húsa eða
annara ómerkilegra hindrana, þá hefði hann skor-
ið bæinn í sundur þannig, að nokkuð af High
Street og Bakkinn hefði orðið til hægri, en hinn
hlutinn og Palace Street til vinstri.
Almenningsvagninn var nú samt ekki svona
ofbeldislegur. Hann ók inn í High Street gegn
um hið vanalega sund, sneri dálítið til vinstri og
nam staðar þar sem hann var vanur, fyrir framan
greiðasöluhúsið “Rauða ljónið”. Húsmóðirin, frú
Fitch, lipur og fögur kona, sem alt af hafði rjóðar
kinnar og annríka, vingjarnlega framkomu, hrað-
aði sér út til að taka á móti gestunum, sem hugs-
anlegt var að komið hefðu með almennings vagn-
inum.
En hann hafði að eins komið með unga konu
og koffort, og á sama augnabliki og frú Fitch
varð litið á andlit konunnar, sannfærðist hún um,
að hún hefði aldrei séð jafn fagurt andlit á æfi
sinni.
“Get eg nokkuð gert fyrir yður, ungfrú. Viljið
þér setjast að hér?”
“Að eins stutta stund, meðan eg neyti dálítils
af víni og einnar tvíböku”, svaraði ferðakonan,
sem með röddinni, hreimnum og framkomunni
sýndi, að hún var af heldra fólki komin. “Mér
þykir vænt um að geta fengið hressingu, því eg
er afarþreytt. pað er voðalegt hvað þessi almenn-
ingsvagn hoppar og hossar”.
Hún sté niður úr vagninum meðan hún talaði,
og eitthvað sérkennilegt í útliti hennar vakti eftir-
tekt frú Fitch, þegar hún hjálpaði henni niður
háu, klaufalegu tröppumar og fylgdi henni inn.
“Eg bið afsökunar, kæra frú. Já, hann rykk-
ist, kippist og hoppar þessi almenningsvagn — og
þér eruð ekki í því ásigkomulagi að þér getið þol-
að það. Og auk þess eruð þér máske komnar langt
aC. pér skuluð fá hressingu áður en mínúta er
liðin. Eg fullvissa yður um það, að eg áleit yður
vera unga, ógifta stúlku”.
“Ef þér hafið nokkuð af köldu kjöti í húsinu,
vil eg heldur eina sneið af smurðu brauði í stað
tvíbökunnar”, var alt, sem konan svaraði.
Hún settist í hægindastól húsmóðurinnar, því
frú Fitch hafði farið með hana inn í sína eigin
dagstofu, leysti hattböndin sín og fleygði þeim
aftur á bakið. Hatturinn var úr strái og hvítur
borði saumaður á jaðar hans, kjóllinn og kápan
var úr dökku silki. Aldrei hefir nokkrum hatti
verið ýtt aftur á bak frá fegra andliti með litla
roðann og hina yfirburða fallegu drætti þess.
“Getið þér sagt mér, hvort hér fást herbergi
til leigu í South Wennock?” spurði hún, þegar
húsmóðirin kom inn aftur með fáeinar sneiðar af
smurðu brauði og vínið.
“Herbergi til leigu?” svaraði frú Fitch, “það
er tæplega mikið af þeim hér; eins og þér eflaust
hefið séð er þetta lítill bær — hann er að sönnu
dálítið stærri en hann hefir verið”, sagði húsmóð-
irin, um leið og hún strauk höku sína hugsandi.
“pað er nú ekkjan Gould. Eg veit að herbergi
hennar voru tóm fyrir viku síðan, því hún kom
hingað og spurði mig, hvort eg vissi ekki af nein-
um sem vildi leigja þau. Hún er róleg og látlaus
manneskja. Á eg að láta spyrja um þau?”
“Nei, eg vil heldur fara sjálf. Eg vil ekki
taka herbergi til leigu án þess að sjá þau. Ef að
þau, sem þér mintust á, eru þegar leigð, þá getur
skeð að eg sjái auglýsingar í öðrum gluggum.
pökk fyrir, eg get ekki borðað meira; eg held
eg finni enn þá til hristingsins í almenningsvagn-
inum, og hræðslan, sem hann olli mér, hefir svift
mig lystinni. pér lítið eftir koffortinu mínu fyrst
um sinn”.
“Já, það skal eg gera. Má eg spyrja um nafn
yðar frú.
“Frú Crane”.
Húsmóðirin fylgdi henni út til að benda henni
á leiðina. Hús Goulds ekkjunnar stóð á hæstu
hæðinni í Palace Street, og að liðnum fimm eða
sex mínútum kom frú Crane þangað. Auglýsing
hékk í glugganum, sem sagði að þar væri herbergi
til leigu. Ekkjan Gould, lotin, lítil kona með
magurt, rautt andlit, opnaði sjálf dyrnar. Frúin
bað um dagstofu og svefnherbergi, og spurði hvort
bún gæti fengið það. Frú Goulds svaraði, að það
væri henni velkomið og nefndi fremur lága leigu
og bauð henni að líta á herbergin ef hún vildi.
pau voru á fyrsta gólfi; ekki voru þau stór, en
hrein, þokkaleg og viðfeldin og gengið úr dagstof-
unni inn í hitt. Frú Crane leizt vel á þau.
“pér sjáið að eg býst við að liggja rúmföst”,
sagði hún, “getur það verið yður til baga?”
“N-e-i, það get eg ekki haldið”, sagði ekkjan
eftir dálitla umhugsun. “pér munuð sjálfar fá
yður þernu, frú ? því eg get ekki tekið að mér að
annast um yður”.
“pað geri eg auðvitað”, svaraði frú Crane.
pær komu sér saman um alt. Frú Crane leigði
herbergin fyrir einn mánuð, af því hún sagðist
helzt vilja leigja þau mánuð eftir mánuð, og ekkj-
au Gould tók að sér hina vanalegu þjónustu við
borðið. Frú Crane fór aftur til greiðasöluhússins
til þess að borga fyrir hressinguna, sem hún neytti
þar, og mæltist til þess að koffortið yrði sent sér;
áður en hún fór frá frú Gould, hafði hún beðið
hana að hafa teið tilbúið, þegar hún kæmi aftur.
Alt var tilbúið þegar hún kom; eldur lagðyr í
bfninn í dagstofunni og teið stóð á borðinu, frú
Gould var inni í svefnherberginu að búa um rúm-
ið. pað lá vel á ekkjunni yfir því, að nú leit út
fyrir að hún gæti leigt herbergin í nokkra mánuði,
sem hún hélt að frúin yrði þar, og hafði hún lagt
síðasta South Wennick vikublaðið á borðið hjá te-
bakkanum, dálítið merki um sérstaka greiðvikni
við nýja leigjandann.
Undir eins og frú Gould heyrði bjölluna
hringja, kom hún inn til að taka mataráhöldin af
borðinu, þegar frú Crane hafði neytt matarins;
núna, þegar hún var búin að taka af sér hattinn,
leit hún út eins og ung, falleg stúlka með jarpt
hár. Ekkjan hafði enga vinnukonu og gekk því
sjálf um beina hjá leigjendum sínum. Herbergin
á fyrsta lofti hafði hún leigt manni, sem þar var
að staðaldri, en sem nú var ekki heima.
“Gerið þér svo vel að setjast”, sagði frú Crane
við hana, um leið og hún lagði blaðið frá sér, sem
leit út fyrir að hún hefði lesið í. En frú Gould
kaus heldur að stanad og nuddaði handarbökin á
víxl, eins og vani hennar var þegar hún beið eftir
einhverju. “Eg þarf að spyrja yður um ýmislegt,
skeytið þér ekkert um tebakkann, hann má bíða;
fyrst af öllu, hvaða læknar eru hér.í South
Wrennick?”
“pað eru nú Greyamir”, svaraði ekkjan Gould.
Svo varð þögn; frú Crane bjóst líklega við að
heyra fleiri nöfn. “Greyamir” endurtók hún,
þegar húsmóðirin þagði.
“Hr. John og hr. Stephen Grey, frú. pað var
enn þá einn bróðir, hr. Robert Grey, sem líka var
læknir, en hann þó í fyrra. peir voru allir góðir
og liprir læknar, og gegndu öllum læknisstörfum
hér. Faðir þeirra og föðurbróðir stunduðu lækn-
ingar á undan þeim”.
“Á eg að skilja svar yðar svo, að hér séu ekki
fleiri læknar?” sagði ókunna frúin nokkuð undr-
andi. “Eg hefi aldrei heyrt neitt líkt þessu í jafn
stórum bæ og þessi sýnist vera”.
“South Wennock hefir fyrst stækkað þessi
síðustu ár, frú. preyamir eru mikils virtir og í
miklu afhaldi hér, og þar eð þeir voru þrír, gátu
þeir með aðstoð eins manns gegnt öllum lækna-
störfum hér. peir hafa alt af aðstoðarmann. En
nú er kominn nýr læknir hingað, maður að nafni
Carlton”.
“Hver er hann?”
“Já, eg man nú ekki hvaðan fólk sagði að hann
hefði komið, frá London held eg. Svo snotur og
fallegur maður, að þér munuð naumast hafa séð
annan fegurri mann, og að minsta kosti ekki eldri
en þrítugur. Hann kom skyndilega hingað fyrir
fáeinum mánuðum síðan, leigði sér hús í öðrum
enda bæjarins og fór strax að keppa við Greyana.
Eg held að honum gangi vel, að minsta kosti mun
hann hafa nokkuð að gera hjá þeim, sem búa á
Bakkanum, en það fólk er flest nýkomið hingað,
og hann hefir sinn eigin Kabrioily”.
“Sinn.......hvað þó?”
“Sinn Kabrioily — skrautlegan eineykisvagn
með fjórum hjólum og skýli yfir. pað er miklu
viðhafnarlegra en Greyamir hafa nokkru sinni
haft, frú, þeir hafa sinn óvandaða Gig, tvíhpól-
aðan léttivagn, og ekkert annað. Sumir halda að
Carlton sé ríkur, aðrir að hann haldi sér til, svo
að ðhann fái meira að gera.”
“Er hann duglegur—hr. Carlton?”
“Sumir segja að hann sé duglegri en báðir
Greyarnir; en frúin þekkir eflaust gamla orð-
tækið: “Nýir sópar sópa bezt.” Hr. Carlton, sem
er enn þá lítt kunnur hér og verður að fá atvinnu,
gerir auðvitað alt sem hann getur til að sýna
dugnað sinn til þess, að ná í hana.”
pessi setning kom frú Crane til að hlægja.
“Ef læknirinn er ekki duglegur, þá getur hann
ekki sýnt dugnað,” sagði hún.
“pað er nú raui^r eitthvað satt í því, sem
sem þér segið,” svaraði ekkjan ígrundandi.
“Hvernig sem það nú er, eða ekki er, þá fær
Carlton nokkuð að gera, og það er sagt að hann
komi sér vel. pað býr ein fjölskylda á Bakkan-
um, þar sem hann er daglegur gestur, og eg hefi
heyrt að hann falli þeim vel í geð. pað er
Chesney kapteinn, sem þjáist af sífelri fótagigt,
hann er gamall maður. pau komu sem nyög
drambsamar og dulgjamar persónur, segja menn.
par eru þrjár ungfrúr Chesney; ein af þeim er
mjög fögur og yndisleg, önnur er nokkuð rosk-
inn og hin þriðja er að eins barn enn þá. Hr.
Carlton heimsækir mjög oft gamla mannin---------
Ó, hamingjan góða! Hvað gengur nú á?”
Frú Gould hafði fulla ástæðu til að segja
þetta. Veika konan—því veik var hún sjáan-
lega—var orðin náföl og hné aftur á bak í hæg-
indastólinn meðvitundarlaus.
Frú Gould var aðð eðlisfari hræðslugjörn og
kvíðandi af vana. Mjög skelkuð lyfti hún upp
höfði frúarinnar, en það datt aftur á bak aftur.
í dauðans ofboði hljóp hún ofan stigann og hljóð-
aði svo að endurómaði um alt húsið, þaut út um
bakdymar á næsta húsi. par voru tvær ungar
kvenpersónur í eldhúsinu, önnur stóð og var að
strjúka lín, hin sat við eldinn iðjulaus.
“f guðs nafni, komi önnur hvor ykkar með
mér, hrópaði ekkjan, skjálfandi. “Konan, sem
leigt hefir herbergi hjá mér, hefir sezt í hæg-
indastólinn til að deyja”.
“Án þess að bíða samþykkis eða svars, hljóp
hún til baka aftur. Unga stúlkan, sem sat við
eldinn, stökk upp af sæti sinu í meira lagi skelk-
uð. Hún hélt róleg áfram að strjúka línið.
“Vertu ekki hrædd, Judith”, sagði hún. “pú
ert ekki eins vön við gömlu Gould eins og eg.
Detti tordýfill á gólfið, þá hrópar hún um hjálp.
Eg hélt fyrst áð þetta væri tilgerð, en nú veit eg
að hún getur ekki gert við því. En það er máske
bezt að þú farir þangað og vitir hvað að er”.
Judith flýtti sér af stað.. Hún leit út fyrir að
vera skynsöm, ung stúlka, var fremur föl, með
svart hár og svört augu og klædd nýjum, lagleg-
um sorgarbúningi. Frú Gould var komin aftur
inn til ákunnu konunnar. Hún hafði rifið eina
fjöður úr fjaðrablævæng, sem hékk í nánd við
ofninn, hafði brent annan endann hennar og hélt
honum undir nefið á vesalings ungu konunni.
Judith þreif fjöðrina af henni.
“Verið þér ekki að þessari heimsku, frú Gould.
Hvaða gagn er að þessu ? Komið þér með dálítið
vatn”.
Hún útvegaði vatn og Judith vætti andlit og
höndur konunnar; ekkjan horfði mjög hrædd á
þetta. pegar hin meðvitunarlausa raknaði við,
fór frú Gould að gráta.
“pað eru tilfinningar mínar, sem bera mig
ofurliði, Judith”, sagði hún. “Eg þoli ekki að sjá
veikindi”.
“pað var ekki nauðsynlegt fyrir yður að hræð-
ast”, sagði hin veika lágt, undir eins og hún gat
talað. “Síðustu mánuðina, síðan heilsa mín hefir
verið svo viðkvæm, hefir oft liðið yfir mig. Eg
hefði átt að segja yður það”.
pegar hún var búin að jafna sig, yfirgáfu þær
hana. Frú Gould tók matartækin með sér, þegar
hún var búin að opna koffortið samkvæmt ósk
konunnar og rétta henni ritföng, sem í því voru.
“Fyrir alla muni, farðu ekki burt, Judith”, bað
ekkjan, þegar þær voru komnar út í eldhúsið.
“Hún getur fallið í yfirlið af tilviljun þegar minst
von um varir — þú heyrðir hana segja að þetta
bæri oft við — og þú veizt hversu óhæf eg er til
að vera ein hjá sjúklingum. pað væri sönn
miskunnsemi af þér, ef þú vildir vera hjá mér, og
þú ert líka vinnulaus eins og stendur”.
“Eg ætla þá að fara og sækja það, sem eg var
að gera og láta Margrétu vita um þetta. En hvaða
vit er í því, að þér kallið þetta tilviljun, eins og þér
séuð að tala um niðurfallssýki ?” sagði Judith.
pegr stúlkukrakkinn kom aftur — já, það var
nú líklega ekki rétt að kalla hana stúlkukrakka
eða meybam, þar eð hún er meira en þrítug, —
hafði frú Gould kveikt ljós, því það var farið að
dimma og hún var að þvo borðáhöldin. Judith
settist og fór að sauma, en hugsaði um konuna uppi
í stofunni.
“Hver ætli hún sé?” sagði hún hátt.
“Ein eða önnur ókunnug. Frú Fitch benti
henni á að finna mig — Eg sagði Margrétu frá því
eftir miðdegið, þegar þú varst úti. Sýnist þér
hún ekki vera ungleg?”
Judith kinkaði kolli. Ætli hún sé gift?”
“Gift!” svaraði frú Gould. “Ef brúðarhring-
urinn á hendi hennar væri bjöm, þá hefði hann
bitið yður fyrir aðgæzluleysið. Á hvað varstu að
horfa?”
“pað eru ekki allir brúðarhringir látnir á fing-
urinn í kirkjunni”, svaraði stúlkan rólega. “Ekki
af því að hún er líklega gift, hún lítur út fyrir að
vera kurteis og góð kona; það var af því að hún
er svo ung og kemur hingað einmana og fylgdar-
laus alt í einu, að mér datt þetta í hug. Hvar er
maðurinn hennar?”
“Hún sagði að hann væri á ferð um útlönd.
Eg var svo djörf að spyrja hana um hann”.
“pví kemur hún hingað?”
“pað veit eg ekki. pað lítur undarlega út.
Hún hefir aldrei á æfi sinni komið hingað fyr en
í dag, sagði hún mér, og á enga vini hér. Hún
spurði um læknana, áður en —”
“Nú hringir hún,” greip Judith fram í, þegar
bjallan, sem hékk beint uppi yfir höfði frú Goulds,
gaf hljóð frá sér. “Flýtið þér yður, hún vill lík-
lega fá ljós”.
“Hún hefir fengið það. Ljósin stóðu á arin-
hillunni, og hún sagðist sjálf geta kveikt á þeim”.
pað lá innsiglað bréf á borðinu, þegar frú Gould
kom inn 1 herbergið. Konan lagði hendi sína á
það.
“Frú Gould, má eg ónáða yður með að senda
þetta bréf fyrir mig. Eg hafði ekki ætlað að biðja
lækni að finna mig fyr en á morgun; en eg er
þreytt og vesöl og held því, að það sé réttast að
tala við hann í kveld. Hann getur máske gefið
mér eitthvað hressandi”.
“Já, velkomið, frú. peir búa ekki langt héðan
Greyarair. En, kæra frú, eg vona þó, að þér bú-
ist ekki við að verða veik?”
Frú Crane brosti. Hræðslugjama húsmóðirin
nuddaði skjálfandi handabök sín.
Efnafrœðislega sjálfslökkvandi
Hvað þýða þessi orð fyrir þig? pau þýða meira
öryggi á heimilinu. — pað er vissulega atriði, sem þú
lætur þig varða, meira en lítið.
Ef til vill hefir þú tekið eftir þessum orðum og setn-
ingum: “Enginn eldur eftir þegar slíkt hefir verið” á
vorum nýju, hljóðlausu stofu eldspýtnakössum. Hver
einasta spýta í þessum kössum er gegn vætt í efnafræð-
islega samsettum legi, sem breytir þeim í óeldfiman
þegar búið er að kveikja í þeim og slökkva aftur, og hætt-
an á bruna frá logandi eldspýtum gerð ein slítil og mögu-
legt er.
öryggi fyrst, og notið ávalt Eddys hljóðlausu 500s
J. N. Sommerville,
Lyfsali
Horni William & Isabel, Winnipeg
Tals. Garry 2370
Vér mælum meö eftirfylgjandi
hressingarlyfum aö sumrinu
Beef, Iron & Wine
Big 4 D Compound
_«
sem er blóöhreinsandi meSal.
Whaleys blóðbyggjandi
lyf
VoriS er komið; um það leyti er
altaf áríðandi ^S vernda og styrkja |
líkamann svo hann geti staSitS gegn
sjúkdómum. ÞaS verður bezt gert
með því að byggja upp blóðið.
Whaleys blóðbyggjandi meðal gerir
það.
Whaleys lyfjabúð
Hornl Sargent Ave. og Agnes St.
Rex Cleaners
LITA, HREINSAog
PRESSA FÖT
Búa til ný föt, gera við föt
Föt pressuð meðan þér
standið við................35c.
Karla og kvenna fatnaður
hreinsaður fyrir........$1.50
Finnig viðgerðir á loðskinnsfötum
332] Notre Dame Ave.
Tals. G. 67 Winnipee
Vér ábyrgjumst ekki föt sem ei
er vitjað innan 30 daga
Gemm við Húsbúnað
pólerum, gerum upp að nýju; sláum
utan um hann ef sendur burtu. Gam-
all húsbúnaður keyptur.
J. LALONDE, 108 Marion St.
Phone Main 4786 N0RW00D
JOSIE & McLEOD
Gera við vatns oghitavélar
__I húsum. Fljót afgreiðsla.
151 Notre Dame Tals. G.M92I
IASTI
yflr gjafir til ekkjunnar Sigríðar GuS-
mundsdóttur, sem A slðastl.. vetri
misti í sjóinn eiglnmann sinn og þrjá
syni.
Frá Beckville P. O.:
Björgvin Kjartanson ..........$1.00
Mrs. E. Stevenson . .. ....... 1.50
Mrs. S. Anderson ............. 1.00
Júlíus Kjartansson ........... 1.00
Gunnar Kjartansson ......... .... .50
Mrs. G. Kjartansson .............50
Miss J. Kjartansson .............25
Miss SigriSur S. Beek............25
Emil S. Beck .................. .25
Sigurlaug Beck ..................50
þórður Loptson ..................50
Jóhannes Loptson .... ...........50
Sverrir Bergson .............. 1.00
Jóhannes Johnson ................25
Jóhannes Baldvinson .......... 1.00
Magnús Johnson ...... .... ......25
Ágúst Anderson ..................25
Normann Oliver ..................25
Hansina SigurSson ...............25
Mr. og Mrs. J6n Sigurðson........50
Frá Amarauth P. O.:
J. K. Johnson ................$2.00
Sveinn FriSbjörnson .......... 1.00
FriSbjörn SigurSson .............50
Mrs. Ingibjörg SigurSson ........50
Frá Winnipegc
Mrs. p. Péturson .............$0.25
Miss L. SigurSson ...............25
Miss H. SigurSson ...... .... ...25
Miss F. Jónsson .................25
Mr. og Mrs. A. Anderson ........35
Miss Tt. J. Ardal ...............75
Eyjólfur E. Thorsteinson ........50
H. F. Bjering .... ..............25
Laufey GuSmundson ...............25
G. M. Eyjólfson .................25
O. P. Bjering ...................25
Nanna Bjering .... . .. .........25
O. S. Thorgeirson ...............25
Helgi Einarson.................. 50
O. W. Olafson ...................50
G. T. A..........................25
S. O. Bjering....................50
Miss Olga SigurSson .............50
Mrs. S. W. SigurSson .......... .50
John Egertson ........... ....,. .25
Páll Hallson ....................25
S. Thorkelson ................ 1.00
Mrs. S. G. Peterson .............25
Mrs. S. Peterson ................25
Normann Peterson ................25
Beatrice Peterson................50
Sarah Fredrickson ............ 25
Óskar SigurSson .............. 1.00
Mr. Peterson ....................25
Miss ^Jelson ................... 26
Gunnlí Johannson .... ........ 1.00
GúSm.J Sigurjónsson .......... 3.00
Snæbjöm Olson ...................50
T. Thomas ...................... 50
ónefndur ..................... 4.00
ónefnd ....................... 1.00
B. Magnússon ....................25
M. Thorsteinson ..... .... ......25
G. Kristjánsson .................50
A. P. Johanjison ............. 5.00
Eh. Oddson ................... 1.00
S. Johannson .................. 1.00
J. Thorvardson kaupm..............50
ónefndur..........................50
Mj*. og Mrs. J. Bjarnason .......100
Miks Sigurborg Benson ......... 1.00
Mrs. G. Anderson, Maidstone .... 2.00
Mr. J. Eirikson, Otto P. 0.... 1.00
paS hefir veriS keypt 200 kr. ávis-
un á Northern Crown bankanum, á
horni Sherbrooke og William Stræta,
og send áleiSis til ekkjunnar SigTiSar
GuSmundsdóttur I HöskuJdsey á ls-
landi.
Winnipeg, 21. mai 1917.
Halldór Aniason.
Vínbanns kröfur.
Sunnudaginn 29. apríl var haldinn
nokkurs konar vinbanns dagur í
Saskatchewan. Vóru þá fluttar ræð-
ur í kirkjum, bindindis- og siðbóta-
félögum og var þatS fyrir forgöngu
siðbótafélagsins í fylkinu. 350 bæn-
arskrár voru þá byrjaðar og hafa
þær verið sendar. Er þar skorað á
sambandsstjórnina aö lögleiða tafar-
laust algert vínbann í Canada eða aS
öSrum kosti leyfa fólkinu atkvæSi um
málið.
TAROLEMA lœknar EGZEMA
Gylliniæð, geitur, útbrot, hring-
orm, kláðaögaðra húðsjúkdóma
Læknar hösuðskóf og varnas hár-
fallii. 50c. hjá öllum lyfsölum.
CLARK GHEMIGAL CO.,
309 8omerset Block, Winnipeg
Silki-afklippur
til til úr duluteppr. Vér höfum
ágœtt úrval af stórum pjötlum meðallt-
konar litum
___Stór pakki fyrir 25c
5 pakkar fyrir $1.00
Embroidery silki
af ýmsum tegundum og ýmsum litum
1 unzu pakki aðeins 25c
Peoples Specialties Co.
P.0. Box 1836 Winnipef, Man.
BIFREIÐA
“TIRES”
Vér aeljum nýjar og brúk-
aðar “tires . Kaupum og
tökum gamlar í skíftum
fyrir nýjar, gefum gott
verð fyrir þær gömlu. All-
ar viðgerðir eru afgreiddar
fljótt og vel.
Skrifíð eftir verði.
Watsons T ire
Service
180 Lombard St., Tal. M.4577
Williams & Lee
ReiShjóI og bifhjóla stykki og á-
höld. Allskonar viSgerSir.
BifreiSar skoSaSar og endurnýjaS-
ar fyrir sanngjarnt verS. Barna-
vagnar og hjólhringar á reiSum
höndum.
764 Sherbrooke St. Hopoí Notre Oame
Wm. H. McPherson,
Uppboðshaldari og
Virðingamaður . .
Selur við uppboð Landbúoaðeráhöld, ale-
konar verzlunarvörur, húshúnað og fleira.
264 Smlth 8t. T*l». M 1 781
Art Craft Studros
Montgomery Bldg. 215] Portagei
í gamla Queena Hotel
G. F. PENNY, Artiat
Skrifatofu talaimi ..Main 201
Heimilis talaimi ... Garry 281
C. H. NILSON
KVENNA- og KARLA
SKRADDARI
Hin stærsta skandinaviska
skraddarastofa
268 Lofan Are.
í öSrum dyrum frá Main St.
Wianipef, Man.
Tal*. Qarry. 117