Lögberg - 29.08.1917, Blaðsíða 5

Lögberg - 29.08.1917, Blaðsíða 5
r'«' N* LÖGBERG, MIÐVIKUDAGINN 29. ÁGÚST 1917 o aS aldur og reynsla kenni honum ai5 láta ekki óhlutvanda menn leiða sig út á glapstigu. Óska honum svo ham- ingju og vinfesti góöra manna. — I. I. H. Frá Islandi. Samþykt er af alþingi að stofna hússtjórnarskóla á Akureyri; sömu- leiöis að landssjóður hafi einkasölu á sementi. — Matthías Ólafsson flytur frumvarp um stofnun vélstjóraskóla í Reykjavík, á Isafirði, Akureyri og Seyðisfirði. — Samþykt er að skifta bæjarfógetaembættinu í Reykjavlk í tvent; hafi annar dómsvaldið með höndum en hinn tollheimtu og fleira. Sömuleiðis er flutt frumvarp um það að stofnað verði bæjarstjóra embaetti á Akureyri, og skuli hann kosinn ti! þriggja ára. — Bæjarstjórnin i Reykjavik hefir tekið 120,000 króna lán til matvörukaupa, er hún selji á eigin reikning. — Þorlákur O. Johnsen fyrverandi kaupmaður i Reykjavík andaðist í Reykjavík 25. júní, 79 ára gamall, fæddur 31. ágúst 1838; hafði verið veikur lengi, merkur maður og að mörgu góðu kunnur. Valgerður Þorsteinsdóttir fyrrum forstöðukona kvennaskólans á Lauga- landi andaðist að Bægisá í Eyjafirði 17. júní; háöldruð kona. “Kvenfrelsisdagur” var haldinn í Reykjavík og víðar 19. júní til minn- ingar um það að þá fengu konur jafn- rétti við menn með nýju stjómar- skránni. Þar fluttu ýmsir ræður, þar á meðal: Laufey Vilhjálmsdóttir kona Guðmundar Finnbogasonar; María Jóhannsdóttir, Guðrún Lárus- dóttir kona séra Sigurbjarnar A. Gíslasonar, Ingibjörg Benediktsdótt* ir og Stephan G. Stephansson. Þar ílutti Stephan og kvæði. Pétur Jónsson frá Gautlöndum fót- brotnaði nýlega þannig að hestur sló hann. Próf í læknisfræði við háskólann í Reykjavík hefir tekið J. L. Nisbet frá ísafirði með 2. einkunn betri. Brjóstmynd úr eiri af Magnúsi sál. landshöfðingja er komin í neðri deild- arsal alþingis, beint á móti brjóst- mynd af Jóni Sigurðssyni eftir Berg- stein. Ríkharður Jónsson hefir gert mynd Magnúsar. Búnaðarþing íslands samþykti að skora á Alþingi að leyfa innflutning útlends sauðfjár til kynbóta. Fiskimannaþingið samþykti áskor- un til þingsins um að veita 10,000 kr. til þess að kosta erindsreka erlendis, er sé undir umsjón fiskifélagsins og í samvinnu við erindsreka landsstjórn- arinnar. Skorað er á Alþingi að koma á fót stýrimannaskóla á ísafirði og kenslu í vélfræði á sama hátt og í Reykja- vík. Búnaðarfélagið hélt þing nýlega og var þar ákveðið að koma því í fram- kvæmd að farið yrði sem víðast að nota plóga þar sem því yrði komið við, og að aflvélar væru notaðar við þá þar sem það væri tiltækilegt. Nýgift eru Einar H. Kvaran lækna- skólakandidat og Elinborg Böðvars- dóttir frá Akranesi; er Einar settur læknir á Fáskrúðsfirði. Nýgift eru þau Sigurður bóndi Jónsson frá Stafafelli í Lóni og Ragn- hildur Guðmundsdóttir frá Lundum i Stafholtstungum. Hlaðafli af síld og fiski fyrir Austurlandi um miðjan júlí. Hrómundur Jósefsson skipstjóri á “Þór” var sektaður um 2000 krónur og Magnús Magnússon útgerðarmað- ur um 1000 kr. fyrir ólöglega brenni- vínssölu á skipinu. Séra Þorsteinn Þórarinsson fyrr- um prestur í Eydölum í Suður-Múla- sýslu er nýlega látinn. Hann gegndi prestverkum í 50 ár, var fæddur 18. sept. 1831. Á.lsafirði er látinn 8. júlí Jóhannes Pétursson kaupmaður. 4,300 krónur komu inn í lands- spítalasjóðinn á “kvenfrelsisdaginn”. ísafold segir að Þórður Thorsteins- son, sonur Steingríms Thorsteinsson- sé særður í stríðinu. Hann fór í her- inn héðan frá Canada. Sigfús Blöndal bókavörður frá Kaupmannahöfn dvelur nú á Islandi að fullkomna íslenzk-danska orðabók, er hann hefir haft á prjónunum i nokkur ár að undanförnu. 25 ára stúdentsafmæli áttu 30. júni Sigfús Blöndal bókavörður í Kaup- mannahöfn, Asmundur Gíslason pró- fastur á Hálsi í Fnjóskadal, Pétur Helgi Hjálmarsson prestur á Grenj- aðarstað; Magnús Sæbjörnsson lækn- ir í Flatey á Breiðafirði og Þorsteinn Gíslason ritstjóri. Þeir mættu allir nema Magnús læknir Sæbjörnsson og auk þess Benedikt Þ. Gröndal bæjarfógetaritari, sem var sambekk- ingur þeirra. Pétur Guðjhonsen frá Húsavík útskrifaðist einnig þá, en dó 1900. Margt bar skemtilegt á góma í þessu samsæti. Kveðja. Orkt znð andlátsfregn Sigureyjar Goodman. Rík v'ar vonin, vanginn rjóður, vökul þráin, dreymin lundin. — Allur heimur glaður, góður gyltir vogar, lognslétt sundin. Svo var morgun. Seinna um daginn sólu byrgði, lýstust vangar. Alda svall um sund og voga sveiptust löðurskikkjum drangar. Sumir héldu að lygndi og lægði liósið mundi sigur vinna. Aðrir spáðu skugga og skelfing, — skugginn vann og spárnar hinna. Holdin fúna. Grafir gleymast geymist aðeins munans auður. Hugartign og hjartagöfgi halda velli er þú ert dauður. Ekki er vert um öxl að líta eða harma geisla liðinn. Þarna er sverði hnútur högginn hérna er annar meiri riðinn. Blómin sötra sól á vorin, sæll og frjáls er vorsins andi Reynum alla æfi að heimta okkar skamt af Bjarmalandi. Þegar kell og þegar skyggir þá er að flytja í draumalundinn lifa í þvi sem liðið hefir leita þar til geisli er fundinn. Nóg er um böl þó sjálfra sálir sorga hélunóttum verjuin. Því við hömlum fleytan flýtur fyr en varir upp að skerjum. Brúðkaupserindi. Til Kristjáníu dóttur minnar og manns hennar, Sigurðar J. Stefáns- sonar.. Gift 5. maí 1917. Fögur skín sólin svo himnesk og hlý, hjartkæru hjónin, hún byrgir öll ský. Guð ykkur fylgi á farsældar braut, svo fáist þið staðist gegn sorgum og þraut. Þótt brosi nú við ykkur vorsólin blíð, varhuga búist mót frostum og liríð. Starfið með aðgætni, af dugnaði og dáð, þá Drottinn mun farsæla hvert ykkar ráð. Ef örðugt er lifsstríð, þá iðkið sem mest að auðsýna hvert öðru samhygð sem bezt. Treystið svo Guði í gleði og sorg, þá greiðir hann veg ykkar heimsins um torg. Styðjið hvort annað í stormunum kifs með stilling og þreki á haföldum lífs. Lipurt þá framundan lukkunnar hjól. Lýsi’ ykkur friðarins himneska sól. Kristjana Hafliðason. Gjaflr til líetel. Ónefnd kona í Pembina.........$5.0> Mrs. I. Jóhannsdóttir, Selkirk . 1.00 Mrs. M. Stephanson............ 1.00 J. Jóliannesson, féhirðir. 675 McDermot Ave., Winnipeg. Kolka Hún hélt við það gamla og gildi þess fann; — hún gekk beint á rotnunarþefinn. Úr þröngsýn hún enskri og islenzkri spann sitt ívaf í sálar vefinn, sú gáfa var henni gefin. Eg dvaldi hjá henni dægrin löng og dimt var í vitund minni, því alstaðar mætti mér eílin þröng og ægði með návist sinni. Hún kom til mín úti og inni. Hún hélt v'ið það gamla. Eg segi það satt, það sýndi hún með hendi virkri. Hún lífi mínú frá ljósinu hratt og læsti’ inn í dýflissu styfkri og helti i það helköldu myrkri. En æskan slapp til mín í inni það með ókomnu tímanna letur. “Eg sigra um aldur og eilífð”, hún kvað “þó ellinni nú gangi betur. Við bíðum og sjáum hvað setur”. “Ó fvlgdtt mér!" bað hún svo yndæl og ung, “þá eldist ei vo"sióna myndin. Þvi gráhærðum sálum mun guðsbrautin þung, frá gröf upp á hæsta tindinn. Þar aftra þeim ellin og syndin” Þá braut eg þau virki sem Kolka mér kaus og kvaddi’ hana nýju með þori. — Þar sat hún svo náköld eg sá að hún fraus á sannleikans nýkomna vori, og hjakkaði í hálfmóðu spori. En sá kemur timi að sannindi ný á sál hennar nauðugri v'inna. Þvi glófanum kasta þau andlit þess í sem alsælu hyggur að finna í haugstæði hagsmuna sinna. Eg æskunni fylgi um hauður og höf, í hérvist og eilífum tima. — Og þreytist eg stundum, ef þung verður töf og þróttlausar vonirnar hima. Hún kallar i kærleikans síma. Jónas Stefánsson frá Kaldbak. Dánarfregn. Þann 19. apríl s. 1. andaðist að heimili sinu í íslenzku bygðinni við Hecla P.O. í Ontario, merkiskonan Margret Jónsdóttir, 87 ára gömul, | eftir stutta sjúkdómslegu. Hún var jarðsett í grafreit bygðarinnar 22. sama mánaðar, þar sem margir aðrir íslenzkir lándnámsmenn og kon- ur hafa nú verið lögð til hinstu hvíldar. Margrét sál. v'ar fædd á Görðum á Akranesi 22. janúar 1830. Jón faðir hennar var Jónsson ísakssonar, sá sami Jón Isaksson var einn af þeiin 18 íslendingum er gengu fram fyrir Dani á flótta og ráku Englendinga aftur til skipa sinna i skirdagsslagn- um í Kaupmannahöfn 2. april 1801. Móðir Jóns föður Margrétar sál. var Hallfríður á Grund á Akranesi, orð- lögð dugnaðar og fyrirmyndar kona. Dóttir hennar og systir Jóns var Gunnhildur á Bakka, Ijósmóðir á Akranesi í 50 ár. Margrét sál. gift- ist eftirlifandi manni sínum Gísla Tómassyni bónda á Efranesi í Staf- holtstungum í Mýrasýslu T864, þau eignuðust 5 dætur, 3 af þeim dóu í æsku og sú fjórða, Katrín Helgason, dó í Winnipeg 1. nóvember 1915, 49 ára gömul, og er þvi bara ein dóttir þeirra nú á lífi, Hallfríður, gift A. V. Baldvinssyni í Edmonton, Al- berta. Gisli og Margrét sál. bjuggu síðast á íslandi á Hamraendum i Stáfholts- tungum og fluttu þaðan til Canada 1883, og árið 1886 keypti Gisli íand það, sem hann hefir búið á síðan, fyrirtaks þrifnaðar búa. Margrét sál. var mikill þrek kven- maður, vinnugefin og dugleg með af brigðum, sjón hennar bilaði svo að hún var hálf blind síðustu ár æfi sinnar, og bar hún það mótlæti með þolinmæði, var ætíð glöð i anda, og oft syngjandi við verk sitt þegar hún var einsömul. Hún var sérlega fróð- leiksfús, og las mikið á meðan sjón- in entist henni. Trúkona var hún sterk og ákveðin, elskandi það ljós er henni sem öðrum skein frá sámlum Hallgríms Péturssonar, og ræðum Jóns Vídalíns, okkar miklu andans kennimanna, og nú er hún með gleði gengin inn i eilífðina, eftir að hafa unnið mikið og gott dagsverk í guðs- ótta við styrk bænarinnar, ásamt elsku til Guðs og manna, og margir og óhætt að segja allir kunningiar blessa minningu hennar. ekki var hægt að njóta sumarsæ! unnar með leikum og íþróttum, því það var regning næstum allan dag- inn. Að öðru leyti var skemtunin ágæt. Eg sendi þér hér með peningaupp- hæðina sem inn kom. Eg vil biðja þig svo vel gjöra fyrir hönd stúk- unnar að afhenda þessa fjárupphæð til Rauðakross nefndarinnar. kl. 2.30 og að kveldinu kl. 8.30. Verða sýndir alls konar stórkostlegir mynda- leikir, svo sem af járnbrauta slysum bifreiða slysum og fleira. “Her Unborn Child” heitir leikur þar sem sýndar eru barnafæðingatak- j markanir. j^að er leikur sem allir ættu að sjá. Virðingarfylst. Sigurbjörn Kjartansson, Reykjavík P.O., 29. júlí 1917. Herra ritstjóri Lögbergs! Viltu gjöra svo vel og afhenda þá peninga upphæð, sem stendur á gjafa- listanum, til Rauðakross nefndarinn- ar og birta listann í þínu heiðraða blaði. — J. R. Johnson, Narrows, héfir efnt til þessara samskota. J. R. Johnson, Narrows.........$2.001 G. G. Johnson, Narrows .. .. .. 1.00 Gestur Anderson, Narrows . . .. 1.00 Helgi Bjarnason, Narrows .... 1.00 Gísli Johsnon. Narrows..........0.50 Hilda Johnosn, Narrows .. .. 1.25 Árni Johnson, Ashern Point .. 0.50 Þorvaldur Kristjánsson, Ashern 1.00 Oli Olson, Ashern Point.........1.00 Mrs. Mailman, Ashern Point .. 0.25 Lárus K. Finny, Ashern Point 0.50 Mrs. Jónína Anderson, Ashern 0.25 Mrs. Vilborg Þórðarson, Ashern 025 Sigfús Borgf jörð, Ashern .. .. 0.50 Samtals .. . .$11.00 Virðingarfylst. Sigurbjórn Kjartansson. Þess skal getið að alls sendi herra Kjartansson $140.00 og afhentum vér ])á tafarlaust féhirði Rauðakrossins, T. E. Thorsteinson.—Ritstj. Orpheum. Þar verður byrjað að leika og sýna eftir sumarfríiö á mánudaginn kem- ur 3. september, sem er verkamanna- dagur. Verur þar síðdegis sýning kl. 2.15 e. h. Harry Norwoodog Alpha Hall leika þar hinn skemtilega leik “Sense and Nonsense.” Orpheum er álitið eitt hið allra skemtilegasta leikhús hér i bænum og er því alt af að fara fram. Aðsókn- in er afar mikil. Walker. Cunning og hinn frægi flokkur hans dregur fjölda fólks til Walker kl. 10.30 á mánudags morguninn verður sérstaklega leikið fyrir börninn á Walker. Alla vikuna verður leikið síðdegis / ' .......................... GIGTVEIKI Heimalækniují veitt at þelrn sem lilaut liana. Vorifi 1893 varlS eg veikur af vöSvaKigt og bólgugigt. Eg kvald- ist eins og allir sem þessa veiki hafa f 2 til 3 ár. Eg reyndi iyf eftir lyf og lækni eftir lækni, en batnaði aldrei nema rétt I bráðina. Loks fékk eg lyf sem læknaSi mig alveg og eg hefi aldrei orSifi veikur aftur. Eg hefi gefiS þetta iyf mörg- um sem kvöldust voSalega; jafnvel þeim sem lágu rúmfastir af gigt og þaS hbfir aldrei brugSist aS lækna. Eg vil láta alla sem þjást af þessari voSa veiki — gigtinni, reyna þetta ágæta lyf. SendiS ekki eitt einasta cent; sendiS aS eins nafn og áritun og mun eg þá senda lyfiS ðkeypis til reynslu. Eftir aS þér hafiS reynt þaS og þaS hefir lækn- aS ySur af gigtinni þá getiB þér sent verSIS, sem er $1.00 en muniS eftir þvf aS eg vil ekki aS þér sendiS peningana nema þvf aS eins aS þér séuS viljugir aS gera þáS. Er ÞaS ekki sanngjarnt? HvaS á aS þýSa aS þjást lengur þegar ySur er boSin illkominn lækning ðkeypis? DragiS ekki aS skrifa; geríS þaS dag. MARK H. JACKSOV, No. 458D Gurney Bldg., Syracuse, N. Y. w CANAOfl* 7, FlflEST Wf THEATB)* ALLA NÆSTU VIKU Tvisv'ar á dagr; kl. 2.30 og 8.30. Hinn fjörugi myndasýninga leikur “THE WHIP” Merkilegustu myndasýningar sem þekst hafa Sjáið:— Hið áhrifanikla járnbrautarslys. Hið stórkc.stlega bifreiðarsljfs. Hina áhrifamiklu sjón á veðhlaupa- hringnum. Hinar undraverðu úlfaveiðar. Sérstök sýning fyrir börn á mánudaginn kl. 10.30 Verð: Að kveldinu 25c, 50c, og 75c. I eftirmiðdaginn 25c. Vikuna sem byrjar 10 sept. verður sýndur leikurinn HER UNBORN CHILD A. V. B. Reykjavík P.O., 27. júli 1917. Herra ritstjóri Lögbergs! Þann 29. júní þessa árs var þaldin skemtisamkoma i Reykjavíkur skóla- héraði. Fyrir samkomunni stóð kennari bygðarinnar og allar ungu stúlkurnar. Nokkrir utansveitar menn sóttu samkomuna, frekar af á- huga fyrir málefninu heldur en af skemtana fýsn. Þá létu konurnar ekki sitt eftir liggja; þær gáfu kaffi með allskonar brauði til samkomunn- ar. Einnig voru seldir svaladrykkir og ávextir. Það var óhappalegt þennan dag að /■ , Ull , og . . . . Ef þú 6skar eftir fljótri afgre.Sslu og bæsta verði fyrirull og loðskinu, skrifið Frank Massin, Brandon, Man. Skrifið eftir verði og áritanaspjöldum. .. .............- / IðLIIl 19 Fjóla Helgason......................................10 Ásta Helgason......................................10 Mrs. Margrét Tomasson..............................25 Kristín Tomasson...................................25 Margrét Olga Tomasson..............................25 Helgi Tomasson.................................. .25 Helgi G. Tomasson................................ 1.00 Sigurgcir Sigurgeirsson............................25 Theodor Sigurgeirsson...............................30 <r Gustaf Sigurgeirsson .. ............................25 Bogi Sigurgeirsson.................................25 Kristinn Sigurgeirsson..............................10 Ása Sigurgeirssón..............................*. .25 Lily Fnjóskdal......................................25 Setta Fnjóskdal.................................. 25 Sella Guðjónsson....................................10 Laufa Guðjónsson...................................10 Guðjón Guðjónsson..................................10 Hildur Guðjónsson,.................................05 Anna Fjelsted.......................................10 Helga Fjelsted......................................10 Inga Goodman........................................10 Kjartan Eggertsson..................................10 Hrefna Eggertsson.............................. 10 Unnur Eggertsson....................................10 Fjóla Eggertsson....................................10 Guðmundur Thorleifsson..............................25 Sigriður Thorleifsson...............................25 Laufey Thorleifsson.................................25 Ólöf Thorleifsson...................................25 Mrs. Friðrikka Jóhannsson...........................25 Sigfríður Pálsson................................. 15 Páll Pálsson........................................10 Sigurrós Ámundason..........’......................10 Ámundi Ámundason....................................10 Sarah Sigurðsson....................................10 Steinun Grímólfsson.................................10 Kristjana Grímólfsson...............................05 Halldór Halldórsson,................................15 Sveinn Halldórsson.................................10 Guðmundur Halldórsson........................ .. .15 Eggert Olson........................................10 Sigurberg Olson.....................................15 Suðfinnur Pétursson.................................50 Stefán Sveinsson................................. 1.00 Steini Thorleifsson.................................10 Ónefndur......................................... 1.00 Sigurbjörn Eggertsson .......................... 1.00 Helgi Sigurgeirsson.............................. 1.00 Jens Johnson........................................25 Ásgeirína Johnson...................................25 Beggi Helgason......................................50 Stefán Thorleifsson................................25 Safnað af Birni Hjörleifssyni á Winnipeg Beach: Asmundina Elinborg Johannson........................$ .25 Edward Thorsteinson........ Andrés Thorsteinson........ Vilfriður Arnason........... Trausti ísfeld............. Einar tsfeld................ Ágúst ísfeld................ Arilíus ísfeld.............. Solome Thorbergson......... Jonina Thorbergson.......... Hermann G. O. Guttormsson . . Björg O. Guttormsson........ Ásdís E. Guttormsson........ Birgitta E. Guttormsson .. .. Helga Árnason.............. Pétur Skúli Sveinson....... Albert Sveinson............. Einar Sveinson............. Anna Soffia Sveinson........ Theodora Thorsteina Sveinson Einar Kernested............. Franklin Kernested.......... Willard Anderson............ Octavy Anderson............. Edward Anderson............. Norman Anderson............. Pearl Anderson.............. Johanna Johannesson ........ Ánna ísfeld................. Thordur Holm................ Thorgrimur Anderson......... Ingibjorg Anderson......... Sigridur Anderson........... Jón Sigurðson............... Kristján Sigurðson......... Thorun Sigurðson............ Ásta Hermanson............. Wildora Hermanson........... Jón Hermanson .. ........... Valgerður Eiríkson......... Snjólaug Eiríkson......... Guðjón Eiríkson............ Mary Olson.................. Emma Olson.................. Ernest Olson............... Johann Olson................ Ágústa Olson..........'. .. . Donawin Olson.............. Willard Olson............... Dora ísabell Chalmers...... Jón Chalmers.............. . Guðný Chalmers............. .10 .10 25 .10 .10 .10 .10 .25 .25 .15 .10 .10 .25 .20 .10 .10 .10 .10 .10 .10 .10 .25 .25 .25 .25 10 .10 .15 .25 .25 .10 .10 .15 .05 .05 .05 .05 .05 .20 .20 .15 .15 .15 .15 .10 .10 .10 .10 .10 Alls...........$ 48.95 Áður auglýst .. 164.85 Nú alls........$213.80 \ SÓLSKIN Barnablaö Lögbergs. II. ÁR. WINNIPEG, MAN. 29. ÁGÚST 1917 NR. 47 BUXURNAR HANS BJARNA. Hlæir þú að búningnum hans Bjarna bíddu við og skoða huga þinn. Fyrstu buxur þínar sérðu þarna, þú varst alveg svona, góði minn. SPILAGALDUR. Taktu spil og fáðu einhverjum þau. Biddu síð- an einhvem um að draga eitt spil og skoða það og láta alla aðra sjá það nema þig. — pú mátt ekki sjá það. — pegar það er búið þá biðurðu þann sem dró spilið að láta það npðst í bunkann; síðan seg- irðu þeim sem heldur á öllum spilunum að láta þau á borðið á grúfu öll í bunka. » Nú biðurðu þriðja manninn að draga ofan af spilunum, hvað mörg eða fá sem honum sýnist og láta það undir bunkann. pegar þetta er búið bið- urðu einn enn þá að leggja öll spilin, eitt og eitt, upp í loft á borðið. pegar komið er að spilinu, sem dregið var, getur þú sagt til þess. Er það ekki skrítið ? Galdurinn er ekki stór. pú tekur vel eftir hvaða spil var neðst í bunkanum þegar byrjað var; þegar þau eru látin á borðið eitt og eitt, þá kemur spilið sem dregið var altaf næst því sem var á botninum. , ------------------- DORCAS-félögin. “pað er fundur í Dorcas-félaginu á morgun”, sagði Anna litla. “Eg verð að fara þangað”, svaraði Sigga. “En heyrðu, Anna; hvað þýðir þetta nafn, Dorcas?” “Eg veit það ekki”, sagði Anna. “Við skulum spyrja hana mömmu að því; mamma veit alt”. Og svo hlupu þær til mömmu sinnar, litlu syst- umar. pær voru altaf kallaðar litlu systumar. þó þær væru orðnar talsvert stórar; önnur var 14 ára en hin 16 . Og þær spurðu mömmu sína hvað þetta nafn þýddi. pær roðnuðu þegar þær spurðu um það, þvi þær héldu að þetta hlyti að vera eitthvað sem allir ættu að vita og þær hálf skömmuðust sín fyrir að vita það ekki. En þær þorðu að spyrja mömmu sína að öllu og hún sagði þeim altaf alt sem hún vissi með góðu. Og mamma þeirra sagði þeim nú hvaða nafn þetta væri. Hún sagði að fyrir löngu—löngu hefði verið kona í borginm Joppa, sem talað er um í biblíunni. pessi kona hafði snúist og orðin kristin. Hún hét Dorcas eða Tabíta. pað var mikið af fátæku fólki í borginni, eins og öllum stórum borgum og Dorcas fanst kristnu kenningarnar vera svo fallegar og hún fylgdi þeim svo trúlega að hún gerði ekkert annað en hjálpa því fólki sem átti bágt. pessi kona er nefnd í biblíunni og Lúkas guðspjallamaður segir að hún hafi varið æfi sinni til þess að vinna góðverk, hjálpa fólki og gefa þeim sem þurftu. Dorcas þýðir: “Hin fágra” og það er sagt að þessi kona hafi verið fjarska falleg, en sálin henn- ar var þó enn þá fallegri. f bænum Joppe voru margar fátækar ekkjur og mörg fátæk börn og Dorcas hjálpaði þeim eins mikið og hún gat; hún saumaði handa þeím föt og bjó til handa þeim mat, því það var ódýrara en að kaupa það og með því móti gat hún gefið meira. pegar þessi kona dó söfnuðust saman allir fá- tæklingar á stóru borginni — og það var fjarska stór hópur — og allir grétu yfir því að Dorcas var dáin og allir biðu guð að blessa sál hennar og allir þökkuðu fyrir það sem hún hafði gert. pegar hún var dáin voru stofnuð félög í öllum kristnum kirkjum og söfnuðum til þess að hjálpa fátæku fólki, — kenna því, menta það og gefa því og leiðbeina því á alla vegu. Og þessi félög voru kölluð Dorcas-félög eftir henni.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.