Lögberg


Lögberg - 13.09.1917, Qupperneq 4

Lögberg - 13.09.1917, Qupperneq 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. SEPTEMBER 1917 Pðberg Gefið út hvern Fimtudag af The Col- umbia Preis, Ltd.,]Cor. William Ave. & Sherbrook Str., Winnipeg, Man. TALSIMI: CARRY 2156 SIG. JUL. JÓIIANNESSON, Editor J. J. VOPNI, Business Manager Utanáskrift til blaðsins: THE COLUMBI^ PRESS, Ltd., Box 3172, Winnipeg. W|at\. Utanáskrift ritstjórans: EDIT0R L0CBERC, Box 3172 Winnipeg, ^an. VERÐ BLAÐSINS: $2.00 um árið. ‘*0*>27 Sorgarmyndir úr daglega lífinu “Pað skeði í fyrra, það skeði í ár, það skeður líklega að ári.”—J. ó. Vér vorum staddir í leikhúsi Guðmundar Christie á hominu á Ellice og Sherbrooke á fimtu- dagskveldið var. par fór fram myndaleikur sem nefnist “Tortured heart.” Efnið í leiknum er bæði almengt og eftirtekt- arvert, og tekið úr daglega lífinu, jafnt hjá öllum þjóðum. Efnið er sem hér segir: Fullorðinn prestur hefir mist ástmey sína þegar hann var ungur, aldrei felt hug til annarar konu síðar, en lifað andlegum samvistum með henni. Hann trúir því að hún lifi í öðrum heimi og honum finst hún vera nálæg sér; einkum þegar hann nálgast guð í bænum sínum. Sýningin byrjar á því að prestur þessi er 9 sýndur þar sem hann talar við guð sinn um unn- ustu sína og kemst svo nálægt henni í hugsuninni að honum finst, sem hann sjái hana. Er svipur- inn sýndur, en hverfur þegar presturinn ávarpar hann. öðrum þræði sést út á víðavang. Eru þrum- ur og eldingar og hið ægilegasta veður sem hugs- ast getur. En úti í skógi og fimindum hrekst kona, sem sjáanlega er í svo djúpri angist að engin orð geta lýst. Presturinn fer út úr húsinu, en finnur við dymar lifandi barn. Hann tekur það og skoðar; þykist hann þess sannfærður að móðirinn sé dáin og viknar við. Bréfmiði er í fötum barsins og á hann ritað nokkur orð til prestsins; er það frá konu sem segist vera móðir þess; segist hún verða liðið lík þegar hann elsi þessar línur og biður hann fyrir bamið sitt. Presturinn kemst við af þessari raunverulegu sorgarsögu; pykir sjálfsagt að þetta sé sending til sín frá guði; hann sé til þess valinn og til þess skyldugur að ala upp þetta bam og ásetur sér að gera það. Allskonar slúðursögur berast um bæinn í sambandi við þetta og málugar konur í skrautleg- um búningum em á þönum fram og aftur talandi um “hneykslið” frá ýmsuih hliðum. Síðan koma konumar í stór hópum til prests- ins að sjá bamið og tala um það. Segja þær hon- um að það taki engu tali að hann ali bamið upp og krefjast þess að hann láti það á náðir hins opinbera. pær halda að nóg sé að kosta prestinn sjálfan og kirkjuna, þótt ekki sé farið að ala upp óviðkom- andi króga; og eru þær mjög alvarlegar á svip. En presturinn heldur fast við sína skoðun; biður safnaðar konur sínar að minnast orða Krists þar sem hann segir: “Leyfið bömunum að koma til mín og bannið þeim það ekki.” Segir prestur að til þess séu orð Krists kend og verk hans boðuð að eftir þeim eigi að breyta og þetta pé sending frá guði til þess að reyna og prófa hvort hugur fylgi máli hjá sér og söfnuði sínum. Ein kona eða stúlka kemur fram og segir að áhyggjum skuli létt af hinum safnaðarkonum prestsins að því er kostnaðinn snerti, því hún seg- ist skulu leggja fram nægilegt fé til þess að fóstra bamið ef presturinn vilji veita því heimili og upp- eldi. — pað verður að samningum. Nú vill presturinn skíra barnið og á það að fara fram í kirkjunni; en safnaðarfólk hans setur sig upp á móti því; þykir það vanhelga musteri guðs að skíra þar bam, sem ekki sé víst hvemig sé til komið; ef til vill óskilgetið, ef til vill barn konu sem framið hafi sjálfsmorð. — Nei, slíkan blett má ekki líða í kirkjunni þeirra. En presturinn gefur sig ekkert að því hvað safnaðarfólkið segir; hann er sjálfur mættur í kirkjunni með bamið í fanginu til skíraar og spyr hvað eftir annað hvort ekki finnist nein kona eða neinn maður þar inni, sem fáist til að halda bam- inu undir skím; en allir þegja og hrista höfuðin með djúpri fyrirlitningu—og ólundarsvip. En konan sem bauðst til að leggja til fram- færslufé barnsins situr úti í krókbekk og er auð- sjáanlega í djúpum og sárum hugsunum. Loksins stendur hún upp, gengur inn eftir kirkjugólfinu og býðst til þess að halda baminu undir skírn;, en presturinn velur baminu—sem var stúlka—nafn hinnar dánu unnustu sinnar. Hann trúði því að guð og hún hefðu sent sér þenn- an nýfædda engil til gleði og huggunar á ellidög- unum. fevo líður og bíður; barnið vex og þroskast og verður gjafvaxta stúlka; kemst hún í kynni við óhlutvandan mann, sem lék mesta prúðmenni, en var í raun réttri skálkur og óskírlífismaður. Hann nær ástum hennar og þau heita hvort öðru eigin- orði; en áður var hún heitin ungum manni og ær- legum. Presturinn og konan sem kostaði uppeldi henn- ar feldu sig ekki við þennan fyrirhugaða ráðahag fyrir stúlkuna, sem var sama sem dóttir þeirra beggja, þótt þau væm hvorki hjón né skyld að neinu leyti. Út af þessu skapast áhyggjur og óánægja. En þorparinn fær þessa ungu stúlku til þess að strjúka með sér og sendir hún prestinum fáeinar línur þar sem hún segir honum að þau séu gift. Sorg prestsins og konunnar sem ól hana upp verður óútmálanleg. þorparinn sem tældi þessa saklausu ungu stólku fer svo illa með hana að lífið verður henni óbærilegt. Hann segir henni að sér hafi aldrei þótt vænt um hana; hryndir henni og ber hana og kvelur á allan hátt. Loksins kemur þar að stúlkan skrifar fóstur- föður sínum og segir honum hvemig komið er; mælist hún til þess að fá að koma heim aftur, því ekkert nema örvænting og dauði bíði sín þar sem hún sé. En þorparinn hafði stolið bréfi sem fóstra konu hans átti, þar sem hann komst að leyndar- máli er hann hótaði að koma upp ef hún léti hann ekki hafa stóra peningaupphæð. Hún tekur það ráð að sega prestinum þetta leyndarmál og taka afleiðingunum, hverjar sem þær verði. Og leyndarmálið var þetta. Hún hafði heitið eiginorði manni sem hún unni hugástum þegar hún var ung stúlka. Fólk henn- ar setti sig eindregið upp á móti því. pau giftust leynilega; en það komst upp og bróðir hennar drepur mann hennar í einvígi. Hún hafði verið þunguð þegar maður hennar var veginn, og þegar hún varð léttari var hún rek- in úr foreldrahúsum með harðri hendi með nýfætt. barnið í fanginu og kastað út á klakann. Sálarstrið hennar var meira en orð geti lýst Hún hafði heyrt um mannkosti þessa sannkristna prests, og tók það ráð að fara með bamið sitt þangað heim og láta það við dymar hjá honum. Hún var því móðir stúlkunnar og sál hennar því eðlilega hnýtt enn þá nánar við hana vegna kringumstæðanna en venjulega gerist, eins og skiljanlegt er. Sýningin endar þannig að stúlkan kemur heim aftur og er tekið við henni tveim höndum af móð- ur hennar, prestinum og gamla unnustanum, sem altaf hafði þráð hana. Af þessum myndaleik er margt að læra, og hann endurtekur sig svo að segja árlega hingað og þangað; að minsta kosti sum atriði hans. pekkjum vér ekki í voru íslenzka þjóðlífi ótal dæmi þess að troðið hefir verið á hjörtum og t'l- finningum ástvina, eins og þessi leikur sýnir? þekkjum vér ekki konur sem lifað hafa við sorg og svartnætti alla daga fyrir þá grimd, sem þeim hefir verið sýnd í heimahúsum í sambandi við þeirra helgustu tilfinningar ? pekkjum vér ekki foreldra sem myrt hafa bömin sín á þann hátt eða eitrað alla framtíð þeirra? pekkjum vér ekki böm sem kastað hefir verið út á klakann eins og hér ræðir um, þótt þau hafi ekki verið svo gæfusöm að lenda í líknarhönd- um sannkristins prests? pekkjum vér ekki fólk sem lifir hvem dag í dýrðlegum fagnaði; þykist fylgia kenningum kærleikans, en vill ekki saurga sjálft sig með því að taka þátt í aðalstörfum krist- indómsins—kærleiksverkunum, þar sem þeirra er mest þörf. pekkjum vér ekki marga, sem fúsari eru að kasta steinum án sanngjarnra rannsókna, en meistarinn var forðum? pekkjum vér ekki þá, sem virðast hafa gleymt því að trúin verður ekk; af öðru sýnd og sönnuð en af verkunum? pekkjum vér ekki hins vegar gálausa og sál- arlausa menn, senr leika sér að tilfinningum ungra og saklausra stúlkna, eins og hverju öðru glysi, sem til þess sé að skemta sér að án tillits til allra afleiðinga fyrir framtíð þeirra? Jú, vér þekkjum þetta alt í vom íslenzka þjóð- lífi, bæði vestan hafs og austan; og þessi mynda- leikur ætti að geta opnað augu margra foreldra; margra svokallaðra kristinna manna; margra hugsunarlítilla stúlkna, og ekki sízt margra gjálíf- ismanna. Stórhneyksli. pau gerast svo mörg og svo stór hneykslin í Canadaþinginu nú upp á síðkastið að þau hverfa hvert fyrir öðru. Eitt er það sem þar er að gerast nú, sem nóg væri til að fylla allar framsíður stóru blaðanna með rauðu, stóru letri og alla ritstjómardálka með stórorðum mótmælum, ef ekki væri svo margt annað um þessar mundir, sem dregur athygli fólks frá þessu höfuðhneyksji. pað er lýðum ljóst að C.N.R. félagið hefir verið einhver sú versta og þyngsta byrði fjár- hagslega, sem canadiska þjóðin hefir orðið að rog- ast með undanfarin ár. Tveir menn—MacKenzie og Mann— hafa náð á vald sitt löggjöfum þjóðarinnar og fulltrýum hennar til þess að opna fyrir sér fjárhirzlu ríkis- ins með svo löngum og naglhvössum fingrum að fádæmum sætir. Fimtán miljónir, fjörtutíu og fimm miljónir, tuttugu og þrjár miljónir dala og svo framvegis eru þær upphæðir sem i þessa hít hefir verið kast- að núna rétt nýlega, fyrir utan alla þá tugi mil- jóna, sem áður voru komnar. Nú er þjóðin komin í skuld sem nemur hálfri annari biljón ($1,500,000,000) eða $214.00 á hvem mann, konu og barn í öilu ríkinu, og er búist við að hún aukist um $500,000,000 áður en stríðinu er lokið. f viðbót við alt þetta kemur það svo eins og þruma úr heiðskíru lofti að stjómin í Ottawa, sem í raun og sannleika er löngu dauð, ber upp frumvarp þess efnis að þjóðin skuli á þessum hörmungatímum taka á bak sér aukabyrði er nemi ekki minna en sex hundruð og fimtíu miljónum dollara ($650,000,000;. pessar tvær blóðsur,ur, MacKenzie og Mann hafa þannig stjómina í hendi sér að hún ber fram lagafrumvarp um þaó að þjóðin taki jámbrautir þeirra eftir að þeir hafa eytt ógrynni fjár frá þjóðinni og eru gjaldþrota. Ekki ætlast þessi dauða stjóm til þess að þjóðin fái brautimar fyrir það sem hún hefir lagt fram, þótt það sé ljóst að hún jafnvel tapaði stórfé á þann hátt; heldur á að borga þessum tveimur mönnum og öðrum auðugum hluthöfum tugi miljóna úr vasa iolksins fyrir ekki neitt. Nefnd manna skipuð af stjóminni sjálfri hefir rannsakað málið og gefið þá skýrslu að þessir menn eigi ekki eitt einasta cent í brautinni og þvert ofan í þann dóm á að dæma þjóðina til þess að borga þeim tugi miljóna. Og þetta flýtir stjórnin sér að gera rétt áður en hún fellur ofan í þá djúpu og dimmu gröf fyrir- litningar, sem hún hefir grafið sjálfri sér. Og ekki nóg með það, heldur grípur hún til þeirrar harðstjórnarráða, sem æfinlega hafa ver- ið kölluð þrælatök að banna þeim að tala er á móti vilja mæla. Stjómin lýsir því yfir að andstæðingar hennar í þinginu verði að þegja til þess að hægt sé að koma þessu í gegn og hún notar hnefarétt at- ^kvæðamagnsins til þess að samþykkja afnám mál- frelsis á meðan hún vinnur ódáðaverkið. peir sem í nefndinni voru og dæmdu það að McKenzie og Mann ættu ekki eitt einasta cent í brautunum eða því sem þeim tilheyrði, heita Drayton og Ackworth; dæmdu þeir það að þjóðin hefði þegar borgað fult verð og það hátt fyrir hvern þumlung í brautinni. petta vissi Bordenstjómin árið 1915 þegar McKenzie og Mann báðu um $45,000,000 í viðbót, og fengu það með því að veðsetja brautina. Var því þá heitið statt og stöðugt að ef þessi uphæð væri ekki borguð á réttum tíma eða rentur af henni, þá skyldu brautirnar falla í hendur þjóð- arinnar. Nú gátu þessir menn ekki borgað, eða þóttust ekki geta það, og þá svíkur stjórnin það loforð að þjóðin fái veðið. Nú er ekki þar með búið, heldur á að selja þjóðinni í viðbót við það að hún tapi hinu, sex hundruð þúsund (600,000) hluti í félaginu, sem auðmenn í Toronto hafa keypt í Lodnon fyrir 40% óg á fólkið í Canada að borga fyrir þá 100%. Nákvæmlega hefir það verið reiknað út að fé- lagið skuldi um $15,000,000 meira en það er virði og sést því hvernig verið er að fara með þjóðina. petta mál er svo ljótt, svo stór svívirðilegt að það mundi taka allan huga þjóðarinnar ef ekki stæði á eins og nú gerir. Hér er verið að fremja á henni það versta gjörræði sem sagan þekkir. Á deyjanda degi — nei, löngu eftir reglulegt andlát er þessi stjórn að taka saman höndum við fjárglæframenn ríkisins til þess að vinna það verk er óhreinast er flestra verka — jafnvél flestra hennar verka, þótt þau séu mörg ekki hrein. Herskyldulögin og kosningalögin telja menn að séu aðeins fram komin til þess að vekja svo mikinn hávaða að ekki verði tekið eftir þessu höfuðhneyksli. Sifton hefir látið mikið til sín taka í sambandi við þetta mál og er það engin launung að hann muni verða nokkrum miljónum auðugri ef leik- urinn takist, eins og líkur eru til að verði. Yfir höfuð bendir alt á það að stjómin sjái daga sína talda og hafi því tekið sama ráð og ræningjar eða aðrir óbótamenn gera, þegar þeir eru umkringdir. peir grípa þá til alls hins versta og ófyrirleitnasta; svífast einskis. Margar ræningjasögur eru til sem frá því ► segja að slíkir menn virðast hafa orðið vitstola og skotið á alt og alla sem þeir náðu til. pannig er það með þessa stjórn. Hún veit að ef sanngimi ræður eru hennar dagar taldir. Hún veit að ef henni er hrundið af stóli þá komast upp um hana svo ljót verk að Roblins hreiðrið hefir verið svo að segja hreint samanborið við það; hún hugsar sér því að lögleiða sjálfa sig inn í em- bættið aftur með því að leyfa þeim einum atkvæði er hún hyggur munu verða sín megin, en brjóta lög á þeim borgurum landsins, sem hún óttast að hafi opin augun fyrir svívirðingum hennar. Af þessum ástæður er það einnig að stjómin flýtir sér með þetta jámbrautarhneyksli fyrir kosningarnar. Ræða Dr. Neelys er þess ljós vottur að svo lítur út sem Sifton hafi ætlað að reyna að fá Laurier til þess að vinna þetta óþokkaverk, en mis- tekist og þá snúið sér til Bordens. Ef svo er sem út lítur fyrir og margar líkur benda til að þetta sé aðaláhugamál þeirra og hítt annað haft til blekkingar, þá er það ekki að- al atriðið fyrir þeim að vinna stríðið, heldur hitt að vinna kosningamar. Snörurnar voru kænlega lagðar fyrir frjáls- lynda menn; þeim var talin trú um að alt sam- steypuhjalið væri af einskærri þjóðrækni; öll flokkaskifting ætti að leggjast niður. Sumir þeirra glæptust á þessu; voru of auðtrúa, en sem betur fer eru nú augu þeirra farin að opnast. y Brögðin voru þau að fá frjálslynda menn i stjórnina án samþykkis fólksins, því það sáu þeir stjórnarsinnar að fólkinu yrðu aldrei viltar sjónir nægilega. Svo átti að koma fram öllum skálka- pörum í nafni beggja ílokkanna, þar sem ekki var hægt að koma með aðfinningar ef hvorirtveggja væru jafn sekir. En Laurier bjargaði þjóðinni; bjargaði land- inu; bjargaði heiðri flokks síns og sínu eigin nafni og orðstýr. Og svo verða kosningar óhjákvæmilegar. En ekki er að reiða sig á það að fólkið verði blindað, þess vegna verður að binda það; taka af því at- kvæðin nógu mörgu, þeim er bezt finna til þræla- takanna, til þess að stjórnin sama sem kjósi sig sjálf. En það er skammgóður vermir að hella heitu vatni í skó sinn. pessi svívirðilega stjóm, sem jafn miklu gjörræði hefir beitt má trúa því að þegar hún er komin í gegn um hinar svokölluðu kosningar og þannig búin að kjósa sjálfa sig, ef henni tekst það, þá kólnar henni á fótum ekki síður en manninum sem helti heitu vatni í skóinn sinn og fór út í frost. pessi stjóm á þá þau vissu forlög fyrir sér að frjósa í hel á eyðimörku haturs og fyrirlitningar frá þeirri þjóð er hún átti að vemda og verja, en kúgaði með alls konar þrælatökum. ... ................................ SÓNHÆTTIR (Sonnets). ---------------------------- . XI. Jafnrétti. Hún vakti heiminn kenningin um Krist Hinn innra frið, þótt ytra fjötmm læst, hver aðþrengd mannsál hlaut. pað veldi glæst var bróðurelskan. Samúð fremst og fyrst. Hinn minsti hlaut sem mesti, sömu vist. Og þótt sá draumur hafi ei heimi ræzt á hundrað nítján árum — orðið stærst á eilífð sjálfa’ að framtíð, inst og yzt. Og sjá! f ógnum elds, sem brennir lönd, býr dauði ’ins krýnda og auðga ægivalds, í bylting márgra ára’ er elta frið. pá ytra jafnt sem innra losna bönd. Hver þjóðeign rís úr ránsklóm afturhalds. Sú jafnaðsstjóm býr Jesú opið hlið. P- P. P. THE DOMINION BANK SIR EDMUND B. OsLER, M.P, President W. D. MATTHEWS, Vice-President Hagsýni hjálpar til að vinna stríðið Byrjið sparisjóðs reikning og bætið við hann reglulega Notre Dame Branch—W. M. HAMIDTON, Manager. Selkirk Branch—M. 8. BURGER, Manaj(er. 1 ■ NORTHERN CROWN BANK HöfuSstóll löggiltur $6,000,000 HöfuÖstólI gr«iddur $1,431,200 Varasjóðu......$ 848,554 formaöur - -- -- -- -- Capt. WM. ROBINSON Vlce-Presiilent - JAS. H. ASIIIÍOWN Slr D. C. CAMERON, K.C.M.G. W. R. BAWI.F E. F. HUTOHINGS, A. McTAVISII CAMPBEIiD, JOHN STOVIEIí Allskonar bankastörf afgreidd. Vér byrjum reikninga vl8 einstakllnga e8a félög og sanngjarnir skilmálar veittir. Ávlsanlr seldar til hva8a staSar sem er á Islandl. Sérstakur gaumur gefinn sparisjóSsinnlögum, sem byrja má me8 1 dollar. Rentur lagSar viB á hverjum 6 mánutum. T- E. THORSTEINSSON, Ráðsmaður Co William Ave. og Sherbrooke St., - Winnipeg, Man. Frank Oliver. Frank Oliver talar máli (ólksins “A8 svifta -nenn atkvæSisrctti sem komiö hafa til Canada í fullu trausti til þess aS flýja herskyldu í sínu eig- in landi”, sagSi Frank Oliver, “menn sem tekiS var hér báSum höndum og þeir eggjaSir á aS koma, er óafsak- anlegt og óbrezkt. ÞaS er háborin svívirSing aS taka kosningarétt af canadiskum borgurum án nokkurra afsakana og án þess aS hægt sé að benda á aS þeir hafi í hinu minsta brotiS borgararétt sinn. Slíkar aS- farir eru hnefahögg í andlit allrar samvinnu og samþýSanleiks hinna ýmsu þjóSbrota hér í landi framvegis og á þvj ber stjórnin ábyrgS sem af þessu kann aS leiSa. Stjórnin er aS brjóta samninga við þessa menn, góSa borgara landsins bessir menn hafa ekki aShafst neitt rangt; meiri hluti þeirra kom hingaS til Canada sökum þess aS ]ieir voru á móti þýzkum herlögum. Þeim vat sagt aS ef þeir vildu koma og byggja upp landiS, þá hlytu þeir öll borgará- réttindi í fylsta máta. Þeir hafa upp- fylt skyldur sínar, en nú ætlar stjórn- in aS taka af þeim atkvæSi af því aö hún er hrædd um aS þeir muni greiSa þau meS liberal flokknum. ÞaS er í fylsta máta gjörræSis fult aS svifta Galiciumenn atkvæSisrétti í Canada. Þótt þessir menn séu fra landi sem nú heyrir til Austurríki, þá eru þeir meS Rússum í stríSinu og hafa aldrei veriS meS MiSríkjun- um”. Þegar hér var komiS ræSu Olivers, tók R. B. Bennett fram í og spurSi hvort þaS væri ekki satt aS sumir Galiciumenn í vesturlandinu værn frændur sumra herforingja í liSi Austurríkis. “Hvernig ætfi aS nota þaS sem á- stæSu fyrir því aS taka atkvæSi af þessum ‘ mönnum?” sagSi Oliver. “HvaS getum vér þá sagt mn kon- ungsættina á Englandi? Þegar stríS- iS hyrjaSi b’.iSust Galiciumenh til þess aS safna herdeild og fara í stríS- iS. BoSi þeirra var neitaS; en samt hafa margir fariS í stríSiS. Clifford Sifton í klemmu Andlegri sprengikúlu kastaSi Dr. D. B. Neely á fundi sem haldinn var í Chatham í Ontario á mánudaginn. Dr. Neely er þingmaSur fyrir Ham- boldt-kjördæmi í Saskatchewan og flutti tilkomumestu ræSuna á þingi frjálslynjlra manna í Winnipeg í sumar: “Eg geri hér yfirlýsingu,” sagSi Dr. Neely, “sem þjóSin hefir ekki heyrt fyr. Eg vdl þetta tækifæri til þess aS gera þessa yfirlýsingu vegna þess aS eg vil ekki skáka i verndarskjóli þingsins þegar eg ber fram þetta mál. Eg skýri ySur frá því aS síSan fyrstu vikuna í júní hef- ir Sir Clifford Sifton fariS alveg i gegn um sjálfan sig aS því er her- skyldumáliS snertir. Einu sinni snemma í júni mætti eg Sifton úti á götu í Ottawa og hann baö mig aS koma inn á skrifstofu sína vegná þess aS hann heföi heyrt aS nokkrir frjálslyndir menn ætluSu aS veröa á móti leiötoga sínunt í her- skyldjmálinu. Hann talaöi viö mig Dr. D. B. Neely. í hálfa aSra klukkustund og réði mér sterklega frá því aS gera þetta. ÞaS síSasta sem hann lagöi ríkt á viö mig aö gcra var aö fara til piltanna og fá þá til þess aö hætta viö aö greiöa atkvæði á móti Laurier. “Læknir!” sagöi hann. “Dreng- irnir mínir eru í skotgröfunum; þeir hafa fariö austur á hervellina eins og aörir, en trúöu mér til ]>ess aö þótt vér þurfum á liSi aS halda þar austur frá þá er þetta lagafrumvarp Bordens þaö versta sem komiS gæti I fyrir þetta land nú sem stendur. Vér höfum í síSastliSinn fimtán ár veriS aS byggja upp $ameinaöa og sam- vinnandi þjóS í Canada. Þessi Iög eySil)?ggja þaö alt. ÞaS þyrfti alt liS sem vér höfum í Canada nú til þess aS eins aS framfylgja herskyldu í Quebec. Ef þaö er verulegur árang- ur sem óskaö er eftir þá fást fleiri menn í herinn frá Quebec undir stjórn Sir W'Ifred Lauriers, en mögulegt er aö fá meS Borden sem leiStoga. Borden hefir vakiS óánægu hjá Quebec búum og þeir treysta honum ekki”. “Eg biö yöur ekki aö trúa oröum mínum sannanalaust, eg er ekki einn til sagna; aörir geta boriö þar vitni aö eg segi satt. Eg skal nefna tvo menn, og þekkiö þér aö minsta kosti annan þeirra. Þeir eru William Charllon þingmaöur fyrin Norfolk og

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.