Lögberg - 12.09.1918, Side 1
SPIERS-PARNELLBAKING CO.
ábyrgjast yður
fulla vigt, beztu vörur fyr-
ir lœgsta verð sem verið
getur. REYNIÐ ÞAI
TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG
Þetta pláss er til sölu
Talsímið
Garry 416 eða 417
31. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 12. SEPTEMBER 1918
NUMER 37
BANDARIKIN
Fimm embættismenn einnar af
efnafræSisstofum og meöalaverk-
smibjum Bandaríkjanna, sem fyrir
stríðiS var eign ÞjóSv'erja, hafa verit5
teknir fastir og eru kærSir um a8
hafa verið búnir atS búa svo um, at5
stór hluti af ágóSa félagsins gangi til
ÞjótSverja, og einnig um þat5 af5 hafa
búið svo um hnútana, at5 þessi i?5nat5-
ur verbi í höndum Þjó'ðverja eftir
stríöiC.
Nefndin, sem Senat Bandaríkjanna
setti til þess aö rannsaka gjöröir
manna þeirra, sem höfðu með höndum
loftskipasmíöar fyrir stjórnina, hefir
komist aö þeirri niðurstöðu, aö ágóði
þeirra hafi verið óhæfilega mikill,,
skilnngsleysi ,um að færa sér í nyt
reynslu Evrópuþjóðanna í þeirri grein
og að framleiðslan hafi lent í hönd-
um bifreiðafélaganna, sem enga sér-
þekkingu hafi haft á verkinu.
Senator Lodge, í fyrstu ræðu sinni
sem leiðtogi Republicana í Senatinu,
krefst þess að friðarsamningar, þegar
gjörðir verða, byggist á algjörðum
sigri.
Hæst réttur New Ýork ríkis hefir
komist að þeirri niðurstöðu, að Lusi-
tania, þegar að henni var sökt 9. maí
1915, hafi ekki haft nein hervarnar-
gögn — verið alveg varnarlaus, og
hljóti því að álítast sem vöru- og
fólksílutningaskip aöeins, og að
verknaður sá, sem Þjóðverjar hafi
þar framiö, hafi verið sá allra sví-
virðilegasti sem hugsast geti, og sé
algjört brot á alþjóða-siglingalögum.
Henry Ford, sá sem Ford-bifreið-
arnar eru kendar við, hefir boðið sig
fram til senators, bæði fyrir Repu-
blicana-flokkinn og fyrir Demokrata-
flokkinn í Miohigan-fylkinu. Hann
fékk Demokrata útnefnnguna, en tap-
aði Republicana útnefningunni á
móti Truman H. Newberry, fyrver-
and hermálaritara.
Umsjónarnefnd eldsneytis í Banda-
rikjunum hefir skorað á fólk austan
Missisippi, aö hætta að brúka bif-
reiðar, bifhjól og lystibáta á sunnu-
dögum, til þess að spara gasoliu.
Einn liðsforingi og frá 10—20 ó-
breyttir liðsmenn féllu í upphlaupi á
milli Mexico og Bandaríkjamanna
við bæinn Nogales í Arizona. Sagt
er að um 100 Mexicomenn hafi fallið.
Frá Washington kemur sú fregn,
að Walter Hines Page, sendiherra
Ameríkumanna á Bretlandi, hafi sagt
af sér sökum heilsubrest.
Frá Kaupmannahöfn kemur sú
frétt, að sendiherra Bandarikjanna
hafi beðið utanriksráðherra Svía um
leyfi til þess að höföa meiðyrðamál
fyrir hönd Wilson forseta, á móti
Aftonblatt, fyrir það að segja að
Wilson forseti væri Presbyterianskur
stríðsguð auðvaldsskríls Demokrata.
Og i þessari sömu grein stendur líka,
að sambandsþjóðirnar hefðu bæði
fyrirlitið og hræðst Bandarikn. Ut-
anríkisráðherran hefir látið hann fá
þá ósk sína, að málið yrði höfðað.
Á tundursnekkju frá Bandaríkjun-
um, meö 26 sjóliðsforingjum og sjó-
mönnum, var skotið nýlega af vöru-
flutningaskipi nálægt Eldeyjum. Skip-
ið, sem heitir Telix Taussig, hélt að
það væri þýzkur neðansjávarbátur.
Haldið er að 16 af skpshöfninni hafi
farist.
FRAKKLAND
Síðan aö blað vort kom út siöast,
hafa samherjar haldið áfratn stöðug-
um sigurvinningum á vsturvígstöðv-
unum. Sérstaklega á hinu svonefnda
Picardy-svæði frá Rheims til Ypres,
um 200' mílur á lengd; og svo mjög
hafa samherjar sótt fram, að á ýms-
um stöðum hefir her Þjóðverja riðl-
ast með öllu og forðað sér á flótta
eftr föngum; þrátt fyir ítarlegar til-
raunir, sem þeir hafa gjört til þess
að stemma stigu fyrir sambands-
hernum, þá hefir það enn orðið á-
rangurslaust — hver dagurinn hefir
fært samherja áfram í áttina til
Cambrai og St. Quentin, þar til nú,
aö samlherjar eru komnir svo aö
segja að hliðum beggja þessara bæja,
og virðist aðeins lítið tímaspursmál
að þeir taki báða þessa bæi. Cambrai
er gamall bær, mjög víggirtur, 128
mílur N. N. E. frá Paris, en St.
Quentin stendur við Somme-ána, 95
mílur N. N. E. frá París, og eru þvi
samherjar búnir að reka Þjóðverja
38 mílur til baka á þessu svæði, síðan
að þeir hófu sóknina 8. ágúst s. I., og
það er rúmlega mánuður síðan að Sir
Douglas Haig hóf sókn sina við
Amiens. En á þessum mánuði hefir
hann tekið nálega alt landið aftur á
því svæði, þar sem her hans sækir
fram, sem tók Þjóðverja 3 mánuöi til
þess að ná i v'or. Og þótt að Þjóð-
verjar gjöri nú alt sem í þeirra valdi
stendur, eins og að framan er sagt,
til þess að stemma stigu fyrir sam-
bandshernum, þá virðst það ekki vera
nema aðeins lítið timaspursmál, að
þeir taki báða þessa bæi, og þá með
þeim hina svo kölluðu St. Quentin—
La Fére Line, en það eru vígl og vig-
girðingar Þjóðverja næst á bak við
hina svonefndu Hindenburg Line; og
ef að samherjum tekst að varr.a ó-
vinunum að ná fótfestu þar, er því
haldið fram af mönnum, sem þykjast
hafa öðrtim fremur vit á striðsafstöð-
unni, að þá muni erfitt fyrlr Þjóð-
verja að veita viðnám í Frakklandi,
því að flest, ef ekki öll, hin beztu vígi
í landinu séu þá úr höndum þeirra
gengin. En þó að menn séu að bolla-
leggja þetta eða hitt, og að þeir hafi
;meira eða minna til síns máls, ættu
menn samt ekki að láta sér detta í hug
að þeir séu þá yfirunnir. Vér aðeins
fylgjum hermönnum vorum í hugan-
um í fullu trausti og fullri von um
farsælan sigur.
Herfang hafa bandamenn tekið
fjarskalega mikið undanfarandi. Can-
adamenn einir tóku 20,000 fanga á
fjórum dögum auk alls annars her-
fangs. Á síðustu fimm dögum er
sagt að Bretar hafi tekð 19,000 fanga,
og eins hafi Ameríkumenn og Frakk-
ar tekið mikið af föngum og öðru
herfangi. Á meðal bæja þeirra, sem
samherjar hafa tekið í vikunni, eru:
Bozoches, Fismes, Muscourt, Ville-
veque, Emilie, Raisel, Vaux, Flu-
iquieres, Happencourt, Hamel Men-
nessis og hinn fornmerkilega bæ Ham,
þar sem Louis Napoleon og mærin
frá Orleans voru fangar forðum. 1-
búatala þess bæjar fyrir striöið var
3200.
Or bænum.
Ungfrú Hólmfríður Árnadóttir, sem
kennir íslenzku og dönsku við Col-
umbia University í New York, er hér
að ferðast um og kynnast. Hún kom
í vikunni sem leið sunnan frá Dakota,
dvelur um stund hér í bænum og ferð-
ast líklega eitthvað út um bygðir.
Húii hefr fengist mikiö við menta-
mál og víða verið; kom til New York
frá íslandi síðastliðið haust til að
stunda nám við Columbia háskólann,
en var svo boðið þetta kenslustarf,
,sem hún hefir haft á hendi síðan.
Hún fer i næsta mánuði til New York
og heldur áfram sama starfi.
Hún heldur samkomu í Skjaldborg
á föstudaginn í þessari viku, sýnir ein-
ar 50 fagrar myndir frá íslandi, flest
Iitmyndir, og fræðir menn um landið
og fólkið. Santkoman byrjar kl. 8
og inngangseyrir 25 cent. Fólk ætti
að fjölmenna, bæði til að njóta góðrar
skemtunar og eins til að sýna þessari
íslenzku mentakonu sóma, sem hún
verðsk.uldar.
Það var gantan að koma Inn í Jóns
Bjarnasonar skóla, þegar eg kom vest-
an úr Saskatchevan i vikunni sem
leið. Þar var búið að mála, láta
pappír á veggi og ýmislegt annað að
gjöra til þess að gjöra ánægjulegt
fyrir nemendur að vera þar I vetur.
Þökk sé þeim, sem lagt hafa hönd á
það verk að láta skólann fara í ný og
falleg föt. Vonandi verða nfl marg-
ir nemendur til þess að hagnýta sér
heimili skólans í vetur. En eitt var
til allra hamingju ekki nýtt þar. Sama
fólkið, sem hefir litið eftir skólanum,
er þar enn og vonandi verður. Aldrei
hefir skólnn verið betur passaður en
hann hefir verið af þessu fólki.
R. M.
Syrpa, I. hefti 6. árgangs, er ný-
komið út. Innihald:
Hverjum stríðið er að kenna, eftir
Jacob Gunnlögsson. 1 Rauðardaln-
um, saga eftir J. Magnús Bjarnason.
Ríkarður Jónsson myndhöggvari, með
mynd. Þorgils, þýdd saga eftir
Maurice Hewlett. Bútar úr ættarsögu
íslendinga á fyrri öldurn, eftir Stein
Dofra. íslenzkar sagnir fsaga af
Arnesi Pálssyni eftir Sigm. M. Long.
Magnús Borgsted eftir E. S. WeumJ.
Fjársjóðir á hafsbotni. Lánsbarn.
Til rninnis. — Frágangur á þessu
hefti er góður, ög það vel eigulegt.
Mr. og Mrs. Kristján Hannesson,
852 Banning St. hér í bænum, fengu
skeyti á sunnudaginn ttm það, að son-
ur þeirra, Kári Oscar Hannesson,
hefði særst, fengið skot í hægri fót
og handlegg. Mr. Hannesson fór i
september 1916 með 44. herdeildinni,
og var búinn að vera 19 mánuði t
skotgröfunum þegar að Itann særðist.
Mr. og Mrs. Hannesson eigi annan
son i stríðinu, Hannes. Hann særð-
ist síðast í siðastliðnum apríl.
Dr. Walton Hubbard, C. S. B.,
heldur fyrirlestur í Orpheum-leik-
húsinu kl. 3,15 á sunnudaginn kemur,
um Christian Science.
1 síðasta blaði var skýrsla um út-
kornu nemenda Jóns Bjarnasonar
skóla við próf síðastliðið vor. Við
þá skýrslu verður að bæta einum
þremur nöfnum: I 11. bekk stóðst
prófið Rósa Johnson, í 9. bekk Rann-
veig Gillies og Noma Burton.
R. M.
Kvennfélag Fyrsta lút. safnaðar
hefir ákveðið að hafa Baazar í sunnu-
dagsskóla kirkjunnar í næsta mánuði.
Það er vonast ef-tir að allar félags-
konur og aðrir vinir félagsins og safn
aðarins, sýni félaginu nú eins og áð-
ur góðvild sína með því að styrkja
þetta fyrirtæki með hentugum gjöfum
til Baazarsins og á allan hátt styðja
að því að þetta geti lánast sem bezt.
\ _____________________
Dr. Jón Stefánsson er nýkominn til
bæjarins úr skemtiför vestan frá
Kyrrahafi.
KVEÐUSAMSÆTI
verður Einari Jónssyni og konu hans
haldið í Goodtemplarahúsinu, nœst-
komandi laugardagskveld, 14. sept.
Byrjar kl. 8. — Til skemtana verður
söngur, hljóðfœrasláttur, stuttar rœð-
ur og kvceði. — Inngangur ókeypis
fyrir alla.
Til athugunar fyrir alla.
Á fundi í stúkunni Skuld no. 34,
þ. 4. sept. 1918 var samþykt tillaga
um að kjósa nefnd, til að standa fyrir
að hafa “pie cocial” og ágætt progranl
þ. 25. þ. m., til þess að hafa upp dálitla
peningaupphæð, sem varið yrði til þess
að kaupa jólaböggla fyrir bræðurna
úr St. Skuld, sem eru á stríðsvellin-
um.
Vinir I Þessi hugmynd er bæði
þörf og nytsöm og full af bróðurhug
til drengjanna okkar, sem staddir eru
í eldrauninni miklu, og eru að tefla
skákina voðalegu fyrir lífinu á móti
dauðanum, fyrir landið okkar, Can-
ada, og sam-bandsþjóðirnar allar.
Við vitum að ekki þarf að hvetja
bræðurnar og systurnar í St. Skuld til
þess að taka saman höndum og gjöra
þetta af einlægum huga og sameigin-
legum bróðurkærleika, því málefnið
mælir með sér sjálft.
Sérstaklega vildum v'ið biðja Mr.
Arinbj. Bardal að gjöra svo vel að
taka út brúna fákinn sinn og færa til
lótsins alla presta, lækna og ‘Business’
menn, sem stúkunni tilheyra og eru
br. vorir á bræðraheimilinu i St.
Skuld.
Haldið þið, að honum Arinbirni
Bardal væri ekki til trúandi að gjöra
gott boð í eitthvað ilmandi “pied”,
Jyegar ágóðinn er fyrir hermennina
dren-gina frá Canada, ein-s og hann
gjörði rausnarboðið mikla í sokkana,
sem Dr. B. J. Brandson seldi honum
á Íslendingadaginn 2. ág. 1917.
10. sept. 1918.
Nefndin.
Fáein orð til skilnings-
auka.
Eftir síra Runólf Martcinsson.
Þegar eg var á ferð vestur i Sask-
atchewan i sumar, og hafði flutt er-
indi, sem snerti Jóns Bjarnasonar
skóla, frétti eg eftir sumum sem
hlustuðu á að eg hefði spilt fyrir
skólamálinu með hreinskilni minni.
Mér þótti slæmt að nokkuð frá mínum
vörum skyldi spilla fyrir málefni, sem
mér er svo kært, en á ihinn bóginn er
mér Jjað ekki einksvert að fá viður-
kenningu fyrir hreinskilni. Á því
hlýtur það að byggjast að orðum
manns sé trúað, og traust manna vildi
eg gjarna verðskulda. Satt að segja
vilcli eg -heldur spilla fyrir skólanum
með hreinskilni, en vinna honum gagn
með óhreinskilni; en helzt vil eg álita
að eg vinni skólanum mest gagn með
því að segja satt frá öllu, sem honum
viðkemur. En ef þæir skyldu vera
nokkiur fleiri en m'ótstöðumennirnir i
Saskatchewan, sem hafa hugmynd um
hreinskilni í fari mínu, mætti eg þá
ekki vonast eftir þvi að þessi fáu orð
mín yrðu alment athuguð og þeim
trúað ?
Til fræðslu um Jóns Bjarnasonar
skóla eiga þau að vera, og eg hefi
fundið á ferðum mínum að hennar er
mikil J>örf, bæði ti-1 að leiðrótta mis-
skilning og til að veita nauðsynlega
þekkingu.
T ilgangur.
skólans er bæði kirkjulegur og þjóð-
ernislegur. Þegar skólinn var stofn-
aður árið 1913, var það tekið fram að
lúterskur kristindómur og íslezk tunga
og þjóðerni væru tveir hornstelnar,
sem hann skyldi hvíla á. Að gefa
vestur íslenzkum unglingum mentalegt
heimili á þessum grundv'elli var til-
gangur vor, og fylgdum vér þar dæmi
allra annara lúterskra þjóðflokka,
sem til þessa meginlands -hafa komið.
Vér höfðum það sterkt á tilfinning-
unni að kensla íslenzkrar tungu við
aðrar stofnanir, þó vér allir óskum
eftir því að hún sé kend sem viðast,
fullnægði ekki þörfum vorum, að oss
væri -bæði þörf og skylda að leiðbeina
unglingum vorum á mentabrautinni,
bæði í veraldlegri og trúarlegri
fræðsdu, sjálfir, að i raun og veru
gæti enginn annar en vér sjálfir' kent
unga fólkinu voru til hlítar að nota
kristilegan og þjóðernislegan arf vorn
í þjónustu kirkju og þjóðar í þessu
nýja föðurlandi voru. Þennan skóla
vildum vqr gjöra miðpunkt fyrir
kirkjulif vort; þaðan kæmu kristnir
leikmenn og prestar. Aldrei datt oss
það í hug að gjöra skólann svo þröng-
an að engir aðrir en kirkjufélagsmenn
hefðu hans not. Vér vildum þjóna
öllu v'oru vestur-íslenzka fólki eftir
því sem það vildi hafa oss.
Hversvegna þá að kenna annað en
kristindóm og íslenskuT
Eitthvað Iíkt þessu spyrja sumir.
Svarið liggur beint við: með þvi einu
móti getum vér fengið nemendur. Má
vera að vér fengjum einn eða tvo
nemendur á ári, sem stunduðu nám
eingöngu í kristindómi og islenzku;
en ekki yrðu þeir margir. Skólinn
þauð íslenzkum almenningi kenslu
fyrir sunnudagsskóla kennara. Eng-
inn gaf sig fram. Un-glingar vorir,
sem mentun vilja, eru vanalegast ekki
stórauðugir. Þeir eru með skóla-
göngu sinni að búa sig undir atvinnu.
Vort eina tækifæri til að hafa nokkur
mentaleg áhrif á }>essa unglinga, er
að kenna þeim hið sama og aðrir
skólar í landinu og kristindóm og ís-
lenzku í viðbót. Og það sem við
kennum annað verðum við að kenna
á ensku. Nemendur v'orir verða að
ganga undir sömu prófin og aðrir;
þessvegna verða J>eir að fá samskon-
ar tilsögn og auðvitað á sama tungu-
máli. Enginn misskilningur ætti að
þurfa að vera út úr svo augljósu at-
riði.
En þá kemur stærsta mótbáran:
borgar það sig fyrir svona lítið að
viðhalda heilli stofnun?
Til svars því mætti benda á að öll-
um öðrum þjóðflokkum en Islending-
um í þessu landi hefir sýnst það borga
sig? Og ennfrmur má benda á það
að kirkjudeildum eins og Meþódistum
hefir sýnt það borga sig að verja ærnu
fé til viðhalds mentastofnunum, sem
J>ó ekki hafa neina þjóðernisíega á-
stæðu fyrir tilveru sinni, heldur að
eins kirkjulega.
Umhugsunarefni og bending er
þetta að minsta kosti.
En það mun vera óaðskiljanlegt frá
cðli og tilgangi kirkjunnar að hún sé
mentalegt afl í sérhverju landi þar
sem hún starfar. Að kasta allri menta
byrðinni upp á ríkið og skifta sér
ekkert af iþvl, J>ó allir mentastraum-
arnir yrðu þar heiðnir, væri lang auð-
veldast, en með því væri kirkjan að
liggja á liði sínu.
Kristilegt mentalegt heimili fyrir
hin vestur-íslenzku ungmenni vor er
miklu stærra velferðaratriði fyrir oss
en fólk vort sýnist renna nokkurn
grun í.
Starf skólans.
Hann hefir starfað í fimm ár. Á
þriðja hundrað af vestur-íslenzku
ungu fólki hefir sótt þangað. Þess ut-
an var allstór hópur af fólki, er naut
|>ar uni eitt skeið kvöldskóla tilsagnar
t íslenzku og ensktt. Skólinn hefir
reynst með beztu skólum í Manitoba
fylki við hin opinberu próf. Hann
hefir lagt mikla rækt við kristilega
lotningu nemendanna og leitast við að
gjöra kristindóminn að lífsafii í sálum
þeirra. Hann hefir kent íslenzkt mál,
sýnt unglingum gullnámu íslenzkra
bókm-enta, og leitast við að láta nem-
endur skilja gagnsemi íslenzka arfsins
og um Ieið að kenna þeim að nota
þetta til gagns þjóðinni, sem vér til-
heyrunt. Skólinn hefir áunnið sér frá-
bærlega sterka virðingu og ást, að
minsta kosti margra nemendanna.
Ungt fólk úr fjarlægum sveitum í
Ameríku hefir safnast saman i skól-
anum og þar hafa vinabönd verið
knýtt, sem geta leitt mikið gott af sér
í framtíðinni. Skólinn getur lagt
drjúgan skerf til heillavænlegrar
framtíðar fólks vors í Ameríku ef {»ð
að eins vill gefa skólanum kost á þvi,
með því að senda honum alla sína
nemendur og næglegt fé.
Skyldugreinir.
í þessu efni fann eg menn sem ekki
v'oru búnir að vita sannleikann. Eg
birti þvi hér J)að sem stendur i gjörð-
arbók kirkjuþingins, sem haldið var
í Minneota, Minn. 1917 og kemur
þessu máli við. Á 44 og 45 bls.
stendur:
Kristindómur er skyldunámsgrein
fyrir lúterska nemendur skólans.
Islenska er skyldunámsgrein fyrir
íslenska nemendur skólans.
Þetta var samþykt af kirkjuþinginu
í einu hljóði.
Og ekki er nema sanngjarnt að geta
þess um leið, að þó að ekki væri svona
til orða tekið í reglugjörðum skólans
»áður, hafa undanþágur frá íslenzku-
námi í skólanum aldrei verið nema
sár-fáar og síðastliðin tvö ár alls
engar.
Framhald.
Barði G. Skúlason,
lögfræðingur,
} innritast í Bandaríkjaherinn.
Eftirfylgjandi grein stendur í
Grandforks Herald:
B. G. Skúlason, hinn vel þekti
stjórnmálamaður og lögfræðingur frá
Norður-Dakota hefir innritast í her
Bandaríkjanna sem óbrotinn liðsmað-
ur. Mr. Skúlason, sem er 48 ára
gamall, bauð sig fram þegar aldurs-
takmark manna, sem til herþjónustu
skyldu kvaddir, var íært upp ! 45 ár,
og J>ótt hann v'æri kominn yfir þann
aldur, var honum veitt móttaka í her-
inn. Mr. Skúlason á son í hernum,
sem ekki gat beðið eftir þvi að ná
hinu lögákveðna aldurstakmarki,
heldur sótti um inngöngu í Iierinn.
Var sagt að þeir menn, sem væru inn-
an hins lögákveðna aldurs, yrðu að
fá leyfi foreldra sinna, áður enn þeir
gætu innritast; fór hann þá til föður
síns, sem fúslega gaf leyfið.
Mr. B. G. Skúlason er nú kominn
til Fort Lawton Wash.
Drepsótt í fiski.
1 norska blaðinu “Tidens Tegn”
er sagt frá því í vor, að heilar torfur
af dauðum fiski hafi flotð uppi á 12
mílna svæði meðfram Lófótenströnd-
um. Það var fiskur af öllum teg-
undum, þorskur, ýsa upsi o. s. frv.
Enga hugmynd hafa menn um það,
hvað valdið hefir dauða fisksins, en
getið er þess helzt til, að það liafi
verið einhverskonar drepsótt. Sagt
er, að fyrir eitthv'að mannsaldri síðan
hafi eitthvað líkt komið fyrir, og að
menn hafi orðið veikir af þvi að eta
J)cnnan sjálfdauða fisk. Bendir það
til ])ess, að um eitrun sé að ræða, en
nú hefir fiskur þessi verið rannsak-
aður og ekkert eiturefni i honum
fundist.
fVisir.J
And&tœður— Samvinna.
Samvinna/ sambönd — er heróp
satntíðarinnar, og skipið, sem á að
fleyta okkur yfir boða og blindsker,
út úr andlegum og líkamlegum þreng-
ingurn. Fleyta okkur millf andstæð-
anna, sem æfinlega og á öllnm tímum
hafa ógnað mannkyninu, og þó aldrei
jafn alvarlega og nú.
Andstæðurnar, sem við þurfum að
sigla á milli má telja Jmsundum. Eg
skal nefna nokkrar: Guð og djöfull-
inn, sál og líkami, afl og efni, skyn-
senti og ímyndun, dómgreind og til-
finnmg, ljós og myrkur, himinn og
jörð, gott og ilt, , náttúra og menning,
vilt og tamið, einræði og samheldni,
eigingirni og sjálfsafneitun, vinna og
hvíld, gaman og alvara, frelsi og ó-
frelsi, kenning og breytni, trú og
vissa, land og sjór, gamalt og nýtt,
sögn og sannindi, ást og hatur, Iíf og
dauði.
Þarna eru fáeinar, og allar hafa
þær það sameiginlegt, að standa and-
spænis hver annari sem svarnlr óvln-
ir; óvinir, sem engin brú er á milli,
og ekkert lífrænt samband. önnur-
hvor hefir orðið að þoka eða þynn-
ast fyrir hinni til þess að hún geti
lifað.
Svona hafa menn litið á það.
En er það rétt ?
Það er ekkert, sem ])ynnist í þeirri
merkingu. Engin ein andstæða er
sjálfstæð út af fyrir sig, báðar eru
jafn nauðsynlegar, byggja hvor aðra
uppp, renna saman í eitt æðra veldi;
í stuttu máli: á milli þeirra er sam-
vinna.
Og af þeirri samvinnu myndast
I 'ireinn og nýr málmur, sem búið er að
brenna úr sorann. Andstæðunum má
líkja við tvö fljót, sem renna sitt úr
hvorri átt, en sameinast að lokum í
hinu mikla úthafi. En vatnið þynn-
ist ekki, öldur þeirra mihka ekki né
þróttur, en þær vinna saman i haf-
inu, hafa meira afl en áður.
Eins og raddir í fögru lagi, eiga
andstæðurnar að sameinast. — Eða
sem tveir elskendur, er fallast í faðma
i algleymissælu — en ekki sem svarn-
ir féndur, er vilja ræna hvor annan
lífi.
1 eðli sinu eru andstæðurnar eitt,
en aðeins skoðaðar frá tveimur hlið-
um eða sjónarhæðum. Því alt dautt
og lífrænt er ein heild, en einungis í
ólíkum myndum og á mismunandi
stigum. Eins og heimurinn er í
hverju smáatriði, þrunginn af guð-
legum mætti, eins er hv'er smálíkami
ineð sál, jafnvel hið minsta smákorn.
Hvað er dauðinn, annað en breyt-
ing til nýs lifs? Hvað er myrkur og
kuldi, annað en lægra stig af ljósi og
hita? Hvað er trú — eg á við trú,
sem ekki er hjátrú — annað en lægra
stig af vissu, dvalarstaður, þangað til
vitundin og vissan nær hærra? Þá
tekur við ný trú, með meiri þroska.
Og ilt og gott? Hið illa sýnir að-
eins verðmæti þess góða i sterkasta
ljósi; eykur gildi þess. Alt hefir sinn
ákveðna tilgang. Aðalatriðið er að
fá réttan skilning á því. Alt ilt, er
því ekki annað né meira en það, sem
ekk hefir enn náö að verða gott, sak-
ir vanþroska staðhátta og tíma. Öll
misbrot eru sjúkdómar eða mistök, og
samvinnu- og samúðarskorti, samtima
og liðins tíma að kenna.
Mesta hindrunin er sú, að misskilja
lífið og mennina, vantreysta hver
öðrum. Mennirnir eru betri en þeir
sýnast, og eg vil segja: ætlaðu J>eim
gott! Þá v'erða ]>eir góðir. Sýndu
þeim manni, sem þú kallar illan, sam-
úð og tiltrú, og muntu þá finna að
hann hefir margt gott að geyma.
Sýndu lygaranum að þú viljir trúa
honum, og hann mun breytast. Sýndu
að ]>ú metir góðan vilja, þó tötrum sé
búinn, og þú munt brátt sanna, að
hatin birtist þér í skinandi klæðum-
Til er að vísu sú kenning, sem neit-
ar því að allr geti breyzt og batnað og
fullkomnast. Við erum bara'menn,
segir hún. En þetta er hugsunarlaust
fleypur. Berum saman frumbyggj-
ana í hellunum og mannkynið nú, og
hver vill þá halda liinu fram? Þvert
á móti finnast þar engin takmörk.
En tortryggni, háð, yfirdrepskapur,
viljaleysi og fáfræði, sem þó þykist
vera þekking, eru verstu torfærurnar
á vegi hins sannþroska — eru vor-
frost og ís-æri lífsins. Burt með þess-
ar torfærur, svo við komumst áfram!
Trúin á sjálfa okkur og trúin á aðra,
heit og björt lífsskoðun er það, sem
við þörfnumst, hið eina, sem flytur
okkur hærra, sem hvetur okkur, sam-
einar okkur til að leggja fram allan
mátt okkar; til að gjöra hið ótrúlega,
og að því er virðist, ómögulega, að
sannindum.
Sú skarpsýni, sem að eins sér skugg-
ana, en ekki hina skínandi geisla, hún
er einsýn, og horfir á aðra hliðina.
Djúpið og dimman er ekki nema ann-
ar hluti af heildinni.
Eg elska hina dimmu námu, djúpa
og málmríka, fulla af tælandi leynd-
ardómum. Eg elska líka hið bláa og
tæra loft hnattarins með allri dýrð
sinni, með eilífum umskiftum dags og
nætur, rökkurs og sólar, logns og
storma.
Fyllum gljúfur og rjúfum glrðing-
ar, sameinum og sættum ! Á því þurf-
um við að byrja.
Höfum það hugfast, að ekkert skil-
ur okkur annað en einstaklingseðlið;
og í þvl sjálfu er engin óyfirstíganleg
hindrun.
Við, sem aðeins lifum svo stutt
saman á þessum hnetti, og litla hólm-
anum okkar í útsænum, við gelum
naumast gjört annað óhyggilegra en
það, að ganga með hatur í huga og
fyrirlitningu hver til annars, og gefa
hver öðrum hornauga. Eigum við
ekki að kasta burtu titlum og stétta-
ríg? Vera öll systkini og samherj-
ar?
Höfum við nokkurn rétt til að ein-
angra og loka okkur inni ? Ganga
sem einbúar hver í sinni eyðimörk, og
hugsa engöngu um sína eigin heill.
Vera brynjaðir gegn tilfinningum
annara, og harðlæstir liver í sinni
smáskel.
Nei, út í sólskinið með það alt sam-
an! Berjumst hlið við hlið, störfum
saman í sveita vorum, og njótum gleði
og leika hvert með öðru.
Samvinna, samúð og samhjálp eru
einu meðulin. Enginn er svo algjör
að engan blett hafi. Enginn svo aum-
ur að til einskis dugi, og enginn svo að
ekki geti batnað.
Séu einstaklingarnir tvístraðir og
aðskildir, erfl afrck þeirra í molum;
en sameinaðir byggja þeir brúna á-
fram, frá undirstöðu liðinnar kyn-
slóðar. Sálarlíf einstaklinganna er á
mismunandi þroskastigum; þvi hærra,
sem þeir standa, þess betur styðja
þeir hver annan. Sá, sem er á lægra
stigi, verður að umbreytast og ná þvi
hærra.
Af fórnfýsi og samhug, en ekki eig-
ingjörnum hvötum — hefir fjöldi kyn-
slóða á ýmsum þroskastigum, látið líf
sitt og erfiði til þess að lyfta okkur,
sem nú lifum, á það stig, sem við
stöndum á. Þessvegna er sú lifs-
reynsla staðföst: “við eigum altaf að
vera til þess búnir að lifa fyrtr aðra”.
Og enginn má hafa rétt til þess að
liggja eins og ormur á því gulli, sem
rakað er saman með sveita annara.
Taktu það, sem er þitt, og ekki
meira. Og þitt er alt, sem að gefur
anda ]>inum næring og þroska; stækk-
ar sjónhringinn, og gjörir þig rikarl,
en cngan annan fátœkari. Þvi meira,
sem hver og einn eykur auð sinn á
þenna hátt, því meira auðgast allir
aðrir, sem geta náð i samband við
hann; og það er aðdáanlegast. Hitt
er lika, að þegar þú hjálpar öðrum,
þá hjálpar þú sjálfum þér um leið.
Báðir komast á hærra stig.
Þegar eg sá samvinnuna í þessu
Ijósi, sá eg utn leið að eg hafði tvær
skyldur að rækja. Aðra þá, að gjöra
sem mest og bezt úr sjálfum mér bæði
líkamlega og andlega. Og hina, eft-
ir megni að hjálpa öðrum til hins
sama.
Og eg sá, að þessar tvær skyldur
leiða hvor af annari, og lika að þær
báðar eru ein og sama skyldan, ef lit-
ið er á þær frá báðum hliðum. Og
eg veit ennfremur, að hver sem finnur
til þessarar frændsemi til alls og allra,
sem örlítils hlekks í heildinni og
mannfélagsbyggingunni — hann geng-
ur 'þess ekki dulinn, að hann starfar
fyrir sig þegar hánn vinnur fyrir
aðra; og getur eigi heldur unnið neitt
fyrir sig, nema hann starfi fyrir aðra
um leið.
Karl Erik Forsslund.
Þýtt úr sænsku. S. B.
('Réttur.)
Dánarfregn.
Hinn 30. ágúst siðastliðnn lézt að
Elfros, Sask., Sigmundur Jóhannsson,
sem lengi bjó að Morden-bygð, eftir
langvarandi heilsuhilun. Hinn látni
var afbragðsmaður að öllu leyti, öll-
um velviljaður og eftir ]>vi vandaðttr
til orða og verka, og er hans sárt
saknað af nánustu ættingptm, sem
eru: Ekkja hans Ingibjörg Frið-
riksdóttir: 3 börn: Mrs. G. F. Gísla-
son, Friðrik og Jóhann Arnór: syst-
kini: Jóhann, Indriði og Anna Tltom-
son í Langruth, Guðmndina Ingjald-
son hér í bænum.
Vinur hins látna.
Sýnishorn af hermanna-spjöldunum nýju.
Herra Þorsteinn Þ. Þorsteins
son hefir búið til falleg her-
maiina spjöld nýlega, og auglýs-
ir hann þau á öðrum stað hér í
blaðinu. í kringum spjöldin að
ofanverðu er fagur sveigur eins
fléttaðui^væri úr “Maple”-lauf-
urn og Olíuviðargreinum, tákn
Canada og Bandaríkjanna. Þá
standa í hægra horninu að ofan
stafirnir er tákna nafn Banda-
rikjanna, U. S. A., en í hinu
vinstra, Canada. Þar næst hvelf
ist yfir tveimur stólpum skraut-
legur bogi og innan í honum
standa þessar setningar: Fight-
ing Side by Side. Unitcd zve
Stand. Neðan við ]>enna boga
er svo annar minni, með flögg
þessara tveggja þjóða sitt hvoru
megin, og eru letruð á boga
J>ann orðin: Two Flags. One Aim. —Á öðrum stólpanum sést skjaldarmerki
Ameríku, en á hinum skjaldarmerki Canada og er komið fyrir á því, í einu
lagi, merki hinna 9 fylkja. — Hermannaspjold þessi eru reglulega falleg,
hugsuð og gerð af íslendingi og ættu því að vera kærkomnir gestir á hverju
Islenzku heimili.