Lögberg - 19.09.1918, Síða 4

Lögberg - 19.09.1918, Síða 4
4 LÖGBERG, FEMTUDAGINN 19. SEPTEMBER 1918 Gefið út hvem Fimtudag af The Col- umbia Pre**, Ltd.,,Cor. William Ave. & Sherbrook Str., Winnipeg, Man. TALSIMI: GARRY 416 og 417 Jón J. Bíldfell, Editor J. J. Vopni, Business Manager Utanáskrift til bl»8«in«: TlfE 80LUMBWV PRES8, Itd., Box 3172, Winnipeg, W(an- Utanáakrilt ritstjórana: EDITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, N|an. VERÐ BLAÐSINS: 82.00 um &H8. ■4^-27 luaiiBMiiiiiiiiBuiiyniiJiiiiiiiimHiiuiiíiiiiiiiniiiiHiiHiniiiiHiiiiiiiininiiHiniiHiiimiiiiiiRmiiiiiiiiimffii Endurfœdd þjóð. 1 sambandi við þjóðminningardag Banda- ríkjanna, 4. júlí síðastliðinn, gjörðist merki- legur viðbnrður í frelsis- og framfarasögu þjóðanna, því þá, í höfuðstað Bandaríkjanna — borginni Washington — var í fyrsta sinni dreginn upp hinn jugo-slavneski fáni, og með því mörkuð vegamót í sögu þeirra stríðandi og þjökuðu þjóða — Serba, Croata og Slavona — þjóðanna, sem nú mynda hina nýju jugo-slav- nesku þjóð. Fúni þessi hinn nýi, sem í eru ofin skjald- armerki Serbíu, Croatíu og Slavoníu, bendir til langrar og þungbærrar raunasögu í liðinni tíð, eins og hann er fyrirboði hins nýja dags frels- is og morgunroða. Þúsundir manna höfðu safnast saman í búnaðarskólagarðinum í Washington til þess að sjá athöfnina. Skrúðgangan sjálf hófst frá New York Ave, og voru í henn mörg hundruð Jugo-Slavar. 1 broddi fylkingarinnar báru yngismeyjar nýja fánann; þessar stúlkur voru' ímynd þeirra fjögra þjóða, sem hér sórust í fóstbræðralag, til þess að víkja aldrei fyr en réttlæti og frelsi ætti friðland í heimi, Serbía Croatía, Slavenía og Ameríka. Sendiherra Serbíu í Bandaríkjunum dróg flaggið við hún og mælti á þessa leið: Þegar feður þessa volduga lýðveldis, á þessum degi fyrir 142 árum síðan, lýstu yfir ejálfstæði sínu, þá bygðu þeir á sannleiksgrund- velli svo sterkum, á réttlætistilfinningum svo hreinum, að þær eiga eftir fyr eða síðar að læsa sig til yztu endimarka veraldarinnar. Atriðin um einstaklings og stjórnmálalegt frelsi eru heiminiun fyrst sýnd Ijóst og skýrt í frelsisstríði Bandáríkjanna, sem réttilega má nefna vöggu frelsisins. Frelsisskrá Banda- ríkjanna er ákvæði um frelsi mannanna í þeirri göfugustu mynd, sem vér þekkjum það. Með því hafa Bandaríkin gefið oss freisishugsjónir, sem í dag eru fyrirmynd allra þjóða. Þessar frelsishugsjónir fá ekki framrás sína aðeins í stjórnarfari Bandaríkjanna, held- ur og öllu fremur í heilbrigðu uppeldi og frjálsri mentun sona þess og dætra, og þannig gjört þjóð sína þá upplýstustu í heimi. Bandaríkin eru nú griðastaður allra þeirra sem eru þjakaðir og þreyttir — það er hæli frelsisins. Það er því sízt að furða sig á því, þótt undirokað fólk vort hafi leitað hælis og fundið það hjá þesum frelsisumboðsmönnum tuttugustu aldarinnar. En það er ekki aðeins hæli og vernd, sem þeir hafa veitt oss; þeir hafa tekið að sér vörn í vorn stað. 1 dag eru á vígvöllunum í Evrópu miljón af þesum fulltrúum frelsisins, og áður en langt um líður verður þar miljón á miljón ofan, og þeir halda áfram að fara, þar til sam- ansafn óþjóðalýðs þess, sem þar hefir safnast saman með það áform eitt, að leggja undir sig og skafa út sjálfstæði og frelsi hins mentaða heims, Þjóðverjar, Magyar, Tyrkir og Búlgar- ar, hafa verið unnir og eyðilagðir. Hin svokallaða Pan-Germanism er hættu- leg samtök. Þegar vér vorum að vinna að frið- samlegri framþróun flokks vors og friðsamlegri framþróun mannkynsins yfir höfuð, þá voru þessir yfirgangsseggir að búa sig út til þes9 að þrengja yfirráðum sínum, hugsunarhætti og stjórn upp á allan heiminn með ofstopafullu valdi. Þegar að Þjóðverjum tókst að ná Aust- urríki, Búlgaríu og Tyrkland, sögðu þeir heims- menningunni stríð á hendur. Vér Evrópumenn vörðumst þeim í þrjú ár, og þá sá þessi þjóð, að frelsishugsjónir heimsins voru í voða stadd- ar. Þá revndist hún trú þeim grundvallarregl- um frelsis og drengskapar, sem feður hennar höfðu lifað og dáið fyrir, og kom oss til hjálpar Hjartapunktur þessa Pan-Germanism er Austurríki og Ungverjaland, og tilverumögu- leiki þess byggist á harðstjórn þess og undirok- un ósamstæðra og ólíkra þjóðflokka. Aust- urríki og Ungverjalandi var gefið það hlutverk, að ryðja þessum Pan-Germanism (alheims- drotnunarfyrirætlun) braut austur á við, <. g hefði það tekist, ef að vér Slavar hefðum ekki stemt stigu fyrir þeim. Og þegar að mótstaða vor virtist ætla að gjöra Þjóðverjum ókleyft að ná þessu takmarki, sagði Austurríki og Ung- verjaland Serbum stríð á hendur, sem var hjartapunkturinn í þessari mótspyrnu. Þetta alheimsstríð byrjaði ekki af neinni tilviljun á milli Austurríkis og Ungverjalands annarsveg- ar og Serbíu hinsvegar, því undir úrslitum þeirrar viðureignar var það komið, hvort al- heimsdrotnunarhugmynd Þjóðverja átti að tapa eða vinna sigur. Hið frjálsa lýðveldi Serbía var fyrirmynd þess, sem við Jugo-Slav- ar þráðum fyrir land vort. En ef hún hefði ræzt, þá hefði hún þýtt eyðileggingu Austur- ríkis og Ungverjalands. Þjóðverjar tóku því að sér að bjarga Aust- urríki og Ungverjalandi, með því að eyðileggja þann eina frjálsa blett í heiminum, þar sem Jugo-Slavar höfðust við á, Serbíu. — En fjand- menn vorir misreiknuðu sig. — Þeir hafa að vísu skafið burtu landamerkjalínur Serbíu — en þeir hafa sameinað þjóð vora — sameinað Serba, Croata og Slavena í stríðinu á móti fjandmönnum frelsisins — hlekkir fjandmann- anna hafa sameinað oss. — Sönnun fyrir þeirri sameiningu er þessi fáni vor — sambands- og frelsisfáni, er vér nú drögum á stöng. Látum oss öll sverja þess dýran eið, að vera tilbúin að deyja fyrir hann, nær sem þörf gjörist! Líka talaði Don Niko Grskovitoh, forseti Croatafélagsins í Bandaríkjunum, á þessa leið: Vér lútum þér fyrst, stjörnusetti fáni frels- isins, þvi þú ert fremstur í röð þeirra, sem berj- ast fyrir sannleik og réttlæti, en á móti afli heiftar og mannvonsku. Vort fyrsta þakklæti til þín, veglynda Ameríka, sem breiddir móður- arma á móti okkur, þegar hið kaldlynda Aust- urríki dróg oss nakin, hungruð og aðframkomin frá heimilum okkar. Til þín, flugdjarfi Col- umbia-örn, stígur himinborið hjartans þakklæti vort í dag, fyrir að safna undir vængi þína þróttlitlum, en þó sundruðum vopnum hinnar stríðandi þjóðar vorrar, vorn flekklausa fána, drifinn blóði óteljandi píslarvotta. Þú fyllir hjarta okkar fögnuði, styrkir sál vora og gefur okkur þrek og festu til þess að berjast ótrauðir þar til þessi fáni blaktir yfir landi voru frjálsu. Látum oss í dag, með upplyftum höndum, vinna þessum sambandsfána dýran eið, að vér séum til þess búnir að leggja alt í sölurnar, og líf vort með, til þess að hann megi verða verð- ugur afkomandi og félagsbróðir stjörnusetta fánans, sem þeir af oss, er sv^rið hafa honum hollustueið, skulu ætíð reynast trúir, — og sem þjóð vor nýtur trausts og verndar undir. Látum oss á þessari stundu sverja við brjóts mæðra vorra, við trygð eiginkvenna vorra, trúfesti ástmeyja vorra, við blóð bama vorra, við sjón augna vórra — við alt sem vér elskum, að vér skulum ávalt reynast trúir borg- arar og þakklátir gestir Bandaríkjanna. Látum oss vinna eið við grafir píslarvætt- ishetja vorra — við Pétur Mountain og Kosovo — að undir vemd fána frelsisins, og með sam- bandsfána vorn í broddi fylkingar, skulum vér með hjálp hins réttláta guðs, hefna fyrir blóð Péturs Svashitoh, sem saklaust rann, og hinna níu Jugo-Slava frá Lemder og Adamitch. Og látum oss hér vinna eið við djúp Adria- hafsins, við Durmitor-hæðirnar og við hina snævi þöktu Triglov-tinda, að vér skulum verja þennan sambandsfána vorn með heila vorum, hjarta og hönd — elska hapn og halda honum hreinum, albúnum til þesg að draga hann á stöng yfir rústum Belgrads, yfir hinni fögra Zagreb og hinni hvítu Ljubljana, og megi hver sem svíkur þennan sambandsfána, dæmast af guði feðra vorra, og hefnt verða af hefndarhug hinnar líðandi þjóðar vorrar. Og ósk vor er, að jafn frálst og fáni vor blaktir nú í öldum Banda- ríkjaloftsins, eins frjálslega megi hann blakta yfir hinni sjálfstæðu og frjálsu Jugo-Slaviu. Rússland svikið. Frá ómunatíð hafa föðurlandssvik verið talin höfuðglæpur mannanna og það að mak- leg leikum. y Að svíkja sjálfan sig er ljótt og skaðlegt, því þá grefur maður sjálfum sér þá gröf er maður fellur í fyr eða síðar, — eyðilegg- ur ávöxt þann sem einstaklings lífið getur borið og á að bera. Að svíkja félagsbræður sína og samferða- menn er ekki að eins ljótt heldur hlýtur og að hafa slæmar afleiðingar fyrir þá sem fyrir svik- unum verða, eins og fyrir þann sem svíkur. En það er tiltölulega fáir menn undir flestum kring- umstæðum, sem ógæfa sú nær til — aðeins lítill hópur af þjóðfélagsheildinni, sem ranglætið og afleiðingar þess ná til. En þegar föðurlandið er svikið, þá er það öll þjóðin,sem dregin er á tálar; sjálfsfæðismeð- vitund og frelsisþrá hennar særð holundar sári, sem oft tekur mannsaldra til þess að græða; vonir hennar lamaðar og lífi hennar teflt í voða. Og landið, sem framtíðarvonir þjóðarinnar byggist á — landið, sem átti að vera heimkvnni frjálsra bama þjóðarinnar, öld eftir öld hnept í fjötra og selt á vald yfirgangsfullra harð- stjóra. Hvílík ódæði! Hvílík dagsverk manna, sem föðurlandið hefir alið á brjóstum sér og treyst. En þetta er þó það, sem Bolshevikingar hafa gjört á Rússlandi. — Selt ættland sitt og þjóð í hendur Þjóðverjum. Líklega hafa menn ekki vitað, að þegar að þeir voru að syngja Bolshevikingum á Rúss- landi lof og dýrð, eftir að þeir voru búnir að brjótast til valda — búnir að umhverfa þjóð- skipunarfyrirkomulagi landsins — búnir að hneppa í fangelsi eða myrða menn þá, sem áður veittu málum landsins forstöðu — búnir með fyrirskipanir sínar frá þeim, og með Rínar- gullið í vösum sínum til þess að sundra og svíkja þjóðina. Skyldu blöðin, sem hafa verið að básúna dýrð Bolshevikinga, hafa vitað, að eitt fyrsta verk þessara manna var það að gefa þýzku stjórninni skýrslu um vista- og vopnaforða þjóðar sinnar, að ryðja úr vegi öllum þeim, sem líklegir voru til þess að veita fyrirætlunum föð- urlandssvikaranna mótstöðu, með fangelsisvist eða bráðum bana. Skyldu þeir hafa vitað, að Bolshevikistjórn- in á Rússlandi var í ráðum og í samsæri við Þjóðverja með það, að taka á móti þýzkum spæj- urum og senda þá með fölsuðum vegabréfum gegn um Kaupmannahöfn til Bandaríkjanna, Englands og Frakklands. Menn þessir, sem áttu að ganga undir fölskum nöfnum og áttu að koma fram sem Bolshevikingar, en að vera laun- aðir af þýzku stjórninni. En þetta er þó ná- kvæmlega það, sem Bolshevikingar hafa gjört. Sýnist mönnum ekki að stjarnan sé fögur, og að hún verðskuldi að menn veiti henni eftirtekt? Fjöldamargir menn munu hafa haft það á tilfinningunni, að alt væri ekki með feldu í sam- bandi við framkomu Bolshevikileiðtoganna á Iíússlandi. En nú hafa sannanirnar komið með blöðum og mönnum frá Rússlandi, og hafa ensku dagblöðin flutt fréttirnar undanfama daga. Sannanagögn þessi eru talin óyggjandi, og sýna ótvíræðilega, að Lenine o gTrotzky voru keyptir til þess að svíkja Rússland í hendur Þjóðverja, og halda öllum æsingaseggjum, að svo miklu leyti sem í þeirra valdi stóð, út úr Þýzkalandi. Og ennfremur sýna gögn þessi, að samband átti sér stað á milli Bolsheviki-leið- toganna rússnesku og þýzku stjórnarinnar rétt eftir að stríðið hófst eða seint á árinu 1914. Ný blekkingar tilraun. Um síðastliðna helgi bárust þær fregnir liingað til lands, og auðvitað um heim allan, að Austurríkismenn hefðu sent stjómum allra stríðsþjóðanna uppkast að friðarskilmálum og farið fram á það, að fulltrúar stríðsþjóðanna kæmu saman á ráðstefnu í einhveru hlutlausa ríkinu til þess að bera saman ráð sín, án þess þó að nokkuð af því er fram kunni að koma, skyldi vera bindandi fyrir hlutaðeigandi stjórnarvöld eða þjóðir þeirra. Þessum fregnum fylgdi eihn- ig það, að Þjóðverjar hefðu á sama tíma gert Belgíu friðarkosti. Ekki munu stjórnir sambandsþjóða vorra eða fólkið í heild sinni hafa gert sér háar vonir um að með þessu væri að opnast nokkrar að- gengilegar leiðir, er leitt gætu til viðunandi nið- urstöðu, — og eftir að þessir Þýzk-Austurísku kostir voru orðnir heyrin-kunnir í öllum atrið- um, munu allir vorir menn hafa verið á eitt sátt- ir um að svarið gæti ekki orðið nema á einn veg: afdráttarlaust afsvar við öllum slíkum málaleit- unum eins og sakir standa. Enda var þetta nýja friðartilboð gert einungis til þess, eins og hinar fyrri tilraunir Austurríkismanna í þessa átt, að vekja sundrung og óeining meðal samherja v orra, dreifa kröftum þeirra. — 1 gegn um þetta refslega friðartilboð, má þó autfveldlega sjá eitt sem sé það, að málefnum Austurríkis og þá sjált sagt Þjóðverja líka, er komið í öngþveiti, þeir vilja slaka dálítið til, þótt víst sé aftur á hinn bóginn, að friður á slíkum grundvelli, mundi verða Miðveldunum því nær eingöngu í vil. — Þjóðverjar eru nú líklega farair að sjá, að von- laust er orðið um sigur fyrir þá á vestur-stöðv- unum, að þeir hafa innan skamms verið reknir öfugir út úr Frakklandi, og að jafnvel er komið svo langt að glíman lífs og dauða hefir þokast inn fyrir þeirra eigin landamæri, og þessvegna grípa þeir enn einu sinni til sinna auðsveipnu Austurísku skósveina og láta þá renna á vaðið með ný blekkingaboð, undir yfirskini friðarins. Vér skulum líta snöggvast á kostina, sem Þjóðverjar bjóða Belgíumönnum. Þeir kveðast vilja gefa Belgíu frið undir eins gegn því að þessi þrautpínda smáþjóð, heiti því við dreng- skap sinn að vera hlutlaus — veita engum að málum, það sem eftir kann að vera ófriðarins og lofa því enn fremur hátíðlega að beita öllum sínum áhrifum við sambandsþjóðirnar, að stríð- inu loknu, til þess að Þjóðverjar fái aftur ný- lendur sínar allar, er þeir hafa mist í viðureign- inni við Breta. — Plefir nokkura tíma áður Leyrst getið um aðra eins ósvífni? Svo þetta eru þá skaðabæturnar, sem Þýzkaland ætlar sér að greiða Belgíumönnum fyrir að ráðast á þjóð þeirra alsaklausa og friðsama, fyrir að svívirða konur, myrða börn og gamalmenni, brenna og bræla akra og engi, jafna við jörðu fegurstu stórhýsi þjóðarinnar, og ræna og eyðileggja þúsund ára helgustu minjasöfn fólksins. Grát- lega afvegaleidd sýnist hún að vera orðin, Mið- velda menningin, að voga sér að draga fram í dagsljósið önnur eins smánarboð, sem þessi. Samherjar vorir — talsmenn lýðfrelsishug- sjónapa í heiminum — talsmenn lítilmagnans, sætta sig eigi við neina Bolsiheviki friðarkosti fyrir hönd Belgíu, og Þjóðverjinn fær að komast að raun um það, áður en lýkur. Fyrir fáeinum dögum fór fram í Bandaríkj- unum, skrásetning til herþjónustu, og voru skrá- settar fjórtán miljónir manna. Ekki er óhugs- andi að það hafi skotið hergorturunum þýzku, skelk í bringu að standa augliti til auglitis við slíka alvöru. — Það er þó ekki mjög langt síðan, að Þjóðverjar gerðu opinbert gys að Bandaríkja mönnum, og kváðu sér á sama standa hvoru megin hryggjar þeir lægju. Ekki er heldur ó- hugsandi, að þeir líti öðm vísi augum á málin nú eftir hið dæmafáa þrek, sem Bandaríkjamenn bafa sýnt á vestur-vígstöðvunum. En Banda- ríkin og sambandsþjóðimar í heild sinni taka nú ekki mikið tillit til þess, hvernig Þjóðverjar kunna að hugsa, þeir vita vel að allsendis ó- mögulegt er að semja frið við Þjóðverja — frið við hinn þýzka, sviksama heraaðaranda, fyr en hervald þeirra hefir verið brotið á bak og þeir orðið að láta af hendi lönd öll, er þeir með glæp- samlegum yfirgangi hafa hrifsað undir sig og svift frelsi. — Bandaríkin voru ekki lengi að hugsa sig um, þau vísuðu hinum grímuklæddu friðarkostum Austurríkismanna og Þjóðverja á dyr og sama gerðu sambandsþjóðirnar allar Aldrei hefir stefnumunurinn verið skýrari en nú. — Það er nú enginn lengur í vafa um hvað verið er að berjast. Vegurinn tilað spara Bezta aSferSin aS venja sig á aS spara er aC gera sér aS reglu, aC leggja vlssa upphæC á sparisjóSs-banka. í sparisjóSsdeild vorri færðu 3% rentu, sem er bætt viC höfuCstól- inn tvisvar á ári. Notre Dame Branch—W. M. HAMII/TON, Manager. Selkirk Branch—P. J. MANNING, Manager. THE DOMINION BANK THE ROYAL BANK 0F CANADA HöfuCstðll löggiltur $25.000,000 HöfuCstöll greiddur $14.000,000 VarasjóCur............$15,000,000 Forseti - - - - - Sir IIi'liEHT S. HOI.T Vara-forseti .... E. Ii. PEASE Aöal-ráðsniaður - - C. E NEHJj Allskonar bankastörf afgreldd. Vér byrjum reiknlnga vlC einatakllnga eCa félög og sanngjarnlr skllmálar veittlr. Avtsaalr seldar tll hvaCa ■taCar sem er á Islandi. Sérstakur gaumur gefinn sparirJöBsinnlögum, sem byrja má meC 1 dollar. Rentur lagCar vlC á hverjum 8 mánuCum. T- E. THORSTEIN9SON, Ráðsmaður Co Williaa Ave. og Sherbrooke St., - Winnipeg, Man. Yér skörum fram úr í því að stækka myndir og gerum það ótrúlega ódýrt. Myndir teknar fyrir $1.50 og hækkandi. Komið til vor með þessa auglýsingu, og þá fáið þér $1.00 afslátt frá voru vanaverði. Walters Ljósmyndastofa, 290 Portage Ave. Taliími: Main 4725 í NORTH-WEST GRfllN COMPANY íslenzkir hveitikaupmenn 245 Grain Exchanp - WINNIPEG -----O---- TIL ÍSLENZKRA BÆNDA! Verð á hveiti hefir verið ákveðið af landsstjórninni í ár, en það getur verið peningavirði í vasa yðar, að vita, að við sjálfir skoðum kornið úr hverju vagnhlassi, sem okkur er sent, og rangindi með teg- undamismun (gradej getur ekki átt sér stað. Petta er nokkuð, sem mörg stærri félög ekki gjöra, því þau hafa mörgu að sinna. Það getur stundum komið fyrir að þeir menn, sem líta eftir flokkaskip- un (grade) á hveiti fyrir hönd stjórnarinnar, gjöri óviljandi rangt, og er gott að einhver líti eftir að slíkt sé strax lagfært. 1 sambandi við þær korntegundiir, sem að sam'kepni er hægt að koma að, skulum vér gjöra eins vel, ef ekki betur, en aðrir. Þeir sem vildu geyma hafra, bygg eða flax um lengri eða skemri tíma, ættu að senda til okkar það sem þeir hafa. Við borgum ríflega fyrirfram- borgun og látum hvern vita um, þegar við álítum verð sanngjamt. Við erum þeir einu íslendingar^ sem höfum ábyrgðar og stjórnar- leyfi til að selja korn fyrir bændur á Commission, og vildum mælast til að íslenzkir bændur gæfu okkur tækifæri. Sendið okkur eitt vagn- hlass til reynslu, og mun það tryggja framhaldsverzlun, því góður árangur eykur viðskifti, Virðingarfylst. HANNES J. LlNDAL Ráðsmaður. Fáein orð til skilnings- •uka. Eftir síra Runólf Marteinsson. (Framhald). Sjálfstæði. Margir segja að íslenzkukensla viö' Wesley hefði fullnægt þórf- um vorum og þessvegna aldrei verið nein þörf á Jóns Bjarnason ar skóla. í fyrra man eg eftir því að eg heyrði einn auðugan íslending segja að hann vildi gefa stórfé til Wesley skólans, en íslenzka skólanum ekkert. Makalaust er þetta einkennl- legt. Segjum að hinir “frjálslyndu” vildu ekki styðja skóla vom af því að hann er kirkjuskóli. pað gæti eg skilið, ef þeir sömu vildu ekki heldur styðja neina aðra kirkjuskóla, nema ef það væri einhverjir kirkjuskólar, sem héldu fram sömu skoðun og þeir sjálfir. En þegar þessir menn þykjast ekkert athugavert finna við Wesley College, sem þó er meþódistiskur kirkjuskóli, þá hætti eg að skilja. Ekki hefir þó meþódista-kirkjan frjálslynd- ari skoðun í trúarefnum en lút- erska kirkjan. Sanngjarnt hefði verið að ætla að ef ólúterskur ís- lendingur hefði sent bam sitt á nokkum kirkjuskóla, hefði hann sent það á íslenzka skólann, því sá skóli hlaut þó í öllum skilningi að vera þjóðlegri en enskur meþódista skóli. Nei, trúarbrögðin eru ekki á- ástæðan. pað er eitthvað annað. Til er, að sögn, sumt fólk, sem er ver lynt á heimili sínu en ann- arstaðar og verra við heimilisfólk sitt en annað fólk. Illkvitni sumra íslendinga gagnvart skóla vorum er af sama tagi spunnin. Og satt að segja kemur þetta fram í mörgum öðrum málum. prátt fyrir alt gumið út af ís- lendingum og íslenzku þjóðemi 2. ágúst, hættir oss við að sparka í landa vora, það liggur í meðvit- undinni að aðrir menn hljóti að vera meiri en íslendingar, að vér séum óhæfir til að stjórna oss sjálfir, að vér séum fæddir til þess að lúta, hinir séu drotnar vorir, þessvegna verðum vér að fá alt að frá öðrum og apa alt eftir þeim. Svona eldir eftir af miðaldarkúguninni. Svo ramt kveður að þessu meðal fólks vora hér vestra að það er eins og kom- ið sé með guðlast ef það er nefnt að fslendingar geti stjómað mentastofnun. það er svo sem sjálfsagt að sparka í Iandann. manni getur ekki annað en dott- ið í hug vísan ef tir Stelngrím: “Eggjaði skýin öfund svört, upprann morgunstjarna; byrgið hana, hún er of björt Helvítið að tama’.” Fjarlægir erum vér í þessu efni hinum fomu íslendingum.. Ekkert einkendi þ£ fremur en sjálfstæði. Að vera undirlægjur annara var þeim ógeðfelt. peir yfirgáfu óðul sín og héldu sjálf- stæðinu. peir kunnu ekki annað en bera höfuðið hátt þó þeir kæmu til konunga. Hvar sem þeir voru eða fóru, á sjó eða landi, voru þeir sjálfs síns herr- ar. Stjóm og lög og stofnanir settu þeir af stokkunum og höfðu þar dómsorðið sjálfir. Berið þetta svo saman við væluandann hér vestra, sem seg- ir: við erum svo fátækir, að vér getum ekki kostað skóla sjálfir^ við skulum skríða inn í hús- menskuskjólið hjá annari kirkju- deild og fá að hýrast þar í hom- inu með íslenzkuna okkar, má vel vera að þeir lofi okkur að vera þar dálítinn tíma og láni okkur kannské einhverjar spjarlr ofan á okkur svo að við króknum ekki

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.