Lögberg - 27.02.1919, Page 1

Lögberg - 27.02.1919, Page 1
SPIERS-PARNELLBAKING CO. ábyrgjast yður fulla vigt, beztu vörur fyr- ir lœgsta verð sem verið getur. R E Y N IÐ Þ AÐ! TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG Það er til myndasmiður í borginni W. W. ROBSON 490 Main St. Garry 1320 32. ARGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 27. A. FEBRÚAR 1919 NUMER 9 Þrír bræður í her Bandaríkjanna. peir eru synir hjónanna Jóns Ánnanns Jónssonar bónda, Vig- íússonar frá Iðu á Skeiðum í Ár- nessýslu, og Sigríð'ar Jónsdóttur porleifssonar í Kóreksstaðagerði í Hjaltastaðar’þinghá, sem um mörg ár hafa verið í Grafton N. D., og mörgum löndum eru að góðu kunn. peir bræður eru allir fæddir! í Grafton, og hér hafa þeir alið. mestallan sinn aldur. peir eru fríðir sýnum og atgervismenn á sál og líkama. pegar kal'lið: kom, létu þeir ekki á sér standa, og innrituðust í Bandaríkjaher- inn, og þar eru tveir af þeim enn þegar þetta er skrifað, Ingvar á Frakklandi, og Stefán i Camp Vail N. J. En Soffonías lézt sunnudaginn; 27. októiber, á iheræfingaskólan-! um í Grand Forks, eftir tveggja vikna legu í Influenzu. Líkið var flutt hingað til Grafton, og var hann jarðsunginn á þriðju- daginn 29. is. m., aif séra-H. A. Helsen, presti hinnar saimeinuðu norsku lút. kirkju hér í bænum. Soffonías var fæddur hér í Grafton 29. maí 1898. Hanh var snemma hneigður fyrir mentir, og horfði fram á lífið með óvenju legri ihugfestu. Hann var iðju- samur, reglusamur og hinn ást- úðlegasti á heimili, eins og hann var líka hinn prúðmannlegasti í allra framgöngu. Betri son gat ekki, og stöðug umhyggja fyrir móður sinni var hans imsta eðli. Hann var einha vinsælastur af ungmennum bæjarins, og hans er sárt saknað af öllum, sem þenna ágæta dreng þektu. Fyrir utan foreldra og þá tvo bræður, er nefndir hafa verið, syrgja hann þrjú systkini, sem heima eru í foreldrahúsum, og öll yngri, ein systir, Solveig að nafni, og tveir bræður, Magnús og Guðjón. Far vel vinur. pú ert horf- inn, en þess minnumst við, að “sýndir þú öllum sanna mannelsku, varkár í gleði, geðrór í sorg; unnir þú mentum, og mærum dygðum, en hataðir lýgi lastberanda. ’’ " Viiiur. Canada. Korn- og fóður-framleiðsla í Canada 1918 Hagfræðissikrif stofa Canada hefir nýlega gefið út skýrslu um 1918 Hveiti ..................................... $382,165,700.00 Hafrar .......................................... 289,404.400.00 jjarley ........ ..... 77,381,270.00 Rugur ’.. ’.’. ’.............................. 12,714,400.00 Ertur.............................................. 7,907,900.00 Baunir . .4....................................... 19,332,900.00 Buckwheat......................................... 18,090,600.00 Hör............................................... 18,641,000.00 Ymsar korntegundir................................ 40.796,100.00 Mais ............................................. 25,118,800.00 Kartöflur ...................................... -102,290,300.00 Röfur ................................'....... 54,904,000.00 .............................................. 249,469,300-00 PótSurmais ...............................I- 29,335,600.00 Sykurrðfur......................................... 1,845,000.00 Alfalfa....................................... t,963,600.00 Söluverð 1917 $453,038,600.00 277,065,300.00 59,664,400.00 6,267,200.00 10,724,100.00 9,493.400.00 10,443,400.00 16,737.000 00 18,801,750.00 14,307,200.00 90,804,400.00 29,253,000.00 141,376,700.00 13,834,000.00 793,800.00 3,041,300.00 Og eru því afurðir akuryrkjunn- ar þær langmestu á síðasta ári, sem þær hafa mokkurntíma ver- ið í sögu Canada. Mr. Greelman, umboðsmaður akury rkj udeiidarinnar í Ont- ario og skólaistjóri búnaðarskól- ans í Gulph er nýkominn frá Bretlandi, oig áður en hann fór þaðan, átti hann tal við R. E. Prothers, formann akuryrkju- málanefndar Breta. Honum fór- ust svo orð í ræðu, er hann hélt nýlega í Ottawa: “Eg spurði hann Mr. Prothers hverju að eg ætti að skila til bændanna ? Can- ada, og hann svaraði. “Segðu þeim að við þurfum á ungum slát urgripum að halda,” eða þó öllu heldur á kjöti af ungum gripum, sem að þeir vildu heldur kaupa Alls $1,337,350,870.00 $1,144,636,450.00- en gripina á fæti, og bætti við, að Canadabændumir ættu ekki að Sleppa neinu tækifæri til þess að ná í þá verzlun. Hann sagði og, hð Bretar mundu ekki leggja neina áherzlu á isvínarækt heima hjá sér, því það væri miklu ó- dýrara að ala þau upp í Canada heldur en í heimalandinu, og að Bretar mundu gjöra sig ánægða með að kaupa svínakjöt af Can- adapiönnum, ef að þeir hefðu það til sölu.” Afurðir alifugia í Canada yfir ■f járhagsárið sem endaði 31. marz 1918 var $75,000,000.00. Árið 1916 seldi Canada niður- soðið kjöt upp á $2,105,663.00, árið 1917 fyrir $4,178,835.00 og árið 1918 fyrir $2,223,470.00. JarðarförSir Wilfrid Laurier fór fram á laugardaginn var, og var víst sú fjölmennasta jarðar- för, sem átt hefir sér stað í þessu landi. pví svo var mikill mann- f jöldi kominn til Ottawa, til þess að votta þessu látna mikilmenni virðingu sína, að rúm þraut á gistihúsum borgarinnar, og varð borgarstjórinn að skora á alla bæjarbúa, sem húsráð hefðu, að hýsa fólkið. — Um kl. 10 að morgni var alt undirbúið, og var líkið flutt úr þinghúsinu og í kirkju. Fyrir minningarathöfn- inni í kirkjunni stóð Monsignor Di Maria, umboðsmaður páfans í Canada. En ræður fluttu, á frönsku erkibiskup Matthieu frá Regina, en á ensku Rev. Father John Burk frá Toronto. Að því búnu var líkið borið til grafar, og jarðsett í Notre Dame graf- reitnum í Ottawa. — Líkmenn voru: Hon Sir Thomas White, Hon. Sir James Lougheed, Hon. Sir William Mulock, Hon. Sidney íisoher, Hon. Senator Beecourt, Hon. Sir Allen Aylesworth, Hon. Rodolph Lemieux, Hon- Charles Murphy, Hon. R. Dandurand, Hon. Senator Edwards, Hon. L. O. David, Hon. Jacques Bureau M. P., J. A. Robb M. P., Hon. Sir Lomer Gouin. f vikunni sem leið kom til bæj- arins hershöfðinginn franski Paul Pau frá Ástralíu. Hann flutti hér erindi í Canadaklúbn- um, í fylkisþinginu og víðar- Hann hélt áfram ferð sinni heimleiðis á laugardagskvöldið var. 1 1 Ottawaþingið var sett fimtu- daginn 20. þ. m. — kom aðeins saman og var frestað þar til eft- ir jarðarför Sir Wilfrid Laurier. Leiðtpgi frjálslynda flokksins í Ottawaþinginu hefri verið kos- inn til bráðabirgða, og er það D. D. McKenzie, þingmaður fyrir Cape Brcton, Nova Scotia. En aðalleiðtogi flokksins verður ekki kosinn fyr en á allsherjar- flokksþingi. Mr. McKenzie er 59 ára gamall, er skozkur að ætt, fastur í skoðunum, vel máli far- inn og einarður vel. Samningar eru um það full- gjörðir á milli Canadastjórnar og stjómar Rúmieníu, um kaup á $25,000,000.00 virði af vörum frá Canada. Bandaríkin. uppskeru í ríkinu á árinu 1918, og er hún sem fylgir: 1918 1917 Sáöland Uppskera Meöalt Sáöland Uppskera MeÖalt ekr. bush. af ekr. ekr. bush. af ekr. Hveiti 17,353,902 189,301,350 11 bu 14,765,850 233,742,850 15 %bu Hafar 14,790,336 380,273,500 25 %— 13,313,400 403,009,800 30 % — Barley 77,290,240 24 %— 55,057,750 23 — Rugur 8,496,700 15 %— 3,857,200 18% — Ertur 3,110,100 13% — 3,026,340 15 % — Baunir 3,568,380 15% — 1,247,000 13 % — Buckwheat 11,428,500 20% — 7,149,400 18 — Hör 5,972,200 5% — 5,972,200 6 % — Yms. teg. 35,730,200 38 % — 16,157,080 32 % — M-ais ’ 14,214,200 56% — 7,762,700 33 — Kartöflur 104,512,700 142y4 — 79,892,000 121%- Gulrðfur 130,989,600 381% — 63,451,000 290% — Smári, rækt. hey 14,681,400 1,40 To 13,684,370 1,66 To Póötírmais 4,776,000 9%To 2,690,376 7,34 To Sykurróf ur 180.000TO 10 To ' 117,600To 8,40To Alfalfa 446,400To 2 y. To 262.400TO 2,39To England. Útlitið á Englandi er hið í- skyggilegasta, og ef ekki verður tekið í taumana áður en of langt er farið, getur það haift illar af- leiðingar, segir Lloyd George. ó- eirðir á meðal verkalýðsins hafa verið miklar, og það er í því sam- bandi, að Lloyd George hafði þessi ummæli, er hann flutti þá tillögu í Parlamentinu á Eng- landi, að nefnd manna væri kos- in til þess að kynna sér vel á- sitæður fólks þess, sem í kola- námum landsins vinna, og sjá á hvern hátt hægt væri að bæta kjör þess, og skyldi sú nefnd vera búin að ljúka starfi sínu 31. marz n. k. Og í sambandi við þessa uppástungu gat hann þess, að sextán daga verkfall mundi eyðileggja flest iðnaðar- fyrirtæki, sem í þessu sambandi væri um að ræða. Mr. Peter Wright, formanni verkamannafélagsskapar sjó- og eldmanna á Bretlandi, sem nú er staddur hér í Canada, fórust svo orð í ræðu, er hann flutti í Cal- gary, Alta, á mánudagskvöldið: ‘‘Verkamannafélagsskapur sá er eg er umboðsmaður fyrir, er al- gjörlega einhuga um það, að láta ekki fallast til baka til fyrir- komulags þess og ástands, sem átti sér stað fyrir stríðið.” Hann sagðist og hafa fengið þá um morguninn skeyti, sem tilkynti, að allar deildir verkamanna á Englandi hefðu verið beðnar að senda fulltrúa á sameiginlegap fund með verkveitendum, til að ræða framtíðarmál sín, og að á þeim fundi ætti Lloyd George að vera forsetinn. — í sambandi við verkföll fórust Mr. Wright orð á þessa leið: “pið vitið ekki síður en eg, að verkföll eru dýrs- leg, og það er ekki með þeim, heldur með heilbrigðri skynsemi og rökfastri hugsun, að verka- fólkið fær í framtíðinni þær rétt- arbætur, sem það á heimtingu á.’ Nýdáinn er í Oswego Dr. Ma- ry Walker, 87 ára gömul, merk kona. Hún var sú fyrsta og eina kona í Bandaríkjunum, sem fékk leyfi congressins til þess að klæðast karlmannabúningi, og hélt því fram að allar konur ætti að gjöra það sama. Daglega var hún búinn í frakka, karl- mannsbuxur og skó, og gekk með háan silkihatt á höfði. Hún var öflugur tálsmaður kvenrétt- indamálsins og fór vanalega einu sinni á , ári til Washington í þeim érindum. f þrælastríðinu gekk hún í her norðanmanna sem læknir, og var tekin til fanga af sunnanmönnum- Fyrir fram- komu sína í stríðinu veitti cong- ressinn henni heiðursorðu. Hún giftinst á unga aldri, en sú sam- búð varð stutt, og þau skildu. Efitir það var Dr. Mary Waker ófáanleg til þess að minnast á hjónáband sitt. Kvenfrelsismálið var aftur felt í Senatinu með einu atkvæði. Verkamenn hafa ákveðið að halda almenna fundi um öll Bandaríkin, til þess að mótmæla vínbanninu. — Oentra 1 verka- mannafélagið í Brooklyn, er tel- ur 150,000 meðlimi, hefir gengið í félag þeira verkamannafélaga, sem hafa ákveðið að berjast á móti vímbanninu. — Miðstjóm! verkamannafélaganna í New York hefir ákveðið að láta greiða atkvæði innan félaga þeirra, sem henni tilheyra, um það, hvort að meðlimir félaganna vi’lji að verk-i fall sé hafið, til þess að mótmæla vínsölubannslögunum. Verka- mannafólögin í Essex County, er telja 75,000 meðlimi, hafa sam- þykt að mótmæla lögunum, sem þeir nefna “æsingalög”; og hafa látið búa til hnappa, sem á er letrað: “No Beer, no Work” — ef ölið er tekið frá oss, neitum vér að vinna. Einnig hafa verka- mannafélögin í ark N. Y., tekið það sama upþ. Tvær miljónir jámbrautar- þjóna, og annara, sem við jám- brautir vinna í Bandaríkjunum, og sem segjast tala í nafni átta miljóna íbúa, hafa sent áskoran til Congressins um að gjöra allar járnbrautir ríkisins að þjóðeign, og að.þær skuili vera starfrækt- ar af nefnd manna, sem séu tekn ir úr hópi verkamanna, og að all- ir verkamenn brautanna skuli vera hlufchafar í arði þeim, sem af þeim kann að verða. Forséti Bandaríkjanna, Wil- son, kom til Bosfcon á mánudag- inn var, og var honum fagnað af fólksfjölda miMum- Og eftir að móttökufögnuðinum lauk flutti forsetinn ræðu um alþjóða sambandið i Meohanic Hall þar í borginni. Að henni lokinni fór hann á gistihús þar í borginni, sem kallað er Copley Plaza En kl. 2 e. h. kom maður inn í gest- gjafahúsið og krafðist þess að fá að ná fundi Wilsons forseta tafarlaust. Mönnum leizt ekki sem bezt á komumann, og var hann tekinn fastur. f vasa hans fanst hlaðin piarghleypa, og þykjast menn Cekki í neinum vafa um hvert erindi mannsins var við forsetann. Tíu menn hafa nú verið fceknir fastir í sam bandi við þésa tilraun. Hveitiverð í Bandaríkjunum hefir verið ákveðið $2.26 fyrir mælinn árið 1919. \ nefnda í sambandi við friðar- þingið. Frakkar krefjast fullra skaða- bóta af pjóðverjum, og fórust M. Klotz fjármálaráðherra Frákka svo orð í sambandi við fjármál Frakklands, nýlega: “Vér krefjumst þess, að Pjóð- verjar borgi að fuHu það, sem þeir skulda oss. Og vér krefj- umst að forgönguréttur vor til borgunar í sambandi við sumar af kröfum voram, sé viðurkend- ur. Og ennfremur að fjármála- nefnd alþjóðasambandsins gefi tryggingu fyrir því, að skaðabæt ur þær, sem Frökkum verða á- kveðnar, verði greiddar.’’ — í sambandi við skattamál tók Mr. Klotz það fram, að á stóreigna- menn yrði skattur lagður, sem þó, til þess að taka ekki fyrir alla framleiðslu, yrði jafnað nið- ur á margra ára tímabil. En skattur á almenningi yrði gerð- ur eins léttur og nokkur föng væru á. — Hann minti á, að hann hefði sagt að útgjöld þjóðarinn- mundu mega til með að þrefald- ast frá því sem þau vora síðast- liðið ár — úr 5,000,000,000 fr. Hann sagðist 'því miður vera hræddur um að næsta árs — eða þessa árs útgjöld Frakka, þyrftu að fara upp í 18,000,000,- 000 franka. pýzkaland. Óeirðir miklar hafa Bolshe- vikimenn í pýzkalandi gjört að undanfömu. Spartacans hafa náð yfirhöndinni í Bavaríu og myndað þar Soviet-stjórn. Enn- fremur er sagt að borgin Mun- chen sé faillin í hendur uppreist- armönnum, og að ókyrðir miklar séu í Ruihr- og Rínfylkjunum. 0r borginni og nágrenninu. Árni bóndi- Sveinsson frá QJen - boro, Man., kom til bæjarins í vikunni til þess að vera á Elm- skipafélagsfundi. Mr. Sigurður Jöhnson frá Minnewaukan kom tiil bæjarins í vikunni. Hann var á leið til Langruth, þar sem ihann bjóst við að dvelja vikutíma. * Til bæjarins komu í síðustu viku þeir herrar Jón Sigurðsson sveitaroddviti frá Víðir, Bjami sveitarráðsmaður frá Hnausum og Halldór Erlendsson frá Ár- borg. peir komu til þess að fara á fund fylkisstjómarinnar í sambandi við sveitarstjómar- mál sveitar sinnar. Mr. Guðmundur Backman frá Lundar, og sonur þans, voru á ferð hér í bænum í vikunni sem leið. Mr. Backman kom til að mæta á fundi smjörgjörðar- manna, sem haldinn var hér í borginni. Mr. Magnús Pétursson bóndi frá Langrutih kom til bæjarins í vikunni sem leið. Hann kom á- samt Böðvari bónda Jónssyni og fleirum úr þeirri bygð, til þess ’að finna fylkisstjómina í sam- bandi við mál sveitar sinnar. Mr. Sigurjón pórðarson frá Hnausum kom til bæjarins í vikunni sem leið í verzlunarer- indum. , Dawn of Peace. i jj SlHIII As the suns bright rays shine after rain And nourish flowers and trees. So for the human hearts that thrqb, Now eomes fche dawn of Peace. Each litt’le bird fchat lifts a wing, Each flower beneath the snow. The stalwart, stately forest trees And mighty waves fchat flow: % All now rejoice fchat din of war Is over and fche plight is done. That now once more on fragrant fields There shines a peaeeful sun. The tears that were of sorrow shed Now glisten bright with joy; As mofcher, wife or sweafcheart fair Each fchinks of her dear boy. And even fchose that moum are glad And wifch the rest rejoice. Tho, when the trains are coming in They cannot greet fcheir boys. Yes, When we mention those fchat moum Our hearts are filled wifch pain. For out on silent Flander’s fields, Their thoughts are wifch the slain. For fchose tlhat fought and bravely died For what fchey fchought was right, We always will have oherished fchoughts As long as dawns a ‘light. « I Oih, wilt thou bird in brigbt array Just fly across the -main. And sing besid-e each silent grave, Of all our noble slain. And töll fchem that thro’ sorrow’s douds There shines a little ray. That brings dear memories of fchem Tho’ they are far away. Bergþór Emil Johnson. iiuiiiiHiiiiiiuiiitiiiiiiiiiiimiiiiiiíiiiiHiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiHiiiiiiiiiiiiimiiiiunuuiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuuiiiiiiiuuniiiniii þakkar alla þá ihjálp og velvild sem það hefir notið, en nú sér- staklga fyrir það hve vel dans- leikurinn var sófctur á fimtudag- inn var og hve vel fólkið kunni að skemta sér. — Mynd sú er dregið var um við þetta tækifæri var gjörð af Miss Aðalbjörgu Helgasop, en lukkudráttin-n hlaut O. W. Johnson. Mrs. Helga Davis sá um söluna á verðmiðunum. INGVAR FRANKLIN G00 DMAN (Sonur Ingvars og önnu Good- man á Poinfcs Roberts, Wash., Fæddur 7. nóv. 1902, dá- inn 13. ágúst 1917. Frakkland. pegar M. Clemenreau, forsæt- isráðherra Frakka og formaður friðarþingsins í París, var á ferð frá -heimili sínu á miðvikudags- morguninn í bifreið til skrifstofú sinnar, skaut maður á hann sex skotum. Fyrst skotið braut gluggana á bifreiðinni, annað skotið kom í handlegginn á Mr- Clemenceau, og þriðja fcom í öxl- ina og gekk iþar á hol, fjórða skotið snerti aðeins svolítið. Maðurinn, er banatilræðið veitti, heitir Emile Colin, og er sagður að vera franskur stjómleysingi. Hann sagði lögreglunni síðar, að hann hefði framið verk þetta, af því að hann ihefði skoðað M. Clemenceau óvinveittan verka- mönnum, og að enginn ánnar erv hann ætti sök á þessu. — Sem betur fór, var sár það, er M. Clemenceau fék-k, ekki hættulegt og er hann sagður nú úr allri hættu. Er hann þegar farinn að taka þátt í störfum hinna ýmsu Mr. Andrés Anderson frá Lög- berg P. O., Sask., kom tl bæjar- ins í síðustu viku. Hann sagði vellíðan úr sinhi bygð. Mr. og Mrs. Jón Vium frá Foam Lake komu til bæjarins í vikunni. pau voru á leið til Rodhester, Minn. Mrs. Vium hefir verið heilsulasin undanfar- andi, og> fer þangað til þess að leita sér lækninga. Mr.' Sigurjón Johnson frá Ár- nes P. O, Man., var á ferð hér í bænum í vikunni sem leið. Sagði vellíðan úr sinni bygð. Dansinn sem Jóns Sigurðsson- ar félagið 'hafði í vikunni sem leið á Royal Aleyandra var hinn ánægjulegasti að ölln leyti. Pláss ið er hið prýðilegasta. Dans- salurinn rúmgóður og fallegur og aðrir skrautlegir salir þar sem þeir er ekki dansa geta spilað og skemt sér ó ýmsan hátt. Dans- inn var ágætlega sóttur, eins og aílar aðrar samkomur sem Jóns Sigurðssonar félagið hefir haldið og er það mjög ánægjulegt fyrir Falla fram faðir og móðir þögul að banabeð, syrgjandi sakna sonarin® látna, undrast Drottins dóm. Hví var hraustur, ihuga prúður sveinn á unga aldri dauða dæmdur, áður dagar liðu mætra manndómsóra? Fegurstu vonir, sem framtíð geymdi, voru við hann bundnar. Göfug hugsjón1, hetjuþróttur lofuðu fögru lífi. Hann átti þrá 'þrek að reyna, h-orfði ihátt að marki; foreldrum öllu fórna vildi, gleðja, græða, styðja. Sorgin er sár. Svaraðu heimur — svaraðu vísinda vizka! Svalaðu, iháfleygi heimspekingur, geði grátandi vinal Mörg eru svör margra radda. Vísindin hrópa: Heimska! Sv-arar hinn háfleygi heimspekingur: “Gröfin geymir hinn dána”. / ' Sorgin er sár. Svaraðu, Kristur geði grátandi vina! Kristur svarar hinu klökkva hjarta, ,segir: “Sonur þinn lifir.” Líf er ást — ást mun lifa, hatur og iharmur deyja. Dauðinn er skuggi af skýi syndar, sem hylur helga sól. Sól skín í heiði, á himni dýrðar, bak við bana ský, þar sem líf, leitt úr skugga', nýtur nýrra kjara. Alvaldi Guð aUra manna, verði vilji þinn! Gott er að lifa, Ijúft að deyja: Ást þín öllu ræður. Adam porgrímsson frá Nesi Bréf. Mozart, Sask. 12. febr. 1919. John J. Vopni Esq. Winnipeg. Háttvirti, kæri vinur! Eg sendi þér í þessu bréfi $100.00 frá mér, með N. P- John- son á Mozart. pessa peninga bið eg þig svo vel gjöra og koma á framfæri. Eiga þeir að skift- ast þannig: f heimatrúboðssjóð .... $20.00 f Heiðingjatrúboðssjóð 20.00 Til Dr. Jóns Bjamasonar skóla (starfræksilu) 20.00 Til Jóns Sigurðssonar kvenfélags ........... 20.00 Til\ Gamalmennahælisins 20.00 Alls $100.00 pað er talað mikið um það í íslenzku blöðunum, íslenzka þjóðrækni. Með þessu móti vildi eg sýna þjóðrækni. Vona eg að f jölda margir komi á eftir, þvftékki gef eg mikið fyrir tóm orð og ekkert meira. Með vinsemd og iþakklæti fyr- ir liðna tímann, og óska þér og ykkur álls hins bezta. Einlæglegast og bróðurlegast. A- A. Johnson. Herra Guðmundur Jönsson frá Wynyard kom til bæjarins um helgina og hélt vestur á þriðju- dagskvöldið Hann stundaði fiskveiðar á Winnipegvatni í vetur, en tékur nú til starfa á bújörð, er hann keypti síðastlið- ið haust í félagi við annan mann, ’ skamt frá Wynyardbænum.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.